Tíminn - 17.08.1945, Qupperneq 6
/
6
TÍMBViy, föstnclagmn 17. ágúst 1945
61. balð
SEXTUGUR:
Þorsteinn M. Jónsson
skolastjjóri á Akureyri *
Einu ári eftir síðustu aldamót
var Jón bóndi á Útnyrðings-
stöðum á leið heim úr brúðkaupi
frænda síns, en það var haldið
á Reyðarfirði. í fylgd með hon-
um var sonur hans á 17. ári.
Bóndi var glaður og reifur, og
léttur í máli við son sinn. Talið
barst að framtíðarmöguleikum
unga mannsiní. „Hvort viltu nú,
Stgini minn, að ég geymi þér
Úmyrðingsstaðina eða að ég
selji þá, svo að ég geti kostað
þig í skóla.“ Ungi maðurinn lét
í ljós ósk sína um það, að læra
og verða stúdent. Þá opnaði
faðir hans hug sinn og lýsti
hugsjói'.um bóndans, lotningu
sinni fyrir verkefnum hans og
metnaði sínum fyrir hönd stétt-
ar sinnar. „Enginn er í.rauninni
eins frjáls og óháður og bónd-
inn, enginn jafnlítið undir aðra
gefinn og hann.SÍ
Þorsteinn varð aldrei prestur,
eins og hugur hans mun helzt
hafa staðið til. Hann gekk í
Gagnfrgeðaskólann á Akureyri
og tók síðan að starfa sem’
barnakennari. Kennaraprófi:
lauk hann 1909. Sennilega hefði i
Þorsteinn orðið prestur í ram- i
þjóðlegum stíl, ef ég má svo að t
orði komast, góður kennimáður,
unglingafræðari, lærdómsmað-
ur og rausnarbóndi. Prestskap-
arhugsjón æskuáranna hefir
mótað lífsferil Þorsteins meira
en flest annað, þvi að starf hans
hefir að miklu leyti farið í sama
farveginn og sú hugsjón benti.
En jafnframt því hefir hann
erft virðingu föður síns fyrir
starfi bóndans. Næstum þrjá
áratugi hefir Þorsteinn stundað
búskap, fyrst austur í Borgar-
firði og síðar í Syðri-Skjaldar-
vík í EJyjafirði og Svalbarði á
Svalbarðsströnd. Auk landbún-
aðarins hefir Þorsteinn haft á-
huga á öðrum sviðujn athafna-
lífsins, og í allmörg ár átti hann
sæti í stjórn sildarverksmiðja
ríkisins.
Kennslustörf stundaði Þor-
steinn fyrst við barnaskóla á
Akureyri, feeyðisfirði og Borgar-
firði eystra og á Akureyri í annað
sinn. Síðan 1935 hefir hann ver-
ið skólastjóri Gagnfræðaskólans
á Akureyri. Kennslustarf og
skólastjórn lætur Þorsteini vel.
Hann skilur vel áhugamál og
skaplyndi ungs fólks, og metur
mikils fróðleiksfýsn og náms-
áhuga. —
Bókaútgáfu hefir Þorsteinn
haft með höndum i állmörg ár
og er fyrir löngu í fremstu röð
bókaútgefenda. Þorsteinn mun
líta á bókaútgáfu sem menning-
arstarf, sem inna skuli af hendi
skammlaust og án allrar for-
dildar. Fátt mun honum hug-
stæðara en íslenzk þjóðfræði
Þjóðfræðasafnið „Grímu“ hefir
hann gefið út síðan 1936 og er
ritstjóri þess, ásamt Jónasi
Rafnar yfirlækni. Bókasafnari
er Þorsteinn mikill. Mun safn
hans vera orðið með stærstu
einkabókasöfnum á landinu og
frágangur þess allur hinn prýði
legasti. Eru það þó nær ein-
göngu íslenzkar bækur. Sjálfur
er Þorsteinn bókfróður og sögu-
fróður mjög og hefir vakandi
áhuga á bókmenntum. Hefir
hann skrásett mikið af sögum
og sögnum og safnað handrit-
um.
• Ungur að árum varð Þorsteipn
alþingismaður Norðmýlinga, og
átti sæti í nefnd þeirri, er samdi
25 ára starfsafmæli
Sigurbjörg ísaksdóttir, ljós-
móðir átti «25 ára starfsafmæli
25. júlí s. 1. Þann dag sóttu hana
heim allar konur í Kelduhverfi,
er þjónustu hennar hafa*notið,
færðu henni gjafir og fluttu
henni þakkir fyrir vel unnið
starf og heillaríkt. Sigurbjörg
hefir gengt ljósmóðurstörfum í
Kelduhverfi síðastl. aldarfjórð-
ung. Hún er .þegar orðin Ijós-
móðir heillar kynslóðar. Sigur-
björg verður fimmtug 29. okt.
n. k. og er því enn sem á miðjum
starfsaldri. Hún á væntanlega
eftir að greiða annari kynslóð til
fyrstu sporin.
25. júlí 1945.
B. H.
Sumbund ísl. sumvinnufélaga.
SAMVINNUMENN!
Þegar eldsvoða ber að höndum, brenna nálega
í hvert sinn óvátryggðir innanstokksmunir.
Frestið ekki að vátryggja innbú yðar.
Sigurbjörg fsaksdóttir.
Þorsteinn M. Jónsson
við' Dani 1918 um fullveldi ís-
lands. Á seinni árum hefir Þor-
steinn mirihi þátt tekið i stjórn-
málum, en á sæti í bæjarstjórn
Akureyrar. Mörg trúnaðarstörf
hefir Þorsteinn innt af hendi
fyrir hreppa, sýslu eða bæ, þar
sem hann hefir átt heima. Hann
er t. d. sáttasemjari í yinnudeil-
um. — Ungmennafélögin og
góðtemplarareglan hafa notið
starfskrafta hans í ríkum mæli.
Hann var einn af stofnendum
fyrsta ungmennafélags landsins
og stofnandi fyrsta ungmenna-
félags á Austurlandi.
Kona Þorsteins er Sigu&jóna
Jakobsdóttir, leikkona, Hafa þau
eignazt mörg börn, sem nú eru
öll uppkomin. Heimili þeirra
hjóna er í þjóðbraut. Þajj hjón
eru gestrisin og alúðleg heim
að sækja.
Vonandi á Þorsteinn M. Jóns-
son eftir að inna mikið starf
af. höndum. Ameríkumaðurinn
segir, að ævin byrji um fimm-
tugt. En eitt frægt skáld sagði
mér einu sinni, að eftir sextugt
væri bezti starfstími mannsæv-
innar. Þorsteinn M. Jónsson hef-
ir ekki farið varhluta af van-
heilsu, en kjarkur, þrek og lífs-
fjör er óbilandi, og því þykir
mér líklegt, að ummæli skálds-
ins eigi eftir að rætast á honum.
Margir vinir og frændur munu
senda honum og heimili hans
heillakveðjur á sextugsafmæl-
inu, hinn 20. þT m.
Jakob Jónsson.
DAXARMIXXEVG:
Guðrún Hannesdóttir
frá Undirfelli í Vatnsdal
Hann varð hér þungur í skauti
hinn 20. júlí s. 1. Þá fór dauðinn
snúðugt hér um með ljá sinn,
sá hinn mikli sviptir mannlegs
lífs, sem engum tjóar við að
deila. Og hann sló nú fulla brýn-
una fannst okkur.
En fyrir honum varð að þessu
sinni fjórtán ára gömul mær,
Guðrún Hannesdóttir og Hólm-
fríðar á Undirfelli. Banameinið
var lífhimnubólga eftir botn-
langaskurð.
Það var næsta erfitt að átta
sig á þessu, að unga stúlkan,
sem var gædd svo miklu af líf-
inu sjálfu, orku þess og leikandi
fjöri, væri nú allt í einu lífvana.
Guðrún sál. var um margt ó-
venjulegt ungmenni: þroska-
mikil og fríð sýnum, prýðilega
greind og jafnvíg á allt nám.
Hrifnæm var hún og ljóðelsk,
kunni óvenjumargt kvæða og
næm á kosti þeirra. Hún las svo
að segja allt, sem til náðist.
Margar íslendingasögurnar
hafði hún lesið, sumar oftar en
einu sinni. Hún lifði, ef svo
mætti segja, og fann til með
persónum sögunnar, vóg þær og
mældi eftir skapgerð sinni. Og
væru bær henni að skapi, var sá
ekki með Öllu umkomulaus eða
„ber að baki“, sem átti hana að
málsvara.
Guðrún sál. var hreinskilin og
djarfmælt, og hver sem kynnt-
ist henni, hlaut að verða var
mannkostanna.
Nú er hún horfin af sjónar-
sviðinu. Öll söknum við henn-
ar og ástvinir hennar — foreldr-
ar og systkini, eiga hér eftir mik-
ið að mæla. En er það ekki
huggun „harmi gegn“, að fórn-
in til hans, sem gefur og tekur,
sé stór?
Kr. Sig.
Sannteikurinin mun gera
ybur frjálsa
(Framhald af 3. síðu) j
nái að magnast svo, að hún bæli
niður sjálfstæða hugsun fjölda
manna.
Einlægt eykst það fé, sem lagt
er til skóla í landi voru, og ein-
lægt fjölgar þeim ungu mönn-
um og konum, er ganga í skól-
ana. En er sl^ólunum nægilega
ljóst aðalhlutverk sitt? Og verða
þeir til þess að auka hið andlega
frelsi einstklinganna eða til
þess gagnstæða? Ef.skólarnir
skilja ekki aðalhlutverk sitt og
ef þeir stuðla ekki að því, að
nemendur þeirra magni það í
sér, sem er aðalsmerki mann-
anna fram yfir dýrin, þá er því
fé á glæ kastað, sem varið er til
þeirra. En vonandi skilja skól-
arnir hlutverk sitt.
Ég get ímyndað mér, að sumir
álíti, að skólarnir muni magna
múghugsunina, þar sem þeir
kenna öllum hinar sömu náms-
greinar. En viðfangsefni skól-
anna og námsgreinar þeirra
eiga að vera til þess að gefa öll-
um mönnum sömu möguleika til
þroskunar og gera þá hæfa til
þess að verða sjálfstætt hugs-
andi menn. Eins og leikfimi og
sund styrkir líkama þeirra, er
það iðka, en gerir þá samt ekki
líkari hvern öðrum, þá eru hin-
ar bóklegu námsgreinar nokk-
urs konar andleg leikfimi, er
þjálfar hugsun manna, og eiga
að vera til þess að gera menn
hæfari til þess að hugsa sjálf-
stætt, hæfari til þess að ganga
sannleikanum á hönd, hæfari
til þess að verða andlega frjáls-
ir, hæfari til þes að forðast múg-
hugsunina og múgæsingarnar.
Að hvað miklu leyti skólunum
tekst þetta læt *ég ósagt, en
þeim tekst það sjálfsagt mis-
jafnlega, en þetta þarf að verða
og á að vera höfuðhlutverk
þeirra, eða að minnsta kosti er
það svo frá minuní sjónarhóli
séð.
Kæru gagnf ræðingar! Vegir
ykkar og okkar kennara ykkar
skiljast nú. Við kennararnir
sitjum eftir við sömu störf og
áður, en þið leitið inn á nýjar
leiðir og farið að fást við ný við-
fangsefni og setjið ykkur ný
takmörk til þess að stefna að.
Við, kennarar ykkar, væntum
hins- bezta af ykkur. Væntum
þess, að þið verðið dugandi
menn og konur, og við þykjumst
hafa nokkra ástæðu til þess að
vænta að svo verði. Og um leið
og ég kveð ykkur og óska ykkur
alls velfarnaðar í framtíð, þá
bið ég þess fyrst og fremst, að
þið verðið frjáls alla ykkar ævi.
Ég bið ykkur til handa ekki ein-
göngu, að þið lifið í frjáísu þjóð-
félagi, er búi til frjálslynd lög,
heldur að þið verðið fyrst og
fremst andlega frjáls og þið
jafnan reynið að leita hins rétta
og sanna; að þið verðið sann-
leikans þjónar. En til þess að
þetta vérði, þá verðið þið að
treysta ykkur ájálfum, magna
dómgreind ykkar og hugsa sjálf-
stætt.
„Að heilsast og kyeðjast, það
er lífsins saga“, sagði skáldið og
vitmaðurinn Páll Árdal. Þetta er
hin gamla og nýja saga. Þetta
er eitt af lögmálum lífsins, er
við verðum að hlýta.
Ég kveð ykkur, ungu gagn-
fræðingar, með þeirri ósk, að
sannleikurinn megi gera ykkur
frjálsa.
Kveðja
til
SVEINS HANISJESSONAR
/ i
frá Elivogum.
„Motto“:.
„ Váhúm felur vininn minn, .
vann það Hel — í togum.
Parðu vel, í síðsta 'sinn,
Sveinri frá Elivogum.
■ «
Mæti drengur, fallinn frjáls,
— fást þar engar bætur.
Klökk, við strengi stuðlamáls,
stakan lengi grætur. s
Eldmóðskyngi í orðum barst,
— ófst þig kringum Ijómi.
Á skáldaþingum skærstur varst
Skagfirðinga sómi.
Fyr og síðar móðurmál,
meitlaðir víða, lengi.
Áttir blíðu innst' í 'sál,
— engilþýða stre^igi.
Vinur söngs! Af hatursher
hafðir ströngust kynni.
Kjörin þröngu í heimi hér
háðu göngu þinni. *
Óður þrunginn að þér reið
oft, — frá þungu sinni.
Andsvarsstungan eitursveið'
undan turigu þinni.
0
Brags við sálma baðst þér hljóös
i—■ blikskær málmur sannar—.
Bitrar skálmar brýndir Ijóðs,
Bólu-Hjálmar annar.
Ortir hárt og eftir vild.
Óðs á bjartri línu
lengi sk^rtar leiknhog snilld,
— lýsir hjarta þínu.
Eftir él um æviskáið
óðs við dvelur loga.
Ber þig Hel, á hinztu leið,
heim — til Elivoga. '
Myrkri þakinn minni sýn,
— moldu rakað yfir.
Mætust vákir minning þín
meðan ’ stakan lifir.
S. Stefánsson
(Skagfirðingur).
Skíéíxa.verksBffiídjan
Eðunn
framleiðir
SÚTUÐ SKIAj\ OG LEÐUR
eimfremur
íDína iamlskoEiimi,
. \ '.
naaarskó
Kaupmen
Kaupfélög
Getum útvegað flestar erlendar vörur.
Söluumboð fyrri verksmiðjuna Magna h.f., sem v framleiðir
flestar sportvörur.
Leitið upplýsinga' hjá oss áður en þér festið kaup
annars staðar.
Uinboðs* og’ lieildverzlun, Þinglioltsstræti 23
Sími 1707. Reykjavik.
Jóh. Karlsson & Co.
Bófusetninga-,
sprautur w-)
sem stilla má, '
sérstaklega vandaðar kr. 15,00
hólnálar, ryðfríar — 1,00
varagler — 2,50
Sendum um land allt.
Seyðisfjjsrðar Apótek.
Þurrkaður og pressaður
SALTFISKUR
ódýr og góður, í stærri og
minni kaupum.
Rafliði Raldvinssoii
Sími 1456. — Hverfisg. 123.
Vlnnið ötullega tgrir
Tímann.
Mjólkursamsalan
tilkynnir
Skrifstofur vorar eru
fluttar í Mjólkurstöðv-
arbygginguna, nr. 162
við Laugaveg.
Stúlku vantar
í borðstofu starfsfólks á Kleppi. — Upp-
lýsingar hjá ráðskonunni. Sími 3099 eða í
skrifstofu riliisspitalanna, sími 1765.
ORÐSEADIIVG TII, KAUPENDA TÍMAAS.
Ef kaupendur verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru þeir vin-
samlega beðnir að gera afgreiðslunni þegar aðvart.
\ \