Tíminn - 14.03.1944, Qupperneq 4
112
TtMIIVIV, þrigjndagiim 14. marz 1944
43. blað
ÚR B Æ 3V U M
Skemmtisamkoma.
Næsta skemmtun (og sennilega sú
síðasta á vetrinum) Framsóknarfélag-
anna í Reykjavík verður á fimmtudag-
inn 16. marz í Sýningarskála myndlist-
armanna. Hefst hún eins og venjulega
með Framsóknarvist kl. 8%. Síðan
verður verðlaunum úthlutað til sigur-
veaaranna í spilunum, ein stutt ræða,
söngur og dans. Nú þegar er búið að
panta • tæpan helming af þeim að-
göngumiðum, sem afhentir verða að
vistinni, en það eru ekki nema rúmlega
200 manns, sem rúmast við spilaborð-
in. Þeir, sem eru 1 Framsóknarfélög-
unum, ganga fyrir um aðgöngumiða,
en þó aöeins með því, að þeir panti þá
í tæka tíð. Aðgöngumiöarnir fást á af-
greiðslu Tímans (sími 2323) og ér viss-
ara að panta þá í dag og varla seinna
en á morgun, því vinsældir Framsókn-
arskemmtananna fara alltaf vaxandi.
' Ólafur Thorlacius
fyrv. héraðslæknir varð 75 ára s. 1.
laugardag. Ólafur er mjög ern, ungur
í anda og áhugasamur um velferðar-
mál almennin"-s. Hann nýtur jafnan
mikilla vinsælda, en þó einkum þeirra,
sem bezt þekkja hann.
Barnaspítali.
Ákveðið hefh- veriö, að barnaspítali
verði reistur á Landsspítalalóðinni, eins
fljótt og nægjanlegt fé er fyrir hendi.
Alþingi hefir samþykkt, að gjafir til
spítalans megi draga frá skattskyldum
tekjum manna á þessu ári og næsta ári.
Það er einkanlega Kvenfélagið Hring-
urinn, sem gengst fyrir fjársöfnun til
að hrinda þessu þarfa máli áleiðis.
M. ■ a. gangast konur félagsins fyrir
basar, sem haldinn verður í vor, til
ágóða fyrir spitalasjóðinn. Sjálfsagt
verða konurnar vel studdar af mörgum,
þegar þær beita sér fyrir svona góðu
málefni.
Útvarp á ensku
minnkar úr þessu frá stöðinni hér,
því Bandaríkjamenn hafa nú ákveðið
að leggja niður síðdegisútvarp sitt,
nema á sunnudögum. Eri þeir munu
halda áfram að útvarpa hljómleikum
á kvöldin.
Hjónaband.
Nýlega hafa verið gefin saman
í hjónaband í Reykjavík ungfrú Matt-
hildur Kvaran (Ragnars Kvaran) og
Jón Björnsson frá Minneapolis. Hann
er yngstur af fjórum sonum Gunnars
Björnssonar. Hafa þeir allir verið hér
á landi undanfarið og eru fjölda ís-
lendinga að góðu kunnir.
Knattspyrnufélag
Reykjavíkur.
Hið fjölmenna og ötula félag, sem
venjulega genp-ur undir stöfunum K. R„
er nú 45 ára og í tilefni af því aug-
lýsir það afmælisfagnað að Hótel Borg
n. k. laugardagskvöld.
Vestfirðingamót
verður haldið að Hótel Borg n. k.
föstudagskvöld. Aðsang að mótinu fá
aðeins félagsmenn í Vestfirðingafélag-
inu með einn gest. Þetta er framför
frá ýmsum „héraðsmótum", sem eru
samsafn af alls konar fólki, sem varla
hefir komið í það hérað, sem verið er
að „heiðra".
Fjársöfnun
til dönsku flóttamannanna í Svíþjóð
gengur vel. Eru margir, sem vilja rétta
vinarhönd til þessara nauðstöddu
manna, er bjargað hafa frelsi sínu og
fjöri, en yfirgefið allt annað, sem þeir
áttu í heimalandi sínu. Vitað er um að
nokkrir íslendinar hafa einnig slopp-
ið frá Danmörku yfir til Sviþjóðar.
Biskupasögurnar.
Fjöldi bóka eru nú gefnar út, og
innan um allt það moldviðri gnæfa
upp úr vmsar af okkar merkustu eldri
bókum, svo sem Flateyjarbók, Heims-
kringla, Ferðabækur Eggerts Ólafsson-
ar og nú síðast kemur tilkynning um,
að fara eigi að gefa út Biskupasög-
urnar, Það er Bókaútgáfa Guðjóns Ó.
Guðjónssonar, er tilkynnir útkomu
þeirra. I. bindi mun koma út á þessu
ári.
Aðalfundur.
Framhaldsaðalfundur Byggingarsam-
vinnufélags Reykjavíkur verður mánu-
daginn 20. marz. Rætt verður m. a.
um nýbyggingar félagsins. Fjöldamarg-
ir menn kváðu hafa gengið í félagið
síðustu dagana. ,
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
ungfrú Torfhildur Þorkelsdóttir, Lauf-
ásveg 45, os Kristinn Sigurðsson,
Bjarnarstíg 12.
Heilsufræði handa
húsmæðrum,
eftir írú Kristínu Ólafsdóttur, lækni,
er nýlega komin út. Útgefandi er ísa-
Ymnuhæli
berklasjúklinga . . .
(Framh. a1 1. slBu)
fara berklaveiki og loks sjúkl-
ingar, sem eru að meira eða
minna leyti öryrkjar af völdum
berklaveiki.
Fyrst um sinn munu sjúkling-
arnir hafa nóg að gera við smíð-
G T* G ÍHHnviTiiiC'rYHivmvn r\rr ttwc'
-.—.-GAMLA BÍÓ-
ZIEGFIELD
STJÖRXUR
(Ziegfield Girl)
JAMES STEWART,
LANA TURNER,
JUDY GARLAND,
HEDY LAMARR.
Sýnd kl. 6y2 og 9.
► NÝJA BÍÓ.
«►(>«• •
„ERNIR“
FUUGSVEITIIV
(Eagle Squadron).
Mikilfeng stórmynd.
ROBERT STACK,
DIANA BARRYMORE,
JOHN HALL.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn fá ekki aðgang.
Aðalfundur Blaða
maunafél. íslands
Aðalfundur Blaðamannafé-
lags íslands var haldinn sunnu-
dagin síðastliðinn.
Skúli Skúlason ritstjóri, sem
verið hefir formaður þess um
skeið, skoraðist undan endur-
kosningu, og var Valtýr Stef-
ánsson ritstjóri kjörinn formað-
ur Blaðamannafélagsins í hans
stað. Meðstjórnendur voru
kjörnir Sigurður Guðmundsson,
ritstjóri Þjóðviljans, Jón Magn-
ússon, fréttastjóri ríkisútvarps-
ins, Hersteinn Pálsson, rit-
stjóri Vísis, og Jón Helgason,
blaðamaður við Tímann.
Að kosningunni lokinni voru
Skúla þökkuð störf hans í þágu
Blaðamannafélagsins.
Blaðamannafélag íslands hef-
ir mörgum verkefnum að sinna
og ríkir innan þess hin mesta
eining.
Skíðamót L S. í.
Skíðamót í. S. í. fer fram á
Siglufirði dagana 6., 8 og 10.
apríl.
Á mótinu verður keppt um
eftirtalda verðlaunagripi:
Skíðabikar íslands fyrir tví-
keppni, göngu og stökk. —
Svigmeistarabikar karla í A-
flokki, Svigbikar I, bezta sveit
í A-flokki, Svigbikar II, bezta
sveit í B-flokki, Andvökubikar-
inn fyrir bezta afrekið í sér-
stakri stökkkeppni, Svigbikar
Litla Skíðafélagsins fyrir beztu
svigsveit í sérstakri keppni. —
Verðlaunapenngar eru og veitt-
ir í öllum flokkum.
Væntanlegir þátttakendur
eiga að gefa sig fram við Skíða-
ráð Siglufjarðar fyrir 1. apríl
n. k.
Nokkur orð úr
Holtahreppi
(Framh. af 2. síöu)
Geta menn af þessu ráðið að
ekki muni það vera vandað
mannvirki, sem gert er, þegar
leggja á 14 km. langan veg með
900 kr. framlagi úr sýslusjóði,
jafnvel þótt við, sem nota þurf-
um þessa kerrubraut létum okk-
ur nægja 55—65 aura um klst.
í kaup. Þarf varla að taka það
fram, að þeir einir, sem nota
þyrftu braut þessa, fengjust til
þess að vinna við þessa vega-
gerð. Á meðan hér var sauðfjár-
rækt, létu bændur sér nægja
þessar samgöngur í þeirri von
að betur rættist úr síðar, þegar
búið væri að leysa þau verkefni,
sem áður er lýst. En nú er röðin
foldarprentsmiSja h.f. Bókin er hátt á
þriðja hundrað blaðsíður í stóru broti,
og er I henni fjöídi ágætra mynda til
skýringar efninu. í formála bókarinnar
segir höfundurinn m. a.: „1 riti þessu
er tekið saman hið helzta um heil-
brigðisefni, sem ætla má, að varði sér-
staklega konur í húsmæðrastétt, bæði
til sjávar og sveita hér á landi. Er æti-
ast til, að hafa megi ritsins not bæði
sem handbókar á heimilum og við
heilbrigðisfræðslu námsmeyja í hús-
mæðraskólum og öðrum sérskólum
kvenna."
Strætisvagnafélagiff
hefir sótt um 10 ára sérleyfi til þess
að reka strætisvagna í Reykjavík, en ef
það fái það ekki, þá hefir það við orð,
að bærinn taki að sér rekstur strætis-
vagnanna. Félagið telur sig þurfa
tryggingu fyrir starfsnæði, þar sem
nú liggi fyrir „margvíslegar, fjárfrekar
framkvæmdir til þess að geta fullnægt
eðlilegri og æskilegri þróun í sam-
göngumálum bæjarins, svo sem bygg-
ingu stórhýsis, fjölgun stórra og dýrra
vagna, starfræksla nýrra leiða til út-
hverfa bæjarins og fjölgun vagna á
öðrum, kerfisbreytingar til óslitins
aksturs í gegnum bæinn og ýmis fleiri
nauðsyniaverk".
Lögr eglust j órinn
í Reykjavík hefir nýlega gefið út
hvatningu til manna að hirða bíla af
götunum, þar sem þeir eiga ekki að
vera. Væri ekki vanþörf á, að gerð væri
gangskör að slíku, því að bílaraðirnar
standa víða á þessum mjóu götum, svo
að varla er hægt að komast um þær.
En hvað er um borgarstjórann, ætli
hann vildi ekki gera gangskör að
þvi, að láta þrífa betur til í bænum,
svo að höfuðstaðurinn hætti að vera
einhver sóðaiegasti bærinn á landinu?
Síldarmjölspokar.
Samninganefnd utanríkisviSskipta
birtir þessa dagana áminningu til
manna um að halda vel saman pokum
undan síldarmiöli og afhenda þá til
kaupfélaga eða kaupmanna. Er að
heyra, að þetta muni greiða fyrir því,
að menn geti fengið síldarmjöl næsta
sumar, og er því áríðandi að veita
þessu eftirtekt.
komin aff Holtahreppi og það
svo mjög, aff ef ekki verffur mjög
bráfflega ráffin bót á samgöngu-
málum Upphoítana, þá er fyrir-
sjáanlegt aff mörg býli leggjast
í eyffi á næstunni.
Ég get ekki talið hér upp öll
þau rök, sem þessi fullyrffing
byggist á, en drep þó lauslega
á þau helztu.
Eins og menn vita, er aðal-
varnalína sauðfjárveikivarn-
anna um Þjórsá aff austan. Viff
hér í Hagasókn, sem höfum
þennan vágest bæffi fyrir norð-
an okkur og vestan þurfum varla
að minna á, að þessar pestir
hafa tvisvar höggvið skarff í
þessa varnarlínu hér um slóðir.
Af þeim ástæffum höfum við t.
d. orðiff aff hafa allt saufffé okk-
ar í afgirtum heimahögum und-
anfarin ár, og enda þótt stjórn
sauðfjárveikivarnana hafi ekki
alltaf farið eftir tillögum okkar,
þá höfum við án þess að mögla
samþykkt niðurskurð á öllum
fjárstofni okkar í þeirri von, að
meff því takist aff hefta út-
breiðslu sjúkdómanna hér í
sýslu. Og þótt nú takist svo vel
til að útbreiffsla garnaveikinn-
ar verði stöðvuð eins og mæði-
veikinnar, þá má þó segja, að
sauðfé bænda hér um slóffir sé
alltaf í fremstu víglínu. Eng-
inn veit nú lengur hve lengi
friður helzt, hvenær og hvar
koma nú ný tilfelli með niður-
skurði á ný, eða hjá þeim næsta.
Auk þess er sauðfjárrækt hér
við þessi skilyrði lítt arðvænleg
eins og sakir standa.
Einn bóndi hér, sem farga
varð öllum fjárstofni sínum í
haust vegna niðurskurðar hefir
fengið fyrir fé sitt sem hér
segir:
Fyrir dilka: kr. 72,83 meðal-
verð á stk.
Fyrir veturgamalt fé: kr. 99,13
meðalverð á stk.
Fyrir ær tvævetur og eldri:
kr. 37,97 meðalverð á stk.
Af þessu fé hefir bóndinn þó
ennþá affeins fengiff % greidd-
an hluta verffs eða aðeins kr.
25,28 meðalverff fyrir hverja á.
Ég hygg að ekki muni miklu
á vænleika fjárins hjá þessum
bónda og nágrönnum hans. (Ég
hefi ekki, þegar þetta er ritað
fengið reikninga mína). Fjárbú
eru hér smá, svo auðskilið ætti
að vera, að tekjur bænda eru
mjög litlar.
Smjörverð er nú fastákveðið
með verðlagsákvæðum og fá
bændur kr. 17,00 fyrir kg. Öllum
þeim, sem eru þessum málum
eitthvað kunnugir, mun vera
ljóst, að með þessu verði fá þeir
bændur, sem ekki hafa aðstöðu
til þess að selja mjólk sína til
mjólkurbúa að minnsta kosti y3
minna verða fyrir afurðir sínar,
heldur en þeir, sem betur eru
settir með samgöngur og geta
selt mjólk. —
Ég verð að láta þetta nægja
til þess að benda á, við hve
kröpp kjör við búum hér um
slóðir. Jafnvel allur fjárstofn
sumra búanna hér, að viðbætt-
um öðrum tekjum búsins (af
smjörsölu o. fl.) er ekki- nægi-
lega mikill til þess að jafnast á
við sumartekjur eins unglings,
sem leitar sér atvinnu á öðr-
um slóðum.
Nú um áramótin barst okkur
sú fregn, að á síðustu fjárlög-
um hafi verið gert ráð fyrir 25
þús. kr. fjárframlagi til Haga-
brautar, en þessi fyrirhugaði
vegur er nú fyrir nokkru kom-
inn í tölu þjóðvega, sem ríkið
kostar. Þetta ber vott um auk-
inn skilning fjárveitingavalds-
ins á samgönguvandræðum okk-
ar, en okkur er þó ljóst, að
þessi fjárveiting nær skammt.
Væri óskandi, að vegamálastjóri
hefði jafnframt aukizt nokkuð
skilningur á þörf þessarar vega-
lagningar. En við höfum ekki
ennþá orðið þess varir, að neinn
vegamálaverkfræðingur hafi
mælt fyrir veginum, enda þótt
hann hafi verið í ríkisins umsjá
í sumar. Væri okkur þó ánægja
að því, að vegamálastjóri heim-
sækti okkur, eða starfsmenn
hans.
Ég hefi nú reynt að skýra
nokkuð frá því, að vegagerð hér
er að ýmsu leyti erfið og kostn-
aðarsöm og hvers vegna sam-
göngumálum okkar hefir lítið
verið sinnt til þessa, þrátt fyrir
landkosti þessarar sveitar, sem
eru einstakir í sinni röð. Jafn-
framt því, sem ég ætla góðvilj-
önnur létt störf, er vinna þarf
meðan bygging stendur yfir.
Síðar mun smáiðnaður verða
aðalstarf stofnunarinnar: smíð-
ar, bókband o. fl. mun verða
iðja karla, saum, prjón o. fl.
iðja kvenna.
Vinnuhælið mun verða sjálfs-
eignarstofnun, rekin af S. í. B.
S. í samráði við ríkið, og vafa-
lítið með styrk frá því.
Það þarf ekki að taka fram,
að þörfin fyrir slíkt hæli er
mjög brýn. Margt manna bíður
nú eftir því að komast að á
sjúkrahúsum en kemst það ekki,
því að þar er fyrir fólk, er gæti
verið í vinnuhælinu. Þegar
vinnuhælið kemst upp, mun því
mjög rýmast í sjúkrahúsunum.
Auk þess veitir það miklu meiri
von um fullnaðarbata, ef sjúkl-
ingar fá vinnu i slíku hæli fyrst
eftir að þeir koma af sjúkra-
húsum.
Alþingi hefir sýnt stuðning
sinn á þessu máli með því að
undanþiggja sk^tti allar gjafir
til hælisins. Er þess að vænta,
að menn noti sér þessi hlunn-
indi til að styðja gott málefni.
Breytiiigarnar á
Þormóði . . .
(Framh. af 1. slðu)
ir, án þess aff leyfi skipaskoð-
unarinnar sé fengiff. Vafalaust
hefir útgerðarfélagið treyst því,
að umrædd skrifstofa annaðist
umbeðnar framkvæmdir á þann
hátt, að fullnægt væri öllum
öryggisreglum.
Sök skipaskoðunarinnar er sú,
að hún virðist alveg gugna fyr-
ir kappi því, sem á það er lagt
að koma fram breytingunum.
Þess vegna lætur hún bjóða sér,
að breytingarnar séu hafnar,
án þess að hún hafi lagt dóm
sinn á þær, og lætur það síðan
gott heita, sem gert er. Ef
þannig hefir gengið til oftar,
sem því miður er full ástæða
til að halda, er ekki að furða,
þótt skipaskoðunin hafi ekki
náð þeim tilgangi, sem henni er
ætlaður.
Loks viröist það æði mikið
ásökunarefni í garð þess út-
gerðarmanns, er síðast átti
Þormóð, og vafalaust hefir
verið kunnugt um hinn stöðuga
leka hans og vissi, hvernig
breytingarnar voru tilkomnar,
að halda ekki skipinu í höfn,
unz búið var að gera nægar end-
urbætur á styrkleika þess.
Þáttur dómsmálaráðherra
virðist með fullkomnum end-
emum. Þótt i skýrslu sjódóms-
ins sé að finna veigamiklar á-
sakanir á skipateiknarana
og skipaskoðun ríkisins, sting-
ur hann skýrslunni undir stól,
hreyfir ekki hönd né fót til end-
urbóta, og þrjózkast við að birta
skýrsluna, unz Alþingi neyðir
hann til þess. Hér er um óaf-
sakanlega yfirhylmingu að ræða
hjá æðsta verði dóms og laga í
landinu.
Þrátt fyrir hina ýtarlegu
vinnu sjódóms Reykjavíkur í
þessu máli, hefði því ekkert
verið gert til endurbóta, vegna
yfirhylmingar dómsmálaráð-
herra, ef Alþingi hefði ekki
hafizt handa í málinu í tilefni
af öðru sjóslysi. Fyrir tilhlutun
Alþingis hefir nú sérstakri
nefnd verið falið að taka fram-
kvæmd skipaskoðunarinnar og
skipaskoðunarreglurnar til ná-
kvæmrar rannsóknar og ber að
vænta þess, að árangurinn svari
tilganginum.
uðum mönnum að skilja, hvers
vegna bændur hér geta ekki, án
bættra samgangna og aukins
fjármagns, hagnýtt þann auð,
sem býr í gróðurmold Holtanna,
nema að mjög litlu leyti. Og nú
er svo komið, að ef ekki verður
ráðin bót á samgöngumálum
Uppholta mjög bráðlega, þá er
ekki annað sýnilegt en að
byggðin leggist í eyði nú á næst-
unni hér í efsta hluta Holtanna.
Saurbæ, um áramótin.
Elías Þórffarson.
ÚTLAGAR
EYÐIMERKURINNAR.
(Outlows of the Desert).
WILLIAM BOYD.
Sýnd kl. 3 og 5.
Börn innan 12 ára fá ekki
aðgang.
Varnir gegn
hardindum
(Framh. af 3. síöu)
sem í okkar valdi stendur til
þess að láta skakkaföll vorsins
verða sem minnst. Og því þarf
að vera á verðinu í tíma, birgð-
unum, sem til eru á einstöku
stöðum, þarf að dreifa og alls
sparnaðar að gæta um forðann,
sem til er á heimilunum. Sé þess
gætt, skulum við vona að
skakkaföllin í vor verði lítil.
í. marz 1944.
Lesendur!
Vekjið athygli kunningja yð-
ar á, að hverjum þeim manni,
sem vill fylgjast vel með al-
mennum málum, er nauðsyn-
Barnasýning kl. 3:
RADDIR VORSINS
með Deanna Durbin.
Sala hefst kl. 11 f. h.
MJóIkur-
brúsar
Þeir, sem eiga mjólkurbrúsa í
tinhúðun hjá okkur, sæki þá
innan eins mánaðar frá birtingu
þessarar auglýsingar, annars
seldir fyrir kostnaði.
BREIÐFJ0RÐS-
BLIKKSMIÐJA
og tinhúðiui.
legt að lesa TÍMANN.
Skrifið eða símið til Tímans
og tilkynnið honum nýja áskrif-
endur. Sími 2323.
ÞAKKARÁVARP.
Hjartanlega þakka ég sveitungum mínum og öllum
þeim, er sýndu mér hluttekningu, með gjöfum, skeytum
og minningarspjöldum, viff fráfall elsku sonar míns ,
Ifalldórs Signrðssonar,
frá Jaffarkoti, er fórst meff togaranum Max Pemberton
11. janúar 1944.
Biff ég ykkur öllum Guffsblessunar.
HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR.
Bílstjórar og bílaeigendur
Erum aftur byrjaðir að sauma bílaáklæði
(Cover) í allar tegundir af bílum.
Mikið og gott úrval af góðum efnum.
Vönduð vinna.
TOL£DO
Sími 4891.
JifrH tifl iöln
Góð jörð í Árnessýslu fæst til kaups og ábúðar í komandi far-
dögum. Aðstæða til mjólkursölu er góð.
Upplýsingar gefur
Magnús Víglimdsson
Símar 3438 og 5667.
Garðastræti 37,
Rcykjavík.
Veggféður
nýkomið.
Sent um land allt gegn póstkröfu.
Veggfóðursverzlun^Viclors Helgasonar
Hverfisgötu 37. Sími 5949.
45 ára aímæii
Knattspyrnufél. Reykjavíkur
verður haldið hátíðlegt með samsæti og dansleik að Hó-
tel Borg, laugardaginn 18. þ. m. kl. 7 síðd. — Aðgöngumið-
ar fyrir félagsmenn og gesti þeirra, verða seldir á mánu-
dag til fimmtudagskvölds í verzl. Hamborg, Laugaveg,
Haraldarbúð h.f. og Silla og Valda, Vesturgötu 29.
Tryggið yður miða í tíma.
Stjórn K. R.