Tíminn - 13.06.1946, Page 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er i
Edduhúsinu vib Lindargötu, Sími 6066
4 ! REYKJAVtK
FRAMSÓKNARMENN!
Kom’ið í kosningaskrifstofuna
13. JtilSÍ 1946
103. blað
„Steinar fyrir brauð”
íhaldsmenn segja fyrir kosn-
ingarnar: Við Sjálfstæðismenn
erum flokkur allra stétta. í móð-
urfaðm okkar geta allir sótt ör-
yggi, öreigar, burgeisar og allt
þar á milli.
En hvernig tala staðreyndirn-
ar um þessi fögru loforð?
Dýrtíðarkóngurinn Ól. Th.
hefir,þokað vísitölunni upp um
101 stig á 20 mánuðum, og þó
falsað vísitöluna um ca. 34 stig,
samkvæmt útreikingi J. Blön-
dals. Hinir ríku verða ríkari og
þeir fátæku fátækari. Tveggja
o^ þriggja herbergj^. íbúðir í
leigukössum kosta nú frá 100—
150 þús. kr. líkt og stærlta höf-
uðból landsins hefði kostað fyrir
stríð með allri áhöfn. Hvernig
haldið þíð að afkoman verði hjá
verkamanni, sem hefir 12—1500
kr. mánaðarlaun og kaupir .slíka
íbúð, auk allra annara þarfa
fjölskyldunnar.
Það þarf meira en litla ó-
skammfeilni til að reyna að
halda því að fólki að íhaldið sé
flokkur allra stétta. En þetta
gera ritstjórar Mbl. og forsetinn
frá Akri í ísafold.
Stjórnarliðinu þótti það ófor-
skammað af bændum þegar
þeim datt í hug með sínum eigin
frarfhögum, að hressa upp á
húsnæði Búnaðarfélagsins. Það
þótti ósvífni að þeim datt i hug
að koma^upp ódýru gistiheimili
svo að þeir þyrftu ekki að vera
á götunum þegar þeir eiga er-
indi í höfuðstaðinn. En máttar-
stólpar íhaldsins byggja sér veg-
leg hús og þeir byggja meira.
Trúboðsstöð þeirra við Austur-
völl (auknefnd „Holstein) var
byggð gegn öllum venjulegum
skipulagsreglum. Til þess að
ekkert skyggði á þá byggingu,
gróf Bjarni Ben. heila spenni-
,stöð í jörð niður. Verkamenn
borguðu með útsvörum sínum.
Stórgróðamenn láta sér ekki
nægja að byggja lúxusbyggingar
í bænum, heldur stærstu sum-
arhallir. Fjölskyldan Thors á tvö
sumarhús við Hoffjarðará. Þau
eru ekki nógu fín. Við sinn
hvorn enda Þingvallavatns hafa
Jensenssynir byggt hallir fyrir
hálfa—heila miljón. Sömuleiðis
í Skorradal. Þar þurfti að leggja
næstu jörð undir höllina, svo al-
múginn væri ekki of nærgöng-
ull.
Trúi nú hver sem trúa vill, að
íhaldið sé flokkur allra stétta.
Það verða áreiðanlega steinar
fyrir brauð, sem almúginn fær
frá „íhaldinu.“
Skulu hér Ylfingar
öllu ráða?
Ýmsum, og þar á meðal mörg-
um Sjálfstæðismöiyium, þykir
nóg um uppgang Ylfinga (öðru
nafni Kveldúlfsmanna) í fjár-
málum íslands.
Munu Ylfingar nú eiga allt
sitt á þurru, hafa selt suma
gömlu togarana og hliðra sér
hjá sem mest þeir mega að
hætta fé sínu í „nýsköpun"
ríkisstj órnarinnar.
Jafnframt eiga nú þessir
menn sterk ítök í heildverzlun-
inni, og viðskipti forsætis- og
utanríkisráðherrans við krata
og kommúnista í ríkisstjórninni
hafa áreiðanlega verið gerð með
fullu tilliti til Ylfinga, hvað sem
öðrum atvinnurekstri líður. Ylf-
ingar hafa verið beint og óbeint
stríðsgróðamenn landsins. Tveir
af nánustu venzlamönnum ut-
anríkisráðherrans eru sendi-
herrar íslands hjá stórveldunum
og aðrir ganga sendiherrunum
næstir.
Eigi skulu þó viðkomandi
starfmenn erlendis áfelldir af
þessum sökum. En hvað er nú
orðið um hina mörgu gáfuðu
íslendinga, ef endilega þarf að
gera mikinn hluta utanríkis-
þjónustunnar innanlands og ut-
an að eins konar „fjölskyldufyr-
irtæki“ Ylfinga.
Er ekki annað eins og það
óþarfi, þó að ekki sé meira sagt.
Myndi ekki rétt að hugsa ráð
sitt áður en meira og meira
af einkaauðmagninu sópast í
hendur Ylf inga og f er sínar leiðir.
Framsóknarmenn verða að
vera þar á verði, því að jafn-
vel forvígismenn sósiallista-
flokkanna eru nú blindir á því
auganu, sem að Ylfingum snýr,
þó að þeir hamist að öðrum
Sjálfstæðismönnum a. m. k. fyr-
ir kosningar.
Sundkeppnin
(Framhald af 1. síðu).
2. John Christensen, 1 m. 2,1 sek.
3. Rafn Sigurv.son, 1 m. 2,3 sek.
Þetta er nýtt met hjá Ara.
Gamla metið átti hann sjálfur
og var það 1. m. 1,6 sek.
100 m. bringusund karla.
1. Sig. Jónsson Þ., 1 m. 18,7 sek.
2. Sig. Jónsson, R., 1 m. 18,9 sek.
3. Kaj Petersen, 1 m. 19,0 sek.
Tími Sigurðar Þingeyings var
nýtt met. Gamla metið átti nafni
hans í KR og var það 1 m. 3 9,3
sek. '
200 m. bringusund kvenna.
1. Anna Ólafsd. 3 m. 21,7 sek.
2. Áslaug Stefánsd. 3 m. 23,3 sek.
3. Gyða Stefánsd., 3 m. 35,7 sek.
Anna setti hér nýtt met.
Gamla metið átti Þorbjörg Guð-
jónsdóttir og var það 3 m. 26,4
sek.
100 m. skriðsund drengja.
í. Ragnar M. Gíslason, 1 mín.
14,5 sek.
2. Rúnar Kjartansson, 1 mín.
24,4 sek.
3X100 m. boðsund.
1. Sveit Dana, 3. mín 39,2 sek.
2. A sveit íslendinga 3. mín.
40,3 sek.
TVö skátamót
(Framhald af 1. síðu).
landsmótið var haldið í Þrasta-
skógi árið 1925 og síðan hafa
landsmót verið haldin á þessum
stöðum: Laugardal 1928, Þing-
völlum 1930, 1936, 1938 Og 1944,
Akureyri 1935 og Hreðavatni
1942 og er þetta því áttunda
landsmót íslenzkra skáta.
Þátttakendur úr Reykjavík
leggja af stað norður að morgni
miðvikudagsins 19. júlí.
Kvenskátamótið verður haldið
undir stjórn frk. Brynju Hlíðar
við Eyjafjörð. Kvenskátamót
var síðast haldið í Vatnsdalshól-
um 1944, og mun þetta mót
verða með svipuðu sniði og þar
var. Farið verður í gönguferðir
um nágrennið, og auk þess mun
ef til vill verða efnt til stærri
hópferða að mótinu loknu.
B. A. próf
B.-A.-prófi hafa nýlega lokið:
Björg Valgeirsdóttir, Dóra Har-
aldsdóttir, Erla Elíasdóttir, Sig-
fríður Bjarnar, Sigríður Magn-
úsdóttir, allar í ensku, frönsku
og heimspffki.
Kandidatspróf
Kandídatsprófi í viðskipta-
fræðum hefir nýlega lokið Stef-
án Svavars, 2. eink. betri, 200
stig.
3. B sveit Islendinga 3. mín.
51,4 sek.
A sveit íslendinga synti á
mun skemmri tíma en ísl. met-
inu, sem Ægir á, en það er
3 inín. 48,4 sek.
í boðsundssveit Dana voru:
John Cristensen, Kaj Petersen
og Mogens Bodal.
í A sveit íselndinga voru:
Guðmundur Ingðlfss. Sigurður
Jónsson (Þ) og Ari (^uðmundss.
Keppnin heldur áfram í kvöld.
CHEVROLET
VÖRUBÍLAR
Getum útvegað hlna vel þekktu Chevrolet-vörubíla beint
frá verksmiðjum General Motor’s Corporation í Ameriku,
með mjög stuttum fyrirvara.
Þeir, sem eiga gjaldeyris- og innflutningsleyfi, ættu að
tala við okkur sem fyrst.
CHEVROLET ER
BEZTI BÍLLINN
m
Samband ísl. samvinnuf élaga
Nýir frarabjóðendur
Kristján Jónsson
(Framhald af 1. síðu).
bankans. Hefir mjög lengi
starfað í þágu sjávarútvegsins
og að ýmsum málefnum þess at-
vinnuvegar. Verið erindreki
Fiskifélags íslands í nál. aldar-
fjórðung og hátt á annan tug
ára fulltrúi á fiskiþingi. Átti
sæti í milliþinganefnd í sjávar-
útvegsmálum. Var einn af stofn-
endum Samvinnufélags ísfirð-
inga 1927 og mörg ár í stjórn
þess. Síldarmatsmaður lengst af
1916—’33. Hefir ritað ýmislegt
um sjávarútvegsmál m. a. í
tímaritið Ægi, hluta af Barð-
strendingabók o. fl. Kristján er
yfirleitt nákunnugur Vestfirð-
ingum og atvinnuvegum þeirra
einkum við sjóinn. — Hann er
kvæntur Sigríði Guðmundsdótt-
ur frá Lundum í Borgarfirði.
Stjórnarflokkarnir . .
(Framhald af 1. síðu).
hylja sig í reykskýjum á flóttan-
um.
Það getur verið að hin póli-
tísku reykský geti einhverju
bjargað fyrir þessum flótta-
mönnum. En ólíklegt er annað
en kjósendurnir heimti yfirleitt
ákveðna stefnu, hreinar línur
og bert andlit í þessari kosn-
ingabaráttu.
Þá vandast málið fyrir þeim,
sem eru hræddir við fortíð sína
og stefnu. Þá verður erfitt um
vik fyrir þá, sem telja sér nauð-
synlegt að leika tveim skjöldum
og mæla tveim tungum. Þá
kreppir að þeim, sem vilja bæði
mega afneita og aðhyllast.
Stjórnarflokkarnir ganga allir
klofnir til kosninga um hin þýð-
ingarmestu mál. En fólkið
heimtar ákveðna stefnu og hrein
svör. Eini flokkurinn, sem geng-
ur til kosninganna með hreina
og skýra stefnu, sem allir fram-
bjóðendur hans eru sammála
um, er Framsóknarflokkurinn.
Hann er andstæður ríkjandi
stjórnarstefnu og vill láta sam-
starf umbótamanna í lýðræðis-
flokkunum leysa núverandi ó-
stjórn af hólmi.
(3
Ef þið eruð slœm í höndun-
um, þá notið
„ELtTE-
HMDL»TÍON“.
Mýkir hörundið, gerir hend-
urnar fallegar og hvítar. Fæst i
lyfjabúðum og verzlunum.
Heildsölubirgðir hjá
fHEMinX
Hverjir stigu fyrsta ...
(Framhald af 2. síðu)
hefir gengið skeleggast fram í
þessum málum, enda er það
hans krafa og skilningur, að
skylt sé að hjálpa öllum þegn-
um landsins til þess að komast
í sæmileg' húsakynni, hvort
heldur búa við sjó eða í sveit.
Að því leyti, sem andstöðu-
flokkar Framsóknarmanna hafa
á stundum tekið í svipaðan
streng, hafa þeir komið þar á
eftir — gengið þá braut, sem
Framsóknarmenn ruddu, enda
knúðir til þess af almennings-
álitinu.
Minnist þess í vor og ætíð.
Bændur á mæði-
veikisvæðinu ....
(Framhald af 1. síðu).
um þess að einangrunarskilyrðn
eru víðast hvar erfið.
2. fjárskipti hafa í för með
sér allmikinn kostnað fyrir rík-
issjóð, og jafnframt nokkurn
kostnað fyrir bændur, mikla erf-
iðleika meðan á þeim stendur,
og afurðatap í bili, sem ekki yrði
bætt að fullu úr ríkissjóði.
3. Góð fjárkyn, með tilliti til
afurða, og önnur með nokkra
mótstöðu gegn mæðiveiki, eyðast
um leið og fjárskipti væru gerð.
Vert er að fjáreigendur geri
sér þessi atriði og fleiri ljós í
sambandi við væntanlega at-
kvæðagreiðslu um málið.
Ef svo fer að atkvæðagreiðsl-
an leiðir í ljós, að mikill meiri
hluti fjáreigenda er samþykkur
fjárskiptum, mun málið verða
tekið ‘til nánari athugunar og
að því loknu lagt fyrir næsta
Alþingi. >
Cjatnla Btc
Frú Parkington
Gerö eftir hinni heimsfrægu
sögu Louis Bromfield.
Aðalhlutverk:
Greer Garson,
Walter Pidgeon.
Sýnd annan hvitasunnudag
kl. 3, 6 og 9.
Hækkaö verð.
ýnd kl. 6 og 9.
tyja fiíi
(viff Skúlagötu)
'<• 4«
IJM
ÓKIIMA STIGl.
Þrjátíu bráðskemmtilegar og
spennandi ferðasögur og ævin-
týri frá ýmsum löndum, eftir
þrjátíu höfunda.
Þýðendur:
Jón Eyþórsson og
Pálmi Hannesson.
Bókin er á fjórða hundrað
siður, prýdd mörgum gullfalleg-
um myndum. Kostar kr. 5230 í
góðu bandi.
Aðeins fá eintök eftir.
Snælandsútgáfan.
Lindargötu 9A, Reykjavík
Perla dauðans
Spennandi leynilögreglumynd
byggð á sögunni „Líkneskin 6“.
eftir Coynan Doyle.
Aðalhlutverk:
Basil Rathbone
Evelyn Ankers
Niegel Bruce.
Sýnd kl. 5, 7.og 9.
Bönnuð börnum yngri
en 16 ára.
'Tjatnatbíc
4
Merki krossins
(The Sign of the Cross)
Stórfengleg mynd frá Róma-
borg á dögum Nerós.
Fredric March,
Elissa Landi,
Claudctte Colbert,
Charles Laughton.
Sýnd kl. 7 og 9.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Henry Aldrich barnfóstra
Jimmy Lydon, Charles Smith.
Joan Mortimer.
Sýnd kl. 5.
Hjartanlega þakka ég öllum minum kœru vinum, nœr og
fjœr, sem heimsóttu mig og glöddu með gjöfum og skeytum
á sextíu éra afmœli mínu.
Hofsstöðum, Helgafellssveit 4. júni 1946.
GUÐJÓN JÓHANNSSON.
Vegna sumarleyfa
og aukinna starfa, vantar nokkrar stúlkur til skrifstofu-
starfa hjá landssímanum í Reykjavík. Eiginhandarum-
sóknir sendist póst- og simamálastjórninni fyrir 18. þ. m.
TILKYNNING
frá innheimtu landssímans og bæjarsímans í Reykjavík.
Á timabilinu 15. júni til 15. september 1946 er innheimt-
an í landssímahúsinu í Reykjavík opin alla virkadaga frá
kl. 9 til 17 (ekki til kl. 19). Á laifgardögum þó aðeins til
kl. 12.
^ Sænska
listiðnaðarsýningin
í Listamannaskálanum opin í dag frá kl. 4—23 og næstu
daga frá kl. 10—23.
Sýningar st j órnin.
Skrifstofur
Skógræktar ríkisins
eru fluttar af Laugaveg 3 á Klapparst. 39.
5SÍSSS555S5555S5ÍÍ55ÍSÍSSSÍS55SSÍ555S5SÍ5S$55S5SÍ55Í55555555Í55Í5Í555555555555Í
B-listinn er listi Framsóknarmanna í Reykjavík. — Sími 6599