Tíminn - 01.09.1944, Blaðsíða 4
332
TÍMIM, föstwdaginn 1. aept. 1944
83. blatt
Erleot yflrlit '
(Framh. sif 1. síöu)
sökum hergagna- og skotfæra-
leysis, en frelsisherinn treysti
því, að Rússar myndu sjá þeim
fyrir vopnum. Én Rússar gerðu
ekkert þeim til hjálpar. Þjóð-
verjar hófu því öfluga gagnsókn
gegn frelsishernum og voru
gerðar hinar stórfelldustu loft-
árásir á bækistöðvar þeirra.
Jafnframt var haldið uppi öfl-
ugri stórskotahríð gegn þeim.
Eyðileggingin af völdum þessara
árása er sögð enn meiri en
haustið 1Ú39. Frelsisherinn varð-
ist mjög vasklega, og vænti sér
í lengstu lög hjálpar Rússa.
Þeir báðu Rússa að veita sér
vernd orustuflugvéla gegn loft-
árásum Þjóðverja *og eins að
senda sér skotfæri. Rússar dauf-
heyrðust við öllum þessum
beiðnum. Frelsisherinn leitaði
þá til Breta og sendu þeir flug-
vélar með' skotfæri og hergögn
til þeirra. Sú aðstoð hefir gert
frelsishernum kleift að halda
enn velli í stórum hluta borgar-
innar, þó að hann hafi orðið að
láta af hendi þýðingarmikla
hluta borgarinnar, sem hann
var búinn að ná á vald sitt. Sagt
er, að Rússar hafi neitað brezk-
um flugmönnum, er fluttu skot-
færin, um lendingu í Rússlandi,
og hefir það gert Bretum stórum
örðugra fyrir um þessa flutn-
inga.
Afstaða Rússa til frelsisbar-
áttu Varsjárhersfhs þykir næsta
furðuleg. Talið er, að þeim hafi
verið auðvelt að veita frelsis-
hernum mjög virka aðstoð og
myndi líklega hafa getað tekið
borgina, ef þeir hefðu brugðið
strax við áður en Þjóðverjar
höfðu náð að skipuleggja gagn-
sóknina gegn frelsishernum. Af-
staða Rússa er einkum skýrð
með því, að frelsisherinn 1 Var-
sjá sé í sambandi við pólsku
stjórnina í London, og Rússar
telji það ekki öhagstætt fyrir
sig í framtíðinni, að Þjóðverjar
lami sem mest þann heraflja, er
hún gæti stuðst við. í ýmsum
rússneskum blöðum hefir meira
að segja verið deilt á Pólverja
fyrir að hefja þessa uppreisn,
sem hefir þó mjög bætt fyrir
Rússum.
Hörmungar þær, sem hafa
gengið yfir Varsjábúa seinasta
mánuðinn, eru sagðar hryggi-
legri en flest það, sem gerzt
hefir í þessari styrjöld. Þjóð-
verjar eru sagðir hafa beitt
meiri grimmd en dæmi s£u til
áður. Hafi t. d. bundið pólskar
konur framan á skriðdrekana,
er þeir hafa notað til sóknar
gegn frelsishernum. Mörg önnur
hliðstæð dæmi eru nefnd um
harðýðgi þeirra. Allir hermenn
úr frelsishernum, sem þeir hafa
náð til, hafa verið drepnir taf-
arlaust. Stór borgarhverfi háfa
brunnið til ösku og sagt er að
nær allan seinasta mánuð hafi
einhversstaðar verið uppi mikill
eldur í Varsjá. Ber flestum sam-
an um, £ð oft hafi Pólverjar
sýnt hetjuskap en aldrei þvílík-
an og í orustunni um Varsjá nú.
Uppeldisirœðsla
(Framh. af 3. síðu)
beininga, hver í sínu byggðar-
lagi.
Fjöldi ungra foreldra vill
fræðast um þessi mál, en þó
fræðslu' er bara hvergi hægt að
fá, eins og nú er háttað. Upp-
eldisfræði og barnasálarfræði
eiga að vera höfuðnámsgreinar,
sem barnakennarar nema, auk
kennslufræði og hins almenna
náms. Slík þekking á svo að
breiðast út frá skólunum og upp-
eldismálaráðunautunum til
heimilanna, og ef til vill er hag-
nýt foreldramenntun nú meir
aðkallandi en nokkur önnur
fræðigrein skólanna.
Eftir tveimur höfuðvegum
þarf hið unga íslenzka lýðveldi
að sækja fram; annars vegar á
sviði verklegra framkvæmda, er
skapi öllum landsins börnum
skilyrði til að geta framfleytt sér
og sínum, en hins vegar á sviði
hinna andlegu mála, í vísindum
og listum og þá ekki sízt listinni
að lifa og kenna þeim ungu sém
fyrst þann mikla og göfuga
hvítagaldur.
GÆFAN
fylglr trúlofunarhringunum
frá
SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4.
Sent mót póstkröfu.
Sendlð nákvæmt mál
Fylgízt með
Allir, sem fylgjast vilja með
almennum málum, verða að lesa
Tímann.
Gerist áskrifendur, séuð þið
það ekki ennþá. Simi 2323.
Hreindýrin
(Framh. af 2. síöu) ,
dýrum hefir fjölgað undanfarin
ár. Veldur þar sjálfsagt mestu,,
að síðustu vetur hafa verið til-
tölulega mildir. Er álitið, að
þau séu nú orðin full fimm
hundruð að tölu.
Þar eð gömlu hreintarfarnir
eru taldir stofninum til óþurft-
ar, hefir hlutaðeigandi ráðu-
neyti lagt svo fyrir við eftirlits-
manninn, að hann skjóti eitt-
hvað af þeim á hausti komanda.
Anglýsið i Tímanum!
— TJARNARBlÓ -.—4
SÝKIV EÐA SEKUR
(ALIBI)
Lögreglumynd eftir frægu
frönsku sakamáli.
w— -• « , . - -« , ,<t-
Margaret Lockwood,
Hugh Sinclair,
James Mason, -
Raymond Lowell.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
, )»*wi -i.
Asbestsementsplötur
á veggi.
A. Einarsson & Funk
Síini 3982.
fitnlkur
vantar á Kleppsspítalaiui.
Upplýsingar í síma 2319.
Samband íslenzkra barnakennara
Samband íslenzkra barnakennara í Reykjavík hvetur
alla féiagsmenn sína, og aðra kennara innan sam-
taka S. f. B., til þess að mæta á fundi B. S. R. B. í
Listamannaskálanum, föstudaginn 1. sept. kl. 8,30.
Umræðuefni: Launamálið.
STJÓRNIN.
/
Afengisverzlun ríkisins
-- lyijadeíld -
vantar tvær konur til ræstins$ar og flösku-
Dráttarvextir
bvotta.
Tekið verður á móti skriflegm umsóknum
til þriðjudagskvölds 5. sept.
Dráttarvextir failu á tekjju- oc/ elf/no-
skatt ársins 1944, hafi </jö!d þessi ekki
veriS f/reidd að fullu í síðasta lafíi
föstudafíinn 8. sept. n. k.
Á það, sem þá verður ófíreitt, reikn-
ast dráttarvextir frá fíjjalddafíu, sem
var 15. jjání s. I.
Refíkjjavík, 15. áfíást 1944.
Tollstjóraskrifstofan.
llafnarstræti 5.
Sveinsprói
Upplýsinga um aldur og' fyrri störf sé getið
í umsóknunum.
Ellilaun og ororkubætur
Umsóknum um ellilaun og örorkubætur fyrir árið
1945 skal skilað fyrir lok septembermánaðar.
Umsóknareyðublöð verða afhent á Hótel Heklu 1. hæð
alla virka da’ga kl. 9—12 og 2—5 nema laugardaga
eingöngu kl. 9—12. (Gengið inn frá Lækjartorgi).
Umsækjendur geta fengið aðstoð við að fylla út eyðu-
blöðin á sama stað og tíma. Þeir eru sérstaklega
beðnir að vera við því búnir að gefa upplýsingar um
eignir sínar og tekjur frá 1. október 1943 og um
framfærsluskylda venzlamenn sína (börn, kjörbörn,
verða haldin hér í Reykjavík fyrri hluta september-
mánaðar n. k. Umsóknir um próftöku skulu send-
ar formanni prófnefndar í viðkomandi iðngrein
fyrir 7. september n. k.
Lötjrefílustjórinn í ttefíkfavík,
30. áfíúst 1944.
Kartöílu-upptökuvél
góð gerð or ónotuð er til sölu, eða í skiptum
fyrir nýrri sláttuvél.
Lysthafendur sendi nafu o/S heimilisfang í
pósti í Pósthólf 102, Reykjfavík, fyrir 10.
september.
foreldra, maka).
Þeir, sem sækja um örorkubætur fyrir árið 1945 og
hafa ekki notið þeirra árið 1944, verða að fá örorku-
vottorð hjá trúnaðariækni Tryggingarstofnunar rikis-
ins. Þeir öryrkjar, sem notið hafa örorkubóta á þessu
ári, þurfa ekki að fá nýtt örorkuvottorð, nema þeir
fái sérstaka tilkynningu um það. Trúnaðarlæknirinn
verður fyrst um sinn til viðtals í lækningastofu sinni,
Vesturgötu 3, alla virka daga nema laugardaga.
Ef umsækjendur senda ekki umsóknir sínar á rétt-
um tíma mega þeir búast við því, að þær verði ekki
teknar til greina.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
ENDURFUNDIR TEXAS.
(H. M. Pulham, Esq.) Óvenju spennandi og æv-
HEDY LAMAR intýrarík stórmynd. Aðal-
ROBERT YOUNG hlutverk:
RUTH HUSSEY.
Sýnd kl. 6V, og 9. CLAIRE TREVOR,
Hermannaglettur GLENN FORD,
(Adventuras of a Rookie) WILLIAM HOLDEN.
með skopleikurunum Bönnuð börnum yngri en
WALLY BROWN Og 14 ára.
ALAN CARNEY.
Sýnd kl. 5. > • Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Happdr ætti
Háskóla Islands
Happdrættið óskar eftir umboðsmanni frá miðjum
september til þess að taka við umboði því, sem nú
er á Klapparstíg 17, en áður var í Alþýðuhúsinu.
Umsóknir sendist skrifstofu happdrættisins í Von-
arstræti 4 fyrir 9. september, og gefur skrifstofan
nánari upplýsingar. Ætlast er til, að umboðið verði
í sama bæjarhverfi sem hingað til.
Tilboð
Þeir, sem kynnu að vilja gera tilboð í útihús við
Menntaskólann til niðurrifs, sendi tilboð til teikni-
stofu húsameistara ríkisins fyrir 1. sept. næstkom-
andi.
Nánari upplýsingar í teiknistofunni.
Réttur áskilinn til að taka einu tilboðanna eða hafna
þeim öllum.
Húsumeistari ríkisins.
Tílkynníng
Að gefnn tilefni tilkynnist hérmeð, að
það er með öllu óheimilt að nota
tunnur vorar fyrir vörur frá öðrum
en oss.
Eimfremur er bannað að nota bensín-
dælur vorar og geyma til afgreiðslu
á bensíni frá öðrum en oss.
H.f. „Shell“ á tslandi.
Olíuverzlun tslands h.f.
Hið íslenzka steinolíuhlutufélufí.
Bandalafí starfsmanna ríkis oc/ bœjja.
Almennur iundur
opinberra starfsmanna verður haldinn í Listamanna-
skálanum föstudaginn 1. september n. k. kl. 20,30.
UMRÆÐUEFNI:
Ný launalög og
lög um verkfall opinberra starfsmanna.
Stuttar ræður. Ræðumenn frá flestum Bandalags-
félögum í Reykjavík.
Starfsmenn rikis og bæja! Munið ykkar samtök.
M Æ T I Ð.
Alþingismönhum er hér með boðið á fundinn.
Stjjórn B, S. R. B.
TÍMINN er viðlesnaitn anglýsingiihlnttlð!