Tíminn - 13.11.1945, Qupperneq 2

Tíminn - 13.11.1945, Qupperneq 2
2 TfrlTVTV. þrlðjndagiim 13. nov. 1945 86. blað Þriðjudagur 13. nóv. Húsnæðismálin Það mun almennt viðurkennt nú orðið, að það sé ein frum- skylda hvers siðaðs þjóðfélags að tryggja þegnunum viðunandi húsakynni. Bæði andleg og lík- amleg heilbrigði hverrar þjóðar er i mikilli hættu, ef stór hluti hennar býr við óviðunandi kjör í þessum efnum. Þess vegna er það sameiginlegt vandamál, sem þjóðfélagið verður að beita sér fyrir að leysa, að tryggja öllum sæmilegan húsakost. Því fer fjarri, að viðurkenn- ingin á þessu mannréttindamáli hafi fengizt baráttulaust. íhald allra landa hefir staðið sem múrveggur á móti. Fyrsta sporið, sem stigið var í þessa átt hér á landi, Byggingar- og landnáms- sjóður, sætti harðri mótspyrnu íhaldsins. Þá var mótspyrna þess gegn verkamannabústöð- unum ekki síður harðskeytt. Með lögunum um Byggingar- og landnámssjóð, verkamanna- bústaði og samvinnubyggingar- félög hefir verulegt áunnist í þá átt að bæta húsakynni lands- manna. Reynslan sýnir þó, að þörf er enn stórfelldari athafna. Þess vegna hefir Framsóknar- flokkurinn, sem upphaflega átti forgönguna um öll þessi mál, lagt fram á Alþingi tvö frv. um stórfelldar endurbætur þeirra. Fyrra frv. er um breytingar á byggingar- og landnámssjóði og seinna frv. um byggingarlána- sjóð, er veiti lán til verka- mannabústaða og samvinnu- bygginga í kauptúnum og kaup- stöðum. Verði frv. þessi sam- þykkt, myndi fást stórum meira fjármagn til þessara bygginga og lánskjörin verða hagstæðari, svo að flestir eða allir ættu að geta notfært sér þessa opinberu aðstoð til að eignast fullnægj- andi húsakynni. * Nauðsyn þessara löggjafar- endurbóta mætti vera öllum ljós. Á mörgum jörðum eru enn svo léleg húsakynni, að fólkið verður að flýja þær, ef það fær ekki meiri aðstoð til að byggja að nýju. Víða í kauptúnum er mik- ið af fullkomlega óhæfum íbúð- um og í höfuðborginni sjálfri búa þúsundir manna í her- mannaskálum og öðrum óhæf- um húsakynnum. í skjóli þess- ara húsnæðisvandræða, þrífst hið glæpsamlegasta okur. Hér er einmitt fólgin ein höfuðorsök dýrtíðarinnar í höfuðstáðnum, sem ekki verður bætt úr öðruvísi en að fólkið geti aflað sér húsa- kynna með viðráðanlegu móti. Frv. Framsóknarflokksins um byggingarmálin er því ekki að- eins menningar- og heilbrigðis- mál, heldur stór þáttur í því að gera niðurfærslu dýrtíðarinn- ar mögulega. Jafnhliða slíkum ráðstöfun- um þarf vitanlega að gera ýms- ar fleiri. Það þarf að vinna að lækkun .byggingarkostnaðarins. Að því miðar það ákvæði í bygg- ingarlánasjóðsfrv., að sjóðurinn komi sér upp teiknistofu og hafi fasta byggingameistara í þjón- ustu sinni. Þá þarf um skeið að stöðva allar luxusbyggingar og ónauðsynlegri stórbyggingar, svo að ekki verði hörgull á vinnuafli og byggingarefni með- an verið er að koma upp nauð- synlegasta húsnæðinu. Það vantar ekki, að stjórnar- flokkarnir tali mikið um þessi mál og skammi hverir annan fyrir aðgerðarleysið. En jafn sameiginlegt eiga þeir það líka að hafast ekki neitt að í þessum málum, hvorki í ríkisstjórn eða á Alþingi. Þess vegna er ástandið í þessum efnum nú stórum verra en þegar þeir tóku við völdum í fyrra. Áðurgreind frumvörp Framsóknarflokksins munu gera stjórnarflokkunum ókleift að sofa lengur í þessum málum. Þróunin erlendis Undanfarna mánuði hafa far- ið fram kosningar í mörgum löndum Evrópu. Kosningar þess- ar eru ljóst tíæmi þess, hvert þróunin stefnir í þessum lönd- um. Á ííðatiattcfi lent yfirlit Dönsku kosningarnar í ætt við Göbbels. Skrif Mbl. um stjórnarand- stöðu sýna tvennt, sem veita ber athygli. Þau sýna hina raun- ver ulegu st j órnmálaandstöðu blaðsins, sem nú er reynt að dylja með yfirlýsingum um fylgi við vestrænt lýðræði. Þau sýna líka vel, hver málstaður stjórnarinnar muni vera. Fyrst eftir að stjórnin kom til valda, hélt Mbl. því fram, að stjórnarandstaða væri raun- verulega þjóðfélagslegur glæpur. Stjórnmálaflokkarnir ættu að standa saman um ríkisstjórn, hvað sem skoðanamun liði. Þeir, sem væru í stjórnarandstöðu, brygðust skyldum sínum og væru réttdæmdir óvinir þjóðfé- lagsins. í ýmsum greinum, sem núv. forseti sameínaðs Alþingis skrifaði um þær mundir, var þessum glæpaaðdróttunum sér- staklega haldið á lofti og m. a. ymprað á því, að réttast væri að banna Tímann. Þessi fordæming á stjórnar- andstöðu, sem sór sig fullkom- lega í ætt við stjórnarfar naz- ismans og kommúnismans, fékk hins vegar engan hljómgrunn hjá þjóðinni og margir stjórn- arsinnar treystust ekki til ann- ars en að fordæma hana, eins og t. d. Guðmundur Hagalín á Akureyrarfundinum í sumar. Mbl. og fylgifiskar þess hafa því tekið upp nýja starfshætti. Þeir *eru fólgnir í því að stimpla allt, sem stjórnarandstæðingar segja og gera, siðleysi og róg og öðrum slíkum~ nöfnum. Einkum er þessum siðleysisbrigzlum beint að Tímanum vegna þess, að það hefir einkum fallið í hans hlut að gagnrýna stjórnina. Því fleiri og gildari rök, sem Tím- inn hefir fært máli sínu til sönnunar, þeim mun .fleiri og háværari hafa siðleysisbrigzl Mbl. orðið. Þetta sver sig einnig í ætt við Göbbels sáluga, er reyndi að brennimerkja gagnrýni and- stæðinganna með svipuðum að- ferðum. Siðleysisbrigzl Mbl. sýna, að ritstjórar þess hafa engu gleymt og ekkert lært síð- an þeir töldu þýzka nazismann hina miklu fyrirmynd. Hún sýnir líka hver málsstaður stjórnarinnar muni vera, þar sem aðalblað hennar getur ekki mætt gagnrýni andstæðing- anna með rökum, heldur reynir að verja sig með sömu aðferð- inni og Göbbels heitinn. Lýðræðið og aðstaða minnihlutans. Það mætti vera ljóst öllum, sem nokkuð hugsa það mál, að lýðræðið byggist á því, að minni- hlutinn hafi rétt og aðstöðu til að gagnrýna stjórnarathafnir meirihlutans. Þessa aðstöðu er hægt að eyðileggja með mörgu móti. Það er hægt með því að svipta minnihlutann alveg þessari aðstöðu, eins og gert er í þeim löndum, þar sem rúss- neska einræðið drottnar. Það er líka hægt með því, að meirihlut- inn beiti þeirri aðferð áð stimpla alla gagnrýni minni- hlutans siðleysi og róg, í stað þess að svara henni með rök- um. Því grundvallaratriði lýð- ræðisins, að málin séu rökrædd og skýrð, er þá kippt í burtu, og eftir það vill oft verða skammt til einræðisins. Fyrir alla þá, sem vilja treysta og efla lýðræðið, er því vert að veita fyllstu athygli þeim starfs- háttum Mbl., að svara stjórnar- andstæðingunum með siðleys- isbrigzlum í stað röksemda. Nái slíkir starfshættir að blómgast, án þess að vera fordæmdir af þjóðinni, er ekki víst, að lýðræð- ið eigi hér langan aldur, heldur verði það leyst af hólmi með rauðu eða brúnu eýiræði fyrr %n varir. Því aðeins verður lýðræðinu viðhaldið, að leik- reglum þess sé haldið í heiðri, en ein sú helzta eru rökstuddar og prúðmannlegar umræður um þjóðmálin. Málamyridarbarátta gegn kommúnistum. Mörgum finnst hálfbroslegt að lesa Mbl. um þessar mundir. Þar linnir nú ekki þeim skrif- um, að kommúnistar séu ein- ræðisflokkur og því verði að hindra viðgang þeirra á allan hátt. Þetta er vissulega hverju orði sannara, en það er hins vegar illa samrímanlegt þeirri yfirlýsingu formanns Sjálfstæð- isflokksins um síðastl. áramót, að framtíð lýðræðisins á íslandi byggist einkum á því, að kom- múnistar fáist til að vera í rík- isstjórninni. Það samrímist líka illa því, að sjálfstæðismenn hafa nú stjórnarsamvinnu við kom- múnista og hafa falið þeim yf- irstjórn ríkisútvarpsins og upp- eldismálanna og láta þá hafa forgönguna um hina svokölluðu „nýsköpun“ á sviði sjávarút- vegsins, sem blöð Sjálfstæðis- flokksins keppast ekki hvað sízt við að auglýsa. Slíkt miðar vissulega ekki að fylgisrýrnun kommúnista né gerir þeim erf- iðara fyrir að koma ár sinni vel fyrir borð. Sannleikurinn mun líka sá, að forkólfar Sjálfstæðisflokksins munu ekki una því svo illa, þótt kommúniátar eflist. Þeir trúa því, að eflist kommúnistar, harðni andstaðan gegn þeim og komi fyrr en síðar svartasta auð- valdinu til valda, líkt og varð á Ítalíu og Þýzkalandi á sinni tíð. Þess vegna hjálpuðu þeir líka kommúnistum til að ná yfirráð- um í verkalýðsfélögunum. Hins vegar sjá forkólfar Sjálfstæðis- flokksins, að einræðisstefna kommúnista mætir nú vaxandi andúð. Það ætla þær að reyna að nota sér með því að látast vera allra harðastir gegn kom- múnistum. En þeim mun ekki heppnast að leika þannig tveim- ur skjöldum. Þeim mun ekki takast að látast vera aðaland- stæðingar kommúnista, en vinna samhliða að þvlí- að efla þá. Kjósendur munu bæði fordæma kommúnistana og forkólfa Sjálfstæðisflokksins, sem vinna að þvi að efla þá, þótt það sé af sérstökum hvötum gert. Er nazisminn dauður? Áreiðanlega munu hin fjálg- legu skrif Mbl. nú um ágæti vestræns lýðræðis koma mörg- uin ókunnuglega fyrir sjónir. Sú var tíðin, að blaðið átti ekki mörg orð vestrænu lýðræði til varnar, en nazisminn var eft- irlæti þess og fyrirmynd. Einhverjir kunna að halda, að þetta stafi af heiðarlegum sinnaskiptum, enda sé nazism- inn dauður. Það síðara er þó vissulega mikill misskilningur. Nazisminn er dauður í bili, en auðmannastéttin er hins vegar áreiðanlega ekki af baki dottin með það að tryggja sér völdin með þvílíkum hætti. Það blæs hins vegar ekki byrlega fyrir slíkum áformum um stund og þess vegna þykir nú hyggilegast að látast vera heiðarlegur lýð- ræðissinni og tjá vestrænu lýð- ræði ást sína og umhyggju. En (Framhald ú 8. síðu) Seinast í fyrra mánuði fóru fram kosningar til Fólksþings- ins eða neðri deildar danska þingsins. Kosningabaráttan var mjög hörð og úrslitin jafnan talin tvisýn, enda urðu þau að ýmsu leyti á aðra leið en við var búizt. Niðurstaða kosninganna varð í stuttu máli þessi: Jafnaðar- menn fengu 671 þús. atkv. og 48 þingmenn, vinstri menn fengu 480 þús. atkv. og 38 þingmenn, íhaldsflokkurinn 378 þús. atkv. og 26 þingmenn, kommúnistar 255 þús. atkv. og 18 þingmenn, radikalir 167 þús. atkv. og 11 þingmenn, Dansk Samling 63 þús. atkv. og 4 þingmenn og Retsforbundet 58 þús. og 3 þingmenn. Kosningar til Fólksþingsins næst á undan þessum fóru fram 1942. Séu borin saman úrslitin þá og nú, hafa jafnaðarmenn tapað 223 þús. atkv. og 18 þing- mönnium, íhaldsmenn 48 þús. atkvæðum og 5 þingmönnum, radikalir 8 þús. atkvæðum og tveimur þingmönnum, en 'vinstri menn hafa unnið 103 þús. at- kvæði og 10 þingmenn, Dansk Samling 20 þús. og einn þing- mann og Retsforbundet 4 þús. atkv. og einn þingmann. Kom- múnistaflokkurinn var þá bann- aður. í kosningunum 1939 fengu jafnaðarmenn 64 þingsæti, í- haldsmenn 26, vinstri menn 30, radikalir 14, kommúnistar 3, Retsforbundet 3, nazistar 3 og Bændaflokkurinn 4. Síðast- nefndi flokkurinn var stór- bændaflokkur, en studdist við L. S. hreyfinguna svonefndu. Það, sem telja má athyglis- verðast við dönsku kosningarn- ar, er m. a. þetta: Jafnaðarmenn hafa misst mikið fylgi, og virðist það hafa farið til kommúnista. Tap jafn- aðarmanna má vafarlaust skýra að einhverju leyti með því, að þeir urðu að bera meginábyrgð á samvinnunni við Þjóðverja fyrstu hernámsárin, enda þótt hún væri þá almerint talin þjóð- arnauðsyn. Kommúnistar létu mikið á sér bera í frelsishreyf- ingunni og hafa vafalaust unnið á því, en fyrsta árið gengu þeir þó lengra en allir aðrir til sam- starfs við Þjóðverja, að nazist- unum undanskildum, enda var vináttusáttmáli Rússa og Þjóð- verja þá í fullu gildi. Vafaiaust hafa kommúnistar og grætt á því, að enn virðist ríkja talsverð óöld í Danmörku, en slíkt á- stand hentar þeim bezt. Það er t. d. talið, að fylgi þeirra hefði orðið ennþá meira, ef kosið hefði verið fyrr, en þá var óróinn i landinu stórum meiri. íhaldsmenn hafa tapað tals- verðu fylgi, en þeir höfðu gert sér vonir um að hagnast af íorustu Christmas Möllers. Tal- ið er, að samstarf þeirra við kommúnista hafi mjög spillt íyrir þeim og þaö hafi m. a. orðið þess valdandi, að þeir hafi misst ýmsa fylgismenn sína yfir til þeirra. Sigur vinstri flokksins, sem er bændaflokkur, mun byggjast á því, að bændur hafi talið nauðsynlegt að þoka sér saman, þar sem framundan eru harð- ar deilur um verðlagsmál land- búnaðarins. Fyrir kosningarnar lýstu jafn- aðarmenn yfir því, að þeir myndu ekki taka þátt í sam- stjórn með öðrum flokkum. Þá tóku þeir og sérstaklega fram, að þeir myndu eigi mynda stjórn með kommúnistum. Við þessar yfirlýsingar sínar stóðu þeir, er konungur sneri sér til þeirra eftir kosningarnar og fór þess á leit við þá, að þeir hefðu for- göngu um stjórnarmyndun. Konungur sneri sér því til for- ingja vinstri flokksiins, Knud Kristensen, og fól honum að mynda stjórn. Kristensen reyndi fyrst að mynda samstjórn borg- araflokkanna þriggja, vinstri manna, radikala og íhalds- manna, en bæði íhaldsmenn og radikalir skoruðust undan því. Niðurstaðan varð því sú, að Kristensen myndaði hreina stjórn. Er hann fyrsti bóndinn, sem verður forsætisráðherra í Danmörk. Um framtíð þessarar stjórnar er erfitt að segja á þessu stigi, en hún getur orðið völt í sessi, þar sem hún styðst aðeins við (Framhald á 8. síðu) Fyrstu kosningarnar fóru fram í Svíþjóð á siðastl. hausti. Kommúnistar, sem höfðu haft þá sérstöðu að vera eini stjórn- arándstöðuflokkurinn, -uku fylgi sitt miklu minna en við var bú- izt. íhaldsmenn töpuðu stór- lega. Bændaflokkurinn, sem er frjálslyndur miðflokkur, vann miláið á, og Jafnaðarmanna- flokkurinn, sem þróazt alltaf meira og meira í þá átt að vera róttækur miðflokkur, hélt nokk- urn veginn fylgi sínu, þótt gagn- rýnin á stjórnarstefnunni hefði mætt mest á honum. í Bretlandi fóru fram kosn- ingar í sumar. íhaldsmenn stór- töpuðu og kommúnistar fengu aðeins tvö þingsæti. Verka- mannaflokkurinn og frjálslyndi flokkurinn stóruku atkvæða- tölu sína, þótt sá síðarnefndi bætti ekki við sig þingsætum vegna kosningafyrirkomulags- ins. í Noregi fóru fram kosningar í haust. íhaldsmenn stórtöp- uðu. Kommúnistar fengu miklu minna fylgi en þeir höfðu búízt við. Jafnaðarmenn, sem fylgja þar hóflegri umbótastefnu, uku fylgi sitt og fengu hreinan meirihluta. í Frakklandi fóru fram kosn- ingar í haust. íhaldið stórtap- aði fylgi. Kommúnistar fengu miklu minna fylgi en spáð hafði verið. Katólski lýðveldisflokkur- inn, sem er frjálslyndur mið- flokkur, jók fylgi sitt mest allra flokka, og Jafnaðarmenn, sem nálgast það að vera róttækur miðflokkur, unnu talsvert á. í Danmörku fóru fram kosn- ingar í haust. íhaldsflokkurinn tapaði þar fylgi. Kommúnistar unnu hins vegar talsvert á, en þó ekki svo, að áhrifa þeirra muni gæta verulega. Bænda- flokkurinn bætti þar við sig 100 þús. atkvæðum og 10 þing- sætum. Þannig má segja að það sé þrennt, er nokkurn veginn ein- kenni öll þessi kosningaúrslit: íhaldsflokkarnir, flokkar auð- manna og milliliða, hafa und- antekningariaust tapað alls staðar. Kommúnistar hafa hvergi unnið verulega á og fengið miklu minna fylgi en búizt var við, að þeir myndu fá vegna upplausn- arinnar, sem leitt hefir af styrj- öldinni. Frjálslyndir umbótaflokkar og miðflokkar hafa yfirleitt unn- ið n?>kið á. Sigrar þeirra sýna, að þjóðirnar óska eftir róttækri umbótastefnu, sem byggir starf sitt á lýðræðisgrundvelli, en hvorki eftir íhaldi eða kommún- isma. Hér á landi standa nú fyrir dyrum tvennar kosningar, sveita- og bæjarstjórnarkosn- ingar og þingkosningar.Það mun koma í ljós, hvort íslendingar hafa lært af þróuninni erlendis eða hvort þeir hafa þá sérstöðu að telja annað hvort íhaldið eða kommúnismann betra en frjálslynda umbótastefnu. Sú stefna er hérlendis borin uppi af Framsóknarflokknum. Um hann og þá, sem kunna að hafa samvinnu við hann, munu þeir menn fylkja sér, sem vilja að hér ríki umbótasöm stjórnar- stefna, eins og nú er raunin í flestum nágrannalöndunum. í Skutli 3. þ. m. eru dönsku kosn- ingaúrslitin gerð að umtalsefni. Skut- ull segir: „Að undanförnu hafa íslenzkir kommúnistar látið svo, sem sigrar jafnaðarmanna bæði í Bretlandi og Noregi væru eiginlega þeirra sigrar jafnframt. Þeir hafa látíð svo, til þess að hylja sínar eigin ófarir í þessum löndum, sem jafnaðarmenn og kommúnistar væru eiginlega eitt og hið sama. En við kosningaúrslitin í Dan- mörku mun breytast í þeim hljóð- ið. Það mun ekki verða á það drep- ið í blöðum kommúnista næstu daga og vikur, að ósigur jafnaðar- manna 1 Danmörku sé eiginlega líka þeirra ósigur, þv£ að þessir flokkar séu svo náskyldir að eðli og stefnu. — Nei, á það verður ekki minnzt, lesendur góðir. Nú verður því hiklaust haldið fram, að einn höfuðandstæðingur kommúnismans hafi orðið fyrir verulegum hnekki, og er það stórum sönnu nær, en flaðurkenndur falstónn seinustu vikna í kommúnistískum blöðum." Skutull minnist þessu næst á það ógnarástand, sem hernám Þjóðverja hefir skapað 1 Danmörku. Hann segir: „Fer það ekki milli mála, að ógn- aröld ríkti bókstaflega í landinu fyrst eftir uppgjöf nazismans, og ennþá mun eima eftir af því á- standi. í þeim hitasóttarórum þjóð- arinnar var það sem íslendingurinn Guðmundur Kamban var myrtur, og nú rétt nýlega féll löglegur valds maður dönsku ríkisstjórnarinnar fyrir byssukjöftum trylltra morð- ingja. Ofbeldið þýzka hefir fætt af sér gagnofbeldi, og er það ekkert nema það, sem við mátti búast. Öfgar nazismans hafa alið af sér öfgar . kommúnismans, enda er það áður margstaðfest af reynslu sögunnar: Það er því síður en svo glæsilegur vitnisburður um eðli kommúnism- ans, að í sjúku þjóðfélagi, mörk- uðu af mannhatrl. kúgim og grimmd, skuli vaxtarmöguleikar kommúnismans einmitt reynast mestir. — En þessi sönnum er það einmitt, sem dönsku kosningarnar leggja öllum upp í hendurnar, svo greinilega, að ekki er um að villast.“ Við þetta má bæta því, að kommún- istar hér hafa farið í ríkisstjórnina í því eina augnamiði, að fylgt yrði fjármálastefnu. sem skapar sjúkt á- stand í þjóðfélaginu. Þeir vita, að slikt ástand hjálpar þeim bezt til að koma ár sinni vel fyrir borð. Þeir, sem telja sig umbótamenn hér, ættu þvi sannarlega ekki að glepjast til stjórn- arsamvinnu við kommúnista, frekar en t. d. jafnaðarmenn hafa gert í Sví- þjóð, Noregi og Danmörku. Það mættu Alþýðuflokksmenn alveg sérstaklega hugleiða. * # , * í forustugrein Alþýðublaðsins 8. þ. m. segir svo um sýningar þær, sem borgarstjórinn í Reykjavík hefir haft undanfarið á framkvæmdum bæjarins: „Það hefir lengi verið í frásögur fært og haft að spotti, hvernig Potemkin, hinn nafntogaði hers- höfðingi og gæðingur Katrinar annarrar Rússadrottningar á átj- . ándu öld, lét byggja gerviþorp og gerviborgir meðfram fljótum Suð- ur-Rússlands áður en drottningin fór þar um, til þess að sýna henni, hvílíkar framfarir þar hefðu orðið undir stjórn hans. — Það fer ekki hjá því, að ýmsum hafi komið þessi saga í hug, þegar þeir heyrðu það í gær, að Bjarnl Benediktsson borg- arstjóri ihaldsins í Reykjavik, hefði ekið með blaðamenn á ýmsa út- valda staði .bæjarins til þess að sýna þeim, áður en til kosninga verður gengið um nýja bæjarstjórn, hvílíkar byggingarframkvæmdir 1 hafi verið ráðizt undir stjórn hans. Nú verður það að vísu ekki sagt, að blaðamönnunum hafi verið sýnd Potemkinsþorp í stíl við þau, sem Katrín önnrn- fékk að sjá endur fyrir löngu. Bjarni Benediktsson veit, að Reykvíkingar láta ekki bjóða sér upp á slíkt. Þess vegna hefir hann og íhaldsmeirihlutinn í bæjarstjórn séð sig til þess knúinn að gera við nokkrar götur á þessu síðasta ári fyrir bæjarstjórnar- kosningar, byggja nokkur íbúðar- hús og skólahús og lappa upp á önnur eldri til þess að eitthvað sé að sýna, á eitthvað sé hægt að benda stjórn hans til vegsemdar, áður en háttvirtir kjósendur verði kallaðir að kjörborðinu. Það er hugsun Potemkins, þó að ekki værl hægt að komast af með eins fyrir- hafnarlitlar blekkingar og hin frægu gerviþorp hans. Bæjarstjórnarkosningarnar, ótt- inn við háttvirta kjósendur, hafa- þannig að minnsta kosti neytt bæj- arstjórnaríhaldið til þess að nudda stirurnar úr augunum og hafast eitthvað að í nokkra mánuði.. ; . En svo var það ýmislegt, sem Bjarni Benediktsson ók fram hjá með blaðamennina, en áreiðanlega hefði getað orðið lærdómsríkt fyrir þá, engu að síður en það, sem þeir fengu að sjá. Borgarstjórinn gætti þess til dæmis vel, að ekki værl staðnæmzt við hermannaskálana, þar sem 1500 Reykvíkingar, þar af um 650 börn og unglingar innan sextán ára, verða nú að hírast við kulda, vosbúð og hvers konar skort, í húsakynnum, sem ekki er mönn- um bjóðandi. Þar er þó athyglis- verð mynd af því, hvernig íhaldið hefir stjórnað Reykjavík á mestu veltiárunum, sem yfir hana hafa gengið. Og þó að „braggahverfin" verði áreiðanlega ekki höfð til sýn- is fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vetur, munu Reykvíkingar áreið- anlega ekki gleyma þeim, þegar þeir verða kallaðir að kjörborðinu." Við þetta má svo bæta því, að and- stæðingar ihaldsins hafa fyrir löngu síðan hafið baráttu fyrir þeim fram- kvæmdum, sem Bjarni var að sýna, og þær myndu því hafa verið gerðar miklu. fyrr, ef ihaldið hefði ekki haft aðstöðu til að tefja þær. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.