Tíminn - 22.02.1946, Page 1
<
! RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
< ÚTGEFANDI:
| FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Símar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í.
30. árg.
Reykjavík, föstudagiim 33. febr. 1946
RITST J ÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI. Llndargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9 A
31. blað
Óeirðirnar í Indlandi:
Sökkva Bretar heldur herskipum
sínum en láta undan s
Miklar óeirðir hafa verið í mörgum helztu borgum Indlands
undanfarnar vikur. Óeirðir þessar hafa bæði stafað af miklum
matvælaskorti og auknum sjálfstæðiskröfum Indverja. Yfirleitt
hafa því óeirðirnar beinst gegn Bretum. Hvergi hafa óeirðirnar
orðið jafn alvarlegar og í Bombay þessa dagana, þar sem ind-
verskir sjóliðar standa fyrir þeim og hafa brezk herskip á valdi
sínu.
í haust varð uppskerubrest-
ur í Indlandi vegna mikilla
þurrka, en þar fylgir oftast
hungursneyð í kjölfar uppskeru-
brests. Brezku stjórnarvöldin
hafa reynt að gera sitt bezta til
að vinna bug á neyðinni bæði
með auknum innflutningi og
strangari skömmtun. Þessar ráð-
stafanir hafa þó ekki nægt.
Óeirðirnar, sem undanfarið
hafa verið í indverskum borgum,
rekja að miklu leyti rætur til
hungursneyðarinnar. Þær hafa
orðið þess valdandi, að hinir ó-
bilgjarnari forustumenn þjóð-
ernissinna hafa víða náð undir-
tökunum og efnt til uppþota.
Talið er einnig að kommúnistar
rói undir. Ýmsir aðalforingjar
Þjóðernissinna (Kongressflokks-
ins) hafa lagzt á móti þeim, og
seinast nú í vikunni flutti
Gandhi ræðu í Bombay, þar sem
hann fordæmdi óeirðirnar. Fór-
ust honum m. a. svo orð, að eng-
ar stjórnir létu undan grjót-
kasti.
Aðalforustumenn þjóðernis-
sinna munu telja óeirðirnar ó-
heppilegar vegna þess, að ný
stjórn er nú komin til valda í
Bretlandi, er lét það vera eitt
fyrsta verk sitt að lofa Indverj-
um sjálfsforræði og boða samn-
inga við þá um þau mál. í
samræmi við það efndi hún til
kosninga í Indlandi. Þeim er nú
viðast lokið og hafa þjóðernis-
sinnar yfirleitt unnið mikinn
sigur, nema í helztu héruðum
Múhameðstrúarmanna. Þar sem
kosningunum er nú nær lokið og
ljóst er því, hverjir eigi að ann
ast viðræðurnar af hendi Ind-
verja, hefir brezka stjórnin nú
falið þremur af ráðherrum sín-
um að fara til Indlands og
semja við fulltrúa Indverja um
framtíðarstjórn landsins. Var sú
ákvörðun birt nú í vikunni.
Óeirðir sjóliðanna í Bombay
hófust á mánudaginn og byrj-
uðu með nokkurs konar verk-
falli. Brátt fóru sjóliðarnir þó
út á göturnar og gerðust að-
sópsmiklir. í gær voru þeir orðn-
ir kyrrlátari og ætlaði brezka
lögreglan þá að láta til skarar
skríða og hreinsa til í bæki-
stöðvum uppþotsmannanna. En
þegar hún var að hefja förina,
bárust henni þau merki frá
herskipunum á höfninni, að þau
ERLENDAR FRÉTTIR
I STUTTU MÁLI
— Orustur halda énn áfram
í Mansjúríu milli hersveita kín-
versku stjórnarinnar og komm-
únista.
— Verkföllum og óeirðum var
haldið uppi víða í Egiptalandi í
gær í mótmælaskyni gegn Bret-
um.
Gandhi
myndu hefja skothríð á borgina,
ef lögreglan léti til skarar skríða,
en sjóliðarnir hafa þau á valdi
sínu. Aðför lögreglunnar var þá
hætt í bili, en flotaforingi Breta
tilkynnti í útvarpsræðu, að fyrr
yrði herskipunum sökkt en látið
yrði undan uppþotsmönnunum.
í gær mögnuðust óeirðirnar
mikið og horfði til mikilla vand-
ræða um tíma, er uppreisnar-
menn höfðu náð á sitt vald
vopnabúri brezka hersins í Bom-
bay og-náð þar allmiklu af vopn-
um. í gær höfðu uppreisnar-
mennirnir í Bombay 20 herskip
á valdi sínu. Þá voru brezk her-
skip á leið til borgarinnar og
einnig var aukið herlið væntan-
legt flugleiðis. Samkvæmt sein-
ustu fréttum í gærkvöldi leit
heldur friðvænlegar út, en
miklar óeirðir voru þó enn í
borginni og einnig í Kalkúttu.
Búizt er við að Attlee forsæt-
isráðherra Bretlands gefi skýrslu
um Indlanadsmálin í brezka
þinginu í dag.
RÚSSAR AFNEITA
NJÓSNDM SÍNUM
Rússneska stjórnin hefir nú
viðurkennt, að starfsníenn hjá
sendiráði þeirra í Kanada hafi
fengið hernaðarlegar upplýsing-
ar hjá kanadiskum embættis-
mönnum. Jafnframt segir hún,
að sendisveitarmennirnir hafi
aflað upplýsinganna af eigin
frumkvæði, ep ekki vegna fyrir-
mæla frá stjórninni! Stjórnin
beri því enga ábyrgð á verki
þeirra, enda hafi þeir nú verið
kallaðir heim. Hún telur því, að
kanadiska stjórnin sé að þyrla
þessu máli upp í áróðursskyni
gegn Rússum.
Kanadiska stjórnin svaraði
þessum ásökunum Rússa þegar
í gær og var því harðlega neitað,
að Kanadamenn hefðu gert
annað í þessu máli en réttmætt
var, úr því sem komið var. En
það væri hins vegar rangt, að
(Framhald á 4. síðu).
Útgerðarmaður á Akureyri getur fengið
smíðaðan í Englandi fyrir 1,5-1,8
diesei-
milj. kr.
Upplýsingar, sem staðfesta mistök ogó-
sannindi ríkisstjó rnarinnar í togarakaupa-
málinu
Nýjar upplýsingar hafa nú fengist varðandi togarakaupin, er
er virðast staðfesta það, sem Tíminn hefir lialdið fram um þessi
mál. Upplýsingar þessar sýna, að verð togaranna er miklu óhag-
stæðara en þurft hefði að vera, og afskipti ríkisstjórnarinnar
hafa engan veginn verið eins nauðsynleg og hún hefir viljað vera
láta. Hefir ríkisstjórnin oftar en einu sinni gefið það í skyn, að
engir togarar hefðu fengizt smíðaðir í Bretlandi, ef hún hefði
ekki samið um togarakaupin.
Fyrir síðasta bæjarstjórnar-
fundi á .Akureyri lá fyrir um-
sókn frá Guðmundi Jörundssyni
útgerðarmanni þess efnis, að
bærinn ábyrgist hluta af kostn-
aðarverði togara, sem hann er.
að láta smiða fyrir sig í Bret-
landi. Mun hér vera um vand-
aðan dieseltogara að ræða. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum, er
fyrir lágu, mun togarinn kosta
tilbúinn 1.5—1.8 milj. kr.
Bæjarstjórnin ákvað þegar að
verða við þessari málaleitun
Guðmundar gegn því skilyrði, að
skipið verði gert út frá Akureyri.
Togararnir, sem ríkisstjórnin
samdi um smíði á, kosta sam-
kvæmt samningunum um 2 y2
milj. kr. en á þá vantar ýmsan
útbúnað, og telja kunnugir
menn, að þeir muni fullbúnir
alltaf kosta yfir 3 milj. kr. Þeir
munu að vísu vera eitthvað
stærri en togari Guðmundar, en
hann getur unnið það upp, þar
sem nann hefir dieselvél.
Þetta virðist vel staðfesta
þær upplýsingar Gísla Jóns-
sonar, að togarar ríkisstjórn-
arinnar kosti allt að helmingi
meira en bfezkir útgerðar-
menn vildu gefa fyrir þá.
Timinn hefir allgóðar heim-
ildir fyrir því, að fleiri íslenzkir
útgerðarmenn en Guðmundur
Jörundsson séu að semja um
smíði á togurum í Bretlandi eða
hafi þegar gert það. Og verðtil-
boðin, sem þeir hafa fengið,
munu ekki óhagstæðari en hjá
Guðmundi. Talið er þó víst, að
verðið hefði orðið enn hagstæð-
ara, ef víkisstjórnin hefði ekki
með hinum fljótráðnu og ó-
hugsuðu togarakaupum sínum,
stuðlað að verðhækkunum á
togurunum í Bretlandi.
(Framhald á 4. siðu).
Fundur forvígismanna
kaupfélaganna
Síðastl. þriðjudag og mið-
vikudag var háldinn hér í bæn-
um að tilhlutun S.Í.S. fundur
kaupfélagsstjóra og stjórnar-
formanna í kaupfélögum til að
ræða um ýms málefni samvinnu-
félagsskaparins. Fundina sátu
60—70 menn frá 40 kaupfélög-
um.
Miklar umræður urðu á fund-
inum og var rætt um ýms fjár-
hagsmál, framkvæmdir og verk-
efni kaupfélaganna í framtíð-
inni. Allmargar ályktanir voru
gerðar. Mikill áhugi var ríkjandi
á fundinum fyrir eflingu sam-
vinnufélagsskaparins.
Slíkur fundur hefir ekki verið
haldinn hér áður, en erlendis
er algengt að halda slíka fundi.
Þykja þeir hinir gagnlegustu,
því að þeir auka kynningu og
yfirsýn þeirra, sem eru í fylk-
ingarbrjósti félagsskaparins.
VERKFALLIÐ
Þegar blaðið fór í prentun í
gærkvöldi, stóðu enn yfir samn-
ingaumleitanir verkamanna og
atvinnurekenda, um kaupkröfur
þær, er gerðar hafa verið. Óvíst
var um niðurstöðu. Má eins vel
búast við verkfalli í Reykjavik
og Hafnarfirði í dag.
Baráttan við tundurduflin
Rúmlega 1400 tundurduflum hefir verið grandað hér við land
Svo sem alkunnugt er, var fjölda tundurdufla lagt í sjó i nánd
við strendur íslands á ófriðarárunum, en ekki fór að bera á, að
duflin slitnuðu upp og rækju fyrr en á árinu 1941, enda mún
þeim ekki hafa verið lagt svo neinu nam fyrr en á því ári og síð-
ar. Hefir Tíminn nýlega snúið sér til Skipaútgerðarinnar og
fengið hjá henni yfirlit um þessi niál, en hún hefir fylgzt með
duflum, sem vart hefir orðið við, og séð um eyðingu þeirra.
Tilkynnt hefir verið um sam-
tals 2054 tundurdufl á árunum
1940—1945. Af þeim hefir verið
sökkt 426, og gerð óvirk samtals
1053 tundurdufl. Mest var af
kuflunum á árunum 1941 og
1942. Síðan hefir þeim farið
fækkandi. Á árinu 1944 varð
aðeins vart við 95 tundurdufl
og 1945 ekki nema 50. Af dufl-
um, sem varð vart síðastl. ár,
voru 17 eyðilögð.
Meðan mest bar á hinum rek-
andi duflum, ollu þau mjög til-
finnanlegum töfum á siglingum,
og var t. d. varla vogandi að
sigla um stór svæði, nema í
björtu. Á þessum tíma fékk
Skipaútgerðin byssur á varð-
skipin og fleiri af sínum skip-
um, til þess að þau gætu skot-
ið í kaf þau dufl, er sæjust á
reki á siglingaleiðum. í kjölfar
þessa fengu einnig ýms önnur
skip byssur til hins sama, og
kom þetta að mjög miklum not-
um til varnar gegn tundurdufla-
hættunni. Eyðilegging duflanna
á þennan hátt byggðist á þvi, að
sé gat skotið á hinn sterka og
vatnshelda belg duflsins, svo að
það fyllist af sjó og sökkvi, pá
eyðileggst mjög bráðlega sá út-
búnaður innan í duflinu, sem
gerir það hættulegt.
íslendingar Iæra aff eyffa
tundurduflum.
Á árinu 1941 kom Skipaút-
gerð ríkisins því til leiðar, að
nokkrir íslendingar fengju til-
sögn hjá brezka setuliðinu í að
gera óvirk tipidurdufl, er á
land rækju. Skyldu menn þessir
vera tiltækir, ef á lægi, þegar
menn frá setuliðinu væru ekki
til staðar. Setuliðið vildi samt
ekki heimila, að íslendingarnir
ættu við duflin, nema brýn
nauðsyn bæri til, og varð niður-
staðan því sú, að fáir, þessara
manna öðluðust nokkra æfingu
eða reynslu í starfinu á ófriðar-
tímanum. Á síðari hluta styrj-
aldartímans komu líka til nýjar
Igerðir af duflum, einkum seg-
ulmögnuð dufl, sem aðeins 4
íslendingar hafa fengið tilsögn
í að gera óvirk. Þessir menn
Haraldur „duflabani"
eru: Haraldur Guðjónsson bif-
reiðarstjóri frá Hólmavík, nú
fluttur til Rvíkur, Evald Krist-
ensen, lögregluþjónn á Norð-
firði, Bóas Eydal bóndi á Borg,
Njarðvík, norðan Borgarfjarðar
eystra og Guðfinnur Sigmunds-
son, járnsmiður ísafirði. Má
segja, að nefndir menn séu þeir
einu af íslendingum, sem kunn-
áttu hafi til þess að fást við
tundurdufl, sem á land reka, en
(Fratphald á 4. síðu).
Frá • bæjarst jórnar-
fundi í gærkvöldi
í gær var haldinn bæjar-
stjórnarfundur og var hann
stuttur, enda bar þar fátt til
tíðinda, nema ef taldar skulu
smávægilegar orðahnippingar
út af málamyndartillögu frá
Birni Bjarnasyni, þar sem skor-
að var á ríkisstjórnina að leysa
Dagsbrúnardeiluna og lofað
stuðningi bæjarstjórnarinnar til
þess. Við þeirri spurningu Jóns
Axels Féturssonar, í hverju sá
stuðningur skyldi fólginn, fékkst
ekki svar.
Einnig hóf Jón Axel umræður
um það, að bæjarráð hefir sam-
þykkt að leggja rafmagnstaugar
,að Laxnesi í Mosfellssveit. Var
hann þeirri ráðstöfun andvíg-
ur og mátti á honum skilja, að
það væri meðfram sökum þess
hve óþjálir Mosfellssveitarmenn
hefðu reynst bæjarstjórn
Reykjavíkur í innlimunarmál-
unum um árið!
Umsóknir Byggingársam-
vinnufélags Reykjavíkur um
lóðir undir sænsk hijs bar nokk-
uð á góma. Minntist borgar-
stjóri í því sambandi á það, að
komiö hefði til álita, að smá-
hýsahverfi risi upp í Kaplaskjóli,
en taldi á því mörg vandkvæði,
og gæti bærinn ekki ráðstafað
þeim lóðum á þann hátt, fyrr
en að lokinni tímafrekri rann-
sókn og mælingum.
Loks var kosin nefnd til þess
að gera tillögu um byggingu og
tilhögun heilsuverndarstöðvar.
j Voru kjörin í þá nefnd: Jóhann
Sæmundsson, Jóhann Hafstein,
Sigríður Eiríksdóttir, Sigurður
Sigurðsson og Katrin Thorodd-
sen.
Skíða-Iandsmótið
Skíðalandsmótið verður að
þessu sinni haldið á Akureyri og
fer væntanlega fram um miðj-
an marz. íþróttabandalag Ak»-
ureyrar sér um mótið og annast
allan undirbúning þess. Öllum
félögum innan í. S. í. er heimil
þátttaka í mótinu og skal senda
umsóknir um þátttöku til
íþróttabandalags Akureyrar, en
formaður þess er Ármann Dal-
mannsson.
Sigursteinn Magnús-
son í Reykjavík
Sigursteinn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga í Leith,
kom til Reykjavíkur 11. febrúar
síðastliðinn. Ræddi hann við
forstjóra .Sambandsins og aðra
forráðamenn um viðskiptamál
og viðskiptahorfur, en flaug að
því búnu aftur til Bretlands
hinn 18. febrúar.