Tíminn - 06.06.1946, Side 4

Tíminn - 06.06.1946, Side 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er í Eddukásinu vib Lindargötu. Sími 6066 REYKJAVÍK FRAMSÓKNARMENN! KomÍb í skrifstofu Framsóknarftokksins e. Jtini 194G 99. blað Bruninn á Akranesi (Framhald af 1. siBu). stræti 26, inn i þessar fyrirætl- anir, og Þórður Halldórsson, til heimilis á Dagverðará á Snæ- fellsnesi vissi einnig um áform þessi. Þessir menn, að Þórði undanskildum, bundust nú sam- tökum um að framkvæma brennuáform þessi og skyldu þeir Jóhannes og Sigurður fremja sjálfa ikveikjuna. Ást- ráður útvegaði húsið undir vör- urnar, áðurnefnt sláturhús B. Ó. & Co., og vátryggði þær eins og áður segir fyrir 600 þús. kr. Enda þótt Þórður væri ekki í sjálfum brennusamtökunum, átti hann þó vörur í brennunni á nafni Jóhannesar. Hafði Jó- hannes sagt honum, að hann gæti tekið af honum vörur í brennuna og Þórður samþykkt það. Varð það úr að allir þessir menn fluttu vörur í sláturhúsið til að brenna þær þar í þeim tilgangi að fá greitt vátrygg- ingarfé þeirra. Snorri átti mest af vörunum eða vátryggðar fyrir um 350. þús. kr. alls, Jóhannes um 145 þús. kr., Sigurður um 40 þús. kr., Þórður um 25 þús. kr. og Ástráður nokkuð meira. Var ákveðið, að Ástráður skyldi að brennunni afstaðinni, fá, auk vátryggingarfjár sinna eigin vara, 30% af vátryggingarfjár- hæð vara Snorra og ca. 25% af vátryggingarfjárhæð vara Jóhannesar. Jóhannes tók að sér að framkvæma brennuna einn. Kvöldið 14. maí fór hann í bifreið til Akraness með benzín til íkveikjunnar. Bifreiðinni ók Þorgils Hólmfreð Georgsson, bifreiðarstjóri, Hliði á Álftanesi, og vissi hann hverra erinda Jó- hannes fór ferðina. Bæjarfógetinn á Akranesi hóf rannsókn um brunann 16. maí og ieiddi húh til þess að Ást- ráður Proppe var úrskurðaður í gæzluvarðhald, og fluttur hing- að til Reykjavíkur. — Ástráður er fóstursonur hjónanna Carls og Jóhönnu Proppé. Hefir rannsókn staðið yfir hér síðan og hafa allir hinir seku játað brot sín. í sambandi við rannsókn um Akranessbrunann hafa sannast þrjár íkveikjur hér í Reykjavík í vetur og liggja fyrir játningar hinna kærðu um þær allar. fkveikjja í Miðstr. 5. Um kl. 5 aðfaranótt 20. jan. kom upp eldur í bólstraraverk- stæði í kjallara hússins Mið- stræti 5, sem er járnklætt tim- burhús, þrjár hæðir og ris, og þá var eign Snorra Jónssonar og var metið til brunabóta á kr. 250 þús. kr. — í húsinu bjuggu 22 manns, þar af 2 menn í ris- hæðinni. Snorri hafði 1 hyggju *að reisa nýtt.hús á þessari lóð og vildi því losna við gamla húsið af loðinni. Hann bað því Jóhannes Pálsson, að kveikja í því fyrir sig, fyrir allháa fjárhæð og tók hann það að sér. Þeir eru sam- mála um að Snorri hafi, vegna íbúa hússins, viljað láta kveikja í þVí að degi til eða kvöldi. Brunakaðlar voru engir í húsinu og Snorri hafði ekki kynnt sér það mál. Jóhannes óaði við að fremja íkveikjuna einn. Hann skýrði kunningja sínum Gísla Kristjánssyni, sjómanni, Móa- búð á Snæfellsnesi, frá þessu áformi og bauð honum hluta af launum þeim, sem hann átti að fá fyrir íkvéikjuna til þess að fremja hana með sér. Þetta féllst Gísli á. Þeir komu íkveikj- unni þó ekki i framkvæmd fyr en aðfaranótt 20. janúar, en þá komu þeir drukknir af dans leik í Sandgerði. Þá fóru þeir að húsinu og kastaði Gísli log- andi eldspítu inn um opinn glugga á bólstraraverkstæðinu. Menn sváfu i næsta herbergi við verkstæðið og vöknuðu þeir við eldinn og kölluðu á slökkvi- liðið, sem kom strax og slökkti Skemdir urðu þó nokkrar. fkvelkja í skúr við Miðstræti 5. Að kvöldi hins 4. febr. s. 1. kom upp eldur í útiskúr við Miðstræti 5, en í honum voru geymdar vörur, sem þeir Sig- urður Jónsson og Jóhannes Pálsson áttu og voru bruna- tryggðar í Sjóvátryggingarfélagi íslands h. f. Þessar vörur sínar hafði Sigurður keypt fyrir milli- göngu Snorra Jónssonar. í þess- um vörum kveikti Sigurður, í þeim tilgangi að fá vátrygging- arfé þeirra, og skemmdust þær mikið við brunann, en eyðilögð- ust ekki með öllu. Þær voru vátryggðar fyrir kr. 91.000.00, en tjónið var greitt eftir mati með kr. 69.926.17. Vörur Jóhann- esar voru vátryggðar fyrir 33 þús. kr., en tjónið á þeim greitt eftir mati, með rúmum 12 þús. kr. Slökkviliðið kom á bruna- staðinn og slökti eldinn áður en skúrinn brynni. fkvoikja I vöru- geymslu við Vonar- stræti 4. Aðfaranótt 18. febr. kveikti Jóhannes Pálsson að beiðni Snorra Jónss. í vörugeymslu- skúr á bak við Vonarstræti 4, en slökkviliðið slökkti þann eld áður en hann náði að grípa um sig. Skúrinn var virtur til bruna- bóta á kr. 27.700.00, en vöru- birgðir, sem í honum voru, voru vátryggðar fyrir kr. 170.000.00. Mjög litlar skemmdir urðu af þessu. Fyrirliuguð íkveikja í Baldursg'ötu 12. í vetur fór Snorri fram á það við Jóhannes Pálsson, Þórð Halldórsson og Sigurð Jónsson, að kveikja í húsinu Baldursg. 12, sem er einlyft timburhús, sem búið var í, og bauð þeim fé fyrir. Hafði hann í hyggju að byggja á lóð hússins og vildi því losna við það af lóöinni. Húsið var virt til brunabóta á kr. 12.700.00. Menn þessir vildu eigi sinna þessu og var eigi kveikt í húsinu. Nýir frambjóðendur Björn Sigtryggsson. (Framhald af 1. síðu). búskap árið 1919 og hefir búið þar síðan. En á þeim árum voru nýbýli næsta sjaldgæf hér á landi og lítt sinnt af ráðamönn- um landsins. Nú stendur Björn í fremstu bænda röð, með hér- aðstraust að baki. Honum hafa verið falin mörg trúnaðarstörf innan héraðs, verið hrepps- nefndarmaður og oddviti í Reykdælahreppi, sýslunefndar- maður, formaður Búnaðarsam- bands Þingeyinga um tíma, í stjórn Húsmæðraskólans á Laugum, o. fl. og formaður Kaupfélags Þingeyinga hefir hann verið síðan 1936. Björn er skörulegur maður og rökfastur, og heldur; á málum með festu og einurð. Mun hann verða öt- ull og virðulegur fulltrúi hér- aðs síns og stéttar á' Alþingi. — — Hann er kvæntur Elínu Tóm- asdóttur frá Stafni í Reykjadal. Halldór Ásgrimsson. (Framhald af 1. síðu). firði, en stjórnaði jafnframt Kaupfélagi Borgarfjarðar fyrst í stað. Hefir átt sæti í sýslu- ■nefnd Norður-Múla&ýslu og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum öðrum en hér eru taliri, enda lengi notið álits í héraði. Hafa Norð-Mýlingar nú valið hann til framboðs, er hinn vinsæli full trúi þeirra, Páll Hermannsson, baðst undan lengri þing- mennsku, og mun þann skipa það sæti með prýði, þótt vand- fyllt sé, enda gagnkunnugur hinu víðlenda kjördæmi og á- hugamálum þess. — Hann er kvæntur Önnu Guðnýju Guð- mundsdóttur frá Litlu Vík í Borgarfirði. Hilmar Stefánsson. (Framhald af 1. síðu). starfs síns í Búnaðarbankanum og sérstaklega á Suðurláglend- inu siðan hann var útbússtjóri Kosningabaráttan . . . (Framhald af 1. síðu). sældir stj órnarstefnunnar. Með framboði stjórnarandstæðinga á að tæla menn, sem eru andvíg- ir stjórnarstefnunni, til að kjósa stjórnarflokkana. En kjósend- urnir munu hins vegar sjá við þessu og gera sér ljóst, að flokk- um, sem leika þannig tveimur skjöldum, er ekki hægt að treysta. Því munu stjórnarand- stæðingar, hvar sem þeir hafa áður verið í flokki, fylkja sér um Framsóknarflokkinn og láta hann vera eina vaxandi flokk- inn í þessum kosningum. Framsóknarmenn ganga gunn- reifir og sigurvissir til kosn- inganna. Alls staðar úti í heim- inum er miðflokksstefnunni að vaxa fylgi, eins og nýafstaðnar kosningar í Frakklandi og Ítalíu sýna bezt. Þjóðirnar vilja hvorki stórgróðavald né kommúnista. Þær vilja heilbrigða og mark- vissa þróun. Sú mun einnig verða reynzlan hér. En til þess að sigur Framsóknarflokksins verði sem mestur og stærstur, þurfa allir stuðningsmenn hans að vinna vel. Liggi enginn flokksmanna á liði sínu, getur Framsóknarflokkurinn verið stærsti flokkurinn að þingfylgi og atkvæðamagni eftir kosning- arnar. i (jamta Bíc Ein bættispr óf. (Framhald af 1. síðu). Smári, I. eink. 169 stig, Þórður Möller, II. eink. betri 133% stig. Embættisprófi í guðfræði hafa lókið: Arngrímur Jónsson, II. eink. betri 123J/3 stig, Bjart- mar Kristjánsson, I. eink. 157y3 stig, Emil Björnsson, I. eink. 152 stig, Jóhann Hlíðar, I. eink. 132 stig, Kristinn Hóseasson, II. eink. lak. 71% stig, Sigurður M. Pétursson, I. eink. 126% stig, Þorsteinn Valdimarsson, I. eink. 155% stig. á Selfossi. Hefir Búnaðarbank- inn dafnað ágætlega undir stjórn hans. Lipurmenni og al- úðlegur í framkomu, og munu fáir bera honum annað. Hann er gagnkunnugur landbúnaðar- málum og fjármálum, ber hag bændastéttarinnar mjög fyrir brjósti, og var hinn mesti á- hugamaður í lýðveldismálinu. Á sæti í miðstjórn Framsóknar- flokksins. —- Hilmar er kvæntur Margréti Jónsdóttur frá Stokks- eyri. Halldór Kristjánsson. (Framhald af 1. síðu'). Vestfjarða. Tvo vetúr var hann erindreki Ungmennafélags ís lands og ferðaðist þá víða um land og flutti fyrirlestra. Hann hefir verið endurskoðandi Kaupfélags Önfirðinga í nokkur ár. í skólanefnd héraðsskólans á Núpi síðan 1936. í sýslunefnd Vestur-ísafjarðarsýslu síðan 1938. Nú undanfarið hefir hann átt sæti í milliþinganefnd í í stjórnarskrármálinu,sem kosin er af Alþingi. — Halldór hefir ritað allmargar greinar í Tímann og víðar, mest um landsmál (en þó einnig um bókmenntir o. fl.), og má hik- laust telja hann meðal ritfær- ustu manna landsins á því sviði (Hann hefir t.d. manna bezt, og þó í hófi, tekið í hnakkadrymbið á „kontoristum" í Rvík, sem hafa ætlað að gera sig breiða á kostnað bændastéttarinnar) Hann er einnig meðal sjöllustu ræðumanna, skáld gott, frjáls lyndur og drengur góður. - Hann er kvæntur Rebekku Ei ríksdóttur frá Sandhaugum í Bárðardal. Trúlofun. sina opinberuðu nýlega ungfrú Odd- ný Jónsdóttir, Yzta-Hvammi, S.- Þing. og Sigþór Guðnason, Sæfelli, Seltjarnarnesl. SELFOSS fer héðan fimmtudaginn 6. júní til Skagastrandar og Siglu- fjarðar. E.s. HORSA fer héðan mánudaginn 10. júní til vestur- og norðurlandsins. Viðkomustaðir: Patreksfjörður, ísafjörður, Siglufjörður, Akureyri, Húsavík. Vörur tílkynnist sem fyrst. H.f. Eimskipafélag tslands. c ta;n mr.rjr i i:n Breiðafjarðarferð Tekið á móti flutningi til Snæ- fellsnesshaína árdegis í dag. (3 Ef þið eruð slæm í höndun- um, þá notið „ELÍTE- HMDLOTÍON“. Mýkir hörundið, gerir hend- urnar fallegar og hvitar. Fæst í lyfjabúðum og verzlunum. Heildsölubirgðir hjá rnEnm/p Ávarp Vegna þeirra góðu undir- tekta, sem blaðið hefir fengið hjá almenningi og vegna fjöl- margra áskorana, sem ritnefnd- inni hafa borizt um að halda áfram útgáfu þess, og það ekki sízt vegna þeirrar nauðsynjar, sem ritnefndin telur á því, að óháð málgagn sé til, er geti bar izt fyrir þeim málstað, er blaðið er helgað, meðan það mál er enn ekki til lykta leitt, hefir ritnefndin ákveðið að halda á fram. útgáfu blaðsins. Að blað- inu hafa staðið öll stjórnmála félög stúdenta við Háskólann, Stúdentaráð Háskólans og Stúd- entafélag Reykjavíkur. Enginn þessara aðilja hefir yfir neinu fjármagni að ráða, blaðið hefir ekki tekið neinar auglýsingar og engum áskriftagjöldum verið safnað. Ef blaðið á að geta haldið áfram göngu sinni verður það því að fá aukið fjármagn til umráða. Ritnefndin skorar því á alla unnendur blaðsins og alla þá, sem áhuga hafa fyrir þeirri baráttu í sjálfstæðismáli íslendinga, sem blaðið hefir háð, að styrkja það fjárhagslega. Þeir, sem vilja verða við þessari áskorun, eru vinsamlega beðnir að senda framlög sin hið allra fyrsta til Hermanns Pálssonar stud. mag. Nýja Stúdentagarð- inum, sími 4789. Ritnefnd stúdentablaðsins „Vér mótmælum allir.“ Æskan vill ráða (Young Ideas) Amerisk gamanmynd. Susan Peters Rfohard Carlson Herbert ManhaU. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11. * TJtjja Bíc (viS Shúlagötu) t heimi tóna og tryllings. („Hangover Square") Aöalhlutverk: Laird Cregar, Lfnda Damelll, George Sanders. Sýnd kl. 9. Bönnuð börnum yngrl en 16 &rfc. Við Svnafljót. Hln fagra söngvamynd með Don Ameche og Andrea Leeds sýnd kl. 5 og 7 — eftir ósk fjöl- margra. BEMSKLBREK Og ÆSKUÞREK Hin helmsfræga sjálfsævisaga Winston Churchill’s er bráðum uppseld. Kostar kr. 53.00 í góðu bandl. SnælandsútRáfan, Lindargötu 9A, Reykjavík TjatHatbíc DÓMSINS LtÐUR (The Hom Blous at Midnlght) Ameriak gamanmynd. Jack Benny, Alexis Smfth. Sýning kl. 5—7—9. Öllum vinum og vandarríönnum fjœr og nœr, þakka ég af einlœgni, nú, þegar ég fer af sjúkrahúsinu, fyrir hlut- tekningu, gjafir og heimsóknir i veikindum mínum. ÁSDÍS LÁRUSDÓTTIR. FRÁ MEÐALHOLTUM. Húnvetningafelagið gengst fyrir skemmtiferð norður i átthagana dagana 15.—17. júní —- Áskriftalistar liggja frammi í Verzl. Vestu, Laugaveg 40 og í Rafmagn h.f., Vesturgötu 10. Þar fást nánari uppl. Farseðlar verða afgreiddir á sömu stöðum, sækist fyrir 13. júní. Héraðsmót Húnvetninga er ákveðið að halda í Reykja- skóla sunnudaginn 16. júní. Ferðanefndin. Selskinn Selskinn Selskinn og lambskinn kaupum við hæsta verði. Fyrirspurnum svarað um hæl. « Sótunarverksmiðjan h.f. Heildverzlun Þórodds Jónssonar, Skrifstofur: Hafnarstræti 15. Símar 1747 (2 línur). Tilkynning frá Viðskiptaráói um timburinnflutning frá Bússlandi. Rikisstjórnin hefir fest kaup á 10.000 standörðum af algengu bygginga-timbri frá Rússlandi. Brýna nauðsýn ber til þess að timbur þetta verði flutt til landsins hið allra fyrsta. Viðskiptaráðið óskar því b(érmeÖ eftir umsóknum um gjaldeyris- og innflutningsleyfi fyrir umrætt timbur frá ‘þeim aðilum, sem vilja koma til greina við úthlutun timb- ursins. Vegna þess hve naumur tími er til stefnu, þurfa um- sóknirnar að hafa borizt ráðinu fyrir kl. 4 e. h. föstudaginn 7. júní næstkomandi. Aðilum utan Reykjavíkur er því nauðsynlegt að senda umsóknir sínar með símskeyti. 5. júní 1946. Viðskiptaráðið. I

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.