Tíminn - 28.06.1946, Blaðsíða 4
Skrifstota Framsóknartlokksins ei 1
Edduhúsinu við Lindargötu. Sími 6066
REYKJAVÍK
FRAMSOKNARMENN!
Komið t kosm Lgasbifstofuna
28. JÚM 1946
113. híað
::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::
Kommúnistískir
stríðsgróðamenn
Ýmsir sósialistar munu sanntrúa um, að sínir forustu-
menn hafi farið varhluta af gæðum þessa heims, og borið
skarðan hlut frá borði. En þetta er mikill misskilningur.
Þeir eru menn, alveg eins og við hinir, og verður ekkert
flökurt af að vinna sér inn drjúga skildinga, jafnvel þótt
til þess þurfi að skerða hlut margra manna annarra, eða
fást við heildsölu og fasteignasölu og brask. Þetta er ekki
sagt þeim til sérstaks ámælis. En hitt er ámælisvert að víta
aðra menn og flokka fyrir það, sem þeir gera sjálfir, við
hvert tækifæri sem býðst.
Til sönnunar því, að ekki gangi neitt alvarlegt peninga-
lystarleysi að framherjum sósíalista þarf ekki annað en
líta í skattskrá Reykjavíkur 1946. Samkvæmt henni bera
eftirgreindir menn í skatt og útsvar:
Áki Jakobsson ráðh........
Brynj. Bjarnas. ráðh. . .
Einar Olgeirss. alþm......
E. Ellingsen flugm.stj. . .
H. K. Laxness rith........
Katrín Thorodd&en læknir
Kristinn Andrésson ritst.
Sig. Thoroddsen alþm. , .
Þorb. Þórðarson rith......
7.477,00
5.842,00
3.035,00
2.875,00
7.002,00
5.408,00
3.010,00
14.136,00
3.613,00
5.500,00
4.950,00
3.630,00
4.070,00
8.250,00
7.150,00
3.850,00
11.000,00
3.850,00
12.977,00
10.792,00
6.665,00
6.945,00
17.252,00
12.558,00
6.860,00
25.136,00
7.463,00
Þetta eru nú einfaldar tölur, sem fela þó í sér þau sann-
indi, að allir þessir menn eru hlutgengir í auðvaldsþjóð-
félagi og hafa fullvel kunnað að nota sér þar valdaaðstöðu.
Ekkert skal þó um það sagt, hve rækilega „rottuholur“
þeirra hafa verið kannaðar. .
Ef til vill er jafnaðurinn eitthvað í þessa átt austur í
Rússlandi?
irtíK ■'.
h:::::::::::::::::::::::::::::::::::
♦♦♦♦♦♦♦•
::::::n::::::n::n:n:m::::::::u:un»n::»:nn::::
»•»• ,
Skapstyggum manni
leiðbeint
(Framhald af 1. slOu).
séu „179 rangfærslur, ósanninúi
og falsanir." Ég flutti mál mitt
í hvívetna af fullri prúð-
mennsku og hélt mig að öllu
leyti við staðreyndir. í því efni
visa ég til blaðsins sjálfs. Ég
legg fyrir Hafnfirðinga þá
spurningu, hvort þeir meti
meira, að mál sé flutt á rökvísan
hátt og illyrðalausan eða með
þeim hætti, sem höfundur þess-
arar greinar gerir, er auðsjáan-
lega hefir tileinkað sér það
versta af rithætti verstu ritsóða
Þjóðviljans.
Þegar til kastanna kemur,
nefnir þessi prúði maður, sem ég
veit ekki til, að ég hafi átt nein
skipti við, ekki mörg dæmi um
„rangfærslur, ósannindi og fals-
anir;“ og öll ærið haldlítil.
Útlendingahótelið við Reykja-
víkurtjörn á að kosta 15 miljónir
króna, og þótt ríkið leggi ekki
fram nema 5 miljónir, þá þarf til
þess sama gjaldeyri, sama bygg-
ingarefni og sama vinnukraft.
Það er rangt, þegar það er gefið
í skyn, að ég hafi, í ræðu eða
riti, haldið því fram, að ríkið
leggi til alla upphæðina.
Emil Jónsson fékk ■ ameríska
sérfræðinga hingað til lands í
sambandi við gistihúsmálið.
Þegar blöð og stéttir risu til and-
mæla, var það látið heita svo,
að erindi þeirra hefði verið að
finna stað undir gistihúsið, svo
sennilegt sem það var, að þeir
hefðu komið hingað til þess
eins. Síðan var málinu skotið
á frest, og þar við situr enn,
hvað sem gerist eftir kosn-
ingar.
Um Jónas Þorbergsson ætti
höfundurinn fremur að tala við
núverandi samstarfsmenn Em-
ils Jónssonar, kommúnista.
Af innstæðunum er ekki ann-
að eftir en nokkrir tugir miljóna,
enda er þá talið allt það, sem
nú er búið að gefa út innflutn-
ingsleyfi fyrir.
Framsóknarmenn hafa aldrei
verið á móti ^aupum nýrra og
bættra framleiðslutækja.
Um skoðanir manna á því,
hvaða gerð togara sé heppileg-
ust, læt ég nægja að vísa til
þess, sem tveir af forvígismönn-
um Alþýðuflokksins, Sigurjón Á.
Ólafsson og Jón Axel Pétursson,
hafa látið uppi um það mál.
Henrý Háldánarson getur
væntanlega svarað fyrir sig.
Um afstöðu Framsóknar-
manna til trygginganna skal
vísað til greinar eftir Jón Blönd-
al, sem birtist í Alþýðublaðinu
fyrir fáum dögum. Þar er rétt
frá skýrt, en farið með blekk-
ingar í greininni í „Alþýðublaði
Hafnarfjarðar“.
Framsóknarflokkurinn hefir
aldrei krafizt þess, að verð land-
búnaðarafurða væri hærra en
svo, að bændastétt landsins
fengi áþekk laun fyrir sín störf
og aðrir vinnandi menn í land-
inu. En það ætti ekki að vera
ósanngjarnt að þeir fengju það.
Þá eru upptalin öll þau atriði,
sem greinarhöfundur hefir
fram að færa, fyrir utan illyrð-
in. En um þau hirði ég ekki, og
gef þau hinum skapstygga höf-
undi ekki að sök, enda þótt ég
gæti með aðstoð dómstólanna
fengið þær margfaldlega dæmd-
ar.
Jón Helgason.
KJÚRFUNDUR
til að kjósa alþingismenn fyrir Reykjavík fyrir næsta
kjörtimabil, átta aðalmenn og átta til vara, hefst
sunnudaginn 30. júní n.k. klukkan 10 árdegis.
Kjóse'ndum er skipti í 35 kjördeildir. 1.—28. kjör-
deild er í Miðbæjarskólanum, 29.—34. kjördeild í
Iðnskólanum og 35. kjördeild í EUiheimilinu. Skipt-
ing í kjördeildir verður auglýst á kjörstað.
Undirkjörstjórn mæti í Miðbæjarskólanum í
skrifstofu yfirkjörstjórnar stundvíslega kl. 9 árdegis.
Yfirkjörstjórnin í Reykjavík, 26. júní 1946.
Kr. Kristjánsson.
Einar B. Guðmundsson.
Ragnar Glafsson.
Cjamla Síé
Eli Sjur.sdóttir
Sænsk-norsk stórmynd, gerð
eftir samnefndri skáldsögu
Johans Falkberget
(höf. „Bör Börsson jr.“).
Aðalhlutverk leika:
Sonja Wigert
Sten Lindgren
I. Haaland
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 12 óra fá
ekki aðgang.
f ýja Síé
( viff Skúlagötu )
Snga
Borg’i iræt tariimar
Mynd tek n á k /ikmynd 1919
eftir skáld ;ögu G innars Gunn-
arssonar. ] eikin f f dönskum og
íslen ;kum li ikurum.
Sýnd 11. 6 og 9.
Myi din ve ður ekki sýnd
í Hi fnarfii Si eða annars
stað, r.
Lögtak
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að und-
angengnum úrskurði verða lögtök látin fram fara,
á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta
dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
fyrir ógreiddum veltuskatti síðasta ársfjórðungs
1945, sem féll í gjalddaga 1. febrúar 1946, áföllnum
og ógreiddum veitingaskatti, útflutningsgjaldi, fiski-
málasjóðsgjaldi, viðskiptanefndargjaidi og útflutn-
ingsleyfisgjaldi.
Reykjavík, 24. júní 1946.
Borgarfógetinn í Reykjavík
:::::
FYLGIST MEÐ
Þið, sem 1 ^trjáibýiinu búiö,
hvort heldur er við sjó eða í
sveit Mlnnist þess, að Tíminn
er ykkar málgagn og málsvari.
Nýsköpunin hefði get-
að orðið miklu meiri
Ríkisstjórnin syngur látlaust
dýrðarsönginn um sjálfa sig
fyrir það að hún geti keypt af
lítilli fyrirhyggju nokkuð af
skipum fyrir þær innstæður
erlendis er þjóðin var búin að
safna, áður en hún kom til
valda. Hvaða stjórn sem komið
hefði til valda í styrjaldarlokin
hefði beitt sér fyrir stórfelldri
aukningu atvinnutækjanna og
búið svo i haginn, að atvinnu-
tæki þessi yrðu þjóðinni til hag-
sældar. Hið síðara hefir núv.
stjórn algjörlega vanrækt oig
nýsköpunin, sem stjórnin er
alltaf að guma af er miklu
minni en hún hefði getað orðið,
ef hagsýni hefði verið gætt við
kaup atvinnutækjanna. Nýsköp-
unin í stjórnartíð Framsóknar-
flokksins á hinum erfiðu árum
1934—39 var hlutfallslega miklu
meiri, en nýsköpun sú, sem nú
er verið að guma af. Skúli
Guðmundsson alþingismaður
minntist á þetta í útvarpsræðu
sinni í fyrradag. Hann sagði:
„Talsmenn ríkisstjórnarinnar
segja, að nú sé m. a. verið að
auka fiskiskipaflotann um 100%.
Vitanlega hefir enginn ágrein-
ingur verið um það, að auka
ætti og endurnýja veiðiskipa-
flotann, þótt deilt sé um hvort
ríkisstjórninni hafi tekizt fram-
kvæmdirnar í því efni vel eða
illa.
En til samanburðar má benda
á það, að á kreppuárunum 1934
til 1939, þegar Framskónarfl.
fór með stjórnina ásamt Alþfl.,
voru afköst síldarverksmiðjanna
í landinu aukin um 150%, auk
þess sem mörgum öðrum fram-
fót. Sú ríkisstjórn tók þó ekki
leiðslutækjum var þá komið á
við gildum sjóðujn þegar hún
kom til valda, heldur miklum
skuldum, sem þurfti að standa
straum af. Og það er ekki sízt
þessi aukning síldarverksmiðj-
anna á því tímabili, sem nú eru
byggðar á vonir um miklar
tekjur af síldarútgerð í sumar,
ef veiðin ekki bregst. — En
svo kemur sjálfur forsætisráð-
herrann hér í útvarpið, og seg-
ir að háa síldarverðið í ár muni
verða banabiti Framsóknar-
flokksins!
Já, margt skrítið hefir nú
fram gengið af hans munni,
fyrr og síðar. Mun hitt ekki
sönnu nær, að allir sæmilegir
menn meti að verðleikum bar-
áttu Framsóknarflokksins, á
erfiðum tímum, fyrir því að
fjölga síldarverksmiðjunum, og
leggja þar með grundvöllinn að
hagnýtingu síldarinnar bæði
áður og nú, þegar hún er í háu
verði“.
Kosning Pálma
Þeir, sem eru ákveðnir að
stuðla að kosningu Pálma
Hannessonar á sunnudaginn
ættu sem flestir að koma í skrif-
stofu ílokksins í Edduhúsinu —
* «»
Ý
FRAMSÓKNARMENN
t REYKJAVÍK.
Einbeitið kröftum ykkar að
því, að Pálmi Hannesson verði
kosinn þingmaður Reykvíkinga.
Tryggið kosnlngu glæsilegasta
frambjóðandans.
Komið i
KOSNIN GASKRIFSTOFO
FRAMSÓKNARFLOKKSINS,
Edduhúsinu við Lindargötu,
Sími 6066 og 6599.
TjtVHévb/é
„Tígrisdýrfn
fljtigai idi“
(God Is My i. !o-Pilot)
Áhrifamikil myn gerð eftir
sjálfsævisögu hin; fræga flug-
kappa Robert ,ee icotts ofursta.
Dennis M irgan
Andrea K ng
Bönnuð in- lar 14 ára.
Sýning kl. 5, 7 og 9.
Hjartans þakklœti fœri ég vinum og vcn'iamönnum
fyrir gjafir og skeyti og vinarhug mér sýnoan á sjötíu
ára afmœli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Stœrribœ, Grímsnesi, 21. júní 1941.
GUDJÓN JÓ \ SSON.
Óperusöngvarari iir
ELSE BREMS og STEFÁN IS WBI
Hljómleikcr
í Gamla Bíó föstudaginn 28. þ. m. kl. 1 '.15.
Við hljóöfærið FRITZ WEISSHAPPE' .
' Aðgöngumiðar eru seldir í Bókaverzmn S'’fúsar Ey-
mundssonar og hljóðfæraverzl. Sigríð u 'lel =. dóttur.
StÐASTA SINN.
SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS"
SSS? S!
ÍSSSSSSSSSSSSSSSS
l
Kjörfundur í Hafnaríiríi
við alþingiskosninga! n? r
sunnudaginn 30. júní n. k. fer fram í ba naskólan-
um og hefst kl. 10 f. h.
Talning atkvæða hefst strax að 1< •?;i.• ' atkvæða-
greiðslu.
Yfirkjörstjárnin
ysssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss SSSSí: s
#'/S/N/S/V. ’V ♦
Til að at ca án » ri na
Ingþór heíi.r f .s-t.
t>ar að koma þii ska t muna
að þér er sjfi u.r lezt.
SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS; ss í ssssssssss
»
Kosningahandbók Framsóknarflokksins fæst í bókabúðum í Rvík, afgr. Tímans og Degi á A'mreyri
♦
B-listinn er listi Framsóknarmanna í Reykjavík. — Sími 65 99