Tíminn - 18.06.1943, Side 3
64. blað
TfMIMV, föstadaglnn 18. jání 1943
255
Baðstofuhjal
(Framh. af 2. síffu)
af Göring marskálki og Adolf
Hitler í fjörunni við Ermar-
sund. Myndirnar voru raunar
tvær, önnur frá árinu 1940 og
hin þrem árum síðar. Á fyrri
myndinni spyr marskálkurinn:
„Hvenær eigum við að leggja af
stað, og hvar eigum við að
lenda?“ En á þeirri síðari: „Hve-
nær ætli þeir leggi af stað, og
hvar ætli þeir lendi?“ Þannig
er nú spurt um víða veröld.
Menn spyrja og spá. Merkastur
spámaður hér til lands er Jónas
Guðmundsson eftirlitsmaður
bæja- og sveitarfélaga, en hann
hefir sína spádóma raunar eftir
merkum manni, sem heitir Ad-
am Rutherford. Margir gera gys
að spádómum, en trúa þeim þó
öðru veifinu, byggja stundum á
þeim lífsvon sína og lífsskoðun.
Sá spádómur, sem mér er minn-
isstæðastur, og sá eini sem ég
kann, var í kverinu mínu og
hljóðar svo:-„Og ég sá nýjan
himin og nýja jörð, og ég heyrði
mikla rödd af himni segjandi:
Þetta er tjaldbúð guðs meðal
mannanna. — Hann mun þerra
hvert tár af þeirra augum, og
dauðinn mun ekki framar til
vera. Hvorki harmur né vein né
mæða mun framar til vera, því
hið fyrra er farið.“
í VÖLUSPÁ er þetta orðað á
annan veg. Þar segir svo:
„Sér hún upp koma
öðru sinni
jörð úr ægi
iðjagræna
Munu ósánir
akrar vaxa;
böl mun alls batna;
mun Baldur koma“.
Þá þráðu menn (eins og nú)
Baldur, hinn hvíta, góða ás
friðarins, sem þó var með þeim
ósköpum „að eigi má haldast
dómur hans.“ Ljúkum við svo
þessu tali í dag.
Heimamaður.
3i/2 tími fara í leiðina, sem ann-
ars er ríflega klukkutíma gang-
ur.
Það er alltaf ánægjulegt að
koma á gestrisið og myndarlegt
heimili í sveit, en aldrei nýtur
maður þess betur, en þegar
komið er í náttstað þreyttur eft-
ir óveður og ófærð.
Febrúarmánuður 1943.
Þessi mánuður verður i ann-
álum ársins minnisstæður.
Sjaldan hefir veðrátta á ís-
landi farið slíkar hamfarir. —
Veðrabrigðin voru snögg og tíð,
og loftvogin hafði ekki við að
boða hin snöggu umskipti. Slys-
farir á sjó urðu meiri og sorg-
legri en nokkurntíma fyrr. —
Allan þennan minnisstæða fe-
brúarmánuð var ég á ferðalagi
um Austfirði frá Loðmundar-
firði að Reyðarfirði, og þrátt
fyrir ótíðina leið mér ágætlega
þennan mánuð. Ég kynntist
lífsbaráttu fólksins, framfara-
hug þess og hugsjónum. Ég kom
í afskekktustu staði Austfjarða,
eins og Vöðlavík og Loðmund-
arfjörð, Viðfjörð og Mjóafjörð.
Ég kom í Norðfjörð, þar sem at-
hafnalífið ber keim af stórgróða
og framförum, og ég kom á
Seyðisfjörð og Reyðarfjörð, þar
sem setulið og setuliðsvinna
setur svip sinn á athafnalífið,
og ég kom á Eskifjörð, sem er
elzta kauptún Austfjarða, og
geymir menningarlegan arf frá
þeim gömlu góðu árum. Á öllum
þessum ólíku stöðum hitti ég
fólk, sem átti sér hugsjónir og
vonir um bjarta framtíð lands
og þjóðar, — fólk, sem var gáf-
að og gestrisið, og skemmtilegt
að heimsækja, og fólk, sem ekki
lætur hina óblíðu veðráttu eða
einangrun beygja sig, en nýtur
lífsins, þegar sólin skín, og fylg-
ir með áhuga því, sem gerist í
hinni víðu veröld, sem liggur þó
svo fjarri. Það er þessu fólki að
þakka, að hinn illviðrasami
febrúar varð mér ánægjulegur,
þrátt fyrir óveður og vont færi.
(Framhald).
Áflkrlftargjald
Tímana
utan Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar er kr. 30.00 árgangur-
tnn
M i n 11 i n g
Guðrún AuÖunsdóttir hús-
freyja frá Núpi undir Eyjafjöll-
um, var jarðsungin fyrir fáum
dögum. Hún lá ekki lengi veik,
en þó var það erfiður tími, unz
guð lagði sínar mildu hendur
yfir hana og gaf henni ró eins
og hann hafði alla ævi gefið
henni, því aldrei heyrðist æðru
orð, þó að oft væri nú hátt
kveðið á heimilinu eins og geng-
ur; þar sem mörg uppvaxandi
barnabörn háðu æskuleiki sina
við hliðina á ömmu. Alltaf var
hún jafn yndisleg og vildi öll-
um gott gera, og hver varð betri
sem henni kynntist. Ég tel það
með ljúfustu æskuminningum
mínum frá hinni fögru Eyja-
fjallasveit, að hafa notið vin-
áttu hennar frá barnsaldri.
Guðrún lét lítið yfir sér, fór
ekki víða, en vermdi heimilis-
arninn með- háttprýði sinni.
Hún gaf alla krafta sína og
starf eiginmanni og börnum,
sem sakna hennar og fá aldrei
fyllt það skarð, sem höggvið var
í hópinn.
Vorið er í vændum, grösin
gróa og jörðin verður aftur
græn, en húsfreyjan á Núpi
kemur ekki aftur. Þó getur hún
ekki gleymst, vegna þess að hún
reisti sinn eiigin minnisvarða
með fórnandi og fögru fordæmi.
í skjóli hennar óx sá gróður,
sem nú breiðir greinar sínar yf-
is æskustöðvar hennar, Eyja-
fjöllin, og heldur áfram að vaxa.
Guðrún var gift Sigurði Ólafs-
syni bónda á Núpi. Þau áttu
fimm börn, sem dvelja undir
Eyjafjöllum, nema ein dóttir í
Vestmannaeyjum. Einnig tóku
þau til fósturs tvo drengi.
Það er hljótt yfir Núpnum.
Hann sér að Guðrún er horfin,
en efalaust saknar öll sveitin,
sem notið hafði allra hennar
krafta. Ég kveð hana svo og
þakka allt gott.
Guðrún Jakobsdóttir.
Ólaiur á Helgu-
stödum og loft-
belgurinn
í Tímanum nýlega er birt
glefsa „Úr bréfi að austan“ frá
Ólafi á Helgustöðum við Reyð-
arfjörð. í bréfkafla þessum er
Ólafur að lýsa viðureign sinni
við loftvarnarbelg einn, er hann
hafi náð hinn 18. janúar síðast-
liðinn, og á þann hátt hindrað
skemmdir á símanum. Með því
að hann blandar mér inn í at-
burð þenna og segir, að ég hafi
synjað honum um greiðslu á
loftbelgsbjörgunarlaunum, þá
skal það tekið fram, að mér er
með öllu ókunnugt um atburð
þann, sem Ólafur er að lýsa, og
hefi aldrei heyrt né séð hans
getið fyrr en í þessu Tímablaði.
Ummæli Ólafs um mig í sam-
bandi við umræddan atburð eru
þvi tilbúningur einn eða, væg-
ast tilgetið, á misskilningi byggð.
Og þótt einhver starfsmanna
landssímans kunni að hafa sagt
honum, að hann fengi bjrög-
unarlaun greidd gegn afhend-
ingu belgsins á næstu símstöð,
þá er það ekki nema í fullu
samræmi við tilkynningu þá, er
birt var 5. nóv. í útvarpinu, í
samráði við þáverandi síma-
málaráðherra og brezku her-
stjórnina.
í annarri málsgrein þeirrar
tilkynningar segir svo: „Fyrir
hvern slíkan belg, sem afhent-
ur er á símstöð, greiðir póst- og
símamálastjórnin 200 krónur“.
Hins vegar má geta sér til,
af því sem Ólafur skrifar, að
hann hafi viljað halda hvoru-
tveggja: hinu bjargaða og
björgunarlaununum, og skal
hér ósagt um það látið, nema
svo hefði verið sanngjarnt.
Með þökk fyrir birtinguna.
5. júní 1943.
Guðmundur Hlíðdal.
KVEN- og KARLMANNA-
RYKFRAKKAR
KARLMANNAFRAKKAR.
H. Tof t
Skólavörðustíg 5. Simi 1035
Feðupjogi syuir
FRAMHALD.
Harðneskja og ofstopi hinna erlendu fógeta var umræðuefni
Rúódís gamla og drengjanna.
„Hefir þú séð þenna Gessler?" spurði annar pilturinn.
„Víst hefi ég séð hann,“ svaraði gamli, veðurbitni ferjumaður-
inn. „Ég fór með kökur, sem konan mín bakaði, til þess að gefa
herra Stauffacher, þegar hann var búinn að byggja nýja húsið
sitt. — Hann tók sjálfur á móti mér,“ sagði gamli maðurinn með
sýnilegri hreykni, „og var að sýna mér garðinn, er Gessler reið
framhjá og margir meðreiðarsveinar, allir með fjaðrir í höttunum.
Hann tók i taumana á hesti sínum og sagði svo hátt, að herra
Stauffacher gat ekki annað en heyrt það: „Hvernig er hægt að
þola það, að bændadurgar eigi svona falleg hús?“
„Og hvað sagði herra Stauffacher?“
„Að kalla mann eins og hann bóndadurg!“ hrópaði hinn pilt-
urinn upp yfir sig.
„Hann svaraði alls engu, en sex eða sjö ára gamall sonur hans,
sem var að leika sér við veginn, rak upp öskur. Gessler tók eftir
honum, og hvað haldið þið, að hann hafi gert?“
„Hvað gerði hann, Rúódí?“
„Hann laut fram á makkann og barði drenginn þvert yfir and-
litið með svipunni — hugsið ykkur: barn á þessu reki, beint í
andlitið!"
„Og erum við þá alveg varnarlausir?“ sagði annar pilturinn.
Rúódí renndi augunum að dyrunum. „Koma tímar og koma
ráð“, sagði hann lágt. „Ekki mun Svissland þola ofbeldi kúgar-
ans um allan aldur“.
„En hvernig lítur hann út, þessi Gessler?“
„Hann er heljarstór og þrekinn eins og naut, en augun eru
lítil eins og í svíni. Hann er líkari dýri en manni, óargadýri auk-
heldur. Andlitið er eldrautt, og skjálfhendur er hann eftir of-
nautn áfengra drykkja um langan aldur. — Landinu okkar
verður bráðum bjargað úr greipum hans“, hrópaði öldungurinn
ofsalega.
í sömu andrá var drepið harkalega á dyr, og hurðinni svipt op-
inni samstundis. Maður vatt sér inn. Regnið buldi á stéttinni og
þrumur kváðu við milli klettadranganna.
Annar drengurinn spratt dauðskelkaður á fætur, en Rúódí gaf
honum merki um að hafa sig hægan, því að hér færi vinur. Svo
sneri hann sér að komumanni, sem bersýnilega var í mjög mik-
illi hugaræsingu.
„Baumgarten!" sagði hann. „Hvað veldur því, að þú ert hér
í þessu líka veðri?“
Komumaður lét fallast á stól við eldinn. „Það er úti um mig,“
kveinaði hann.
„Hvað er að heyra“, sagði gamli maðurinn alvarlegur í bragði:
„Hefirðu drýgt einhvern glæp?“
Maðurinn hristi höfuðið, og vatnsdroparnir hrutu úr renn-
blautu hári hans. „Lávarðurinn, vinur Gesslers og Landenbergs,
.... “ sagði hann örvæntingarfullur, .. Gessler er á hælunum
á mér.“
„Hvað hefir þú gert?“
„Wolfenschiess lávarður kom heim til mín, þegar ég var úti
á akri,“ sagði hann. „Hann spurði Teklu, konuna mína, hvort
hún vildi hita handa sér baðvatn og sagðist vera þreyttur eftir
veiðiför í skóginum. Hún uggði ekki að sér, enda var þetta lítil-
þæg bón. Hún hitaði því vatnið og færði honum. Þegar hann
hafði afklæðzt, hrópaði hann hástöfum á hana .... “
„Og hvað gerðist?“
„Hún fór inn til hans og átti sér einskis ills von, og svo ....
heyrði ísóla óp hennar, og hún hljóp út á akurinn og kallaði á
mig.“
Hann huldi andlitið í höndum sér og skókst allur af þungum
ekka.
„En ég — ég varð of seinn.....Tekla lá J öngviti. Ég þreif
stól — og lumbraði á honum .... og hann dó.“
Það varð löng þögn. Vindurinn hvein við upsir hússins. Allt
í einu þaut Baumgarten á fætur.
„Þeir elta mig, Gessler og menn hans,“ sagði hann.
Hann leit biðjandi augnaráði á Rúódí gamla. „Ég hefi hlaupið
alla þessa leið..Ég ætlaði ekki að drepa hann, ég ætlaði það
ekki. Ég ætlaði ekkert illt að aðhafast, en þegar ég sá — þegar ég
sá Teklu liggjandi á gólfinu og blóðið vætla úr andlitinu — og
lávarðinn allsnakinn vera .... “
„Hættu, sonur minn. Við vitum, að þú gazt ekki annað gert.“
Hann leit hikandi á drengina. „En hvert ætlarðu að fara? Ekki
getur þú verið hér. Ef þeir finna þig hér, gengur hefndin líka
út yfir drengina.“
Komumaður horfði tryllingslega í kringum sig. „En getum við
ekki komizt yfir vatnið?“ spurði hann.
Öldungurinn hristi höfuðið.
„í slíku veðri kemst enginn lifandi yfir Lemanvatn."
Hann hafði ekki fyrr sleppt orðunum, en þrusk heyrðist úti
fyrir. Það var eins og axlir öldungsins hæfust snögglega.
„Uss, uss,“ sagði hann. „Það er einhver úti.“
Piltarnir og komumaður litu dauðskelfdir hver á annan, og
biðu þess þöglir, er koma vildi.
„Nei, Það er bara — já. Það er hann Vilhjálmur Tell.“
Veðurbitinn maður kom inn og skellti hurðinni að stöfum á
eftir sér. Hann heilsaði öllum brosandi. Hann var hár vexti,
meira en þrjár álnir, augun blá og hárið ljóst og mikið og
lafði rennvott fram á ennið. Hann hélt á boga miklum, sem
stærri var en hann sjálfur, og undir skikkju sinni bar hann
örvamæli.
„Fjandans óveður er þetta,“ sagði hann.
„Og fjandinn sjálfur er líka á ferli,“ svaraði Rúódí.
Svipur Vilhjálms Tell harðnaði. Hann losaði af sér örvamæli.
„Vesalings landið okkar“, sagði hann lágt. „Og hvað hefir
nú gerzt?"
Þeir sögðu honum allt af létta. Vilhjálmur hafði ekki augun af
Baumgarten.
„Og þyrðir þú að fara yfir vatnið i þessu veðri?“ spurði hann.
„Fremur kysi ég að reyna það, heldur en að falla í hendur
Gesslers níðingsins,“ svaraði Baumgarten þegar í stað.
Rúódí andvarpaði.
„Það er ókleift,“ sagði hann.
„Rúódi, bjargaðu mér, í nafni guðs og heilagra engla,“ hróp-
aði Baumgarten snögglega. „Þér mun veitast ríkuleg umbun.
Reyndu að fá hann til þess, Tell.“
Rúódi hristi höfuðið.
Smmbm*d isL tumvinnmfélugm
Samvinnumenn:
Hafið eftirfarandi í huga:
Tekjuafgangi kaupfélags er úthlutað til fé-
lagsmanna í hlutfalli við viðskipti þeirra.
Blautsápa
frá sápuverksmiðjmml Sjöfn er almennt við-
nrkennd fyrir gæði. Flestar hnsmæðnr nota
Sjafnar-blautsápu
Freðkjöt
í flestum kauptúnum landsins eru frystihús. í því nær öllum
þessum frystihúsum er geymt freðkjöt. Hafið þér athugað hvað
það kostar?
Heildsöluverð á dilkakjöti er nú kr. 5,20 kg.
Heildsöluverð á ærkjöti er nú kr. 3,90 til 4,40 kg.
Látið kaupfélag yðar, eða kaupmann þann, sem þér verzlið
við, útvega yður freðkjöt, ef það fæst ekki í verzlunarstað yðar.
Frosið kjöt er ágætur matur. Heimili, sem kaupa heilan skrokk
í einu þurfa ekki að láta kjötið skemmast, því það helzt óskemmt
í fulla viku, sé það geymt á svölum stað (í kjallara eða skemmu).
Þá má líka brytja kjötið niður og sá i það salti. Finnst enginn
munur á því og nýsöltuðu kjöti á haustin.
KAUPFÉLÖG OG KAUPMENN! Hvetjið almenning til að
borða kjöt.
Happdrætti
verkafólksins
er í
Ráðningarskrifstoiu landbúnaðarins
Lækjargötu 14 B_Simi 2151.
Opið daglega hl. 9—12 árdegis og 1—7 síðdegis.
Það er úrval sveitaheimila, sem vantar kaupafólk í sumar,
bæði konur, karla og unglinga.
Þeir, sem fyrstir verða til að gefa sig fram til vinnunnar, hafa
úr mestu að velja.
Komið fljótt og látið ekki happ úr hendi
ganga.
Framleiðsla til fæðis og klæðis er ávallt þjóðarnauðsyn, en
aldrei fremur en nú.
Bokbandi-
pappir
nýjar birgðir í mikln úrvali fyrirliggjandi.
Sendum gegn póstkröfn.
Veggfóðursverzlun Victors Helgasonar
Hverfisgötn 37. Sími 5949.
Gleymið ekkí að borga
Tí m ann.