Tíminn - 10.11.1942, Page 2
530
TfMINN, þriðjjiidagtim 10. nóv. 1943
134. blað
Á KROSSG0TUM
^ímirrn
Þriðjudag 10. nóv.
GUNNLAUGURPÉTURSSON
í grein þeirri, sem hér fer á eftir, er rætt um íhalds-
stefnuna í höfuðstað landsins og hin margháttuðu áhrif
hennar þar. Meðal annars er vikið að sérkennilegri hús-
gagnasölu, sem hefir átt sér stað að undanförnu, og kröf-
um sjúkrasamlagsins um lyfjabúð.
Afstaðan til
ríkisvaldsins
Munur hinna þriggja aöal-
stefna, samkeppnisstefnunnar,
sósíalismans og millistefnunnar,
kemur ljóst fram í afstöðu
þeirra til ríkisvaldsins.
Samkeppnisstefnan telur það
aðalhlutverk ríkisins að gæta
hagsmuna hinna fáu útvöldu,
sem sigrað hafa í samkeppninni.
Ríkið á að halda uppi lögum og
lögregiu til*að vernda eignarétt
og forréttindaaðstööu þeirra.
Umfram það ber ríkinu að hafa
sem minnsta íhlutun og umsvif.
Ríkið á elcki að beitast fyrir um-
bótum og framkvæmdum, því að
slíkt getur komið við pyngjur
efnamannanna. Ríkið á ekki að
gangast fyrir mikilli alþýðu-
menntun, því að hún getur orð-
ið yfirstéttinni hættuleg. Æðri,
menntun skal vera kostnaðar-
söm, svo aðeins börn efna-
manna geti notið þeirra for-
réttinda, sem hún veitir (sbr.
baráttuna gegn Akureyrar-
skóla). Tekna skal ríkið afla
með tollum, því að skattar
ganga á hlut efnastéttarinn-
ar. Atvinnulífið skal látið af-
skiptalaust á venjulegum
tímum til þess að efnamenn-
irnir geti hagnýtt fjárafla-
möguleikana til fulls, en á
erfiðum tímum er réttmætt, að
ríkið geri ráðstafanir til að
koma hallarekstri, sem verða
kann hjá efnamönnum, yfir á
bak almennings i landinu.
Sósíalisminn er vaxinn upp úr
minnimáttarkennd þeirra, sem
hafa farið mest halloka fyrir
hinum sterku, umsvifamiklu
einstaklingum. Hann sér ekki
annað ráð til að lama yfir-
drottnun þeirra en að gera ríkið
almáttugt. Það á að eiga allt og
annast allan atvinnurekstur.
Allir eiga að vera þjónar þess.
Það á að skipta jafnt á milli
allra. Undir handleiðslu guð-
borinna mannvera myndi þetta
skipulag kannske heppnazt, en
í höndum venjulegra manna er
hætt við, að hinn góði tilgang-
ur bíði fljótlega skipbrot. Hin
eðlilega þrá mannsins til sjálfs-
bjargar og nokkurs umráðarétt-
ar er bundin í viðjar. í hendur
þeirra, sem hlotnast umsjón
ríkisvaldsins, fellur meira vald
en nokkur af smákóngum sam-
keppninnar hafði áður. Slíkt
er engum hollt. Þróunin yrði
því brátt sú, að völdin öll dræg-
ust í hendur örfárra manna eða
eins manns, líkt og reyndin
hefir orðið í Rússlandi. Hin só-
síalistiska tilraun myndi því
fljótt enda með einræði og yrði
heldur ekki hrundið af stað,
nema með meiri harðýðgi og
athafnaskerðingu en frjálshuga
menn teldu viðunandi.
Millistefnan þræðir bil beggja.
Hún vill gera ríkisvaldið nógu
sterkt til að hindra bolabrögð
hinna yfirgangssömu fjárafla-
manna. Hún vill að ríkið veiti
þeim ekki meiri möguleika til
fjáröflunar en að þeir geti orð-
ið sæmilega bjargálna. Hún vill
enga auðkónga. Hún vill held-
ur enga öreiga. Ríkið á að
hjálpa þeim, sem lakar eru
settir, til aukinnar sjálfsbjarg-
ar. Það á að útvega þeim jarð-
næði, skip og önnur atvinnu-
tæki og styrkja þá til atvinnu-
rekstrarins, ef þörf krefur. En
ábyrgðin á að vera þeirra. Þann-
ig er sjálfsbjargarhvötin efld og
aukin. Rikið á að vera hinn
sterki aðili í þjóðfélaginu, er
jafnar auðinn og aðstöðumun-
inn, hindrar gönuhlaup og ó-
heilbrigða starfsháttu spekú-
lanta og veitir sjálfsbjargarhvöt
þeirra, sem verið hafa minni-
máttar, tækifæri til að njóta
sín. En ríkið á samt ekki að
verða hinn allsráðandi og al-
máttugi aðili, er kæfir allt
frjálsræði í greip sinni. Frelsi
og sjálfsbjargarhvöt einstakl-
ingsins er tryggt áfram hæfi-
legt athafnasvið.
Þetta eru hinar þrjár stefn-
ur, -sem glíma munu um yfir-
ráðin í heiminum á næstu ár-
um. Millistefnan mun áreiðan-
lega falla frjálshuga, dugandi
mönnum bezt í geð. Þ. Þ.
I.
Reykjavík hefir mjög mikið
aðdráttarafl. Þangað vilja allir
komast, bæði ungir og gamlir,
karlar og konur.
Reykjavík er ung og vaxandi,
bæjarbúar hafa yfir að ráða
miklum dugnaði og miklu á-
ræði. Bærinn liggur vel við til
sjósóknar og fengsæl fiskimið
eru ekki langt undan landi.
Jarðhitinn er yfrið nógur á
næstu grösum og ef til-vill und-
ir bænum sjálfum, ef menn
nenna að leita að honum. Útsýn
er mikil og fögur og ekki þarf
nema skammt að fara inn til
landsins, til þess að njóta fjalla-
lofts og fjölbreyttrar náttúru-
fegurðar.
í Reykjavík hefir stjórn
landsins aðsetur sitt, þar er
Alþingi og æðstu menntastofn-
anir. Þar er miðstöð verzlunar
og viðskiptalífs og helztu pen-
ingastofnanirnar, enda meiri
auður þar saman kominn en
nokkurs staðar annars staðar á
landinu. Byggingar eru marg-
ar fagrar og tilkomumiklar. í
Reykjavík er flest það, sem
gleður líkama og sál, og má þar
nefna Sundhöllina og þjóð-
leikhúsið, sem útverði, hvert á
sínu sviði.
Það eru því engin undur, þótt
menn og konur fýsi mjög að
komast til Reykjavíkur.
II.
En Reykjavík gengur með —
og hefir lengi gengið með —
mjög slæman sjúkdóm. Þessi
sjúkdómur er, á máli almúgans,
nefndur íhald. íhaldið hefir
ráðið lögum og lofum í bænum.
Það hefir staðið á móti flestum
umbótum og tekizt að kyrkja
margar í fæðingunni.
Vér skulum gera ráð fyrir, að
Reykjavík hafi að geyma innri
bæ, eins og talað er um „hinn
innra mánn“. Hinn innri bær
er allur sýktur, fúinn og maðk-
smoginn af áhrifum íhaldsins.
Bæjarstjórnaríhaldinu hefir
.t d. tekizt að gera rafmagns-
veitu og gasveitu að gróðafyrir-
tækjum, enda þótt starfræksla
þessara stofnana sé höfð mjög
miklu dýrari en þörf væri, og
Japanskt heimili er lokað
sérhverjum ókunnugum manni.
Óviðkomandi maður getur að-
eins staðið úti fyrir og séð
skuggann af heimilisfólkinu og
börnunum, sem sitja að leikjum
á strásessum á gólfinu, leggja
á þunnar pappírshlífar renni-
hurðarinnar. Þótt regn sé og
útihlerunum hafi eigi verið
rennt fyrir, fellur enginn dropi
á pappírsrúðurnar. Vatnið
drýpur niður af þakskegginu,
er slútir nokkra þumlunga fram
yfir veggina. Inni í hinu lukta
húsi, sem í augum vestræns
manns er keimlíkast ævintýri,
reist af bambus, borðviði og
pappa, hljómar rödd í útvarps-
tæki:
— Morgunverður á mánudegi:
Mísósúpa, 191 hitaeiningar: 100
grömm hýdd hrísgrjón, 50 gr.
kál, 16 grömm steiktar baunir,
30 grömm Mísó, 3 grömm Níbó-
mjöl, 7 grömm olía.
Hádegisverður: Sardínubúð-
ingur, 202 hitaeiningar: 80
grömm þurrkaðar sardínur, 20
eigi — samkvæmt tilgangi sín-
um — að vera rekin með al-
menningsheill fyrir augum. En
bærinn þarf fé og heildsalar og
aðrir gróðamenn og braskarar
— höfuðskepnur íhaldsins —
þurfa minna útsvar að greiða,
ef fátækur almúgi er skatt-
lagður rækilega gegn um raf-
magns- og gasveitu og önnur lík
fyrirtæki.
Aðvífandi öflum hefir stund-
um tekizt að þvinga bæjar-
stjórnaríhaldið í Reykjavík til
þess að veita viðtöku ýmsum
þörfum umbótum. En í fram-
kvæmdinni hefir íhaldið oftast
farið um þær sínum frostköldu,
líflausu loppum og tekizt að
firra þær áhrifum til farsældar
og blessunar.
Áhrif íhaldsins eru þau sömu
í öllum bæjarmálum. Það trúir
á ímyndaðan gullkálf og danz-
ar kring um hann. Heildverzl-
unum fjölgar, allir keppast um
hinn auðfengna, fyrirhafnar-
litla gróða, en útgerð og önnur
nytjastörf ganga jafnótt saman.
Reykvíkingar. eru frægir fyrir
það að selja hver öðrum sama
húsið með ærnum og fyrirhafn-
arlausum hagnaði. Einn góðan
veðurdag lendir húsið í eigu
einhvers viðvanings í listinni.
Hann tapar öllu því, sem hon-
um hefir auðnazt að safna, oft
og einatt með miklu erfiði, við
heiðarleg störf. Hann verður
gjaldþrota og húsið lendir í ein-
hverjum bankanum. Þá koma
hinir bezt metnu húsabraskar-
ar aftur til skjalanna, kaupa
húsið af bankanum og hringrás
gróðabrallsins byrjar á ný og
heldur áfram, unz hún endar
aftur á féflettingu hins fákæna
í listinni, sem oft er þjóðfélag-
inu nýtari þegn en allir brask-
ararnir til samans.
III.
Reykvíkingar hafa fyrir aug-
unum þessa dagana tvö óræk
dæmi um þá ógæfu, sem þjóð-
inni hlýtur að stafa af ráðleysi
íhaldsins.
íslenzkir sjómenn leggja lif
sitt í hættu til þess að koma
fiski til Englands. Þeir fá að vísu
feikna hátt kaup, meira en þeir
grömm hvítkál, 100 grömm
hrísgrjón.
Kvöldverður: Poulettesúpa,
kryddvöndur, Fúrófúkírætlur,
394 hitaeiningar: 162 grömm
hrísgrjón, 100 grömm rætlur.
Skugga hinnar japönsku hús-
móður ber á pappírsrúðurnar.
Hún skrifar — skrifar af mik-
illi nákvæmni orð útvarpsþuls-
ins. Á þessari stundu — regn-
þrungnu sunnudagskvöldi —
sitja miljónir japanskra hús-
mæðra og skrifa máltíðir næsta
dags á minnisblöð sín. Ef að
neyð væri í aðsigi, myndu allar
konur Japans hlýða þessu kalli.
Tadosú Saikí, doktor og pró-
fessor og forstöðumaður nær-
ingarrannsókna-stofnunarinnar
keisarans í Tokíó, kynnir hina
nýju rétti, sem. hann hefir
fundið upp og sannað með til-
raunum sínum, að fullnægja
næringarþörf mannsins og
efnabrennslu líkamans. Hann
býr þjóðina undir stórfenglega
byltingu, sem einskis manns
blóði verður úthellt fyrir, —
hafa ef til vill gott af, sumir
hverjir, en lífshættan er sú
sama fyrir það. í Englandi fá
togaraeigendur og aðrir fisk-
braskarar mikið verð fyrir fisk-
inn. Fyrir þessa peninga er erf-
itt að fá nauðsynjavörur til inn-
flutnings, auk þess sem flestar
þeirra eru háðar verðlagseftir-
liti hér heima. En þar er hægt
að fá ýmsan dýrari óþarfavarn-
ing, sem heildsalarnir geta
grætt á eins og þeim sjálfum
sýnist.
Og nú nýverið hefir einn af
gróðamönnunum fundið upp
nýja aðferð, sem sýnir — betur
en nokkuð annað, — hvern veg
íhaldið ætlazt til að erfiði og á-
hætta íslenzkra sjómanna komi
þjóðinni að notum. Hann hefir
keypt af fornsölum í Englandi
gömul húsgögn úr höllum
starfsbræðra sinna þarlendra.
Húsgögn þessi . eru auðvitað
keypt fyrir andvirði fisksins,
sem fluttur hefir verið til Eng-
lands. Þau eru ákaflega gömul
og eiga að sýna hina og þessa
„stíla“, sem jafnvel eru kenndir
við löngu dána konunga og
hljóta því að vera sérstaklega
„fínir“. Húsgögnin eru ekki til
notkunar fallin, ákaflega ó-
hentug og mörg orðin slitin og
liðuð. En braskaranum hefir
tekizt að setja verðið nógu hátt.
Sum húsgögnin kosta aðeins
sem svarar fáeinum dilkum,
önnur kosta jafn mikið og
nokkrir stórgripir eða sæmileg-
ur vélbátur.
Gróðamaðurinn selur hús-
gögn sín í salarkynnum Hótel
íslands. Aðsókn er mikil. íhaldið
hefir alið bæjarbúa upp í þeim
anda, að þeim þykir stór heiður
að því að kaupa slíka vöru sem
þessa. Hinar pelsklæddu eigin-
konur reykvískra kaupmanna
og heildsala eru þarna tíðir
gestir, enda stríðsgróðastéttin
yfirleitt. Hásetar og yfirmenn á
íslenzkum fiskiskipum hafa
hætt lífi sínu við að afla þess
verðmætis, sem fyrir húsgögnin
er goldið, og koma því á mark-
aðinn.
En uppeldi íhaldsins lætur
ekki að sér hæða. Eiginkonur
þessara sömu sjómanna koma
— sumar hverjar — til braskar-
ans og kaupa af honum gömul
og óhentug húsgögn fyrir það
fé, sem eiginmaðurinn fékk í
áhættuþóknun,- þegar hann afl-
byltingu í mataræði.
Með tilstyrk vísindanna ætl-
ar hann að kenna þjóð sinpi að
neyta heilsusamlegra fæðis en
hún hefir áður neytt. Hann
ætlar líka að samræma matar-
æði hennar þeirri mataröflun,
sem henni er handhægust. Og
hann vill láta ríkið hafa einka-
leyfi til þess að verzla með mat-
væli og koma á stofn stórkost-
legum mötuneytum. Handa
starfsliði í verksmiðjum, nem-
endum í skólum, herliði í setu-
skálum á að matreiða í einu
einasta eldhúsi. Jafnvel íbúar
heilla borgarhverfa eiga allir
að snæða við sömu langborðin.
í Japan skál daglegt fæði ekki
kosta nema brot úr því, er við-
urværi manna í Vestúrlöndum
kostar, og við þetta kostnaðar-
litla lífsuppihald eiga launa-
greiðslurnar að miðast.
Tilraunastöð þessa furðulega
prófessors er í senn mjög um-
töluð og þó fáum kunn. Þar er
safnað saman ýmiskonar mat-
vælum. Ef mikil hætta steðjar
að Japan, á þessi stofnun að
forða þjóðinni frá hungri.
Þrátt fyrir mikla þýðingu,
sem þessi stofnun getur haft
fyrir þjóðina, er húsakostur
hennar næsta fátæklegur. Fyrir
framan aðaldyrnar er umgirt
grenitré helzt til prýði; Híró-
hító keisari gróðursetti það til
minningar um fyrstu komu sína
í stofnunina. f lítilli biðstofu,
sem ekki er stærri en biðstofa
hjá fátækum sveitalækni,
skýrði Saikí keisaranum frá
hugmyndum sínum. Einni
klukkustund, heilli og óskertri
Minningarhátíð Guðbrands
biskups að Hólum.
Sunnudaginn 1. nóvember var
400 ára minningarhátíð um
Guðbrand Hólabiskup Þorláks-
son haldin að Hólum í Hjalta-
dal. Var það gert að tilhlutan
Guðbrandsdeildar presta í
Skagafjarðar- og Húnavatns-
sýslum og Prestafélags hins
forna Hólastiftis. Gengust þess-
ir aðilar fyrir því, að stefnt var
að Hólum öllum prestum sýsl-
unnar, safnaðafulltrúum, sýslu-
nefndarmönnum, sýslumanni,
héraðslæknum og þingmönnum
Skagfirðinga.
Minningarhátíðin hófst með
því, að gengið var í skrúðgöngu
til guðsþjónustu í dómkirkj-
unni. Fóru prestar í broddi
fylkingar, þá sýslunefnd og al-
þingismenn, síðan safnaðar-
fulltrúar og loks aðrir kirkju-
gestir, er voru allfjölmennir.
í dómkirkjunni þjónaði séra
Björn Björnsson fyrir altari,- en
sr. Guðbr. Björnsson, prófastur,
predikaði. Að lokinni guðs-
þjónustu flutti séra Helgi Kon-
ráðsson á Sauðárkróki erindi
um Guðbrand biskup, og Eyþór
Stefánsson las kvæði Matthí-
asar Jochumssonar: „Guð-
brandur Hólabiskup“.
aði fiskisins ogf lutti hann út.
Þetta er óskaleið íhaldsins.
IV.
Þá er komið að síðara dæm-
inu.
Umbótaflokkarnir þvinguðu
bæjarstjórnaríhaldið með lög-
gjöf til að stofna sjúkrasamlag,
til þess að létta fátæklingum
byrði heilsuleysisins. Bæjar-
stjórnaríhaldinu tókst manna-
val til framkvæmdanna og
framkvæmdirnar sjálfar á þann
veg, sem allir bæjarbúar kann-
ast við og óþarft er að lýsa.
Bæjarstjórnaríhaldinu hefir
ekki tekizt að koma í veg fyrir
það, að Sjúkrasamlag Reykja-'
víkur hefir orðið mörgum fá-
tækum almúgamanni stoð í
baráttunni við heilsuleysið.
Launakjör samlagslækna á-
kváðu þeir sjálfir og verður ekki
rætt um þau hér. En lyfsalarnir
hafa um áratugi fénazt mjög á
heilsuleysi fátæklinganna. Þeir
hafa eignazt mörg stórhýsi í
bænum og aðrar fasteignir.
Bæjarstjórnaríhaldið hefir' um
mörg ár — til þess að leggja
blessun sína yfir þessa grein af
framtaki einstaklingsins — haft
á leigu húsnæði fyrir skrifstof-
ur bæjarins í húsi eins þeirra,
í stað þess að láta bæinn byggja
sjálfan yfir þær.
(Framh. á 4. síSu)
I
stund, helgaði hinn guðdómlegi
keisari þessum mikla vísinda-
frömuði.
Dr. Saikí! Milli hárra hlaða af
tilraunaskrám og forskriftum,
situr hann við skrifborð sitt,
sextugur maður með barnsleg
augu. Hann talar um mataræði
í Japan fyrr á tímum.
Japanar hafa ávallt verið á-
úyggjufullir vegna matarfram-
leiðslu sinnar, allt frá því að
viðreisnin hófst 1868. Matvæli
í Japan hafa alltaf verið af
skornum skammti, svo að þess
sjást jafnvel merki á líkams-
vexti manna. Árið 1882 kvaddi
japanska ríkisstjórnin þýzka
lækna og næringarefnafræð-
inga til landsins. Eftir margra
ára rannsóknir fyrirskipuðu
þessir menn meiri notkun gers
og feitmetis. Að ráðum þeirra
var fæði sjóhersins og landhers-
ins bætt til mikilla muna, en
það var ógerlegt að sjá bænd-
um og búaliði fyrir meiri fiski
og grænmeti heldur en þeir áð-
ur höfðu. Fjárþröng hindraði
framkvæmdir á því sviði. Síðan
1872 hefir íbúatala Japans tvö-
faldazt, og þegar líður að lok-
um þessarar aldar verður hún
sjálfsagt orðin tvöföld við það,
sem hún nú er, ef að líkum læt-
ur. En Japönum er ógeðfellt að
flytjast úr landi, og því verða
þeir að grípa til róttækra ráð-
stafana til þess að sjá sér far-
borða í landi sínu. Japan verð-
ur sjálft að sjá fyrir sínu fólki.
Dr. Saikí álítur, að flest fólk
hagi mataræði sínu á fráleitan
hátt. Menn gætu orðið langlíf-
ari en þeir eru. Og Japanar ætia
Eins og kunnugt er, er Guð-
brandur biskup jarðsettur í kór
Hólakirkju, og var heiðurs-
vörður staðinn við gröf hins
mikla kirkjuhöfðingja meðan
athöfnin fór fram.
Síðan gekk söfnuður og gest-
ir til stofu, og var þar setzt að
drykkju. Stjórnaði prófastur
hófinu. Voru margar ræður
fluttar og samþykktar tillögur
um dómkirkj uprest að Hólum
og endurheimt hinna mörgu og
góðu gripa, er teknir hafa verið
úr Hólakirkju, og svo og um
nefndarkosningu til þess að
hafa á hendi undirbúning
vegna 400 ára dánarafmælis
Jóns biskups Arasonar og sona
hans eftir átta ár.
Fjárskaðarnir miklu við Djúp.
í öndverðum októbermánuði,
dagana 6. og 7. þess mánaðar,
var einhver sú mesta stórhríð,
er menn muna, áf Vestfjörðum
norðanverðum. Olli hún stór-
miklum fjársköðum norðan ísa-
fjarðardjúps, á Snæfjallaströnd
og Langadalsströnd.
Helgi bóndi Guðmundsson í
Unaðsdal á Snæfjallaströnd
missti þá rúmlega 120 fjár. Var
fé hans flest á túninu eða rétt
við það, og hrakti margt af því
í sjóinn undan ofviðrinu. Hagar
þarna svo til, að örskammt er
til sjávar og aflíðandi halli nið-
ur í fjöruna. Rak margt af fé
því, er þarna fórst, í Strand-
seljavík, vestan Djúps.
í Bæjum fórust um eða yfir
20 kindur, og frá Lyngholti,
grasbýli þar í grennd, fórust 10
kindur af 40.
Mest mun þó fjártjónið hafa
orðið hjá Þórði oddvita Hall-
dórssyni á Laugalandi. Fórust
þaðan af heimilinu um 150 fjár.
Hrakti margt af því í Selá,
vatnsfall mikið, er fellur eftir
dálnum, er Langaland stendur
í, milli Skjaldfannarfjalls og
Hraundalsháls, og kvíslar úr
henni. Einnig fennti margt fé,
en sumt af því náðist lifandi
úr fönninni. Þórður hafði eigi
rekið fé sitt til slátrunar.
Jón bóndi Fjalldal á Melgras-
eyri á Langadalsströnd, missti
40—50 fjár; hrakti flest í
sjóinn.
Pétur Pálsson í Hafnardal
missti um 50 fjár.
Sigurður Pálsson á Nauteyri
missti um 30.
Á ýmsum öðrum bæjum fór-
ust innan við 20 kindur í hríð-
inni, svb sem að Hamri, Tungu
og víðar.
Munu þessir fjárskaðar vera
einhverjir þeir mestu, sem orð-
ið hafa af völdum hríðarveð-
urs nú um skeið, og mjög til-
finnanlegir þeim, er fyrir hafa
orðið.
að haga sér eftir kenningu
hans. Með vísindalegum og líf-
fræðilegum rannsóknum finnur
Saikí næringarefnaþörf manna
og það fæði, sem nákvæmlega
megnar að viðhalda líkaman-
um og líkamsorkunni án þess
að vera til skaðsemdar.
Að áliti Saikí getur Japani
lifað fyrir 16 sen á dag og hald-
ið fullri orku, líkamlega og
andlega.
í Vesturlöndum mundi slíkt
þykja furðulegt. Og Saikí telur,
að japanskur verkamaður, sem
kaupir þrjá málsverði á dag
fyrir 16 sen, fái betri, fjölbreytt-
ari og næringarmeiri fæðu held-
ur en verkamenn í Ameríku eða
Englandi, sem verða að verja
tuttugu sinnum meira fé til
matarkaupa. Að því þarf eng-
in rök að leiða, hve stórkost-
lega þetta bætir aðstöðu Jap-
ana í samkeppni við aðrar
þjóðir.
Saikí hefir gert grein fyrir
leyndardómi kenninga sinna.
Hvernig hefir hann komizt að
raun um, hver sé eðlileg nær-
ingarefnaþörf venjulegs Jap-
ana? Hvernig hefir hann kom-
izt að raun um, að japanskur
verkamaður geti lifað á 16 sen-
um á dag?
Fyrst var að finna orkueyðslu
hins hvílandi manns. Það er
þegar orðið viðfangsefni vis-
indamanna um allan hinn
menntaða heim.
Saikí gerði margvíslegar til-
raunir um margra ára skeið.
Þrjár þúsundir manna urðu að
liggja tímum og dögum saman
í rannsóknarstofu hans —
EDGAR LAJTHA:
Byltíng í mataræði
Á síðari árum hefir mjög verið um það rætt, að bætt og breytt
mataræði væri undirstaða aukinnar heilbrigði og hreysti.
Engin þjóð mun vera lengra komin með vísindalega athugun
mataræðis en Japanar. Veldur því meðal annars það markmið
þeirra, að landið geti orðið sjálfbjarga, ef hafnbann ber að
höndum.
Meðfylgjandi grein, sem að mestu er þýdd úr bók eftir Edgar
Lajtha um Japan, gefur nokkra hugmynd um þessar rannsóknir
Japana.