Tíminn - 16.03.1943, Síða 3
31. blað
TtMlM, þriðjndaglnn 16. marz 1943
123
Fimmtngir:
Tveir bræður
Hinn 16. marz 1893 eignuðust
hjónin á Fagurhólsmýri í Ör-
æium, Ari og Guðrún, tvo drengi
.Það eru bræðurnir Helgi á
Fagurhólsmýri og Hálfdán
bóndi á Bakka í Mýrahreppi,
sem eru t'immtugir í dag.
Þeir ólust upp viö ástriki íor-
eldra slnna og í glöðum hópi
góðra sys.tkina á ágætu heim-
Ui, en í afskekktri sveit og án
auðsældar. Snemma urðu þeir
samrýmdir og sviplíkir um
margt. Það kom brátt í ljós, að
þeír voru gæddir hugkvæmni og
hagleik. Vinnan á heimilinu
veltti þeim i'jölbreytt viðfangs-
efni, en umhverfið að öðru
leyti íullt næði til eigin at-
hugunar. Náttúruskilyrði eru
þar á ýmsan hátt erfið og sveit-
in einangruð. Búskapurfnn
krefst árvekni, elju og útsjónar.
Vegna staðhátta hefir íólkið |
orð'ið að treysta mjög á heima- j
fenginn forða og breyta honum
í nothæfa liluti með eigin !
höndum. Við þessa aðstöðu ól-
ust bræðurnir upp, eins og
þúsundir annarra alþýð'umanna
á íslandi. Þetta uppeldi var
þeirra eini skóli.
Þegar tímar liðu, skildu
leið'ir bræðranna. Hálfdán flutti
af föðurleifð sinni, kvæntist á-
gætri konu og reisti bú í öðrum
hreppi í sýslunni. Þar hafa þau
hjónin búið síðan og njóta nú
hjálpar margra mannvænlegra
barna. Hálfdán er hagur vel og
lætur nágranna sína njóta þess.
Nýtur hann og einhuga t.rausts
og virðingar sveitunga sinna.
Helgi fór líka að heiman um
stund, vann um skeið á véla-
verkstæði á Seyðisfirði og víðar.
Þegar því starfi lauk, stóð hann
á vegamótum. Hann gat reist
heimili einhvérs staðar í kaup-
stað og unnið að vélsmíðum
einungis e'ða annarri iðn arð-
vænlegri. Af því mátti hann
vænta nokkurs frama og eflaust
meiri auðsældar en Öræfin
veita. En hann tók þann kost-
inn að koma heim. Maður með
slíka hæfileika og Helgi hlaut
að reisa sér óbrotgjarnan minn-
isvarða með verkum sínum. Það
sýndi sig og brátt, að í vögg-
unnar landi skyldi sá varði
standa.
Hann veitti bæjarlæknum
heima hjá sér að nokkru í nýj-
an farveg, reisti þar í einu raf-
stöð fyrir bæinn og dálitla vél-
smiðju. Hann keypti til þess
nokkra nauðsynlega hluti, en
gerði sumt að nýju án nokk-
urrar verkfræðilegrar aðstoðar.
Nú tóku ýmsir, bæði í sveit-
inni og utan hennar, að leita
hjálpar hans til sams konar
framkvæmda. Gekk Helgi að
því með áhuga og ósérplægni
og varði allri orku til að bæta
sem bezt úr þörfum annarra i
þessu efni.
Ef einhver vél eða viðtæki bil-
ar þar heima í sveitinni, er
Helgi að jafnaði kvaddur til.
Gengur hann þá greitt að verki.
Umbætur, uppbygging og al-
menn þægindi er Helga aðalat-
riðíð. Eigin laun svo miklð
aukaatriði, að aldrei er eftir
þeim gengið eð'a um þau spurt,
látið ráðast, hvort nokkuð er
greitt eða ekki. Meðan völ er
slikra manna í sveitum lands-
ins, þarf enginn að örvænta
um framtlð þeirra.
Á þessum afmælisdegi bræðr-
anna vilja vlnlr þeirra og sam-
starfsmenn votta þeim árnað-
aröskir, virðlngu og þökk.
P. Þ.
IÓNAS J6NSSOK
Verndun heimila -
upplausn heímila
Frá Noregi
StjórnarskipuniiK Frá Stokk-
liólmi hefir borizt fregn þess
efnis, að Qvislingar hefðu 1
hyggju að gerbreyta stjórnar-
lari í Noregi og skuli hin nýja
stjórnskípun ganga í gildi á
næsta þjöðhátiðardegi Norð-
rnanna, 17. maí. „Ríkisþing"
skal sett á laggirnar, er verði
„æðsta fulltrúaráð norsku
þjóðarinnar“. Eigi skulu um
ræður leyfðar á „rikisþingi“
þessu! Sæti eiga þar stjórn
málamenn og þeim til aðstoðar
fulltrúar frá stofnunum, sem
Qvisiing hefir i hyggju að koma
á fót og nefnlr „atrinnuþlng'
Bæði verkamannablöðin í
Reykjavik liafa sent mér skeyti
fyrir það að ég átti nokkurn
þátt í að stöðva í efri deild lög-
gjafaratriði, sem var eitri
blandin árás á íslenzk heimili.
Tvær stefnur komu til greina
í þessum efnum. Kommúnistar
vilja aí stefnuástæðum leysa
upp heimilin, til að geta þvi
auðveldlegar leyst upp þjóðfé-
lagið og komið á sameignar-
flatsænginni. Ég hefi leyft mér
að hafa gagnstæða skoðun. Ég
trúi á mátt heimila, sem eru
friðheilög uppeldisstöð barna
og griðastaður staríandi fólks.
Þegar ég hóf baráttuna fyrir ,
Byggingar- og landnámssjóði
1925 var stefnt að því að gera
þúsundum manna í landinu
kleift að eignast betri heimili
heldur en annars var kostur á.
Byggingar- og landnámssjóður
fæddi af sér hina skipulegu
og vel gerðu verkamannabú-
staði. Hvar sem farið er um
landið sjást merki -um gifturík
áhrif þessara aðgerða. Þúsund-
ir manna í kaupstöðum og
sveitum eiga nú íegurri, heilsu-
samlegri og farsælli heimili fyr-
ir það að stefna sú. er ég hóf í
byggingarmálum landsmanna
hefir sigrað í landinu. Það er
aúðséð, að verkamenn Reykja-
víkur kunna að meta þessa að-
stöðu, því að þeir þverneituðu
að leyfa að byggt væri á sumri
komandi þriðja hæðin ofan á
hús þeirra, til að auka með
þeim hætti húsakost verka-
mannastéttarinnar í bænum.
Var þetta þó langauðveldasta
byggingarumbót. sem hægt var
að gera í Reykjavík, til að fjölga
íbúðum.
Ég get með mikilli ánægju
horft til baka' á þá þróun bygg-
ingarmálanna og eflingu ís-
lenzkra heimila, sem leitt hefir
af frv. því um auknar húsabæt-
ur, sem ég bar fram 1925, í mik-
illi óþökk margra samlanda
minna. Engan getur þess vegna
furðað á því þó að ég hafi, með
fleiri þingmönnum reynt að af-
stýra því, að kommúnista-
flokknum tækist að vinna for-
dæmalaust hermdarverk á
sjálfstæði íslenzkra heimila.
Kommúnistar hafa leynt og
ljóst unnið að því að lögfest
yrði, að í hverjum kaupstað
landsins mætti eftir geðþótta og
dutlungum meira hluta bæjar-
stjórna, rjúfa grið heimilanna,
og skipa fólkinu sem þar býr,
að opna, með þriggja daga fyr-
irvara, hús sín fyrir hvaða að-
komumanni, sem hentugt þætti
að setja þangað inn um stund-
arsakir. Oft yrði hér um heið-
virt fólk að ræða. En með þess-
um hætti mætti líka senda
drykkjumenn, þjófa, spilafals-
ara, fjársvikara, smyglara,
launbruggara, og fólk hlaðið
háskalegum sjúkdómum inn á
hvaða heimili, sem var, í fullri
óþökk þeirra, sem höfðu skap-
að sér sitt eigið heimili.
Við umræðurnar í efri deild,
sem snerust aðallega um hús-
næðileysi .fólks í Reykjavík,
sagði ég, að ef til vill mætti aí-
saka háskalegar aðgerðir í hús-
næðismálum höfuðstaðarins,
ef þrjú skilyrði væru fyrir
hendi:
1. Ef Reykjavik væri langör-
uggasti dvalarstaður fyrir ís-
lendinga meðan heimsstyrjöld-
in varir.
2. Ef Reykjavík væri, að skoð-
un lækna, lang öruggasti staður
með atvlnnu fyrir allan þorra
islenzku þjóðarinnar.
• 3. Ef svo vel væri séð fyrir
vinnuafli við framleiðsluna í
sveitum og kauptúnum, að rétt
væri af þeim ástæðum að soga
sem allra flest fólk til höfuð
staðarins.
Kommúnistar í efrl deild ját-
uðu sig strax yfirunna gagn-
vart þessum röksemdum með
auðmjúkri þögn. Jafnvel kom-
múnista vantar þá ósvifni sem
þarí með til að halda því fram,
að öryggi íslendinga gegn loft-
hernaði, sé mest í Reykjavik,
eða að þar sé glæsilegt útlit með
atvinnu, eða lientugt sé að sópa
fólkinu úr byggðum og kauptún-
um frá framleiðslunni til höfuð-
staðarins.
Öllum, sem hugsa af skyn-
semi um málið er ljóst, að af
styrjaldarástæðum ætti að fá
sem allra flest fólk til að flytja
úr Reykjavík meðan stríðið
stendur. Skal aðeins bent á eina
minniháttar ástæðu, að mikill
hiuAi bæjarins er úr timbri og
gæti i loftárás brunnið til kaldra
kola á örstuttri stund. Öllum er
líka ljóst, að innan skamms
skapast gifurlegra atvinnuleysi
ít Reykjavík heldur en nokkurn
tíma hefir þekkst hér á landi,
um leið og hin óvænta og ó-
venjulega atvinna í sambandi
við dvöl setuliðsins hverfur að
mestu eða öllu. Þá vofir ekki
aðeins húsleysi yfir mörgum
manni í Reykjavík, heldur al-
ger vöntun lifrænna atvinnu. í
þriðja lagi er nú, sökum hins
óeðlilega og skaðlega aðstreym-
is til Reykjavíkur síðustu miss-
erin, svo fátt fólk við fram-
leiðslustörfin hvarvetna út um
land, að heilsu og þoli fólksins
er ofboðið’. Gott dæmi um á-
standið er það, að á einu nafn-
kunnu stórbýli sunnan lands
eru nú í vetur þrjár maneskjur,
hjón um áttrætt og miðaldra
sonur. Konan hefir um mörg
ár þjáðst af varanlegu heilsu-
leysi. En eins og nú hagar til,
verður áttræður öldungurinn og
sonur hans að bjarga öllum
heimilisstörfum og framleiðsl-
unni. Sjá allir, hve auðvelt það
er.
Engir nema blindir postular
uppiausnarinnar geta haldið
því fram, að nú eigi að halda
þúsundum karla og kvenna við
fánýta og oft skaðlega dvöl í
Reykjavík undir verndarvæng
ástandsins, en láta þúsundir
heimila í byggðum og kauptún-
um vera hálf auð af fólki, vegna
þrásetu þess á stöðum, þar sem
þess er minna en engin þörf.
og „menníngarþing“. Sagt er
ennfremur, að ríkisþing þetta
muni koma saman 1 konungs-
höllinni, þvi að i Stórþings-
húsinu situr Terboven land-
stjóri.
Það eru nú nálega 20 ár, síð-
an Bernhað Stefánsson bar
fram frimivarp um byggðar-
leyfi, til að jafna straumi fólks-
flutninganna innan iands.
Skammsýnir andstæðingar
Framsóknarmanna á Alþingi
eyddu því máli. Siöan tók ég
sömu hugmynd- upp i bæjar-
stjórn Reykjavíkur. Málinu var
þá eytt með sömu skammsýni
og á Alþingi. Nú sýpur þjóðin
seyöiö af glapráðum fyrri ára.
Nú vofir yfir Reykjavik hinn
hörmulegasti timi, þar sem at-
vinnubætur og helzta úrræði
margra forsjámanna verður, að
láta þá, sem ekki geta fram-
leitt, lifa á fyrri framleiðslu
bæjarbúa og landsmanna yfir-
leitt. Samhliða þessu brotna at-
vinnuvegir fólksins í dreifbýl-
inu niður fyrir vöntun á starfs-
afli, og húsakynnum ekki hald-
ið við af því að þau standa
hálíauð, eítir burtflutning fólks
frá atvinnu byggða og kaup-
túna.
Þörí þjóöarinnar krefur, að
fólkið dreiíi sér úr húsaskorti
og atvinnuleysi Reykjavikur til
þeirra staða, þar sem nóg er um
jhúsnæði, atvinnu og lifvænlega
I framtíð. Þar, sem einstaklingar
vilja vinna og vera sjálfbjarga,
á við að halda áfram skynsam-
iegri heimilamyndun á grund-
: velli þeim, sem lagður er með
I byggingar- og landnámssjóði
j og löggjöfinni um verkamanna-
bústaði. Þá er fjölgað sterkum,
hollum og íriðhelgum heimil-
um, en unnið á móti upplausn
og úrkynjun.
Mér finnst rétt að unna kom-
múnistum nokkurrar viðurkenn-
ingar fyrir elju og lægni viö
aö koma upplausnarmáli heim-
| ilanna umræöu- og athuga-
semdalitið gegnum aðra þing-
deildina. En að lokum verða
kommúnistar að reyna, að i
þetta sinn sem endranær má
treysta á spakmælið: „Upp
komast svik um síðir“. Nú
standa upphafsmenn innbrota-
frumvarpsins aíhjúpaðir fyrir
alþjóö manna. Nú sjá allir, að
þeir unnu hið þjóhættulegasta
verk með þvi að soga fólk frá
I framleiðsiu dreifbýlisins til
Reykjavíkur, i mesta hættu-
stað landsins í sambandi við
loíthernað, og hið stórfeldasta
! atvinnúleysi, þegar ástandinu
lýkur. Til íramdráttar þessari
óíremdarsteínu haía þeir lagt
(Framh. á 4. tiOu)
Dr. Helgi Pjeturas;
Athugasemd við fyrirburðasögu
Jóns frá Starmýri
Aðsókn sú, spm Jón frá Star-
mýri segir frá i Tímanum í dag,
virðist benda til þess, að íram-
liðnum hafi verið mikill hugur
á að ná sambandi við hann, og
er ekki ósennilegt, að frá fróð-
legri tiðmdum hefði verið að
segja, ef öðruvísi hefði verið við
snúizt. Hið rétta hefði verið, ef
tök hefðu verið á, t. d. næsta
kvöld, að skjóta á fundi (eins og
spíritistar segja) og freista,
hvort ekki mætti komast að
vitneskju um, hvers vegna vera
þessi birtist, eða verur. Og jafn-
vel þó að ekki hefði tekizt að
fá neitt sagt, þá hefði mátt
verða einhvers vísari með því
að gefa gætur að þvi, sem kom
i huga þeirra, sem voru að leit-
ast við að taka undir þessa
sambandstilraun, sem virðist
verið hafa. Einnig mætti gera
ráð fyrir, að þátttakendum
kynni að geta borið eitthvað
fróðlegt í drauma nóttina eftir.
Tilgangurinn með slíkri
sambandstilraun „handanað“,
getur stundum verið löngun til
að afstýra yfirvofandi háska, en
stundum aðeins löngun til að
geta sagt fréttir af sér og „ó-
kunna Iandinu“. Bezt er að
vera ekki hræddur, meðan ekki
virðist brýn ástæða til, eins og
Jón kveðst heldur ekki hafa
verið. Betra er að tveir en einn
taki þátt í slíkri tilraun, hérna
megin, og því meiri árangurs
von, sem fleiri eru, ef um næg-
an samhug er að ræða. Marg-
föld reynsla sýnir, að árangurs
getur verið að vænta af slikri
tilraun, ef oftar er reynt, þó að
ekki takist undir eins. Tilraun-
ín mun takast betur, ef gert er
ráð fyrir, að ekki sé um neitt
yfirnáttúrlegt að rteða, og ekkl
samband við anda og anda-
heim. Góður undirbúningur
undir fróðlegt framhald, er að
spyrja þann, senr sýnir sig, hvar
hann eigi nu heima. Mundi ehi-
hver, sem barizt hefði góðri bar-
áttu hér á íslandi, eins og ekki
er óliklegt að þessi framliðni
vinur J. frá Stm. hafi gert, geta
sagt margt íróðlegt frá íslandi,
eða tilsvörun íslands, á ein-
hverri annarri .jarðstjörnu, sem
a. m. k. öðrumegin, væri-stórum
betri en þessi jarðstjarna, sem
vér eigum heima á nú. Og hins
vegar mundi sá, sem misendis-
maöur hefði verið, geta sagt
tíðindi aí verra íslandi en hér
á jörðu er. Því að svo virðist
sem vanalegt sé, að framliðnir
eigi a. m. k. fyrst í stað heima
í iandi, sem líkist því, er þeir
lifðu á hér á jörðu, en á betri
eða verri veg, eftir því, hvernig
hér hefir verið lifað.
Mér kom til hugar áðan, er
ég var að lesa hina merkilegu
einyrkjasögu Hákonar Finns-
sonar ,að það mundi verða mjög
skemmtileg íslenzk sveit, sem
hann flytur i, þegar „yfirum“
kemur. Mun Hákon þá verða
stórvirkur og hagvirkur þeim
mun fram yfir það, sem hann
hefir verið hér á jörðu — og
hefir þó verið með ólíkindum —
sem ástæður verða betrí. Og
ekki þykir mér ólíklegt, að hon-
um mundi verða talsverður
hugur á, að geta fært oss hérna
fréttir af íslenzkri sveit á ann-
arri stjörnu, þar sem ærið
margt væri til að undrast og
gleðjast yfir, og íslendingum
frumlífsins gæti orðið til fyrir-
myndar.
9. marz 1943.
Helgl PjeturM.
Sumbund isí. suinvinnuféluya.
.
* I
■\
Kaupfélög gætið þess að hafa vörubirgðir yðar
I
nægilega vátryggðar.
Blautsápa
frá sápuvorksmiðjuimi Sjofn er almennt við-
iirkennd fyrir gæði. Flestar hnsmæður nota
Sjainar-blautsápu
Fryst Dílkakjðt
úrvals dilkakjöl
úr öllum beztu f járhéruðum landsimt.
Aðeins selt í heilum stookkum.
Frystihúsið Herðubreið
Fríklrkjuvei$i 7. Síml 2S78.
Tilkyiiiiiug
frá Tiinaiiuni.
Askrlftargjald Timaus heflr verlS
ákveðið sem hér segir:
I Reykjavík og Hafnarfirðl: kr. 4.00
á mánuðl fyrst um slun frá 1. aprfl n.
k. að telja.
IJtan Reykjavfkur og Hafuarf jarðar
kr. 30.00 árgangurinn 1943.
Tilkynning
frá skriistofu
leigumáladeildar Bandaríkjahersíns.
Bandarfkjaherlnn mun hafa fulltrúa í
Hafnarstræti 21, Reykjavfk, til aðstoðar
Islendlngum f málum sem lúta að leigu á
fasteignum tll Bandaríkjaherslns. Kem-
ur þetta til framkvæmda mánudaginn 15.
marz 1943, og verður sfðan alla vlrka
daga frá kl. 9 til 16. —
Simanúmerlð er 5937.
Framsóknarmenn
í Reykjavík
Afgreiðsla Tímans biður ykkur vinsamleg-
ast um aðstoð við að útvega börn eða unglinga
til að bera blaðið til kaupenda f bænum.