Tíminn - 15.01.1946, Blaðsíða 2
2
TfoCWN, þrifSjiidagimn 15. jamiar 1946
8. blatS
Þriðjudagur 15. jan.
Hönd dauðans
Það var harður fundur fyrir
mörgum árum í „Bárunni“. Mik-
ill ræðuskörungur og ráðherra
talaði. Hann lýsti því, hvernig
íhaldið stjórnar. Það legði hönd
dauðans á hvert gott mál meðan
hægt væri að stöðva það. Þegar
búið væri að framkvæma, eða
neyða íhaldið til þess, settist það
með sínum þunga rassi á málin
— og ræðumaður næstum settist
á leiksviðið — og léti þau fleyta
sér áfram, með því að staglast
á þvi við grunnhyggið fólk, að
málin, sem ihaldið vann allt til
óþurftar meðan það gat, hefðu
alla tíð verið hjartans mestu
áhugamál þess.
Látið ekki blekkjast, ungu
menn, sagði ræðumaður, —
íhaldið er hönd dauðans. Vissu-
lega reynist þetta sígildur sann-
leikur öllum, sem vilja sjá.
— Framsóknarflokkurinn og
Alþýðuflokkurinn fengu sam-
þykkta á Alþingi löggjöf um
samvinpu- og verkamannábú-
( staði. íhaldið barðist gegn því
með ofstopa. Nú er þessi and
staða löngu orðin hlægileg. Og
sjá! íhaldið segist nú hafa
brennandi áhuga á húsnæðis-
málinu.
Gegn sundhöllinni barðist
íhaldið með hnúum og hnefum
unz áhugi íþróttamanna í bæn
um var orðinn- svo sterkur, að
ekki varð lengur gegn málinu
staðið. — Síðan hefir það þótzt
hafa og alla tíð hafa haft á
huga fyrir málinu.
Gegn íþróttalögunum barðist
íhaldið á Alþingi og hafði nærri
stöðvað , framgang þeirra. En
Hermanni Jónassyni tókst að
bjarga málinu. En væntanlega
hefir íhaldið nú — að eigin
sögn og samkvæmt lögmálinu —
alltaf verið málinu fylgjandi.
Táknrænast er þó mjólkur-
stöðvarmálið í Reykjavík.
Mjólkurfélag Reykjavíkur (Eyj-
ólfur Jóhannsson) átti gömlu
mjólkurstöðina. íhaldið barðist
með dólgshætti gegn því að hún
yrði lögð niður og ný stöð byggð.
Erlendur sérfræðingur var feng-
inn til að dæma um málið.
Dómurinn gekk móti Eyjólfi.
Enn var málið tafið með því að
heimta nýja menn frá útlönd-
um. Þegar þeir staðfestu að
byggja nýja stöð, tafði íhaldið
málið enn lengi með þjarki um
lóð fyrir mjólkurstöðina. — Nú
er mjólkursamsalan og bændur
skammaðir fyrir dráttinn —
dauða höndin er söm við sig.
Gegn samvinnu og bæjarút-
gerð hefir íhaldið barizt. En þeg-
ar ríkisstjórnin hefir keypt tog-
ara fyrir tvöfalt verð fær borg-
arstjórinn skyndilega brennandi
áhuga fyrir því, að bærinn, en
ekki stríðsgróðamennirnir, kaupi
þá. —
Þannig er saga hinnar dauðu
handar þessa Taæjarfélags í öll-
um málum. — LÍtið yfir sögu
málanna og þið munið sann-
færast.
Þessi ólánssama og dauða
hönd má ekki stjórna lengur.
Því síður skuggi hennar, draug-
urinn, sem íhaldið hvarvetna
vekur upp og fylgir því —
kommúnisminn. — Það er ekki
hægt að útrýma öðru hvoru —
þessar ófreskjur eru samvaxnar.
Takmarkið er að útrýma hvoru-
tveggja eins og nú er unnið að
í bezt menntu og víðsýnustu
löndum álfunnar. Það sama
star'f hefjum við hér með því
að kjósa Pálma Hannesson í
bæjarstjórn. Burt með dauðu
höndina og skugga hennar.
átum málefnin ráða íhaldið og skólarnir
Skoðanafrelsi, trúfrelsi, mál-
frelsi í ræðu og riti, jafn
atkvæðisréttur og að minni hluti
beygi sig fyrir meirahluta —
þetta eru megin-einkenni lýö-
ræðisins eða með öðrum orðum
það, sem við köllum frelsi.
Þegar svo stóð, að eins líklegt
mátti telja, að nazisminn flæddi
yfir Evrópu, einnig okkar land,
þá mun mörgum íslendingum
hafa orðið svo innanbrjósts, að
þeir mundu leggja allt i sölurn-
ar til þess að komast burt af
landinu — til Vesturheims.
Nú er það staðreynd, að ís-
lendingar eru ekki minna elskir
að landinu sinu en menn með
öðrum þjóðum. Samt var þessu
svona fariö.
Vegna hvers?
Vegna þess að sérhvert land
verður manni, sem búið hefir
við lýðfrelsi, harla lítils virði, ef
hann á ekki framar að njóta
írelsis síns.
Ástin á frelsinu er mörgum
manninum svona miklu þyngri
á metunum en sjálf ættjarðar-
ástin. Og er þetta engin nýlunda
með norrænum þjóðum. Svona
var þessu farið, þegar land okk-
ar byggðist. Forfeður okkar
skoðuðu ekki huga sinn, yfir-
gáfu ætt og óðöl heldur en að
ganga á hönd einvalds konungi.
Og hér komu þeir á merkilegu
lýðræðisríki, sem farnaðist svo
vel um fjórar aldir, að menning
þjóðarinnar þá ber við loft á
himni veraldarsögunnar.
Hvernig síðan fór, verður ekki
rakið hér, að öðru leyti en því,
að menn þeirrar tíðar urðu of
fastir í flokkum. Notfærðu sér
þá eigi nægilega frjálsmannlega
að segja sig I goðorð við þann,
sem beztan átti málstaðinn
hverju sinni.
En einmitt þessi ágaili virðist
ganga aftur nú, þegar við höf-
um öölast þjóðfrelsi okkar að
nýju, og málin innanlands taka
að skipa mönnum í flokka.
Ef til vil^ á þetta nokkra af-
sökun í fámenni okkar og hlut-
fallslega miklum persónulegum
kynnum
Sú þjóð, sem bezt hefir farn-
azt undir skipulagi lýðræðisins,
hefir þrátt fyrir það, þótt marg-
ar þjóðir aðrar séu miklu mann-
fleiri, orðið öndvegisþjóð og
heimsveldi. Og þessari þjóð, öll-
um öðrum fremur, á veröldin að
þakka það, að ekki þurfti að
yfirgefa ætt og óðöl til þess að
freista að komast undan oki
nazismans.
Þessi þjóð er Bretar.
Þessi þjóð hefir öðlast þann
stjórnarfarsþroska, að láta mál-
efni ráða hverju sinni, þegar
hún gengur að kjörborðinu.
Hún er ekki föst í flqkkum. —
Við einar kosningar gefur hún
vinstri flokki aðstöðu til forustu,
én þegar henni mislíkar tekur
hún umboð sitt til baka og fær
það hægri flokki.
Og mundu margar þjóðir hafa
sýnt betur, að þær' láti málefni
ráða, en ekki flokka eða persónu
dýrkun, heldur en brezka þjóð-
ih gerði í síðustu kosningum,
þegar hún fellir frá völdum
þann stjórnmálaforingjann, er
öðlast hefir, að því er ætla má,
mesta persónulega virðingu og
tiltrú allra forustumanna henn-
ar, og hefir nún þó átt þá marga
mikla og mikilhæfa.
Ég, sem þetta rita, er livers-
dagslegur borgari. Hefi í engán
skóla gengið að kalla, nema hfs-
ins skóla. Ég hefi eins og margir
aðrir á sínum tíma verið haid-
inn af foringjadýrkun, og hætti
til að láta tilfinningar ráða
En með vaxandi lífsreynslu tókst
mér aö öðlast þann skilning —
þann þroska — að láta málefni
ráða, en ekki tilfinningar. —
Og ég segi það eins og það var.
Þann dag sem þetta skeði, kcm
mér • það svo fyrir, að nú
mundi ég finna til eins og þjóð,
þegar hún yrði fullvalda.
Ef við sem flest ekki eignumst
þennan þroska, hvernig fer þá
um frelsið, sem þjóðín glataði
1264 og endurheimti ekki aftur
fyrr en 1944.
Samlandar mínir!
Lesið ekki þessar línur sem
áróður fyrir neinn sérstakan
flokk. Treystið því, að hér er af
heilindum mælt, af sextugum
manni, sem að vísu hefir lengi
fylgt sama flokki. Manni, sem
er félagslyndur, og stundum
hefir haft sig nokkuð í frammi,
en jafnan án nokkurs persónu-
legs valdametnaðar, og aðeins
um skeið komist svo hátt að eiga
sæti í hreppsnefnd. Lesið þessar
línur sem aðvörunarorð frá
manni, sem veit og skilur,
hversu allra augu standa nú á
okkur, minnsta fyrirtækinu
meðal þeirra mannhópa, sem
svarizt hafa í bræðralag um að
helga sér land og lifa þar sem
frjáls og fullvalda þjóð. Manni,
sem skilur hversu berskjalda og
reynslulitil við erum, einkum
í viðureign við mikinn og fljót-
fenginn auð annars vegar, og
vélabrögð hvers konar áróðurs-
tækni hins vegar. Manni, sem
einnig lætur sér ekki yfirsjást,
að ekki voru allir landnemarnir
svo skapi farnir, að þeir af
frjálsum vilja kysu að yfirgefa
ætt og óðöl og fórna þessu fyrir
frelsi sitt, og erfðin því engan
veginn einhlít.
En því fremur er það einasta
vonin um framtíðarfarnað
landsins okkar, að borgararnir
láti af flokka- og persónu<|ýrk-
un, heldur láti hverju sinni, og
að vel yfirveguðu ráði, málefni
en ekki tilfinningar ráða, þegar
gengið er að kjörborði. Því að
þar, og hvergi annars staðar en
þar, segja menn sig í goðorð við
þann málstað — við þau örlög,
sem þjóðinni verða ráðin á
hverjum tíma.
Fb. Gr.
Lóöir og timburinnflutningur
Mér þótti grein Guðlaugs Rós-
inkranz í Tímanum á sunnu-
daginn svo athyglisverð, að ég
get ekki stillt mig um að biðja
það blað fyrir fáein orð frá mér
um húsnæðismálin — þetta böl,
er þjakað hefir okkur Reykvík-
inga allan síðari hluta styrjald-
aráranna og valdamönnunum
hefir ekki enn tekizt að draga
neitt úr, nema síður sé.
Erfiðleikarnir, sem við er að
stríða, eru margvíslegir: mikil
fólksfjölgun, skortur á verka-
mönnum og þó sér í lagi kunn-
áttumönnufn, hörgull á bygg-
ingarefni eða einstökum vöru-
tegundum, sem nauðsynlegaí- eru
til bygginga.
En að hinu leytinu er það
líka alkunna, hversu illa 'hefir
verið haldið á þessum málum af
hálfu bæjaryfirvaldarma. Að
visu hefir bærinn byggt nokkrar
sæmilega hentugar íbúðir, eins
og getið var i grein Guðlaugs
Rósinkranz, en að því slepptu
hefir frammistaðan öll verið
fyrir neðan allar hellur í slíku
alvörumáli. Langar mig til þess
að rifja tvö atriði stuttlega upp,
eftir þvi sem þekking min nær
til. —
Þar er fyrst að nefna lóðirnar.
Nú er svo komið, að lóðir á þol-
anlegum stöðum í bænum eru
ekki lengur falaf öðrum en ein-
hverj um ýtildarmönnum aðal-
bæjarstjórnarflokkanna. Til
þeirra er þeim úthlutað eins
og einhverjum heiðursmerkj -
um fyrir hraustlega framgöngu
i flokksstríðinu. Er þá ekki æv-
inlega gengið hart eftir því, að
undinn sé bráður bugur að hús-
byggingu á þessum lóðum. Á,
sama hátt eru leyfi til að hafa
búðir í íbúðarhúsunum alls ekki
miðuð við þarfir neytendanna
í bænum, heldur er þetta aðeins
hærri gráða af þessum heiðurs-
merkjum, sem flokkarnir veita
sínum vildarmönnum.
En um lóðir handa almenn-
ingi gengur allt tregar. Hann á
að vista i nýjum og nýjum út-
hverfum,en dugnaðurinn er ekki
meiri en svo, að bærinn hefir
ekki undan að gera göturnar,
svo af því hljótast stórkostlegar
tafir. Þannig er afrekssaga bæj-
aryfirvaldanna í byggingarmál-
um Reykjavíkur. Þetta er mér
minnisstætt, því að ég hefi
sjálfur fengið að gjalda minn
skatt vegna þessa ódugnaðar, og
ég tel, að fleiri ættu að hugsa
pm þessa staðreynd, því að hún
talar skýru máli um vinnubrögð
ráðamannanna og áhuga fyrir
velferð bæjarbúa.
Til áréttingar þessu væri svo
hollt að athuga aðra staðreynd.
Megnið af timbrinu, sem kemur
hingað til lands, er frá Svíþjóð.
(Framhald ú 4. síOu).
Stuðningsmenn
B-iistans
komið á kosningaskrifstofuna,
sem er í Edduhúsinu við Lind-
argötu, opin frá 10—22 daglega,
símar 6066 og 2323.
Bjarni borgarstjóri taldi íhald-
ið geta grætt á því í kosning-
unum að sýna blaðamönnum
þau hús, er bærinn hefir byggt
á undanförnum áratugum, þótt
ekki væri um auðugan garð að
gresja.
Lét hann svo Mbl. birta marg-
ar myndir og marga langhunda
um þessa kosningasýningu. Að-
alnúmerið á sýningunni var þó
Laugarnesskólinn, sem verið er
að stækka. Kemst Bjarni að
þeirri niðurstöðu, að ihaldið sjái
prýðil^ga fyrir skólabyggingum
í bænum. Er þvi rétt að víkja að
því nokkru nánar.
Samkvæmt landslögum ber
Reykjavíkurbæ skylda til, eins
og öðrum skólahéruðum lands-
ins, að sjá öllum skólaskyldum
börnum fyrir nægilegum skóla-
húsum. íhaldsmeirihlutinn í
bæjarstjórninni varð þvi annað
hvort að gera, að fullnægja
þessari skyldu, eða að brjóta
landslög. Og hvort ætli íhaldið
hafi nú heldur valið?
Fram til 1930 var einn barna-
skóli í bænum, Miðbæjarskól-
inn. Hann er byggður úr timbri
og er háskalegur sem skólahús,
sérstaklega fyrir börn, vegna
eldhættu. Hann var byggður
fyrir 600 börn, en i honum hefir
verið kasað saman um 1800
börnum árlega undanfarin 20
ár og er svo enn. Þetta hefir
verið framkvæmt þannig, að
börnin eru látin byrja nám kl.
8 að morgni. Verða því flest
þeirra að vakna kl. rúml. 7 og
það einnig í svartasta skamm-
deginu. Á eftir þeim kemur svo
annar flokkur barna dag hvern
í sömu kennslustofurnar og á
eftir þeim þriðji flokkurinn.
Venjulega eru yngstu börnin í
síöasta flokknum. Byrja þau
námið í rökkrinu og setjast í
kennslustofur, sem 60—70 börn
eru bújn að vera í þann sama
dag. Þannig hefir tekizt að hag-
nýta eina kennslustofu fyrir 90
—100 börn yfir daginn og um
leið 600 barna skóla fyrir 1800
börn.
Svipaða sögu er að segja af
Austurbæjarskólanum. Hann er
byggður fyrir 800 börn, en í hon-
um eru að jafnaði um 2000 börn
árlega. Hagnýting húsnæðisins
er því svipuð og meðferðin á
börnunum einnig.
Skildinganes og Grímsstaða-
holt hefir vantað barnaskóla frá
því er Skildinganes var samein-
að Reykjavík. Við fernar bæjar-
stjórnarkosningar og allar Al-
þingiskosningar siðan, hefir í-
haldið lofað að byggja þennan
skóla og enn lofar það hinu
sama. En nú er ekki hægt að
lofa þessu lengur. Skólinn er að
rísa og íhaldið að tapa meiri-
hlutanum.
Svo kemur Laugarnesskólinn,
sem allar myndirnar voru af.
Þegar skólaskyldu börnin i
Laugarneshverfi voru orðin 300,
fór íhaldið að byggja. Og þá
var nú ekki skorið við nögl sér!
Tvær kennslustofur og ein leik-
í'imistofa með flötu þaki, sem
lak! Þetta var látið duga þangað
til i haust. Nú er verið að stækka
báknið.
Um stuðning íhaldsins við
byggingar fyrir gagnfræðaskól-
ana, húsmæðraskólana, hand-
íðaskólann, smábarnaskólann o.
fl., er bæjarbúum fullkunnugt.
Þó er afstaða þess til Iðnskól-
ans og Menntaskólans sannkall-
að islenzkt met. Iðnskólinn hefir
sennilega búið við aumustu húsa
kynni allra skóla bæjarins. Þó
hefir skólastjórinn verið bæjar-
fulltrúi íhaldsins, en fékk „frí“
núna. Hins vegar hefir íhaldið
skrafað þannig, allt þar til
Byynjólfur varð menntamála-
ráðherra, að Menntaskólinn yrði
að taka á móti fleiri nemendum.
En hvað skeður svo á Alþingi í
haust? íhaldsmenn og jafnaðar-
menn drepa í sameiningu tillögu
um 1 millj kr. framlag til bygg-
ingar stærri menntaskóla, svo
að fjárveitingin varð aðeins y2
miljón króna.
Ætli það veröi ekki langt þar
til Bjarni Ben. hefir aðra sýn-
ingu fyrir blaðamenn á frammi-
stöðu íhaldsins í skólamálum?
FíiaúaHcfi
Stefnuskrár og fram-
kvæmdir.
Gömlu bæjarstjórnarflokk-
arnir hafa nú allir slegið upp
löngum og viðamiklum stefnu-
skrám. Gætu ókunnugir helzt
ráðið það af þessum stefnu-
skrám, að hlutaðeigandi flokkar
hefðu aldrei haft aðstöðu til þess
að gera neitt eða koma neinu
máli fram í bæjarfélaginu. En
sízt af öllu gæti nokkur maður,
sem ekki vissi betur, látið sér
til hugar koma, að þetta væru
stefnuskrár ráðaflokkanna, því
að einmitt þær eru þyngsti
dómurinn um það, hvernig hin
sjálfsögðustu umbótamál hafa
verið afrækt ár eftir ár. Annars
þyrfti ekki að hrinda þessu öllu
í framkvæmd.
En þrátt fyrir allan bumbu-
sláttinn nú fyrir kosningarnar,
mun erfitt að finna þann mann
í bæjarfélaginu, og það jafnt
þótt leitað sé meðal tryggustu
fylgismanna bæjarstjórnar-
flokkanna, sem leggja minnsta
trúnað á það, að þessar stefnu-
skrár boði nokkra stefnubreyt-
ingu. Bæjarbúar eru orðnir þessu
og þvilíku vanir. Fyrir hverjar
kosningar hafa þessir sömu
flokkar lofað þessum sömu um-
bótum í bæjarfélaginu — án
þess að gera nokkra tilraun til
þess að efna fyrirheit sín eða
yfirleitt láta sér detta þá hlið
málsins í hug. Stefnuskrárnar
þykir ekki annað en sjálfsögð
koshingabeita handa fáeinum
fáráðlingum. Þær vekja ekki
neina athygli í bænum.
Hanagal hjá Billenberg.
í gamla daga bjó útlendur skó-
smiður, sem hét Billenberg, þar
sem nú er Austurstræti 8. Hans
er helzt getið fyrir þrennt: Hann
barði kerlingu sína veika svo ó-
þyrmilega, að hann hlaut sekt-
ardöm fyrir, og kölluðu menn
þó ekki allt ömmu sína í þá
daga, — hann varð orsök lang-
vinnra málaferla Reykjavíkur-
bæjar við Dani út af fram-
færslukostnaði hans — og hann
átti hænsni, sem bæjarbúar
höfðu gaman af að virða fyrír
sér„ því að þau voru reist og
spekingsleg á svip eins og
hænsnum er eiginlegt. Var þá
kveðið þetta stökubrot:
Það hleypur í gegnum
haus og merg,
þegar hanarnir gala hjá
Billenberg.
Ekki eru lengur til neinar
sýnilegar menjar um Billenberg
skóara. En á rústum hænsna-
garðsins er nú aðsetur Morgun-
blaðsins. Ekki hefir þess heyrzt
getið, að svipir hinna framliðnu
séu þar á reiki. Einhvern veginn
er þó eins og það loði enn við
staðinn, að þar sé haft hátt á
morgnana. En varla „hleypur"
það gal „gegnum haus og merg“
ReykVíkinga nú á dögum. Jafn-
vel borgarstjóranum er um
megn að gefa því þann kraft.
Hreinlæti og heilsuvernd.
Síðasti sunnudagsleiðari
Morgunbl. fjallaði um hreinlæti
og heilsuvernd. Fjórir kunnir
Morgunblaðsmenn hafa verið
borgarstjórar í R,eykjavík síð-
ustu þrjátíu árin. Alla þá stund
hafa ihalds- og Sjálfstæðis-
menn haft hreinan meirihluta i
bæjarstjórninni og getað skip-
að öllum bæjarmálum að vild
sinni, og þetta síðasta kjörtima-
bil hefir rikt eins konar samá-
byrgð þagnarinnar hjá hinum
flokkunum tveimur, er áttu
menn í bæjarstjórninni — kom-
múnistum og Alþýðuflokknum.
Og hvað hefir svo verið gert af
hálfu bæjaryfirvaldanna til þess
að auka hreinlæti og heilsu-
vernd í þessum bæ? Farið út
einhvern rigningardaginn, og þá
mun forin og eðjan á götunum
(Framhald á 3. síðu).