Tíminn - 30.03.1943, Blaðsíða 4

Tíminn - 30.03.1943, Blaðsíða 4
148 TÍMEVIV, |»riðjodagiim 30. marz 1943 37. MatS Ú R B ÆIVUW Móðurmálssjóður Björns Jónssonar. Prentarinn, sem setti greinina um ís- lenzka tungu og móðurmálssjóöinn, kom að loknu verai í skriístoíu Tímans með tillag í sjóðmn. Tleiri haía þegar farið að dæmi hans. Allmargar bækur hafa komið út síðustu dága. Er þar á meðal að nefna vandaða myndabók, nýja og breytta útgáíu á „Island í myndum", meö íslenzkum og enskum textum og formála eftir Einar Magnús- son menntaskólakennara, „Læriö að matbúa'*, matreiðslubók eftir Helgu Sigurðardóttur, forstöðukonu Hús- mæðrakennaraskóla Islands, 2. útgáfa, aukin og endurbætt, með ágripi aí næringarefnafræði eftir dr. Júlíus Sigurjónsson lækni, „Polk Tales“, þjóð- sögur frá Islandi og íleiri löndum í enskri þýðingu, allar gefnar út af Isa- foldarpientsmiðju. — Á forlag Guð- jóns O. Guðjónssonar hefir komið út skáldsaga eítir W. Somerset Maugham, „Hjónaband Bertu Ley.“ W. Somerset Maugham er höfundur sjónleiksins „Loginn helgi“, er sýndur var hér í Reykjavík fyrir skömmu. Samkór Reykjavíkur heitir blandaður kór, sem nýlega hefir verið stofnaður hér í bænum. Eru í honum um 60 manns, þar af um 30 úr karlakórnum Ernir. Formaður þessa nýja kórs er Gísli Guðmundsson toll- vörður, en söngstjóri Jóhann Tryggva. son. Tveir menn slasast. Slys varð í hitaveitunni síðastl. laug- ardag, er stórt hjól biotnaði í steypu- hrærivél. Tveir menn, Gísli Guðnason, Miðtúni 2, og Ingvar Bjarnason, Berg- staðastræti 17 B, urðu fyrir járnbrot- um og varð að flytja þá í sjúkrahús. Hlaut einkum Gisli mikii meiðsli. Áfengisfalsanir. Sakadómari hefir nýlega dæmt sjö mknneskjur fyrir fölsun á áfengis- beiðni. Pimm karlmenn hlutu 60 daga fangelsi hver, skilorðsbundið, og voru sviptir kosningarétti og kjörgengi. Einn karlmaður hlaut 15 daga fangelsi, skilorðsbundið, og var sviptur kosninga- rétti og kjörgengi. Ein kona hlaut 10 daga varðhald, skilorðsbundið, og var svipt kosningarétti og kjörgengi. Þjófar dæmdir. Sakadómari hefir nýlega dæmt fimm menn fyrir ýmsa þjófnaði. Pimm þeirra, sem áður höfðu verið dæmdir fyrir þjófnaði, hlutu 8 og 6 mánaða fangelsi, óskilorðsbundið. Hinir hlutu 90 daga, 40 daga og 30 daga fangelsi, skilorðsbundið. Allir voru sviptir kosn- ingarétti og kjörgengi. Líkamsmeiðingar. Sakadómari hefir dæmt mann einn, Sigurð Jónsson að nafni, í 30 daga fangelsi, óskilorðsbundið, fyrir að berja vinnufélaga sinn til óbóta, og jafn- framt gert honum að skyldu að greiða kr. 2755 í skaðabætur. Sigurður hefir áður hlotið refsingu fyrir sams konar brot. Dómur fyrir óvarkárni. Sakadómari hefir nýlega kveðið upp dóm í máli valdsstjórnarinnar gegn Hannesi Sveinssyni. Málavextir eru þeir, að Hannes ók veshefli á Hafnar- fjarðarvegi. Smábörn héngu aftan i heflinum og hættu því ekki, þótt Hannes margbannaði þeim það. Þegar hann ók heflinum aftur á bak, varð eitfc barnið undir honum og beið við það bana. Þar sem hann vissi, að börn- in héngu aftan í heflinum, bar honum að fullvissa sig um, að ekkert þeirra væri þar enn. Hann er þvl talinn með- valdur að slysi þessu og var dæmdur í 300 króna sekt til ríkissjóðs. Ný barnabók: Sagan af Dimmalímm ævintýri með myndum eftir Guðmund Thor- steinsson. Bókabúð KRON gaf út. Guðmundur Thorsteinsson var gáfaður og afburða fjöl- hæfur listamaður, en hann varð aðeins 32 ára gamall. Hann kunni m. a. manna bezt að segja sögur, bæði fullorðnum og börn- um. Þetta litla ævintýri skrif- aði hann og teiknaði myndir í handa systurdóttur sinni lítilli á leiðinni frá Ítalíu til íslands. Fráleitt hefir honum þá dott- ið í hug, að það yrði prentað. En nú er það komið út í fallegri út- gáfu með mörgum ævintýra- legum litmyndum, svo að aðrar litlar stúlkur geti lesið um Dimmalimm og svaninn hennar, sem var reyndar kóngsson í á- lögum. Er útgáfan og allur frá- gangur bókarinnar óvanalega vandaður. J. Ey. Lesendur ! Vekið athygli kunningja yð- ar á, að hverjum þeim mannl, sem vill fylgjast vel með al- mennum málum, er nauðsyn- legt að lesa Tímann. Rógur Gottíreds- senanna (Framh. af 1. síðu) Flestir aðrir atvinnurekend- ur þurfa þessa ekki. Það er líka dálítið annað, að búa í þéttbýli, geta verið í félagi um ferðalög, eða beinlínis meðlimir í félagi, sem annast skemmtiferðir, eða búa í strjálbýli og taka sig það- an upp í ferðalag. Margir bænd- ur eru og þannig efnum búnir, að þeir geta það ekki, eða gera það ekki, nema til komi einhver hvöt peningalega og á annan hátt. Reynslan hefir sýnt þetta og hún mun halda áfram að sýna það, ef ekki verður að gert. En ef það er rétt, sem jafnvel flestir álíta, bæði hér og erlend- is, að það sé nauðsyn að fólk geti kastað frá sér áhyggjum og daglegu striti nokkra daga ár- lega og varið þeim tíma til að sjá sig um, víkka sjóndeildar- hringinn, safna þrótti og lífs- gleði til aukinna starfa, — ef þetta er rétt, og að það borgi sig meira að segja fjárhagslega fyrir þjóðfélagið — þá fullyrði ég, að þessarar þressingar er ekki sízt þörf fyrir bændur og sveitakonur. En það, sem menn annað hvort ekki geta skilið eða vilja ekki skilja, er þetta: Vegna erfiðleika um samtök og félags- skap í stjálbýlinu, vegna fá- tæktar margra bænda, vegna fólksleysis, vegna skydurækn- innar við hið daglega strit, vegna alls þessa verður það aldrei svo, að kynnisferðir sveitafólks verði almennar nema að eitthvað verði gert, sem örv- ar þær, hvetur og léttir undir. Sá félagsskapur (búnaðarfélög- in eða búnaðarsamböndin), sem sæi um að koma af stað þessum kynnisferðum, þarf að ráða yf- ir nokkru fjármagni til þess að greiða kostnað við undirbúning og skipulag ferðanna og nokkuð af ferðakostnaði, sérstaklega þeirra, sem fjárhagur hamlar að greiða kostnaðinn sjálfir. Ferðalög hafa fleira til síns ágætis en hér hefir þegar verið greint. Sumir menn eru haldn- ir þeirri villu, að telja þau lítils virði. Forfeður okkar voru á annarri skoðun, og saga þeirra og reynsla staðfpstir, að skoð- un þessi var rétt. Þaðan er kom- ið máltækið „Heimskt er heima alið barn“. Menn fara sjaldan í ferðalag án þess að læra eitt- hvað af því. Það er ekkert lítill lærdómur, né lítil hvöt til fram- taks, að sjá fegurð þessa lands, sjá fyrirmyndarheimili, fyrir- myndar búrekstur og vel gerðar framkvæmdir á ýmsum sviðum þjóðlífsins. Að sumu leyti yrðu því kynn- isferðir mikill skóli og bein hvöt til framfara og framtaks. Mönn- um leiðist að vera eftirbátar, þegar þeir sjá framfarir og myndarskap. Sjá, hvað aðrir hafa komizt. í frumvarpinu um kynnis- ferðir, var fyrst gert ráð fyrir nokkru framlagi úr ríkissjóði. Nú hefir þessu verið breytt þannig, að taka má y2 af hundraði af verði landbúnaðar- vara og stofna með því sjóði til þess að styrkja og greiða fyrir þessum kynnisferðum. En þessu risu ýmsir bæjar- menn gegn, telja þetta tekið úr vasa neytendanna sem „skatt“ í ölmusur handa bændum. Flestir, sem skoða þetta með nokkurri dómgreind og sann- girni, munu líta svo á, að þessi i/2 af hundraði muni ekki auka verðhækkun varanna til neyt- enda, — að minnsta kosti ekki til lengdar. — En það virðist ekkert tjóa, þótt á þetta sé bent. Um það, hvort frumvarpið um kynnisferðir, verður samþykkt á þessu þingi eða það dregst eitthvað-ennþá, skal engu spá. En það virðist góðs viti fyrir þetta mál, og hlýtur að vekja nokkra athygli, að sá bóndi, sem af minnstum skilningi og af minnstri hógværð ritaði um afurðasölulög bænda á sínum tíma, löggjöf, sem bændur eru nú næstum án undantekningar fylgjandi, er fyrsti bóndinn til að rita jafn fávíslega og af sömu hvatvísi um kynnisferö- irnar. — Munið að Framsóknarskemmtunin er í kvöld í Oddfellowhúsinu. Innilegustu þakkir til allra þeirra, er sýndu hjálp eða hluttekning við jarðarför Höskuldar Guðmundssonar Ingólfsstræti 16. VANDAMENN. Tilkynning: Athygli vélsmiðja, skipasmíðastöðva, dráttarbrauta og viðgerðarverkstæða bifreiða skal hér með vakin á því, að í Lögbirtingablaðinu, sem út kemur þriðjudag- inn 30. þ. m., verða birtar tilkynningar varðandi á- lagningu á efni og vinnu, sem fyrirtæki í þessum greinum selja. Reykjavík, 25. marz 1943. Vcrðlagsstjóriim. Tilkoð óskast 1 vörubirgðir firmanna Perlubúðin, Sportvöru- gerðin og Windsor Magasin fyrir 8. apríl n. k. í skrifstofu lögmanns í Arnarhvoli geta menn fengið að sjá skrá yfir vörurnar og skoðað þær eftir samkomulagi. Áskilinn er réttur til að hafna öllum tilboðum. Skiptaráðandiuu í Heykjavík. Lögtak. Eftir kröfu útvarpsstjórans í Reykjavík og að undangengnum úrskurði verða lögtök látin fara fram fyrir ógreiddum afnotagjöldum af útvarpi fyrir árið 1942, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar aug- lýsingar. Lögmaðurinn 1 Reykjavík 27. marz 1943. Kr. Kristjánsson, / settur. Vestiirðíngamótið verður haldið í Hótel Borg fimmtudaginn 1. apríl og hefst með borðhaldi kl. 19.30. # Aðgöngumiðar 1 dag (þriðjudag í Hótel Borg (suðurdyr) kl. 3—6. Stjórnin. Jörðiu Karlsá r—■—> GAMLA bíó —- Major Rogers og 1 NÝJA BÍÓ o Ást kappar hans. og afhrýðiscmi. (Northwest Passage) (Appointment for Love). SPENCER TRACY, CHARLES BOYER, ROBERT YOUNG. MARGARET SULLIVAN. Börn fá ekki aðgang. Sýnd kl. 7 og 9 Sýnd kl. 6.30 og 9. Sýning kl. 5: Kl. 3V,—6/,. HESTRÆNINGJARNIR ÆVINTÝRI Á SJÓ. með Cowboykappanum (Mexican Spitfire at Sea). Johnny Mach Brown. LEON ERROL, Börn .yngri en 12 ára fá LAPE VELEZ. ekki aðgang. — — LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR. „Fagurt er á fjöllum” Skoplelkur í 3 þáttum, staðfærður af EMIL THORODDSEN. Sýning í kvöld kl. 8. Tilkynning 0 í sambandi við breytingar, sem nú um þessar mundir er verið að gera á frámkvæmd verðlagscftirlitsins og miða að því að efla það pg styrkja, vill Viðskiptaráðið geta þess, að það telur aðstoð af hálfu neytenda nauðsynlega til þess að tryggt sé, að eftirlitið beri fullan árangur, og óskar því eftir samvinnu við almenning hér að lútandi. » Neytendur eru sérstaklega hvattir til þess að veita þessum atriðum athygli: 1. Hvort vörur, sem ákvæði um hámarksálagningu gilda ekki um, eru seldar hærra verði en 13. febrúar síðastlið- inn eða hærri greiðsla er tekin fyrir einhvers konar verk, en slíkt er óleyfilegt án leyfis Viðskiptaráðsins. 2. Hvort verð vöru er hærra en auglýst hámarksverð. 3. Hvort sama vörutegund er seld misháu verði í tveim eða fleiri verzlunum. Ef menn telja brotið gegn gildandi reglum, er óskað eftir því, að þeir komi í skrifstofu verðlagsstjóra eða til trúnaðarmanna hans utan Reykjavíkur og skýri frá málavöxtum eða tilkynni bréflega um málið. Ef. því verður við komið, er æskilegt að lögð séu fram skilríki (nótur, verðmiðar, vörusýnishorn o. s. frv.). Gengur skrifstofa verðlagsstjóra síðan tafarlaust úr skugga um, hvort um brot er að ræða. Landinu hefir verið skipt í eftirlitssvæði, og trúnaðarmenn skipaðir eins og hér segir: 1. Reykjavík og aðrir verzlunarstaðir frá Borgarnesi að Vík í Mýrdal. Eftirlit á þessu svæði annast skrifstofa verð- lagsstjóra. í Svarfaðardalshreppi, Eyjafjarðarsýslu, fæst til kaups og á- búðar frá næstu fardögum. — Á jörðinni er stórt steinsteypt í- búðarhús, raflýst, stór og góð útihús og véltækt tún. Allar nánari upplýsingar gefur undirritaður eða eigandi og ábúandi jarðarinnar. Baldvin Jóusson, héraðsdómsmálflutningsmaður. Sími 4810. UTBOÐ. 2. Breiðafjörður. Trúnaðarmaður á því svæði er Ólafur Jónsson, aðsetur Stykkishólmur. 3. Vestfirðir, frá Bjargtöngum til Horns. Trúnaðarmaður á því svæði er Sveinn Þórðarson, aðsetur ísafjörður. ^ 4. Húnaflói og Skagafjörður. Trúnaðarmaður Jón Jónsson, aðsetur Blönduós. 5. Akureyrarsvæði, frá Siglufirði til Raufarhafnar. Trún- aðarmaður hefir aðsetur á Akureyri, og er það Jörundur Oddsson. Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í bygg- ingu túrbínuhólks, þrýstivatnspípu o. fl. í aflstöðina við Ljósafoss. Uppdrættir og útboðslýsing liggja frammi til sýnir í skrif- stofu Rafmangsveitunnar (teikni^tofunni) frá þriðjudegi þ. 30. marz e. h. og afhendist gegn 250 kr. skilatryggingu. Tekið verður á móti tilboðum á sama stað til miðvikudags- ins þ. 14. apríl kl. 11.30 f. hád. og verða þau þá lesin upp í viður- vist bjóðenda, er þar kunna að vera mættir. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 6. Austfirðir, frá Þórshöfn til Hornafjarðar. Trúnaðarmað- ur er Axel Kristjánsson, aðsetur Eskifjörður. 7. Vestmannaeyjar. Trúnaðarmaður er Hermann Guðjóns- son. Reykjavík, 25. marz 1943. V erdlagsst j órínn. Raf ma gnsst j ór inn. Eglll Signrgeirsson hæstarétta ■'Aianutnlngsmaffur Austurstræti 3 — Reykjavík Anglýsið í Tímanum! Innheímtumenn Tímans Scndið skilagrcin liið allra fyrsta! Gleymið ekkí að borga T í m a n n. T í M IIV IV cr víðlcsnasta auglýsingablaðið!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.