Tíminn - 15.09.1942, Blaðsíða 4
404
TniFVTV. þriðjndaginn 15. sept. 1942
102. blað
Smásöluverð á víndlmgunL
Útsöluverð á amerískum vindlingum má eigi vera hærra en
hér segir:
Lucky Strike .. 20 stk. pk......... kr. 2.10 pakkinn
Raleigh ....... 20
Old Gold ...... 20
Kool .......... 20
Viceroy ........ 20
Camel ........ 20
Pall Mall ...... 20
2.10
2.10
2.10
2.10
2.10
2.40
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má útsöluverðið vera
3% hærra en að framan greinir, vegna flutningskostnaðar.
TÓBAKSEINKASALA RÍKISINS.
Avarp til Fram-
sóknarmanna
(Framh. af 2. slðu)
menn eru í minnihluta. Tak-
mark flokksins er að vinna sem
flest kjördæmi, til að efla sem
mest framför lands og þjóðar.
Minnihluti í kjördæmi getur
ekki orðið meirihluti, ef kjós-
endur í minnihluta venja sig á
að kasta atkvæðum á keppi-
nautana. Hvert atkvæði, sem
fellur á Framsóknarflokkinn, í
hvaða kjördæmi sem er, hefir
úrslitaþýðingu fyrir frelsi og
framför landsins.
Framfara og Framsóknar-
menn um land allt! Illa og ó-
maklega hefir verið að ykkur
farið með kjördæmabreytingu
og kjördegi, þegar mest er von
stórtíðinda. Fylkið samt liði á
kjördag. Eflið Framsóknar-
flokkinn meir en nokkru sinni
fyrr. Með því móti tryggið þið
bezt frelsi og framtíð þjóðar-
innar.
Jónas Jónsson,
formaður Framsóknarflokksins.
Skapast möguleikar
(Framh. a/ 1. síðu)
ef til vill verið til bóta að hafa
hann sem samstarfsflokk um
þjóðstjórn.
En bændur og verkamenn
verða að gera sér það ljóst fyrst
og fremst, að án pólitískra sam-
taka þeirra sem aðal uppistöðu,
og án forustu Framsóknar-
flokksins, verður vandinn tæp-
ast leystur, né hjá liruni kom-
izt eftir þessar kosningar.
Yiir landamærín
1. Þegar Framsóknarmenn fluttu
sína sigursælu tillögu um. raímagn á
hvern bæ vildu kommúnistar gera þaö
að skilyrði, að byggðin yrði færð sam-
an, þ. e., að leggja í yrði strjálbýlar
sveitir. Mbl. tók undir' þetta í rit-
stjórnargrein. Próðlegt væri að vita,
hvort tilgangurinn er að fórna Land-
sveit, Hreppum, Vatnsdal. Mývatns-
sveit. HofsfjöUum, Tíminn mun bráð-
lega endurþrenta skrá yfir þær sveitir,
sem kommúnistar og Mbl. vilja leggja
í auðn.
2. Kommúnistar ætluðu að fella
Barða Guðmundsson úr Menntamála-
ráði og koma Nordal í staðinn. Fengu
kommúnistar lánað atkvæði Sigurðar í
Vigur sér til íramdráttar, en tveir
Framsóknarmenn studdu Barða og bar
hann sigur frá hólmi. Þá tilkynnti
Nordal í blaði kommúnista að hann
hefði verið tekinn í óleyfi. En það
sýnir bezt hversu mikið vald kommún-
istar þykjast hafa yfir Sigurði, að þeir
ráðstafa honum eins og væri hann eign
byltingarflokksins, er ekki frjals
maður.
3. Ragnar smjörlíkiskarl hefir hald-
ið áfram að óvirða íslendingasögur,
með því að láta Laxness „þýða" þær
á það mál, sem.þeim félögum þykir
hæfa. Hafa þeir félagar sent út nýja
útgáfu af Hrafnkels sögu Freysgoða í
þeim stíl, auðsýnilega til að skapa at-
vinnu handa Halldóri við prófarka-
lestur og afbökun sögunnar. Sendu
þeir kumpánar öllum alþingismönnum
ritlinginn með fúkyrðum. Sumir þing-
menn endursendu pésann. Aðrir létu
hann ganga til miðstöðva á heimilum
sínum og í þinghúsinu. Almennt er
litið svo á, að Laxness muni eiga von
lítilla vinsælda á Alþingi eftir þetta.
Brot hans varðar allt að 10 þús. kr.
sektum. Halldór Laxness unir því illa
að geta ekki haft atvinnu af því að
gera skrílútgáfu af fornbókmenntun-
um og hefir hið versta orðbragð um
þá þingmenn, sem stöðvuðu athæfi
hans með löggjöf fyrir ári síðan. Má
segja að Halldór hafi skapað sér ill
forlög með hinni auðkeyptu rþjónustu
sinni við stefnu Rússa, er hann setur
sig sjálfan sem bókmenntamann á
bekk með ritstjóra Storms.
4. Mikill ótti hefir gripið marga af
forkólfum Mbl., Alþýðuflokksins og
kommúnista, er þeir sjá dýrtiðina
vaxa með risa skrefum. Loftskeyta-
menn geta haft um 40 þús. kr. á ári,
blikksmiðir yfir 20 þús. Skipstjórar og
ýmsir aðrir sjómenn miklu meira. Sum
ir íðnaðarmenn hafa á annað hundrað
þús. kr. Árið 1932 voru dilkar úr land-
léttum sveitum sunnanlands 5 kr. Nú
mun dilkslátur 15 krónur eða meir.
Vatt
i mjólkursigti
120, 140, 170, 180 og
250 mm.
SamvinnuskóliiM
verðursetturlokt
Inntökuprófin byrja 25. þ. m, kl. 10 i. h.
Skólasfjórinn,
Röskur piltur
á aldrinum 14—16 ára vantar
afgreiðslu Tímans. Gott kaup.
Upplýsingar hjá TIMANTJM,
Edduhúsinu, Lindargötu 9A
Römurykfrakkar
með hettu,
Karlmanna-
rykfrakkar
margar tegundir,
Unglingarykfrakkar,
Kven-vetrarkápur
(model.
Sendum gegn eftirkröfu um
allt land.
Verzlunin FELL
Grettisgötu 57. Sími 2285.
Vefnaðarvöru- og skóverzlun.
Afmæli.
(Framh. af 3. sí6u)
á nokkrum hluta Hamraenda og
Jón, til heimilis hjá foreldrum
sínum að Hamraendum. Þá hafa
þau hjónin og alið upp tvær
stúlkur að mestu. Öll börn
þeirra hjóna eru hin mann-
vænlegustu.
Sigmundur er góðum gáfum
gæddur og óbilandi þreki og
bjartsýni og þeirri trú á sveita-
lífið og mátt íslenzkrar moldar,
sem flestum launar að lokum
eljusamt starf. En í öllu lífi og
starfi Sigmundar hefir kona
hans, sem jafnan hafa haldið
tryggð við átthagana Qg æsku-
heimilið og jafnan einhver
þeirra, eftir því sem þörf hefir
verið fyrir, starfað með for-
eldrum sínum að búskapnum
og að því að gera æskuheimilið
að því fyrirmyndarbýli, sem
raun er á orðin.
Þó æviár Sigmundar séu orð-
in svona mörg, er hann enn að
flestu leyti sem miðaldra mað-
ur, ungur í anda og jafnan
glaður og reyfur. Hann er víð-
sýnn og þroskaður í hugsun og
því einlægur samvinnumaður
og ein af traustustu stoðum
samvinnunnar í héraði sínu.
Han ner mjög vinsæll, enda
gestrisinn mjög og greiðvikinn.
Það munu því margir heim-
sækja hann á þesum tímamót-
um í ævi haíis og votta honum
vináttu og virðingu, en þó færri
en vildu. En þeir, sem álengdar
sitja án þes sað geta komið
slíku við, munu senda honum
í anda hamingjuóskir og þakk-
ir fyrir margar ánægjustundir.
12. sept. 1942,
Jón Hallvarðsson.
Mikil er sú blessun sem stjórnarskrá
upplausnarinnar hefir gefið þjóðinni.
Og þó skjálfa Ásgeir Ásgeirsson og
aðrir af feðrum upplausnarinnar, af
hræðslu við dóm fólksins á kjördegi.
Væntanlega mega þeir þá óttast dóm
síðari tíma. XxY
Þau 7—10 ára börn, sem stunda eiga nám í Laugarnesskólan-
um í haust og n. k. vetur, eiga að mæta í skólanum sem hér segir:
FIMMTUDAGINN 17. sept., kl. 1—4 e. h. öll 7 ára börn(fædd 1935).
FÖSTUDAGINN 18. sept., kl. 10—12, öll börn fædd 1934, 1933 og
1932, sem ekki voru í skólanum síðastliðinn vetur.
SAMA DAG kl. 1—2 e. h. mæti öll þau börn 8, 9 og 10 ára (fædd
1934, 1933 og 1932), sem stunduðu nám í skólanum 1941—42.
Geti börnin ekki mætt, eru foreldrarnir beðnir að gera
grein fyrir fjarveru þeirra.
Athygli skal vakin á því, að Höfðaborg og nýja byggðin á tún-
unum austan Héðinshöfða eiga skólasókn að Laugarnesskóla og
einnig byggð öll við Bústaðaveg austan Mjómýrarvegar.
Laugarnesskóla, 12 sept. 1942.
SKÓLASTJÓRINN.
GAMLA BÍÓ-
Verð á sandí, möl og mulningi
hjá sandfoku og grjótnámi bæjarins
verður frá 14. septemþer 1942 sem hér segir:
Sandur ............. kr. 1,25 pr. hektólítra
Möl nr. I............— 1,45 — —
Möl nr. II ..........— 2,80 — —
Möl nr. III .......... — 2,00 — —
Möl nr. IV .......--------1,35 — —
Óharpað efni....... — 3,50 — ^—
Salli.................— 4,15 — —
Mulningur I ........ — 4,70 — —
Mulningur II ...... — 4,70 — —
Mulningur III . ..____ — 3,60 — —
Mulningur IV ....... — 3,60 — —
BÆJARVERFRÆÐINGUR.
Kjörskrá
til alþingiskosninga í Reykjavík er
gildir fyrir tíniabilið 23. júní 1942 til
22 jjfiíní 1943, liggur frammi almenn-
ingi til sýnis í skrifstofu bæjarins,
Austurstræti 16, frá deginum á morg-
nn til 26. þ. m. að báðnm dögum með-
töldum, alla virka daga frá kl. 9 f. h.
til 6 e. h.
Kærur yfir kjörskránni skulu
komnar til borgarstjóra eigi síðar en
26. þessa mánaðar.
Rorgarstjórinn í Reykjavík
13. sept. 1942.
RJARNI RENEDIKTSSON.
*m*m>^m<mm*Fi0*+>mi0^&
Æskan
á leiksviðinu
(Babes in Arms)
Metro-Goldwin-Mayer-
söngvamynd.
Aðalhlutverkin leika:
MICKEY ROONEY
og
JUDY GARLAND.
Sýnd í dag kl. 7 og 9.
Framhaldssýning 3%-8y2:
Fálkinn
Leynilögreglumynd.
.nýja bíó .
Fulton
hugvitsmaðnr
(Little Old New York)
Söguleg stórmynd um
fyrsta gufuskipið og höf-
und þess.
Aðalhlutv. leika:
RICHARD GREEN,
ALICE FAYE,
FRED MAC MTJRRAY.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
»4*^^^'^^^+*^^^<\
F j arr ckstr ar
til Reykjavikur eru hafnir
og viðskipti í stórum stil eiga sér stað milli bænda og
borgarbúa.
Samvinnubændum skal bent á, að
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis
er stærsta og fullkomnasta verzlunarfyrirtæki höf-
uðborgarinnar, þar sem úrval er mest og vöruverð
lægst. lægst. Vér seljum:
Matvöru, Vefnaoarvöru, Rúsáhöld,
Skó, Jarðyrkjuáhöld og önnur verk-
færi, Bækur o. m. f 1.
og getum því verið yður hjálplegir um flest það, sem
yður vanhagar um.
Verzlanir vorar- eru á eftirtöldum stöðum í bænum:
Matvara:
Skólavörðustíg 12
Rverfisgötu 52 (verkfa»ri)
Grettisgötu 46
Vesturgötu 33
Bæðraborgarstíg 47
I»vervegi 2 (Skerjafirði)
Vefnaðarvara:
Hverfisgötu 26
Skór og búsáhöld:
Rankastræti 2
Bækur:
Alþýðuhúsinu
SAMVIMM SKAPAR SANNVIRÐI
N^kaujiíélaqié
H»*«
Nokkrar saumastúlkur
og lærlingar geta fengið atvinnu við kápusaum eða líkan sauma-
skap, nú þegar eða síðar. Björt og skemmtileg húsakynni.
Hátt kaup.
F E L D U R H.F.
AUSTURSTRÆTI 10, SÍMI 5720.
Þúsnndir vlta
að gæfan fylgir trúlofunar-
hringunum frá SIGURÞÓR.
Sent gegn postkröfu.
Sendið nákvæmt mál.
Egill Sigurgeirsson
hæstaréttarmálaflutningsmaður
Austurstræti 3 — Reykjavík
Anglýsið í Tímannm!
Auglýsing um kennslu
og einkaskóla*
Berklavarnalögin mæla þannig fyrir samkvæmt 9. gr. þeirra:
„Enginn, sem hefir smitandi berklaveiki, má fást við kennslu
í skólum, heimiliskennslu né einkakennslu.
Engan nemahda með smitandi berklaveiki má taka í skóla,
til kennsluá heimili eða til einkakennslu.
Engan nemanda má taka til kennslu á heimili, þar sem
sjúklingur með smitandi berklaveiki dvelur."
Allir þeir, sem stunda ætla kennslu á komandi hausti og
vetri eru því beðnir um að senda tilskilin vottorð fyrir sig og
nemendur sína í skrifstofu mína, hið allra fyrsta, og mega þau
ekki vera eldri en mánaðargómul.
Þá er ennfremur svo fyrirmælt í ofangreindum lögum:
„Enginn má halda einkaskóla, nema hann hafi til þess
skriflegt leyfi lögreglustjóra og skal það leyfi eigi veitt, nema
héraðslæknir telji húsnæði og aðbúnað fullnægja heilbrigðis-
kröfum, enda liggi tilskilin læknisvottorð um að hvorki kennari
eða aðrir á heimilinu né neinn nemandanna séu haldnir smit-
andi berklaveiki." '
Þeir, sem hafa í hyggju að halda einkaskóla, eru áminntir
um að senda umsóknir sínar til lögreglustjórans í Reykjavík hið
allra fyrsta, ásamt tilskildum vottorðum.
Það skal tekið fram, að þetta gildir einnig um þá einka-
skóla, smáa sem stóra, er áður hafa starfað í bænum.
Umsóknir um slíka einkaskóla utan lögsagnarumdæmis
Reykjavíkur, en innan takmarka læknishéraðsins, má senda í
skrifstofu mína.
Héraðslæknirinn í Reykjavík, 11. sept. 1942.
MAGNÚS PÉTURSSON.