Tíminn - 12.10.1945, Blaðsíða 7
77. blað
TÓ1IT\:V. föstmlagiim 13. okt. 1945
A VIÐAVANGI
(Framhald af 2. siOu)
því, að Tíminn skyldi ljóstra
upp, að Jakob Möller varð sendi-
herra í Kaupmannahöfn fyrst
og fremst af þeirri ástæðu, að
hann vildi yfirgefa hið sökkv-
andi skip Sjálfstæðisflokksins
og ekki verða neitt kenndur við
ósigur hans í næstu bæjar-
stjórnarkosningum í Reykjavík.
Skrifar Bjarni um þetta langt
mál í „Fjær og nær“-pistlum
sínum í seinasta miðvikudags-
blað Mbl og telur það ganga
landráðum næst, að gagnrýna
skipun manns í sendiherraem-
bætti. Eftir þessu að dæma,
mætti ráðherra skipa hvaða
mann í sendiherraembætti, sem
væri, án þess að þjóðin mætti
nokkuð við því segja, þótt þetta
sé ein veigamestu embætti
hennar. Geta allir séð, hvílík
firra það er, enda tiðkast það í
öllum lýðræðislöndum, að sendi-
herratilnefningar séu gagn-
rýndar. Seinast í sumar gagn-
rýndu t. d. mörg frönsk blöð
veitingu stjórnarinnar á sendi-
herraembættinu í Stokkhólmi.
Þá er slik gagnrýni algeng í
Bandaríkjunum, þar sem póli-
tískir menn eru skipaðir í sendi-
herrastöðurnar, og á sínum tíma
var það mjög gagnrýnt í Bret-
landi, er Samuel Hoare var lát-
inn vera sendiherra Breta á
Spáni.
Bjarni ætti hvorki i þessm
eða öðrum efnum að troða upp
sem kennari í lýðræðisreglum.
Fortið hans er ekki slík og hann
getur ekki heldur með þessu
þaggaö niður gagnrýnina á því,
að gamall og starfslítill maður
var gerður að sendiherra í
Kaupmannahöfn, þegar mikið
reið á að senda þangað röskan
mann. Slík viðleitni Bjarna
verður aðeins til að auglýsa
það enn betur, að Jakob fór til
Danmerkur vegna þess, að hann
vildi hafa yfirgefið skip Sjálf-
stæðisflokksins áður en flokkur-
inn tekur að sökkva undan af-
leiðingum sviksemi sinnar á
undanförnum árum.
Lélegur málstaður.
Það sést bezt á forustugrein
Mbl. síðastl. þriðjudag, hversu
litlar afsakanir forkólfar Sjálf
stæðisflokksins geta fært fyrir
framkomu sinni í verðlagsmál-
um landbúnaðarins. Þar er því
gripið til þess ráðs að snúa út
úr ummælum Dags. Dagur sagði
um ákvörðun kjötverðsins 27.
f. m., að með því væri gengið á
hlut neytenda og verðið til
bænda væri mun lægra 'en það
ætti að vera. Mbl. spyr síðan,
hvernig Dagur ætli að samrýma
það, að kvarta bæði yfir ofháu
verði til neytenda og oflágu verði
til bænda. Þessa niðurstöðu fær
Mbl. með því að leyna þeirri
forsendu Dags, að hlutur neyt-
enda væri ekki fyrst og fremst
skertur með því, að verðið væri
ofhátt, heldur með hinu, að þeir
fengju ekki, nema nQkkurn
hluta af verðinu tekinn inn í
vísitöluna.
Með því að byggja aðalvörn
sína á slíkum útúrsnúningum,
sýnir Mbl. bezt, hve aumur er
málsstaður stjórnarinnar í
þessum efnum.
Vantrúin á stjórnina.
í umræðum í neðri deild á
mánudaginn, taldi Jóhann Þ.
Jósefsson það helztu ástæðuna
til þess, að menn þyrðu ekki
enn að kaupa bátana, sem
stjórnin hefði í smíðum innan-
lands, að verð þeirra væri háð
dýrtðarvísitölunni. Það myndi
hækka, ef vísitalan hækkaði
meðan þeir væru í smíðum.
Sýnir það bezt, að menn treysta
stjórninni illa til að halda dýr-
tíðinni í skefjum, ef þeir setja
þetta fyrir sig. Jafnframt er
þetta gott dæmi um þá óvissu
og öryggisleysi, sem núv.
stjórnarstefna skapar.
Það er á fleiri sviðum en
þessum, sem vantrúin á stjórn-
ina er áberandi. Fjölmargir
neytendur í stjórnarflokktium
fara^ekki dult með þá skoðun,
að þeir muni verða með einum
eða öðrum hætti sviknir um
kjötstyrkinn og þess vegna þori
þeir ekki annað en að draga
úr kjötkaupunum. Vantrúin á
rikisstjórnina gerir vissulega
mikið til að skapa það öng-
þveiti, sem nú er ríkjandi í dýr-
tíðarmálunum.
Ýmsar fréttir í stuttu máli
Fyrir skömmu voru opnuð í
skrifstofu flugmálastjóra tilboð
í flugvallargerð í Vestmanna-
eyjum. Tilboðin voru þessi:
Helgi Benónýsson kr. 738.600,-
00, Höjgaard & Schultz A/S. kr.
1.197.960.00, Ingólfur B. Guð-
mundsson h.f. kr. 1.351.520.00,
H/F. Virki kr. 1.437.300.00. —
Ákveðið hefir verið að taka til-
boði Höjgaard & Schultz. \
Fyrir nokkru var stofnað i
Skagafirði Samband nautgripa-
ræktarfélaga, sem nær yfir 7'
hreppa. Þegar hefir verið ákveð-1
ið að sambandið ráði til sín
sérstakan ráðunaut, er annist
leiðbeiningar á sambandssvæð-
inu.
Tveimur prestskosningum er
nýlokið. í Flateyj arprestakalli
fékk Lárus Halldórsson, sem var
eini umsæicjandinn, öll greidd
atkvæði, 82, en 168 manns voru
á kjörskrá. í Mælifellspresta-
kalli fékk Ragnar Benediktsson,
sem var eini umsækjandinn, 31
atkv. af 47 sem voru greidd, en
199 manns voru á kjörskrá. Báð-
ar kosningarnar voru ólög-
mætar.
Forseti íslands hefir sam-
kvæmt tillögu Orðunefndar
sæmt eftirtalda menn hinni ís-
lenzku fálkaorðu:
Erik Joseph Philip, ritara
konunglega tekniska háskólans
í Stokkhólmi, stórriddarakrossi
hinnar íslenzku fálkaorðu.
Harald Sigmar forseta evang-
elisk-lútherska kirkjufélagsins í
Vesturheimi, riddarakrossi hinn-
ar íslenzku fálkaorðu.
Síðastl. föstudagskvöld brann
sumarbústaðurinn Urðarbraut
4, í Smálöndum við Grafarholt,
til kaldra kola á um það bil
hálftíma. Litlu sem engu var
bjargað.
Ekki tókst að ná sambandi
við slökkviliðið, fyrr en húsið
var brunnið. Er eldurinn kom
upp var enginn í húsinu. Eig-
andinn, Bóas Emilsson, var að
vinna skammt frá. Kona hans
og barn voru ekki heima.
J. Magnús Bjarnason
(Framhald af 4. síðu)
barnslegt. Ýmis konar viður-
kenningu hlaut hann fyrir verk
sín. Þjóðræknisfélagið veitti
honum árlega fé úr rithöfunda-
sjóði, Á sjötugsafmælinu, 1937,
gáfu Vestur-íslendingar honum
stórgjafir, en samsætisboð þáði
hann ekki. -Bæði var heilsan
orðin tæp og manninum óljúft,
að koma opinberlega fram. —
Alþingi íslands veitti honum
nokkurn skáldastyrk um skeið.
Einhver ritlaun hefir hann að
sjálfsögðu fengið síðustu árin,
sem h'ann lifði, en mestan hluta
ævinnar voru þau^annað hvort
lág eða engin. En Magnús gekkst
ekki fyrir peningunum. Hann
var einn þeirra, sem af innri
þörf og af áhuga á íslenzkri
menningu vann störf sín. Senni-
lega eigum við eftir að sjá ýmis-
legt nýtt frá hans hendi, því
að ósleitilega vann hann til
hinztu stundar. Magnús. vildi
ekki láta neitt frá sér fara, sem
ekki væri fágað og prýtt, svo
sem bezt mátti vera. Rithönd
hans var t. d. ein hin fegursta,
sem ég hefi séð.
Ég geri það stundum mér til
gámans, að aka í huganum fram
og aftur um Vatnabyggðirnar,
virða fyrir mér sérkennilega eða
hlýlega staði og líta heim til
gamalla vina. Þessar ferðir mín-
ar eru ekki bundnar við það,
hvernig þar er umhorfs nú,
heldur það, sem var. Þess vegna
held ég áfram að heimsækja
þau Magnús og Guðrúnu í Elfros.
En um langan aldur munu ís-
lendingar vestan og austan
hafsins njóta góðs af verkum
þeim, sem unnin voru á heimil
inu þeirra.
Bdkamenn! Bókamenn!
f
Ennþá gefst yður kostur á að
eignast eftirtaldar úrvalsbækur:
Skemti- ogfræöibækur:
Sjómannasaga, Vilhj. Þ. Gíslason, skinnb.. 125.00
Minningar, Sig. Briem, skinnb............. 85.00
Byggð og Saga, prófv Ólafur Lárusson, skinnb. 65.00
Byron, André Maurois, skinnb.............. 85.00
Friðþjófssaga Nansens, Jón Sörensen, skinnb.. 76.00
Endurminningar um Einar Benediktsson ..... 50.00
Kristín Svíadrottning, Frederick L. Dumbar, heft. .. 32.00
Stýrimannaskólinn í Reykjavík 1891—1941, heft . . 15.00
Úr byggðum Borgarfjarðar, Kristl. Þorsteinsson, skb. 70.00
Saga Eiríks Magnússonar, dr. Stefán Einarsson .... 8.00
Sindbað vorra tíma ......,................. 28.00
Frekjan, Gísli Jþnsson ................... 15.00
Huganir, dr. Guðm. Finnbogason ........... 50.00
Samtíð og saga I, heft ...................... 12.00
Samtíð og saga II, heft ..................... 16.00
Endurminningar Jóns frá Hlíðarenda, heft.../.. 4.00
Frá ystu nesjum II., Gils Guðmundsson, heft... 18.00
ísl. sagnaþættir og þjóðsögur III, IV, V, Guðni Jónss. 12.00
Rauðskinna II, Jón Thoroddsen, ................ 6.00
---- IV, —— ................... 6.00
---- V, ...................... 12.00
Sagnir og þjóðhættir Odds Oddssonar frá Eyrarb, .. 12.00
Skrítnir náungar, Hulda, innb................. 10.00
Ljóðabækur:
Ég ýti úr vör, Bjarni M. Gíslason, ib......... 8.00
Úrvalsljóð, Kristján Jónsson, skinnb.......... 25.00
— Jón Thoroddsen, skinnb............. 25.00
— Stephan G. Stephansson, ................. 25.00
Kertaljós, Jakobína Johnsson, skinnb.......... 10.00
Kvæði II, Halla frá Laugabóli, heft .......... '5.00
Ljóðmæli, dr. Björg C. Þorláksson, innb....... 8.00
Ljóð, Guðfinna frá Hömrum sk. b............... 10.00
Ljóðasafn I—III Guðm. Guðmundsson shirt....... 75.00
Ljóð og lausavísur, Þórður Einarsson, heft.... 10.00
Mánaskin, Hugrún, sk.b........................ 10.00
Sólheimar, Ijóð, Einar Páll Jónsson, ib. ..... 25.00
Stjörnublik; Hugrún, ib....................... 10.00
Söngvar dalastúlkunnar, Guðrún Guðmundsd...... 15.00
Blessuð sértu sveitin mín, Sig. Jónss. frá Arnarvatni,. 20.00
Utan af víðavangi, Guðm. Friðjónsson, ib...... 16.00
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
ísafoldarprentsmiðja h.f. Reykjavík
Sími 3048
Erlent yfirlit
(Framhald af 2. slOu)
\
bandalagshugmynd hefir mjög
aúkizt fylgi eftir utanríkisráð-
herrafundinn. Það getur því
hæglega farið svo, ef Rússar
verða áfram eins ósamvinnu-
þýðir og nú, að Bandaraenn
leysi málin í VesturEvrópu án
samráðs við Rússa, eins og Rúss-
ar hirða ekki um samráð við
þá í Austur-Evrópu, og upp úr
því rísi bandalag ríkjahna í
Vest.ur-Evrópu. Slaki Rússar
hins vegar til, munu Banda-
menn vilja heldur leysa þessi
mál á grundvelli alþjóðasam-
vinnu. Rússar ráða þannig
mestu um það, hvort úr al-
þjóðlegri samvinnu verður, eða
ríkin skiptist í meira og minna
óvinveitt bandalög, er heims-
friðnum getur stafað hætta af.
Frumsamið:
Á förnum vegi, Stefán Jónsson, ib............ 10.50
Arfur, Ragnheiífur Jónsdóttir, ib.......... 12.50
Evudætur, Þórunn Magnúsdóttir, ib.......... 32.00
Fólkið í Svöluhlið, Ingunn Pálsdóttir frá Akri, ib. ... 12.00
Frá liðnum kvöldum, Jón H. Guðmundsson, ib... 4.50
Hafið bláa, Sig. Helgason, ib............... 25.00
Heldri menn á húsgangi, Guðm. Daníelsson, ib. 25.00
Nýjar sögur, Þórir Bergsson, ib.............. 55.00
Samferðamenn, Jón H. Guðmundsson, heft....... 12.00
Við sólarupprás, Hugrún, heft............... 15.00
Svart vesti við kjólinn, Sig. B. Gröndal, ib. 22.00
Barnabækur:
Bókin um litlabróðir, Gustaf af Geijerstam, ib. 12.00
Leikir og leikföng, Símon Jóh. Ágústsson, ... 3.50
Mýsnar og Mylluhjólið ........................ 5.00
Sigríður Eyjafjarðarsól ....................... 5.00
Skóladagar, Stefán Jónsson ................... 12.00
Skeljar II, Sigurbjörn Sveinsson ............. 1.25
Svarti Pétur og Sara, Hugo Fosberg .......... 10.00
Töfraheimur mauranna, Wilfrid S. Bronsson.... 15.00
Tvö ævintýri ................................. 2.50
Duglegur drengur, Bengt Nylund, .............. 12.OO
Hjartarfótur, Edward S. Ellis ................ 14.00
Meðal Indíána, Falk Ytter..................... 10.00
Strokudrengurinn, Paul Askag ................. 12.50
Hve glöð er vor æska, Frímann Jónsson, ib.... 20.00
Þýddar sögur:
Anna Farley, Guy Fletcher ................... 8.00
í leyniþjónustu Japana A. Vespa.............. 16.00
Noregur undir oki Nazismans ................. 25.00
Spítalalíf, James Harpole .................... 25.00
Þögul vitni, John Stephen Strange............ 10.00
Tamea, Peter B. Kyne......................... 12.50
í leit að lífshamingju, W. Somerset Maugham .... 10.00
Lífsgleði njóttu, Sigrid Boo ................. 23.00
Horfin sjónarmið, James Hilton ............... 30.00
Shanghai, Vicki Baum ......................... 25.00
Dragonwyck, Anya Seton ....................... 15.00
Vélgæzlumannsstaða
hjá rafmagnsveitunni er laus til umsóknar. — Um-
sóknum sé skilað fyrir 1. nóvember n. k.
. Nánari upplýsingar í skrifstofunni.
Rafmagusvelta Reykjavlkur.