Tíminn - 22.09.1942, Side 4
416
TlMITVTV, |»r18jiitlaginn 22. sept. 1943
105. blað
Frauiioknarmenn
um land allt!
Ef þið eruð ekki á kjörskrá,
er kærufrestur tíl 26. sept.
Framsóknarmcnn, sem farið að heiman fyrir kjördag, 18. októher,
munið að kjósa áður en þið farið, hjá næsta hreppstjóra eða sýslu-
maimi.
Framsóknarmenn, sem eruð fjarverandi og verðið Jþað fram yfir
kjördag, 18. október, munið að kjósa hjá næsta hreppstjóra, sýslu-
manni eða skipstjóra ykkar, svo að atkvæðið kornizf heim sem allra
fyrst eftir 23. sept., en þá hefjast atkvæðagreiðslur utan kjörfunda.
Leitið allra upplýsinga og aðstoðar hjá kosningafulltrúum flokksins,
kosningamiðstöðvum kjördæmanna og kosningaskrifstofuni í Rvík,
Edduhúsinu, Líndargötu 9 A.
Nímar: 50§8 og 8888.
Tímann vantar duglega krakka til að bera
út blöð til kaupenda. — Gott kaup.
Upplýsingar gefuí Elín Daníelsdóttir á afgreiðslu Tímans í
Edduhúsinu við Lindargötu. — Sími 2323.
Rö§kan piflt
vantar afgreiðslu Tímans nú þegar.
Gott kaup.
Orðsendtng
til húseigenda í Rafnarfirði.
Húseigendum í Hafnarfirði er hér með bent á, að óheimilt er
lögum samkvæmt, að leigja öðrum en heimilisföstum innanhér-
aðsmönnum íbúðarhúsnæði.
Vegna húsnæðiseklu í bænum verður haft strangt eftirlit með
að ekki sé út af brugðið.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
18. okt. 1942
tíR BÆNIJM
Árásir á íslendinga.
Síðan dagur fór að styttast hefir
borið meir en áður á árásum á ís-
lendinga. Á fimmtudagskvöldið í síð-
ustu viku réðist maður á konu, um
U-leytið, á Njálsgötunni. Barði hana í
höfuðið með steinl og hlaut konan
talsverðan áverka af því. Þó komst
hún á lögreglustöðina og gerði aðvart
um árásina.
Einhver kunnasti píanósnilling-
ur Breta í Reykjavík.
Brezki pianosnillingurinn ungfrú
Kathleen Long, er komin til Reykjar
víkur og mun hún halda hér nokkra
hljómleika á vegum Tónlistarfélagsins.
Það mun ekki ákveðið ennþá hvefsu
oft ungfrúin heldur tónleika fyrir ís-
lenzka áheyrendur en vafalaust verður
um auðugan garð að gresja á hljóm-
leikaskránni.
Knattspyrnumótin.
Nýlega er lokið II. fl. og III. fl.
knattspymumótunum hér í bænum.
Valur vann í II. flokki og K. R. í III.
flokki.
Benedikt Jakobsson,
leikfimikennari, hefir verið ráðinn
íþróttaráðunautur bæjarins.
Kaupgjald og verðlag
(Framh. af 3. síöu)
ið 3.50, eða rúmlega sexfalt.
Móts við verkakaupið hefði
mörinn átt að vera kr. 5.60 kg.
Launamenn fengu allmiklu
meiri mör fyrir vinnustund.
Ullarverð var 1.95 1913, 1.80
1914. Óvíst er nú um ullarverðið
1941, en áætlað 4.50, ekki þre-
falt. Til samræmis öðru ætti
ullarverð að vera nú kr. 18.00
pr. kg.
Smjör verð var 1.40 1913, 1.42
1914. 1941 var smjörið 7—8 kr.
Nýlega hefir það hækkað upp
í 11.00 kr. kílóið. Þrátt fyrir
„geypiverð" á smjörinu er það
þó enn í drjúgum lægra verði
eh fyrrum og meira smjör fæst
fyrir vinnustund.
Mjólk var ekki almenn verzl-
unarvara hér um slóðir fyrir
1914 en mun hafa verið seld á
10 aura lítrinn. Til samræmis
dýrtíðinni á öðrum sviðum
þyrftu bændur nú að fá 1 krónu
fyrir lítrann, en fengu viðast
50 aura eða minna 1941. Launa-
menn hafa þá komizt að.hálfu
betri mjólkurkaupum.
Jarðepli voru 3,00 100 kg. fyr-
ir 1914, en síðastliðið haust 40
—45 kr. 100 kg. Hefðu átt að
vera 80.00 kr. Fengu neytendur
þau á hálfvirði.
VII. Öfugstreymi.
Krónan hefir annað verð-
gildi i sveitum hér nyrðra en í
höfuðstaðnum. „Allt er svo ó-
dýrt í sveitinni.“ En hvers
vegna? Vegna þess, að þjóðar-
búið borgar bændum færri aura
fyrir hvert handtak en launa-
mönnum kaupstaðanna. Af-
urðaverð bændanna samsvarar
ekki lengur kaupgjaldi neins-
staðar á landinu. Allur almenn-
ingur hagar lífi sínu eftir hag-
fræðislögmálinu: Sem mesta
peninga með minnstu erfiði.
Meðan kaup er hærra í stærri
kaupstöðum en annars staðar,
leitar fólkið þangað með þung-
um straumi samkvæmt órjúf-
andi lögmáli eins og árnar, sem
falla til sjávar.
Við bændur höfum lægst
kaup og lengstan vinnutíma.
Við, sem enn hjörum í sveitum
erum straumkljúfar. En hver
veit, ef þessu misrétti heldur
áfram, hve lengi verður stætt.
Áður fyrri, meðan jöfnuður
var um afurðir og kaupgjald,
komu jafnan stórir hópar
kaupamanna ríðandi frá ver-
stöðvum, norður yfir K^jöl og
Sprengisand, í sláttarbyrjun.
Nú er þessi straumur öfugur.
Þegar vorannirnar hefjast leit-
ar fjöldi ungra manna úr sveit-
um í vorannir kaupstaðanna,
að síldinni og sjónum, vega-
vinnu eða eitthvað annað. Sum-
ir koma aftur með fullar hend-
ur fjár, og halda áfram að berj-
ast móti straumnum með feðr-
um sínum. En aðrir hverfa í
fjöldann, sogast í mannhaf
borganna, glatast sveit sinni.
(Eftir að pistill þessi er ritað-
ur, heyrðist um hækkað afurða-
verð í haust. En jafnhliða um
gífurlegar kauphækkanir, svo
að ennþá fá bændur lægst kaup
allra, og launamenn þurfa enn-
þá færri vinnustundir til að
borga afurðir en var að fornri
landvísu. N. N.)
Sjálfstæðísflokkurinn
er að gliðna sundur
(Framh. af 1. siöu)
Einu sinni sjáum við strákarnir
hvar karl er að staulast og ætl-
ar yfir brúna. En af því hann
sá ekkert, hafði hann tekið
skakka stefnu, framhjá brúnni.
Við köllum til hans í mesta of-
boði og biðjum hann að vara
sig. En það var ekki verið að
taka mark á slíku. „O, ég sé, ég
sé“, sagði Palli gamli og stakkst
beint á hausinn í lækinn.
Það er sök sér að vera sjón-
laus og viðurkenna það ekki,
hafa að engu aðvaranir, og
detta beint á hausinn í lækinn.
Þetta er allt gott og blessað. En
þegar blindingjarnir þykjast,
eftir allt saman, einir til þess
kjörnir að leiða aðra, fer skör-
in, sannast að segja, að færast
upp í bekkinn. Ég hefi rekið
mig á það furðu oft, að sjón-
leysingjarnir eru miklu ánægð-
ari með sína blindu, en heil-
brigðir með sina sjón.“
Árni segir ennfremur, að ráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins hafi
ætlað að framkvæma gerðar-
dóminn eins og ekkert væri,
eftir að samstarfið við Fram-
sókn slitnaði.
„Síðan bera þeir fram frum-
varp um afnám þessara laga,
og lýsa því yfir, að þau hafi
aldrei frá upphafi verið hald-
in! Þeir héldu sinni tign eftir
sem áður, en flokkurinn þeirra
tók skellinn. Þessi sami flokkur
á að halda áfram að treysta
þessum mönnum og þakka þeim
fyrir að espa alla launamenn
landsins gegn sér, vegna
skammsýni og sjálfbirgings-
háttar. Morgunblaðið er tilval-
ið altari fyrir slíkar þakkar-
fórnir.
En svona er þetta í flestum
greinum.. — — — Ráðherrun-
um fannst nauðsyn á að safna
glóðum elds að höfði sér áður
en undan var látið. Þegar upp
á þvi var stungið í fyrravetur,
að gera alla flokka ábyrga um
stjórn landsins, var þessu tekið
sem mestu fjarstæðu. Nokkrum
mánuðum síðar talar Morgun-
blaðið um það, fyrir munn.Ól-
afs Thors, eins og sjálfsagðan
hlut, að allir • flokkar vinni
saman. En í millitíðinni höfðu
deilur magnazt og ráðherrum
Sjálfstæðísflokksins tekizt að
hrinda frá sér fylgi í stríðum
straumum. Það má mikið vera
ef vísan sú arna hefir ekki verið
kveðin um þá, sem öllu ráða í
Sj álf stæðisf lokknum:
Greindin er býsna grunn,
það geta menn séð á því,
þeir byrgja svo hróðugir brunn
þegar barnið er dottið í.“
Loks segir Árni um flóttann
úr Sj álfstæðisflokknum:
„Flóttinn úr Sjálfstæðis-
flokknum verður ekki stöðvað-
ur. En það má reyna að stöðva
flóttann frá sjálfstæðisstefn-
unni. Þessa tilraun er ég að
gera. Kommúnistarnir hafa
skilið þetta betur en yfir-rit-
stjórn Morgunblaðsins. Þjóð-
viljinn segir:
• „... .skriðán frá íhaldinu
verður ekki stöðvuð og upp-
reisnin gegn Thorsaravaldinu
ekki leidd í falskan farveg,
hvaða ráðum, sem beitt verð-
ur. — — —“
Eins og sjá má af þessum
pistlum úr grein Árna, fer hann
fremur mjúkum höndum um
fyrrverandi húsbændur sína,
þótt háð og fyrirlitning gægist
alls staðar fram á milli línanna.
En í greinarlok gefur hann for-
ingjum Sjálfstæðisflokksins
þetta heilræði: „Þið ættuð að
vera svo „klókir“, að biðja mig
ekki að svipta af ykkur grím-
unni.“
Landnám
(Framh. af 1. síðu)
ræktuð. Fólkið kann vel við sig
í sveitinni og börnin una hvergi
nema hjá foreldrunum. Mikil
og góð áveitulönd eru undir-
staða þéttbýlis í Þykkvabæn-
um. Víðast annarsstaðar verður
túnræktin grundvöllurinn.
Fólkið í sveitum, bæði eldri
kynslóðin og unga fólkið, þarf
að sameinast í baráttunni fyrir
hinu nýja landnámi. Auk mik-
illa skiptinga á gömlu jörðunum
þarf að mynda 2—3 nýbyggða-
hverfi í hverri sýslu.
Ný föt fyrír gömuL
Látið oss hreinsa og pressa
föt yðar og þau fá sinn upp-
runalega blæ.
Fljót afgreiðsla.
EFNALAUGIN TÝR,
Týsgötu 1. Sími 2491.
Sundnámskeíð
hófust að nýju í Sundhöllinni
mánudaginn 21. þ. m. Þáttak-
endur gefi sig fram sem fyrst.
Upplýsingar í síma 4059.
SUNDHÖLL
REYKJAVÍKUR.
Lesendur!
Vekið athygli kunningja yð-
ar á, að hverjum þeim manni,
sem vill fylgjast vel með al-
mennum málum, er nauðsyn-
legt að lesa Tímann.
Egill Signrgeirsson
hsestaréttarmálaflutningsmaður
Austurstræti 3 — Reykjavík
Vinnið ötullega fyrir
Tímann.
GAMLA BÍÓ
Ævintýri
í kveimaskóla
(Forty Little Mothers)
EDDIE CANTOR,
JUDITH ANDERSON,
BONITA GRANVILLE.
Sýnd kl. 7 og 9.
Framhaldssýning 3Y2-6V2:
DULARFULLA
SKIPATJÓNIÐ
Nick Carter-leynilögreglu-
mynd.
Bönnuð börnum innan
12 ára.
———-NÝJA BÍÓ 1
Fridarvínur
á flótta
(Everything Happens
at Night)
Aðalhlutverkið leikur
skautadrottningin
SONJA HENEI,
ásamt
RAY MILLAND
og
ROBERT CUMMINGS.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
-i u
FJarrek strar
til Reykjavíkur ern hafnir
og viðskipti í stórum stíl eiga sér stað milli bænda og
borgarbúa.
Samvinnubændum skal bent á, að
Kaupfélag Reykjavíkur og nágreimis
er stærsta og fullkomnasta verzlunarfyrirtæki höf-
uðborgarinnar, þar sem úrval er mest og vöruverð
lægst. Vér seljum:
Matvöru, Vefnaðarvörn, Rúsáliöld,
Skó, Jaröyrkjuáhöld og öirnur verk-
færi, Rækur o. m. fl.
og getum því verið yður hjálplegir um flest það, sem
yður vanhagar um.
Verzlanir vorar eru á eftirtöldum stöðum í bænum:
Matvara:
Skólavörðustíg 12
Mverfisgötu 52 (verkfæri)
Grettisgötu 46
Vesturgötu 33
Bæðrakorgarstíg 47
I»vervegi 2 (Skerjafirði)
Vefnaðarvara:
Hverfisgötu 26
Skór og búsáhöld:
Rankastræti 2
Bækur:
Alþýðuhúsiuu
SAMVIMAN SKAPAR SAAAVIRRI
^ökaupfélaqié
Aðal-
sanðfjarslátrnn
■ <
þessa árs er hafin. — Hér eftir seljum vér því daglega:
Kjöt, slátur, svið, mör, lifur og Iijörtu.
Dilkaslátur kosta kr. 7.50 hvert og mör kr. 6.50 kg.
Næstu daga munum vér reyna að senda slátur heim til
þeirra, er þess óska, — þó því að eins að tekin séu 5 eða fleiri
í senn.
Sláturtíðin verður stutt að vanda og því æskilegt að við-
skiptavinir geri innkaup sín sem fyrst. Seinustu dagana er ó-
mögulegt áð fullnægja öllum.
SLÁTIJRFÉLAG SlÐURLAIVnS
Sími 1249 og 2349.
Fasteignaeigendafélafi fleyh§aví1&ur
Tilkynning til húseigenda
Samkvæmt liinni nýju Iiúsaleiguvísitölu
hækkar grunnleigug}ald fyrir liúsnæði frá 1.
okt. 11. k. um 25% í stað 14% til þess tíma.
STJÓRMA.
Bóndi - Kaupir þú húnaðarblaðið FREY?