Tíminn - 25.11.1942, Blaðsíða 4
560
TÍMPTCV, miðvikmlagiim 25. nóv. 1942
141. blað
ÚR BÆNV!H
Þingi Sósíalistaflokksins,
sem staðið hefir hér í bænum, er
nú lokið. Einar Olgeirsson var end-
urkosinn formaður flokksins og Brynj-
ólfur Bjarnason endurkosinn formað-
ur flokksstjórnar. Varaformenn eru
Sigfús Sigurhjartarson og Steingrím-
ur Guðmundsson. Auk þess eru í mið-
stjórn flokksins i Reykjavík: Jón
Rafnsson, Ársæll Sigurðsson, • Petrína
Jakobsdóttir, Katrín Pálsdóttir, Arn-
finnur Jónsson, Eggert Þorbjamarson,
Sigurður Guðnason, Ólafur H. Guð-
mundsson, Kristján Eyfjörð, Stef-
án Ögmundsson. Auk þessara manna
skipa miðstjórnin nokkrir fulltrúar
úti á landi, sem ekki geta sótt fundi
hennar að staðaldri.
Þingi Alþýðuflokksins,
sem staðið hefir hér í bænum, er nú
lokið. Stefán Jóhann Stefánsson var
endurkosinn formaður flokksins og
Haraldur Guðmundsson varaformaður.
Jón Blöndal var kosinn ritari flokks-
ins í stað Jónasar Guðmundssonar.'
Önnur breyting á stjóminni varð sú,
að Gylfi Þ. Gíslason og Arngrímur
Kristjánsson vom kosnir í stað Guðm.
I. Guðmundssonar og Ásgeirs Ásgeirs-
sonar. Aðrir meðlimir miðstjórnarinn-
ar í Reykjavík em: Sigurjón Ólafsson,
Ingimar Jónsson, Guðmundur R. Odds-
son, Soffía Ingvarsdóttir, Emil Jóns-
son og Kjartan Ólafsson. Auk þess eru
nokkrir miðstjórnarmenn búsettir ut-
an Reykjavíkur.
Rannveig Kristjánsdóttir,
dóttir Kristjáns Sigurðssonar kenn-
ara á Akureyri, er nýkomin hingað frá
Svíþjóð. Hefir hún stundað þar nám
við húsmæðrakennaraskóla í Uppsöl-
um og Socialpolitisk Institut i Stokk-
hólmi. Hún mun taka við kennslu í
Húsmæðraskólanum hér.
Tímarit Verkfræðingafélags
íslands,
1. og 2. hefti 1942, em komin út. í
báðum heftum eru greinar eftir Þor-
kel Þorkelsson er hann nefnir „Enn
um hverarrannsóknir mínar“, þá eru i
heftunum greinar um félagsmál.
Merkílegt fyrirbrígðí
í Hánaþingi
Rétt fyrir haustkosningar
gerðist það merkilega fyrirbrigði
í Húnaþingi, að á bæjum sýsl-
unnar tók að rigna dreifibréf-
um frá Páli Kolku, lækni á
Blönduósi. Kemur blessaður
læknirinn þar grátbólginn og
kjökrandi fram fyrir sveitunga
sína og biður þá ásjár. Bless-
aður drengurinn, hann hafði
orðið fyrir einhverri áreitni frá
nábúa sínum, Hannesi á Und-
irfelli.
Engan skal undra, þó öðrum
eins einlægum friðarvini sárn-
aði. Sérstaklega biður hann á-
takanlega, til þeirra, er hann
hefir vakið upp frá dauðum,
að leggja sér lið við kosningar
þær, er í hönd fari og kjósa
ekki Hannes á þing. Líklegt
þykir, að svo átakanlegt andvarp
læknisins hafi runnið mörgum
til rifja.
Einum, er bréf þetta las, varð
að orði:
Klagar sáran, Kolka skinn
kjökrar grár í skapi.
Hýrnar brá, ef Hannes minn
hörfar frá með tapi.
15. okt.
Norðlendingur.
Starfsskrá Framsóknarflokksíns
(Framh. af 1. síðu)
annist þau mál, er varða sambúð þjóðarinnar og setuliðsins í
landinu. Verði jöfnum höndum lögð áherzla á verndun þjóð-
iegra verðmæta og að kynna setuliðinu íslenzka menningu.
íþróttasjóður verði efldur, stutt að því að reist verði hentug
samkomuhús fyrir æskulýð Reykjavíkur og ungt fólk úr öðrum
héruðum, sem í höfuðstaðnum dvelur, og skipulagðar, undir
eftirliti fræðslumálastjórnarinnar, sýningar og útbreiðsla menn-
ingarkvikmynda í kauptúnum og sveitum.
Fræðslulögin verði tekin til endurskoðunar, m. a. í því skyni
að auka kennslu í móðurmálinu, skrift, reikningi, íþróttum og
verklegum greinum.
Gerðar verði ítrustu ráðstafanir til að greiða fyrir heimkomu
íslenzks námsfólks, er dvelur á meginlandi Evrópu, og lokið
hefir námi.
Undirbúnlngur framkvæmda.
18. Alþingi kjósi nefnd, er geri áætlanir og tillögur um fram-
kvæmdir í landinu, þegar stríðinu lýkur og herinn hverfur á brott.
í tillögunum verði að því stefnt, að þær framkvæmdir, sem veita
skulu atvinnu fyrst í stað, verði jafnframt undirstaða að aukn-
ingu atvinnureksturs og framleiðslu í landinu.
Nefndin skal ennfremur gera tillögur um fyrirkomulag á stór-
atvinnurekstri í landinu. Lögð verði sérstök áherzla á að at-
vinnureksturinn sé skipulagður á samvinnugrundvelli, svo að
þeir, sem að honum vinna, beri úr býtum endurgjald fyrir störf
sín i samræmi við afkomu atvinnurekstursins.
Alpingf i:
Neíndarkosning-
ar í deíldum
Nefndarkosningar í neðri
deild Alþingis fóru á þessa leið:
Fjárhagsnefnd: Af A-lista:
Einar Olgeirsson og Ásgeir Ás-
geirsson. Af B-lista: Skúli Guð-
mundsson. Af C-lista: Jón
Pálmason og Ingólfur Jónsson.
Samgöngumálanefnd: Af A-
lista: Þóroddur Guðmundsson
og Barði Guðmundsson. Af B-
lista: Sveinbjörn Högnason. Af
C-lista: Gísli Sveinsson og Sig-
urður Bjarnason.
Landbúnaðarnefnd: Af A-
lista: Sigurður Guðnason og
Emil Jónsson. Af B-lista: Bjarni
Ásgeirsson. Af C-lista: Jón Sig-
urðsson og Jón Pálmason.
Sjávarútvegsnefnd: Af A-
lista: Lúðvík Jósefsson og Finn-
ur Jónsson. Af B-lista: Gísli
Guðmundsson. Af C-lista: Sig-
urður Kristjánsson og Sigurður
Bjarnason.
Iðnaðarnefnd: Af A-lista:
Sigurður Thoroddsen og Emil
Jónsson. Af B-lista: Sigurður
Þórðarson. Af C-lista: Sigurður
Hlíðar og Ingólfur Jónsson.
Menntamálanefnd: Af A-
lista: Sigfús Sigurhjartarson
og Barði Guðmundsson. Af B-
lista: Páll Þorsteinsson. Af C-
lista: Gísli Sveinsson og Jón
Sigurðsson.
Allsherjarnefnd: Af A-lista:
Áki Jakobsson og Stefán Jóh.
Stefánsson. Af B-lista: Jörund-
ur Brynjólfsson. Af C-lista:
Garðar Þorsteinsson og Gunn-
ar Thoroddsen.
í efri deild fóru nefndar-
kosningar þannig:
Allar góðar hásmæður
þekkja hinar ágætu
SJAFNAR-vörur
Þvottaduftið
PERLA
ræstiduftið
OPAL
•^VsSí
kristalsápu
stangasápu
Fjárhagsnefnd: Af A-lista:
Haraldur Guðmundsson og
Steingrímur Aðalsteinsson. Af
B-lista: Bernharð Stefánsson.
Af C-lista: Pétur Magnússon og
Lárus Jóhannesson.
Samgöngumálanefnd: Af A-
lista: Brynjólfur Bjarnason. Af
B-lista: Ingvar Pálmason. Af C-
lista: Gísli Jónsson.
Landbúnaðarnefnd: Af A-
lista: Kristinn E. Andrésson og
Haraldur Guðmundsson. Af B-
lista: Páll Hermannsson. Af
C-lista: Þorsteinn Þorsteinsson
og Eiríkur Einarsson.
Sjávarútvegsnefnd: Af A-
lista: Guðmundur I. Guðmunds-
son. Af B-lista: Ingvar Pálma-
son. Af C-lista: Gísli Jónsson.
Menntamálanefnd: Af A-
lista: Kristinn Andrésson. Af B-
lista: Jónas Jónsson. Af C-
lista: Eiríkur Einarsson.
Allsherjarnefnd: Af A-lista:
Guðmundur I. Guðmundsson
og Brynjólfur Bjarnason. Af B-
lista: Hermann Jónasson. Af C-
lista: Bjarni Benediktsson og
Lárus Jóhannesson.
Bóndl — Kaupir |>ú bítnaðarblaðið FREY?
Landkönnuðir mínn-
asf Islands
Félag landkönnuða, sem 1 eru
margir af helztu landkönnuð-
um, ferðalöngum og mennta-
mönnum Bandaríkjanna, sam-
þykkti í dag ákvörðun um að
minnast fullveldisdags íslend-
inga 1. desember.
„Meðan íslenzka stjórnin og
þjóðin búa sig undir að halda
daginn hátíðlegan, er það okk-
ur gleðiefni að senda systurríki
okkar innilegar heillaóskir og
árnaðaróskir um frið og velmeg-
un í framtíðinni“, segir í ákvörð-
uninni.
Margir meðlimir þessa félags,
sem eru ferðalangar og hafa
farið um heim allan, hafa komið
til íslands og eiga þar marga
góða vini. Við gerum okkur hið
sameiginlega takmark landanna
vel ljóst. Það gleður okkur að sjá
vináttu og aukinn áhuga íslands
og Bandaríkjanna hvort á öðru
á þessum stríðstímum.
Það er von okkar að hin tvö
lýðveldi okkar muni ekki aðeins
viðhalda þjóðfrelsinu, heldur
muni og sanna heiminum eftir
stríðið, að sterkasta afl hverr-
ar þjóðar, stórrar eða smárrar,
sé frelsi hennar og viðurkenning
hennar á frelsi annarra þjóða.“
Meðal meðlima félagsins eru
Roosevelt forseti, Richard Byrd,
aðmiráll, Sir Hubert Wilkins,
Rockwell Kent, Lincoln Ells-
worth og Theodore Roosevelt
offursti. Eftirfarandi meðlimir
félagsins hafa komið til íslands:
Vilhjálmur Stefánsson, Emile
Walters, Reginald Orcutt, Bob
Bartlett höfuðsmaður, Dr. K. K.
Newcomb, Thor Solberg, J. H.
Greaves, R. A. Logan, H. Scudder
jr., Earl P. Hanson, D. Paine, L.
N. Coilow offursti, N. A. Perkins
og C. L. Fisher.
(Frá ameríska blaðafulltr.).
W
$
SPIL
ÁRNI JÓNSSON
Hafnarstræti 5.
Sími 5805.
Þúsaiidii* vita
að gæfan íylgir trúlofunar-
hringunum frá SIGURÞÓR.
Sent gegn póstkröfu.
Sendið nákvæmt mál.
Tökum framvegis á móti
pöntunum á
Smurðu brauði
Matsalan Gullfoss
Sími 5343.
Það er fljótlegt
að matreiða
„Freía“ fískfai*s,
auk þess er það hollur, ó-
dýr og góður matur.
ræklfærisRiafir,
í góðu úrvali.
Trúlofimarbringar,
Sent gegn póstkröfu.
Guðm. Andrésson
gullsmiður.
Laugavegi 50. — Sími 3769.
Stöðvun frystihúsanna
(Framh. af 1. slðu)
að gera tilraunir til að fá verð
frystivaranna hækkað og jafn-
framt var stjórn S. H., ásamt
nefnd 3ja manna, sem kosin var
á fundinum, falið að eiga tal
við Alþingi og ríkisstjórn um
málið. Jafnframt var og sent
bréf til Alþingis til að lýsa við-
horfinu. Nálega öll hraðfrysti-
húsin hafa neyðzt til að stöðva
rekstur sinn. Aðeins örfá halda
áfram rekstri næstu vikur.
]\jleð stöðvun á rekstri frysti-
húsanna tapast mikil atvinna
og í þorpum og smærri ver-
stöðvum, þar sem ísfisktökuskip
koma, til að kaupa nýjan fisk, er
útlit fyrir að útgerðin stöðvist
að meira eða minna leyti.
Viðunandi úrræði til umbóta
taldi fundurinn aðeins tvö:
1. Hækkað söluverð afurð-
anna.
2. Lækkun á verðlagi og kaup-
gjaldi innanlands og lækkun
tolla á aðkeyptum efnivörum og
útflutningsgj aldi.
Þriðju leiðina, sem máske
mætti nefna, ríkisstyrk til þessa
atvinnuvegar, taldi fundurinn
einróma, algerlega óviðunandi.
Vinnið ötullega fgrir
Tímann.
GAMLA BÍÓ
Broadway
lokkar!
LANA TURNER,
(Two Girls on Broadway).
JOAN BLONDELL,
GEORGE MURPHY.
Sýnd kl. 7 og 9.
Kl. 31/2—6%:
„FÁLKINS" Á VEIÐUM.
með George Sonders.
Börn fá ekki aðgang.
-NÝJA BÍÓ .
Sléttu-
rænmgj ar nir.
(Western Union)
Stórmynd í eðlilegum lit-
um.
Aðalhlutv. leika:
ROBERT YOUNG,
RANDOLPH SCOTT,
VIRGINIA GILMORE.
Börn yngri en 16 ára fá
ekki aðgang.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Framhald
almennra bólusetnínga.
í dag (miðvikud. 25. nóv.) verður haldið áfram al-
mennri bólusetningu í Templarasundi 3 (Ungbarna-
verndin). — Kl. 9,30—11 skal færa þangað börn af Berg-
þórugötu, Njálsgötu og Grettisgötu ofanverðri milli
Frakkastígs og Barónsstígs. Kl. 13—14,30 skal færa þang-
að börn af Grettisgötu neðanverðri og Laugavegi. milli
Frakkastígs og Barónsstígs. Kl. 15—16 skal færa þangað
börn af Hverfisgötu og svæðinu þaðan til sjávar, milli
Frakkastígs og Barónsstígs.
Síðar verður auglýst bólusetning barna innan Baróns-
stígs og vestan Laugarnesskólahverfis.
Föstudaginn 27. p. m. verða bólusett 1 Laugarnesbarna-
skóla, börn úr því skólahverfi.
Kl. 13,30—15 skal færa þangað börn sem heima eiga
vestan Laugarnesvegar.
Kl. 15,30—16,30 skal færa þangað börn annarsstað-
ar úr því skólahverfi.
Bóluskoðun verður á sömu stöðum og tíma, viku síðar.
Skyldug til bólusetningar eru öll börn 2ja ára og eldri,
ef þau hafa ekki haft bólusótt eða verið bólusett með
fullum árangri eða þrisvar án árangurs.
Skyldug til bólusetningar eru öll börn, sem á þessu ári
verða fullra 13 ára eða eru eldri, ef þau ekki eftir að þau
voru fullra 8 ára. hafa haft bólusótt eða verið bólusett
með fullum árangri eða þrisvar án árangurs.
að gefnu tilefni skal enn einu sinni brýnt fyrir fólki
að MJÖG ÁRÍÐANDI er að ekki komi börn af öðrum göt-
um en þeim, sem hér eru ákveðnar.
Héraðslæknirinn í Reykjavík, 23. nóv. 1942.
MAGNÚS PÉTURSSON.
F ramsóknarmenn
í Reykjavík
Afgreiðsla Tímans biðiir yltkur vinsamleg-
ast um aðstoð við að útvega börn eða unglinga
til að bera blaðið til kaupenda í bænum.
oooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooos
The Woríd’s News Seen Through
The Christian Science Monitor
An lnternational Daily Newsþaþer
ú Truthful—Constructive—Unbiased—Free from Sensational-
ism — Editorials Are Timely and Instructive and Its Daily
Features, Together with the Weekly Magazine Section, Make
the Monitor an Ideal Newspaper for the Home.
The Christian Science Publishing Society
One, Norway Street, Boston, Massachusetts
Price $ 12.00 Yearly, or jSl.OO a Month.
Saturday Issue, including Magazine Section, $2.60 a Year.
Introductory Offer, 6 Issues 25 Cents.
Nmh-
Aahireas-
SAMPLB COPY ON REQUEST
►oooooooooooooooooooooooooooooooooooot
Kaupendur Tímans
utan Rcykjavíkur
cru minntir á, að gjalddagi 26. árgangs var 1.
júlí síðastl. Eru beir því vinsamlcga beðnir að
greiða ársgjaldið, kr. 15.00, scm fyrst, til inn-
hcimtumanns blaðsins, eða beint til afgrciðsl-
nnnar, Lindargötu 9A, Rcykjavík.