Tíminn - 06.08.1943, Blaðsíða 1
RrrsTJóni:
ÞÓRARHSTN ÞÓRARINSSON.
ÚTGKFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKK ORINN.
PRENTSMTÐJAN EDDA hJ.
Símar S948 og 3720.
\
RITST„ \__.SKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargöta • A
Elmar 2353 og 4373.
AFGREIÐ8LA, ENNHKEMTA
OG AUGLÝSENG ASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9A
Sími 2323.
*7. árg.
Reykjavík, föstndagiun 6. ágúst 1943
78. bla ð
Endurbaetur stjórnskipulagsins er
eitt stærsta framtiðarmálið
Það verður þegar að heijast handa um
nauðsynlega athugun og undirbúníng
Þegar andstöðuflokkar Framsóknarflokksins hófu
brölt sitt í kjördæmamálinu á fyrra ári, bentu Framsókn-
armenn m. a. á, hversu heimskulegt væri að gera ófull-
komna breytingu á einum þætti stjórnarskrárinnar,
þegar nauðsyniegt væri að gera fullkomna endurskoðun
og endurbót á henni allri. Þess vegna lögðu þeir til, að
kjörin yrði sérstök nefnd, er ynni að þessu verki, aflaði
sér fullkominnar þekkingar um erlendar fyrirmyndir og
reynslu í þessum efnum, kynnti sér þær breytingar, er
þar væru fyrirhugaðar, og gerði síðan frumdrætti að
nýrri, fullkomnari stjórnartilhögun hins íslenzka lýð-
veldis, er styddist jöfnum höndum við innlenda reynslu
og staðhætti og farsæl eiiend fordæmi.
Siimulcysi um
uudirbiiuiugiim.
Kristján \ Hansen
Fyrir nokkru lézt einn af
merkustu mönnum Skagafjarð-
ar, Kristján Hansen vegaverk-
stjóri. Sjá grein um hann á
öðrum stað í blaðinu.
r
Iþrótta- og skemmti-
svæði Reykjavíkur
Sérstök nefnd, sem'var kjörin
til þess fyrir nokkru að velja
íþrótta- og skemmtisvæði
Reykjavíkur, hefir nú skilað á-
liti. Leggur hún til, að það verði
í svokölluðum Laugardal eða
umhverfis sundlaugarnar. Land-
svæðið, er hún ætlar til þessara
afnota, er um 95 ha.
Á svæði þessu er skýlt í öllum
áttum, landið er slétt og grasi
gróið og jarðhiti við hendina.
Nokkrar byggingar eru þar, er
færa verður í burtu, og verður
bærinn vitanlega að kaupa þær
og ræktarlönd þau, sem þarna
eru.
í nefndinni, sem annaðist
þetta mál, áttu sæti: Erlingur
Pálsson, Jens Guðbjörnsson,
Benedikt G. Waage, Sigmundur
Halldórsson og Gunnar Þor-
steinsson.
Furðulegt verkíail
á SígluSírði
Furðulegt verkfall hófst hjá
síldarverksmiðjum ríkisins á
Siglufirði i fyrrakvöld.
Um 30 kyndarar, sem vinna
hjá verksmiðjunum, sendu verk-
smiðjustjórninni seint í fyrra-
dag kröfu um kauphækkun og
sögðust leggja niður vinnu eftir
2—3 klst., ef eigi yrði á þær
fallist. Áður höfðu nokkrar um-
ræður orðið um þessar kröfur,
án þess að samkomulag Kefði
náðst.
Þegar verksmiðjustjórnin
neitaði að fallast á kröfurnar,
hófu kyndararnir verkfall kl. 9
í fyrrakvöld. Hefir ekkert verið
unnið við verksmiðjurnar síðan.
Kyndararnir eru ráðnir yfir
sumarið með tveggja mánaða
kauptryggingu og hefir verka-
mannafélagið Þróttur jafnan
samið fyrir þeirra hönd. Félag-
ið hefir lýst verkfallið sér óvið-
komandi. Hefir verksmiðju-
stjórnin farið þess á leit við fé-
lagið, að það kveddi kyndarana
til vinnu eða leyfði þá verk-
smiðjunum að ráða utanbæjar-
menn til vinnu. Ekki var kunn-
ugt um svar félagsins, er blaðið
(Fran.h. á 4. síðu)
Eins og kunnugt er, þá féll-
ust hinir flokkarnir ekki á þess-
ar tillögur Framsóknarmanna.
Þeir hröðuðu af breytingu á
kjördæmaskipuninni, er gerðu
hana stórum lélegri en hún áð-
ur var. Að því leyti var þó geng-
ið til móts við Framsóknar-
menn, að sett var á laggirnar
nefnd, er athuga skyldi stjórn-
arskrármálið, en starfssvið
hennar þó ákveðið þannig, að
vart er að vænta þess að hún
framkvæmi það verk, sem hér
þarf að vinna, nema Alþingi
gefi henni fullkomnari fyrir-
mæli.
Frá þessari nefnd kom í vor
frv. um nýja stjórrfarskrá, sem
eigi felur í sér aðra breytingu
en þá, að nafn lýðveldisforseta
er sett í stað nafn konungs, þar
sem það hefir verið i stjórnar-
skránni. Var hæstiréttur áður
búinn að vinna þetta verk fyrir
tilmæli Hermanns Jónassonar
forsætisráðherra, því að rétt
þótti að hafa slíka stjórnarskrá
undirbúna, ef skyndilega þyrfti
að ganga frá lýðveldisstofnun-
inni.
Þótt þetta stjórnarskrárfrum-
varp, sem áðurgreind nefnd hef-
ir gengið frá, verði samþykkt á
næsta vetri, eins og nauðsyn-
legt er til þess að ljúka lýðveld-
isstofnuninni, er eftir sem áður
jafnrík þörf fyrir fullkomna
endurskoðun og endurbætur
stjórnarskrárinnar — og jafn-
vel enn ríkari en áður.
Æ'Ssta valeíið
Einmitt sú breyting, að æðsta
valdið flytzt inn í landið, gerir
það nauðsynlegt, að sá þáttur
stjórnarskrárinnar, er um það
fjallar, verði tekinn til ræki-
legrar athugunar. Þótt það
kynni að vera hyggilegt að á-
kveða valdsvið konungs, eins og
það er gert í núgildandi stjórn-
arskrá, er næsta ólíklegt að rétt
sé að ákveöa valdsvið forseta á
sama hátt. Það er ekki sízt um
þetta efni, er afla þarf vand-
aðra upplýsinga um erlenda
reynslu.
Nokkuð hefir verið um það
rætt, að okkur myndi henta
ameríska fyrirkomulagið, þ. e.
að forseti, en ekki þingið, skipi
stjórnina, og hafi fram-
kvæmdavaldið að mestu í sín-
um höndum. Vitanlega hefir
þetta fyrirkomulag sína kosti,
en gallarnir eru líka margir,
eins og gleggst sést nú í Banda-
ríkjunum. Þar ríkir nú mesta
ósamkomulag milli þingsins og
forsetans, er m. a. hafa komið
fram á þann hátt, að forsetinn
hefir synjað að undirrita lög
frá þinginu, þingið hefir stað-
fest með tilskildum meiri-
hluta lög, er forsetinn hefir
neitað að undirrita (lög um
hömlur gegn verkföllum), þing-
ið hefir neitað um fjárveiting-
ar til ýmsra dýrtíðarráöstafana,
er forsetinn hefir borið fram o.
s. frv. Þetta ósamkomulag fram-
kvæmdavaldsins og löggjafar-
valdsins virðist geta orðið mjög
hættulegt. Enska fyrirkomulag-
ið, sem undir langflestum
kringumstæðum tryggir sam-
vinnu löggjafarvaídsins og
framkvæmdavaldsins, virðist
hins vegar reynast mjög vel um
þessar mundir.
Það, sem margir virðast hall-
ast að, er að láta forsetann ekki
vera of valdalítinn, eins konar
„toppfígúru“, en heldur ekki of
valdamikinn, eins konar ein-
ræðisherra. Hér getur orðið
erfitt að sigla bil beggja. Vand-
leg athugun erlendra fyrir-
mynda ætti þar að geta oröið
nokkur vegvisir.
Kosninga-
fyrirkoinulagið
Annað atriði stjórnarskrár-
innar, sem vandlega þarf að at-
huga, er kosningafyrirkomu-
lagið. Sennilega er hvergi í
víðri veröld jafn óviturlegt og
sundurleitt kosningafyrirkomu-
lag og hér. Hér eru einmenn-
ingskjördæmi, hlutfallskosn-
ingar, uppbótarsæti. Slíkur
hrærigrautur þekkist hvergi
annars staðar og vafalaust eru
hlutfallskosningar í tvímenn-
ingskjördæmum met í flónsku-
legri kosningatilhögun, þar sem
slíkt fyrirkomulag getur gert
þessi kjördæmi raunverulega
áhrifalaus. Annars eru margir
gallar núverandi kosningatil-
högunar svo augljósir, að ó-
þarft er að benda á þá.
í þessum efnum er okkur á-
reiðanlega bezt að treysta
reynslu hinna stóru lýðræðis-
þjóða, Breta og Bandaríkja-
manna. Þessar þjóðir hafa allÞ-
af fylgt því fyrirkomulagi, er
hér hefir og þjóðlegastar ræt-
ur, einmenningskjördæmunum.
Kosningafyrirkomulagið hér
er komið í það horf, að það er
ekki þolandi til langframa, þótt
seinasta breytingin taki út yfir
allan þjófabálk, eins og áhrif
hennar á starfshæfni þingsins
hafa líka leitt í ljós. Þessi þátt-
ur stjórnarkerfisins, sem ef til
vill er líka sá mikilvægasti,
þarfnast vissulega vandaðra
endurbóta.
Aukiit sjálfstjórn
héraðaima.
Eitt atriðið, sm taka þarf og
(Framh. á 4. síðu)
Á víðavangi
HELZTU VÍGSTÖÐVAR
BANDAMANNA
Tíminn birti fyrir nokkru uppdrœtti af rússnesku vígstöðvunum. Hér birtast
kort a) vígstöðvunum við Miðjarðarhaf og á Kyrrahafi. Lesendur blaðsins
œttu að geyma þessa uppdrœtti til þess að geta glöggvað sig betur á hernað-
aratburðum þeim, sem í vœndum eru.
á aðaluppdrœttinum eru sýndar helztu borgir á Ítalíu og Sikiley, en á litla
kortinu í horninu aðstaðan við Miðjarðarhaf. Möndulherirnir halda nú aðeins
Messinahorhinu af Sikiley síðan Bandamenn tóku Cataníu.
Uppdráttur þessi sýnir svœði það, þar sem nú er háð aðalbaráttan milli
Japana og Bandaríkjamanna. Helztu stöðvar Japana á þessum slóðum er
Truk, Rabaul og Munda á Nýju-Georgíu, sem er eyjaklasi vestur a) Salo-
monseyjum. Bandaríkjamenn hófú nýlega sókn, sem stefnir að þvi að ná
Munda á Nýju-Georgíu og Salamaua á Nýju-Guineu,
SEINUSTU FRÉTTIR
Rússar hafa tekið Orel og
Bretar hafa tekið Cataníu
Tveir merkir atburðir í styrj-
öldinni gerðust síðastliðinn sól-
arhring. Þjóðverjar . tilSynntu,
að þeir hefðu hörfað úr Orel og
Bretar tilkynntu, að áttundi
herinn hefði tekið Cataníu.
Orel er mjög mikilvægur bær
frá hernaðarlegu sjónarmiöL
Þangað liggja margar járn-
brautir og talið er, að þaðan
myndi Þjóðverjum hafa verið
einna auðveldast að sækja til
Moskvu. Þjóðverjar tóku Orel í-
október 1941.
Taka Orel mun mjög bæta
aðstöðu Rússa til áframhald-
andi sóknar, enda herma fregn-
ir, að þeir ætli ekki að láta þar
staðar numið. Næsta. takmark
virðist vera að taka Bryansk.
Eftir fall Cataníu er Messina
eina stórborgin á Sikiley, sem
enn er í höndum möndulherj-
anna. En vörnin þar mun verða
erfið, því að Bandamenn sækja
þangað bæði með norður-
ströndinni og austurströndinni.
Möndulherirnir lögðu mikið
kapp á að halda Cataníu og var
því áttunda hernum teflt þar
fram til sóknar. Hefir hann enn
aukið við frægð sína.
Aðalinnrásin
verdur gerð
irá Englandi
ALGIER. — Elmar Davis yfir-
maður upplýsingaskrifstofu
Bandaríkjanna hefir sagt í út-
varpi sameinuðu þjóðanna, að
aðalinnrásin á meginlandið
verði gerð frá Englandi. Hann
sagði, að England væri ekki
lengur „staður hetjulegrar varn-
FORDÆMI ÞINGEYINGA.
Páll Zophóníasson ráðunaut-
ur hélt í vor nautgripasýningar
í Húnavatnssýslum, Skagafirði,
Eyjafirði og Suður-Þingeyjar-
sýslu. í Eyjafirði voru sýning-
arnar bezt sóttar, en lakast í
Húnavatnssýslu. í Þingeyjar-
sýslu voru sýningarnar og vel
sóttar.
Páll segir, að síðan sýningar
voru seinast haldnar í þessum
héruðum, hafi orðið mest fram-
för í Eyjafirði. Hins vegar telur
hann, að Suður-Þingeyingar
eigi beztu kýrnar og hafi svo
verið lengi, að þar væru jafn-
beztar kýr á öllu landinu. Má
þakka það löngu kynbótastarfi
þeirra Þingeyinga.
Það mun og almennt talið, að
Suður-Þingeyingar eigi jafnbezt
sauðfé, enda hafa þeir einnig
verið brautryðjendur í kynbóta-
starfi á því sviði. Telja kunn-
ugir, að yrði lambakjöt flokkað
eítir héruðum, myndi þingeyska
kjötið seljast bezt á enskum
markaði.
Árangurinn af kynbótarækt
þeirra Þingeyinga mætti verða
öðrum landsmönnum til mikils
lærdóms og. hvatningar. Það er
ekki nóg að hugsa um höfða-
töluna. Tuttugu góðir gripir geta
gefið meiri arð en þrjátiu léleg-
ir. Þetta hafa allt of margir
bændur ekki gert sér nógu ljóst.
Auknar kynbætur eru eitt af
mikilvægustu framtíðarmálum
landbúnaðarins. Talsvert hefir
áunnizt, en meira er þó eftir.
ÁDEILA Á HÆSTARÉTT.
. Fyrir nokkru síðan er komið
út smárit eftir Magnús Torfason
sýslumann, er nefnist: Furðu-
legur hæstaréttardómur. Rekur
hann *■ þar dóm og afskipti
hæstaréttar af landamerkjamáli
í Árnessýslu, með rökvisi og
röggsemi. Verður ekki annað
sagt, að lestri loknum, en að
hæstarétti virðist hafa verið
næsta mislagðar hendur í máli
þessu og því ekki vanþörf á, að
það verði tekið upp að nýju.
WILLKIE OG ÓLAFUR.
Vísir er að segja frá því í gær,
að sú framkoma Wendell Will-
kies sé til stórrar fyrirmyndar,
að hafa stutt Roosevelt, þótt
hann hafi fallið fyrir honum í
kosningum.
Þetta er alveg rétt hjá Vísi.
En væri það úr vegi, vegna
þessa tilefnis, að Vísir athugaði
framkomu Ólafs Thors við eft-
irmenn sína í stjórnarráðinu.
Hefir hann ekki látið blað sitt
ráðast hvað eftir annað á Vil-
hjálm Þór, sem þó hefir manna
mest bætt úr afglöpum Ólafs, t.
d. í olíumálinu? Væri það ekki
fróðlegt fyrir Vísi, að bera þá
saman, Willkie og Ólaf?
SMÁSKEYTI TIL ANDSTÆÐ-
INGA LANDBÚNAÐARINS.
Úr bréfi frá bónda: Ég heyri
ýmsa kaupstaðamenn vera að
tala um það, að hætta eigi fram-
leiðslu landbúnaðarvara og
flytja inn kjöt, mjólk og smjör
frá öðrum löndum, þar sem
framleiðslan væri ódýrari. Hins
vegar tala þeir ekki um það að
flytja eigi hingað verkafólk frá
löndum, þar sem kaupgjaldið er
lægra. Víða annars staðar get-
ur orðið atvinnuleysi eftir stríð-
ið og þetta getur því orðið vel
framkvæmanlegt. Mér finnst, að
hinir góðu kaupstaðamenn, er
vilja leggja niður landbúnað-
inn, mættu líka brjóta heilann
um þetta úrræði.
ar“ heldur „miðstöð mikilla
hernaðaraðgerða“. Þá sagði
hann: Frá Englandi verður
hafin sú innrás, sem mun sanna,
að ekki síður en hægt var að
sigra Sikiley. verður hægt að
sigra „Evrópuríkið“. (Frá ame-
ríska blaðafulltrúanum).