Tíminn - 13.06.1946, Page 1
RITSTJÓRI:
ÞÓBtA ÍXN N ÞÓRARINSSí »N
ÚTGEFAIT3I.
FRAMSÓJ CN AR PLOICK11H IN N
simai' 23s:i <37*
PRENTSJWUÐ.) AN EDDA UJ
30. árg.
RrrSTJÓRASKRD' CTOFUR:
EDDUHÚSI. U’.dargötu 9 A
Símar 2353 og 4378
AFGRETÐKLA iNNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRÍFSTOFA
EDDUHÚSL Llndargötu « A
Stml 3S23
Rpykjavík, fimmtudagiim 13. júuí 1946
103. biað
Hræðslan við eigin óstjórn:
StjórnarfSokkarnir þora ekki að iáta kjósa
um stefnu rikisstjómarinnar
Nýir frcimbjóðendur
Framsólcnarfloklcsins
Jón Kjartansson
Jón Kjartansson skrifstofu-
stjóri er frambjóSandi Fram-
sóknarflokksins í Siglufiröi.
Hann er fæddur 5. júní 1917 í
Sigluf. Foreldrar: Kjartan Jóns-
son prestur frá Hofi í Vopnafirði
og Jónina Tómasdóttir prests
á Hvanneyri í Siglufirði og víðar.
— Jón Kjartansson lauk prófi i
Samvinnuskólanum árið 1935,
var verkstjóri hjá Síldarverk-
smiðjum ríkisins 1935—’43, en
hefir síðan verið skrifstofustjóri
hjá skipaafgreiðslunum í Siglu-
firði. Áhugasamur góðtemplari
og hefir verið einn af aðalfor-
vígismönnum þeirra í mikils-
verðum málum (Sjómanna-
heimilið). Hann er sérlega ván-
sæll maður, tr^austur og drengi-
legur. Hefir tekið mikinn þátt í
félagsstörfum Framsóknar-
manna í Siglufiröi. — Kvæntur
Þórnýju Tómasdóttur kaupfé-
lagsstjóra á Hofsósi Jónssonar.
Pálmi Bannesson
einkum á sviði menntamála og
náttúrufræðirannsókna, m. a.
verið í menntamálaráði, út-
varpsráði, forseti hins íslenzka
þjóðvinafélags, í stjórn Hins ís-
lenzka náttúrufræðifélags, í
stjórn Ferðafélags íslands, for-
maður veiðimálanefndar og for-
maður nefndar til að stjórna
hagnýtum rannsóknum, en auk
þess sinnt meira eða minna
ýmsum þjóðnýtum störfum, sem
ekki verða hér talin. Hann hefir
fengizt allmikið við ritstörf, tal-
ar og skrifar fagurt mál og er
meðal vinsælustu fyrirlesara i
útvarpi. En skólamál og þjóðar-
uppeldi eru heitustu áhugamál
hans. — Skagfirðingar kusu
hann á þing 1937 og við fyrri
kosningarnar 1942 með glæsi-
legum meirihluta, og gaf hann
kost á sér til framboðs þar fyrir
beiðni manna, er annar fram-
bjóðandi flokksins, sr. Sigfús
Jónsson féll frá rétt fyrir kosn-
ingar vorið 1937. En haustið
1942 gaf hann ekki kost á fram-
boði. — Hann er kvæntur
Raghhildi Skúladóttur alþingis-
manns, Thoroddsens.
Kristján Jónsson
Skátar á Akureyri
gangast fyrir tveim
landsmótnm
Skátafélag Akureyrar og
Kvenskátafélagið Valkyrjan,
Akureyri, standa fyrir tveim-
ur landsmótum í sumar. Er
það fyrra haldið fyrir drengi
dagana 20. til 27. júní.
i Skátamótinu hefir verið á-
kveðinn staður í Mývatnssveit.
Mótið sjálft stendur yfir í fimm
daga og mun þá verða dvalið í
fastatjaldbúðum. Þaðan verður
farið í smærri hópferðir um ná-
grennið, svo sem í Slútnes,
Dimmuborgir og Námaskarð. Á
kvöldin verða svo varðeldar eins
og siður er hjá skátum. Seinni
dagana fara eldri skátar gang-
andi frá Mývatni að Dettifossi,
niður með Jökulsá og í Ásbyrgi,
en þeir yngri munu dvelja í
Vaglaskógi. Einnig er ráðgert að
tveim til þrem dögum verði var-
ið til að skoða Akureyri og ná-
grenni. Þeim skátum, sem þess
þurfa, verður séð fyrir dvalar-
stað á Akureyri fyrir og eftir
mótið. Mótinu verður slitið með
stórum varðeld við Akureyri.
Skátar hafa þann sið að halda
landsmót á nokkurra ára fresti,
þar sem skátar frá ýmsum stöð-
um landsins hittast, þreyta
keppnir og tengja vináttubönd,
sem seint slitna. Fyrsta skáta-
(FramlialcL á 4. síðu).
SKATTSKRÁIN
KOMIN ÚT
Skattskrá Reykjavíkur, kemur
út fyrir hádegi i dag og verður
strax seld á götum bæjarins.
Skattskráin nær yfir öll opin-
ber gjöld Reykvíkinga á yfir-
standandi ári. Hún er á 6.
hundrað blaðsíður að stærð og
stærri en nokkru sinni áður.
HÚSBRUNI Á
AKUREYRI í
Síðdegis í fyrradag brann
tveggjá hæða íbúðarhús á Akur-
eyri. Tólf manns bjuggu í hús-
inu og misstu þeir nær allir eig- j
ur sínar.
Eldsins varð fyrst vart um kl.
3 og þá í geymsluskúr áföstum
húsinu. Var slökkviliði bæjarins
þegar gert aðvart, en það kom
ekki tækjum við, því að húsið
stendur langt frá vatnsveitu-.
kerfi bæjarins. Brann húsið því
gersamlega á rúmlega klst.
Á efri hæð þess bjó Sigfús Ax-
fjörð ásamt konu og fimm ung-
um börnum, móður sinni og
ömmu, en á neðri hæð bjó Sig-
rún Karlsdóttir með tvö börn.
Var hún ekki heima er eldurinn
kom upp. Missti hún alla búslóð
sína. Á efri hæðinni tókst að
bjarga einhverju af húsmunun-
um. Vátryggt var á neðri hæð- j
inni, en mjög lágt á þeirri efri.
Þessvegna hafa þeir stjórnarandstæðinga
í kjöri til að reyna að villa
á sér heimildir
Hver verður afstaða stjórnarflokkanna til ríkisstjórnarinnar
eftir kosningar? Þannig spyrja nú kjósendurnir, hvar sem þeir
hittast, og við þessari spurningu fá þeir engin greinileg svör,
þegar þeir virða fyrir sér frambjóðendalið flokkanna. Enginn
veit hvaða liðsmenn þessara flokka ná kosningu og því síður
hverjir af frambjóðendum þeirra kunna að skolast inn í þingið
sem uppbótarmenn. En méðal frambjóðendanna innan hvers
flokks er svo mikill ágreiningur, að blátt áfram varðar stefnu
og aðgerðir í höfuðmálum lands og lýðs.
Pálmi Hannesson rektor er
efsti maður á lista Framsóknar-
flokksins í Reykjavík og gat sér
mikinn /orðstýr s.l. vetur, er
hann vann sæti í bæjarstjórn,
þrátt fyrir sameinaðar hrakspár
allra andstöðuflokkanna. Fædd-
ur 3. jan. 1898 á Skíðastöðum í
Skagafirði, sonur hjónanna
Hannesar bónda þar Pétursson-
ar og konu hans Ingibjargar
Jónsdóttur frá Þóreyjarnúpi.
Stúdent 1918. Próf í nátt-
úrufræði við háskólann í
Khöfn. Náttúrufræðikennari við
menntaskólann á Akureyri og
rektor menntaskólans í Rvík
síðan 1929. Honum hefir verið
falinn fjöldi trúnaðarstarfa
Kristján Jónsson frá Garðs-
stöðum er frambjóðandi Fram-
sóknarflökksins á ísafirði. Hann
er fæddur 18. febr. 1887 á Garðs-
stöðum í Ögurhreppi, sonur
hjónanna Jóns bónda þar Ein-
arssonar og Sigríðar Jónsdóttur
frá Eyri. Stundaði verzlunarnám
í Kaúpmannahöfn 1907 til 1908.
Verzlunarmaður á ísafirði
siðan til 1916 og einnig áð-
ur. Ritstjóri og útgefandi Vestra
um hrið. í stjórn h.f. Djúpbáts-
ins um hríð, í yfirskattanefnd og
endurskoðandi við útibú Lands-
(Framhald á 4. síðu).
Bændur á mæðiveikisvæðinu
greiða atkvæði um fjárskipti
Sauðfjársjúkdómanefnd ákvað á fundi þann 29. maí s.l. að
láta fara fram skoðanakönnun meðal allra atkvæðisbærra fjár-
eigenda á mæðiveikisvæðinu um það, hverjir eru með skipulögð-
um allsherjar fjárskiptum gegn mæðiveiki og hverjir á móti.
í tiiefni af þessu hefir öilum oddvitum á mæðiveikisvæðinu
verið sent bréf ásamt atkvæðaseðlum og þeir beðnir að láta at-
kvæðagreiðslu>»a fara fram.
Framsóknarraenn
í Reykjavík!
Kosningaskrifstofa B-listans
er í Edduhúsinu við Lindargötu.
Opin 10—10 daglega. Sími: 6599.
Framsóknarmenn í Reykjavík,
komið í kosningaskrifstofuna og !
takið virkan þátt í kosningabar-
áttunni undir kjörorðinu: Pálmi
Hannesson skal á þing.
Tíminn hefir í tilefni af þessu
snúið sér til Sæmundar Frið-
rikssonar, framkvæmdastj. fjár-
sjúkdómanefndar, og átt viðtal
við hann um þessi mál. Sæ-
mundi segist svo frá:
Áður en til þess kemur að
fjáreigendur greiði atkvæði- um
þettfi mál ættu þeir almennt
að gera sér sem gleggsta grein
fyrir því, hvað mælir með og
hvað móti fjárskiptum. Skulu
hér nefnd fáein atriði:
Það, sem mælir með f járskipt-
um er t. d. þetta:
1. Þurramæðin gerir mörgum
bændum erfitt fyrir, og það svo
að tvísýnt er, hvort þeir geta
viðhaldið sauðfjárbúskap með
svipuðu áframhaldi.
2. Lækningatilraunir eru á
frumstigi, og því vafasamt að
bændur geti beðið eftir árangri
þeirra, þó nokkrar vonir séu
bundnar við þær.
3. Að öllu leyti væri æski-
legast að geta útrýmt mæði-
veikinni úr fjárstofninum, sé
þess nokkur kostur, enda eru
bændur yfirleitt ánægðir með
fjárskipti, þar sem þau hafa
farið fram.
Hinsvegar mælir ýmislegt á
móti því að ráðist sé í stórfeld
fjárskipti. Má í því sambandi
nefna þetta:
1. Engin vissa er fyrir því, að
veikin geti ekki borizt á nýjan
leik í fjárstofninn, einkum sök-
(Framhald á 4. síðu).
ÞRJÚ MET SETT í
SUNDKEPPNINNI
í GÆRKVÖLDI
í gærkveldi fór fram sund-
keppni í Sundhöllinni í Reykja-
vík, fyrri dagur keppninnar
milli ísl. sundmanna og dönsku
sundmannanna, sem hér eru í
heimsókn.
Árangurinn i gærkveldi var
mjög góður og voru þrjú ís-,
landsmet sett. Úrslit urðu sem
hér segir:
100 m. skriffsund karla.
1. Ari Guðmundsson, 1 m. 1,5 sek
(Framhald á 4. síðu).
Sjálfstæðisflokkurinn gengur
þríklofinn til kosninga. Hann
hefir tekið það ráð að skjóta
ágreiningsmálunum á frest og
láta ráðast hver stefnan eða
stefnurnar verða eftir kosning-
ar. Vísisdeildin kom Birni Ól-
afssyni í sæti vonarmannsins í
Reykjavík eða fyrsta uppbótar-
manns flokksins. „Borgarstjór-
inn okkar,“ eins og Mbl. segir,
varð að fara niður í sjötta sæti,
svo að heldsalarnir næðu rétti
sínum. Reyndar tala menn borg-
arstjórans hiklaust um það, að
skemmtilegra hefði verið fyrir
Bjöi’ri að falla með sæmd í sjötta
sæti, heldur en með skömm í
fimmta sæti. Þeir eru ekki neitt
myrkir í.máli um það, að hann
eigi ekki áð halda fimmta sæt-
inu lengur en fram að kosning-
um.
Hins vegar segja aðrir, að
Björn Ólafsson og hans menn
muni grípa til almenns niður-
skurðar ofantil á listanum.
Þannig eru heilindin, einingin
og samstaðan á því heimili.
í þriðja lagi eru svo fimm-
menningarnir, sem bæði fyrr og
síðar hafa lýst yfir andstöðu
sinrii við ríkisstjórn Ólafs Thors.
Um Sósíalistaflokkinn er það
að segja, að meginhlutinn af
forustuliði hans er úr Kommún-
istaflokknum gamla. Þeir menn
horfa til Moskvu sem heilagrar
borgar, og þar eru lyklavöldin
að sál þeirra og sann^æringu.
Engin trygging er fyrir því, að
þessum mönnum verði vikið til
hliðar eða áhrif þeirra brotin á
bak aftur, þó að mikil óánægja
sé nú með þá innan flokksins.
Það er ekki annað hægt en að
meta flokkinn og dæma eftir
þeirri forustu, sem hann velur
sér og fylgir. En meðan sú for-
usta helzt, er flokkurinn raun
verulega stefnulaus um íslenzk
mál og bíður eftir bendingunum
aj5 austan. Og enginn íslenzkur
maður getur rennt grun í hvers
konar bendingar það kunna að
verða. En hvernig sem þær
kunna að verða, munu þær gilda
sem lög fyrir Sósíalistaflokkinn,
meðan hann hefir óbreytta for-
ustu.
Alþýðuflokkurinn býður nú
þannig fram, að enginn getur
vitað hvort hann verður heldur
með stjórninni eða móti eftir
kosningar. Þeir, sem greiða hon-
um atkvæði vita ekki hvort þeir
eru að segja já eða nei við
stjórnarsamstarfinu. Þeir vitta
ekki hvort þeir eru að kjósa
Barða eða Stefán Jóhann,
Hannibal eða Ásgeir Ásgeirsson.
Svo undarlega er nú málum
komið, að stjórnarflokkarnir
virðast ætlast til þess, að menn
telji ríkisstjórnina, stefnu henn-
ar og störf aukaatriði. Það er
ætlast til þess, að menn greiði
flokkunum atkvæði í blindni,
án þess að taka afstöðu til rík-
isstjórnarinnar eða gera sér
grein fyrir stefnu og málefnum.
Sannleikurinn er sá, að stjórn-
arflokkarnir þora ekki að ganga
til kosninga, sem hreinir stuðn-
ingsflokkar núverandi ríkis-
stjórnar. Þeim óar við að taka á
sig þá ábyrgð, sem því fylgir.
Þyí eru stjórnarandstæðingar
alls staðar hafðir inn á. milli,
til að rugla kjósendur í ríminu.
Stjórnarflokkarnir hafa ekki
manndóm til að taka á sig á-
bjrgð á stjórnarfarinu eins og
það er og berjast á þeim grund-
velli með drengskap og karl-
mennsku. Þeir leggja á flótta
frá þeirri ábyrgð og reyna að
(Framhald á 4. slðu).
Framsóknarmenn
um land alit!
Framsóknarmenn, sem fariff
aff heiman fyrir kjördag, 30.
júní, muniff aff kjósa áffur en
þiff fariff, hjá næsta hrepp-
stjóra effa sýslumanni.
Framsóknarmenn, sem eruð
fjarverandi og verðiff þaff fram
yfir kjördag, 30. júní, muniff aff
kjósa strax hjá næsta hrepp-
stjóra, sýslumanni eða skip-
stjóra ykkar, svo aff atkvæffiff
komist heim sem allra fyrst.
Framsóknarmenn! Takiff allir
virkan þátt í kosningabarátt-
unni. Látið ekki dragast aff
gera affvart um fjarstadda kjós-
endur, sérstaklega þá, er dvelja
erlendis. Muniff aff ekkert at-
kvæði má glatast.
Leitið allra upplýsinga og aff-
stoffar hjá kosningafulltrúum
flokksins, kosningamiðstöffvum
kjördæmanna og
KOSNINGASKRIFSTOFUNNI
í REYKJAVÍK,
Edduhúsinu, Lindargötu 9 A
Sími: 6066.