Alþýðublaðið - 03.06.1927, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 03.06.1927, Blaðsíða 3
ALRÝÐUBtiAÐIÐ 3 Tilkynnlng. Með pví að nú eru liðin 20 ár frá pví, að ég íór fyrst að stunda fjaðrahúSgagnasmíði, pá tilkynni ég hér með heiðruðum almenningi, að ég tek alt að ÍO ára ábyrgð á öllum fjaðradýnum og legu- bekkjum, sem ég verð beðinn um yfirstandandi mánuð (til 4. júlí). Alls konar fjaðrahúsgögn, Dagstofu og Herraherbergis, búinn tíl eftir eigin teikningum og sömu flokkaskiftum og fyrir ófrið. Virðingarfylst. Reykjavík, 3. júní Í927. ■ Jón Helgason. Vinnustofa: Aðalstrætf 14. Illtefflí £Mim\ Glenora \ og íveiti Canadian Maid væntanlegt næstu daga. að sækja salt til Reykjavíkur 'sjálfir. — Heilbrigði góð. Kvefsótt rénandi, var slæm bér um tíma. Sandgerði, FB., 3. júní. Heilsufar. Sjósókn. Heilbrigði ágæt, enginn „kik- hósti“. — Tveir bátar eru í úti- legti, Jón Finnsson og Gunnar Hámundarson. Þeir eru nú í ann- ari sjóferð. Gunnar fékk 18 skpd. I fyrstu ferð, en var að eins 2 daga úti. Jón Finnsson lagði ekki upp hér. Landbátar hafa fengið 7—9 skpd. í róðri. Fjórir Eyja- bátar voru hér, og var afli treg- ari hjá peim, enda að eins sex á bát hjá peim. Allir famir héim aftur. Um daglram og vegis&n. Næturlæknir er í nótt Katrín Thoroddsen, Vonarstræti 12, sími 1561. Þenna dag árið 1657 andaðist enski Iækn- irinn William Harvey, sem fyrstur sýndi fram á hringrás blóðsins. Hann færði einnig rök að pví, að allar lífverur séu komnar úr eggi- Veðrið. Hiti 11—3 stig, 10 stig í Reykja- vik. Norðlæg og austlæg átt. Kyrrlátt veður. Regn eystra. Þurt annars staðar. Otlit: Þurkur og regn skiftist á sama hátt. Norð- anátt á Suðvestur- og Vestur- landi. Loftvægislægð fyrir suð- austan land og önnur suður af Grænlandi. Sjotugur er í dag Einar Sigurðsson verkamaður, Þingholtsstræti 26. Hefir hann Lengi veTÍð félagi „Dagsbrúnar" og áhugasamur Al- pýðuflokksmaður. Hann hefir ný- lega orðið fyrir peirri sorg að missa konuna sína, eins og áð- ur hefir verið sagt frá hér í blaðinu. Frá verltakvennafél. „Frani- sókn“. Með pvi, að síldarútgerðarmenn hafa óskað að taka upp samn- inga við verkakvennaféiagið „Framsókn“ um kaup við síldar- vinnu á næsta útgerðartímabili, verður fundur haldinn í félaginu pegar eftir hvítasunnu, og eru allar konur, sem ætla sér að stunda síldarvinnu í sumar, beðn- ar að mæta á peim fundi, en hann verður auglýstur síðar. Skipafréttir. Verið er að búa vitaskipið „Her- móð“ í flutningaferð til vitanna. Hingað kom skip í gær, sem á að flytja héðan lýsi, hrogn og porskhausa, og annaÖ skip í morgun til Mjólkurfélags Reykja- víkur o. fi. Það á einnig að taka lýsi til útflutnings. Á ísfiskveiðar er verið að búa togarann „Sindra“. Togararnir. „Rarlsefni“ kom af veiðum í gærkveldi með 83 tunnur lifrar, „Jón forseti“ í morgun með 72 tunnur og „Ólafur“ í dag fullur fiskjar. Enskur togari kom hing- að í gær með veikan mann. Lögin frá síðasta alpingi voru stað- fest á priðjudaginn var. Sjálfboðaliðsvinna br í dag við sundskálann, sund- menn beðnir að fjölmenna og koma pegar eftir hádegi, ef peir hafa tíma til, pví að pá stendur bezt á sjó til pess að koma upp bryggjunni. Vísa. Illa berðu fötin fína flestum hættulegur. Það er milli manns og pín meira en húsavegux. Vfsan er eftir Jón S. Bergmann. Var hún ónákvæmt tilfæsrð í greín í blaðinu í gær. Jafnan, en ekki. „að jafnaði", átti að standa í fyrstu greininni í gær, að pingsályktunartillögur fari til sameinaðs alpingis, ef pær taka breytingum í síðari deild. Þá láð- .ist og að geta pess, sem pó sást af efninu, að greinin „Dánumenska ihaldsmanna" var rituð í Stykkis- hólmi. Bókaverzlun sína og bókabirgðir hefir Þor- steinn Gíslason selt Skúla Töm- assyni verzfunarmanni, en verzl- unin heldur áfram á sama stað og verið hefir og heitir áfram „Bókaverzlun Þorsteins Gíslason- ar.“ Gengi erlendra mynta í dag: Sterlingspund............kr. 22,15 100 kr. danskar .... — 121,90 100 kr. sænskar .... — 122,15 100 kr. norskar .... — 117,59 Dollar.....................— 4,56V2 100 frankar franskir. . . — 18,04 100 gyllini hollenzk . . — 183,04 * 100 feullmörk pýzk... - 108.13 Trúarbrögð og kólera. Skamt frá Bomhay á Indlandi er stöðuvatn, sem er heilagt sam- kvæmt átrúnaði Indverja. Er pað talin sálubót að drekka vatnið. Um 5 daga skeið í vor drukku hér um bil 70 000 manns úr vatninu, og gaus við pað upp megn kóleruveiki meðal peirra, er drukkið höfðu. Steinolíalind á Spani. Þar eð haldið var, að steinolía myndi vera í jörðiu í héruðunum Santander og Burgos á Spáni, lét stjórnin par í landi gera nokkrar boranir hjá Cerconte. 30. apríf rákust menn loks á steinolíu á 900 metra dýpi. Gaus hún fram í þykkum straumi, og er hún tal- in vera af beztu tegund. Stein- olíusvæðið er talið munu vera um 20—30 kílómetra að stærð. Geta lindir pessar auðvitað haft mestu pýðingu fyrir Spán. ¥esínF-ls!enzfear fréttir. — FB. Steinsteypurannsóknir. Um átta ára skeið hefir dr. Th. Thorwaldsson, prófessor við Sa»- katchewan-háskólann verið að gera tilraunir í pá átt, að finna einhver ráð, sem kæmu í veg fyrir að „alkali“ [sérstök stein- efnasambönd, stundum kolsýru- blönduð], sem víða er í jörð í SJéttufylkjunum, hefði skaðleg á- hrif á steinsteypu, sem nú er mikið notuð til bygginga hér í iandi sem annars staðar. Hefir blaðið „Saskatoon Star“ pað nú eftir dr. 'lhorwaldsson, að pessar tilraunir séu farnar að bera góðan árangur, og segir blaðið, að hon- um hafi heppnast að búa tii steinsteypu, sem „alkali“ a. m. k. hefir ekki nærri eins skaðleg á- hrif á eins og hingað til hefir raun á orðið. Reynist þetta nú eins og á horfist, þá hefir dr. Thorwaldsson unnið hér hið mesta parfaverk bæði þessu landi og öðrum, par sem líkt stendur á. Er mjög ánægjulegt til pess að vita, að vísindatilraunir dr. Thor- waldsons hafa nú borið pennan. góða árangur. (,,Lögb.“) J. B. Skaptason, höfuðsmaður í Selkirk, er nú um« sjónarmaður fiskiveiða í Mani- tobafylki. íbúatala Kanada. jj er nú talin vera 9 389 300, og hefir fólkinu pá fjölgað í Iandinu um 600 817 síðan 1921. Í slenzkukensl a. f „Lögbergi“ segir svo: „Stjórn- arnefnd Pjóðræknisfélags Islend- inga hefir nýlega samið og sent bréf til formanna skólaráðis í bæj- um peim og byggðum innan vé- banda Manitobafylkis, par sem Is- lendingar eru mannflestir, og far- ið pess á leit, að íslenzkan verði tekin á kensluskrá miðskóla, en slíkt er heimilað samkvæmt úr- skgrði kenslumálaráðuneytisins frá pví í fyrra. — Skólahéruð pau, er nefndin hefir sérstaklega hvatt til pess að sinna málinu, eru Winnipeg, Brandon, Gimli, Sel- kirk, Arborg, Riverton, Glenboro, Baldur, Morden og Lundar.“ Innflutníngur og atvinnuIeysL Kanadastjórnin hefir lagt mikla áherzlu á pað undan farið, að !fá innflytjendur til Kanada. Streyma innflytjendurnir inn í púsundatali Þanuig komu í kring um 20. apríl 6 000 innflytjendur. Innflutningsmálin eru gerð að umtalsefni í ritstjórnargrein í „Heimskringlu“, og stendur svr í greininni, að „áherzlan sé öll lögð á pað, að fá menn til pess að flytja inn í landið, en lítil eða engin forsjá um paö, að útvega innflytjendunum tækifæri til at- vinnu og viðunandi Iifsviðurværis“.. Hólaprentsmiðjan, Hafnarstrætf 18, prentar smekklegast og ódýr- ast kransaborða, erfiljóð og alla smáprentun, sími 2170.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.