Tíminn - 08.04.1943, Síða 4

Tíminn - 08.04.1943, Síða 4
164 TÍMINIV, fimmtntlagÍBin 8. apríl 1943 41. blað Tillögur íjárhagsneíndar fr r p m Tv.iT m Sögufélagið hefir nú sent ársbækur sínar fyrir 1942 út. Þær eru: Blanda VII, 3. Landsyfirréttardómar og hæstaréttar- dómar V, 4. Galdur og galdramál á ís- landi, 3. hefti, og Skýrsla félagsstjórn- ar. Læknatalið átti að fylgja með bók- unum frá síðasta ári og af þvi stafaði dráttur sá, sem varð á útlcomu bók- anna að þessu sinni. Þó fór það svo, að Læknatalið komst ekki með árbók- um síðasta árs, og var það einkum fyrir þá sök, að ritið varð miklu stærra en í fyrstu var hugsað. Er fyrirhugað, að Læknatallð verði tilbúið síðar á árinu og verðl um 36 arkir að stærð, prentað með smáu letri, með myndum af flestum læknum og ýtarlegri nafna- skrá. Mun það veiða sent með öðrum ársbókum til félagsmanna í haust. Fé- lagsmönnum er gefinn kostur á að fá Læknatalið í bandi fyrir 12 kr. auka- gjald, enda verði þeir búnir að til-‘ kynna ísafoldarprentsmiðju h.f. ósk sína þar að lútandi 1. júní næstk. Námskeið fyrir knattspyrnu- dómara stendur nú y'fir hér í bænum. Þátt- takendur eru 14. í. S. í. heldur nám- skeiðið. Kennari er Gunnar Axelson. Leíkfélafifíð , .Orðíð44 Á morgun verður „Orðið“ eftir danska skáldið Kaj Munk sýnt í Iðnó í fyrsta skipti. Er Lárus Pálsson leikstjóri, en þýtt hefir leikritið séra Sigurjón Guð- jónsson, prestur að Saurbæ á Hvalf j arðarströnd. Er hér um að ræða mjög merkan leilc, sem einkum fjallar um afstöðu manna til hins lifandi kristindóms. Koma fram, í leiknum full- trúar ýmissa sjónarmiða. Bor- gen sveitarhöfðingi, sem er Grundtvigsfnaður (leikinn af Val Gíslasyni), Pétur skradd- ari heimatrúboðsmaður (Jón Aðils), Houen læknir skyn- semistrúar (Haraldur Björns- son), séra Bandbull (Brynjólf- ur Jóhannesson) og Jóhannes geðveiki (Lárus Pálsson), sem túlkar skoðanir höfundar sjálfs. Auk þeirra leikara, sem nefndir hafa verið, leika í „Orðinu" Gestur Fálsson, Arn- dís Björnsdóttir, Helga Bryn- jólfsdóttir (Jóhannessonar), Anna Guðmundsdóttir, Gunn- þórunn Halldórsdóttir, Klem- ens Jónsson, Steingerður Guð- mundsdóttir og Sigurveig Þór- arinsdóttir. „Orðið“ er eitt af fyrri leik- ritum Kaj Munks, er fyrir al- menningssjónir kom. Var það fyrst sýnt í Betty Nansen- leikhúsi I Höfn. Vakti það mikla athygli og deilur, og stóð þá fyrst styr um Munk, en oft síðan. Er óhætt að hvetja fólk eindregið til þess að sjá þenna leik. Kaj Munk er áður nokkuð kunnur hér á landi, bæði af fá- einum þýðingum og greinum um hann, auk þess sem Poul Reumert flutti „En Idealist“ eftir Munk í Gamla Bíó sum- arið 1938. Varnír Þjóðverja í Noregí New York. — Norska upplýs- ingaskrifstofan skýrir frá því, að Þjóðverjar séu að koma upp gaddavírsgirðingum, skotgröf- um, skriðdrekagildrum og vél- byssuhreiðrum í smábæjum á vesturströnd Noregs og er þetta dulbúið eins og hús, fréttaskilti og útihús. Heragi meðal þýzkra hermanna er sagður slæmur, og eru oft ryskingar og rifrildi á meðal þeirra. Frá ameríska blaðafulltrúan- um). Innheímtumenn Tímans Sendið skilagrein hið allra fyrsla! Lesendur! Vekið athygll kunningja yð- ar á, að hverjum þelm manni, sem vill fylgjast vel með al- mennum málum, er nauðsyn- legt að lesa Timann. (Framh. af 1. síðu) ætlast til, að launþegar afsali sér þessum hlunnindum, er myndi þýða um 12% kaup- lækkun í einn mánuð. íftreiknmgur vísitölu fyrir landbiinaðinn Fjórða breytingartillaga nefndarinnar er þessi: „Skipa skal sex manna nefnd, er finni grundvöll fyrir vísitölu framleiðslukostnaðar landbún- aðarafurða, er fara skal eftir við ákvörðun verðs landbúnað- arvara, og hlutfall milli verð- lags landbúnaðarvara og kaup- gjalds stéttarfélaga, er miðist við það, að heildartekjur þeirra, er vinna að landbúnaði, verði í sem nánustu samræmi við tekj- ur annarra vinnandi stétta. Skal í því sambandi tekið tillit til þess verðs, sem fæst fyrir útfluttar landbúnaðarafurðir. Nefndin skal skipuð hagstofu- stjóra, og,sé hann formaður nefndarinnar, forstöðumanni búreikningaskrifstofu ríkisins, tveim mönnum eftir tilnefningu Búnaðarfélags íslands, einum manni eftir tilnefningu Alþýðu- sambands fslands og einum manni tilnefndum af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæjarfé- laga. Nú verða nefndarmenn sammála um vísitölu fram- leiðslukostnaðar landbúnaðar- afurða og hlutfall milli verð- lags á landbúnaðarafurðum og kaupgjalds stéttarfélaga, og skal. þá verð á landbúnaðar- vörum ákveðið í samræmi þar við, meðan núverandi ófriðar- ástand helzt. Þó er ríkis- stjórninni heimilt að ákveða lægra verð á einstökum vöru- tegundum gegn framlagi úr ríkissjóði. Nefndin skal ljúka störfum og skila áliti til ríkisstjórnarinnar fyrir 15. ágúst 1943“. Fjárframlög til vcrblækkmiar Fimmta tillaga nefndarinnar er sú, að þar til afurðaverðið verður ákveðið samkvæmt vísi- tölu, ef samkomulag áður- greipdrar nefndar næst, en annars til 15. sept., skuli ríkis- stjórninni heimilt að lækka mjólkurverðið og kjotverðið með framlögum úr ríkissjóði, þann- ig, að mjólkurverðið verði kr. 1.30 lítri og kjötverðið í heild- sölu kr. 4.80 kg. Með því að veita stjórninni þessa heimild til 15. sept., ef samkomulag næst ekki í nefndinni, er henni og Alþingi gefinn mánaðarfrestur til nýrra ráðstafana. Gert er ráð fyrir, að kostnaður ríkisins af þess- um verðlækkunum verði 3 milj. kr. og tekst hann af verðlækk- unnarskatti: Um þessa tillögu segir í áliti: „Ætlazt er til, að útsöluverð mjólkur til neytenda verði kr. 1.30 á lítra, og er það fengið þannig, að tekið er mjólkur- verð 1939, sem var 40 aurar pr. lítra, bætt við það 45% grunn- verðshækkun og þar ofan á dýr- tíðaruppbót miðað við vísitölu 230. En í tillögum nefndarinnar er gert ráð fyrir, að stefnt verði að því að koma verðlagsvísitölu a. m. k. niður í 230 á sem skemmstum tíma. Framleiðend- ur skulu aftur fá fyrir mjólk- ina núverandi verð, kr. 1.75 á lítra, að frádreginni þeirri hundraðstölu, sem kaup lækkar um við lækkaða framfærslu- vísitölu. Ef vísitala lækkar úr 262 í 230, kemur það þannig út: Kauplækkun yrði 12.2%, og 12.2% af kr. 1.75 gerir kr. 0.21. Mismuninn, ef lækkunarheim- ildin er notuð til fulls, kr. 0.24, á svo að greiða úr rikissjóði. Um kjötverð er beitt sömu að- ferð, og verður þó heildsöluveijð á dilkakjöti kr. 4.80 pr. kg. Út- söluverð yrði, með óbreyttri á- lagningu, kr. 5.40, og greiðslan úr ríkissjóði til viðbótar því, sem stjórnin hefir þegar ákveð- ið, kr. 1.00 pr. kg. Þessar heirn- ildir falla úr gildi í síðasta lagi 15. sept., og verður ríkisstjórn og Alþingi að gera nýja skipan á um þessa hluti fyrir þann tíma, ef samninganefndin hefir ekki orðið sammála. Hér verður að setja tímatakmörk, því að ekki er, unnt að kaupa niður verðlag nema um takmarkaðan tima. Ut af því, sem hér að framan er sagt um að leggja til grund- vallar við verðlagningu land- búnaðarvara verð þeirra árið 1939 að viðbættri 45% grunn- veröshækkun, vilja þeir Skúli Guðmundsson og Ingólfur Jóns- son taka iram, að þeir geta ekki á það íallizt og viðurkenna ekki þá útreikninga, þar sem þeir telja óeðlilegt, að íramleiðend- ur landbúnaðarvara fái minni hækkun á aíuröaverðinu' en sem nemur hækkun á kaup- gjaldi verkamanna á sama tima. Grunnkaupshækkun dag- launamanna i 40 verkamanna- félögum innan Alþýðusam- bands íslands, þar með talin Qll. fjölmennustu félögin, mun vera að meðaltali um 65% sið- an 1939. Er hér reiknuð sú hækkun, sem orðið hefir á tímakaupi í dagvinnu, en þar að auki eiga verkamenn nú að fá orlofsfé, samkvæmt nýjum lögum, sem þeir munú ekki hafa fengið árið 1939“. Atviimutryggingar- sjoður Sjötta tillaga nefndarinnar fjallar um heimild fyrir ríkis- stjórnina að leggja 3 milj. kr. í sjóð til tryggingar launþegum gegn atvinnuleysi, er nefnist atvinnutryggingarsjóður. Milli- þinganefndin, sem nýlega var kjörin til að athuga ýms at- vinnumál, skal setja reglugerð um hlutverk sjóðsins í samráði við Alþýöusamband íslands. Sjóðnum er ekki ætlað að veita beina styrki, heldur verð- ur honum varið til atvinnu- framkvæmda. Mun hann eiga að vera eins konar endurgjald fyr- ir þá launalækkun, er laun- þegar taka á sig, ef þeir fallast á áðurgreinda vísitölulækkun í einn mánuð. í fjárhagsnefndinni, er stendur að tillögum þessum, eiga sæti: Skúli Guðmundsson, Ásgeir Ásgeirsson, Einar Ol- geirsson, Ingólfur Jónsson og Jón Pálmason. Ingimar Eydal (Framh. af 1. síðu) ureyri og stuðningsmaður blaðs- ins alla stund frá því að blaðið var stofnað fyrir aldarfjórð- ungi. Ingimar Eydal hefir alla þessa stund verið þátttakandi í hinni margþættu framfara- baráttu Eyfirðinga. Ingmar Eydal hefir gengið sömu þroskabraut eins og flest- ir aðrir merkir samtíðarmenn hans í Eyjafirði. Hann er fædd- ur og uppalinn í hinum fagra Eyjafjarðardal, gekk ungur í Möðruvallaskóla og lauk þar prófi með hárri einkun. Síðan hélt hann áfram námi í Ðan- mörku, reyndi að stofnsetja héraðsskóla í Eyjafirði, en var á undan tímanum og fékk of lítinn stuðning frá mannfélag- inu. Þá gerðist hann kennari og skólastjóri á Akureyri, en gaf megnið af hjáverkastundum sínum i þágu samvinnuhreyf- ingarinnar og Framsóknar- flokksins. Á yngri árum Ingimars Ey- dals snerist landsmálabaráttan að miklu leyti um sjálfstæðis- málið. Ingimar Eydal var jafn- an í fremstu röð og stefndi að því sem Matthías Jochumsson kallaði „fullræði“, eða fullkom- ið sjálfstæði. En eftir að samið var um skipulegan skilnaðar- möguleika 1918, varð Ingimar Eydal einn af forustumönnum Framsóknarmanna. Honum komu þar að góðu haldi fjöl- þættir hæfileikar. Hann var manna rökfastastur í ræðu og riti. Pólitískar greinar hans voru skýrar, málið snjallt, mjúkt en þó myndríkt. Á póli- tískum fundum á Akureyri og í Eyjafirði var hann óviðjafnan- legur baráttumaður. Hann var fyrirferðarmikill maður,er hann sté upp í ræðustól. En þó stækkaði hann á ræðupallinum. Enginn maður var sigursælli á fundum norður þar en Ingimar Eydal. Hann bar hærra en aðr- ir menn. Röddin var djúp og skýr. Hann var hógvær, en þó djarfur, og gæddur þeirri lát- lausu en léttu fyndni, sem ein- Sigrún Blöndal (Framh. af 2. slðu'• erlend tungumál. Undruðust þeir námgirni og þroska þess- arar litlu heimasætu. Þessi kona hefir, þrátt fyrir mikíð annríki, verið sínemandi og sí- vaxandi fram á þenna dag. Langt er síðan að hún varð þjóðkunn fyrir gáfur, menntun, mannkosti og manndóm. Hún er undarlega fjölhæf. Hún kann vel sex tungumál, svo ekki sé ofmikið sagt. Enginn veit, hvort henni er auðveldara að kenna íslenzkan vefnað, meðferð mjólkur og sláturgerð, eða hitt, að skýra heimsfræg, erlend stórskáld. Þeir, sem hafa heyrt hana flytja ræðu, t. d. við skólasetningu og skólaslit á Hallormsstað, vita ekki betur en að hún standi þar jafnfætis helztu ræðusnillingum þessa lands. Kunnugir menn heyra sér- stakan hljóm í nafninu Sigrún Blöndal eða Sigrún á Hall- ormsstað, þann sama, sem í nöfnunum Ásdís á Bjargi og •Auður djúpúðga. 4. apríl 1943. Páll Hermannsson. 4 víðavangt. (Framh. af 1. slðu) læknisins. Þykir og stéttar- bræðrum hans lítill sómi að slíkum félaga. — Nú er eftir að sjá röggsemi heilbrigðisstjórn- arinnar. SIGURHÁTÍÐ JÓNS Á AKRI. í bréfi frá Húnaþingi var ný- lega minnzt á uppskeruhátíð Jóns á Akri kosningadaginn í haust og hlutdeild héraðslækn- isins: „Það er nú orðið langt síðan ég hefi verið á samkomu, sem jafnaðist á við þesa sigur- hátíð. Hér var hvarvetna komið fyrir brjóstsykri, karamellum og súkkulaði á áberandi stöðum. Drykkjarföng voru meira afsíð- is, og var það skiljanleg kur- teisi, en nokkrir voru þeir að lokum, sem farnir voru að bera utan á sér höfðingslund veit- andans.---------Eitt var það, sem bar af venjulegri nærgætni og gæti verið til fyrirmyndar. Stuttu fyrir miðnætti kom læknir á staðinn með nokkra kjósendur af Blönduósi. Voru það mikil þægindi að fá þarna lækni á staðinn í stað þess að þurfa að hringja neyðarhring- ingar til Blönduóss, eins og nokkuð hafði verið gert áður. Gerði hann sér og mjög annt um þá, sem vanmáttar kenndu, Mátti að lokum segja, að hann væri í faðmlögum við þá, sem frekast þurftu hjúkrunar við andlega eða líkamlega. Aðalhöfðingi hátíðarinnar sveif eins og góður engill yfir öllu saman. En nokkuð sýnd- ust vængjatökin vera orðin þung og silaleg, og ekkert heyrð- ist í tálknunum. — Þú sérð af þessari litlu og góðlátlegu mynd, hvort ekki hefir verið gætt allrar flokkssæmdar eins og hún hefir birzt í síldar- mjölsúth-lutun og mörgu fleiru. Má vera að það sé mitt illa inn- ræti, sem hefir blásið mér því í brjóst, að þetta þyrfti opin- berrar rannsóknar við. Og með- an það er ekki gert, smádofnar og deyr út þessi þingræðís og lýðræðistýra, sem nú blaktir á skarinu.“ kennir marga Eyfirðinga. Mér er enn í minni pólitískir fund- ir 7—800 manns í hinum mikla samkomusal á Akureyri, þar sem hinir mörgu fundargestir hlustuðu í djúpri þögn en með heiitri eftirvæntingu á hvert orð, sem féll af vörum ræðu- mannsins^- Nú er Ingimar Eydal sjötug- ur. Hann er enn ritstjóri Dags. Hann er enn einn af stjórnend- um Kaupfélags Eyfirðinga. Hann er enn öruggur skilnað- armaður. Hann fylgist af alhug með öllu umbótastarfi samtíð- arinnar. Samherjar Ingimars Eydals og vinir hans hvarvetna á land- inu munu senda honum hug- heilar kveðjur, þakklæti fyrir mörg og góð unnin störf, og einlægar óskir um, að stundir kvöldsins megi að öllu verða í fullu samræmi við hina löngu og gifturíku starfsdaga. J. J. r------GAMLA BÍÓ----- „N Ý MÁNINN“ (NEW MOON) Aðalhlutverkin leika: JEANETTE MACDONALD Og NELSON EDDY. Sýnd kí. 7 og 9 Kl. 3%—6%. LI’L ABNER Amerísk skopmynd. —-------wýja Btó ------- Sp ellvirk j ar nir (THE SPOILERS) Stórmynd gerð eftir sögu Rex Beach’s. Aðalhlut- verkin leika: Marlene Dictrich, John Wayne, Randolph Scott, Richard Barthelmess. — Sýnd kl. 5, 7 og 9 — Bönnuð fyrir börn yngri en 16 ára. L LEIKFELAG REYKJAVIKUR 77 ORÐIÐ cc eftir KAJ MUNK. Frnmsýning annað kvöltl kl. 8. Frumsýningargestir eru beðnir að sækja aðgöngumiða sína kl. 4—7 í dag. ftóð atvinna. Einn maður, vanur sveitavinnu, óskast nú þegar, helzt sem ársmaður. Árskaup kr. 8.000,00 auk fæðis, þjónustu og húsnæðis. Upplýsingar í afgreiðslu Tímans. Blautsápa frá sápuverksfliiðjinuii Sjöíu er almennt við- nrkennd fyrir gæði. Flestar húsmæður nota Sjafnar-blautsápu Lúðrasveít Reykja- víkur leíkur iyrír Bandaríkjamenn Síðastliðinn sunnudag stofn- aði Lúðrasveit Reykjavíkur til kynningar milli sín og Lúðra- sveitar frá Bandaríkjahernum. Bauð hún yfirhershöfðingjan- um, C. H. Bonesteel, og fylgdar- liði hans, ásamt Jierlúðrasveit- inni, til kaffidrykkju og hljóm- leika í Golfskálanum í Öskju- hlíð. Lúðrasveit Reykjavíkur lék þar nokkur lög undir stjórn Karls Ó. Runólfssonar og einn- ig söng Pétur Á. Jónsson óperu- söngvari þrjú lög með undirleik lúðrasveitarinnar. Leikin voru aðallega íslenzk þjóðlög og lög eftir íslenzk tón- skáld. Skýrt var fyrir gestunum, hversu háttað er um Lúðra- sveit Reykjavíkur, að þar er ekki um atvinnuleikara né skólalærða hljómlistarmenn að ræða, heldur áhugamenn, sem iðka hljómlistaræfingar aðeins í frístundum, eins og tíðkast hefir yfirleitt um hljómlistar- iðkanir íslendinga til skamms tíma, og gildir að miklu enn, að það eru ekki launin eða hagn- aðarvonin, sem knýr til starfa, heldur innri þörf og þrá ein- staklinganna. Bæði leikur L. R. og söngur Péturs Á. Jónssonar tókst mjög prýðilega og létu gestirnir ó- spart í ljós hrifningu sína, ekki sízt, er Pétur söng með. Var auðfundið á öllu, að þeim þótti leikur L. R. framar öllum von- um og mikið til Péturs koma bæði sem persónu og söngvara. Er enginn vafi á, að kynningar- stund þessi var L. R. og íslend- ingum til vegsauka. Auk am- erísku gestanna voru þeir við- staddir hljómleikana Valdemar Björnsson, sjóðliðsforingi og Dóri Hjálmarsson höfuðsmað- ur. Að loknum hljómleikunum n:< i -Jfyíi j h h íxd Fólk sem þarf að komast frá Rckjjavík ttl Pat- reksfjarðar og ísa- fjjarSSar, er heðið að láta skrásetja sig í skristofu vorri fyrir hádcgi I dag. ZVoregssöfnunin (Framh. af 1. siðu) félög hafa gefið eftirtaldar upp- hæðir: Reykjavíkurbær kr. 100 þús., Hafnarfjarðarbær 20 þús., ísafjarðarkaupstaður 7 þús., Seyðisfjarðarkaupstaður 2 þús., Siglufjarðarkaupstaður 5 þúsund, Þingvallahreppur 1 þús., Vestur-Barðastrandar- sýsla 1 þús., Presthólahreppur 1 þús. og Seltjarnarneshreppur 500 krónur. Þá gáfu alþingis- menn 6340 krónur. Nokkur fé- lög hafa gefið myndarlegar upp- hæðir. Alls er heildarsöfnunin hjá Norræna félaginu nú komin upp í 341 þús. kr. Siglufjarðar- bær hefir ákveðið að gefa 5 þús. kr. og Alþingi hefir veitt 350 þús. kr. til söfnunarinnar á yfirstandandi ári. Samtals er því söfnunin komin í tæpar 700 þús. kr. Á Akureyri er nokkur upphæð, sem þar hefir safnazt, en hefir ennþá ekki verið af- hent Norræna félaginu hér og er þvi ekki talin hér með. flutti yfirhershöfðinginn snjalla ræðu og þakkaði stjórnandan- um, Karli Ó. Runólfssyni, Pétri Á. Jónssyni og öðrum hlutað- eigendum með fögrum orðum og fullvissaði um, að slík kynn- ingarstund sem þessi væri mik- ils virði fyrir báðar þjóðirnar og yki skilning og vinarhug þeirra á milli. S. B.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.