Tíminn - 01.05.1945, Qupperneq 5
32. lílað
TÍMmN, þrigjjudagmn 1. maí 1945
RITSTJÓRI: SIGRÍÐUR INGIMARSDÓTTIR
Ttl fiumans í tómstundum.
Hvað veldur vinsældum
kvenna, og hvað getið þér sjálf
gert til þess að afla yður vin-
sælda?
Hér fara á eftir 20 spurning-
ar, sem þér skuluð svara játandi
eða neitandi eftir beztu sam-
vizku. 20 jákvæðar spurningar
skipa yður í flokk sjálfra engl-
anna, o: hinna alfullkomnu
kvenna (en hvar er þær að
finna?). 15 jákvæðár spurning-
ar benda á miklar vinsældir. En
séu jáin fSerri en tíu, þarfnist
þér alvarlegra endurbóta. (Tak-
ið þetta samt ekki of hátíðlega).
1. Getið þér talað eða lesið
eitt erlent tungumál? y
2. Hafið þér svo góða þekkingu
á einu málefni a. m. k., t. d.
garðrækt, barnauppeldi, sögu,
tónlist, að þér getið rökrætt það
og fengið viðurkenningu fyrir
skynsamlegar ályktanir?
3. Þykir yður tilveran skemmti-
leg, vegna þess að þér finnið
stöðugt nýjar hliðar á henni?
4. Lesið þér dagblöðin og fylg-
ist með því, sem er að gerast
utan lands og innan?
5. Haldið þér, að flestar kon-
ur séu á réttri hillu sem hús-
piæður?
6. Eigið þér marga trygga vini,
og eignist þér stöðugt nýja
vini?
7. Hlustið þér með athygli,
þegar verið er að ræða lausn
þjóðfélagslegra vandamála?
8. Viðurkennið þér að kurteis-
leg umgengni sé nauðsynlegt
undirstöðuatriði vinsælda, enda
þótt yður falli ekki allt það fólk
í geð, sem þér þurfið að um-
gangast?
9. Kunnið þér þá list að þiggja
það, sem gefið er af góðum hug,
þannig að gefandanum líki,
jafnt-og listina að gefa?
10. ' Eruð þér ósmeyk við að
verða alvarlega ástfangin, þótt
það kunni að hafa alvarlegar
afleiðingar?
11. Eruð þér langrækin?
12. Hafið þér athugað, hvort
það, sem kemur yður í slæmt
skap, er ekki oft smámunir ein-
ir, sem auðvelt er að sigrast á?
13. Getið þér tekið góðlátlegri
gagnrýni án þess að móðgast?
14. Getið þér deilt án þess að
reiðast eða koma með persónu-
legar móðganir í garð hins að-
ilans?
15. Geymið þér tárin, þar til
þér fáið ekki varizt þeim, í stað
þess að nota þau til þess að fá
málum yðar framgengt?
16. Að máli lækna, listamanna
og fegurðarsérfræðinga ættu
hlutföllin í líkama fagurra og
heilbrigðrar konu að vera sem
næst þessufHæð 163 cm., brjóst-
vídd 89 cm., mittismál 68 cm.,
mjaðmavídd 94 cm., hálsinn (við
axlir) 38 cm. að ummáli, öklinn
20 cm., armlengd 58,5 cm. Nálg-
ast hlutföllin í líkama yðar
þetta mál?
_ 17. Er yður annt um ytra út
lit yðar?
18. Eyðið þér alltaf dálitlum
tíma í snyrtingu á kvöldin,
hversu þreyttar sem þér eruð?
19. Haldið þér, að það sé jafn
nauðsynlegt að fara að staðaldri
til tannlæknis og að klæða sig
og mála eftir nýjustu tízku?
20. Haldið þér, að aölaðandi
framkoma og fallegur málrómur
verði að vera samfara konufeg
urð, til þess að hún eti talizt
fullkomin?
Ú d ý r a r m tg n d a b œ h u r .
Útlend blöð með skrautlegum
litmyndum koma nú orðið á
mörg heimili hér á landi og fást
í flestum bókabúðum. Börnun-
um þykir gaman að skoða þessi
blöð, en af óvitaskap rífa þau
blöðin í tætlur. Nýlega las ég í
ensku blaði frásögn konu, sem
bjó til ágæta myndabók handa
ungu barni sínu. Myndirnar
voru allar klipptar út úr blaðinu
og límdar inn í bók, sem hún
bjó til sjálf. Hún fékk sér nokkra
metra af sterkum umbúðapapp-
ír (,,maskínu“-pappír) og
klippti hann niður í arkir, sem
voru h. u. b. 1 metri á lengd. Á
S v o v a r u m
c
konur kveðIð .
Karlmenn eru leikföng kvenna,
konur eru leikföng djöfulsins.
— Victor Hugo.
Þaö, sem fjandinn getur ekki
gert gerir kvenfólkið.
— Franskur málsháttur.
Konur eru verstu óvinir kvenna.
— Franskur málsháttur.
Það er auðveldara að koma á
sáttum í allri Evrópu en milli
kvenna.
Lúðvik 14. Frakkakonungur.
Konúr eru gyðjur hins ókunna
lahds.
— Tontenelle.
Konan er fyrsta húsdýr karl-
mannsins.
— Didrot.
Oft heldur konan því fram, að
hún harmi elskhuga sinn, en er
þá aðeins að kanna ástina
sjálfa.
— Ba Rochefocauld.
Guð skapaði konuna til þess að
temja mannihn.
--Voltaire.
\
Fögur kona er *augnayndi, góð
kona gleður hjartað; önnur er
gimsteinn, hin er fjársjóður.
— Napoleon Bonaparte.
pappírinn límdi hún fyrst renn
inga af venjulegum sáraumbúð
um (sáragas er það oft nefnt).
Renningana límdi hún svo þétt,
að hvergi var bil á millj. Þegar
límið var orðið þurrt, límdi hún
úrklippurnar á arkirnar og lét
þær síðan liggja undir fargi
heila nótt. Þá braut hún hverja
örk í miðju og setti þær hverja
innan í aðra í réttri röð eftir
efni myndanna. Síðan hefti hún
arkirnar saman með sterku
seglgarni. Var þá myndabókin
tilbúin og entist barninu vel og
lengi, því að „gasið“ var svo
sterkt, að það var næstum ó-
mögulegt að rífa blöðin.
Engum manni hefir enn heppn-
ast að finna heppilega aðferð
til þess að ráða konu heilrœði
— ekki einu sinni eiginkonu
sinni.
— Balzac.
Vinur, varaðu þig á fögrum kon-
um! Þegar bliðuhót þeirra hefj-
ast, er þrœlkun okkar í nánd
— Victor Hugo.
Eiginmaður er plástur, sem
lœknar öll mein meydómsins.
— Molére.
Allar meyjar eru góðar, en hvað
an koma þá þessar slœmu eig-
inkonur?
— Skozkur málsháttur.
Sá, sem tapar konu sinni og
tíeyringi, hefir tapað tíeyringi
— Skozkt.
Grasfræið
er komið.
Blóm & Ávextir
Sími 2717.
Vinnið ötullega fyrir
T ímann.
Vilhelm Moberg:
Eiginkona.
FRAMHALD -
Og þarna özlar, Margrét og er aðra stundina rjóð, hina náföl.
Slík kona býr yfir leyndarmáli. Og það, sem Margrét býr yfir,
lað skín af henni — í augum þeirra, sem sjáandi eru. Varir
hennar bærast, þarna sem hún^reikar um og tínir, og dökkur
roði færist í kinnarnar á henni. Þá er hún að rifja eitthvað upp.
Og hún skotrar augunum kringum sig, og í dkkva þeirra spegl-
ast mikil hamingja: Kona, er svona hagar sér — hún á mikinn
fögnuð í leynum hjartans.
Hann, sem hún gat ekki án verið, kom aftur. Margrét! Dyrnar
opnuðust. Og svo var ekkert á allri jörðinni, sem hún þarfnaðist
framar né þráði.
Kvöldin voru orðin skuggsæl núna í júnímánuði. Þau Hákon
földu sig í þéttum laufrunnunum og föömuðu hvort annað að sér.
Þar stigu þau sinn heita blóðdans á jörðinni. Greinar með nýj-
um blöðum skýldu þeim undir skuggsælli laufhvelfingu sinni,
gras merkurinnar angaði undjr þeim. Það lagði eim upp úr jörð-
inni kringum þau. Og þegar sólin gekk til viðar, voru fuglarnir
vanir að syngjast á inni í kjarrinu. Þá hvíldu þau sig eftir
areynsluna, teygðu úr sér á jörðinni.
Þau voru í tengslum við jörðiija — í þeim heimi, þar sem allt
grær og blómgast og ber ávöxt, án þess að láta truflazt af heila-
brotum um líf og dauða. Þar drottnaði fullkomið áhyggjuleysi.
Fæðing og tortíming var metið að jöfnu og olli engum kvíðá.
Yfir þeim glitruðu hin safaríku blöð þessa vors, undir þeim rotn-
aði laufið, sem féll í fyrra. Eitt leiddi af öðru. Og þau voru sjálf
tvö nýútsprungin blöð, sem héngu á greýi sinni á lífsins tré
meðan sumarsins naut. Og þau voru lítil, titrandi blöð, sem
bærðust fyrir blæ eilífðarinnar — blænum, sem einn góðan veð-
urdag myndi' feykja þeim brott af trénu þeirra. En á þessari
stundu er andardráttur þeirra þrunginn sætl^ika sjálfs lífsins.
Þau hafa losnað úr kreppunni og fullnægt tilgangi lífsins: Þau
hafa gleymt sjálfum "sér.
ðg þarna reikar Margrét og hugsar ef til vill um það, sem
gerðist í gærkvöldi. Og þá gerir hún það, sem ljótt er. Því að varir
hennar opnast í brosi, þegar hún hugsar um, að þetta ha^fi verið
hórdómur og stórsynd. Og mennirnir hegna henni strax harð-
lega, og Guð hegnir henni með eilífum kvölum í helvíti. Já,
Margrét hegðar sér illa — og helmingi verr, ef hún er sæl og
glöð í synd sinni. Og nú virðist sem hún sé laus við allan' ótta.
Hvernig gæti hún annars látið eins og hún sé að bæla niðri í sér
hláturinn?
Svo fer hún að hugsa fra,m í tímann, langt út yfir þann dag,
sem nú lýsir, og spyr sjálfan sig, hvað hana muni dreyma á
þessari fífu, sem hún er með í svuntunni. Margar nætur mun
hún hvíla höfuð sitt á fífukoddanum, oft mun hana sjálfsagt
dreyma á þeim kodda, og þá man hún auðvitað ekki til sjálfrar
sín. En — ætli hún liggi líka oft andvaka og bylti sér, þreyjulaus
og kvíðafull, eins og hún hefir gert upp á síðkastið? Skyldi hún
gráta ofan í fífuna á nóttunni? Nei, hún vill ekki hugsa um
það — ekki núna, þegar hún óskar sér einskis framar.
Hún vill hugsa um annað: Skyldi höfuð hans nokkurn tíma
hvíla við vanga hennar á þessum kodda — á fífunni, sem hún
tínir núna? Skyldu varir þeirra mætast í heitum kossi á þessum
fífukollum? Og Margrét kuðlar þá saman í hendi sér, eins og hún
ætli að kreísta út úr þeim leyndarmál þeirra.
Hinar eru á víð og dreif um engin, húsfreyjurnar í þorpinu,
heimasæturnar og vinnukonurnar. Og þarpa í fífutínslunni er
svarthærð, brúneygð kona, sem öðru hverju réttir úr bakinu og
lítur til Margrétar. Þessi þeldökka kona tautar við sjálfa sig,
því að hún veit, hvað hún er, þessi unga húsmóðir!
— Hórkerling! tautar sú svarthærða, og varir hennar loga af
batri.
Nú er þó komin hórkerling í Hegralækjarþorp.
T ólf bera þann þrettánda br ott.
Gestir vilja, að húsráðendur séu glaðir í bragði, þegar þá ber að
garði, og þeir vilja, að húsráðendurnir horfi á eftir þeim með
eftirsjá, þegar þeir fara. Um fátækling, sem flækist bæ frá bæ
skiptir allt öðru máli. Ef Hermann vill sjá húsbóndann glaðan
þarf hann ekki annað en segja honum, að hann sé á förum til
r.ágrannans.
Hann hefir þegar orðið þess var, að Frans Gottfreð er farinn
að vísa honum á dyr með augunum. Frans Gottfreð á ekki nema
áttungsjörð. Það væri sanngjarnt, að Hermann færi nú að flytja
sig um set til oddvitans, því að hann á þó sjöttungsjörð.
En Hermann er það lengi um kyrrt hjá Frans Gottfreð, að
hann verður vitni að þeim einstæða atburði, sem gerist á heimili
hans þetta sumar. Hér um bil sjónarvottur fær hann að verða
'ljann svaf að vísu um nóttina, þegar það gerðist, en hann getur
áuðveldlega ímyndað sér, hvernig allt bar til. Reyndar svaf hann
í sama herbergi. Og hundrað sinnum varð hann að endurtaka
það, sem hann vissi, fyrir hitt fólkið í þorpinu.
Frans Gottfreð lúrir á ótta sínum eins og ormur á gulli, og ör
lagaþráður hans er á enda spunninn þessa daga. Hermann
sveitarlimur er til húsa hjá honum. Hann hefir spurt alla flakk-
ara eftir einhenda manninum, til þess að þjófurinn komi honum
ekki að óvörum. Og hann hefir gert sér í hugarlund, hvernig
þessi hræðilegi náuþgi muni haga sér: Hann gerir þetta eða hitt.
En samt sem áður má hugsazt, að eitthvað, sem hann hefir ekki
gert ráð fyrir, geti komið fyrir. Það, sem lpks gerist, hefði hann
aldrei látið sér detta í hug.
Kvöld eitt, er Frans Gottfreð kemur heim úr skóginum frá því
að svíða akurstæði, situr ókunnur maður í eldhúsinu. Flækingur,
segir húsfreyjan. Hann hefir beðizt gistingar og lofar að borga
næturgreiðann. Hann er með einhvern varning.
Bóndinn skeytir ekki frekar um gestinn, fyrr en hann stendur
upp af stólnum og setzt við borðið með hinum. Þá uppgötvar
hann, að önnur úlpuermin hangir tóm niður með hliðinni. Hann
er einhendur.
Það er eins og rekinn sé hnífur í andlitið á Frans -Gottfreð,
það verður hér um bil sprenging í hjartanu. Þjófurinn! Það er
hægri höndin, sem vantar. Stendur heima!
Þetta hefði hann aldrei getað látið sér detta í hug. Að þjófur-
inn kæmi bara eins og venjulegur og friðsamur sölukarl og
bæði um mat og húsaskjól og settist að borði með honum. Þetta
er alveg makalaus dirfska. Því að hann hlýtur þó að vita, að
Skólasaga
Færeysk gamansaga eftir M. A. Wmther.
Þýðing Aðalsteins Sigmundssonar.
Á heimleiðinni spurði Pétur Kristján:
— Hví spurðir þú hann ekki, hvernig honum leizt á
blöðrubekilinn, meðan við sátum hjá kúnni? Og báðir
íleygðu sér niður á sátu og skellihlógu.
— Þetta var ágætur dagur, sagði Jón.
— O-já, hann var ekki verri en hinir. Og mikið höfum
við lært í dag, svaraði Pétur Kristján.
í K. voru margir slíkir dagar á árinu, þótt ekki væru
þeir allir eins og sá, sem nú hefir verið frá skýrt.
II.
ANNAR SKÓLADAGUR.
„Oft kemur grátur eftir skellihlátur,“ segir málshátt-
urinn. Og oft fer svo, að skemmtun eins og sú, sem þeir
íón og Pétur Kristján stofnuðu til, hefir miður góðar
afleiðingar.
Síðari hluta dagsins, sem áður er frá sagt, hittust
strákarnir. Þeir höfðu þá étið miðdegisverð og farið í
slarkföt. „Þetta fáum við borgað, áður en langt líður,“
sagði Jón. „Hann hlýtur að komast að því, að við höfum
nent gaman að honum. Þó að ekki væri annað, þá getur
það frétzt eftir hinum börnunum, að það vorum við, sem
þvældum-kúna í tjóðrinu.“
— Sú stund, sem er góð, er ekki slæm, sagði Pétur
Kristján. — Og ef við hefðum ekkigert það, sem við gerð-
um, þá hefðum við báðir verið hýddir í dag. Auðvitað
launar hann okkur lambið gráa, ekki er að efa það, ef
við högum okkur ekki þannig, að hann fái ekki færi á
okkur, sem varla kemur til.
Jón stakk upp á, að þeir skyldu lesa vel í biblíusögum
og kveri undir morgundaginn. Pétur Kristján sam-
þykkti það. Voru þó báðir hálf daufir í dálkinn, því að
sjálfsagt gat kennárinn fundið upp einhverja gildru til
að festa þá í.
Þeir lágu úti í matjurtagarði og voru að róta þar í
moldinni. Þá fundu þeir músarholu. Þeir grófu svo djúpt,
að þeir fundu músina og náðu henni.
— Það gæti verið gaman að ala hana, þessa, sagði Jón.
— Eða gefa kennaranum hana, sagði Pétur Kristján.
Honum þykir svo gaman að músum. Þeir ráku upp hlát-
ar, því að sannleikurinn var sá, að kennarinn var hrædd-
ur við mýs, eins og kvenfólk getur frekast verið.
Ég nota alltaí
„M A GIC“
í allan þvott.
Takmarkaiiir
á siilw lykuri
ÁkveSið hefir verið að heimila verzlunum að afhenda sykur
í næstkomandi maímánuði gegn sykurreitum nr. 2 og nr. 1 af
núgildandi matvælaseðli. Óheimilt er að afhenda gegn sykurreit-
um nr. 3 í þeim mánuði.
SkömmtanarskríSstofa ríkísins.
ORÐSEHDCVG TEL KAUPEJVDA TÍMAXS.
Ef kaupendur verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru þeir vin-
samlega beðnir að gera afgreiðslunni þegar aðvart.
T I M I N N cr víðlesnasta auglýslngablaðlð!
/