Tíminn - 21.03.1946, Page 3
50. blað
TÍMINN, fÍmmtadagÍMM 21. mara 1940
3
SIMASAMBANDSLAUST er við
Vestfirði í dag. Frá þvl í desember-
byrjun munu nú vera komnir 20—30
dagar, sem ekkert talsímasamband
hefir verið milli Reykjavíkur og ísa-
fjarðar og fjarðanna þar fyrir vestan.
Milli Borðeyrar og Patreksfjarðar um
ísafjörð mun enn Vtera sama símalína,
sem þar var lögð í fyrstu. Er það til-
tölulega grannur járnvlr og því von,
að hann þoli illa stórbrotna vetrar-
veðráttu, þegar líður að fertugsaldr-
inum, endá má ekkert út af bera
með veður. Hér þarf því við skjótra
og mikilla endurbóta. Vonandi lætur
símastjórnin hefjast handa í því efni
strax og vorar og kleift verður að
koma við gagngerðri endurnýjum.
BRETAR OG BANDARÍKJAMENN
hafa tekist á hendur forustu í stríð-
inu gegn hungrinu. Margar stórfram-
kvæmdir eru á döfinni, eins og hinar
daglegu fréttir bera með sér. —
„Friðrik Axel“ hefir skrifað blaðinu
um þann þátt, er hann vill, að ís-
lendingar eigi í þeirri herför:
„VIÐ HLUSTUM nú daglega á
áskoranir um að spara matvæli, til
þess að unnt sé að leggja fram sem
stærstan skerf gegn hungrinu —
stríði, sem er ægilegra en hinn ægi-
legi hildarleikur á vígvöllunum —
vágesti, sem ógnar fleira mannfólki
fjör- og heilsutjóni en féllu á nokkru
einu ári meðan hin ægilega heims-
styrjöld stóð yfir. Þessar áskoranir
og allt þetta htmgurástand getum við
ekki látið okkur óviðkomandi. Það
talar fyrst og fremst til mannúðar
okkar og mannslundar að leggja
fram einhvern skerf til þess að taka
þátt í líknarstarfi vegna hinna þjáð-
ustu. Þetta kemur m. a. greinilega
fram í hinni myndarlegu fjársöfnun
til þýzkra barna, sem staðið hefir
yfir. í öðru lagi talar matvælaá-
standið til okkar sem framleiðenda.
Það skapar ný og aukin skilyrði til
þess að selja vörur í stórum stíl.
jafnframt þeirri góðu meðvitund, að
þessi matvælaframleiðsla bjargi mörg-
um mannslífum, máske tugþúsundum
NÚ ER ÞAÐ VITAÐ, að ísland er
tiltölulega eitt mesta matarbúr í Norð-
urálfu. Fiskveiðarnar eru mestur fót-
urinn undir matvælaöflun okkar,' sem
komið getur til mikils útflutnings.
En í hungursneyð eru molarnir
brauð, og ’allt, sem matarkyns er vel
þakkað. Það er líka vitað, að sem
stendur eigum við íslendingar ekki
teljandi birgðir af fiski og lýsi, miðað
við þann matvælaskort, sem nú er
fyrir hendi, og skerfur okkar ís-
lendinga til hinna sveltandi þjóða er
ekki jafn mikill og sumra þeirra
þjóða, sem eru að koma úr þreng-
ingum styrjaldarinnar og hafa haft
ólík skilyrði og við íslendingar um
framleiðslu og söfnum matvæla.
EN ÞÓTT SEGJA MEGI, og það
sjálfsagt með réttu, að hlutur okkar
í þessum efnum hefði getað verið
meiri en hann nú er, tjáir ekki um
það að sakast. Það er komið sem
komið er. Hitt skiptir nú mestu máli,
hvort íslendingar vilja gerast aðilar
í styrjöldinni gegn hungrinu. Munu
flestir telja það sjálfsagt. Næst er
þá að athuga, með hverjum ráðum
slíkt væri tiltækilegast.
ÞAÐ MYNDI LITLU muna sökum
fámennis þjóðarinnar, þótt hér væri
minnkaður matarskammtur. Rétt er
þó að athuga þá leið. En það, sem
aðallega kæmi til greina í þessu efni
er betri hagnýting ýmsra fiskafurða,
og kapp við öflun þeirra. Mörg þús-
und máltíðir mætti nú á yfirstand-
andi vertíð fá í hverri hinna stærri
verstöðva af fiskkinnum og kverksig-
um, sem nú er allt unnið í fiski-
mjöl, eða fer beint í sjóinn aftur.
SVO ER ÞAÐ SILFURFISKUR -
INN, síldin. Hér hefir. veiðzt síld
austanlands og veiðist ef til vill enn.
Síld þessi er sízt verri til matar
en margt af Noregssíldinni, sem nú
er seld og send víða á hungursvæðin
í Evrópu. — Því ekki að gera þessa
veiði sem verðmætasta, með því að
vinna hana í mat, en ekki moka
henni í skít og mjöl, svo sem mest
(Framhald á 4. siðu).
HANS MARTIN:
SKIN OG SKÚRIR
Wijdeveld skellir hurðinni harkalega á eftir sér. Sómi flaðr-
ar upp um hann. Hann má ekki koma inn í dyngju Lúsíu.
„Komdu, Sómi minn .... það virðist enginn vilja skilja mig
í dag. Eigum við ekki að bregða okkur út? Við skulum aðgæta,
hvernig gengur að búa til básinn handa asnanum.“
Já, hann verður að fara á stúfana og biðja trésmiðinn að
búa til jötu og drykkjarílát. Svo þarf að kaupa klórur og bursta.
Ó, hvers vegna geta ekki allir tekið þessari nýjung með fögn-
uði og tilhlökkun? Lúsía veit raunar ekki um asnakaupin ennþá
— ef til vill man hún alls ekki eftir því, að Janni á afmæli í dag.
Hún hugsar aðeins um sjálfa sig — og kannske stöku sinnum
um Maríönnu og Karel, sem eru líkust henni.
Wijdeveld reikar álútur út í garðinn ....
Hve lengi hefir hann setið úti í horninu í skúrnum, þar sem
bás asnans á að vera? Hér er talsverð saggalykt og moldarþef-
ur upp úr gólfinu. Sólin kastar öðru hverju geislum sínum inn
um litlar rúðurnar. Úti í einu horninu er skófla og gaffall, arfa-
skafa og grasklippur. Og þarna eru líka brotnar hjólbörur, gam-
all kassi, sem vínflaska er máluð utan á, og annar stærri kassi,
sem hann situr á......Hér er dásamlega hljótt og friðsælt.
Hvers vegna fer allt á annan veg en menn óska? Hingað hefð-
um við Lúsía átt að fara saman — við hefðum átt að hafa sam-
ráð um asnakaupin, tala saman um ^það, hvað við gætum gert
til þess að gleðja yngri börnin á afmælisdögum þeirra. Skyldi
ekki hafa gleymzt að kaupa afmælisköku? Afmælisdagur Janna
í fyrra gleymdist alveg, og einu sinni fórum við Lúsía í boð á
aímælisdegi Hettýjar. Það var ekki fyr en viku síðar, að það kom
í Ijós, að barnið hafði átt afmæli þennan dag.
Hann roðnar af blygðun. Hvílíkt uppeldi! Og hvílíkt skeyting-
arleysi um börnin! Og svo furðar hann sig á háttalagi Karels!
Það er ég sjálfur, sem ekki er hæfur til þess að gegna skyld-
um mínum — það er ég, sem ber ábyrgð á þessu .... Og Lúsía
líka....En nú hefi ég komizt að raun um glöp mín — í gær og
í dag .... Og allt í einu sér hann í anda töluna 352.788,23.
Það er laugardagsmorgun — van Meegen er áreiðanlega tek-
inn til starfa fyrir löngu. Og nú er Bosman gamli kominn
og bíður mín. En ég sit hér i þessum gamla skúr og velti
vöngum yfir skyssum mínum — í stað þess að sinna nytsömum
störfum...... Fjögur þúsund gyllina vínskuld .... Karel og
Renée. Og hann rifjar upp fyrir sér það, sem farið hafði milli
hans og Karels og Lúsíu. Þau létu hann bæði skilja það, að hann
væri ekki annað en náttugla, sem dagað hefði uppi. Þau gætu
lifað hér í sátt og samlyndi — en svona er veruleikinn ....
„Jæja, Janni minn — ertu kominn til þess að athuga bás-
stæðið?“
CORONA-FERÐARITVÉIAR
eru löngu orðnar frægar.
Einkaumboð:
Samband ísfl. Samvlnnufélaga.
LÖGTAK
Eftir kröfu Sjúlcrasanilags Rcylija*
víkur og að undangengnuni úrsflcurði,
uppflcveðnum í dag, með tiflvísun til 88.
gr. laga um alþýðutryggingar nr. 74, 31.
des. 1937, slsr. 86. gr. og 42. gr. sömu
laga, sflsr. lög nr. 29, 16. des. 1885, verð-
ur án frekari fyrirvara lögtak látið
fram fara fyrir öllum ógreidalum ið-
gjöldum Sjúkrasamlagsins, jseim er félflu
I gjalddaga 1. marz 1946 og fyr, að átta
dögum liðnum frá flsirtingu þessarar
auglýsingar, verði |sau eigi greidd inn-
an jsess tísna.
1. marz 1946.
. Borgarfógetinn í Reykjavík
BÓKIN UM
ANNINN
ER AÐ KOMA
I Ein almerkasta flsók, sem gefin Isefir verið út liér á landi
Bókin er eftir þýzka prófessorinn DR. FRITZ KAHN, og er talin fremsta bók í heimi í sinni grein.
Bóhin fjallar einunijis um heilbriy&an mann. Lgst er hverjju einasta líffwri oc/ mynd af þeim, starfi þeirra og þgðingu. —
Rókin um manninn lýsir manninum líkt og kennari í vélfræði lýsir vél. Haim lýsir hverjum einstökum vélarlsluta, hvernig
Iiann starfar og sambandi lians við aðra liluta vélarlnnar. Hann lýsir nákvæmflega hvernig á að st£órnn véliimi þannig að
engin truflun komi á gang lieimar og hvernig á að verja liana hilunum og lialda Iieimi við.
Rókin um, maiminn kemur ekki í stað læknis, því hún er ekki lækningabók, en Isúsí skýrir fyrir yður hina furðulegustu
leyndardóma hinnar miklu vélar, sem nefnd er maimslíkanti, og kennir yður að umgangast hana með meiri virðingu og
nærgætni og mun þess víðast full þörf.
Ritstjóri Bókarinnar um manninn er Dr. Gunnlaugur Claessen.
Önnur bók Dr. Kahn nefnist „K1NLÍF“ og f jallar hún einungis um kynferðisllfið og allt sem þvl við kemur.
400—500 hlaðsíður í stóru broti mcð f jölda litmynda.
Sú bók er
Báðar þessar bækur eru ákaflega nauðsynlegur hlutur á hverju heimili, sérstaklega til sveita, og ætti ekkert sveitaheim-
ili að vera án þeirra.
Áshriftarverð bóhanna er 20—30% lœgra en bóhhlöðuverð.
Undirritaður gerist hér með áskrifandi að Bókinni um mann-
inn í rexinskinnbandi verð 150,00 auk burðargjalds
Nafn
Heímili
Til Helgafells, Box 263, Rvk.
Undirritaður gerist hér með áskrifandi að bókinni „Kynlif“ í
rexinskinnbandi verð 105.00
Nafn
Heimili
Til Ilelgafells, Garðastræti 17, Box 263