Tíminn - 06.08.1943, Side 4
312
TÍHBCVN, föstndaglnn fi. ágiist 1943
78. MaíV
Utanfarir lækna
Fimm íslenzkir læknastú-
dentar fara bráölega tii Banda-
ríkjanna á vegum Rockeí'eller-
stofnunarinnar;. Munu þeir
starfa við sjúkrahús víðsvegar
um Bandaríkin. Fjorir þeirra íá
auk þess styrk, sem nemur 50
dollurum á mánuði, meðan þeir
dvelja ytra.
Rockefellerstofnunin veitti í
fyrra í fyrsta sinn fimm slika
vinnustyrki, en þeir eru til eins
árs. Tveir af læknakandidötun-
um, sem fóru í fyrra, þeir Krist-
inn Jóhannsson og Oddur Ólafs-
son, eru þegar komnir heim, en
hinir veröa eitt ár enn við nám
vestra.
Þeir, sem fara að þessu sinni,
eru þessir:
Hannes Þórarinsson, verður í
Minneaþolis.
Haukur Kristjánsson, verður í
Richmond, Virginia.
Sigmundur Jónsson, verður i
Durham, Norður-Carolina.
Stefán Ólafsson, verður í
Madison, Wisconsin.
Oddur Sigurðsson, vrður í
Durham, Norður-Carolina.
Prófessor Niels Dungal veitir
styrki þessa fyrir hönd Rocke-
fellerstofnunarinnar.
Götunöfní Reykjavík
Á fundi bæjarráðs 29. f. m.
voru lagðar fram tillögur próf.
Ólafs . Lárussonar, háskólarit-
ara Péturs Sigurðssonar og dr.
Einars Ól. Sveinssonar, um
nöfn á nýjum götum í Rauðar-
árholti, suðurhluta Norðurmýr-
ar og í Langholti. Tillögurnar
eru þessar:
Rauðarárholt:
Gatan, sem liggur frá Stór-
holti að Kringlumýrarvegi,
samhhða Suðurlandsbraut, heiti
Skipholt. Gatan samhliða Skip-
holti milli hennar og Suður-
landsbrautar heiti Brautarholt.
Göturnar frá Suðurlandsbraut
að Skipholti, talið frá vinstri,
heiti Hörgsholt, Vallholt og
Stúfholt. Gatan, sem liggur til
austurs frá Stúfholti, heiti Kols-
holt.
Suðurhluti Norðurmýrar:
Gatan, sem liggur hornrétt af
Miklubraut að Reykjanesbraut,
milli Miklubrautar og Engihlíð-
ar, heiti Eskihlíð, en gatan milh
Eskihlíðar og Engihlíðar heiti
Mjóahlíð. Gatan, sem liggur frá
Háteigsvegi að Reykjanesbraut,
heiti Reykjahlíð, og gatan, sem
liggur í framhaldi af Nóatúni,
frá torgi við Háteigsveg, heiti
Langahlíð.
Langholt:
Gata, sem liggur næst fyrir
vestan Langholtsveg og sam-
hliða honum, frá Kleppsvegi,
heiti Hjallavegur, og næsta gata
þar fyrir vestan, samhliða
Hjahavegi, heiti Kambsvegur.
Tillögurnar voru samþykktar.
Furðulegt verkfall.
(Framh. af 1. síðu)
átti tal við Siglufjörð í gær-
kveldi.
Kyndararnir hafa hærra kaup
en aðrir óbreyttir starfsmenn
verksmiðjanna.
Allmikil síld var í þrónum, er
verkfallið hófst, og búizt við, að
hún eyðileggist, ef það stendur
lengi. Öllum skipum hefir orðið
að beina til annara staða síðan
verkfallið hófst og veldur það
sjómönnum miklu tapi og óþæg-
indum.
Það þarf vart að taka fram,
að þetta fantabragð kyndar-
anna mælist mjög illa fyrir. Er
ekki sizt hættulegt fyrir verka-
lýðsfélögin sjálf, ef einstökum
hópum manna innan þeirra,
tekst að hafa að engu samninga
þeirra við atvinnurekendur.
Tiltrúin til félaganna hverfur
þá og mætti þeim vel vera ljóst,
hvaða afleiðingar það getur
haft.
ÚTSKORIN
VEGGHILLA
tll sýnls og sölu
áThorvaldsensbazar
Austurstræti 4.
fhff——i— ■ m GAMLA KTAt—m— 1 i
Veðreíðar
(Sporting Blood).
ROBERT YOUNG,
MAUREEN O’SULLIVAN
m . Sýnd kl. 7 og 9.
ÓVÆNTUR FRÆNDI
(Unexpected Uncle).
ANNNE SHIRLEY,
JAMES CRAIG.
<m mm m>m mm i» m
ffmmmmrn m m JA BÍÓ nmiwmmmm m
Sonur refsi-
nornarinnar
(Son of Fury).
Söguleg stórmynd með
GENE TIERNEY,
TYRONE POWER.
GEORGE SANDERS.
Bönnuð börnum jmgri en
12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Ameríkumenn eru fyrir nokkru byrjaðir að framleiða bifreiðar, sem geta farið jafnt um láð og lög. Hér sjást þrjár
slíkar bifreiðar vera á sjó úti.
ú
R BÆNUM
Endurbætur
Knattspyrnumót Reykjavíkur
hóíst í fyrrakvöld. í’ram vann K. R.
með 6:2 mörkum. Á Islandsmótinu í
vor tapaði Fram fyrir K. R. Nú iiaíði
Pram mikla yfirburði.
Drengjamóti Ármanns
er nýlokið. Keppendur voru frá Ár-
manni, I. R. og K. R. og Fimleikafélagi
Haínarfjarðar. Margir efmlegir ung-
lingar tóku þátt í mótinu. tíigursæl-
astur varð hlauparinn Fmnbjörn Þor-
valdsson úr I. R. Er hann nýiluttur
hingað frá ísafirði. Hann fékk 11 stig.
Sveit K.R. setti nýtt drengjamet í ÍOUO
m. boðhlaupi á 2:13.0 mín.
Svikna drengskapar-
heltið.
(Framh. af 2. siðu'
kannske ekki hærra en það. En
þessu er ekki eins farið með
samvinnumenn, er hafa mótast
í ööru andrúmslofti. Þess vegna
gat Pétur á Gautlöndum sagt
hin frægu orð: Mér hefir aldrei
orðið að slysi að treysta mönn-
um. Menn með reynslu og lífs-
skoðun Péturs líta öðruvísi á
drengskaparheit en þú. Þegar
þeim verður það að slysi, að
treysta drengskap annara, verð-
ur þeim það ekki aðeins eftir-
minnilegt. Þeir telja sér einnig
skylt að láta ekkert ógert til að
hipdra það, að þeir eða aðrir
verði aftur fyrir slikum slysum,
því að fari slik slys að verða tið,
er siðferði og stjórnarfar þjóð-
arinnar komið á það stig, að
skammt er til glötunarinnar.
Þess vegna skaltu ekki ætla
það, Ólafur Thors, að heitrof
þitt sé gleymt. Meðal Framsókn-
armanna bætir það heldur ekk-
ert fyrir þér, þótt verknaður
þinn yrði ekki flokknum til eins
mikillar bölvunar og þú ætlaðir
upphaflega. Þér verður ekkert
frekar fyrirgefið fyrir það. Það
er ekki hægt að fyrirgefa þér,
nema á kostnað réttlætis og
drengskapar. Ef þér eða öðrum
eiga að haldast uppi drengskap-
arbrot í opinberu lífi, þá má
hætta að tala um siðgæði í
landinu.
Þú heldur að þú sért stór
maður í dag, Ólafur Thors. Þú
heldur að þér leyfist dreng-
skaparbrot, án þess að vegur
þinn minnki nokkuð. Þú sérð í
anda hópinn, sem Jóhann Haf-
stein safnaði saman 17. júní til
að hylla þig eins og foringjann.
En það var ekki þjóðin, ekki
einu sinni Sjálfstæðisflokkur-
inn. Þjóðin á eftir að rumska og
rísa, heimta betra hátterni af
forráðamönnum sínum, meiri
ábyrgðartilfinningu, meiri
drengskap. Þessi vakning mun
og ná til Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn á eftir að
má af sér brennimarkið, sem þú
hefir sett á hann. Sú tíð kemur,
að hann mun skipa til forustu
mönnum, sem andstæðingarnir
þora að treysta í samningum.
Óáran sú, sem nú ríkir í íslenzk-
um stjórnmálum, á eftir að
víkja inn í móðu fortíðarinnar
fyrir nýrri og bættri stjórnar-
menningu. Það eina, sem þér
gæti þá tilheyrt, 'væri að vera
einskonar nátttröll liðinnar ó-
aldar til viðvörunar þeim, sem
annars kynnu að hrasa.
Þ. Þ.
Lesendur!
Vekið athygll kimningja yð-
ar á, að hverjum þeim manni,
sem vill fylgjast vel með al-
mennum málum, er nauðsyn-
legt að lesa Tlmann.
Skrifið eða simið tll Tímans
og tilkynnið honum nýja áskrií-
endur. Simi 2323.
stjórnskipulagsins.
(Framh. af 1. síöu)
til vandlegra athugunar, er
aukin sjálfstjórn héraðanna. Sú
þróun, að öll sjálfstjórn, er hér-
uðin hafa haft,sé méira og meira
dregin í hendur ríkisvaldsins í
Reykjavík, er vissulega vafasöm.
Það, sem sennilega hefir reynzt
bezt í stjórnarkerfi Bandaríkj-
anna, er sjálfstjórn fylkjanna.
Með þessu fyirkomulagi eru
völd almennings raunverulega
aukin, betur er hugsað um mál-
efni þeirra, sem fjarlægari eru
miðstöð stjórnarkerfisins og
málefnum er yfirleitt meira
framfylgt af alúð og þekkingu.
Víða um land er vakandi á-
hugi fyrir þessu. Nýlega hafa t.
d. Múlasýslur, Seyðisfjarðar-
kaupstaður og Norðfjarðar-
kaupstaður, kosið nefnd til að
vinna að sameiginlegum mál-
efnum þessara staða. Sennilega
verður Austur-Skaftafellssýslu
boðin þátttaka í nefndinni. Ef
þessi samtök reynast vel, getur
þar myndazt vísir að stjórnar-
kerfi, er annast ýms heimamál,
er nú falla undir ríkisvaldið. Það
virðist t. d. eðlilegt, að fleiri
héruð sameinuðu sig um slíka
stjórn, þar sem skilyrði til þess
eru fyrir hendi.
Nýlega hélt ungur hagfræð-
ingur því fram í útvarpserindi,
að ráðið til a^ bæta stjórnar-
kerfið væri aukið vaid embætt-
ismanna. Nefna má tvö dæmi,
þar sem aukið vald héraðanna
myndi áreiðanlega gefast betur
en aukið vald embættismanna,
búsettra í höfuðstaðnum. Vega-
málastjóri hefir verið valda-
mikill í vegamálaframkvæmd-
um og hann er í röð betri em-
bættismanna. Þó virðist vega-
vinnan víða í hálfgerðu ólagi.
Það er næsta líklegt að betra
lag væri á þessum framkvæmd-
um, ef héraðsstjórnir önnuðust
um þær. Landlæknir hefir verið
ráðamikill í heilbrigðismálum,
en þó eru mörg héruð læknis-
laus. Myndi það vera þannig,
ef héröðin sjálf ættu að ann-
ast útvegun þeirra og ráðningu?
Það mun vitanlega verða erfitt
að ákveða mörkin milli sjálf-
stjórnar héraöanna og yfir-
stjórnar ríkisvaldsins. Þess
vegna krefst þetta mál góðrar
athugunar og samráðs kunnugra
manna.
Undirbnningsstarfið
má ckki clragast
lengur
Hér hafa aðeins verið nefndir
örfáir þættir í stjórnarskipu-
laginu, er þarfnast rannsóknar
og endurbótar. Margt fleira
mætti nefna.
Það má ekki ollu lengur svo
ganga, að ekki sé hafizt handa
um þessa undirbúningsvinnu.
Hún hlýtur að taka alllangan
tíma, því að ekki þarf aðeins að
safna gögnum, heldur verður
einnig að reyna að finna grund-
völl, er sem flestir geta sam-
einazt um.
Alþingi, sem bráðum kemur
saman, verður að hlutast til um,
að núverandi stjórnarskrár-
nefnd eða önnur nefnd, sem til
þess væri kjörin, hefjist handa
um undirbúning nýrrar stjórn-
arskrár. Nefndin þyrfti senni-
lega að ráða sér fastan starfs-
mann, er annaðist söfnun upp-
lýsinga og önnur dagleg störf.
Fátt er mikilvægara en að
stjórnskipulagið sé eins vandað
og fullkomið og framast er auð-
ið. Þess vegna má ekki sýna
tómlæti í þessu máli.
STÚLKA
óskast í vist nú þegar eða
með haustinu..
GOTT KAUP!
Gnðrn. Tryggvason,
Meðalholti 15. (Simi 5564) j
(Einnig til viðtals í skrif- j
stofu Timans, sími 2353). j
Aðalftmdni*.
(Framh. af 2. síðu)
heimilisiðnaðar, kynnisferða,
búreikningahalds og raforku-
leiðbeininga. Auk þessa var og
lagt fé til sauðfjárræktarbúss-
ins á Svanshóli og útgáfu árs-
rits sambandsins. Má af þessu
marka, að félagið hefir mörg
járn í eldinum og lætur til sin
taka alhliða framfaramál á
sambandssvæðinu. Mun þó
hörgull á fé þröskuldur í vegi
þess, að það megi meiru áorka
til hagsbóta.
Guðmundur Ingi Kristjánsson
skáld á Kirkjubóli flutti á
fundinum erindi um samvinnu i
sveitum, einkum um búrekstur,
og hóf mál sitt á snjöllu kvæði.
Var ræða hans öll mjög gerhug-
ul. —
Jón H., Fjalldal, bóndi á Mel-
graseyri, hélt undir fundarlok
ræðu um þjóðlega prýði heim-
ila, utan húss og innan. Talaði
hann meðal annars um hús-
gögn á sveitabæjum og skrúð-
garða.
Sem mörgum er kunnugt, er
heimili Jóns sjálfs, Melgraseyri,
frábært að snyrtimennsku allri
og prýði, svo að til fyrirmyndar
er hvar á landinu sem er. Getur
Jón því gilt úr flokki talað.
Um þann þátt íslenzkrar
sveitamenningar hefir einmitt
verið allt of hljótt og mikils til
of lítið um hann skeytt. Það er
ekki síður nauðsynlegt, að
heimilin séu fögur og hlýleg,
bæði hið ytra og innra, en að
þau séu björt og hlý. Skár þó
ekk-i of lítið gert úr því atriði.
1 /
Búnaðarþættir
(Framh. af 3. síðu)
í það góðri rækt, að ekki þurfi
að heyja á reitingsengjum, þar
sem maðurinn losar ekki nema
3—4 hestburði á degi hverjum,
þótt duglegur sé. En hvernig
verður þessu marki fljótast
náð? Getum við náð því það
fljótt, að kostnaðurinn við
framleiöslu landbúnaðarvar-
anna verði kominn það langt
niður í ófriðarlokin, að við þol-
um að selja vörur okkar fyrir
sama verð og aðrar þjóðir þá
gera? Finnur Búnaðarfélags-
nefndin leið til þess? Eða eig-
um við að taka fram fyrir hend-
ur einkafr^mtaksins og láta það
opinbera umbæta jarðirnar á
fáum árum. Láta það opinbera
slétta og rækta rúnin, svo að
þau verði öll í góðri rækt, öll
vélslæg og ekkert þeirra gefi af
sér minna en 500 'hesta heys,
sem bóndinn getur heyjað við
annan mann með aðstoð hey-
vinnuvéla og hesta? Þetta er
hægt á skömmum tíma, en það
kostar peninga, vinnu, stórvirk-
ar vélar og mikil áburðarkaup.
(Framhald)
• * DraglS ektl lengur aC
geraut áskrlfendur »5
Dvöl, þessu sérrtseC*
timaritl 1 ialenzkum bókmenntum. —
Ykkur mun þykja vsent um Dvöl, og
þvf veenna um hana aem þlO kynniat
haaal betur.
FÉLAGAR
KAUPFÉLAGS KRÓKSFJARÐAR!
Innilegustu þakkir til ykkar allra, sem sýnt hafið mér
vinahug og virðingu með þvi að gefa mér mjög verðmœta
merka gjöf l tilefni þess að ég lét af störfum við kauvfé-
lagið um siðastliðin áramót.
Guð blessi ykkur alla l samstarfi og samhug
\
JÓN ÓLAFSSON
Króksfjarðarnesi.
Tílkynníng um
at vinnuley sisskr áningu.
Hér með tilkynnist, að atvinnuleysisskráning, sam-
kvæmt ákvörðun laga nr. 57 frá 7. maí 1928, fer fram
á Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar, Bankastræti 7
hér í bæ, dagana 4., 5. og 6. ágúst þ. á., og eiga hlut-
aðeigendur, er óska að skrá sig samkvæmt lögum
að gefa sig þar fram á afgreiðslutímanum kl. 10—12
fyrir hád. og 1—5 eftir hád.
Reykjavík 4. ágúst 1943.
ISorgarstjórinn í Reykjavík.
The World’s News Seen Through
THE CHRISTJAN SCIENCE MONITOR
An International Daily Newspaper
ii Truthful—Constructive—Unbiased—Free from Sensational-
ism — Editorials Are Timely and Instructive and Its Daily
Features, Together with the Weekly Magazine Section, Make
the Monitor an Ideal Newspaper for the Homc.
The Christjan Science Publishing Society
One, Norway Street, Boston, Massachusetts
Price $ 12.00 Yearly, or $1.00 a Month.
SsrurcLy Issue, including Magazine Section, $2.60 a Year.
Introductory Offer, 6 Issues 25 Cenu.
Neuo---------------------------------------------
Addnwa-
SAMPLB COPY ON REQUEST
ÚTSÖLUSTARIR TtMANS I REYKJAVlK
Verzluninn Vitinn, Lauganesvegi 52 .................. Sími 2260
Þorsteinsbúð, Hringbraut 61.......................... — 2803
Flöskubúðin, Bergstaðastræti 10 ..................... — 5395
Leifskaffi, Skólavörðustíg 3 ........................ — 2139
Bókaskemman, Laugaveg 20 B.........................
Bókabúð KRON, Alþýðuhúsinu .......................... — 5325
Söluturninn, Hverfisgötu ............................ — 4175
Sælgætisbúðin Kolasundi ...........................
Verzlunin Ægir, Grófinni...........................
Bókaverzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1 ....... — 1336
Bókastöð Eimreiðarinnar, Aðalstræti 6 ............... — 3158
Ólafur R. Ólafs, Vesturgötu 16 ...................... — 1764
Konfektgerðin Fjóla, Vesturgötu 29 .................. — 1916
Gleymið ekki að borga
T í m a n n.
Áskriftargjald
Tínians
utan Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar er kr. 30.00 árgangur-
inn.
Egill Sigurgeirsson
hæstaréttarmálaflutnlngsmaSur
Austurstræti 3 — Reykjavík
Útbreiðið Tímann!