Tíminn - 22.01.1944, Page 4
28
TÍMINN, laMgardagiiin 22. jan. 1944
7. blaS
tJR BÆWUM
Framsóknarfélögin
í Reykjavík, höíðu skemmtisamkomu
í sýninrarskála myndlistamanna s. 1.
fimmtudagskvöld. Var hún mjög fjöl-
menn og skemmtileg. Vigfús Guð-
mundsson stjórnaði. Næsta samkoma
félaganna er ráðgerð um miðjan febr.
Breiðfirðingafélagiff.
Aðalfundur Breiðfirðingafélagsins
var haldinn í Sýningarskála lista-
manna þann 13. þ. m. í stjórn voru
kosnir: Jón Emil Guðjónsson formað-
ur, Ingveldur Sigmundsdóttir, vara-
formaður, Sigurður Hólmsteinn Jóns-
son, ritari, Snæbjörn G. Jónss., gjald-
keri. Meðstjórnendur: Davíð Ó. Gríms-
son, Lýður Jónsson og Óskar Bjart-
mars. í varastjórn voru kosnir: Guð-
björn Jakobsson, Jóhannes Ólafsson
og Ólafur Þórarinsson. Félagsmenn
eru nú á 7. hundraði. Innan félagsins
starfar söngkór og málfundafélag. Hið
árlega Breiðfirðingamót verður haldið
að Hótel Borg í kvöld.
Rafmagnslaust.
Rafmagnslaust var hér í bænum frá
kl. 8,50 síðastl. þriðjudagsmorgun og
þar til kl. 10,25 á miðvikudagsmorgun.
Hafði leiðslan frá Ljósafossstöðinni
bilað. Elliðaárstöðin gat aðeins full-
nægt hitaveitunni, útvarpsstöðinni,
Vífilsstöðum og Hafnarfirði.
Hjónaband.
Síðastliðinn laugardag voru gefin
saman í hjónaband af sr. Bjarna Jóns-
syni, ungfrú Steinunn Þorvarðardóttir,
Eiríksgötu 25 og Jóhannes Sigurðsson
verkstjóri í Prentsmiðjunni Eddu.
Heimili brúðhjónanna er að Vífils-
götu 15.
Háskólafyrirlestur.
Næstkomandi sunnudag, 23. þ. m.
flytur dr. phil. Guðmundur Finnboga-
son fyrirlestur í hátíðasal háskólans,
er hann nefnir: „Tíminn og eilífðin."
Fyrirlesturinn hefst kl. 2 e. h. og er
aðgangur öllum heimilL
Erleut yfirlit.
(Framh. af 1. siðu)
o. fl., sem norsku félögin þörfn-
uðust eftir styrjöldina. Þessi
viðskipti yrðu að hvíla á láns-
grundvelli til að byrja með og
yrðu sennilega innan vébanda
Hjálpar- og viðreisnarstofnun-
arinnar.
Á ráðstefnunni mun mjög
verða rætt um milliríkjaverzl-
unina eftir styrjöldina. Sambönd
kaupfélaganna í Bretlandi og
Svíþjóð hafa unnið öfluglega
gegn öllum lágmarks- og há-
marksverðum, sem auðhringar
hafa reynt að koma á*teinstak-
ar vörur. Nýlega lögðu sam-
vinnumenn í Bandaríkjunum
fram tillögur um stofnun al-
þjóðlegra verzlunar- og fram-
leiðslusamtaka samvinnu-
manna, er héldi uppi milli-
landaverzlun eftir styrjöldina
og fylgdi fast þeirri grundvall-
arreglu samvinnustefnunnar að
hafa enga gróðaálagningu.
Þegar er til fyrirmynd að
slíkum samtökum. Eitt af, þeim
15 heildsölufyrirtækjum sam-
vinnumanna í Bandaríkjunum,
samvinnufélagið í North Kan-
sas City, flutti út ýmsar olíuvör-
ur til innlendra samvinmifé-
laga í Búlgaríu, Svíþjóð, Eist-
landi, Hollandi, Frakklandi,
Skotlandi og fimm öðrum lönd-
um. Samvinnufélagið í North
Kansas City sá sjálft um borun
olíubrunna sinna, byggði olíu
leiðslur og á olíuhreinsunar-
stöðvar og verksmiðjur til fram-
leiðslu á smurningsolíum. For-
seti þessa félags, Howard A.
Cosdem, mun halda eina af að-
al ræðunum á hinni komandi
ráðstefnu.
Stór gjöf
Hlutafélagið Kveldúlfur hefir
nýlega gefið 150 þús. kr. til
hvíldarheimilis aldraðra sjó-
manna. Féð fer til ákveðinna
herbergja og eiga sjómenn af
skipum félagsins að hafa þar
forgangsrétt.
Renthc-Fínk
hjá Petain
Dr. Cecil von Renthe-Fink,
sem var sendiherra Þjóðverja í
Danmörku fyrir striðið og kom
þá hingað til lands, er nú
einkasendiherra Hitlers hjá
Petain marskálki.
Renthe-Fink er sagður hafa
flutt Petain þau skilaboð frá
Hitler, að hann yrði að hafa
fulla samvinnu við Þjóðverja, ef
innrás væri gerð í Frakkland,
og er sagt að Petain hafi heitið
því. ^
Sleifarlag á vega-
málum . . .
(Framh. af 2. síðu)
breytingunni. Áður var unnið
jafnt og markvisst að því að
vega sveitina, en nú er bæði
lagt minna fé til nýbyggingar,
að öðru jöfnu, og ekki einu sinni
unnið fyrir það litla, sem fæst.
II.
Þegar garnaveikin svonefnda
kom upp í sauðfé á Hólum í
Hjaltadal og breiddist þaðan út
um dalinn og til næstu sveita,
sáu Fljótamenn, hvílíkur voði
væri búinn lífsafkomu þeirra, ef
pest þessi næði að komast út
þangað og herja á sauðfé bænda.
Til þess' að sporna við því, að
veikin bærist inn í sveitina, var
öllu því fé úr sveitinni, sem
ljom fyrir í Unadalsrétt og þar
í grennd, slátrað.Einnig var far-
ið þess á leit við garnaveikis-
nefnd þá, sem skipuð hafði ver-
ið og um þessi mál átti að sjá,
að sláturfé yrði ekki að haustinu
rekið af hinum sýktu svæðum
yfir hin ósýktu. Gekkst Her-
mann Jónsson hreppstjóri á
Yzta-Mói aðallega fyrir því.
Mun hann hafa skrifað Halldóri
Pálssyni sauðfjárræktarráðu-
naut mörg bréf um þetta efni,
og einnig átti tal við hann í
síma og brýnt fyrir honum, hvað
hér væri í húfi, ef veikin bærist
hingað.
Þessari málaleitun var tekið
illa og algerlega neitað að verða
við kröfu Fljótamanna, svo
sanngjörn og sjálfsögð, sem hún
þó var. Neitun sína byggði Hall-
dór Pálsson á þeim forsendum,
að hér væri engin hætta á ferð-
um. Þetta urðu bændur í Fljót-
um að láta sér lynda, en sáu
þó, að hverju þetta varúðarleysi
stefndi, en fengu ekki að gert.
Þess var ekki heldur langt að
bíða, að óhamingjan skylli yfir.
Einn góðan veðurdag vaknaði
garnaveikisnefnd við þann illa
draum, að veikin er komin til
Héðinsfjarðar og fullviss þóttist
hún líka um, að veikin væri á
Siglufirði; enda fyrirskipaði
nefndin niðurskurð á báðum
þessum stöðum, haustið 1942, en
þegar til framkvæmda kom, var
hætt við að slátra fé Siglfirð-
inga milli Siglufjarðar og
Fljóta. Til þess að Fljót, nánar
til tekið Holtshreppur, slyppi þó
ekki alveg með sviðnar fjaðrir,
voru 3 yztu bæirnir í Holtshrepp
teknir með á afgirta svæðið. Var
svo allt fé á þessu afgirta svæði
dæmt til dauða og dómnum full-
nægt á síðastliðnu hausti. En
þetta var. svo sem ekki það
versta, því að þá loksins að
girðingin kom, sem ekki var fyrr
en eftir mánaðamótin júní og
júlí, var hún vægast sagt, að-
eins til að sýnast, en ekki til að
vera. Fyrst og fremst er giröing-
in sjálf mjög léleg og svo mun
vera allt að kílómetra löng leið
frá enda hennar, austur að
girðingarenda Siglufjarðar meg-
inn. En til þess að fullnægja
öllu réttlæti var ráðinn girðing-
arvörður. Skyldi hann fara
tvisvar í viku með girðingunni,
líklega þó ekki um ógirta svæð-
ið.
Nærri má geta, að hvaða
gagni þessar varnir hafa komið,
enda sýndi það sig í haust, sem
leið, að gagnið var ekki mikið,
því fé úr Siglufirði mun ekki
hafa verið færra í Holts- og
Stíflurétt en áður hefir verið.
Það er annars merkilegt að
nokkrum lifandi manni skuli
detta í hug að kalla þessa girð-
ingu „varnargirðingu“, en vit-
anlega gerir það enginn, sem
til þekkir. Væri miklu réttara
að kalla hana óþurftargirðingu,
því það er hún sannarlega þeim,
sem um þjóðveginn fara milli
bæjanna Illugastaða og Lamba-
ness, og kæmi mér ekkert á ó-
vart, þó þar ætti eftir að verða
slys, svo bölvað er hliðið. Sem
betur fer, höfum við Fljóta-
menn ekki enn kynnzt garna-
veiki í sauðfé okkar, en við höf-
um nú séð og kynnzt varnarráð-
stöfunum garnaveikisnefndar,
og sú kynning veldur því, að
við erum ekkert hissa eða óaf-
vitandi, hvernig veikin berst óð-
fluga úr einu héraði í annað,
því að ekki er ósennilegt að
svipaða sögu sé hægt að segja
víðar en hér, þótt víst væri vel,
ef svo væri ekki.
Hannes Hannesson.
Þín0meaii AiþýóulL
þríkloiuír , . .
(Framh. af 1. síðu)
þykkja nú lýðveldisstjórnar-
skrá og bera hana undir þjóð-
aratkvæði. Hins vegar » taldi
hann, að gildistökudag hennar
þyrfti ekki að ákveða fyrir-
fram, heldur nægði að veita Al-
þingi heimild til að ákveða
hann, þegar því þóknaðist.
Ilin brcytta aðstaða
Stefsins Jólinims.
Margir ræðumenn rifjuðu upp
fyrri afstöðu Alþýðuflokksins
til þessa máls í tilefni af hinni
breyttu afstöðu Stefáns Jóhanns
og félaga hans.
Það var bent á, að Alþýðu-
flokkurinn hefði staðið óskipt-
ur að ályktunum þingsins 1941,
þar sem réttur íslendinga til
sambandsslita þá þegar var
talinn skýlaus og ákveðið var,
að sambandsslit og lýðveldis-
stofnun skyldi fylgjast að. Þá
deildi Alþýðublaðið líka á and-
stöðuflokka þess fyrir, að hafa
ekki þá þegar stofnað lýðveldið
(sbr. Alþ.bl. 31. marz 1942.).
Þá var bent á, að Alþýðu-
flokkurinn hefði mjög beitt sér
fyrir því, að lýðveldisstjórnar-
skrá yrði samþykkt á sumar-
þinginu 1942 og vitnað í ýms
ummæli Alþýðubl. og þing-
manna Alþýðuflokksins því til
sönnunar. Þegar ekki varð af
framkvæmdum í það sinn, var
það mjög harmað í Alþýðubl.
og áherzla lögð á, að gripið
yrði fyrsta tækifæri og enginn
flokkurinn skærist úr leik.
Að lokum var bent á, að
Stefán Jóhann Stefánsson hefði
seinast í apríl í vor, ásamt Har-
aldi Guðmundssyni, undirritað
álit stjórnarskrárnefndar at-
hugasemdalaust, en þar var lagt
til, að lýðveldisstjórnarskráin
tæki gildi 17. júní 1944.
Stefáni Jóhanni var næsta
fátt og erfitt um svör, þegar
hann átti að skýra sambandið
milli þessara fyrri og núverandi
afstöðu sinnar.
Ekki gekk Stefáni betur, þeg-
ar hann taldi það skilyrði fyrir
stuðningi sínum við lýðveldis-
stjórnarskrána, að hún yrði
undirrituð af konungi eða hand-
hafa konungsvaldsins. Stefáni
var þá bent á, að hann hefði
staðið að stjórnarskrárbreyt-
ingunni 1942, sem mælir svo
fyrir, að lýðveldisstjórnarskrá
þurfi ekki þessa undirskrift.
Þá var honum bent á, að þetta
gæti alveg stöðvað lýðveldis-
stofnunina, ef konungur eða
umboðsmaður hans væru henni
andvígir. Virtist ekki annað en
að Stefán væri með þessu að
stefna lýðveldisstjórnar-
skránni í fyllsta voða.
Margt svipað þessu mætti
nefna, en óhætt má segja, að
hlutur Stefáns Jóhanns var
ekki eftirsóknarverður í um-
ræðulokin.
Merkileg upiigötvun.
(Framh. af 1. siðu)
smíði á þessari gerð flugvéla í
nægilega stórum stíl til þess, að
unnt verði að nota þær við flug-
hernaðaræfingar, bæði í Banda-
ríkjunum og Bretlandi."
Childlaw hershöfðingi sagði í
ræðu, sem hann flutti í útvarp
þann 9. þ. m.: „Þessi flugvél er
mjög svipuð hinni eldri gerð
flugvéla, á fluginu og í allri
meðferð, þó að hún sé drifin af
þrýstilofti í staðinn fyrir skrúfu.
Hún verður mjög mikilvæg sem
orustuflugvél, sökum þess hve
háfleyg og hraðfleyg hún er.
Það er engin hætta á að flug-
menn vorir eigi nokkuð erfitt
með að nota hana.“
Hann sagði, að það hefði ver-
ið einkum tvennt, sem vakti
eftirtekt hans, þegar hann fór
fyrstu flugferð sína í hinni nýju
þrýstiloftskntíhu vél. Það var
hvorki hávaði né titringur á
vélinni. Hann bætti við, að flug-
maðurinn þreyttist síðar, þegar
hávaðinn frá skrúfunni væri úr
sögunni, en hávaðinn við út-
blástur loftsins heyrist ekki í
framparti flugvélarinnar. (Frá
ameríska blaðafulltrúanum).
Anglýsið í Timannml
Bylting í brczkuiu
félagsmálum.
(Framh. af 3. síðu)
Bretland verður fátækara eft-
ir stríðið, að því leyti, að það
mun fá minni vaxta og ágóða-
tekjur erlendis frá, en af því
leiðir, að efnamennirnir munu
ekki geta haldið sig eins ríku-
lega og þeir gerðu fyrir ófrið-
inn. Hér munu þeir menn vissu-
lega verða fáir, er geta enn sem
fyrr haldið sig vel, án þess að
drepa hendi í kalt vatn. En fá-
tækt þeirra mun sýnast meiri
á yfirborðinu en hún er í raun
og veru.
Þjóðin sjálf mun ekki verða
fátækari í orðsins eiginlega
merkingu, enda þótt fólk verði
að leggja hart á sér og lifa spar-
lega um alllanga hríð. Efnahag-
ur þjóðarheildarinnar miðast
ekki við hagskýrslur einar,
heldur miklu fremur við fram-
leiðslugetu hennar.
í Bretlandi er nú meira land
í ræktun en nokkru sinni fyrr,
síðan landið byggðist. Iðnaður
þess og auðsuppsprettur eru
notaðar til hins ýtrasta. Það á
fleiri dugandi framkvæmda-
stjóra og góða verkamenn en
nokkru sinni fyrr. Þjóðin hefir
öðlazt meiri seiglu og vaxandi
trú á sjálfa sig.
Það eru hin beztu auðæfi.
Bretland mun verða Bretland
eftir sem áður, — kynlega
sundurleitt og losaralegt. En
virðing þess og fastheldni við
gamla venjur mun ekki hindra
það, að ýmis breytingar og um-
byltingar eigi sér stað. Það mun
ekki verða eins og Ameríka, þótt
það semji sig meira að amerísku.
lýðræði í félagsmálum. Það mun
ekki verða eins og Rússland,
þótt það þjóðnýti eitthvað af
opinberum stofnunum og iðn-
fyrirtæki, sem mest veltur á.
Bretland mun eftir sem áður
halda áfram að vera kynleg
þokueyja, annað veifið drunga-
leg og einmanaleg, hitt veifið
töfrandi fögur. En verstu gall-
arnir fram að stríðinu, — ó-
hugnanlegur munur allsnægta
og örbirgðar, hnignandi iðnað-
ur, deyfð og kæruleysi, úrkynj-
aðir „gentlemen, er lifa á eign-
um sínum“, stórveldisásælni fá-
mennrar fjáraflaklíku, — allt
þetta mun hverfa að fullu og
öllu.
Þjóð sú, er vann sér aðdáun
heimsins, er hún stóð alein uppi
gegn nazistunum, mun heimta
og öðlast sinn skerf allra lífs-
gæða, og hún mun ekki láta sitt
eftir liggja við framleiðslu
þeirra.
Með þessu móti mun Bretland
verða þess megnugt að veita
á margan hátt aðstoð þeim þjóð-
um, er það eitt sinn bjargaði
frá tortímingu.
Dánarmiiming.
(Framh. af 3. siðu)
talsstunda þar, sem hann
skemmti og fræddi í senn. Er
vert að meta slíkt og þakka.
Jón var kvæntur Valgerði
Sveinsdóttur frá Felli í Sléttu-
hlíð í Skagafirði. Eignuðust þau
hjón 7 börn og eru 6 þeirra á
lífi, öll hin mannvænlegustu.
Sum þeirra eru enn á bernsku-
skeiði.
Við hið sviplega fráfall Jóns
læknis er mikill harmur kveð-
inn að konu hans, börnum og
öðrum vinum hans og vanda-
mönnum. Hann var aðeins 54
ára gamall, er hann lézt og
hefði mátt vænta þess, að hann
ætti enn langan starfsdag fram-
undan. En dauðinn spyr ekki
um aldur, né ástæður. Hann
kemur og tekur, stundum, þeg-
ar sízt varir og verst gegnir.
Öxarfjarðarlæknishérað hefir
misst mikils, við fráfall Jóns
Árnasonar læknis, enda munu
héraðsmenn sakna hans mjög
og líta alm'ennt svo á, að sæti
hans þar verði vandskipað.
Sæm. Friðriksson.
ORÐSENDING
til kaupcnda Tíiiians.
Ef kaupendur Tímans verða
fyrir vanskilum á blaðinu, eru
þeir vinsamlega beðnir að snúa
sér STRAX til
ÞÓRÐAR ÞORSTEINSSONAR,
afgreiðslumanns,
í síma 2323, helzt kl. 10—12 f
hád. eða kl. 3—5 e. hád.
►o-GAMLA BÍÓ-o—
/
Konan með örið
(A WOMAN’S FACE)
JOHN CRAWFORD
MELVYN DOUGLAS,
CONRAD VELDT.
Sýnd kl. 7 og 9.
Börn innan 12 ára fá ekki
aðgang.
SLÓÐIN TIL OMAHA
(The Omaha .Trail)
JAMES CRAIG,
DEAN JAGGER,
Sýnd klukkan 5.
Börn innan 16 ára fá ekki
aðgang.
. NÝJA BÍÓ —o«—o_, ) 1» (>•
Leyndardómur
danshallarinnar
(Broadway).
Dans- og söngvamynd um
næturlífið í New York.
Georg Raft.
Pat Ó’Brien.
Janet Blair.
Brod Crawford.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum yngri en
12 ára.
Letkfélag Reykjavíkur
¥opn gnðannaM
Sýniug aiuiað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 í dag.
Jörð til söln.
Stór jörð á Vestfjörðum er til sölu og laus til ábúðar. Góðar
byggingar, góð ræktun. Útræði, silungsveiði og skeljasandur.
Frystihús skammt frá
Símar 3323 og 2572. — Símnefni: SALA. — Pósthólf 774.
Eg þakka af alhug öllum þeim, er vottuöu mér sœmd
og vináttu á sextugsafmæli mínu, me'ðal annars með
heimsóknum, blómum og heillaskeytum. Ennfremur þakka
ég hjartanlega veglegasta samsœti, er mér var haldið 31.
okt. s. I., svo og stórmiklar gjafir frá nemendum mínum
og sveitungum.
Brúsastöðum í Vatnsdal, 4. nóv. 1943.
KRISTJÁN SIGURÐSSON,
kennari.
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
4.
í
►
►
►
►
►
►
\
>
►
►
►
I bókinni
£)eir gerðu
GARDINN FRÆGAN
sem er nýútkomin í tveim bindum, eru ævisagnaþættir
sextíu og níu karla og kvenna, sem vissulega hafa gert
garð sinn frægan.
Nöfn þeirra fara hér á eftir:
Albert Einstein
Somerset Maugham
Enrico Caruso
Demanta-Jim Brady
Hetty Green
H. G. Wells
Theodore Roosevelt
Woodrow Wilson *
Martil Johnson
Harold Lloyd
John D. Rockefeller
Sinclair Lewis
Bazis Zaharoff
Mayobræðurnir
Helen Keller
Andrew Carnegie
Chic Sale
Marconi
Mary Pickford
Walt Disney
Upton Sinclair
Mahatma Gandhi
Wladimir I. Lenin
Benito Mussolini
Lowell Thomas
Thomas A. Edison
A1 Jolson
Wolfgang Mozart
Mark Twain
Gréta Garbo
Jack London
John A. Sutter
Richard Byrd
John Gottlieb Wendel
O. Henry
Rudolf ríkisarfi
Josephine
Eddie Rickenbacker
Christopher Columbus
Orville Wright
Nizaminn of Hyderbad
Charles Dodgson
Vilhjálmur Stefánsson
Katrín mikla
John Law
Zane Grey
Edv.ard Bok
María stórhertogaynja
Cornelíus Vanderbilt
Nikulás annar
Lawrence Tibbett
Charles Dickens
Frú Lincoln
P. T. Barnum
Carry Nation
Theodore Dreiser
S. Parkes Cadman
Mary Roberts Reinhart
Wilfred Grenfell
Brigham Young
Lousia May Alcott
O. O. Mclntyre
F. W. Woodworth
Evangeline Booth
Robert Falcon Scott
Bill Sunday
Howard Thurston
Leo Tolstoy
Robert Ripsley
DALE CARNEGIE, höfundur þessarar bókar er þegar
orðinn að góðu kunnur hér á landi af bókinni VINSÆLD-
IR OG ÁHRIF, sem út kom í fyrra í þýðingu VILHJÁLMS
Þ. GÍSLASONAR skólastjóra.
Þeir, sem vilja kaupa bók, sem hefir geisimikinn fróð-
leik að geyma og er auk þess einhver bezti skemmtilestur,
sem á verður kosið, ættu ekki að láta hjá líða að eignast
Þeir gcrðu garðinn frægan.
◄
◄
◄
◄
◄
◄
◄
◄
◄
◄
◄
◄
◄
◄
◄
◄
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
A
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i