Tíminn - 25.11.1942, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.11.1942, Blaðsíða 3
141. blað 559 Frú Helga Jónsdóttir ]S1^í fafOPt Hún bar hið blíða heiti úr bernskusögum þjóðar, var hýr sem baldursbráin og björt — með varir rjóðar, féll gullbjart hár á herðar, skein heiðisblámi úr augum, fól norrænt afl í örmum og innst í hjartataugum. Svo varð hún og að vera, er vildi skáldi fylgja til nýrrar álfu — og una sem öðlings möttli sylgja, sem hjálmur hetjuenni, sem hendi Draupnir góður, er gaf sinn höfga í gulli og geislaði krafti hljóður. Hún fylgdi upp til fjalla , í frelsið vini hraustum og bar hins sterka byrðar í böndum ástar traustum. * Og eitt varð allt, er mæddi og allt, er vannst í raunum, og einn varð gleðigeislinn og gull í sigurlaunum. — Nú grær um garðinn fræga hin græna skógarhöllin. í austri og vestri óma af óði stórskálds fjöllin. En hvað veit harður heimur um hana, er lokkastrengi á snillings hörpu sneri og snerti æfilengi? — Veit ekkert. — Og hún unir því allra bezt sem fyrri, að vera lind, sem líður í laufhlíð unaðskyrri, — að vera lóan ljúfa, er lauf und tungu felur og sínum vildarvini öll vorsins mæti gelur. Ég heyrði í vestri vængi til vorlands grípa tökin og hugði blítt til hennar, sem hinztu greiddi rökin, sem áttatíu ára var ung og sterk og fögur. — Svo far vel, Helga frænka! Ei fyrnast hjartasögur. Hulda. Gleymið ekkí að borga Tí m ann. sér ólesnar. Hann er vaxandi kjarngróður í íslenzkum bók- menntum. Jón úr Vör: Stund milli stríða. Ljóð — Reykjavík 1942. Fyrsta ljóðabók Jóns úr Vör kom út 1937. Hann kallaði hana: Ég ber að dyrum. Mörg- um þótti hann kveðja vel dyr- anna. Ljóðin voru ekki stór- brotin, en það var í þeim hlý- legur og þó æðrulaus grunn- tónn. Þau voru heldur ekki saumuð upp úr annara ílikum. Svo margir urðu til að bjóða ljóðakveri hans inn, að það seldist upp á fáeinum vikum og var prentað aftur á fyrsta ári. Síðan þetta var, hefir Jón ýtt úr vör til framandi landa, verið eitt ár í Svíþjóð og farið skyndi- för suður í lönd. Svo hefir hann gerzt ritstjóri Útvarpstíðinda, en það kvað vera stríðsamt starf, einkum að herja dag- skrána út í tæka tíð hjá út- varpsráði. Þess vegna munu tómstundir hafa orðið fáar, og því mun hin nýja ljóðabók hafa hlotið nafnið Stund milli stríða. Annars verður höfundurinn að svara því meö sjálfum sér, hvort | þetta bókarheiti sé hugsað á móðurmálinu eða fengið að i láni og þýtt. Þessi bók er 78 bls. Kvæðin eru allmörg en smá, ein vísa á opnu minnir mig oftast á stök- una um innihaldið og umbúð- irnar, lóðið og vættina. Jón úr Vör virðist vera á tímamótum í skáldskap sínum. Fremst í bókinni eru nokkur kvæði með hans fyrri einkenn- um. Síöan koma tilraunir, hálf- kveðnar vísur, jafnvel gervi- ljóð, órímuð þankakorn. Hann er trauður til að ráðast í stór yrkisefni eða hann sleppir af þeim hendinni, þegar þau fara að verða erfið viðureignar. Ég get sagt það, að ég hefði vænzt heldur meira af Jóni úr Vör, þegar hann barði að dyr- um fyrir fimm árum með fyrstu ljóðabók sína undir hendinni. En það er sanngjarnt að líta á þessi ljóð sem áfanga á miðri leið. „Allt er þegar þrennt er“, segir máltækið, og mér er nær að halda ,að Jóni úr Vör sé eng- inn vanzi að því að hugsa eitt- hvað svipað og Napoleon gamli: í næsta áfanga verð ég annað hvort gamall eða dauður. TÍMINIV, miðvlkwdagiim 25. núv. 1942 Nizaminn af Hyderabad Hann á fimm hundruð konur og er þó auðugasti maður heimsins. Auðugasti maður heimsins borðar með fingrunum. Hann notar hvorki hníf, gaffal né skeið. Hann borðar meira að segja súpu með fingrunum. Ég á hér ekki við hinn vandfýsna Morgan, hinn hófsama Rockefeller né hinn önnum kafna Ford. Nei, auðugasti maður heimsins hefir eigi látið til sín taka á vettvangi verzlunar né viðskipta. Hann hefir aldrei litið Vegg- stræti augum, og fæstir Amerikumenn hafa meira að segja heyrt iians getið. Hann heitir Osman Ali Khan Bahadur Fateh Jung Asaf Jah. En venjulega er hann aðeins nefndur Nizaminn af Hyderabad. Hann er afkomandi hinna gömlu mongólsku herkonunga, sem iögðu Indland undir sig fyrir mörgum öldum. Hann drottnar yfir auöugasta íylki Indlands. Hvað gerir hann við öll auöæfi sín? Þegar svara skal slíkri spurningu má til dæmis láta þess getið, að hann hefir kvennabúr með meira en fimm hundruð konum. Hann ann þó einni þeirra öllum hinum heitar. Hún ekur i dýrlegum vagni og þess er vandlega gætt, að vegfarendur sjái ekki ásjónu hennar. Hann lætur sér fátt um hinar fegurðar- drottningarnar. Sagði ég annars fegurðardrottningar? Það mun eigi vel að orði komizt, þvi að hann erfði kvennabúrið eftir föður sinn, sem lézt fyrir þrjátíu árum. Konur þær, er það gista, hafa því efalaust látið á sjá allan þennan tíma, þótt þær kunni að hafa verið fagrar i æsku sinni. Þó er Nizaminn svo strangur við þær, að hann leyfir ekki einu sinni geldingum að fara inn í kvennabúrið. Auðugasti maður heimsins rís úr rekkj u - morgun hvern fyrir dögun. En hann þarf ekki að hafa fyrir þvi að spretta á fætur og stöðva vekjaraklukkuna, því að hans hátign er vakinn frá draumum sínum af hljómsveit, sem kemur á fund hans með söng og hijóðíærasiætti. Þar sem hann er Múhammeðstrúarmað- ur, rís hann svo ária á fætur, til þess að hann geti horft í áttina til Mekka og gert Allah bæn sina, er sólin skín yfir Hyderabad- næðum. Hann hefir fjóra þjóna, sem hafa það starf eitt með höndum að klæða hann. Hver þeirra klæðir sérstakan hluta hins hágöfga iikama. Einn þeirra er til dæmis buxnasérfræðingur. Þegar hann hefir aöstoðað húsbónda sinn við að fara i buxurnar, getur hann notið hvíldar þaö, sem eftir er dagsins. , Nizaminn er einvaldur og ræður lífi og dauða fimmtán miljóna manna. Þegnar hans varpa sér iotningarfullir til jarðar, er þeir verða á vegi hans. Enda þótt hann baði sig á hverjum morgni, notar hann ekki sápu. Hann notar trjábörk í hennar stað. Hann snæðir ekki morgunverö fyrr en fjórum klukkustundum eftir að hann rís úr rekkju. Þá snæðir hann i senn morgunverð og hádegisverð. Hann drekkur ekki te né kaffi — aðeins mjólk og vatn. Hann snæðir morgunverð sinn aí gulldiskum. Það er máls- verður, sem er í frásögur íærandi. A matborði hans getur að líta hina ljúfíengustu og girnilegustu rétti. Venjulega ber hann hvitan silkifrakka, alsettan djásnum. Hann hefir perlu- og demantsfestar um háls sér. Þó hefir hann sézt opinberlega i svörtum kyrtli með fitublettum í, Enda þótt hann haíi rakara í þjónustu sinni, er það alsiða, að hann gangi um óklipptur og órakaður. Nizaminn af Hyderabad á stóJ<a, kerrur, vagna og jafnvel fall- byssu setta gulli, smarögðum og rúbínsteinum. Sem gefur að skilja er gullfallbyssa þessi ætluð til skrauts en eigi hernaðar- þarfa. Hvar hefir Nizaminn hlotið auðæfi sín? Mikill hluti þeirra er kominn úr Golcondadalnum, þar sem auðugustu demantanámu heimsins er að finna. Þaðan eru komnir margir írægustu gim- steinar heimsins, svo sem Kohinoorgimsteinninn, sem Maria Englandsdrottning bar, Hopegimsteinninn, sem mest óhamingja fylgdi, og Orloífgimsteinninn, sem Katrin mikla átti. Nizaminn á þaö til að vera örlátur og gestrisinn. Þess eru mörg dæmi, aö hann hafi boðið fimm hundruð gestum til mið- degisverðar. Hann fer í leiðangra á markaðinn til þess aö afla sér vista og annars, er hann telur sig þarfnast. Þegar hans hátign óskar að fá eittiivað, sem á boðstólum er, láta kaupmennirnir það jafn- an af hendi við hann, án þess að hann þurfi að greiða nokkuð fyrir það. Hann heldur að þvi búnu aítur til hallar sinnar, og hersing af þjónum ber körfur fullar af alls konar vörum, sem hafa ekkert kostað. Stundum sendir hann vinum sinum körfur þessar og lætur þess þá jafnframt getið, hvað þeim beri að greiða fyrir þann heiður að fá gjafir þessar. Fyrir allmörgum árum lét Nizaminn þau boð út ganga, að hann myndi gefa út bók meö frumsömdum ljóðum. Hvert eintak bókarinnar átti að kosta sem svarar tuttugu dollurum og auk þess átti að prenta hluta af upplagi bókarinnar á úrvals pappír og tölusetja þau eintök, enda skyldu þau kosta sem svarar hundrað dollurum. Þar sem enginn Hyderabadbúi dirfðist að neita að kaupa ljóð hans hátignar, gekk söfnun áskrifenda að bókinni með ágætum. Nú er langt um liðið, en aldrei hefir bókin komið út, og peningarnir, sem inn komu, hafa aldrei verið end- urgreiddir. Nizaminn talar ensku eins og væri hún móðurmál hans. Hann skýtur tígrisdýr af fílsbaki, ber hringa i eyrum sér, gefur þeirri konu sinni, er hann ann heitast, sem svarar tvö hundruð doll- urum í eyðslueyri á mánuði hverjum, og sefur í rekkju, sem engin dýna er í. 30 °|„ O § T A R Samband ísl. samvinnufélat/a. SAMVINNUMENN! Vinnið að útbreiðslu tímaritsins Samvinnunnar. Aðvörun. Athygli allra kaupgreiðenda hér x bæ, er útsvör 1942 hafa eigi greitt fyrir starfsfólk sitt, hvort heldur. það er á mánaðar- eða vikulaunum, eða á livern annan hátt, sem því eru greidd vinnulaun, er vakin á því, að lögum samkvæmt ber þeim að sjá um greiðslu útsvaranna. Verða allir þeir, er vanrækja þetta, gerðir ábyrgir fyrir út- svarsgreiðslunum. Húsráðendur bera sömu ábyrgð á útsvörum vinnustúlkna, er hjá þeim vinna, og að'rir atvinnurekendur á útsvörum stai-fs- manna sinna. Skrifstofa borg'arstjóra. Tökum tau til þvotta. Upplýsingar í síma 5113. Sækjum. ÞVO Sendum. TTABJ0RNINN Afgreiðsla Laugaveg 68. — Sími 5113. GÓÐ BÚJ0RÐ TIL LEIGU. Þrastarhóll í Hörgárdal er laus til ábúðar á næsta vori. Jörðin ber um 200 fjár, 20 nautgripi og 10 hi-oss. Tún véltækt og nokkuð af engi. Sjálfrennandi vatn í íbúð og öll peningshús. Semja ber við undimtaðan eiganda fyrir 10. febr. n. k. Á- skilinn réttur til að taka hvaða beiðni eða boði sem er, eða hafna öllum. Ennfremur get ég selt á komandi vori^sauðfé, kýr og hross. Athygli skal vakin á því, að sauðfé mitt er SÉRSTAKLEGA HRAUST og afburða gott. Þrastarhóli 5./11 1942. Þórh. Ásgrímssou. Gráðaosturinn er komiim aftur. Fæst í heildsölu aðeins hjjá Samb. ísl. samvinnuíélaga Sími 1080 KARLMANNAF0T Nýkomin sending af enskum karlmannafötum. — Ýmsir litir. Allar algengar stærðir. — Stakar buxur. Klæðagerðin ULTIMA, Skólavörðustíg 19. Sími 3321. % Ný sendiug er komin af Battersby-höttum frá Akureyri ojaS SauÖárkróki fyrirliggjandi Amerískar og enskar gerðir í mörgum litum. Samband ísLsamvinnuíélaga kaupfélaq §tnlkn vantar í eldhúsið á Kleppi nú þegar. Vefnaöarvörudeild. IJppl. hjá ráðskonuinni, simi 3099.1 rww + ÚTBREIÐIÐ TÍMANNé

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.