Tíminn - 06.07.1946, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.07.1946, Blaðsíða 3
119. blað 3 Dánarmiimmg: TÍMIM, langardaglnn 6. jnli 1946 HANS MARTIN: Oddný S. Þ. Hiarðar SKIN OG SKÚRIR Hjarðarhaga á Jökuldal Laugardaginn 8. júní s.l., fór fram að viðstöddu fjölmenni, út- för yngstu dóttur hjónanna í Hjarðarhaga í Jökuldal, Guð- finnu Pálsdóttur og Þorvalds Benediktssonar Hjarðar. Þá um leið var vígður ættar- grafreitur á fegursta staðnum í Hjarðarhagatúni, í skjóli hlíð- arinnar, sunnán við bæinn. All- ur var grafreitur þessi hinn snyrtilegasti, vel girtur og þegar búið að gróðursetja þar allmarg- ar trjáplöntur. Þær mynduðu samfelldan skjólgarð gegn norð- annæðingnum og við rætur beinvöxnustu bjarkarinnar höfðu foreldrar og systkini búið yngsta systkininu síðasta hvílu- rúmið. Oddný Sigríður Þorvaldsdóttir Hjarðar eins og hún hét fullu nafni var fædd í Hjarðarliaga 28. desember 1928. Alla sína skömmu ævi hafði hún dvalið í heimah.úsum, vafin umhyggju ástríkra foreldra og vinarhlýju góðra systkina og verið hvers manns hugljúfi, unz hún síðast- liðið haust kom til námsdvalar í Eiðaskóla og þreytti próf síðast- liðið vor með ágætum árangri í skólanum ávann hún sér hylli allra, jafnt skólasystkina sem kennara. Námsgáfur hafði hún einkar farsælar, ástundun með ágætum og yfir framkom- unni allri hvíldi slíkur þokki, hófstilling og sakleysi, að ósjálf- rátt vann hún hvers manns hug. í félagslífi skólans tók hún mik- inn þátt, bæði leikstarfsemi og söng, Jivort tveggja gerði hún með mestu prýði. Söngrödd hafði hún undur þýða og hreina og söng af svo óvenjulegri smekk- vísi að fágætt er um ungling, sem engrar tilsagnar hefir not- ið. Það er sjaldgæft að ungling- ar, sem í fyrsta skipti fara að heiman, leggi mikið af mörkum í félagsstarfi og enn sjaldgæfara að þeir geri það með slíkum ágætum. Það var sýnt, að þessi unga stúlka úr Jökuldalnum var gædd óvenjulegum hæfileikúm til að gleðja aðra og auka á lífsnautn þeirra og við Eiða- menn hlökkuðum til samvista við hana næsta vetur. Á sólbjörtum vormorgni hvarf hún heim í dalinn sinn full til- hlökkunar yfir að hitta aftur foreldra, systkini og aðra vini. Oddný S. Þ. Hjarðar. „Um sumardag blómstrið hið saklausa hló — en sólin hvarf og élið til foldar það sló.“ — Skömmu eftir heimkomuna kenndi Sigríður þess sjúkleika, er á ótrúlega stuttum tíma lagði þessa íturvöxnu og týhraustu stúlku í gröfina. Þeir, sem kynnzt höfðu þessari ungu stúlku, skilja það bezt, hvérsu sár harmurinn var, sem kveðinn var að foreldrum hennar og syst kinum, hversu óumræðilega autt skarðið var, þar sem hún hafði staðið. Yngsta barnið, yngsta systirin — augasteinn- inn — var horfinn, en hér fór sem oftar, þegar reynt hefir verið á þolrif hins íslenzka kyn- stofns, að æðruorðin voru í öf- ugu hlutfalli við sorgina og söknuðinn. Þeim, sem ferðast um Fjalla- sveit og Jökuldal í fyrsta sinn kann að þykja sveitir þessar býsna hrjóstrugar á að líta, blásnir rnelar, með einstæðings- legum melgresisþúfum, flóa- tetur og fífusund, hrjóstur og harðbalar. í hraða ferðarinnar gefa menn sér ekki tóm til að (Framhald á 4 síðu). mönnum, sem ötulast unnu að því að koma þeim úr landi til Danmerkur. — Fullyrða þessar raddir, að okkur hefði ekki sjálfum verið trúandi fyrir því að gæta þessara verðmæta okk- ar, vegna van;-ækslu, trassa- skapar, fátæktar og hvers konar ómenningar. Vert er þó að géfa gaum að því, í sambandi við þessa skoð- un, að þarna er einungis um órökstudda. staðhæfingu að ræða, sem fráleitt er að gleypa ótuggða. — Er sannarlega ó- maksins vert fyrir það fólk hér- lent, sem hefir óþarflega mikla tilhneigingu til að trúa hinni dönsku staðhæfingu, í þessu efni, að athuga hið mikla rit- verk dr. P. E. Ól. „Skrá um handritasöfn Landsbókasafns- ins“ (R.v.k. 1918—37.) — En þar eru skrásett 8600 handritabindi, og eru mörg handrit og ýmis konar í mörgum þessara binda. — Auk þessa er svo handrita- safn Landsskjalasafnsins. Þetta hefir okkur þó tekizt að varð- veita, og það af pappírshandrit- um. (Einungis 2? skinnhandrit munu vera til -hér.) — Er þó augljóst hversu bjórinn eða bók- fellið, er betur til þess fallið, að geymast við lök skilyrði en pappírinn, sem er viðkvæmur og vandgeymdur. — Einnig, er athyglisvert, að eigi lítið af þeim handritum sem okkur hefir tekizt að varðveita, eru frá 17. og 18. öld. — Þeim ömurlegustu eymdartimum sem yfir þessa þjóð hafa dunið. — Þegar minnstu munaði, að hið danska konungs og einokunarkaup- mannavald, gæti viðhaft hin alkunnu orð: „ — Það er full- komnað!“ — Að yfirbuga lífs- þrjózku íslenzks þjóðernis. Nei! Sú staðhæfing er ekki haldgóð, þegar alls er gætt, að við hefðum ekki verið menn til að geyma bókmennta verðmæti okkar, sem voru einkar kær meginþorra þjóðarinnar. Enda var íslendingum ljósast menn- ingargildi þeirra og þýðing fyrir þj óðlífið. Er eftirtektarverð sú tregða, sem almennt kemur fram frá öndverðu, í því efni að láta handritin föl. — Þrátt fyrir margendurtekinn konungsboð- skap og fyrirskipanir, og. þrátt fyrir það þó óspart sé leikið á strengi hégómans og fordildar- innar, um það, að láta nöfn þeirra fylgja, sem „gleðja“ vilja konung, með þvi að láta hand- rit af hendi rakna, að „gjöf“ eða á annan hátt: „Svo sérhver megi þeirrar æru og velvildar njóta, sem hann til vinnur". Framh. TÍUNDI KAFLI. Blóm — eitt blómahaf .... Hettý er önnum kafin við að hag- ræða öllu sem bezt. Wijdeveld lætur vatn í blómakerin og klippir stönglana. Jakob er í óð’aönn að slá flötina úti í garðinum .... Allar gluggar eru galopnir, allar dyr — nýir dúkar og ábreiður á gólfum, ný tjöld fyrir gluggum — allt með nýju yfirbragði .... í eldhúsinu er sýslað við hátíðamat. Ungu hjónin koma úr brúðkaupsförinni innan tveggja klukku- stunda. Þau hafa verið tvær vikur í Ardennafjöllum, Luxemburg og Leirudalnum. Laun Hans hafa hækkað. Hann hefir fengið starf við auka- kennslu í landbúnaðarskólanum í Gouda og einkaskóla í bænum. Og Wijdeveld hefir fengið hann til þess að lofa sér að breyta húsinu og búa það vönduðum húsgögnum. • Wijdeveld lítur enn einu sinni yfir allt, sem gert hefir verið .... Herbergin eru lítil, en þau eru snotur og smekklega búin .... Hettý hefir líka lagt hér hönd að verki — ráðið litum og til- högun. Maríanna hafði látið sér vel líka tillögur systur sinnar, og þar sem þeim hafði borið á milli, hafði hún fúslega látið sann- tærast við nánari íhugun ... . í rauninni hefir allt verið búið í hendurnar á henni, en nú á hún að taka við, halda öllu í horfinu, íullkomna það, ef það er unnt. „Á hvað ertu að horfa, pabbi?“ spyr Hettý. „Ekki neitt sérstakt. Mér datt bara í hug, að í rauninni gæti hver sem er verið ánægður með fáein, þokkaleg herbergi, skemmti- legan arin og gott b'aðherbergi. Allt þar umfram er óþarfur íburður.“ Jakob stendur frammi í eldhúsinu með kaffibolla í hendinni. „Viljið þér líka kaffi, herra Wijdeveld?“ spyr eldhússtúlkan. „Jú — þakka yður fyrir . .. .“ Og svo ná þau feðgin sér í bolla og sötra kaffisopann standandi. „Jæja — nú verðum við að hraða okkur,“ segir Wijdeveld um leið og hann lætur bollann á eldhúsborðið. „Þau fara bráðum að koma. Þú sækir þau, Jakob,“ * Þegar Wijdeveld kemur heim, liggur símskeyti á borðinu: „Bangkok. — En voyez argent, autrement prison. Hotel Qriental. Charles.“ Wijdeveld hringir. „Símsendið syni mínum tvö hundruð gyliini samkvæmt þessu heimilisfangi," segir Wijdeveld við Bosman og réttir honum símskeytið. „Verður gert þegar í stað,“ svarar Bosman. Síðan fer hann jafn hljóðlátlega og hann kom. Wijdeveld er hugsi, * rr-...- -#'• - - - Sólin er að hníga til vlðar. Karel reikar hirðuleysislega um íburðarmikinn gistihúsgarðinn í Bangkok. Innan litillar stundar tekur hann sér sæti við rautt borð. „B o y ! W h i s k y a n d s o d a .“ Jæja — karlinn haíði þá séð aumur á honum. Hann virðist verá farinn að mildast. Tvö hundruð gyllini fékk hann. En nokkru eyddi hann strax í nýtt símskeyti. „Þarf þúsund gyllini. Hafðu hraðan á. Karel.“ Og Karel er sannfærður um, að faðir hans muni einnig verða við þessari ósk .... Geislar kvöldsólarinnar slá rauðu gliti á breitt Menamfljótið. Skipin koma og fara — opnir prammar, flatbotna skútur með rauðum tjöldum, þar sem fjöldi fólks á heimili sín árið um kring, borðháar fleytur með pálmaspírur að stýri og blökk og slit- leg segl við illa tegldar siglur, eintrjánungar, vélbátar .... Þann- ig blandast gamalt og nýtt saman í Síam. Karel klórar sér á öklanum, „Boy! F1 i't !“ hrópar hann. Hann er gramur í geði, því að ásókn moskítóflugnanna er kvelj - andi. Þegar hann fær þessi þúsund gyllini, sem hann hefir beðið föður sinn um, ætlar hann að forða sér brott úr Bangkok — þá ætlar hann til Hongkong. Það eru raunar ekki flugurnar einar, sem hann vill flýja. Hann er búinn að nýta til þrautar flesta mögu- leika í Bangkok. Hann getur ekki látið sjá sig í samkvæmissölun- urn, og á meðal Hollendinga er hann útskúfaður maður. Það er alltaf sama saga: Skuldir,- kvennafar, drykkjuskapur, spila- svik .... En þrátt fyrir allt er hann búinn að vera hér miklu lengur en hann bjóst við í upphafi. Hann var líka heppinn. Hann hafði tekið að sér að skipuleggja veiðiferðir til Indó-Kína .... Karel brosir, þegar honum verður hugsað til þessa. Raunar hafði hann aldrei séð tígrisdýr nema í búri, en eigi að síður hafði hann látizt vera alvanur villidýraveiðum og störfum á -vegum veiði- íélaga. Og svo hafði hann verið ráðinn til þess að undirbúa og skipuleggja veiðiför. Og allt hafði gengið vonum betur, þótt það ætti hann einkum að þakka forgöngumanni fararinnar, frönskum liðsforingja, sem rekinn hafði verið úr hernum fyrir spilaskuldir. Vlð þökkum innilega samúð og hluttekningu okkur sýnda við andlát og jarðarför elsku litla drengsins okkar, Biilinnrs Sæbergs. Sérstaklega færum við Buðdælingum hjartans þakkir fyrir vinarvott og hlýju, er fram kom á margvíslegan liátt í sorg okkar og raunum. — Guð blessi ykkur öll. Borghildur Hjartardóttir, Ásgeir Guðmundsson, Búðardal. SABROE — vandaðar vélar í vönduð frystihús — * Samband ísl. samvinnuféðaga Verxlunarfélag Borgarf jnrðnr li.f llorgarnesi Kaupum þvegna og öþvegna vorull, sem að undaníörnu. Til mála getur komið að sækja ullina heim, ef bílfært er á staðinn. Biöjið verzlun yðar um Svefnpoka Tjöld Bakpoka og aðrar sport- vörur frá T ollgæzlustörf Nokkra unga menn vantar til tollgæzlustarfa. Þeir, sem vildu koma til greina til þessara starfa, sendi eiginhandarumsóknir til Tollstjóraskrifstof- unnar í Hafnarstræti 5, í síðasta lagi 15. júlí n.k. Umsóknunum skulu fylgja: fæðingarvottorð, heil- brigðisvottorð, ljósmynd og meðmæli. Aðeins þeir, sem eru yngri en 25 ára og hafa fullnaðarpróf frá verzlunarskóla eða hafa fengið jafngóða menntun, koma til greina. Fyrirspurnum ekki svarað í síma. Getum útvegað frá Danmörku flutningaskip, ca. 440 tonn netto, og fiskiskip, ca. 120 tonn bruttó. Útvegum einnig skip til flutninga milli íslands og til og frá höfnum í Evrópu. Allar upplýsingar gefur JÓHANIM KARLSSOA & CO Þingholtsstræti 23 Tvær til þrjár sendikennarastöður' í matreiðslu eru lausar til umsóknar frá 1. sept. næstkom- andi hjá Kvenfélagsambandi íslands. Laun sem við hús- mæðraskóla. Skriflegar umsóknir sendist skrifstofu sambandsins, Lindargötu 20 1 síðasta lagi fyrir 20. þ. m. Nánari upplýsingar í skrifstofunni. Sími 6717. Stjórn Kvenfélagasambands íslands /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.