Tíminn - 23.11.1945, Síða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFiOKKURINN \
Sxmar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A
Síml 2323
29. árg.
Reykjavík, föstudaglnn 23. nóv. 1945
89. blað
SLSífj Eina leiðin til að leysa húsnæðisvandræðin á skömmum
ráðinu herstöðvai
hér á landi?
Samkvæmt Þjóðviljanum 21.
þ. m. birti rússneska útvarpið
nýlega þá fregn eftir norsku
bíaði, að íslenzka stjórnin1 væri
búin að neita Bandaríkjunpm
um herstöðvar hér á landi, en
hins vegar hafi „HÚN BOÐIZT
TIL ÞESS AÐ LÁTA ÖRYGG-
ISSTOFNUN HINNA SAMEIN-
UÐU ÞJÓÐA STÖÐVAR í TÉ“.
Þjóðviljinn hefir það enn-
fremur eftir rússneska útvarp-
inu, að norska biaðið hafi sagt,
að „herstöðvar á íslandi væri
hlutur, sem bæði Bandaríkin og
Rússland hlytu að láta sig
varða“.
Þar sem Þjóðviljinn, annað
aðalblað stjórnarinnar, birtir
fregn þessa athugasemdalaust,
mætti vel ætla, að hér væri rétt
frá skýrt og stjórnin væri búin
að bjóða Öryggisstofnuninni
stöðvar hér á landi, en það
þýddi vitanl., að þjóðin yrði að
sætta sig við, að hér yrðu eftir-
litsmenn og her frá mörguin
þjóðum, a. m. k. frá öllum stór-
veldunum. Svo erfitt sem það
reyndist að hafa hér her frá
tveimur þjóðum á stríðsárun-
um, myndi það verða margfallt
örðugra að hafa eftirlitsmenn
og her frá mörgum þjóðum.
Engin sjálfstæð þjóð hefir líka
enn léð máls á því að láta
Öryggisstofnunina fá stöðvar í
landi sínu og fyrst um sinn mun
það hvergi koma til tals, nema
í nýlenduríkjum. Aðrar sjálf-
stæðar smáþjóðir munu áreið-
anlega ekki veita Öryggisstofn-
uninni fangs á slíkum stöðvum
hjá sér, nema stórveldin, eins og
t. d. Rússar og Bandaríkja-
menn, hafi þá riðið á vaðið
áður.
Það lætur því meira en ótrú-
lega í eyrum, að ríkisstjórnin
hafi, án minnsta sámráðs við
þjóðina og þingið, boðið fram
stöðvar fyrir alþjóðaher hér á
landi. En hinu er ekki að neita,
að eftir hina furðulegu fram-
komu stjórnarinnar í stríðsyf-
irlýsingamálinu I vor, og hið ó-
skiljanlega svar til Banda-
ríkjastjórnar í haust, má við
ýmsu búist. Það er líka vitað,
að kommúnistum er það höfuð-
kappsmál, þrátt fyrir allar sjálf-
stæðisblekkingar sínar, að ís-
land verði alþjóðleg herstöð,
svo að Rússar fái hér aðstöðu
til íhlutunar. Vitað er það einn-
ig, að kommúnistar settu for-
sætisráðherranum þá kosti ný-
lega, að stuðningi þeirra við
ríkisstjórnina væri lokið, ef
vissum skilyrðum þeirra í utan-
ríkismálum yrði ekki fullnægt.
Sá orðrómur, sem nú er flutt-
ur í erlendum útvarpsstöðvum
og birtur í erlendum blöðum,
að stjórnin hafi boðið að fram-
selja Öryggisstofnuninni stöðv-
ar hér á landi, er svo alvarlegur,
að þjóðin verður að fá fulla
skýringu á honum. Er stjórnin
þannig búin að bregðast sjálf-
stæði landsins og skipa því í
tölu nýlendurikjanna? Eða er
þetta uppspuni einn? Stjórnin
verður að leggja ÖU gögn í
þessu máli tafarlaust á borðið.
tíma, er að flytja inn tilbúin hús frá Svíþjóð
Frá Hong Kong — flotastöb Breta í Kína
Mynd þessi _®r frá Hong Kong, einni helztu borg Kína. Hún stendur á eyju í mynni Tshukiangfljótsins, og er
mikil siglingamiðstöð. Japanir hernámu hana í ársbyrjun 1942, en þá voru rétt 100 ár liðin frá því, að Bretar
neyddu Kínverja til að Iáta borgina af hendi, en það hefir verið rætt allmikið, að Bretar afhentu Kínverjum
borgina, en Bevin utanríkismálaráðheTra hefir sagt, að Bretar myndu ekki afsala sér flotastöðvum í Kína á
sama'tíma og Rússar færðu út yfirráð sín þar, t. d. með samningnum við stjórn Kína um Port Arthur, þar
sem þeir fá að hafa flotastöð. Kínverska stjórnin hefir ekki heldur hreyft opinberlega tilkalli til borgarinnar.
Fiskverðið þarf að stðrhækka,
ef útgerðin á að geta borið sig
Ályktun útvcgsmaima á Siiðnrnesjum.
Síðastl. mánudag héldu útvegsmenn á Suffurnesjum fjölmenn-
an fund í I^eflavík, þar sem rætt var um útgerffina á næstu
vetrarvertíff. Fundurinn samþykkti þá tillögu einróma, aff fisk-
verffiff þyrfti að hækka um 15%, ef útgerðin ætti aff geta gengið
næsta vetur.
Ályktun fundarins hljóðaði á
þessa leið:
„Almennur fundur útgerðar-
manna á Suðurnesjum, haldinn
i Keflavík 19./11. 1945 lætur í
ljós þá skoðun sína, að vegna
stöðugt vaxandi dýrtíðar í land-
inu, sé útgerðarkostnaður nú
orðinn svo mikill, að lengur sé
ekki mögulegt fyrir útvegsmenn
og sjómenn, að starfa með nú-
verandi fiskverði, enda hefir
það verið óbreytt síðan 1942, en
Menntaskólinn á Akureyri þarfn-
ast nýrrar stórbyggingar
Sigurffur Guffmundsson, skólameistari Menntaskólans á Akur-
eyri, hefir ritaff fjárveitinganefnd Alþingis bréf, þar sem hann fer
fram á, aff samþykkt verffi á Alþingi fjárveiting til þess aff reisa
nýtt hús viff Menntaskólann á Akureyri. Er í bréfinu tekin upp
samþykkt kennarafundar í M. A., sem haldinn var 29. f. m., þetta
varðandi. — í húsi þessu yrffu heimavistir fyrir a. m. k. 150 nem-
endur, kennslustofur, söfn skólans o. fl.
Samþykkt sú, sem kennara-
fundur Menntaskólans á Akur-
eyri gerði, er svohljóðandi:
„Kennarafundur í Mennta-
skólanum á Akureyri, haldinn
29. október 1945, skorar á hið háa
Alþingi, að það samþykki fjár-
veitingu til þess að reist verði
nýtt hús við Menntaskólann á
Akureyri. Verði í því rúm fyr-
ir heimavistir fyrir a. m. k.
150 nemendur, söfn skólans,
lestrarstofu, kennslustofur fyr-
ir náttúrufræði, eðlis- og efna-
fræði, eldhús og borðstofa. Tel-
ur fundurinn mjög aðkallandi,
að hafizt verði handa um fram-
kvæmdir i málinu sem allra
fyrst, m. a. af því, að nú er
eldhættan, er stafar af heima-
vistunum í skólahúsinu ægi-
leg og meiri en svo, að verjandi
geti talizt, að þar búi um hundr-
að manns, eins og nú er.“
í bréfinu til fjárveitinga-
(Framhald á 8. sídu)
á sama' tíma, hefir kaupgjaldið
í landvinnu meira en þrefaldazt.
hér á Suðurnesjum.
Fundurinn skorar því mjög
eindregið á ríkisstjórnina að
tryggja það,að fiskverðið hækki,
ekki minna en 15% frá því verði,
sem nú er, þannig að verð á
slægðum þorski með haus, verði
kr. 0,52 pr. kg., en hausaðUr og
slægður þorskur kr. 0.60 pr. kg.
og aðrar fisktegundir hækki í
samræmi við það.
Verð þetta er hið allra lægsta,
sem hugsanlegt er að starfa fyr-
ir á komandi vetrarvertíð, en þó'
því aðeins, að afli verði eigi
minni en undanfarnar tvær
vertíðir.“
Ennfremur samþykkti fund-
urinn þessa tillögu:
„Almennur fundur útvegs-
manna á Suðurnesjum, hajdinn
í Keflavík 19./11. 1945, sam-
þykkir að skora á hraðfrysti-
húsaeigendur, að beita sér fyrir
því að framleiðsla þeirra, næsta
ár, verði ekki seld lægra verði
en svo, að þeir geti greitt kr.
0,52 fyrir kg. af þorski innaní-
farinn með haus og tilsvarandi
verð fyrir annan fisk.“
Þá skoraði fundurinn á ríkis-
stjbrnina að hafa útflutning-
inn á nýjum fiski frjálsan
næsta vetur og á Fiskumboð
Suðurnesja að athuga um leigu
á fiskflutningaskipum. Skorað
var á Alþingi og ríkisstjórn að
veita útgerðarmönnum frjáls-
an ráðstöfunarrétt á gjaldeyri
þeim, sem fæst fyrir afurðir
þeirra.
(Framhald á 8. siOu)
Nýr forstjóri hjá Síld-
arverksm. ríkisins
Hilmar Kristjónsson við-
skiptafræðingur hefir nýlega
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Síldarverksmiðja ríkisins.
flermann Jónasson flytur tillögu um að
ríkisstjórnin tryggi og greiði fyrir inn-
flutningi slíkra húsa til að leysa úr
mestn húsnæðisvandræðunum
Hermann Jónasson hefir nýlega lagt fram í sameinuffu þingi
þingsályktunartillögu um ráffstafafiir til aff ráffa bót á húsnæðis-
skortinum og um afnám húsaleigulaganna. Höfuffatriði tillögunn-
ar eru þau, aff ríkisstjórnin tryggi og greiffi fyrir svo miklum inn-
fluiningi á tilbúnum húsum frá Svíþjóff, aff unnt verði að bæta
úr mesta húsnæðisskortinum fyrir næsta haust og jafnframt verffi
hægt aff hefjast handa um afnám húsaleigulaganna. Slíkur inn-
flutningur er einá leiffin til aff bæta fljótt úr húsnæðisskortinum,
þar sem mikill hörgull er hér á fagmönnum. Þessi innflutningur
er ekki heldur neinn neyðarkostur, þar sem húsin eru sérlega
vönduff og stórum ódýrari en hús, sem nú eru byggff hér. Mun af-
staffan til þessarar tillögu því leiffa þaff vel í Ijós, hvort stjórnar-
flokkunum er þaff slíkt áhugamál að leysa fljótt úr húsnæðis-
skortinum og þeir vilja vera láta. §
Meff -flutningi þessarar tillögu, liafa Framsóknarmenn mótað
til fulls stefnu sína um lausn byggingamálanna. Áffur hafa þeir
flutt frv. um aukin fjárráff og hagkvæmari lánveitingar Bygg-
ingar- og landnámssjóðs, sem veitir lán til bygginga í sveitum,
og byggingalánasjóffs, sem veitir lán til verkamannabústaffa og
samvinnubygginga í þorpum og kaupstöðum. Meff þessum frv.
er stefnt aff því, aff allir geti komiff sér upp húsnæffi meff fjár-
hagslega viðráðanlegu móti, en meff þingsályktuninni aff því, aff
skortur á fagmönnum stöffvi ekki nauffsynlegustu byggingafram-
kvæmdir.
Hilmar Kristjónsson
Hilmar er ungur maður, 27
ára gamall, en hefir þegar getið
sér gott orð. Hann er stúdent úr
stærðfræðideild menntaskólans
hér, en lauk síðan prófi í við-
■skiptafræðum við Háskólann.
Árin 1942—44 stundaði hann
vélfræðinám við Californiu-
háskóla. Á námsárum sínum hér
heima vann hann við síldveiðar,
bæði til sjós og lands, og einnig
kynnti hann sér síldveiðar og
síldariðnað vestan hafs. Hann
varð verksmiðjustjóri hjá S. R.
á Raufarhöfn síðastl. sumar.
Aðalfundur Framsókn
arfélags Reykjavíkur
Aðalfundur Framsóknarfélags
Reykjavíkur var haldinn í bað-
stofu iðnaðarmanna síðastl.
miðvikudagskvöld.
Á fundinum voru þessir menn
kosnir í stjórn félagsins: Sig-
urjón Guðmundsson, form.,
Gunnlaugur Ólafsson, Hjálmtýr
(Framhald á 8. siOu)
Tlllagan.
Þingsályktunartillag Her-
manns Jónassonar hljóðar á
þessa leið:
Alþingi ályktar aff fela ríkis-
stjórninni eftirfarandi:
Aff láta rannsaka nú þegar
húsnæðisskortinn í landinu og
.birta niðurstöður þeirrar rann-
sóknar.
Að hlutast til um, aff bygg-
ingarefni það, er til landsins
flyzt, verffi notaff til að byggja
íbúðarhús, en eigi til bygginga,
sem eru ekki aðkaltandi.
Aff útvega innflutningsleyfi
fyrir húsum frá Svíþjóff, nógu
mörgum til aff fullnægja hús-
næðisþörfinni, aff því leyti, sem
eigi er framkvæmanlegt meff
innlendu vinnuafli.
Að leyfa innflutning á húsum
þessum meff tollum, sem eigi séu
hærri en nú eru á byggingar-
efni.
Aff leyfa, aff sænskir sérfræff-
ingar komi hingaQ til landsins
til aff setja húsin upp.
Aff sjá um, aff kostur sé á hag-
kvæmum vefflánum út á hús
þessi.
Aff sjá um, aff kostur sé á viff-
unandi lóðum undir húsin og
taka land eignarnámi í þeim til-
gangi, ef þörf krefur.
Aff athuga, hvort eigi sé fært,
þegar framangreindar ráffstaf-
anir hafa vprið framkvæmdar,
aff leggja fyrir Alþingi frv. til
laga um afnám húsaleigulag-
anna.
HúsnætSlsvandræðiii.
í greinargerð tillögunnar, þar
sem m. a. er skýrt mjög rækilega
frá sænsku húsunum, segir á
þessa leið:
„Nægilegt og gott húsnæði
handa öllum landsmönnum er
takmark, sem verður að keppa
að og leggja alla stund á að ná
•sem allra fyrst. Hver þjóðfélags-
þegn á raunverulega kröfu á
því, að þannig sé að honum bú-
ið, að hann eigi kost sæmilegs
húsnæðis til eignar eða til af-
unandi geta talizt.
Hér á landi er húsnæðismál-
unum svo komið, að þau eru eitt
erfiðasta vandamál þjóðfélags-
ins. í sveitunum er ástandið ó-
viðunandi, og er þarf þörf
skjótra úrbóta. Það er stað-
reynd, að í Reykjavík er á-
standið svo ömurlegt, að um
1500 manns eru húsnæðislausir
og verða að hírast í heilsuspill-
andi hermannaskálum, og enn-
fremur er talið, að um 1000
manns í Reykjavík hafist við í
svo þröngum og -lélegum húsa-
kynnum, auk þeirra 1500, sem
eru í hermannaskálunum.
í öðrum kaupstöðum og kaup-
túnum er ástandið gersamlega
óviðunandi og sums staðar er
svo komið, að húsnæðisvand-
ræðin standa i vegi fyrir eðli-
legri þróun og framförum í at-
vinnulífinu.
Það fer að vísu tvennum sög-
um um það, hve brátt muni tak-
ast að bæta úr þessum húsnæð-
isvandræðum. Sumir eru svo
bjartsýnir að vona, að svo marg-
ar íbúðir muni verða fullgerðar
í Reykjavík næsta haust, að
húsnæðisþörfinni muni næstum
eða alveg verða fuilnægt. Um
þetta liggja þó ekki fyrir nsinar
fullnægjandi upplýsihgar, enda
eru margir, sem athugað hafa
þetta mál, þeirrar skoðunar, að
því fari mjög íjarri, að húsnæð-
isþörfinni í Reykjavík verði
nándar nærri fullnægt með
byggingu þeirra húsa, sem nú
eru í smíðum, og að því er tek-
ur til landisns í héild, er það
staðreynd, að engar minnstu
líkur eru til, að húsnæðisskort-
inum verði útrýmt á næstu ár-
um, nema alveg nýjar aðgerðir
komi til. Þau rök liggja til þess,
að verið hefir tilfinnanlegur
skortur á byggingarefni af og
til og nægur vinnukraftur ger-
samlega ófáanlegur til þess að
vinna að þeim húsum, sem nú
eru í smíðum, og þá því síður
til þess að auka þessar fram-
kvæmdir. Þetta eru afleiðingar
af þeirri ofþenslu, sem sköpuð
hefir verið í þjóðfélaginu m. a.
fyrir opinberar aðgerðir.
(Framhald á 7. síðu)