Tíminn - 15.02.1944, Side 4
68
TÍMIIW, þrigjMdagiim 15. febr. 1944
17. blað
ÚR BÆNUM
Skemmtun
Framsóknarmanna
verður n. k. fimmtudagskvöld, 17. þ.
m. í Sýningarskála myndlistarmanna.
Hefst hún með Framsóknarvist kl. 8V2.
Framsóknarfólk er minnt á að tryggja
sér sem allra fyrst aðgöngumiðat á af-
greiðslu Tímans, (sími 2323), því að-
sókn verður mikil að þessari samkomu.
Hjúskapur.
Siðastliðinn laugardag voru gefin
saman í hjónaband af sr. Sig. Pálssyni,
Hraungerði, ungfrú Jóna Guðmunds-
dóttir, (Guðm. heitins Bárðarsonar
próf.), og Ólafur Gissurarson frá Bygð-
arhorni. — Heimili ungu hjónanna er
við Freyjugötu 15.
Síðastliðinn laugardag voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Rósa Niels-
dóttir (fósturdóttir Einars Jónssonar
mag. arl ). og Brandur Jónsson cand.
phil. (Jóns prófasts í Kollafjarðarnesi
í Strandasýslu). Heimili ungu hjón-
anna verður Ásvallag. 12.
Síðastliðinn laugardag voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Aðalbjörg
Halldórsdóttir frá Öngulsstöðum í
Eyjafirði og stud. theol. Sigurður Guð-
mundsson frá Akureyri.
Tónlistin.
Nýlega er út .komið tímaritið „Tón-
listin", sem Félag íslenzkra tónlistar-
manna gefur út. Er þetta 1.—4. hefti
2. árgangs. Ritið flvtur ýmsar góðar
og athyglisverðar greinar eftir þekkt
íslenzk tónskáld og tónlistarfrömuði. M.
a. má benda á grein eftir ritstjórann,
Hallgrím Helgason, er hann nefnir
„Hljómandi fósturmold," grein eftir
Björgvin Guðmundsson, tónskáld, „Á-
hrif tónlistar." — Auk þeirra eiga
þarna fróðlegar greinar þeir Þorsteinn
Konráðsson og Baldur Andrésson. Ann-
ars flytur ritið fjölmargt, sem ætla
má, að tónlistarvinum sé fengur í, svo
sem þáttinn Hljómleikalíf Reykjavíkur
og ýmis lög eftir íslenzk tónskáld. Ritið
er hið prýðilegasta að öllum frágangi.
Málverkasýning.
Næstk. fimmtudag verður opnuð, i
Sýningarskálanum, sýning á málverk-
asafni Markúsar heit. ívarssonar. Um
200 myndir verða á sýningunni, en
Markús átti stærsta málverkasafn, er
verið hefir í einstaklingseigu hérlendis.
Ágóðinn af sýningunni mun renna í
sérstakan sjóð, er nokkrir vinir Mark-
úsar hafa stofnað til minningar um
hann. Tekjum sjóðsins skal varið til
málverkakaupa og skulu málverk þau,
sem sjóðurinn kaupir, vera sérstök
deild í Listasafni ríkisins og bera nafn
Markúsar. Félag íslenzkra myndlistar-
manna gengst fyrir sýningunni.
Dánardægur.
Gunnar Einarsson, kaupmaður, son-
ur Einars Ásmundssonar og faðir Jó-
hannesar biskups kaþólskra manna,
andaðist aðfaranótt síðastl. föstudags.
Gunnar var rúmlega níræður að aldri.
Hann var maður vinsæll og • mikils-
virtur.
Freyr,
Annað tölublað þessa árgangs er ný
komið út. Það flytur m. a.: Nokkur orð
um búreikninga, eftir Guðmund Jóns-
son, Fasteignamálið eftir Hafstein Pét-
ursson, Nýtt próf í garnaveiki eftir
Björn Sigurðsson og Það bar við eftir
Árna G. Eylands og ýmsar styttri
fróðleiksgreinar.
Óttast um flmm háta
og þrjn:* skipshafnlr
(Framh. af 1. siðu)
það á vettvang*og fann bát-
inn og dró hann til Tálkna-
fjarðar.
Bátar frá Hornafirði, þeir
sem á sjó voru þessa nótt, kom-
ust ekki til heimahafnar. Snéru
þeir austur til Djúpavogs og
náðu þar landi.
Á sunnudagsmorgun varð vél-
báturinn „Bára“ frá Fáskrúðs-
firði fyrir brotsjó og laskaðist
mjög og rak eftir það stjórn-
laust til lands. Sást úr landi
hverju fram fór og kom bátur,
„Hvanney" á vettvang „Báru“
til hjálpar. Tókst skipverjum
á „Hvanney“ að bjarga „Báru“.
Fengu þeir tvö brot yfir sig við
björgunarstarfið og munaði
minnstu, að einn manninn tæki
út.
Gífurlegt veiðarfæra-
tap — 11 ý veiðarfæri
ófáanleg.
Eins og áður hefir verið vik-
ið að, urðu margir bátar fyrir
gífurlegu veiðarfæratapi. Er
gizkað á, að það nemi að
minnsta kosti hálfri miljón
króna, og er þó hitt enn verra,
að ekki mun hægt að fá ný
veiðarfæri í staðinn. Mun þetta
áfall því hafa mjög mikil og ill
áhrif á sjósókn og fiskveiðar al-
mennt frá sunnlenzku verstöðv-
unum í vetur.
Tvo báta rekur á land.
í gærmorgun slitnuðu tveir
bátar upp af legunni í Keflavík
og rak þá á land. Heita þeir
„Júlíus Björnsson“ og „Geir“.
Ekki er enn vitað, hversu mikið
þeir hafa brotnað.
Krýsuvíkurvegurinn
(Framh. af 1. síðu)
verða að flytja 40—50 smálestir
yfir heiðina daglega til að full-
nægja brýnustu þörfum bæjar-
búa, og varlega er áætlað, að
önnur flutningaþörf sé álíka
mikil og sennilega meiri, þar sem
Reykjavíkurhöfn er eina inn-
flutningshöfnin fyrir allt Suð-
urlandsundirlendið frá Reykja-
nesi að Skeiðarársandi. Þá daga,
er erfiðast er að flytja þessa
leið, hefir verið talið, að verð-
mæti allra þeirra mjólkurvara,
sem fluttar eru, nægi ekki fyrir
flutningskostnaði á þeim, en
auk þess kostar það ríkið stór-
íé, þar sem það hefir bæði
margt manna og verkfæra við
að reyna að ryðja leiðina, þótt
oftast beri það engan árangur
og öllu því fé og erfiði þannig á
glæ kastað. Það er því alveg víst,
að fé það, sem hér fer til einsk-
is árlega, má telja í hundruðum
þúsunda, auk allra þeirra óþæg-
inda og erfiðleika, sem þessu eru
samfara.
Talið er, að þegar sé búið að
eyða af opinberu fé um 240 þús.
króna í rannsóknir einar á því,
hversu leið þessi verði bezt
tryggð. Og enn er áformað að
halda áfram að eyða fé með
þeim hætti um óákveðinn tíma
án þess að ráðast í framkvæmd-
ir. Það er því óhætt að álykta,
að sé á málum þessum haldiö
á sama hátt í nokkur ár enn
eins og verið hefir undanfarið,
þá verði um milljónaeyðslu að
ræða, sem þá færir enga lausn
eða bót á málinu sjálfu til fram-
búðar.
Fyrir nokkrum árum var haf-
in lagning nýs vegar frá Reykja-
vík til Suðurlandsundirlendis-
ins um Krýsuvík. Var talið, að
leið þessi mundi miklu snjólétt-
ari, þar sem hún er um helm-
ingi lægra frá sjávarmáli, þar
sem hæst er, en Hellisheiði og
liggur auk þess mjög nærri sjó.
Fyrir þrem árum var um V3 leið-
arinnar fullger, og var þá lokið
við að leggja hæsta hluta vegar-
ins, yfir Vatnskarð, og einnig
mikinn hluta meðfram Kleifar-
vatni, — en á þeim tveim stöð-
um var snjóahætta talin mest.
Síðan hefir verið fylgzt með,
hversu snjóa legði á þessa leið,
þegar illfært eða ófært hefir
verið um Hellis- og Mosfells-
heiði, og má segja, að þær at-
huganir hafi leitt í ljós, að
snjólaust, eða svo að segja, hafi
jafnan verið á þessari leið. í
vetur, síðan flutningaörðugleik-
arnir byrjuðu um Hellisheiði og
í Þingvallasveit, hefir Mjólkur-
samsalan nokkrum sinnum látið
skoða Krýsuvikurveginn, það
sem komið er af honum, og hef-
ir hann ávallt reynzt með öllu
snjólaus og greiðfærari en jafn-
vel Reykjavíkurgötur sjálfar.
Auðvitað er til þess ætlazt, að
hér sé aðeins um vetrarleið til
öryggis að ræða og Hellisheiðar-
vegurinn verði bættur og honum
haldið við sem aðalleið eftir sem
áður. Þótt leiðin um Krýsuvík
sé nokkru lengri, skiptir það
engu máli móts við það að ætla
að halda áfram hinni vonlausu,
erfiðu og kostnaðarsömu bar-
áttu við snjóinn á háfjallaleið-
um. þeim, sem nú eru fyrir
hendi.
Upphæð þessarar tillögu er
miðuð við það, að helmingur
vegarins, sem ófullger er, verði
a. m. k. lagður á þessu ári og
byrjað sem allra fyrst.
Þrengslín í strætís-
vögnunum
Dagana 3.—9. janúar síðastl.
lét póst- og símamálastjóri telja
í strætisvögnum milli Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar. Talið
var í 718 bifreiðum og reynd-
ust of margir farþegar í 102
vögnum.
Það komst jafnvel svo langt,
að 22 farþegar voru umfram þá
tölu, sem pláss er fyrir í einum
bíl.
Hefir póst- og símamálastjóri
sent bæjarráði skýrslu um þessa
ofhleðslu og getur þess jafn-
framt, að hann hafi kallað sér-
leyfishafa á fund til að ræða
þetta mál og æskir að bæjár-
stjórn sendi einnig fulltrúa til
að mæta þar.
Erleut yfirlit.
(Framh. af 1. siðu)
breiðslu kommúnismans. Þessir
flokkar verði alltaf dyggir fylgj-
endur Rússa og geti á ýmsan
hátt styrkt stórveldisaðstöðu
þeirra og það jafnvel fremur, ef
ekki væru bein sambönd milli
þeirra og Rússa. Sterk rök eru
og leidd að því, að þannig hafi
kommúnistaflokkarnir verið
notaðir að undanförnu. Rússar
hafi notað þá til að vinna fyrir
sig, og að þeir hafi metið þá
meira eftir því, hvað þeim
ávannst í þeim efnum, en því,
hvort þeir unnu kommúnism-
anum fylgi.
Það hefir vakið athygli í þessu
sambandi, að kommúnistar í
Bandaríkjunum hafa nýlega
lagt flokk sinn niður eða rétt-
ara sagt ákveðið að breyta hon-
um í fræðslufélag, sem ekki tæki
beinan þátt í stjórnmálabarátt-
unni. Með þessu móti munu þeir
vænta þess, að starfsemi þeirra
sæti minni óvinsældum. En geta
þeir líka ekki með þessum hætti
orðið öflugri áróðursmenn fyrir
Rússa?
Aðstaða Rússa til landflótta
ríkisstjórnanna hefir mjög stutt
að þvi, að menn þykjast enn
ekki greina fullkomlega, hvað
Rússar ætlast raunverulega fyr-
ir. Þessar stjórnir hafa yfirleitt
reynt að starfa á grundvelli
þjóðlegrar einingar, — reynt
að hafa innan vébanda sinna
fulltrúa allra flokka, er ekki
höfðu aðhyllzt nazismann, svo
að baráttan gegn Þjóðverjum
hvíldi á sem víðtækustum
grundvelli. Þetta hefir yfirleitt
tekizt mjög vel, að því undan-
skildu, að kommúnistar hafa
ekki fengizt til þátttöku í slíku
samstarfi.
Fyrst í stað stafaði þetta af
því, að Rússar höfðu griðasátt-
mála við Þjóðverja og kommún-
istar forðuðust á meðan að taka
þátt í hverskonar andstöðu gegn
nazistum. í stað þess að hvetja
undirokuðu þjóðirnar til mót-
spyrnu við Þjóðverja, hvöttu
kommúnistar þær til að
semja sátt við þá, t. d. í Noregi,
þar sem þeir heimtuðu, að Há-
kon konungur • og Nygaards-
voldsstjórnin legðu niður völd
og þingið myndaði stjórn, er
gæti samið við Þjóðverja. Af
þessum ástæðum neituðu komm-
únistar upphaflega að taka þátt
í tékknesku þjóðfrelsisnefndinni
undir forustu dr. Benesar og í
frönsku þjóðfrelsisnefndinni
undir forustu de Gaulles.
Það hefði mátt ætla, að þetta
hefði breytzt eftir að styrjöldin
hófst milli Rússa og Þjóðverja,
en því hefir þó ekki verið að
heilsa. Kommúnistar hafa jafn-
an sett ýms óaðgengileg skilyrði
fyrir þátttöku sinni. Þetta hefir
að vonum vakið þann grun, að
kommúnistar vilji vera lausir við
alla ábyrgð af stjórnarathöfn-
um, svo að þeir hafi sem ó-
bundnastar hendu-r eftir styrj-
öldina.
Þetta kemur glöggt fram í
sambandi við frönsku þjóðfrels-
isnefndina. De Gaulle hefir
lengi óskað eftir því, að fulltrú-
ar frá kommúnistum ættu sæti
ORÐSEIVDIIVG
til kaupenda Tímans.
Ef kaupendur Tímans verða
fyrir vanskilum á blaðinu, eru
þeir vinsamlega beðnir að snúa
sér STRAX til
ÞÓRÐAR ÞORSTEINSSONAR,
afgreiðslumanns,
í síma 2323, helzt kl. 10—12 f.
hád. eða kl. 3—5 e. hád.
Raímagns-
borðlampí
Vandaður, útskorinn raf-
magnslampi, er til sölu og sýn-
is á
Thorvaldsensbazar
Verð kr.t 325,00.
Útbreiðið Tímann!
GAMLA BÍÓ-<———•• • ♦>
Frú Míníver [
(Mrs. Miniver).
Stórmynd tekin af Metro j
Goldwyn Mayer.
Aðalhlutverkin leika:
GREER GARSON.
WALTER PIDGEON.
TERESA WRIGHT. [
Sýnd kl. 6Y2 og 9. í
BARÁTTAN UM OLÍUNA
_ (Wildcat).
RICHARD ARLEN,
ARLINE JUDGE.
-NÝJA BÍÓ
Með llóðinu
(Moontide).
Mikilfengleg mynd.
Aðalhlutv. leikur franski
leikarinn
JEAN GABIN,
ásamt
IDA LUPINI og
*
CLAUDE RAINS.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.. j
Bækur seljast misjafnlega
ört, sumar á fáum dögum, aðr-
ar á nokkrum árum, en enginn
skyldi þó leggja það sem mæli-
kvarða á gæði bókanna. Það
vill oft bregða við hjá bóka-
mönnum, að þegar þeir sjá, að
bókin selst ekki með metsölu-
hraða, þá draga þeir að kaupa
hana, og vakna svo við þann
vonda draum, að bókin er upp-
seld. Nú viljum við benda þeim
bókamönnum, sem enn hafa
ekki keypt neðantaldar bækur,
á, að það eru ekki mörg eintök
eftir óseld af neinni þeirra.
Missið því ekki af þessum ó-
dýru bókum:
Saga
Eiríks Magiuissonar
eftir Dr. Stefán Einarsson,
heft kr. 8.00.
Afmælisrit
Einars Arnwrssoitar
próf. Greinar eftir 12 ísl.
fræðimenn um ýmislegt efni,
200 bls., kr. 15.00 heft.
Saga Skagstrendinga
og Skagamanna
eftir Gísla Konráðsson, heft
kr. 12.00.
Frá Djnpi og Ströndum
eftir Jóhann Hjaltason, kr.
3.50.
Frá y/íu íiosjum
eftir Gils Guðmundsson, heft
kr. 12.00.
Myndir
Jóns Þorleifssonar,
32 heilsíðumyndir, ib. 25.00.
Guðm. Friðjjwnsson
sjötugur, ljóð, heft 2.50.
Kristján X.
Afmælisrit eftir Guðbrand
Jónsson, með hátt á annað
hundrað myndum úr ævi kon-
ungs. Kr. 15.00.
Draumar
Hermanns Jónassonar
með hinum fræga Njálu-
draum, heft kr. 1.50.
Rit uni jarðelda
á tslandi
Kr. 5.00.
Nokkrar ódýrar
skáldsögur:
Fyrstu árin
eftir Guðrúnu Jónsdóttur frá
Prestsbakka. Bókin er nú
komin út í danskri þýðingu,
ib. kr. 6.00, heft 4.00.
Fyrir miðja morgunsól
eftir Huldu, ib. 6.50, heft 3.50.
Skrítnir náungar
eftir Huldu, ib. 10.00, heft 8.00
Og árin líða
eftir Sigurð Helgason, með
hinni rómuðu sögu „Skarfa-
klettur“, ib. 6.00, heft 4.00.
Xýr bátur á sjó
Thomas O. Lökken, 300 bls., ib.
7.00, heft 5.00.
Við dyr leyndardóm-
anna og Einstæðingar,
skáldsögur eftir Guðlaugu
Benediktsdóttur, ib. 6.00 og
5.00.
Þráðarspottar.
sögur’ eftir vestur-íslenzku
skáldkonuna Rannveigu Sig-
urbjörnsson, heft kr. 4.50.
Ilmur daganna
eftir Guðm. Daníelsson, ib.
6.50, heft 4.50.
Bækur þessar munu enn vera
fáanlegar hjá flestum bóksöl-
um úti um land, effa beint frá
Bókaverzlun
Isafoldarprentsmíðju
Kanpnm tuskur
allar tegundír, hœsta verdi.
Húsgagnavínnustofan Baldursg. 30
Símí 2292.
Orðsending
til kaupenda Timans.
Ef kaupendur Tímans verða fyrir van-
skilum á blaðinu, eru þeir vinsamlega
beðnir að snúa sér STRAX til
ÞÓRÐAR ÞORSTEIXSSOXAR
afgreiðslumanns,
I síma 2323, belzt kl. 10—12 fyrir hádegi,
eða 3—5 e. h.
wo»»ompo»ooo«»ooo»o»o»oooooo<
The World’s News Seen Through
THE CHRISTIAN SCIENCE MϒITOR
An lnternational Daily Newsþaper
'u Truthful—Constructive—Unbiased—Free from Sensational-
ism — Editorials Are Timely and Instructive and Its Daily
Features, Together with the Weekly Magazine Section, Make
the Monitor an Ideal Newspaper for the Home.
The Christian Science Publishing Society
One, Norway Street, Boston, Massachusetu
Price $ 12.00 Yearly, or #1.00 a Month.
Sacurday Issuc, including Magazine Section, #2.60 a Year.
Introductory Offer, 6 Issues 25 Cents.
SAMPLE COPY ON REQUEST
»ooooo»oooootoooooooooo»oooooooo^»^
í þjóðfrelsisnefndinni. Jafn-
framt hefir hann óskað eftir, að
þeir væru tilnefndir af hinum
leynilegu kommúnistasamtök-
um heima í Frakklandi. En þessu
hefir verið neitað af frönsku
kommúnistunum, er starfa ut-
an Frakklands. Þeir hafa viljað
velja fulltrúa úr hópi kommún-
ista, sem voru í varðhaldi í Al-
gier, en hafa nú verið látnir
lausir. De Gaulle hefir neitað
því með þeirri forsendu, að þeir
hafi verið dæmdir til varðhalds-
vistar skömmu eftir að stríðið
hófst, samkvæmt skýlausum
lagafyrirmælum franska lýð-
veldisins, þar sem þeir hafi rek-
ið áróður, sem var skaðlegur
styrjaldarrekstrinum. De Gaulle
segist ekki geta tekið menn, sem
hlotið hafi slíka dóma, í Stjórn
sína. Þá hafa kommúnistar
hampað sem fulltrúaefni
frönskum kommúnista, er lengi
hefir dvalið í Moskvu, en de
Gaulle hefir ekki viljað fallazt
á það.
Slysfarir
(Framh. af 1. síðu)
renna sér á sleða og rakst á
girðingu. Var hann fluttur í
sjúkrahúsið á ísafirði og lézt
þar af meiðslum.
t t r
Þann 29. f. m. drukknaði ung-
ur maður á Djúpavogi, Ari
Höskuldsson. Slysið vildi þann-
ig til, að bátur, sem var að fara
út í skip, hvolfdist og fóru allir,
sem í honum voru, 11 talsins, í
sjóinn. Bátur var þarna nær-
staddur, er á var Stefán Aðal-
steinsson. Tókst honum með
miklu snarræði að bjarga öllum,
nema Ara.
Pallíeftur,
svartar,
hvítar,
rauðar,
silfraðar,
gyltar,
koparlitaðar,
grænar,
bláar.
R. TOFT
Skólavörffustíg. 5. Sími 1035.
Þúsundir vita,
að gæfa fylgir trúlofunarhring-
um frá SIGURÞÓR.
Sent gegn póstkröfu hvert á
land sem er.
Sendiö nákvæmt mót.
Sigurþór,
Hafnarstr. 4, Reykjavík,
Vinuiff ÖUMmam t*rlr
Tii
Á víðavangi
(Framh. af 1. síðu)
unum, er samþykktar voru
seinasta þingi, og jafnframt
hafi hann komið fram lækkun
skatta (afnám verðlækkunar-
skattsins), enda þótt vitanlegt
sé, að afleiðing slíkrar fjár-
málastefnu muni orsaka stór
felldan tekjuhalla hjá ríkissjóði