Tíminn - 28.09.1943, Blaðsíða 4
372
TtMlM, þriðjndagiim 28. sept. 1943
92. Mað
Osvífnasia tillaga..
(Framh. af 1. síðuj
líka það, ef sett yrði upp svipað-
ur dómstóll til að ákveða kaup
verkamanna. Myndu þeir telja
það rétt og æskilegt? Ef þeir
telja, að verkamenn gætu ekki
unað því, geta bændur ekki un-
að því heldur.
3. Gert er ráð fyrir því, að
taka megi eignir bænda, þ. e.
mjólkurstöðvarnar, eignarnámi,
án þess að fullt endurgjald komi
fyrir. Bæjarfélögin eiga að fá
stöðvarnar fyrir það eina end-
urgjald að greiða skuldir, sem á
þeim hvíla.
Þetta atriði er algert nýmæli
í löggjafarsetningu, því að aldrei
hefir verið gert ráð fyrir eign-
arnámi, nema fullt gjald komi
fyrir. Sýnir þetta ekki sízt hug
flutningsmanna til bænda og
hver kjör þeir ætla þeim, ef
ráðin í mjólkurmálunum kæm-
ust í þeirra hendur.
4. Loks er það ákvæði í frum-
varpinu, að bændur séu skyldir
til að framleiða nóga mjólk til
að fullnægja eftirspurninni.
Þetta má heita kóróna þess
nýja skipulags, sem bændum er
fyrirheitið. Það á að taka af
þeim valdið til að ráða nokkru
um mjólkurverðið, taka af þeim
valdið' til að ráða nokkru um
milliliðakostnaðinn og síðan á
að skylda þá til að framleiða
nóga mjólk, enda þótt verðið,
sem þeir fá, kunni þá að vera
orðið svo lágt, að þeir geti alls
ekki fengið nóg til framfærslu
sinnar.
Þetta eru kjörin, sem komm-
únistar bjóða bændum upp á.
það má segja, að þeir skeri ekki
við neglur sínar.
Rök flntningsmanna.
Það skal þá vikið að helztu
röksemdum flutningsmanna,
sem er að finna í greinargerð
frv. Þeirri fullyrðingu, að neyt-
endur hafi meiri hagmuna að
gæta i sambandi við mjólkur-
söluna en bændur, er þegar
svarað.
Rök flm. í greinargerðinni eru
einkum þessi:
1. Bændur hafi orðið sam-
mála um að taka rekstur mjólk-
ursölunnar í Reykjavík í sínar
hendur samkvæmt ákvæðum
mjólkursölulaganna.
Þetta á að vera einhver hætta
fyrir neytendur. Ég hefi þegar
sýnt fram á, að þetta ætti bein-
lnis að vera hagur fyrir neyt-
endur, því að bændur hafa
mestan áhuga fyrir því, að
millilaðakostnaðurinn sé litill og
varan góð og seljanleg. Þessi á-
stæða fær því ekki staðizt, nema
því aðeins, að bændur eigi að
vera réttlausir i þessum málum.
2. Þá er sagt, að samkomulag
hafi orðið um það milli neyt-
enda og framleiðenda í landbún-
aðarvísitölunefndinni, hvert
verð bændur ættu að fá, og
mætti þeim því vera sama eftir
að þetta samkomulag er fengið,
hver sölukostnaðurinn verður
eða hvernig sölunni verður hátt-
að.
Þetta er hrein blekking. Þetta
samkomulag er aðeins til eins
árs og miðast við algerlega ó-
venjulegar kringumstæður. Það
er engin trygging fyrir slíku
samkomulagi I framtíðinni og
mjólkurverðið yrði þá, ef frv.
þetta yrði samþykkt, ákveðið af
dómstólnum, sem það ætlast til
að komið verði á laggirnar.
Hversu fallvalt þetta sam-
komulag er, má bezt marka á
því, að þótt flokksmaður Sósíal-
istaflokksins í nefndinni sam-
þykkti það á pappírnum og
flokkurinn þykist einnig gera
það, þá ætlar flokkurinn að
svíkja það í framkvæmd með
því að snúast gegn útflutnings-
uppbótunum. Og hann ætlar
ekki að láta sér nægja þau svik
ein. Þetta samkomulag, sem
hann fylgir á pappírnum, en
svíkur í framkvæmd, ætlar
hann jafnframt að nota sem á-
tyllu tll að ná afurðasölunni úr
höndum bænda. Menn munu nú
fara að sjá, hvers vegna sósial-
istar voru með samkomulaginu
í fyrstu og hver heilindi voru
þar á bak við.
3. Þá er þriðja röksemdin sú,
að Framsóknarflokkurinn, sem
hafi ekki fylgi 1 Reykjavík og
Hafnarfirði, ráði mestu um
mjólkursöluna.
Þetta er vitanlega alveg
tUBÆNPM
Menntaskólinn
var settur á laugardaginn var. Um
300 nemendur sækja skólann og er
það meira en nokkuru sinni fyrr. í
setningarræðu sinni gat rektor þess,
að sérstök nefnd athugaði nú bygg-
ingarmál skólans, en pérsónulega
teldi hann æskilegast, að skólinn yrði
áfram á þeirri lóð, er hann hefir nú.
Þá gat rektor þess, að skólinn yrði 100
ára 1. okt. 1946.
Baðhús við höfnina.
Farmanna- og fiskimannasamband
íslands hefir farið þess á leit við bæj-
arstjórnina, að hún láti byggja bað-
hús við höfnina fyrir sjómenn og
hafnarverkamenn, þar sem minnst 30
manns geti fengið steypibað í einu.
Silfurbrúðkaup.
Frú Ragna Stefánsdóttir og Krist-
inn Jónsson frá Loftsstööum, nú til
heimilis í Keflavík, áttu silfurbrúð-
kaup 20. þ. m.
Hjúskapur.
Fyrra laugardag voru gefin saman
I hiónaband ungírú Ásta Þórðardótt-
ir og Guðión Valdimarsson sjómað-
ur. Heimili þeirra er á Hafnargötu 32
í Keflavík.
Verðlagsbrot.
Dæmdir hafa verið fyrir brot á
verðlagsákvæðum: Eiríkur Halldórs-
son, þjónn í sýningarskálanum, kr.
300.00, Vélsmiðjan Jötunn kr. 4787.50
og Gildaskálinn kr. 336.00.
Námskeið.
Háskólinn hefir auglýst námskelð í
rekstrarhagfræði, bókfærslu, ensku og
þýzku. Upplýsingar eru veittarí i
skrifstofu hans.
rangt. Framsóknarflokkurinn
ræður engu um mjólkursöluna.
Hins vegar hafa bændasamtök-
in sjálf kosið Framsóknarmenn
til trúnaðarstarfa í þessum mál-
um. Fyrir það virðist nú eiga að
hegna bændum. Hefðu þeir kos-
ið til þessara starfa sósíalista,
sem studdist við stóran flokk í
Reykjavík, var allt í lagi. En
bændur hafa ekki viljað aðhyll-
ast sósíalista. Þess vegna á nú
að hegna þeim. Þetta er m. ö. o.
pólitísk refsing.
4. Loks kemur sú ástæða, að
með þessu sé stefnt að því að
auka samhug og samvinnu
bænda og verkamanna.
Ég hygg, að allir muni sjá, að
ekkert mál getur öllu meira
spillt sambúð bænda og verka-
manna en þetta mál, sem full-
trúar . verkamanna hafa hér
flutt. Enda er ég sannfærður
um, að það er einn aðaltilgangur
frv. Kommúnistar vilja ekki
samstarf þessara stétta. Þeir
vita, sem er, að bændur fást
aldrei til að styðja byltingar-
stefnu þeirra, og að róttækt,
umbótasinnað samstarf bænda
og verkamanna er versti jarð-
vegurinn fyrir byltingu. Þess
vegna vilja þeir gera sitt ítr-
asta til að hindra það, að bænd-
ur og verkamenn geti náð
saman. Þetta frv. er einn þátt-
urinn í því starfi þeirra að
híndra slíka samvinnu.
Þingfréttlr Tímans
(Framh. a/ 1. síðuj
væri hún að bæta við sig nýju
menningarhlutverki, er fælist í
því að opna augu þjóðarinnar
fyrir skattabrjálæðinu!
Bernharð Stefánsson benti
Gísla á, að skattalögin, er hann
kallaði skattabrjálæði, héfði
Ólafur Thors fyrir kosningarnar
í fyrra kallað „skattalögin min ‘.
Hefði það líka verið laukrétt hjá
formanni Sjálfstæðisflokksins,
því að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði átt fjármálaráðherrann
um langt skeið og allar skatta-
breytingar síðari ára hefðu ver-
ið samþykktar fyrir atbeina
hans og með stuðningi þing-
manna Sjálfstæðisflokksins.
Vibis frumvörp
Eysteinn Jónsson flytur frv.
um viðauka við lög um útsvör.
Útgerðarmenn njóta í skatta-
lögum þeirra hlunninda, að
skattfrjáls er y3 hluti tekna
þeirra, ef hann er lagður í ný-
byggingarsjóð. Vafalaust hefir
verið ætlazt til þess, aþ útgerð-
armenn njóti einnig þessara
hlunninda við álagningu út-
svars. Svo hefir þó ekki orðið
alls staðar og er það aðalefni
þessa frv. að hindra álagningu
útsvars á nýbyggingarsjóðstíl-
lagið.
Jónas Jónsson flytur frv.
um skipulag og yfirstjórn jarð-
eigna ríkisins I Ölfusi.
Bernharð Stefánsson flytur
Leikfélagg Reykjavíkur
„Lénharður íógcti“
Frumsýning' annað kvöld kl. 8.
Önnur sýning' fimmtudagginn 30. þ. m.
Aðgöngumiðasalan opin kl. 4—7 í dag.
GILETTE
Blue Giilette Thin Gillette
RARBL0B
koma á næstunní.
Pantid strax, birgðir takmarkaðar.
ISLENZKB ERLENDA
V
Uetjlnnatfélaqidr
Garöastræti 2.
Síuii 5333
frv. um breytingu á lögum um
hafnargerð í Dalvík. Er þar gert
ráð fyrír auknu framlagi til
hafnargerðarinnar.
Jón Sigurðsson, Pétur Otte-
sen, Ingólfur Jónsson, Jón
Pálmason og Sigurður Þórðar-
son flytja frv. um breytingu á
vegalögunum þess efnis, að rík-
ið styrki sýslunefndir til að
kaupa stærri vegavinnuverk-
færi.
Garðar þorsteinsson flytur
frv. um ábyrgð ríkissjóðs á tjóni,
sem hlýzt af veru herliðs
Bandaríkja Norður-Ameríku hér
á landi. Þeir, sem verða fyrir
tjóni af völdum hersins, geta nú
eigi sótt mál sín fyrlr íslenzkum
dómstólum, heldur verða að
leita til íslenzks-amerískrar
nefndar, er aðeins hefir tillögu-
rétt um málið, en endanlega
ráða amerísk stjórnaivöld
greiðslunni. Frv. gerir ráð íyrir,
að málin verði sótt fyrir islenzk-
um dómstólum, ríkissjóður
greiði bæturnar, en geri síðan
kröfur til amerískra stjórnar-
valda..
Ríkisstjórnin flytur frv. um
lífeyrissjóð barnakennara og
ekkna þeirra. Frv. þetta er
flutt til samræmis vlð frv. um
lífeyrissjóð opinberra starfs-
manna.
Ríkisstjórnin flytur frv. um
lífeyrissjóð starfsmanna ríkis-
ins. Er þar ráðgera að efla sjóð-
inn stórum og greiðslur úr hon-
um. Ríkissjóður ábyrgist greiðsl-
urnar.
Ríkisstjórnin flytur frv. til
erfðalaga. Núgildandi erfðalög
munu aðallega v vera frá 1850.
Aðalbreytingin er fólgin í því, að
réttur til arfs takmarkast við
nánari ættingja en áður.
Ný trúmálastefna
(Framh. af 3. síðuj
verkamenn hans hafi skipt um
skoðun. Fyrir flokksbundna
kommúnista gildir enn sem fyrr
sú regla, að þeir mega ekki taka
þátt í neinu, sem viðkemur trú-
arlegum athöfnum. Allir vís-
indamenn Sovétríkjanna verða
að vera guðleysingjar og vinna
gegn trúarbrögðum. Leiðtogar
þjóðarinnar í stjórnmálum og
vísindum geta ekki verið kristn-
ir án þess að stofna sér í miltla
hættu. Ríkið sem heild er án
trúarbragða. En ríkisvaldið hef-
ir rekizt á mótstöðu, sem það
hefir ekki getað brotið á bak
aftur og verður því að slaka til
við. Rússland hefir líka eignast
bandamenn, sem hafa megna
andúð á trúarofsóknum. í sam-
vinnu Rússa við bandamenn
sína framvegis, mun rússneska
trúmálastefnan hafa mikil
óbein áhrif. Stalin er glöggur
stjórnmálamaður. Hann skilur
þetta út í æsar. Upplausn al-
þjóðasambands kommúnista
Verðlagfsbrot
Nýlega hefir heildverzlun Ól-
afs J. Ólafssonar, Siglufirði ver-
ið sektuð um kr. 1000,00 fyrir
brot á verðlagsákvæðum. Ólög-
legur hagnaður, kr. 303,72, var
gérðúr upptækur.
Verzlunin hafði lagt of mikið
á skófatnað.
Nýlega hefir Gísli Magnús
Gíslason, heildsali, Vestmanna-
eyjum, verið dæmdur fyrir brot
á verðlagsákvæðum. Hlaut hann
1000 króna sekt og 50 daga
varðhald til vara. Ólöglegur
hagnaður, kr. 1971.58, gerður
upptækur.
Nýlega hefir Öl- og Gos-
drykkjagerð Akureyrar verið
sektuð fyrir brot -á verðlagsá-
kvæðum. Sekt og ólöglegur
hagnaður nam kr. 915.00. Verk-
smiðjan hafði hækkað verð á
ávaxtadrykk, án samþykkis
Viðskiptaráðsins.
Síðustu frejjnir.
(Framh. af 1. síðuj
málastjórnin fara honum vel úr
hendi.
Breyting hefir orðið á ensku
stjórninni vegna fráfalls King-
sley Woods John Anderson,
sem átti sæti í stríðsstjórninni,
án' sérstakrar stjórnardeildar,
er orðinn fjármálaráðherra.
Beeverbrook lávarður er aftur
kominn í stjórnina sem innsigl-
isvörður.
Sumner Wells hefir látið af
störfum sem aðstoðarutanríkis-
málaráðherra Bandaríkjanna.
Stettaníus, er stjórnað hefir
framkvæmd láns- og leigulag-
anna, hefir tekið við störfum
hans.
Þinkosningar hafa nýlega
farið fram I Nýja-Sjálandi.
Verkamannaflokkurinn tapaði
lítilsháttar, en hélt þó meiri-
hluta sínum á þingi.
Kjólakragar
margar nýjar gerðir.
VERZLUN
H. Toft
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
vitnar glögglega um það. Úrslit
striðsins og samvinnuþörf við
bandamenn að því loknu mun
ráða því, hve mikið alþjóðlegt
almenningsálit fær áorkað. En
framar öllu öðru mun hinn
forni styrkur kirkjunnar í
þungum raunum og erfiðum
starfsskilyrðum ráða örlögum
kristindómsins í hinu víðlenda
Rússaveldi í framtíðinni.
í annað sinn. Bæjarslúðrið
„The Philadelphia story".
(The Talk of the Town).
CARY GRANT,
KATHARINE HEPBURN Stórmynd með:
JAMES STEWART, RONALD COLMAN,
RUTH HUSSEY,
JOHN HOWARD, JEAN ARTHUR,
ROLAND YOUNG. CARY GRANT.
Sýnd kl. 4, 6% og 9. Sýnd kl. 6.30 og 9.
Sala aðgöngumiða hefst Bönnuð börnum yngri
kl. 11 f. h. en 14 ára.
.
Innilegar þakkir fyrir hluttekningu við andlát og Jarð-
arför mannsins mins,
MAGNÚSAR JÓNSSONAR á Sveinsstöðum.
Jónsína Jónsdóttir.
Hjartanlega þakka ég ykkur öllum, sem hafið styrkt
mig með rausnarlegum gjöfum, og sýnt mér og mínum
samúð í okkar sorglegu og erfiðu ástæðum.
Guð blessi‘ykkur öll.
JÓNAS ANDRÉSSON, Múla.
r -- - - ——*■ ■**■■*■ **
Þaklca h'jartanlega öllum, skyldum og óskyldum, er
glöddu mig meö helmsóknum, gjöfum og skeytum, og ó
annan hátt sýyidu mér vináttu og heiður á áttrœðisafmœli
mínu 9. september síðastliðínn.
Guð gefi ykkur öllum gœfurlku framtíð.
PÉTUR ÞORMÓÐSSON,.
Hróksholtl.
Innilega þakka ég frœndfólki mlnu og vinum fyrir
gjafir og góðar óskir á sextugsafmœli mlnu.
JÓHANNES JÓNSSON,
Búðardal.
Tilkynning
til hluthafa
Gegn frainvísiin stofna frá hlntahréf-
um í H. f. Eimskipafélagi Islands, fá
hluthafar afhentar nýjjar arðmiðaark-
ir í skrifstofu félagsins I Reykjavik. —
Hluthafar búsettir úti á landi eru heðn-
ir að afhenda stofna frá hliitahréfum
sínum á næstu afreiðslu félagsins, sem
mun annast útvegun nýrra arðmiða-
arka frá aðalskrifstofunni i Reykja-
vik.
H.í. Eimskípafélag Islands.
Tílkynning
Henntamálaráð fslands tilkynnir, að
þeir listamenn, sem kynnu að vilja óska
þess, að ráðið skoði verk þeirra í þeim
tilgangi að keypt verði af þeim verk til
væntanlegs Listasafns, geta snúið sér
með slík tilmæli til skrifstofu Mennta-
málaráðs, Hverfisgötu 21, sími: 3652.
Menntamálaráð Islands.