Tíminn - 07.12.1943, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.12.1943, Blaðsíða 1
RITST.' RI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. ÚTGEFANDI: FR AMSÓKN ARFLOKKURINN. PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. Símar 3948 og 3720. RITST JÓR ASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A. Símar 2353 og 4373. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9A. Sími 2323. 27. árg. Reykjavík, þriðjudagiim 7. des. 1943 Erlent yfirlit: Vígstaðan í Rússlandí Fyrir nokkru síðan flutti einn af þekktustu fyrirlesurum Þjóð- verja um hernaðarmál, Ritter von Schramm herforingi, fyrir- lestur í þýzka útvarpið um undanhald Þjóðverja í Rúss- landi. í fyrirlestri þessum var sýnt fram á með ýmsum rökum, að undanhald Þjóðverja stafaði fyrst og fremst af því, að þeir þyrftu að búa sig undir að mæta sókn Bandamanna á öðrum vígstöðvum. Síðan í byrjun á- gústmánaðar hefðu Þjóðverjar verið neyddir til að senda allt fáanlegt varalið og raunar meira til Ítalíu, Balkanskagans og Suður-Frakklands, þar sem Bandamenn höfðu ýmist hafið sókn eða sókn þeirra var yfir- vofandi. Einnig hefðu Þjóð- verjar verið neyddir til að auka flugher sinn í Vestur-Evrópu til að mæta hinni harðnandi loft- sókn. Það eru þessar orsakir, sagði von Schramm, er valda miklu meira um undanhald Þjóðverja í Rússlandi en sókn Rússa sjálfra. Hefðu Þjóðverj- ar getað einbeitt landher sínum og lofther á austurvígstöðvun- um, hefðu þeir ekki þurft að hörfa fyrir Rússum, heldur hefði hið gagnstæða sennilega átt sér stað. Undanhald hafi orðið nauðsynlegt til þess að stytta vígstöðvarnar og draga úr herafla Þjóðverja þar, svo að nægilegur liðsstyrkur væri til aö mæta sókn andstæðing- anna annars staðar. Þótt vetur sé nú víðast geng- inn í garð í Rússlandi, halda orustur þar áfram með mikilli hörku á ýmsum stöðum. Aðal- orusturnar eru nú á þessum slóðum: Á Krímskaga er barizt bæði á Perekopeiðinu og Kerchtanga, Rússar hafa nú lokað öllum landleiðum frá Krímskaga. Þjóðverjar telja það bersýnilega mjög mikilvægt að halda skag- anum, enda er hann lykillinn að yfirráðum á Svartahafi. Á sléttunum austan Neðri- Dnjepr, einkum gegn borginni Kherson, eru háðar talsverðar orustur. Vafasamt er, þótt Rússar hreki Þjóðverja af þess- um slóðum, sem er líklegt að verði. á næstunni, að þeir hefji þar sókn vestur yfir Dnjepr. Samgönguleiðir eru erfiðar þarna, og engar stórborgir, sem geta verið miðstöð fyrir sóknarher Rússa. Við járnnámubæinn mikla, Krivoi Rog, geisa einna hörð- ustu orusturnar nú. Rússar sækja þangað frá Kremenchug og Dnepropetrosk. Um skeið munaði litlu, að þeir næðu yf- irtökunum þarna, en Þjóðverj- um tókst að koma þangað liðs- (Framh. á 4. síðu) Seinusfu fréttir Sókn áttunda hersins brezka á Ítalíu hefir gengið vel enn sem komið er, þrátt fyrir öflugt viðnám Þjóðverja. Fimmti ame- ríski herinn hefir einnig hafið sókn á sínum hluta vígstöðv- anna og orðið talsvert ágengt. Leipzig, ein af merkustu iðn- aðarborgum Þjóðverja, varð fyrir stórkostlegri árás brezkra flugvéla aðfaranótt laugardags síðastl. Tjón er sagt gífurlegt. Ráðstefnu Roosevelts, Chur- chills og Stalins, sem haldin var í Teheran í íran, er nú lokið. í Rússlandi hafá engar telj- andi breytingar orðið á vígstöðv- •unum seinustu dægur, þrátt fyrir harðar orustur víða. 122. blað Bændur mótmæla Ályktuii Mjólkursaml. Kaupfél. EyfirtSinga. Fulltrúar úr öllum deildum mjólkursamlags Kaupfélags Ey- firðinga komu saman til fundar á Akureyri 2. desember síðast- liðinn. Var á fundi þessum samþykkt í einu hljóði svolát- andi ályktun: „Fulltrúafundur allra mjólk- urframleiðenda í Mjólkursam- lagi K. E. A. hefir í dag tekið til athugunar og umræðu frum- varp til laga um breytingu á núgildandi lögum um meðferð og sölu mjólkur og rjóma og fleira, er sósíalistar hafa borið fram á Alþingi því, sem nú sit- ur. Fundurinn mótmælir frum- varpi þessu harðlega og telur, að með frumvarpinu sé stefnt að því, að ræna fjölda mjólkur- framleiðenda í landi atvinnu- frelsi og félagsréttindum, en gefa öðrum aðilum lagalega heimild til að taka umráðarétt- inn yfir framleiðslu bænda, á- samt þeim eignum og starfs- tækjum, er þeir hafa með margra ára samvinnu og fjár- framlögum myndað til hagnýt- ingar og sölu framleiðslu sinnar. Fundurinn telur, að frum- varpið brjóti þannig viður- kenndan rétt varðandi .fram- leiðslu, eignir og vinnulaun al- mennings í landinu og skorar á Alþingi að fella fyrrgreint frumvarp. Ennfremur lætur fundurinn í ljós megna vanþóknun á þeim ofsóknum, sem fram hafa komið undanfarið í da(gblöðum Reykjavíkur og fleiri blöðum á framleiðslustörf og samvinnu- félög bænda, svo og ofsóknum á þá menn, sem hafa á hendi geymslu og sölumeðferð land- búnaðarvaranna. Vill fundurinn í tilefni þessa lýsa fullu trausti á þessum trúnaðarmönnum samvinnufélaganna." Núgildandi jarðræktarlög „nægíleg 10 ára áætlun“ Eíríkur Eíuarssoo, Kristinn Andrésson og Haraldur Guðmundsson lýsa hug sínum . til aukínna iramkvæmda Meirihluti landbúnaðarnefndar efri deildar Alþingis, Eiríkur Einarsson, Haraldur Guðmundsson og Kristinn Andrésson, hefir nú loksins skilað áliti sínu um jarð- ræktarlagafrv. Framsóknarmanna. Er álit þeirra eitt furðulegasta plagg, sem lengi hefir sézt á þingi, því að með öðru orðinu er nauðsyn frumvarpsins viðurkennd, en með hinu orðinu er ástandið talið ágætt, eins og það er nú, og því ekki talin þörf neinna endurbóta á löggjöfinni. í inngangi álitsins er því lýst með fögrum orðum, að meiri- hlutinn hafi hinn fyllsta áhuga fyrir auknum jarðræktarfram- kvæmdum. „Sá ágreiningur", segir í álitinu, „sem hér er orð- inn, stafar engan veginn af því, að nefndin sé eigi fyllilega sam- mála um markmiðið: nauðsyn- ina á aukinni ræktun landsins með tilstyrk ríkisins og eflingu jarðræktarlaganna, er flýti fyr- ir stórvirkum jarðframkvæmd- um.“ Hér vantar ekki áhugann fyr- ir eflingu jarðræktarlaganna og auknum framlögum til ræktun- ar. En strax og meirihlutinn hef- ir sleppt þessum orðum, fer á- huginn óðum dvínandi. Þá fer meirihlutinn að hugleiða, að það þurfi a. m. k. nokkurra ara und- irbúningsrannsókn áður en hægt sé að hefja framkvæmd- ir samkv. frumvarpinu, ræktun- Fréttir frá ungmennafélögum Ungmennafélag íslands eykur starfsemi sína jafnt og þétt. Ný félög bætast einnig stöðugt í fylkingu þess. Hér á eftir fer yfirlit um nokkra helztu starfshætti þess á næstu mánuðum. íþróttamál. íþróttakennarar U. M. F. í. í vetur verða þessiy: Bjarni G. Bachmann, Borgar- nesi. Kennir hann hjá Umf. á Vestfjörðum og auk þess tveim- ur félögum þar að tilhlutun í. S. í. Einnig mun hann kenna í Borgarnesi. Kári Steinsson, Neðra-Ási, sem kennir í Austur-Skaftafells- sýslu, Dalasýslu og Skagafirði. Sigríður Guðjónsdóttir, Eyrar- bakka, kennir þar og á Stokks- eyri, bæði piltum og stúlkum. Guttormur Sigurbjörnsson, Gilsárteigi, er ráðinn héraðs- kennari Ungmenna- og íþrótta- sambands Austurlands. Það hefir einnig ráðið Harald Hjálm- arsson, Siglufirði, til íþrótta- kennslu um tíma í vetur. Þá hefir orðið samvinna við S.S.Í. um einn kennara í Árnes- sýslu, Vestur-Húnavatnssýslu og Norður-Þingeyjarsýslu. Víðast hvar standa íþróttanámskeiðin í 2—4 vikur. Helztu námsgrein- ar eru fimleikar og frjálsar í- þróttir. Áhugi Umf. fyrir íþróttum er mjög mikill og var ekki hægt að fullnægja umsóknum þeirra í vetur, vegna skorts á íþrótta- kennurum. Síðastliðið vor og sumar störf- uðu þessir íþróttakennarar að tilhlutun U. M. F. 1, auk fastra kennara sambandsins: Stefán Kristjánsson, Húsavík, sem kenndi hjá Ungmennasambandi Þingeyinga, Páll Sigurðsson.Hól- um, og Guðjón Ingimundarson, Sauðárkróki, sem kenndu hjá Ungmennasambandi Skaga- fjarðar, og Jón Bjarnason, Hlemmiskeiði, sem kenndi hjá Umf. Skeiðamanna. Þá voru veittir styrkir til margra félaga, sem nutu kennslu heimamanna, sem ýmist eru íþróttakennarar eða áhugamenn um íþróttir. Söngkennsla. Kjartan Jóhannesson söng- kennari, Ásum, Gnúpverja- hreppi hefir verið ráðinn til þess að kenna söng hjá nokkrum ungmennafélögum í Árenssýslu í vetur. Hefir Ungmennafélag íslands í hyggju að auka þessa starfsemi ánæstunni. Skógarvarzla. Þórður J. Pálsson kennari í Reykjavík hefir verið ráðinn skógarvörður í Þrastaskógi næstu fimm árin. Minningarsjóður Aðalsteins Sig- mundssonar er orðinn kr. 10. þús. Hefir hann nýlega fengið skipulags- skrá, staðfest af ríkisstjóra. Stjórn U.M.F.Í. og afgreiðsla Tímans í Reykjavík taka fram- vegis á móti gjöfum í sjóðinn. Ný sambandsfélög. Ungmennafélag Ólafsfjarðar hefir nýlega gengið í U. M. F. í. Telur það um 50 félagsmenn. Formaður er Tryggvi Jónsson, Skeggjabrekku. Eru þá sam- bandsfélög U. M. F. í. 151, með 8200 félagsmönnum. Skiptast þau í 14 héraðssambönd, auk nokkurra félaga úr héruðum, þar sem þau hafa enn ekki verið stofnuð. arsamþykktirnar, sem frv. geri ráð fyrir, séu of bindandi og loks sé vafasamt um fjárráð ríkisins á næstu árum, en frv. muni hafa veruleg útgjöld í för með sér. Þegar meirihl. er búinn að velta öllu þessu fyrir sér, er allur áhuginn fyrir eflingu jarð- ræktarlaganna og auknum framlögum, sem talað er um í upphafi frv., rokinn út í veður og vind, og niðurstaðan verður þvi þessi: „Bráðabirgðaákvæði þau, sem nú eru í jarðræktarlögunum, eru að svo vöxnu máli, nægileg 10 ára áætlun.Auk þess er að minna á það, að hinn aukni jarðrækt- arstyrkur, sem nú er lögtekinn handa þeim, er lítið eða ekkert hafa hagnýtt sér hlunnindi jarðræktarlaganna, er mikil hvöt til að hefjast handa þar, sem túnkarginn er mestur og allt með seinagangi. Að öðru leyti mun réttast, að hin frjálsa aðferð jarðræktarlaga þeirra, sem fyrir eru, fái fyrst um sinn að njóta sín. Þar er réttmætt ákvæði um hámarks- ársgreiðslu til hvers býlis og er það nauðsynleg hamla.“ í áframhaldi af þessu er svo lagt til að vísa frv. frá í trausti þess', að ríkisstjórnin láti fram- kvæma ýmsar rannsóknir og kaupi nægar vélar, enda þótt tillögumönnum sé vel ljóst, að stjórnin getur ekkert gert af þessu, þar sem hún hefir hvergi lagafyrirmæli, er heimila henni fjárráð í þessu skyni. Það má segja, að sjaldan hafi hugur hinna ráðandi manna Sjálfstæðisflokksins og sósíal- istaflokksins til landbúnaðar- ins komið betur í ljós. Blöð þeirra hafa hvað eftir annað flutt greinar, þar sem skamm- ast er yfir því, að landbúnað- urinn sé ekki almennt rekin á samkeppnisfærum grundvelli og því sé þörf stórfelldari og skjót- virkari ræktunarframkvæmda en hingað til hafi átt sér stað. Með þessum hætti hafa þeir hugsað sér að vinna hug bænda og þess vegna er þetta endur- tekið í upphafi áðurgreinds nefndarálits. En þegar til al- vörunnar kemur og þeir þurfa endanlega að taka afstöðu til þess, hvort þeir vilji stuðla að fljótvirkari ræktun, kemur hinn raunverulegi hugur þeirra í ljós. Þá er núgildandi löggjöf orðin nógu góð eða „nægileg 10 ára áætlun“, eins og segir í nefndarálitinu, enda þótt þeir séu hvað eftir annað búnir að lýsa yfir því, að hún hafi ekki stuðlað að nógu skjótum fram- kvæmdum. Bændur eiga að láta sér nægja fögur orð og fyrirheit, þótt ekk- ert verði um efndirnar. Því skal vissulega ekki neit- að, að núgildandi jarðræktar- (Framh. á 4. síöu) Fertugur: Þorgeir Jónsson glímukappi. Fertugur er í dag Þorgeir Jónsson bóndi á Gufunesi. Þorgeir var um skeið einn af fjölhæfustu íþróttamönnum landsins, stundaði flestar grein- ar frjálsra íþrótta og komst í fremstu röð í mörgum þeirra, enda um áratug methafi í sumum þeirra. En sú íþróttagrein, sem hann hefir orðið frægaistur fyrir, er íslenzka glíman, enda var hann afburða snjall glímumaður, fjöl- brögðóttur og liðugur og auk þess rammur að afli. Það, að hann varð tvisvar sinnum glímukonungur íslands og fyrsti maður, sem samtímis hefir unnið sæmdartitilinn glímukonungur íslands og glímusnillingur íslands, sanna að hér er ekki farið með stað- lausa stafi. Hestamaður er Þorgeir mikill, og á hann margt góðra hesta. Þeirgeir er mjög vinsæll mað- ur, blátt áfram í viðmóti, glað- vær og hinn*bezti drengur. í dag senda kunningjar hans og vinir — og þeir eru margir — honum sínar beztu hamingju- óskir á þessum timamótum æv- innar og óska honum allra heilla í framtíðinni. Ýmsar fréltir Sjóflugan „Háförninn“ lask- aðist verulega sl. föstudag, er hún var að hefja sig til flugs af Hornafjarðarós. Lenti hún á sandrifi, sem rétt vatnaði yfir. í flugvélinni voru þrír farþegar, einn þeirra sjúklingur. Hvorki flugmanninn eða farþegana sakaði. t t t Bjarghringur merktur v.b. Hilmi hefir rekið undan Sax- hóli á Snæfellsnesi, og auk þess hafa fundizt árar, hlerar, lúgur og brbt úr bát, allt ó- merkt, milli Stapa og Búða. Þessir munir verða athugaðir nánar af sérfróðum mönnum, því að vera má, að þeir veiti upplýsingar um orsök slyssins. t t t Barnaveiki hefir komið upp á einu heimili í Vestmannaeyjum og hefir þar látizt úr henni fimm ára gamalt barn. Heimili þetta hefir að sjálfsögðu verið einangrað. Frh. á 4. s. Á viðavangi SKJAL FJÓRTÁN- MENNIN G ANNA. Fj órtán nafngreindir menn hafa sent stjórnarskrárnefnd og þingflokkunum skjal nokk- urt, þar sem þeir hóta því að hefja ófrið og deilur í lýðveldis- málinu, ef endanlegri lýðveld- isstofnun verði ekki frestað um ótiltekinn tíma. í skjalinu eru engin rök færð fyrir því, að slík frestun sé nauðsynleg eða eðli- leg, og yfirleitt er það svo gróf- gert og stóryrt, að furðulegt má telja, að jafn mætir menn skuli hafa sett nafn sitt undir það. Síðan fjórtánmenningarnir sömdu þetta skjal sitt, hefir brautin í sjálfstæðismálinu verið mörkuð af Alþingi og meginþorri þjóðarinnar unir henni áreiðanlega vel. Fjórtán- menningarnir hafa vafalaust hugsað sér, að þeir gætu með skjali sínu haft áhrif á ákvörð- un Alþingis og því verið víga- legri en ella. Eins og nú er komið,»verður að treysta því, að þeir sætti sig við orðinn hlut, framkvæmi ekki hótun sína, heldur stuðli að því, að atkvæðagreiðslan um lýðveldismálið sýni eins og bezt má verða, að þjóðin vill véra frjáls og engum erlendum bönd- um háð. Allt annað væru bein fjörráð við frelsi íslendinga, því að hvert atkvæði, sem greitt kann að vera gegn lýðveldis- stjórnarskránni, mun veikja að- stöðu þjóðarinnar út á við. Meðan verið var að ákveða lausn málsins, gátu stór orð verið leyfileg til þess að reyna að hafa áhrif á, hvernig sú ákvörðun yrði. En eftir að lausnin er ákveðin, verða. allir að standa saman. Það er sá ó- hjákvæmilegi þegnskapur, sem minnihluti verður að sýna í slíku máli. Hann verður að gera sér Ijóst, að þetta er meira en hversdagslegt mál, þar sem deil- ur þurfa ekki að vera hættu- legar. Þess vegna ber að vænta þess, að fjórtánmenningarnir sýni nú greind sina og þjóð- hollustu og efni ekki til meiri óvinafagnaðar í þessu máli en orðið er. „SAGA UM GLÆP“. Þannig hljóðaði nýlega fyrir- sögn á grein í Þjóðviljanum, er fjallaði um Múnchensamning- inn, er leiddi til innlimunar Tékkóslóvakíu í Þýzkaland. Þjóðviljinn gæti líka vel not- að þessa fyrirsögn, ef hann birti frásögu af Moskvusamn- ingnum, er gerður var ári síðar og leiddi til núverandi heims- styrjaldar. Hefði „faðir“ Stalin ekki gert þann samning, hefði Hitler aldrei þorað að hefja styrjöldina og Rússar og aðrar þjóðir, sem reynt hafa ógnir nazista, hefðu sloppiö við þær miklu hörmungar. Múnchensamningurinn var glæpur, en Moskvusamningur- inn var þó enn stærri glæpur og hinar hörmulegu afleiðingar hans enn ægilegri. FORSJÁ SJÁLFSTÆÐISFL. Morgunblaðið birti nýlega for- ustugrein, þar sem Sjálfstæðis- flokknum var eignaður fram- kvæmdasjóður ríkisins, raf- orkusjóður og fleiri slíkir sjóð- ir, sem eiga að vera til aukinna framkvæmda eftir styrjöldina. Telur Mbl. þetta sýna forsjá S j álf stæðisf lokksins. Óþarft er að taka það fram, að þetta eru stolnar flíkur eins og allar spariflíkur íhaldsins. Má t. d. geta þess, að Jón Pálma- son barðist harðlega gegn lög- unum um framkvæmdasjóð, eins og þingtíðindin sýna. Ennfremur má geta þess,. að nú væri alltaf 20 milj. kr. meira í framkvæmdasjóði ríkisins, ef Sjálfstæðismenn hefðu ekki gert (Framh. á 4. siðu)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.