Tíminn - 28.08.1945, Side 1

Tíminn - 28.08.1945, Side 1
RIT3TJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARIN88ON. ÚTOEPPANDI: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Slmar 2363 0« 4373. PRENTSMHWAN EDDA hX. RITSTJÓRASKRIPSTOFUR: EDDUHÚSI. Llndargötu 9A. Símar 2353 0« 4373. APGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIPSTOPA: EDDUHÚSI, Llndargötu 9A. Síml 2323. 29. árg. Kevkjavík, þriðjudag'inn 28. ágúst 1945 Eiga togarafálögin ekki að nota skatthlunnindaféð til skipakaupa? Ríkisstjórnin ákveður að taka 60 millj. króna ríkislán til þess að kaupa togara. • 64. blað Landbúnaðarráðh. hefir notað rangfeng- ið vald sitt til að skipa búnaðarráðið Síðastl. fimmtudag gaf ríkisstjórnin út bráðabirgðalög, sem heimila henni að taka allt að því 60 milj. kr. lán, sem verði varið til þess að smiða erlendis 30 togara. Lög þessi rökstuddi stjórnin með því, að hún hefði útvegað sér tilboð frá fimm brezkum skipa- smíðastöðvum um smiði 30 togara og áliti hún nauðsynlegt að ganga strax frá samningum við þær. Stjórnin upplýsti þó jafn- framt, að samningarnir tryggðu ekki, að öll þessi skip fengjust, þar sem enn hefði ekki fengizt byggingarleyfi brezkra stjórnar- valda, nema fyrir 6 togurum. Fáist þetta leyfi fyrir öllum skip- unum, eiga þau að vera tilbúin fyrir mitt ár 1947. Stærð þeirra verður frá 140—170 fet og verð þeirra stærstu frá 1.8—1.9 milj. kr. Um það mun ekki verða deilt, að nauðsynlegt er að endurnýja togaraflotann. Hins vegar er það meira en vafasamt að ætla að gera það nær eingöngu á tveim- ur fyrstu árunum eftir striðið meðan skipaverðið er hæst og framfarir þær, er munu verða á því sviði, eru ekki komnar í framkvæmd, nema að litlu leyti. Fer ekki hjá því, að endurnýjun togaraflotans undir þeim kring- umstæðum hlýtur að fylgja mjög veruleg áhætta, sem ríkið eitt er látið taka á sig með þeirri tilhögun, sem hér er höfð. Það kann að vera rétt, þótt ekki sé það trúlegt, að þess hafi verið krafizt, að rikið væri samnings- aðilinn af hálfu fslendinga, en þótt svo hafi verið, þurfti ríkið engan veginn að taka eitt á sig áhættuna, sem þessu var sam- fara. Áður er ríkið gekk frá samningunum átti það að vera búið að gera ítrustu ráðstafanir til að tryggja sér kaupendur að skipunum hér innanlands. Slíkt var ekki síður nauðsynlegt en að leita tilboða erlendis. En þetta virðist alveg hafa verið vanrækt og ríkisstjómin lætur ríkið taka á sig ábyrgðina við skipakaupin, án nokkurrar tryggingar fyrir því að geta selt þau aftur. Þessi vanræksla ríkisstjórnar- innar verður enn óafsakanlegri þegar þess er gætt, að á undan- förnum árum hafa togarafélög- in notið stórfelldra skatthlunn- inda til að safna nýbyggingar- •og varasjóðum. Það var lág- markskrafa, að ríkisstjórnin tryggði, að félögin notuðu þetta fé til umræddra skipakaupa og upphæð lánsins, sem ríkinu er ætlað að taka, yrði lækkuð að sama skapi. Með því fyrirkomulagi, sem hér er haft, virðast stórgróða- félögin alveg losuð undan þeirri skyldu að nota sjóði sína strax til skipakaupa, heldur geta þau látið þá ónotaða eins lengi og þau lystir. Tækist illa með fyrstu skipakaupin, sleppa þau við alla áhættu og ábyrgð, en tjónið lendir á ríkinu einu. Þessi óheilbrigða tilhögun skipakaupanna þarf þó ekki að undra neinn, þegar litið er á samsetningu ríkisstjórnarinnar. Þar ráða kommúnistar og Kveld- (Framhald á 8. tiOu) ___________________________________________~í--------- Sýnishorn VIII. Barátta Úlafs Thors gegn dýrtíðinni Hver treystlr slíknm mannl? Sjálfstæðisflokkurinn taldi verndun krónunnar vinsælt mál fyrir síðustu kosningar. Morgunbl. sagði 6. okt. 1942: „Dýrtíðin innanlands setur íslenzku krónuna í hættu. Eitt megin áhugamál og stærsta verkefni er því nú að slá skjald- borg um íslenzku krónuna og stöðva þau öfl, sem setja hana í hættu. Við verðum að koma í veg fyrir það, AÐ KOMMÚN- ISTAR FELLI ÍSLENZKU KRÓNUNA MEÐ ÁBYRGÐAR- LAUSUM ÁRÓÐRI.“ Nú hjálpast Sjálfstæðismenn og kommúnistar til að verð- fella krónuna í góðri samvinnu. Forustan fyrir verðfelling- unni er hjá Ólafi Thors, sem sagði 19. des. 1942: „Sjálfstæðisflokkurinn heíir frá öndverðu skilið böl vaxandi dýrtíðar. Hann hefir séð og sagt fyrir hvert stefndi, ef ekki yrði aðhafzt". Og þessi var „stefnan“ 26. marz 1943 að dómi Morgunbl,: „Þungamiðja dýrtíðarinnar er þetta tvennt: Annars vegar kaupgjaldið, hins vegar verðíag innlendra afurða. Hér þarf að koma á samræming, finna rétt hlutfall milli kaupgjalds og afurðaverðs. Þetta er fyrsta skrefið. Svo er að þoka dýrtíðinni niður með sameiginlegu átakl“. Hér var ekki um að villast hvað gera bæri. Og „hlutfallið“ fannst. En þá var „kollsteypan“ tekin fram yfir skynsam- samlega leið. Ólafur hnekkir þessu öllu í ræðu 6. des. 1044, þar sem hann segir: „Það er engin sanngirni að ráðast á þá lægst launuðu og heimta, að þeir lækki kaup og kjör sfn, meðan aðalframleiðsia þjóðarinnar ber sig sæmilega, og áður en hin nýja tækni hefir tekið til starfa og reynslan hefir fellt um það sinn dóm, hvort með henni verði ekki auðið að halda uppi óbreyttu kaupi, ENDA ÞÓTT VERÐLAG FRAMLEIÐSLUNNAR FALLI. Krafan um kauplækkun er fyrir það bæði ósanngjörn og óskynsam- leg“. Hér er Ólafur orðinn fullkomin málpipa kommúnista. ATTLEE FORSÆTISRÁÐHERRA Mynd þessi er af Clemcnt Attlee, hinum nýja forsætisráðherra Breta. Attlce er kominn af efnuðu fólki. Hann fylgdi íhaldsflokknum að málum á skóla- árum sínum, en síðar komst hann í kynni við ýmsa sósíalista og gekk í Verka- mannaflokkinn. Hann settist þá að í einu af fátækrahverfum Lundúna og vann þar mikið starf í þágu verkamanna þar. Hann gerðist sjálfboðaliði, þgar fyrri heimsstyrjöldin hófst, 'og þótti hugrakkur hermaður. Hafði hann hlotið majórstign, er stríðinu lauk. Nokkru síðar var hann kosinn á þing' fvrir Verkamannaflokkinn og gegndi ráðherrastörfum í ráðuneyti Mac Donalds 1924 og 1929—31. Hann snerist gegn Mac Donald, þegar hann myndaði þjóð- stjórnina 1931 og 1935 var hann kjörinn formaður þingflokks Verkamanna- flokksins. Var þá talið, að hann ætti þá tign að þakka ágreinipgi þeirra Morrisons og Greenwoods, er börðust um hana og þóttu þó báðir betur til for- ustu fallnir. En Attlee hefir stöðugt unnið sér aukið fylgi og þeim röddum hefir stöðugt fækkað innan Verkamannaflokksins, sem hafa krafizt að skipta um forustu. Attlee er sérstaklega viðurkenndur fyrir hreinskilni sína, sam- vizkusemi og lægni í samningum. Meðal andstæðinga sinna nýtur hann líka mikils trausts og munu íhaldsmenn sennilega ekki treysta Öðrum foringja Verkamannaflokksins fremur en honum til þess að rasa ekki um ráð fram. Attlee er nú 62 ára gamali. Merkilegur fornleifafund ur á Hrunamannaafrétti Grafuar upp rústlr, sem eru eugu ómerkari en rústirnar að Stöiijí í Þjórsárdal í jarffabók Árna Magnússonar og Páis Vídalíns er getiff margra eyffibýla á Hrunamannafrétti, og munnmæli eru til um mikla hyggff á þessum slóffum, er til forna hafi náð allt inn undir Keri- ingarfjöll. Enn eru kunnar með nöfnum sumar rústir þessara fornu bæja. Fram aff þessu hafa þó engar rannsóknir fariff fram á þessum rústum. En nú síðastliffna viku vann flokkur manna undir forustu Kristjáns Eldjárns magisters aff uppgreftri rústa aff Þórarinsstöffum þarna á afréttinni. Voru samstarfsmenn hans dr. Jón Jóhannesson dósent, Magnús G. Jónsson menntaskóla- kennari og Bjarni Vilhjálmsson cand. mag. , auk þess sem dr. Sigurffur Þórarinsson jarfffræffingur brá sér einnig þangaff upp eftir. Blaðið hefir haft tal af dr. Jóni Jóhannessyni, og sagðist honum svo frá starfi þeirra fé- laga og árangrinum af því: — Við unnum heila viku að upþgreftri að Þórarinsstöðum, en þangað er fimm klukku- stunda lestagangur frá Tungu- felli, sem nú er efsti bær í Hrunamannahreppi. Hefir bær- inn staðið í wug á. Stangará, beint suður af Bláielli, og er þaðan fögur útsýn og fjallahring urinn svipmikill. Árangurinn af starfi okkar varð næsta merki- legur, því að þarna grófum við upp rústir, litlu eða engu ómerk- ari en þær, sem grafnar voru upp að Stöng i Þjórsárdal sum- árið^l939. Húsarústir þær, sem við fundum, voru rústir að skála, stofu, búri, fjósi, hlöðu, hesthúsi og fjárhúsum. Hafa þetta á sín- um tíma verið hin vönduðustu mannvirki. Voru í skála svefn- bálkar meðfram báðum lang- veggjum og eldstæði á miðju gólfi, eins og títt var til forna. í búri höfðu verið niðurgrafnir tveir sáir, líkt og var í Stöng, annar mjög stór. Fjósið var tví- sett og tók tólf nautgripi. Var flórinn hellulagður út úr dyrum og hellur reistar upp á rönd milli básanna. Út frá fjósinu hefir annars vegar verið heyhlaða, að okkur virtist, fremur en hey- garður. Er hér um merkilegt (Framhald á 8. siOu) Bændur verða að veita búnaðarráði sem öfiugast aðhald með því að efla stéttarsamtökin Landbúnaðarráðherra hefir nú birt nöfn þeirra manna, sem hann hefir skipaff í búnaðarráff. í greinargerð ráffherrans fyrir bráffabirgffalögunum, er áherzla lögff á þá blekkingú, aff völdin séu lögff í hendur bænda, þótt raunverulega séu þau öll af þeim tek- in og lögff f hendur ráffherrans. Svipaffri blekklngu er beitt viff skipun rácfcins, því aff innan um eru þar nokkrir menn, sem hægt er aff bera traust tii, en meirihlutinn er bersýnilega valinn þannig, aff stjórnin geti treyst honum sem verkfæri. Enn er þó ekki fullreynt, hvort stjórninni tekst þaff, því aff öflug samtök bændanna ætti aff geta skapaff þýffingarmikiff aðhald. „Kóngsfulltrúarnir“ aftnrgengnir. Áður en rætt verður um skip- un sjálfs ráðsins, þykir rétt að vekja athygli á því, er hér skipt- ir meginmáli, sem er það, að bændastéttinni er sýnt ofbeldi og hún forsmáð með þessum aðgerðum. Þetta er hliðstætt þvi, þegar konungsvaldið setti menn til að sitja á Alþingi, sem það ákvað að skyldu vera full- trúar þjóðarinnar. Búnaðarfé- lagið og Búnaðarþingið er helzti og virðulegasti -félagsskapur elztu og þrozkuðustu stéttar þessa þjóðfélags. Það er full- trúasamkoma bænda, hliðstætt Alþingi sem fulltrúasamkomu þjóðarinnar. Ofbeldið gagnvart bændastéttinni er á vissan hátt hinir konungkjörnu menn aft- urgengnir og hliðstæða þess, að ríkisstjórnin tæki upp á þvi að velja 52 þingmenn, sem skyldu vera fulltrúar þjóðarinnar og ráða málefnum hennar í stað Alþingis. Með því hefði hún skipað * fulltrúasamkomu fyrir allar stéttir, sem hún hefir nú gert í mesta hagsmunamáli bændastéttarinnar einnar. Skipun ráðsins. Landbúnaðarráðherra hefir skipað búnaðarráð þannig, að þar eiga sæti 19 sjálfstæðismenn, þrír kommúnistar og þrír Fram- sóknarmenn. Enginn Framsókn- armannanna er bóndi og sýnir það bezt, hversu óhlutdrægur og heiðarlegur ráðherrann er, eða hitt þó heldur, að hann skuli engan tilnefna úr þeim flokki, sem er lang .fjölmenn- astur meðal bændastéttarinnar. Yfirgnæfandi meirihluti bænda- stéttarinnar er þannig hundsað- ur bersýnilega vegna þess, að hann fylgir ekki ráðherranum í stjórnmálum. Ráðherrann er hér bæði að fylgja fordæmi frá einræðisríkjunum út í ystu æsar og eins mun þetta eiga að vera herbragð til að torvelda einingu bændastéttarinnar um stéttar- málin með því að skipta henni þar í pólitíska flokka. En bænd- ur munu áreiðanlega sjá við því, og láta þetta herbragð fullkom- lega misheppnast. Um nokkra af þeim Sjálfstæð- ismönnum, sem valdir hafa verið í ráðið, er ekki nema gott að segja. Því má vafalaust treysta, að þeir munu gera sitt bezta til að gæta hagsmuna bænda þar. Meirihluti þeirra hefir hins vegar reynst veikur fyrir hingað til, þegar flokksforusta Sjálf- stæðisflokksins hefir verið ann- ars vegar og er bersýnilegt, að landbúnaðarráðherrann treystir þvi, að svo muni enn reynast. En það er þó enn ekki fullreynt í þessu máli, enda mun það geta farið talsvert eftir því aðhaldi, sem bændastéttin veitir þeim. Það, sem mesta furðu vekur þó í sambandi við skipun ráðsins, er tilnefning kommúnistanna þriggja, en erfitt mun að finna öllu fleiri kommúnista í bænda- stéttinni. — Sú skipun hlýtur til dæmis að vekja athygli að skipa Skúla á Ljótunnarstöðum fulltrúa fyrir Strandasýslu og Gunnar í Grænumýrartungu sem varamann hans! Skipun kommúnistanna í búnaðarráðið er ein bezta sönnun þess, hvort ráðherrann hefir tilnefnt menn í það til að tryggja bændahags- munum þar meirihluta, og hversu mikið tillit hann tekur til vilja bændastéttarinnar. Ráðherrann virðist líka hafa ýms önnur sérkennileg sjónar mið, þegar hann skipaði búnað- arráðið. T. t. um það bil helm- ingur af hinum ,,konungkjörnu“ vilja ekki verzla við kaupfélögin og eru þeim óvinveittir ,og virð- ist það vera sérstakur kostur í augum landbúnaðai’ráðherra. Eru þetta þó fremur vandfundn- ir menn. því að yfir 80 a'f 100 ís- (Framhald á 8. síðu) | Mótraæli Vestur-1 j ísfirðinga | Á fulltrúafundi búnaðar- ! félaganna í Vestur-fsa- f fjarðarsýslú, sem haldinn f var til aff kjósa fulltrúa á i stofnfund stéttarsambands j bænda, var samþykkt svo- | hljóðandi tillaga einum i rómi: „Fuiltrúafundur Búnað- arfélaganna í Vestur-ísa- fjarðarsýslu, haldinn í Neðri Hjarffardai 26. ágúst 1945, mótmælir eindregiff bráffabirgffalögum um verff lagningu landbúnaffaraf- urffa frá 20. ágúst síffast- j liffnum og skipun búnaff- j arráðs 25. sama mánaffar. j Telur fundurinn lög þessi og skipun ráffsins óverð- ! skuldaff gerræffi, sérstak- ! lega meff tiiliti til sam- f þykktar nýafstaðins Bún- | affarþings og fyrirhugaffs j stofnfundar stéttarsam- j bands hænda 7. September í næstkomandi.“ Bændur í hinu gamla j kjördæmi Jóns Sigurffs- j sonar hafa þannig orffiff | fyrstir til aff ríða á vaffiff 1 og mótmæla ofbeldinu f gegn bændastéttinni. Vissu j lega munu þeir ekki verða f einir um þau mótmæli.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.