Tíminn - 01.05.1945, Síða 8
DAGSKRÁ er bezta íslenzha tímuritiS um
Þeir9 sem vilja ki/nna sér þjóðfélagsmál, tnn-
þjóðfél ugsmál.
8
REYKJAVÍK
lend og útlend, þurfa að lesa Dagskrá.
1. MAÍ 1945
32. blað
AIVWÁIjL. TÍfflAVS
24. apríl, þriðjudagur:
Orrnstur í Berlín.
Austurvígstöðvarnar: Mjög
grimmilegar orrustur geisuðu í
Berlín. Þjóðverjar voru sagðir
flytja þangað varalið. Rússar
hafa náð y3 hluta borgarinnar.
Vesturvígstöðvarnar: Banda-
menn voru 5 km. frá Regens-
burg og 40—50 km. frá Miin-
chen. Þeir voru 50 km. frá borg-
inni Passau við austurrísku
landamærin. Frakkar tóku Ulm.
Ítalíuvígstöðvarnar: Banda-
menn tóku borgirnar Ferrara,
Modena og Spezía og fóru á
nokkrum stöðum yfir Pófljót.
25. apríl, miðvikudagur:
Helmsráðstefna sett.
Bandaríkin: Ráðstefnan í San
Fransisco var sett.
Austurvígstöðvarnar: Riissar
tilkynntu, að þeir hefðu um-
kringt Berlín.
Vestfurvjgstöðvarnar: Biarizt
ákaft í Bremen. Bandamenn
voru 25 km. frá Passau og börð-
ust í úthverfum Regensburg.
26. apríl, fimmtudagur:
Upplausn á Italíu.
Ítalía: Varnir Þjóðverja i ít-
alíu hafa brostið algerlega.
Skæruliðar hafa tekið Milano,
Genua og Torino. Brezki herinn
hefir tekið Verona.
Austurvígstöðvarnar: Rússar
hafa tekið % hluta Berlínar.
Þeir hafa tekið Stettin og Brno
í Tékkóslóvakíu.
Vesturvígstöðvarnar: Bretar
tóku Bremen. Hröð sókn í Suð-
ur-Þýzkalandi.
Þýzkaland: Göring hefir látið
af yfirstjórn flugmálanna vegna
hjartabilunar.
27. apríl, föstudagur:
Herirnir sameinast.
Styrjöldin i Þýzkalandi: Til-
kynnt í Washington, Moskvu og
London, að her Bandamanna og
Rússa hefði náð saman daginn
áður við Torgau í Þýzkalandi.
Bandaríkjamenn tóku Regens-
burg og fóru yfir austurrísku
landamærin hjá Passau. Orrust-
ur héldu áfram í Berlín og
unnu Rússar á. Þeir tóku Pots-
dam.
Ítalía: Mussólini, Graziani
og fleiri fasistaforingjar voru
Jónas Jónsson
sextugnr
(Framhald af 1. slðu)
hófst allmikill klofningur í
Framsóknarflokknum, er leiddi
til þess að nokkrir menn fóru úr
flokknum. Ágreiningur þessi var
að nokkru leyti um það, hvort
flokkurinn ætti að hverfa inn á
íhaldssamari leiðir, og var Jónas
í fylkingarbrjósti þeirra, er því
voru fráhverfir. Hann vildi, að
flokkurinn væri áfram umbóta-
og samvinnuflokkur, er gæti
unnið til beggja handa eftir
málefnum. Þessi stefna sigraði.
Flokkurinn vann mikinn sigur í
næstu kosningum og tók aftur
við stjórnartaumunum undir
forustu nýrra manna. Hófst þá
aftur nýtt glæsilegt framfara-
tímabil, þótt aðstæður væru
hinar örðugustu, vegna verðfalls
og markaðsleysis erlendis.
Árin 1934—43 var Jónas Jóns-
son formaður Framsóknar-
flokksins. Jafnhliða formennsk-
unni gegndi hann mörgum
trúnaðarstörfum fyrir flokkinn,
t. d. átti hann sæti í þeim nefnd-
um, er fjölluðu um lausn sjálf-
stæðismálsins, í menntamála-
ráði, í ÞingVallanefnd, í milli-
þinganefnd í skólamálum, í
bankaráði Landsbankans, í
dansk-íslenzku ráðgjafanefnd-
inni meðan hún starfaði og 1
skipulagsnefnd atvinnumála.
í>að, sem hér hefir verið nefnt,
gefur aðeins lauslegt yfirlit
um stjórnmálaa,fskipti Jónasar
Jónssonar, enda yrðu þau ekki
rakin til hlítar nema í löngu
máli. Flest þeirra eru líka al-
menningi meira og minna kunn.
handteknir af skæruliðum, er
þeir reyndu að flýja til Sviss.
28. apríl, laugardagur:
Friðartilboð Himlers.
Friðartilboð: Upplýst var, að
Bretum og Bandaríkjamönnum
hafi borizt tilboð frá Himmler
um algera uppgjöf Þjóðverja. —
Sænskur greifi, Bernadotte,
flutti boðið. Tilboðinu var
neitað, þar sem það var ekki
einnig sent Rússum.
Styrjöldin í Þýzkalandi: Rúss-
ar unnu á í Berlín. Bandaríkja-\
menn tóku Augsburg og eru 30
km. frá Múnchen. „Frelsisvinir“
úr nazistaflokknum gerðu upp-
reisn þar, en hún var bæld nið-
ur.
Ítalía: Her Bandaríkjanna fór
inn í Genua og sótti víða hratt
fram. •
Burma: Bretar hafa sótt hratt
fram til Rangoon og eiga þang-
að 90 km. ófarna.
29. apríl, sunnudagur:
Mussolini líflátinn.
Ítalía: Tilkynnt var, að al-
þýðukviðdómur skæruliða í Mil-
Benito Mussolini
ano hefði daginn áður dæmt
Mussolini og 17 aðra fasista-
leiðtoga til dauða og þeir verið
skotnir samstundis. Líkin hafa
verið hengd upp á torgi í Mil-
ano. Her Bandamanna fór inn
í Milano og Feneyjar.
Styrjöldin í Þýzkalandi: Her
Bandaríkjamanna fór inn í
Múnchen. Bretar fóru yfir Elbe
sunnan við Hamborg. Rússar
unnu á í Berlín. Þeir hafa sótt
100 !/m. vestur fyrir Stettin og
eru komnir inn í Mecklenborg-
arfylki.
i
Jónas Jónsson hefir þó haft
mörg fleiri járn í eldinum en
stjórnmálin, m. a. samíð nokkr-
ar vinsælar kennslubækur og
ritað margt gfeina og ritgerða
um fagurfræðileg efni. Hin
mörgu og margbreyttu störf
hans bera þess órækt merki,
að þar sem hann hefir farið,
hefir verið á ferð óvenjulegur
gáfumaður, fjölhæfur og mikil-
virkur.
Hin seinustu ár hefir ágrein-
ingur, sem ekki verður rakinn
að þessu sinni, orðið þess vald-
andi, að Jónas Jónsson hefir
hætt að skrifa í blöð Framsókn-
armanna og deilt á ákvarðanir
flokksins og ýmsa forráðamenn
hans. Hvað, sem þessum ágrein-
ingi líður, flytur Tíminn Jón-
asi Jónssyni á þessum tímamót-
um í ævi hans beztu þakkir
fyrir samstarfið á fyrri árum
og jafnframt þakkir fyrir annað
það, sem hann hefir gert í þágu
Framsóknarflokksins. Þessa
starfs hans verður þó nú og
í framtíðinni bezt minnst með
þeim hætti, að merkið, sem hann
og aðrir framsæknir æsku-
menn hófu fyrir þremur áratug-
um, verði aldrei látið niður
falla, heldur verði Framsóknar-
flokkurinn stöðugt aukinn og
efldur til að gegna hlutverki
frjálslynds og framsækins um-
bóta- og samvinnuflokks. Þá
verður tryggð áframhaldandi
sókn þjóðarinnar til aukins
þroska óg betri lífskjara, og af-
stýrt yfirdrottnun auðmanna
eða alræði öreiga, sem eru
draumsýnir öfgamanna til hægri
og vinstri.
Tvö íurðulcg1 * 1 * 3 tíðindí . . .
(Framhald af 1. slðu)
kringumstæðum og ekkl heldur
á minnstan hátt til ávinnings-
fyrir Bandamenn. íslendingar
höfðu líká þeim mun gildari
ástæðu til að líta þannig á, þar
sem því var strax yfirlýst af
sendiherrum Breta og Banda-
ríkjanna, að þessar þjóðir
myndu láta íslendinga alveg
einráða í þessu máli og ákvarð-
anir íslendinga í því hafa held-
ur engri gagnrýni sætt í Bret-
landi og Bandaríkjunum, svo
kunnugt sé.
Það er svo fjarri öllu lagi að
ætla að kenna einstökum mönn-
um eða fámennum flokkum um
ákvarðanir íslendinga í stríðs-
yfirlýsingamálinu. Öll íslenzka
bjóðin var sameinuð um það að
fara ekki»í stríðið, þegar for-
ingjaklíka kommúnista er und-
unskilin.
Svikarar við
íslenzkan málstað.
Þótt íslendingar kunni að
vonum illa missögnum og röng-
um getgátum hins rússneska
blaðamanns, verður hitt þó að
teljast stórum alvarlegra, að til
skuli vera menn í landinu, sem
taka þessum erlendra áróðri
tveimur höndum í stað þess að
taka upp varnir fyrir málstað
bjóðarinnar. Slíkt sýnir slíka
óþjóðhollustu og undirgefni við
erlent vald að undrum sætir.
Þetta hefir málgagn Komm-
únistaflokksins, Þjóðviljinn, þó
gert.
Með þessu háttalagi hafa
kommúnistar afhjúpað sig jafn-
vel enn greinilegar en nokkru
sinni fyrr sem algerar undir-
lægjur Rússa og algera svikara
við íslenzkan málstað.
Og ekki gerir það hlut þeirra
betri, að rangfærslur hins rúss-
neska blaðamanns eru eins og
alveg teknar upp úr skrifum
Þjóðviljans um stríðsyfirlýs-
ingamálið. Er líka næsta senni-
Tvo dauðaslys
Það sorglega slys varð á Pat-
reksfirði s. 1. föstudagsmorgun,
um 8-leytið, að einn af starfs-
mönnum vélsmiðjunnar Sindri,
'Vðalsteinn Þórðarson, datt ofan,
af 2i/2 meters háum vegg niður
4 steingólf og meiddist svo mik-
'ð, að hann andaðist skömmu
íiðar.
Aðalsteinn var 33 ára að
aldri, ættaður frá Skriðnafelli
á Barðaströnd. Hann var ó-
kvæntur.
Síðastl. sunnudagskvöld vildi
bað slys til, inn við Blesa-gróf í
Reykjavík, að maður að nafni
Stefán Þórðarson til heimilis að
áðalstræti 8, varð fyrir sand-
bruni og beið bana af.
Slysið vildi til með þeim hætti,
að Stefán var, ásamt fjórum
öðrum mönnum, að moka sandi
á bíl í sandnámi bæjarins inn
við Blesa-gróf, er sandbakki
hrundi yfir hann.
Það tókst fljótlega að ná
Stefáni undan sandinum og var
hann þá með lífsmarki, en hann
andaðist á leiðinni til sjúkra-
húss.
Davíð Stefánsson
hlaut sumargjöf
Birtíngaholts
Sumargjöf Birtingaholts hef-
ir verið veitt Davíð Stefánssyni
skáldi.
Eins og kunnugt er, stofnaði
séra Magnús Helgason sjóð, að
upphæð 20.000 kr. og mælti svo
fyrir, að vextir sjóðsins annað-
hvort ár skyldu veittir að verð-
launum því skáldi,.sem frumort
hefði á íslenzku fegurst ljóð á
næstliðnum 10 árum, að dómi
þriggja manna: Forseta Hins ís-
lenzka Bókmenntafélags, höf-
uðkennara í íslenzkum bók-
menntum við Háskóla íslands og
kennaranum í íslenzku við
Kennaraskólann í Reykjavík. —
Síðast þegar veitt var úr sjóðn-
um, hlaut Guðmundur Friðjóns-
son skáld á Sandi sumargjöfina.
legt, að greinar hans séu þýdd-
ar og sendar austur og þar sé
hann talinn miklu merkara blað
en hér. Niðurstaðan verður sú,
að rógi hans*um íslendinga er
útvarpað meðal einnar fjöl-
mennustu þjóðar heimsins!
Falsvottorð Mbl.
Það mætti vissulega vera þjóð-
inni alvarlegt umhugsunar-
efni, að flokkur, sem hefir hag-
að sér eins og kommúnistaflokk
urinn í stríðsyfirlýsingamálinu,
skuli eiga sæti 1 ríkisstjórninni
og hafa forsætisráðherra henn-
ar í þvílíkri „hengingaról“, eins
og eitt af blöðum Alþýðuflokks-
ins hefir orðað það, að hann
getur skipað honum eftir vild
sinni.
Seinasta skipunin, sem komm
únistarnir hafa gefið honum,
er að láta Mbl. kpma sér til
hjálpar í stríðsyfiriýsingarmál-
unum, því að þeir finna, hve
höllum fæti þeir standa þar.
Þetta gerir Morgunblaðið líka
dyggilega síðastl. sunnudag. í
forustugrein blaðsins er lýst
mikilli vandlætingu yfir því, að
nokkuð skuli á þetta mál
minnst og því síðan haldið blá-
kalt fram, að enginn þingmaður
hafi lagt það til að íslendingar
færu í stríðið!
Þetta falsvottorð dirfist blað-
ið að gefa eftir að sú tillaga
kommúnista liggur opinberlega
fyrir, að lýst yrði yfir stríðs-
ástandi og undirritaður Was-
hingtonsáttmálinn svonefndi,
en í honum segir svo:
„Hver ríkisstjórn um sig
skuldbindur sig til þess að leggja
fram ÖLL EFNI SÍN, HERNAÐ-
ARLEGA OG FJÁRHAGSLEGA,
í baráttunni gegn þeim aðilum
þríveldasamningsins og ríkjum,
er hafa aðhyllzt hann, sem hún
á í styrjöld við.“
Þetöa. falsvottorð gefur Mbl.
eftir að því er yfirlýst í forustu-
grein Þjóðviljans 25. apríl síð-
astl.:
„Þeir (þ. e. sosialistar) vildu
láta VEÐURKENNA, AÐ ÞJÓÐ-
TN SÉ RAUNVERULEGA f
STRÍÐI, og hafi háð það og vilji
heyja það með hverjum þeim
tækjum, sem hún ræður yfir.“
Engum óvitlausum manni get-
ur blandast hugur um, að með
þessari afstöðu sinni hafa kom-
múnistar stefnt að beinni stríðs-
þátttöku, þótt reynt sé að
grímuklæða hana. Annað stjórn-
arblað, Alþýðublaðið, fer ekki
heldur dult með þá skoðun sína.
Það mætti vissulega mikið
vera, ef liðsmenn Sjálfstæðis-
flokksins þola það til lengdar,
að aðalmálgagn flokksins sé
notað til að falsa staðreyndir
kommúnistum í vil og sé látið
ganga fram fyrir skjöldu til að
kveða niður nauðsynlegar um-
ræður, sem eru kommúnistum
óhagstæðar. Eða er það kann-
ske meining þeirra að lyfta svo
undir kommúnista, að þeir stigi
þeim brátt yfir höfuð, eins og
líka eru fullar horfur á í
næstu bæjarstjórnarkosningum
í Reykjavík?
Leikfimissýning
(Framhald af 1. síðu)
piltar úr yngri deild skólans,
undir stjórn Þóris Þorgilssonar
íþróttakennara. Næst sýndu
stúlkur úr báðum deildum
undir stjórn Björns Jakobssonar
skólastjóra íþróttaskólans. Þá
sýndu piltar úr eldri deild, undir
stjórn Þóris Þorgilssonar, og loks
komu fram nemendur íþrótta-
skólans undir stjórn skólastjóra
hans, Björns Jakobssonar.
Mesta hrifningu áhorfenda
vakti sýning stúlknanna. En sú
sýning var hvort tveggja í senn,
leikfimis- og danssýning. Björn
Jakobsson stjórnaði stúlknasýn-
ingunni og lék undir á fiðlu.
Annars var öllum flokkunum
prýðilega tekið af áhorfendum,
og er þessi Reykjavíkurför í-
þróttamanna frá Laugarvatni
merkilegur viðburður í íþrótta-
lífi höfuðstaðarins. Svo fjöl-
mennur hópur þróttamanna ut-
an af landi hefir aldrei sýnt í
Reykjavík fyrr.
G A M L A B í Ó "
AFTURGÖNG-
URIVAR
(The Remaxkable Andrew)
Brian Donlevy,
William Holden,
Ellen Drew.
Sýnd kl. 9.
Umhverfis jjörðina
(Around the World)
Söngva- og gamanmynd.
Mischa Auer,
Joan Davis,
Kay Kayser og hljómsveit.
Sýnd kl. 5 og 7.
Fjallið
EVEREST
frásagnir um hœsta fjall jarð-
arinnar og tilraunir manna til
að brjóstast upp á hæsta tind-
inn.
Skemmtileg og fróðleg bók,
prýdd mörgum fallegum mynd-
um.
Fæst í flestum bókaverzlun-
i m, en upplagið orðið mjög
takmarkað.
| N t J A B í ó "
TUNGLSKINS-
NÆTUR
(„Shine on Harwest moon“)
Ann Sheridan
Dennis Morgan
Jack Carson
Irene Mauning. "
Sýnd kl. 6,30 og 9.
Allar vRdn meyj-
arnar eiga hann.
Leon Errol!
og hinni frægu
Caca Lomba hljómsveit.
! Sýnd kl. 3 og S.
Sala hefst kl. 11 f. hád.
••TJARNARBÍÓ"
SJÓLIÐAR
(The Navy Way)
Skemmtileg mynd frá æfinga-
stöðvum ameríska flotans.
Robert Lowery
Jean Parker.
Sýnd kl. 7 og 9.
Skðeruliðar
(The People’s Avengers)
Rússnesk mynd með enskum
texta um baráttu og afrek
skæruliða að baki víglínu Þjóð-
verja.
Sýnd kl. 3 og 5.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sala hefst kl. 11.
ol •
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Kaupmaðurinn í F eneyjum
Gamanleikur í 5 þáttum, eftir William Shakespeare.
Sýniiiíí annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir í dag frá'kl. 4—7.
ATHS. Ekki svarað í síma fyrr en eftir kl. 4yz.
\
Aðgangur bannaður fyrir börn.
Ú R B Æ N U M
1. maí hátíðahöld verka-
lýðsfélaganna
fara fram með svipuðum hætti og
undanfarin ár. Sú nýbreytnl hefir þó
verið tekin upp að nú mun „gangan"
staðnæmast fyrir framan sendiráð
Rússa, Bandaríkjanna og Breta og
verða þar flutt ávörp. Um kvöldið
verða skemmtanir í Iðnó, Alþýðuhús-
inu og í Listamannaskálanum.
„Friður á jörðu“,
óratóríó Björgvins Guðmundssonar
tónskálds verður flutt í fyrsta sinn
á morgun og þá fyrir styrktarmeðlimi
Tónlistarfélagsins. Næsta föstudag
verður verkið flutt fyrir almenning.
Dr Victor von Urbantshitsch hefir
annazt undirbúning og stjórnar flutn-
ingi verksins. Þetta er fyrsta íslenzka
óratóríó, sem flutt hefir verið.
Sýning á vinnu barna
í Austurbæjarskólanum
var opin fyrir almenning laugar-
dag og sunnudag s. 1. Voru þar til
sýnis ýmsir fagrir og haganlega gerðir
munir, sem börnin höfðu sjálf unnið.
Aðalfundur Rauða-kross
íslands
var haldinn nýlega í Reykjavík. Var
lögð þar fram skýrsla um starfsemi
félagsins á síðasta ári. En aðalefni
þeirrar skýrslu hefir áður verið rakið
hér í blaðinu. Ameríski Rauði-kross-
inn hefir tilkynnt, að hann muni gefa
íslenzka Rauða-krossinum sjúkrabif-
relð, sem viðurkenningu fyrir ánægju-
legt samstarf. Auk þess hafa félags-
deildirnar í Vestmannaeyjum, á ísa-
firði og Sauðárkróki allar í huga
kaup á sjúkrabifreiðmn. Rauði-kross-
inn á von á tveimur nýjiun sjúkrabif-
reiðum innan skamms.
ísfirðingafélag
var stofnað í Reykjavík fyrra
sunnudag. Á stofnfundinum innrituð-
ust 160 félagar. Fyrsta stjórn félags-
ins er þannig skipuð: Formaður Elías
Halldórsson og meðstjórnendur Jón
Leós, Jón Jóhannesson, Sveinn Helga-
son og Magnús Thorberg. Þeir ísfirð-
ingar, búsettir hér í bænum, sem óska
að gerast félagar, geta snúið sér til
Sveins Helgasonar, Lækjargötu 10 eða
Jóns Jóhannessonar, Hafnarstræti 22.
Gestir í bænum:
Guðmundur Jónsson hreppstjóri á
Sveinseyri, Tálknafirði, Björn Stefáns-
son kaupfélagsstjóri, Stöðvarfirði,
Eiríkur Brynjólfsson ráðsmaður á
Kristnesi, Eyjafirði, Finnur Kristjáns-
son kaupfélagsstjóri, Svalbarðseyri og
Sigurður Jóhannesson kaupfélagsstjóri
Haganesvík, Þórir Steinþórsson skóla-
stjóri, Reykholti, sr. Einar Guðnason
1 Reykholti og kona hans, Anna
Bjarnadóttir B. A.
Dýraverndarinn,
1. og 2. tbl., 31. árg. hefir borist
blaðinu. M. a. eru þessar greinar: Bún-
aðarþing afgreiðir merkilega ályktun
um dýraverndun, Svartkolla eftir Jón
Guðbrandsson, Saurbæ i Fljótum, Ólík
örlög, Níðst á krumma eftir Herm.
Pálsson, Hjallanesi, Þorranætur kvæði
eftir Óskar M. Ólafsson frá Hagavík,
Hrossahald eftir Á. G. E., Lausavísur
um Litla-Brún eftir Óskar Stefánsson,
Héðinshöfða, Týra eftir Jón Ferdin-
andsson, Birningsstöðum, Fnjóskadal,
Neisti eftir Guðjón F. Davíðsson, Ein-
stætt atvik, Tvær smásögur eftir Sig-
urbjörn Á. Gíslason.
Menntamál,
3. hefti 18. árg., hefir borist blaðinu.
Efni er m. a.: Skógræktin og skólarnir
eftir Skúla Þorsteinsson, Handavinnu-
nám í heimavistarskólum eftir Stefán
Sigurðsson, Biblusögurnar nýju eftir
Ó. Þ. K., Launalögin nýju eftir Ó. Þ.
K., Barnakennarar á íslandi 1944—45
og fréttir og félagsmál.
Til minningarsjóðs
Jakobs Ó. Lárussonar.
Afhent Önnu frá Moldnúpi: Guðrún
frá Seljavöllum til minningar um
Ragnar Jakobsson kr. 25,00. Guðrún
Þórarinsdóttir kr. 50,00 (áheit), frá
ísafirði kr. 10,00 (áheit), G. kr. 50,00
(áheit), N. N. kr. 50,00. Kærar þakkir.
A J.
Frakklandssöfnunin.
Peningagjafir: Andrés Ólafsson,
Brekku 250 kr., Kvenfélag Hraungerð-
ishrepps 200 kr., Afhent í verzl. París
2015 kr., safnað af sr. Gísla Brynjólfs-
syni 150 kr., safnað af Friðr. Gunnars-
syni 1110 kr., N. N. 100 kr. Jón Gísla-
son dr. phil. 100 kr., Einar Ólafsson
200 kr., tekjur af myndlistasýningu frú
Barböru Árnason til franskra barna
2000 kr., safnað af Carl Ryden 600 kr.
Kærar þakkir.
Trúlofun.
Nýlega opinberuðu trúlofim sína
ungfrú Sigríður Bergsdóttir, Sunnu-
veg 6). Hafnarfirði og Oliver Steinn
Jóhannesson verzlunarstjóri ísafoldar-
bókaverzlunar.
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band af séra Friðrik Hallgrímssyni
ungfrú Edda Jónsdóttir frá Suðureyri
við Súgandafjörð og Ástvaldur Stef-
ánsson málari, Ásvallagötu 6. Heimili
ungu hjónanna verður þar.