Tíminn - 22.01.1944, Side 2

Tíminn - 22.01.1944, Side 2
26 TÍMINX, laiigardagiim 22. jan. 1944 7. blað Hannes H a n n e s s o n, Melbreið: Sleifarlag á vegamálum i Fljótum Viðskiptí garnaveikisneíndar og Fljótamanna Hannes Hannesson bóndi á Melbreið í Fljótum lýsir í grein þeirri, sem hér fer á eftir, fúrðulegu sleifarlagi í framkvæmd- um vegamála í Fljótum. Jafnframt lýsir hann framkvæmdum hjá garnaveikisnefnd, sem hann telur næsta varhugaverðar og tilgangslitlar. Tímanum er það sönn ánægja að koma slíkum og öðrum á- huganíálum fólksins í dreifbýlinu á framfæri. Væntir hann margra slíkra greina, en mælist jafnframt til, að menn reyni að vera stuttorðir, því að rúmið er takmarkað. I. Síðastliðinn vetur skrifaði ég smágrein í þetta blað, þar sem ég, meðal annars, gerði vegamálin í Holtshreppi að um- ræöuefni, og þar sem ég benti á, hvernig bændur í Stíflu voru slitnir úr sambandi við þjóð- veginn til Haganesvíkur, — en þar er þeirra verzlunarstaður, — vegna trassaskapar á viðhaldi á stuttum kafla, 7—800 m., þjóð- vegarins norðan Stífluhóla, og hversu óhemju fyrirhöfn og fé þessi trassamennska þeirra manna, sem um þessi mál eiga að sjá, kostaði bændur. í vor, sem leið, þegar snjóa leysti, kom það í Ijós, sem reynd- ar var áður vitað, að allur Stífluvegurinn frá Ketilási til Stífluhóla, var bráð-ófær. Urðu bændur því næsta glað- ir, er þeir vissu, að umsjónar- maður þessa vegar var kominn á vettvang með ekki færri en 5—6 bíla, sem notaðir skyldu við aðgerð á þjóðveginn. Hugðu bændur gott til, að nú mundi vegurinn verða í lagi, þegar haustaði að, og þeir þyrftu að fara að flytja þungavöru til heimila sinna, svo sem fóðurbót, kol, olíu o. fl. En það kom fljótt í ljós, að þessi bílakostur var ekki send- ur á vettvang til þess að við- halda öllum veginum frá Haga- nesvík fram á Stífluhóla, nei, ónei. Það var lagt hið mesta kapp á að viðhalda þjóðvegin- um frá Haganesvík og fram á svokölluð Vegamót, en þangað þurfti sérstaklega að nota hann, vegna virkjunar Fljótaár. Hlut- inn fx-á Vegamótum fram að Stífluhólum, sem mun vera ca. 7—800 m., er kallaður Gullhóls- braut. Sé þessi vegarspotti ekki i lagi, eru þeir, sem búa fyrir framan Stífluhóla, algei’lega teknir úr vegasambandi. í fjóra mánuði, eða um það bil, var unnið að viðhaldi þjóð- vegarins fram að vegamótum, en ekki lengra. Til dæmis um það, hve vel þess var gætt að fara ekki lengra, má geta þess, að ekkert var átt við ker, sem myndazt hafði í veginn 10 m. frá vegamótum og var svo djúpt í bleytum, að hestar fóru í hné og kerrur sátu á öxli. Úr þessu þurfti ekki að bæta, því að Siglufjarðarbær þurfti ekki að nota þennan veg. Þegar bændur í Stíflu sáu að hverju stefndi, skoruðu þeir á sveitarstjórnína að sjá um, að við veginn yrði gert. Sveitar- stjórnin brást vel við og skrifaði oddviti hennar vegamálastjóra og heimtaði að gert yrði við þjóðveginn allan, jafnt þann hlutann, sem bændur þyrftu að nota og Siglufjarðarkaupstað- ur. Þessari málaleitan svaraði vegamálastjóri aldrei. Nokkru fyrir réttir í haust, þegar sýnt þótti, að vegamála- stjóri mundi ekki svara bréfi oddvita, og ekkert var gert, þótt umsjónarmaður vegarins vissi ofurvel, að hér þurfti úrbóta, náði sá, er þetta ritar, í Sigurð Þórðarson alþingismann, og bað hann vinna málinu gagn, sem hann og líka gerði. Það er að segja, hann mun hafa fengið loforð vegamálastjóra fyrir þvi, að þetta skyldi gert. Skeyti frá Sigurði til mín sannar það. En hvað skeður? Það er samt ekkert gert. Þessi vegarkafli er bráða ófær enn. Ég ætla ekki að lýsa því erf- iði og þeim kostnaði, sem þetta hefir í för með sér fyrir bænd- ur. Það sjá allir hugsandi menn. Þess má þó geta, að sumt af þungavöru þessara bænda ligg- ur niður hjá vegamótum í kafi í fönn, sem annars hefði verið komið í hús, ef þeir hefðu ekki verið sviknir um aðgerð á veg- inum. En sagan er nú svo sem ekki öll sögð. Það þurfti að gera þess- um fimmtán bændum, sem í ! Stíflu búa, meira til bölvunar en ' að slíta þá úr vegasambandi í tvö ár. Á þessu ári höfðu verið veitt- ar 15 þús. kr. til nýbyggingar Stífluvegar. Það var ekki unn- ið fyrir eina krónu af því fé, og hefði þó sennilega ekki veitt af að lengja veginn eitthvað. Hefir það aldrei komið fyrir hér í sveit, — ég veit ekki um ann- i ars staðar, — að ekki hafi verið ; unnið fyrir það fé, sem veitt j hefir verið til nýbyggingar vega. — Þetta var fyrsta fjárveitingin, sem veitt er til þessa vegar eftir að kjördæmabreytingin komst ! á — þetta mikla „réttlætismál“ Sjálfstæðismanna. Ekki þykir Stíflumönnum réttlætið gagn- vart þeim í vegamálum di’júpa þar af hverju strái. En hitt er satt, að ekki þarf Siglufjarðar- kaupstaöur þar að kvarta, og er það út af fyrir sig ekki lastandi. Það er ekki furða, þótt bænd- um, sem þannig er gert nær ó- kleift að koma lífsnauðsynjum ! að sér og frá, vegna vegleysis. ! sárni að vita, að allt að 160—-170 'þús. kr. var varið til viðhalds þess kafla vegarins, sem Siglu- fjarðarkaupstaður þurfti að nota vegna virkjunar Fljótaár, en þeir fá ekki viðgerð á stutt- um vegakafla, sem þó gat spár- að þeim fleiri þúsundir króna í fyrirhöfn og vinnusparnáði. Það var ekkert undarlegt, þótt ýmsar hugmyndir skapist þessu viðvíkjandi, t. d. eins og þær, að hér sé stefnt hægt en mark- visst að eyðileggingu þessa hluta sveitarinnar. M. ö. o., að Stíflan skuli fara í eyði, ef ekki af völdum Fljótaár-virkjunar, þá vegna vegleysis. Það er því ekki nema eðlilegt, að bændur í Stiflu, sem eru 15 að tölu, vilji fá skýringu á, hvers þeir eiga að gjalda og spyrji eftirfarandi spurninga: 1. Hvers vegna var lagt allt kapp á að viðhalda brautinni fram á vegamót, — það er: sem Siglfirðingar þurftu sérstaklega að nota, — en ekkert gert þar fyrir framan, þótt sá partur vegarins væri sízt betri. 2. Hvers vegna var ekki unnið fyrir það fé, sem veitt var til nýbyggingar Stífluvegar og hvað var gert við það fé? Nokkur orð til Nýja Tímans Eftir Pál Þorsteinsson alpm. Eg hefi nýlega komið auga á, að Nýja Tímanum hefir þótt á- stæða til að láta nafns míns getið hinn 29. nóv. f. á. Það var alveg óvænt og óverðskuldað. En það er gamall þjóðarsiður að þakka fyrir góðgerðirnar- og gefa skriflega kvittun í við- skiptum. Ég vil ógjarna brjóta hefðbundnar venjur og bið því Tímann að koma á framfæri nokkrum orðum til viðurkenn- ingar. Nýi Tíminn telur verðbætur til bænda atvinnuleysisstyrk þeim til handa. Þetta er rangt Bændur þurfa vissulega sízt að kvarta um atvinnuleysi og markaðir hafa fengizt fyrir framleiðsluvörur þeirra og sæmilegt verð. En þrátt fyrir stórhækkað verð á landbúnað- arvörum erlendis, nægir það ekki til að vega á móti hinni gífui’legu í dýrtíðaraukningu innan lands. Uppbætur bænda eru verðlagsuppbætur vegna dýrtíðarinnar, sambærilegar við verðlagsuppbætur launþega. Ritstjóri Nýja Tímans ætti að tala minna um atvinnu- leysisstyrk til bænda, en svipast um hjá sér og íhuga betur, hverjir hafa ráðið þau ráð, sem valdið hafa þeirri upplausn og dýrtíðarbylgju, sem skollið hefir yfir þetta land síðustu missirin, og þar með gert óhjá- kvæmilegt að ausa fé ríkissjóðs í ýmiss konar verðlagsuppbætur. Ef dýrtíöinni hefði verið haldið niðri hér á landi, eins og aðrar þjóðir hafa gert, hefði þetta fé sparazt að miklu leyti og orð- ið handbært til verklegra framkvæmda. Ritstjórinn mætti og minnast þess í sambandi við allt þrasið um smábændur og stþrbændur, að kjör bænda ber að miða við kjör annarra vinnandi stétta. Nú nefnir Nýi Tíminn skip- stjóra, sem hafi 6—8 þús. kr. á mánuði. Varla þarf að efa, að þetta hafi við rök að styðjast, svo grandvar sem málflutning- ur blaðsins er. En það þýðir 72—96 þús. kr. á ári, án nokk- urs rekstrarkostnaðar við starf- ið. Skyldu margir bændur bjóða betur? En fá ekki þessir menn fullar verðlagsuppbætur á kaup sitt? Fá ekki iðnaðarmnen fullar verðlagsuppbætur, þótt þeir munu oft hafa mun hærri Sannast að segja þykir okk- ur bændum á þessu svæði það undarleg tilviljun, ef svo mætti segja, að það skiptir hér alveg (Framh. á 4. síöu) tekjur en meðal bóndi? Smiðir og iðnlærðir verkamenn hafa mun hærra kaup en aðrir verka- menn. Samt fá þeir fullar verð- lagsuppbætur á allt kaupið eins og aðrir í stéttinni. Ekki er kunnugt, að flokkur sósíalista hafi enn borið fram tillögur um að breyta þessu, heldur látið nægja, að skattalögin jöfnuðu muninn að vissu marki, en þau ná líka til bænda. Gunnar Benediktsson þyrfti nú „að fara að grufla“ og reyna að gera sér grein fyrir þessum málum í heild. Ritstjórinn furðar sig á, að maðurinn úr Austur-Skafta- fellssýslu skuli halda fram mál- stað bændastéttarinnar án þess að gera greinarmun á einstök- um aðilum í stéttinni, þar sem fátt sé um stórbændur í því héraði, og ætlar, að það sé af annarra hvötum. Hér fer hann villur vegar sem endranær. Þeir, sem enn eiga heima í því héraði, þora gjarna að fara .sinna eigin ferða án þess að halda sér í „línu“ annars stað- ar að og telja sér skylt að fylgja í hvívetna réttu máli. Þessum gamla Skaftfellingi til leið- beiningar má og geta þess, að sem betur fer eiga margir bændur í sýslunni meira en 87 kindur, en það er talinn meðal fjárstofn. Þar er og algengt, að mörg fullvaxin systkini haldi kyrru fyrir heima og vinni sam- eiginlega að því að hefja upp heimili foreldra sinna. En fyrir þetta vilja sósíalistar refsa með því að klípa af sanngjörnu af- urðaverði búanna, ef þau eign- ast meira en 6 nautgripi og 87 kindur. Þannig er kveðja þeii’ra til unga fólksins, sem metur það mest, að lyfta heimilum sveitanna og létta handtök for- eldra sinna. Slíkur er boðskap- ur Nýja Tímans. Já, Austur- Skaftfellingar kannast eigi síð- ur en aðrir við orðsendingarn- ar, sem Nýi Tíminn og Þjóð- viljinn flytja bændum og félags- skap þeirra um þessar mundir, um „framleiðslu fyrir Hafnar- fjarðarhraun", kjöt, sem „látið er skemmast" og „fleygt til að rýma markaðinn“; um „stofn- anir, sem taka sér fyrir hendur að eyðileggja nú unnvörpum“ framleiðsluvörur; um „miljóna- styrki, sem þjóðstjórnarflokk- arnir samþykktu í mútuskyni"; um „kröfur harðsvíraðra brask- ara um ákveðið og hátt verð fyrir kjötið" og margt fleira af sama tagi. Þeir munu og kunna að meta slíkar gjafir og gefend- urna að verðleikum. J. B. Priestley: Byltísng- í brezkum félagsmálum í fyrri hluta greinarinnar rakti höf. helztu breytingar á lifnaðarháttum, hugsunarhætti, umgengnisvenjum og stjórnarfari, sem orðið hafa í Bretlandi, síðan ófriðurinn hófst. ^íminn Laugardagur 22. jjun Niðurfærsla vcrð- lags og kaup- gjalds Fyrir nokkru síðan hittust tveir þekktir menn á veitingahúsi einu hér í bænum. Þetta er orð- in meiri vitfirringin, varð öðrum þeirra að orði, verkamenn fá þetta 50—60 kr. á dag. Já, gall við í hinum, og -bóndinn fær 100 kr. fyrir dilkinn. Það er enginn önnur leið, sögðu þeir síðan báðir, en að lækka þetta hvort tveggja taf- arlaust. Þeir munu vafalaust flestir, sem geta tekið undir þetta. En því miður er dæmið ekki svona einfalt. Það verður að taka fleira með í reikninginn. Það er t. d. það, að maðurinn, sem mest hneyklaðist á dilksverðinu, gi-æðir sennilega eins mikið daglega á verzlunarrekstri sín- um og meðalbóndi fær í árs- tekjur. Hinn maðurinn, sem fæst við stórútgerð, græðir sennilega enn meira. Vart munu yfir 40% af gróða þeirra fara í skatta. Þessir menn eru vitan- lega ekkert einsdæmi. Slíkir stóígi’óðamenn eru nú til í hundraðatali. Eiga slíkir menn engar fórn- ir að færa, ef sú kvöð yrði lögð á bændur og verkamenn að færa niður verðlagið og kaupið? Eiga þeir ekki aðeins að halda gróða sínum óskertum, heldur á bein- línis að auka vei’ðgiidi hans með- "þessum ráðstöfunum? Það verður sennilega sagt, xð þessir menn munu beina fjár- magni' sínu til atvinnuveganna og þannig komi það að mest- um notum fyrir þjóðfélagið. Galduriixn sé aðeins sá, að ríkið láti þá afskiptalausa og hafi lága skatta. En almenningur er farinn að sjá gegnum þessar röksemdir. Hann sér skrauthýs- in, sem stórgróðamennirnir reisa, veit um alla óhófseyðslu þeirra, veizluhöld, skemmti- ferðir o. s. frv.. Hann veit, að þangað fer mikið af fjármagni þeirra, en ekki til atvinnuveg- anna. Almenningur veit líka, að þessir menn munu ekki hætta fjármagni sínu til atvinnu- rekstrar, nema þeir geri sér von- ir um stórgróðarekstur. Banda- ríkin voru, þegar Roosevelt kom til valda, glöggt dæmi um ágæti stórgróðans og samkeppninnar. Þau voru auðugasta land heims- ins. Þar voru nær enginn ríkis- afskipti og nær engir skattar. Þar voru margir auðkóngar. En atvinnuleysingjarnir voru líka 12—13 milj. Batinn kom ekki fyrr en ríkið hóf afskipti af at- hafnalífinu og hækkaði stórlega skatta, er látnir voru ganga til vei’klegra framkvæmda. Það er því bezt fyrir menn að leggja þá trú alveg á hilluna, að allt sé fengið og öllu réttlæti fullnægt, ef fært sé niður verð- lagið og kaupið. Það er ekki nema einn þáttur þeirra ráð- stafana, er gera þarf. Hitt er ekki síður mikilsvert, að þeir, •sem mest hafa hagnazt á hinu óheilbrigða fjármálaástandi, séu látnir leggja fram enn hlut- fallslega stærri skerf til hinna sanjeiginlegu viðreisnar en verkamenn og bændur, og að það opinbera verði fært um að hafa með höndum skipulegt og markvisst viðreisnarstarf. Ann- ars myndi einhliða niðurfærsla kaupgjalds og verðlags aðeins skapa aukið ranglæti og glund- roða. Til þess, að þetta geti orðið, þarf þjóðin örugga og samstæða forustu. Kommúixistar geta ekki haft þá forustu og stórgróða- mennirnir ekki heldur. Það er skylda þeirra, sem standa milli þessar öfgaafla, að taka nú höndum saman og mynda trausta miðfylkingu, sem vinn- ur þetta hlutverk. Það er eina leiðin úr öngþveitinu, eini möguleikinn - til að afstýra hruni þjóðfélagsins. Þ. Þ. Ofan á margvíslegar þving- unarráðstafanir, skömmtun, myrkvun og vöruskort, bætist svo hinn gífurlegasti tekju- skattur, er nokkru sinni hefir þekkzt. Hann er lægst 50%, en fer ört stighækkandi, svo að auðugir menn verða að skerða eignir sínar sér til framfærslu. Miljónir verkamanna greiða nú tekjuskatt í fyi-sta skipti. Öðr- um stéttum hefir sennilega ver- ið útrýmt með sköttum. En þessi skuggalega mynd hefir líkt sínar björtu hliðar. Hér er engin verðbólga. Verðlag er fastskorðað af stjórninni, einkum á nauðsynlegustu fæðu- tegundum. Matvælaráðuneytið, sem hefir leyst undravert starf af hendi, hefir keppt að því, að fólk hefði hollt mataræði. Ár- angurinn er sá, að minna ber á næi’ingarkvillum nú en fyrir stríðið. Þrátt fyrir langan vinnutíma og alla örðugleika, sem stríðið leggur fólki á herðar, er heilsu- far sennilega betra en það var fyrir ófriðinn. Hentug og hald- góð hversdagsföt og húsgögn hafa verið gerð að tilhlutun stjórnarinnar. Atvinnuleysi hefir horfið að heita má, þegar frá er talinn lítill hópur ó- vinnuhæfra manna, sem aldrei er hægt að losna við með öllu. Enda þótt verkamálaráðu- neytið hafi mjög víðtækt vald, hefir varla til þess komið að beita því, vegna þess að alþýða manna er fúsari en frá verði sagt til að starfa og þjóna föð- urlandinu. Skipulagið gæti virzt einræðiskennt, en and- rúmsloftið er enn sem fyrr frjálsræðislegt. Allt hefir verið gert, sem unnt var, til að vernda rétt einstaklinganna, einkum með stofnun óteljandi nefnda, er menn geta skotið málum sín- um til, og með víðtæku aðhaldi og málamiðlun, sem Englend- ingar eru meistarar í. Verkamálaráðuneytið ætlast til, að allir starfsmenn við stríðsfi-amleiðslu eigi við mjög sæmileg kjör að búa. Þeir hafa samkomustaði, matsöluhús, læknishjálp o. s. frv. Enn- fremur eru samvinnunefndir starfandi í flestum meiriháttar verksmiðjum, þar sem verka- mennirnir eiga atkvæði um yf- irstjórn fyrirtækjanna, sem þeir vinna hjá. Þetta er fyrsta skrefið til þess að gera stóriðn- aðinn sjálfan lýðræðislegri. Bretland er nú lýðræðislegra og meiri jöfnuður er þar nú á mörgu en áður. Stéttamunur fer ört minnkandi. Það er nú hægt að fá betri máltíð í verka- mannaskýlinu en í höll jarlsins. Forréttindi miðast nú meir og meir við verðleika, sem rétt er. Flestir girnilegir hlutir eru nú ófáanlegir með þeim einfalda hætti að greiða þá í peningum. Ef til eru appelsínur, fá börnin þæf, en ekki miljónamæringarn- ir. — Ég ætla ekki að fullyrða, að engin launsala eða „svartur markaður“ sé til, en ég get full- yrt, að slíkt fer ört minnkandi. í verksmiðjum starfar fólk af öllum stéttum saman í frístund- um og ígripum. Efalaust á ein- hver hlutdrægni sér stað enn- þá, þannig að léttustu og þrifa- legustu störfin falla í skaut dætrum eða frændkonum ein- hvers áhrifamanns, en þetta verður að gerast mjög varlega og laumulega. Og fólk af því tagi, sem talið var til „yfirstétt- anna“ fyrir stríðið, er oft ákært og hlýtur þungar refsingar. Því skal ekki heldur gleymt, að valdamesti ráðherrann í þessum efnum er Ernst Bevin, verka- mannaforingi og mjög vinsæll af allri alþýðu, maður, sem ekki hefir skipt um skoðanir, frá því er hann stóð í broddi fylkingar hafnai’verkamamxa og barðist fyrir málstað þeirra. Hermenn eru nú ekki gerðir að foringjum fyrr en eftir að þeir hafa innt af hendi her- þjónustu sem óbreyttir liðs- menn. Yfii’foriixgi í sjóliðinu, sem lét þá skoðun sína í ljós op- inberlega, að yfirmenn ættu helzt að vera úr hópi yfirstétt* ariixnar, var þegar sviptur starfi sínu. Vera má, að mjög margt fólk hér í laxxdi hafi ennþá tröllatrú á langskólagengnum mönnum til stjórnarstarfa og embætta, en það er að minnsta kosti tákn tímaixna, að þeir gæta þess vel að hafa ekki hátt um sig. Vold- ugir forstj. í vopnaverksmiðj- um hafa verið sviptir störfum, sakir dugleysis. Óbreyttir starfs- menn í ýmsum iðngreinum, ekki sízt flugvélaiðnaðinum, þar sem snilli og verkkunnátta verður að haldast hendur, hafa verið gerð ir að yfirmönnum í stórum stíl, engu síður en vestan hafs. Annað atriði, sem óefað hefir mjög orðið til þess að brjóta nið- ur gamla hleypidóma og stétta- mismun, er hin víðtæka skipu- lagning heimavarnanna. Menn af öllum stéttum starfa að meira eða miixna leyti sem jafixingjar í heimavarnarliðinu, loftvarna- liðinu, slökkviliðssveitunum o. s. frv. Þeir eiga í sömu baráttu og við sömu hættu að etja. Þeir standa löngum stundum samaxx á verði og hafa því gott tgeki- færi til að rabba saman, kynn- ast skoðunum hvers annars og skilja hver anixan. Hið sama gildir að talsverðu leyti um kveixþjóðina, sem vinnur saman í loftvarnaliðinu, sjálfboðasveit- um kvenixa, í verkakvennaskál- um og kvennastofnunum, enda þótt stéttamunur sé að jáfnaði rótgrónari meðal kvenna en karla. Hér er ef til vill réttast að drepa á það, sem fáir Anxeríku- meixn virðast skilja. Hin rót- gróixa stéttarvitund Eng- lendinga, sem „fer í taugarnar“ á mörgum Ameríkumönnum, byggist miklu meira á því, að þeir finna til mismuiiar, sem þeir verða hálffeimnir við, miklu frenxur en minnimáttar- kemxd og stói’mennsku. Verka- kona kaixn að álíta sig engu lítilfjörlegri en greifadóttur (og ég þekki mörg dæmi), en henni finnst hún samt vera öðru vísi. Hún getur verið feimin við greifadótturina, án þess að á- líta sig lítilmótlega eða undir- gefna. Hér er ekki rúm til að rekja þetta nánar. Ég hygg, að þetta liggi sérstaklega til Englend- inga, og ég held að það sé nærri óþekkt á meginlaixdinu, þar sem menn hafa tíðast greinilega kennd minnimáttar eða yfir- burða. En áður en ég læt efnið falla, vildi ég benda á það, að hégómadýrkun er alls staðar til í einhverri mynd., Ég hefi séð hin fáránlegustu dæmi þess, — og það jafnvel í Bandaríkj- unum. — Það er vitanlega of snenxmt að fullyrða, að allur mismunur hafi verið þurrkaður út fyrir fullt og allt. Hitt má segja með fullri vissu, að sameiginleg á-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.