Tíminn - 24.02.1946, Qupperneq 1
I
RITSTJÓRI:
)
ÞÓRAKINN ÞÓRARINSSON
) ÚTQEPANDI:
\ PR AMSÓKN ARFLOKKURINN
ÍSímar 3353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.í.
Sd RITSTJÓRASKRIFSTOFUR:
} EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A
) Símar 2353 og 4373 \
Í' AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: \
EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A
Sími 2323 )
30. árg.
Reykjavík, sunnudaglim 24. febr. 1946
32. bla»
Erlent yfirlit
Dómarnir í Helsingfors vaida
þjóðarsorg í Finnlandi
ICommúnistar fá þar stóraukin völd
Síðastl. fimmtudag voru kveðnir upp í Helsingfors dómarnir
i málum þeirrá finnsku stjórnmálamanna, sem sakaðir voru um
þátttöku Finna í styrjöldinni. Dómar þessir bera þess full merki,
að dómararnir hafa ekki verið frjálsir gerða sinna, enda lýsti
í'orseti þingsins, Fagerholm, því yfir rétt áður en dómarnir voru
birtir, að Finnar væru ekki frjálsir gerða sinna í þessum efnum,
heldur yrðu þeir að fullnægja ákvæðum vopnahlésskilmálanna,
hvort sem þeim væri það ljúft eða leitt.
Dómsúrslitín uðu þau, að Ryti,
fyrrum forseti, var dæmdur í 10
ára betrunarhúsvinnu, Rangell,
fyrrum forsætisráðherra í 6 ára
fangelsi, Tanner, fyrrum fjár-
málaráðherra í 5 y2 árs fangelsi,
Linkomies, fyrrum forsætisráð-
herrí í 5l/2 árs fangelsi, Kivi-
máki, fyrrum sendiherra i 5 ára
fangelsi, Ramsay, fyrrum utan-
ríkisráðherra, í 2 y2 árs fangelsi,
og tveir fyrrv. ráðherrar aðrir,
Kukkonen'og Reinikka, í tveggja
ára fangelsi.
Síðan dómarnir voru kveðnir
upp hefir finnsk alþýða reynt
að sýna hinum dæmdu margvís-
lega samúð. T. d. tók allur
mannfjöldinn ofan, þegar hinir
dæmdu voru fluttir burt frá
dómhöllinni, eftir að dómarnir
höfðu verið kveðnir upp. Er-
iendir fréttaritarar segja, að
dómarnir hafi valdið þjóðarsorg
í Finnlandi. ' Eitt finhskt blað
segir, að eftir þetta sé ekki hægt
að segja, að Finnar hafi ekki
fært fórnir til að tryggja góða
sambúð við Rússa.
Fullar heimildir eru nú fengn-
ar fyrir því, að dómarnir voru
þyngdir eftir kröfu rússnesku
eftirlitsnefndarinnar.
Mál þetta er þannig til komið,
að Rússar kröfðust þess í vopna-
hléssamningunum, að refsað
yrði finnskum stj órnmálamönn-
um, sem bæru ábyrgð á stríðs-
þátttökunni. Finnar reyndu í
lengstu lög að komast hjá slík-
um málaferlum, en Rússar
gengu fast eftir efndum. Að
lokum neyddist þvi stjórnin til
að hefja þessi málaferli á síðastl.
hausti, eji reyndi að einskorða
þau við sem fæsta menn og þá,
sem Rússum var mest í nöp við.
Þetta hefir ekki sízt vakið
gremju almennings, því að séu
þessir menn sekir, eru núver-
andi valdhafar landsins eins og
Óeirðirnar
í Bombay
Miklar óeirðir eru enn i Bom-
bay og var aldrei almennari
þátttaka í þeim en í fyrradag.
Nokkuð dró úr óeirðum I gær,
enda reyndu foringjar Kongress-
flokksins að miðla málum.
Sjóliðarnir, sem gert höfðu
upprelsn, gáfust upp í gær-
morgun og framseldu herskipin,
sem þeir höfðu náð á vald sitt.
Samkomulag náðist um, að sak-
ir þeirra yrðu látnar niður falla,
og aðfinnslur þeirra um slæma
aðbúnað skyldu teknar ’ til
athugunar.
Ryti
Manneijiaeim, Paasekivi og Fag-
erholm jafnvel enn sekari.
í Finnlandi ber nú mikið á
ókyrrð meðal almennings.
Stjórnin hefir enn hert ritskoð-
unina eftir að dómarnir voru
kveðnir upp. Nýlega hafa og
verið sett lög, sem heimila inn-
anríkisráðherra að gera menn
burtræka til afskekktra héraða
og svipta þá borgaralegum rétt-
indum, ef þeir geri sig seka um
óþjóðholla starfsemi. Fyrirmæli
þessi mælast mjög illa fyrir,
enda óttast menn misbeitingu
þeirra, þar sem aðalforingi
kommúnista er nú innanríkis-
ráðherra.
ERLENDAR FRÉTTIR
I STUTTU MÁLI
— Stærstu stjórnmálaflokk-
arnir í Rúmeníu, bændaflokkur-
inn og frjálslyndi flokkurinn,
hafa nýlega^ birt löng ákæru-
skjöl á hendur stjórninni. Segja
þeir, að hún reyni siður en svo
að breyta stjórnarfarinu í
lýðræðisátt, eins og lofað hafi
verið, heldur auki stöðugt harð-
ræðið og kúgunina.
— Óeirðirnar í Egiptalandi
halda enn áfram. Stúdentar
vlrðast eiga mikinn þátt í þeim.
— Þjóðernissinnar á Jövu
telja sig óánægða með tilboð
Hollendinga.
— Yamahita, einn kunnasti
hershöfðingi Japana var hengd-
ur í Manila i gær. Hafði hann
verið dæmdur til dauða fyrir
ýmsa stríðsglæpi, sem hann
hafði unnið á Filippseyjum. Það
var Yamashita, er stjórnaði
töku Singapore.
— Stúdentar i Chungking
efndu til útifundar við rússneska
sendiherrabústaðinn í fyrradag
og kröfðust þess, að Rússar færu
með her sinn úr Mansjúríu.
— 400 menn fórust í námu-
slysi í Ruhr i síðastl. viku. Lok-
uðust þeir inni.
Dagsbrúnarfundurinn og verkfallið:
Verkamenn segjast ekkert vilja leggja á
sig fyrir „líftóruna í ríkisstjórninni”
Sjálfstæðisflokkurinn reynir enn að kaupa
heildsölunum frið með nýrri kauphækkun
Verkamenn í Verkamannafélaginu Dagsbrún hér í bænum
hófu verkfall síðastl. föstudagsmorgun eftir að mjög sögulegftr
fundur hafði verið haldinn í félaginu kvöldið áður. Á fundi
þessum var borin upp, eftir ósk ríkisstjórnarinnar, tillaga um
að fresta verkfallinu til mánudagsmorguns og var hún studd
af stjórn félagsins og meirihluta samninganefndar. Tillága
þessi var felld í skriflegri atkvæðagreiðslu með 369:269 atkvæð-
um og hófst verkfallið því morguninn eftir, eins og áður segir,
og stendur það ennþá yfir.
Verkfalli Hlífarmanna í Ilafnarfirði, sem einnig hófst á
föstudagsmox-gun, lauk hins vegar á hádegi sama dag, því að
samkomulag hafði þá náðst við atvinnurekendur.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar á
Dagsbrúnarfundinum komu for-
svarsmönnum stjórnarflokk-
anna mjög á óvart, þar sem þeir
höfðu lagt sig fram um að fá
hana samþykkta og höfðu ó-
spart látið skína í það, að ríkis-
stjórnin myndi leysa kaupdeil-
una með allríflegri kauphækk-
un. Þeir töldu því víst, að til-
lagan yrði samþykt með svo að
segja öllum atkvæðum, enda
hefði það verið í samræmi við
fylgi stjórnarflokkanna í Dags-
brún til þessa.
Á fundinum var frestunartil-
laga ríkisstjórnarinnar studd af
öllum stjórnarmönnum Dags-
brúnar og allri samninganefnd
félagsins, að einum manni und-
anskildum. Mótmælti hann
frestuninni á fundinum og kvað
verkamenn ekki hafa ástæðu til
að leggja neitt á sig til að halda
líftórunni i ríkisstjórninni. Var
tekið undir þessi ummæli hans
með dynjandi lófataki, en for-
manni Dagsbrúnar, 'sem mælti
með ríkisstjórnartillögunni,
veittist erfiðlega að fá hljóð.
Á fundinum létu verkamenn
það óspart uppi, að þeir gætu
ekki borið traust til ríkisstjórn-
arinnar og nefndu því til sönn-
unar heildsala- og milliliða-
.gróðann, fölsun vísitölunnar,
skattsvikin og aðra linkind við
stórgróðamennina. Margar
raddir voru á þá leið, að verka-
menn þyrftu ekki að sýna neina
tilhliðrun vegna stjórnarsam-
vinnunnar. Mátti þannig greini-
lega marka, að verkamenn eru
farnir að sjá í gegnum fals og
skrum stjórnarliðsins.
Á fundinum kom það einnig
mjög skýrt ^ram, að verkamenn
töldu sér miklu hagkvæmara,
að farið hefði verið inn á þá
braut að lækka dýrtíðina, eink-
um heildsala- og milliliðagróð-
ann, í stað þess að knýja fram
nýja kauphækkun, sem ekki
getur orðið launþegunum meira
en augnablikshagur. Meðal
fundarmanna kenndi líka fulls
skilnings á því, að réttu leiðinni
var hafnað af forustumönnum
þeirra vegna samstarfsins við
Sjálfstæðisflokkinn. Varð það
ekki til að bæta álit þeirra á
stj órnarsamvinnunni.
Enn á að kaupa frið
fyrir heildsalana!
Það er nú komið á daginn, að
rikísstjórnin var búin að semja
(Framhald á 4. síðu).
,HVAÐ HEYRI EG’
sagði Claessen
í samningaviðræðum
um kaupgjaldsmálin hóf
einn verkamaðurinn máls
á því að allar kauphækk-
anir verkalýðsins til þessa
væru étnar upp og meira
en það af heildsölunum.
„Hvað heyri ég,“ sagði
Eggert Claesen, „eiga ekki
rauðu flokkarnir meiri-
hluta í verðlagsráði og
hafa því skammtað heild-
salagróðann.“
Það sló þögn á verka-
mennina, er skvett var
framan í þá þessum ó-
hugnanlegu sannindum.
*
Vestur-Islendingum
boðið heim
Eins og getið hefir verið í
fréttum frá Þjúðræknisfélaginu
áður hefir stjórn félagsins
ákveðið, í samráði við ríkis-
stjórnina, að bjóða til íslands
á næsta sumfi nokrum merkum
Vestur-íslendingum. Þeir, sem
boðnir hafa verið, eru ritstjór-
ar íslenzku Vesturheimsblað-
anna, Einar Páll Jónsson, rit-
stjóri Lögbergs og Stefán Ein-
arsson, ritstjóri Heimskringlu,
ásamt konum þeirra beggja.
Ennfremur kemur í boði félags-
ins Grettir Leo Jóhannsson
ræðismaður íslands í Winnipeg
með konu. Verður þeim tilkynnt
boðið á 27. þingi Þjóðræknis-
félags Vestur-íslenú,inga, sem
sett verður í Winnipeg á morgun
og stendur yfir í þrjá daga.
Esja kemur ekki fyrr
en í aprílmánuði
Strandferðaskipið Esja fór
héðan um nýárið til Dan-
merkur og hefir verið þar í
viðgerð (klössun) síðan. Við-
gerðin reyndist umfangsmeiri
en búizt var við og mun ekki
verða lokið við hana fyrr en í
fyrsta lagi í byrjun apríl.
Veldur þetta miklum erfið-
leikum með samgöngur við
afskekktari staði landsins,
þar sem Esja er eina strand-
ferðaskipið, sem farþega flyt-
ur, svo nokkru nemur.
Viðgerð sú, sem fram þarf að
fara á skipinu, er allmikil, eftir
mikið starf og áníðslu stríðsár-
anna. Miklar tjónaviðgerðir eru
m. a. á skipinu, sem stafa af
því, að skip, sem siglir í strand-
ferðum hér við land, er alltaf að
leggja að og frá bryggjum, sem
illa eru varðar sjógangi og
margar lélegar að öðru leyti.
Skemmdir á skipinu stafa einn-
ig af því, að á stríðsárunum var
oft mikil þröng I höfninni I
Reykjavík og yrðu skipin því að
leggjast hvert utan á annað,
hlið við hlið. Orsakaði þetta
einkum skemmdir á minni skip-
unum eins og Esja er I saman-
burði við flest hinna erlendu
skipa, sem hér komu í höfn á
stríðsárunum.
Þegar viðgerðinni á Esju er
lokið, en það verður varla fyrr
en í apríl, mun skipið að öllum
líkindum fara til Kaupmanna-
hafnar, en viðgerðin hefir farið
fram í Aalborg. í Kaupmanna-
höfn verða þá teknir farþegar
til íslands. Hafa Skipaútgerð
ríkisins þegar borizt fjölda fyr-
irspurnir um far með skipinu til
íslands.
Aflabrögð í Ólafsvík
með allra bezta móti
Bátar frá Ólafsvík hafa aflað óvenjulega vel í vetur og mun
afli óvíða eða hvergi vera orðinn jafnmikill og, þar. Má vel af
þessu marka, að Ólafsvík getur átt mikla framtíð fyrir höndum
sem útgerðarstaður, ef aðstaða til útgerðar verður aukin og
bætt bar.
Frá Ólafsvlk ganga í vetur
fjórir vélbátar/ 17—20 smál. í
janúar var afli þeirra, sem hér
esgir: Víkingur 56.700 kg., Fram-
tíðin 56.100 kg., Snæfell 56.100
kg., Hrönn 39.000 kg. Það sem
af er þessum mánuði, mun afli
vera frá 70—80 smál. á bát.
Bátarnir hafa íengið þennan
afla á venjulegum miðum, en
á þau er 30—40 mín. sigling frá
Ólafsvik.
Vegna þess, hve stutt er á
miðin frá Ólafsvík, hentar þessi
bátastærð þar mjög vel. All-
margir bátar af þessari stærð
eru nú ekki gerðir út víða á
landinu, m. a. vegna þess, að
þeir þykja óheppilegri til sjó-
sóknar þar en stærri bátar. Er
þetta mikið tjón fyrir eigendur
þeirra og myndu þeir vafalaust
láta þá stunda veiðar frá stað
eins og Ólafsvík, ef þess hefði
verið kostur. Eigi Ólafsvik að
geta bætt úr slíkri þörf í fram-
tíðinni, verður að bæta verulega
hafnarskilyrði þar. Aflabrögðin
þar í vetur, mættu vissulega vera
lærdómsrik fyrir þá áhrifamenn,
sem hafa látið það álit uppi, að
stöðva eigi hafnarbætur þar.
Pétur Zóphóm'asson
látinn
'Pétur Zóphóníasson ættfræð-
ingur lézt í Landsspítalanum í
gærmorgun. Hann hefir gegnt
mörgum trúnaðarstöðum og ver-
ið mikill áhugamaður um fé-
lagssamtök bindindismanna og
skákmanna og tekið virkan þátt
í þeim félagssamtökum. Eftir
hann liggja allmikil ritstörf. Auk
þess, sem hann var um skeið
ritstjóri Þjóðólfs hefir hann
skrifað nokkrar bækur, einkum
um ættfræði og skák.
Verkfall yfirvofandi
Verkfall strætisvagnastjóra
hér í bænum mun hefjast í
þessari viku, ef ekki hefir náðst
samkomulag áður. Bílstjórarnir
fara" fram á talsverða kaup-
hækkun.
Nýtt félag báta-
útgerðarmanna
Hinn 4. þ. m. stofnuðu nokkrir
bátaútgerðarmenn í Reykjavík
og Hafnarfirði félag, sem hlaut
nafnið „Fiskumboð Reykjavíkur
og nágrennis.“ Flestir bátaút-
gerðarmenn á þessum stöðum
eru nú gengnir í félagið,
Tilgangur félagsins er að selja
fisk og hrogn félagsmanna, til
útflutnings og á innlendum
markaði. Jafnframt að vinna að
vöruvöndun og gæta hagsmuna
félagsmanna. Heimili félagsins
skal vera í Reykjavík.
Félagssvæðið er gert ráð fyrir
að verði Reykjavík og suður fyr-
ir Hafnarfjörð. Það getur þó
vel orðið stærra, og takmarkast
fyrst og fremst við það, að ekki
sé gripið inn á svæði sams kon-
ar félags.
í stjórn félagsins voru kosnir:
(Framhald. á 4. síðu).