Tíminn - 02.03.1945, Blaðsíða 8

Tíminn - 02.03.1945, Blaðsíða 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzha tímaritið um þjóðfélagsmál. 8 REYKJAVÍK E*eir, sem vilja kynna sér Jtjjóðfélagsmál, inn- Iend og útlend, þurfa að lesa DagsJkrá. 2. MARZ 1945 17. hlað / MNÁLL TiSISil* 26. febrúar, mánudagur: Sóknin austur Ruhr. Vesturvígstöðvarnar: Níunda hernum varð vel ágengt austan Ruhrárinnar. Hann sótti fram í tveimur fylkingum, stefnir önnur til Kölnar, en hin til Miinchen-Gladbaeh. Þriðji her- inn vann á á Prumvígstöðvun- um. Kanadamenn og Bretar nálguðust Calcar. Miklar loft- árásir voru gerðar á Berlín. Austurvígstöðvarnar: Harðir götubardagar voru í Breslau. Þjóðverjar töldu sig hafa sótt fram til sjávar frá Königsberg og einnig hefðu þeir hrundið Rússum aftur yfir Hronána í Ungverjalandi. Rúmenía: Miklar óeirðir geisa enn í Rúmeníu. Stjórnin segir, að kommúnistar hafi stofnað til þeirra, en kommúnistar kenna hernum um þær. 27. febrúar, þriðjudagur: Barist í Calcar. Vesturvígstöðvarnar: Sókn Bandamanna austan Ruhr gekk vel og áttu þeir eftir 5 km. ó- farna til Munchen-Gladbach og 16 km. til Köln. Kanadamenn hafa brotizt inn í Calcar. Þriðji ameríski herinn hefir alveg hrakið Þjóðverja austur yfir Prumána og er víða kominn að Ertz-ánni. Miklar loftárásir á Leipzig og Augsburg. Austurvígstöðvarnar: Her Rokossovskys rauf varnir Þjóð- verjaí í norðvesturhluta Pom- mern og hefir tekið þar nokkr- ar borgir. Annars staðar var tíðindalítið. Bretland: í brezka þinginu hófust þriggja daga umræður um Krímarfundinn. Churchill hóf umræðurnar og óskaði eftir að þingið lýsti trausti á stefnu stjórnarinnar í utanríkismálun- um. 28. febrúar, miðvikudagur: Barlst í Mimehen- Gladbach. Vesturvígstöðvarnar: Banda- menn brutust inn í Múnchen- Gladbach og hófust þar harðir götubardagar. Þeir sóttú enn fram til Kölnar og áttu eftir 10 km. ófarna þangað. Þriðji ame- ríski herinn nálgaðist Trier úr norðri og suðri. Á vígstöðvum Kanadamanna urðu litlar breyt- ingar, en þar voru orustur harðastar. Þó hafa Kanada- menn alveg náð Calcar. Austurvígstöðvarnar: Her Rokossovskys vann á í Pom- mern og tók borgina Neustettin. Bretland: Felld var tillaga í brezka þinginu með 396:25 at- kvæðum, þar sem lýst var yfir því, að stjórnin hefði „því mið- ur látið annari þjóð í té lands- svæði bandaþjóðar Breta“. Það réði miklu um atkvæðagreiðsl- una, að stjórnin hefði sagt af sér, ef tillagan hefði verið sam- þykkt. Rúmenía: Stjórn Radescu hef- ir sagt af sér vegna óeirða kom- múnista. — Vopnahlésnefnd Bandamanna annast stjórnina eins og sakir standa. FjársöSnuii handa bág* stöddu Útgerdin á Vesftfjörðum (Framhald a) 1. síðu) vegur svipaður, oftast um 15 vél- bátar frá 4—12 smálesta. Fisk- veiðar eru óvíða jafn kappsam- lega stundaðar að vetrinum og í Bolungavík. Flestir eru bát- arnir þar sameign formanns og annars aðalútgerðarmannsins (Einars Guðfinnssonar eða Bjarna Eiríkssonar), en ekki eign fleiri, né hlutafélaga, eins og víða tiðkast. — Afkoma manna er mjög góð í Bolunga- vík nú, þótt eigi sé um stórtekj- ur almennings að ræða. Úr Hnífsdal ganga fáeinir 12 —17 lesta bátar. Hefir verið efnt til_bryggj ugerðar innan við þorpið, reist fiskhús, og enn- fremur hraðfrystihús, en nokk- uð vantar á að bryggjan sé not- hæf stærri skipum. Kaupfélag var. stofnað í Hnífsdal fyrir nokkrum árum, og hefir Elías Ingimarsson verið framkvæmda- stjóri þess og jafnframt hrað- frystihússins. Mun kaupfélagið nú í þann veginn að ganga sem deild í Kaupfélag ísfirðinga. ísafjarðar- kaupstaður. í ísafjarðarkaupstað er nú all-mikil útgerð og atvinna all- góð undanfarið. Fiskflutninga- skipin hafa ávalt legið við bryggju á ísfirði, og hefir skap- azt mikil atvinna við móttöku fisksins í skipin. ísafjarðarbát- ar hafa jafnan lagt afla sinn í ísfisksskip, en oft lítið í hrað- frystihúsin. Þau eru tvö starf- andi á ísafirði. Auk þess hefir meginhluti fisksins jafnan verið fluttur úr Bolungavík; stundum einnig frá Súgandafirði;svo hafa og Hnífsdalsbátar og stundum Álftfirðingar látið afla 'sinn í ■ fiskútflutningaskipin. Einnig hefir á vorin verið fluttur smá- bátaafli úr Grunnavík og Aðal- vik í skipin á ísafirði. Aðalútgerðarfélögn á ísafirði eru Njörður, er á 6, 14—17 smál. báta. Þetta félag er á vegum Kaupfélags ísfirðinga, sem er þar aðalhluthafi. Þá er Muninn með 3, 17—24 lesta báta. Sam- vinnufélag ísfirðinga á 6 vélskip hvert um 40 lesta. Hlutafélagið Björgvin á 2 vélskip um 60 lesta. er áður átti hlutafélagið Hug- inn, og auk þess tvö fiskút- j flutningaskip. Nú hafa verið ! gerðar pantanir á Svíþjóðarbát- um, og mun Njarðarfélagið fá strax í sumar 1 vélskip 80 lesta, ! Samvinnufélagið annað af sömu jtegund og fleiri síðar. Félag á ísafirði mun og hafa gert pönt- un á einum slíkum bát. | Þorskafli hefir yfirleitt verið góður árið sem leið, þótt nokk- uð hafi hann verið misjafn. Miðdjúpið. Það eru tvö hraðfrystihús í Álftafirði.Lét Kaupfélag ísfirð- inga reisa annað þeirra á Lang- eyri, innan við þorpið í Súðavík, en hitt er eign hlutafélagsins Frosta í Súðavík. Langeyri er mjög álitleg útgerðarstöð, stór, slétt eyri, mjög aðdjúpt. Þar er gömul hafskipabryggja. Var þar upphaflega hvalveiðastöð, hin fyrsta á Vestfjörðum, og síðar síldarverkunarstöð. Annars er bátaútvegur nú mjög tekinn að þverra í Mið- Djúpi. Jökulfirðir. Aftur hefir risið upp vísir að útgerðarplássi í Grunnavík undanfarin ár, og komið þar upp bryggja og aðgerðarpall er veriö að endurnýja. Aðalvíkingar styðjast ein- \ göngu við smábátaútgerð (ára- ! hlutur) að vorinu, samhliða landbúskap. Þar hefir lengstum verið setuliðsvinna ekki lítil. Gjögur og Hólmavík. Eitt sinn var Gjögur í Strandasýslu mikil verstöð, og fram á síðustu ár var þar tals- verður smábátaútvegur, en má nú heita horfinn með öllu. Aft- ur á móti eru fiskveiðar stund- aðar all-kappsamlega í Stein- grímsfirði, mikinn hluta árs. Afli var þar þó fremur tregur yfirleitt síðastl. ár. Hraðfrysti- hús eru þar bæði á Drangsnesi og í Hólmavík, hið síðarnefnda eign kaupfélagsins þar. Skil- yrði til síldarverkunar virðast mjög góð í Hólmavík og má gera ráð fyrir, að þar verði um mikla síldarsöltun að ræða, er úr ræt- ist með síldarsölu. Mætti og þá hugsa sér að upp rísi síldar- bræðsluverksmiðja í Hólmavík. Um þessar mundir er að hefjast söfnun til hjálpar nauðstöddu fólki í Normandi. Nokkrar gjafir hafa þegar borizt og búið er að senda fyrstu fatasendinguna af stað til Frakklands. Flugher Bandaríkjanna hefir lofað að flytja eins mikið og unnt er af sendingunum loftleiðis beint til Frakklands. Mynduð hefir verið sjö manna nefnd til þess að standa fyrir framkvæmdum söfnunarinnar og ' er Pétur Þ. J. Gunnarsson stórkaupmaður formaður nefnd- arinnar, en Eiríkur Sigurbergs- son viðskiptafræðingur ritari og gjaldkeri. í Normandi hafa orðið ákaf- lega miklar hörmungar vegna styrjaldaraðgerða. Segir svo um þetta i ávarpi nefndarinnar: „Mörg hundruð þúsund manns urðu heimilislaus eftir látlausar loftárásir margra mánaða. Hrundar borgir og limlest fólk, sjúk og klæðlaus börn, er mynd sú, er blasir við augum ferða- mannsins, er heimsækir þessar slóðir. Allt líf virðist slokknað, en eftir storma og stórkostleik hinna hrikalegu átaka er nýtt líf farið að bærast á þessum fornu slóðum norrænna víkinga. Endurreisnarstarf er hafið, flóttamenn streyma aftur til sinna fornu heimkynna, þótt rústir einar bíði þeirra. í öllu í í Normandi Normandí fórust eðg, slösuðust yfir 400.000 manns í átökum síð- asta sumars. Það fólk, sem eftir lifir, berst við hungur, sjúk- dóma, klæðleysi. Hjálparstarf- semi er víða hafin, matvæli og fatnaður berst nú til þessara héraða úr mörgum áttum, en í mörg horn er að líta. Eymdin blasir alls staðar við og skortur er á öllu.“ Nefndin biður úm hvers kon- ar fatnað, er geti orðið til skjóls þurfandi fólki á öllum aldri. All- ar gjafir eru vel þegnar. Fyrir peningagjafir verður keyptur fatnaður og sendur til Auranch- es-borgar í Normandí, sem var valin í sambandi við frönsku stjórnina. Gefin hafa verið út spjöld með fánum Frakklands og ís- lands. Ætlast er til að kaup- andi hvers spjalds riti nafn sitt á það, en auk þess er á spjald- inu kveðja á íslenzku og frönsku. Verð spjaldanna er mönnum í sjálfsvald sett, en lægsta gjald er 10 kr. Fyrir andvirði hvers spjaíds verður svo keyptur fatn- aður og það síðan látið fylgja pakkanum til hins franska við- takanda. Öllum gjöfum má koma í skrifstofu áðurnefnds formanns í Mjóstræti 6 ^eða í verzlunina „París“, Hafnarstræti 14. Auk þess hafa öll dagblöð bæjarins lofað að veita peningagjöfum móttöku. ■GAMLA BÍÓ. Aigr. „nýsköpunarmálanna" (Framhald af 1. síðu) samþykktar allmargar tillögur, en eigi þóknaðist þó stjórnarlið- inu að samþykkja þá tillögu Framsóknarmanna, að farkenn- urum skyldu greidd sömu laun, án tillits til kennaraprófs. Verða því tvennskonar farkennara- laun í landinu og er það í góðu samræmi við þá stefnu stjórn- arinnar að greiða sömu laun fyrir sömu vinnu. Atkvæðagreiðslan um sjálft frumvarpið fór þannig, að það var samþykkt með 17:14 atkv. Móti frv. greiddu atkvæði Fram- sóknarmenn allir, fimmmenn- ingarnir (nema Gísli Svéinsson, er var veikur), Jón Pálmason og Sigurður Bjarnason. Er að- staða þeirra Jóns og Sigurðar býsna kynleg, þar sem þeir'hafa lýst sig fylgjandi stjórnarsátt- málanum, en setning nýrra launalaga með þeim hætti, er þau eru nú afgreidd, eru þar eitt aðalatriðið. Hefir þeim bersýni- lega verið veitt undanþága til að geta þvegið hendur sínar frammi fyrir bændum og verka- mönnum kauptúnanna. Einn þingmaður, Jakob Möller, sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Má vel af öllu þessu marka, að í- haldsmenn óttast orðið verk sín í launalagamálinu. Skattfrelsi Eimskips. Frv. um skattfrelsi Eimskipa- félagsins var til 2. umræðu í efri deild í gær. Bernharð Stefáns- son flutti þar sömu tillögu og Skúli Guðmundsson í neðri deild og var hún felld með at- kvæðum stjórnarsinna gegn atkvæðum Framsóknarmanna. Þau furðulegu tíðindi gerðust jafnframt, að kommúnistar hjálpuðu ihaldinu til að fella niður aðalskilyrðið fyrir skatt- frelsinu, er sett hafði verið inn af Alþýðuflokksmönnum í neðri deild, þ. e. þátttöku félagsins í strandferðakostnaði. Alþýðu- flokksmenn og Framsóknar- menn stóðu sameinaðir gegn þessari breytingu. Einnig hjálp- uðu kommúnis^ar íhaldinu til að fella þá tillögu frá Haraldi Guð- mundssyni, að skattfrelsið skyldi aðeins gilda, í eitt ár. Mun á- reiðanlega margan undra þessi nýja tegund af baráttu kom- múnista gegn auðvaldi og auð- hringum. Íslendíngar vilja ekki . . . (Framhald af 1. síðu) inga vekur það líka undrun, ef stríðsyfirlýsing á seinustu stundu frá þjóðum í Vesturálfu, sem ekkert hafa á sig lagt né munu leggja, verður talinn gild- ari aðgöngumiði að alþjóðaráð- stefnum í framtíðinni en sú á- hætta og ábyrgð, sem íslend- ingar tókust á hendur með her- verndarsáttmálanum. fslcnding'ar treysta á skilmng Bandamaima. íslendingar hafa gert og gera enn ráð fyrir, að þær þjóðir, sem mest samskipti hafa haft við þá undanfarið, skilji sér- stöðu þeirra. Þetta eru þær þjóð- ir, ásamt Norðurlöndum, er ís- lendingar óska fyrst og fremst að hafa samstarf við. Lega landsins, verzlunarviðskipti og síðast en ekki sízt menning okk ar og hugsunarháttur — og menning þeirra, gerir þessa samvinnu eðlilega og sjálfsagða. Við íslendingar trúum því ekki, að við höfum svo hrapal lega misskilið hugsunarhátt hinna engilsaxnesku þjóða og tilfinningu þeirra fyrir því, sem er drengilegt og sæmilegt, að þær kjósi okkur því aðeins til samstarfs, að við greiðum að- gangseyrinn að fyrsta mótinu með því að fremja það, sem að okkar áliti er hvorttveggja í senn, lítilmannlegt og broslegt — og við álítum að hljóti einnig að vera það í þeirra augum. Við fáum ekki skilið, að styrj- aldaryfirlýsing, eins og nú er komið, sé öruggt né eðlilegt gæðamat á það hvort þjóðirnar eru hæfar til að taka þátt í forustusamstarfi þjóðanna. Við íslendingar viljum sam- starf við aðrar þjóðir. Viðftelj- um okkur það mikla nauðsyn. En við viljum líka halda sæmd okkar og sjálfsvirðingu. Við teljum okkur hafa hrein- an skjöld í samskiptum okkar við hinar sameinuðu þjóðir. Við viljum koma með hann óflekk- aðan til áframhaldandi sam- starfs. Fyrir litla þjóð er þáð lífsnauðsyn. í LEMIÞJÓN- USTU NAZISTA (Nazi agent). CONRAD VEIDT, ANN AYARS. Sýnd kl. 7 og 9. Bönnuð yngri en 16 ára. FÁLKINN LEYSIR GÁTUNA. (Falcon Out West) TOM CONWAY, BARBARA HALE. Sýnd kl. 5. Bönnuð yngri en 12 ára. i-NÝJA BÍÓ. ÆVISAGA WILLIAMS PITT (The Young Mr. Pitt) Aðalhlutverk: ROBERT DONAT, PHYLLIS CALVERT. Sýnt kl. 5, 7 og 9. VÉR F-JALLAMENN! Skauta- og skíðamyndin fræga, með •Abbott og Costello. Sýnd kl. 5 og 7. SHIP/IUTCERÐ crr.f rn:n Es|a| Tekið á móti flutningi til Ak- ureyrar og Siglufjarðar í dag og flutningi til ísafjarðar á laugardaginn, eftir því sem rúm leyfir. Pantaðir farseðlar ósk- ast sóttir fyrir helgina. Tekið - á móti flutningi til Vestmannaeyja árdegis í dag. TJARNARBÍÓ —:• SAGAN AF WASSEL L7EKAI (The Story of Dr. Wassell) Cary Cooper, Laraine Day. Leikstjóri: Cecil B. De Mille. Sýnd kl. 6,20 og 9. Bönnuð fyrir börn. STÚKUBRÆÐUR. (The Good Fellows) CECIL KELLAWY, HELEN WALKáR, JAMES BROWN. Sýnd kl. 5. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR ÁKhéll Sjónleikur í 5 þáttum eftir J. L. IIEIBERG. Sýniag snnnudagskvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 á morgun (laugardag). Ú R B Æ N U M Hitaveitusamsæti. í fyrrakvöld efndi bæjarstjörn Rvík- ur til samsætis að Hótel Borg í tilefni þess, að nú er lokið meginvinnunni við hitaveituna. Ræður fluttu: Bjarni Benediktsson, borgarstjóri, Guðm. Ás- björnsson forseti bæjarstjórnar, Kaj Langvad verkfræðingur, Helgi Sigurðs- son forstjóri hitaveitunnar og Sveinn Björnsson förseti íslands. Samkvæmið fór hið bezta fram. Maður deyr af völdum bifreiðarslyss. Það slys vildi til fyrra fimmtudag, að Oddur Snorrason, ættfræðingur frá Grænhóli, Ölvesi, varð fyrir áætlunar- bifreiðinni G 201, á Suðurlandsbraut. Var hann þegar fluttur í Landspítal- ann en lést þar af völdum slyssins síðastl. sunnudag. Oddur var 58 ára gamall. Vegirnir austur eru ennþá með öllu ófærir bifreið- um, en tekizt hefir að koma á sleða- flutningum austan yfir Hellisheiði að Skíðaskálanum i Hveradölum, sem er um 9 km. löng leið. Ganga þeir flutn- ingar vel. Tvær beltisdráttarvélar eru notaðar til að draga sleðana og dreg- ur hver 5 smál. Þessum flutningum mun haldið áfram meðan þörf kref- ur. . , För Guðmundar Jónssonar söngvará til framhaldsnáms í Ameríku, hefir nú orðið að fresta vegna þess, að kennari hans þar vestra, Lazor Sam- oiloff, er nýlátinn. Guðmundur getur því ekki farið til Ameríku fyrr en hann hefir tryggt sér annan kennara þar. Söngmaðurinn hefir í hyggju að fara söngför um landið í vor. Skíðamót Reykjavíkur hefst næetkomandi sunnudag í Jósefsdal. Keppendur verða 116 frá 5 Islendiogar komn- ír frá Svíþjóð Nýlega eru komnir hingað til landsins fimm íslendingar, sem undanfarið hafa dvalið við nám í Svíþjóð. Eru það þeir Sigurður Jó- hannsson verkfræðingur,' dr. Sigurður Þórarinsson, Þorbjörn Sigurgeirsson magister í eðlis- fræði, Ásgeir Einarsson og Re- gina Methúsalemsdóttir. 8 félögum. Glímufélagið Armann stendur fyrir mótinu. Mjólkurleysi hefir verið tilfinnanlegt í Reykja- vík undanfarna daga. Orsökin er mik- ill snjór og ófærð á vegunum til Reykjavíkur. Nokkuð af mjólk hefir verið flutt á sjó frá Borgarnesi og Akaranesi, auk þess hefir tekizt að koma allmiklu mjólkurmagni austan yfir fjall á sleðum. í gær var mjólkur- magnið með mesta móti, eða 15—20 þúsund lítrar. Verkakvennaf élagið Framsókn 1 hefir nýlega haldið aðalfund sinn. Félagskonur eru nú 650. Stjórn félags- ins var öll endurkosin, en hana skipa: Jóhanna Egilsdóttir formaður, Jóna , Guðjónsdóttir varaform., Sigríður : Hannesdóttir ritari, Anna Guðmunds- dóttir féhirðir og Guðbjörg Brynjólfs- dóttir fjármálaritari. í varastjórn eru: Hólmfríður Ingjaldsdóttir og Pálína Þorfinnsdóttfr og endurskoðendur Bergþóra Gúðmundsdóttir og Helga Pálsdóttir. Leiðrétting. í stjórnarstökunum á 7. síðu blaðs- ins í dag hafa orðið tvær prentvillur. Úr stökunni „Forustu-Flekkur" hefir seinasta vísuorðið fallið niður en það er svona: „um aðra Flekkur ekki spyr“. Úr seinustu stökunni hafa fallið niður seinustu orðin sem eiga að vera: „ein- hvern veginn." Þetta eru lesendur vinsamlega beðnir að 'athuga. Verkfalli strætisvagnastjóra, sem átti að hefjast í gær, var aflýst. Vagnstjórarnir féllust á tillögu sátta- semjara á fundi, er þeir héldu að- faranótt síðastl. miðvikudags. Bifreiðarslys varð á Laugarnesvegi síðastl. mið- vikudag. Maður að nafni Ólafur Jó- hannsson, til heimilis við Skúlagötu 57, varð fyrir bifreið. Var hann þegar fluttur í sjúkrahús og kom þá í ljós, að hann hafði marist allmikið. Hálka og snjór á veginum mun hafa átt þátt í slysinu. Nýja Bíó hefir í hyggju að byggja 7 hæða viðbyggingu við kvikmyndahús sitt á lóðinni við Lækjargötu og Austurstræti. í þessari byggingu eiga að vera skrif- stofur og verzlanir. Hörður Bjarnason húsameistari hefir gert teikningar að húsinu. Fyrirtækið hefir sótt um leyfi byggingarnefndar bæjarins til þess að byggja þetta hús. Enn er óvísst hve- nær framkvæmdir hefjast. r (

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.