Tíminn - 13.05.1944, Page 1

Tíminn - 13.05.1944, Page 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. ÚTGEPANDI: PRAMSÓKNARFLOKKURINN. PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. Símar 3948 og 3720. RITSTJÓR ASKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Llndargötu 9A. Sírrar 2353 og 437C AFGREIÐSLA, INNHEIMT, OG AUGLÝSINGASKT.—CTOFA: FDÐUHÚSI, Llndargötu 9A. Sfml 2323. 28. árg. Reykjavík, laugardagiim 13. maí 1944 50. blat§ Erleat yfirlit: Loftsókn og taugastríð Óþolinmæði eftir „innrásinni“ margumræddu fer vaxandi. Margir höfðu spáð henni í marz, aðrir í apríl og flestir í maí í seinasta lagi. Til þessa hefir hún ekki náð lengra en að vera loft- sókn og taugastríð. Hversu lengi sá aðdragandi hennar varir enn, verður eigi sagt. En vel getur verið, að hún hefjist ekki fyrr en í júní. Vafalaust hefir hún verið dagsett á Teheranráð- stefnunni, með hliðsjón af vor- sókn Rússa. Sennilega hefir þá ekki verið reiknað með vorsókn Rússa fyrr en í júní, einkum vegna veðráttu. Veðráttan hefir verið betri í Rússlandi í vetur en í síðastl. 40 ár, og hefir það stórbætt aðstöðu Rússa í vetr- arsókninni og undirbúningi vor- sóknarinnar. Má því reikna með, að vorsókn þeirra geti hafizt fyrr en ella. Það hlé, sem nú er á stórorustum í Rússlandi, sýriir, að Rússar eru að undirbúa vor- sóknina. Bandamenn hafa undirbúið innrásina undanfarið með stór- felldum loftárásum á samgöngu- stöðvar og herstöðvar Þjóð- verja í Norður-Frakklandi, Belgíu, Hollandi og Vestur- Þýzkalandi. Hafa þessar loftá- rásir verið hinar stórfelldustu og stöðugt aukizt. Þeir hafa þó eigi dregið úr árásum á þýzkar borgir, einkum hefir Berlín orð- ið hart úti að vanda. Frá ítaliu hafa þeir og haldið uppi hörð- um árásum á borgir í Rúmeníu, Ungverjalandi, Búlgaríu, aúk á- rása á ítalskar borgir. Einkum hafa verið gerðar harðar árásir á Búkarest. Taugastríðið til undirbúnings innrásinni hefir líka verið kapp- samlega rekið. Næstum daglega hefir verið gefið til kynna, að hún væri að hefjast. Þannig hefir Þjóðverjum verið haldið í stöðugum spenningi. Þá hefir verið rætt um framtíðarfyrir- ætlanir. Skýrt hefir verið frá því, a<f Eisenhower ætti að verða yfirherstjórnandi í Þýzkalandi, en sérstakri nefnd Bandamanna yrði falin hin borgaralega stjórn. Sagt hefir verið, að rússneskur her ætti að hafa setuliðsgæzlu í austurhluta landsins, Bretar í norðurhlutanum, en Banda- ríkjamenn í Suður-Þýzkalandi. Berlín yrði þó undir sameigin- legri herstjórn þessara þriggja stórvelda. í hernumdum löndum verður stjórnin éins fljótt af- hent innlendum stjórnarvöld- um og auðið er. Pólland er þó talið í nokkurri hættp í þessum efnum, þar sem það verður sennilega hernumið af rúss- neskum her, og Rússar sækjast þar til yfirráða. Allt þetta skraf eykur vitanlega á stríðsskjálfta Þjóðverja. Þjóðverjar halda einnig uppi taugastríði og telja sig undir allt búna. Þeir munu og áreið- anlega veita varmar móttökur. Herfróðir menn telja, að þeir hafi nú eins lítið lið á austur- vígstöðvunum og minnst geti verið þar. Þeir leggja auðsjáan- lega meira kapp á að verjast að vestan. Þeir telja líklegt^ ef þeir geti hrundið innrásinni, að Bandamenn muni eigi reyna aftur fyrst um sinn, og á meðan geti þeir jafnað um Rússa. Ef stríðið dragist á langinn, geti líka skapazt nýir möguleikar til að komast sæmilega úr styrjöld- inni. En biði þeir lægra hluta í innrásinni, sé öll von úti. Seimistu iréttir Bandamenn hafa hafið stór- fellda sókn á Cassinovígstöðv- unum og unnið talsvert á. Hef- Lán og styrkir til skipakaupa tjtlilutimariiefiidiii skfpuð. Seinasta Alþingi ákvað að verja 5 milj. kr. úr fram- kvæmdasjóði til styrktar skipa- kaupum. Síðar ákvað þingið með sérstökum lögum, að þetta fé færi í nýjan sjóð, styrktar- og lánasjóð fiskiskipa. í lögum óessum segir ehnfremur, að at- vinnumálaráðherra skipi 5 manna nefnd, er hafi á hendi úthlutun fjár úr sjóðnum, að fengnum tillögum stjórnar Fiskifélags íslands. Skulu 4 þeirra skipaðir samkvæmt til- nefningu þingflokkanna, einn af hverjum flokki, en formaður án tilnefningar. Samkvæmt þessu hefir ráðu- neytið 10. þ. m. skipað eftir- greinda menn í nefnd þessa: Jón Maríusson bankastjóra, og er hann jafnframt skipaður for- maður nefndarinnar. Guðjón F. Teitsson skrifstofu- stjóra samkvæmt tilnefningu þingflokks Framsóknarmanna. Guðmund I. Guðmundsson al- þingismann, samkvæmt tilnefn- ingu þingflokks Alþýðuflokks- ins. Gísla Jónsson alþingismann samkvæmt tilnefningu þing- flokks Sjálfstæðisflokksins. Harald Guðmundsson skip- stjóra, ísafirði, samkvæmt til- nefningu þingflokks Sameining- arflokks alþýðu — Sósíalista- flokksins. Útsvörín í Reykjavík verða 30 miljón kr. Á fundi bæjarstjórriar Rvíkur síðastl. miðvikudag var ákveðið af fulltrúum Sjálfstæðisflokks- ins að hækka enn útsvörin í Reykjavík um 2]/2 milj. kr., en búið er að jafna niður 27 yz milj. kr. Verða því útsvörin alls 30 milj. kr. á þessu ári. Útsvarshækkuh þessa rök- studdu Sjálfstæðismenn með því, að hún væri nauðsynleg vegna hækkunar á vinnulaun- um. Hækkun sú, er varð á Dags- brúnarkaupinu í vetur, yki út- gjöld bæjarins um 1 milj. kr., ef ekki ætti að draga úr fyrirhug- uðum framkvæmdum á árinu. Auk þess mætti búast við hærri dýrtíðarvísitölu en reiknað var með, þegar fjárhagsáætlunin var samin. Kommúnistar og Alþýðu- flokksmenn vildu verja þessari útsvarshækkun til byggingar á íbúðarhúsum. S e n d £ herr askipti Samkvæmt tilkynningu frá sendiráði Bandaríkjanna, hefir Mr. Leland B. Morris sendiherra af forseta Bandaríkjanna, verið skipaður sendiherra í Iran, og lætur hann því af störfum hér. Mr. Morris mun fara héðan mjög bráðlega. í stað hans hefir Mr. Louis Goethe Dreyfus sendiherra í Iran verið skipaður sendiherra Bandaríkjanna hér, og mun hann væntanlegur hingað til lands innan skamms. ir 8. brezki herinn verið fluttur þangað. Rússar hafa tekið Sebastopol og þar með náð öllum Krim- skaganum. De Valera hefir beðið lægra hlut við atkvæðagreiðslu í þing- inu og hefir því beðist lausnar fyrir stjórn sína. Tuttugu Norðmenn hafa ný- léga verið dæmdir til dauða af þýzkum hernaðaryfirvöldum í Noregi. Flestum dómunum hefir verið fullnægt. Fjársöínun til aukinnar blaðaúigáíu: « Framsóknarilokkurinn þarf að auka bíaðakost sínn Flokksþíngíð hét á Framsóknarmenn um allt land að hregð- ast ve! víð þessarí nauðsyn Svo sem mörgum Framsóknarmönnum er kunnugt, hefir nú um nokkurt skeið staðið yfir fjársöfnun til útgáfusjóðs Framsóknarflokksins. Hefir söfnun þessi nú þegar horið mikinn árangur í einstökum byggðarlögum, en annarsstaðar er hún í framkvæmd um þessar mundir. Þykir tímabært að minnast á þetta mál nú í Tímanum og þá einkum í fram-' haldi af því, sem um það var fjallað á sjöunda flokksþingi Framsóknarmanna. Kröfur almenrfings til blaða fara stöðugt vaxandi. Til þess að stjórnmálablöð geti náð al- mennri útbreiðslu á viðskipta- j grundvelli (þ. e. fengið nægi-' lega marga borgandi áskrifend- { ur og þá um leið auglýsendur) verða þau, auk hinna venjulegu stjórnmálagreina, að geta flutt margs konar lestrarefni, bæði fyrir þá, sem áhuga hafa á stjórnmálum og einnig hina, sem minna hugsa um stjórn- málin hversdagslegslega, en vilja gjarna fylgjast með bók- menntum og listum, fræðileg- um efnum, erlendum viðburðum (öðrum en þeim, sem útvarpið segir frá), íþróttamálum, sér- áhugamálum kvenna o. s. frv. Margir hafa ánægju af læsileg- um framhaldssögum og ýmis konar skemmtiefni. Dagblöðin í Reykjavíkc t. d. eru farin að flytja sérstakar sögur handa börnum, og nýtur sú tilhögun vinsælda. Það eykur og áreiðan- lega vinsældir blaða, ef þau hafa ráð á að flytja mikið af myndum, einkum í sambandi við fréttir, og útliti blaðanna má heldur ekki gleyma, því að það hefir líka sín áhrif. í þéttbýlinu gera lesendur þá kröfu til blaða, að þau komi út daglega, eða a. m. k. sem oftast, og fer þeim stöðugt fjölgandi, sem gera þær kröfur. Við Faxa- flóa býr nú t. d. nærri helming- ur þjóðarinnar, og mikill meiri hluti þess fólks, getur daglega fengið þau blöð, sem gefin eru út í Reykjavík. Flugferðir og á- ætlunarferðir bifreiða á sumrin veita og mikla möguleika til tíðrar og jafnvel daglegrar út- breiðslu blaða á stórum og fjöl- mennum landssvæðum. Þeir, sem í fjarlægð búa frá helztu út- komustöðum blaða, munu hins vegar láta sér nægja vikublöð, en einnig þeim er fjölbreyttni í efnisvali og annað það, sem fyr er talið, áhugamál, ekki síð- ur en öðrum. Framsóknarmönnum mun það ljóst, að flokkurinn eða þeir, sem gefið hafa út blöð af hans hálfu, hafa aldrei átt þess kost að hafa blaðaútgáfuna svo fjölbreytta sem æskilegast hefði verið með tilliti til þess, sem sagt hefir verið hér að framan. Útgáfustarfsemi flokksins hefir alltaf haft litil fjárráð, svo að segja aðeins til hnífs og skeið- ar. En nú er fjárhagur alls al- mennings án efa rýmri en hann hefir nokkurn tíma áður verið. Því þykir ekki ósennilegt, a’ð nú mætti einhverju um þoka, sem ekki hefir reynst fært hingað til. Það verður ekki með vissu fullyrt hér, hverjar umbætur eða viðbætur í blaðaútgáfunni þykir fært að ráðast í. Mun það meðal annars fara mjög eftir því, hver árangur verður af fjársöfnuninni. Fjölbreytni efn- is í Tímanum og Degl hefir verið aukin talsvert á síðustu árum og fengið góðar undirtektir. Vérður þeirri viðleitni að sjálfsögðu haldið áfram. En margir myndu líka telja æskilegt, að blað væri gefið út daglega handa þeim hluta þjóðarinnar, sem dagblaðs getur notið, og flokksþingið á- lyktaði að stefna skyldi hiklaust að því marki. K Framsóknarmenn vita vel að mikið er undir því komið, að þeir geti flutt mál sitt fyrir allri þjóðinni, og að málstaður flokksins verði ekki affluttur og misskilinn vegna einhliða áróð- urs andstæðingí og vantandi skýringa. Það er ekki nóg að skrifa vel og röggsamlega um landsmái, ef meira eða minna af þjóðinni sér ekki þau blaða- skrif. En á þessu hefir alltaf verið nokkur misbrestur frá því að flokkurinn hóf starf sitt, af fyrnefndum ástæðum, nema helzt þann tíma, sem Nýja dag- blaðið kom út í Reykjavík. Var þó ekki hægt að kosta til þess blaðs, eins og þurft hefði. Ósennilegt ejj, að tekizt hefði að ala þá sundrung milli manna í bæjum og sveitum, sem orðið hefir og óneitanlega ber nokkuð á, ef Framsóknarflokkurinn hefði haft bolmagn til að halda úti fullnægjandi blaðaútgáfu fyrir þéttbýlið. í blöðum Framsóknarflokks- ins þurfa lesendur í dreifbýli og þéttbýli a£ geta átt kost á öllu því margbreytilega lestrarefni, sem þeir kunna að geta fengið í blöðum annara flokka, og þó betra og vandaðra. Þá hafa blöð flokksins aðstöðu til þess að kveðja sér hljóðs eirinig meðal þeirra, sem ekki eru flokksmenn, og þeirra, sem oft láta sig stjórn- mál litlu skipta, og það með þeim hætti, að_ einnig þessir ut- anflokkslesendur telji sér ávinn- ing í því að kaup blöðin og greiða skilvíslega og fullu verði, á sama hátt og menn kaupa læsilega og umtalaða bók án tillits til þess, hvort hún flytur einhverjar sér- stakar skoðanir r eða ekki. En þetta mál verður aldrei leyst nema með öflugum stuðningi flokksmanna hvarvetna um landið. Blaðaútgáfan þarf á stofnfé að halda til að ryðja sér braut á þennan hátt og þetta fé verður ekki fengið öðru vísi en með fjárframlögum þeirra, sem áhuga hafa fyrir málefna- baráttu flokksins. Eins og drepið er á í upp- hafi tók síðasta flokksþing mál þetta til meðferðar. Var þar um það fullkominn einhugur og á- hugi manna mikill fyrir fjár- söfnup þeirri, sem nú stendur yfir. Samþykkti flokksþingið einróma ályktun, þar sem skor- að var á flokksmenn um land allt að efla fjársöfnunina. ' Flokksstjórnin treystir því, að menn fylgi nú f jársöfnuninni fast eftir í hverri sveit, hverju kauptúni og kaupstað í land inu, og umfram allt að þátttak an verði almenn. Fjársöfnunarnefndin hefir fengið umboðsmann í hverju byggðarlagi, en jafnframt er skorað á forustumenn Fram- sóknarfélaganna og aðra áhuga- menn að vinna að söfnuninni, ásamt umboðsmönnum nefnd- arinnar. Guðmundur Tryggvason Lind argötu 9 A, Reykjavík, gefur all ar nánari upplýsingar um fjár- söfnunina og tekur við skila- grein og framlögum. Framsóknarmenn um land allt! Minnumst þess, hvaða þýð ingu umbótabarátta Framsókn- arflokksins hefir haft. Hugleið- um, hversu nú myndi ástatt, ef hennar hefði eigi notið við. Ger- um okkur jafnframt Ijóst, að ekkert vinnst og ekkert á að vinnast án fórna. Íslendíngar geta ekkí höríað Ný ummæli í sænskum og dönskum blöðum Fregnir hafa nú borizt um það, að hiri sameiginlega yfirlýsing ríkisstjórnarinnar og stjórnmálaflokkanna í'tilefni af boðskap konungs hafi verið birt öllum blöðum í Stokkhólmi, en engar rit- stjórnargreinar hafa enn verið birtar um hana. Þá hafa borizt hingað fyrstu ummæli danskra blaða um boð- skap konungs. Eru það ummæli úr ritstjórnargrein „Berlingske Tidende“, þar sem því er lýst yfir, að konungur hefði eigi sam- þykkt lýðveldisstofnunina undir núverandi kringumstæðum, þótt samþykki hans hefði verið leitað fyrirfram. Er þetta athyglisvert vegna þess, að ýmsir hafa talið orðsendingu konungs stafa af því, að samþykkis hans hafi eigi verið leitað í tæka tíð. blaðÍfföllum formsatriðum sambands- laganna og eigi hafi verið hsegt að afnema þau, nema set yrðu ný dönsk lög í staðinn. „Göteborgs Sjöfarts- och Handelstidning“ segir m. a.: „Kristján- konungur hefir nú látið til sín heyra og þar með roíið hina löngu þögn sína. Það er ekki sem konungur Danmerk ur, sem hann talar. í þvl landi (Framh. á 4. síðuj Loks hefir sænska „Göteborgs Sjöfarts- och Hand- elstidning", sem nýtur mikils á- lits utan Svíþjóðar og skelegg- ast allra sænskra blaða talað máli Bandamanna á stríðsár- unum, birt ritstjórnargrein um orðsendingu konungs. Er þar yfirleitt talað af skilningLum afstöðu íslendinga, en þó gætir þar þess þekkingarleysis, að ís- lendingar hafi ekki fullnægt Á víðavangi KOMMÚNISTAR VIÐUR- KENNA ÓLÖGMÆTI VERKFALLSINS. Það kemur nú berlega fram, að kommúnistar í stjórn Al- Dýðusambandsins eru orðnir smeykir við framkomu sína í vegavinnumálinu. Þeir finna, að verkfallið hvílir eigi á lagaleg- um grundvelli og hafa því reynt eftir megni að koma í veg fyrir úrskurð dómstólanna. Fyrst eftir að kunnugt varð um þá afstöðu ríkisstjórnarinn- ar að vísa málinu til Félags- dóms, ræddi blað kommúnista mjög um nauðsyn þess, að sett yrði sáttanefnd, er reyndi að ná samkomulagi um málið. Slíkt kom vitanlega eigi til greina fyrr en úrskurður Félagsdóms væri fallinn um lögmæti verk- fallsins. Þegar málið var tekið fyrir í Félagsdómi, reyndi Alþýðusam- bandsstjórnin að fá sem lengst- an frest í málinu eða fram yfir Dann tíma (16. maí), sem hún hafði auglýst verkfall við strandferðaskipin og síldarverk- smiðjurnar, ef eigi væri þá búið að fullnægja kröfum hennar í vegavinnumálinu. Slíkur frestur fékkst vitanlega ekki, þar sem brýn nauðsyn er á skjótum dómsúrskurði um málið. Þegar þetta hvort tveggja reyndist vonlaust, sneri Alþýðu- sambandsstjórnin sér til ríkis- stjórnarinnar með nýja verk- fallstilkynningu.Þar segir svo,að verði verkfallið dæmt ólöglégt, iá verði fyrirskipað nýtt verkfall frá 19. þ. m. og hafi Alþýðusam- bandsstjórnin aflað sér til þess oeirrar heimildar verklýðsfélag- anna, er skýlaust fullnægi vinnulöggjöfinni. Eigi afléttir Alþýðusambandsstjórnin samt verkfallinu nú, svo að það held- ur.áfram eftir sem áður. Sést bezt á þessu, að Alþýðu- sambandsstjórnin telur líkleg- ast, að núverandi verkfall henn- ar verði dæmt ólöglegt. Hún virðist sjá, að rétturinn sé ekki hennar megin, en treystir enn á, að hún hafi valdið. TRÚNAÐARBROT PÉTURS. Pétur Magnússon bankastjóri hélt næsta kynlega ræðu í rík- isútvarpið síðastl. þriðjudags- kvöld. Ræðan átti að vera hlut- laust yfirlit um banka- og fjár- hagsmál, flutt á vegum Lands- bankans, en var að miklu leyti sleggjudómar um ýms hápólit- ísk mál, t. d. eignaaukaskattinn og önnur skattamál. Telja má víst, að Pétur hafi með þessu misnotað sér bæði þann trúnað, sem Landsbankinn og útvarps- ráðið hafa sýnt honum, og er vissulega illt til þess að vita, begar háttsettir embættismenn gera sig seka um þvílíka óráð- vendni. Verður að treysta því, að útvarpsráðið veiti Pétri þá áminningu og setji jafnframt þær varúðarráðstafanir, að eigi verði endurtekning á sliku trúnaðarbroti. FRAMLEIÐSLUTÆKI OG PENIN G AEIGN. Ræða Péturs var og að öðru leyti til áminningar. Hann sagði, að óhætt væri fyrir menn, sem ættu skattsvikna peninga að leggja þá í bankana, því að skattayfirvöldunum væri litlar upplýsingar veittar um inneign- ir» Bankarnir virðast þannig hjálparstofnanir fyrir skattsvik. Er þetta eitt dæmi um þann mikla misrétt, sem er á þjóð- félagslegum aðbúnaði framleið- enda og peningamanna. Bónd- inn og útgerðarmennirnir verða að greiða skatt af eignum sin- um, en peningamennirnir geta sloppið. Eigi ekki að fæla menn frá því að eiga framleiðslutæki, má ekki láta peningaeign njóta betri skattakjara. Það verður að gera öflugri ráðstafanir til að láta skattalögin ná jafnt til þeirra og framleiðslutækjanna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.