Tíminn - 26.07.1946, Side 4

Tíminn - 26.07.1946, Side 4
Skrifstofa Framsóknarflokksins er i Edduhúsinu við Lindargötu. Sími 6066 4 REYKJAVÍK FRAMSÓKNARMENN! Komið í skrifstofu Framsóknarflokksins 26. JtLÍ 1946 133. blað Frá Alþingi (Framhald af 1. *ÍBu). ■ samþykki þess sjálfs. íslending- ar eru eindregið andvígir her- stöðvum í landi sínu og munu beita sér gegn því, að þær verði veittar. 'Að þessu athuguðu leggur nefndin til, að Alþingi samþykki þá tillögu, sem hér liggur fyrir. Telur nefndin þó rétt að víkja örlítið við orðalagi tillögunnar, eins og hæstv. forsætisráðherra drap á i framsöguræðu sinni í gær. Leggur nefndin því til, að tillagan verði samþykkt með þessari BREYTINGU : Tillagan orðist svo: Alþingi ályktar að veita rík- isstjórninni heimild til þess að sækja um inntöku íslands í bandalag hinna sameinuðu þjóða (The United Nations) og takast jafnframt á hendur fyr- ir landsins hönd þær skyldur, sem samkvæmt sáttmála banda- lagsins eru samfara þátttöku í því. Varnaglinn í nefndarálitinu. Varnagli sá, sem sleginn er í niðurlagi nefndarálitsins um kvaðir þær, sem unnt sé að leggja á íslenzka ríkið og af- stöðu íslendinga gegn því, að erlendum herjum verði veittar stöðvar hér á landi, er kominn inn í nefndarálitið fyrir atbeina fulltrúa Framsóknarflokksins, þeirra Hermanns og Bjarna. Hermann Jónasson benti á þetta atriði þegar á fyrsta fundi ut- anríkismálanefndar, þar sem fjallað var um þetta mál, og beitti sér fyrir því, ásamt Bjarna Ásgeirssyni, að þetta skilyrði fyrir inngöngu i Þjóðabanda- lagið yrði tekið upp í sjálfa þingályktunartillöguna, en þeg- ar ekki gat fengizt eining i nefndinni á annan hátt, vegna afstöðu fulltrúa annarra flokka, hliðruðu þeir til um það atriði, að þetta skyldi ekki tekið fram í sjálfri tillögunni, heldur grein- argerðinni, er henni fylgdi, og yrði hún þýdd á erlenda tungu og send fulltrúum stórveldanna fjögurra og Norðurlandaþjóð- anna. Upphaflega vildu fulltrú- ar Framsóknarmanna þó, að greinargerðin yrði send með sjálfri inntökubeiðninni til Þjóðabandalagsins, en það gátu fulltrúar hinna flokkanna ekki heldur fellt' sig við. Þingmenn Framsóknarflokksins voru þó óánægðir með þetta og töldu, að þessi varnagli hefði átt að vera í tillögunni sjálfri. En með því að kljúfa ekki nefndina tókst þeim að koma þessari stefnuyfirlýsingu alþing- is fram og það töldu þeir meira virði fyrir málið, en að kljúfa sjálfa nefndina. Tvær tillögur. Tveir einstakir þingmenn höfðu borið fram tillögur í mál- inu. Voru það þeir Pétur Ottesen og Hannibal Valdimarsson. Bar Pétur fram rökstudda dagskrá um að vísa málinu frá að sinni, en Hannibal bar fram breyting- artillögu í tveimur liðum. Gekk fyrri liður breytingartillögu hans mjög i sömu átt og tillögur fulltrúa Framsóknarflokksins í utanríkismálanefnd, en síðari hlutinn var þess efnis að skora á ríkisstjórnina að hlutast til um, að hið erlenda herlið hverfi hið bráðasta af landi burt. Frávísunartillaga Péturs Ottesen. Frávisunartillaga Péturs Otte- sen kom fyrst til atkvæða eins og að líkindum lætur. Var nafnakall viðhaft, og sögðu 36 nei, 11 já, 3 greiddu ekki at- kvæði, en 2 voru fjarverandi. BreytingartUlaga Hannibals. Breytingartillaga sú, sem Hannibal Valdimarsson flutti, var á þessa leið: Tillögugreinin orðist svo: Alþingi ályktar að veita ríkis- stjórninni heimild til þess fyrir hönd íslands að sækja um inn- töku í bandalag hinna samein- uðu þjóða (United Nations) og takast á hendur þær skyldur, sem samkvæmt sáttmála banda- lagsins eru samfara þátttöku í því, þó þannig, að tryggt verði, í samræmi við yfirlýstan vilja allra þingflokka nú fyrir nýaf- staðnar alþingiskosningar — með sérstakri skírskotun til fá- mennis og vopnleysis þjóðar- innar, — að ísland þurfi hvorki að -láta 1 té hernaðarbæki- stöðvar fyrir erlendan herafla né heldur sjálft að taka þátt í neins konar hernaðaraðgerðum gegn öðrum ríkjum. Jafnframt felur Alþingi ríkis- stjórninni að krefjast þess, að herlið það, sem enn dvelur í landinu, hverfi þegar á brott samkvæmt gerðum samningum, svo að ísland geti sem alfrjálst ríki gerzt aðili að bandalagi hinna sameinuðu þjóða. Verk, sem verður í minnum haft. Tillaga Hannibals Valdimars- sonar var borin upp í tvennu lagi, og kom síðari hlutinn, það er kaflinn um brottflutnings hins erlenda herliðs, fyrr til at- kvæða, samkvæmt vísdómsúr- skurði Jóns Pálmasonar forseta. Fór atkvæðagreiðslan á þann furðulega hátt, að þessi áskor- un á ríkisstjórnina var felld með 26 atkvæðum gegn 22. Tveir sátu hjá, og tveir voru fjarverandi. Þeir, sem já sögðu, voru Hannibal Valdimarsson, allir Framsóknarmenn nema Björn Kristjánsson og allir sósíalistar. Hjá sátu Björn Kristjánsson og Gísli Sveinsson. Á móti því að skora á ríkisstjórnina að hlut- ast til að efndir yrðu hið bráð- asta samningarnir um brott- flutnings hersins greiddu allir Sjálfstæðismenn nema Gísli Sveinsson og allir Alþýðuflokks- menn nema Hannibal. Fyrri hluti tillögu Hannibals var hins vegar felidur með36 atkvæðum gegn 9, en 5 sátu hjá. Þeir, sem greiddu atkvæði með tiliögunni, voru Björn Kristjánsson, Halldór Ásgríms- son, Helgi Jónasson, Ingvar Pálmason, Jörundur Brynjólfss., Páll Zóphóníasson, Páll Þor- steinsson og Skúli Guðmundss., auk Hannibals sjálfs. Hjá sátu Bernharð Stefánsson, Bjarni Ásgeirsson, Gísli Sveinsson, Her- mann Jónasson og Steingrímur Steinþórsson. Eftir að þessi tiilaga hafði verið felld, töldu Framsóknar- menn, að það drægi svo mjög úr gildi stefnuyfirlýsingarinnar í greinargerðinni, að þótt þeir hefðu áður ætlað að sætta sig við að samþykkja tillöguna, þá sátu þeir eins og frá er skýrt í upphafi ýmist hjá eða greiddu atkvæði í móti — nema full- trúar flokksins í utanríkismála- nefnd, sem kváðust mundu halda sig við það nefndarálit, sem þeir hafa undirritað. — Þótt þeir væru mjög óánægðir með afgreiðsluna eins og hún væri nú orðin. Káktillaga kommúnista. Þegar felid hafði verið til- laga Hannibals um að óska Útvegum allar stærðir og gerðir af sjálfvirkum, raf- knúnum kælivélum fyrir matvörubúðir, veitingahús og heimili. Aðalumboðsmenn fyrir Thomas Ths. Sahroe & Co. A/S brottferðar herliðs Bandaríkj- anna báru kommúnistar fram tillögu um að fresta þingfund- um eigi fyr en 27. þ. m. til þess þeim gæfist tóm til að bera fram sjálfstæða tillögu um brottför herliðsins úr landinu. En Sjálfstæðis- og jafnaðar- menn höfðu greitt atkvæði gegn tillögu Hannibals með þeirri greinargerð að ekki væri fært að samþykkja hana í sambandi við tillöguna um inntöku í Bandalag hinna sameinuðu þjóða. — Þessi tillaga var felld með atkvæðum jafnaðar- og Sjálfstæðismanna. — Var þessi tillaga kommúnísta bersýnilega borin fram til málamynda og til þess að sýnast, því komm- únistum var í lófa lagið að bera fram tillögu um brottför her- liðsins undanfarna daga, ef þeim var það nokkur alvara. — Sýnir þetta enn ljóslega hve óhrein og alvörulaus er öll af- staða kommúnista í herstöðva- málinu. Sumargistiliiís (Framhald af 1. síOu). því miður verður ekki lokið fyrr en í haust. Af þeim ástæðum fellur niður hin árlega Búða- skemmtun Snæfellingafélagsins. Kynnisferð. í þess stað gengst félagið fyrir kynnisferð um Hnappadal dag- ana 3.-5. ágúst. Hnappadalur er sá hluti Snæ- fellsnessins sem fæstum er kunnur og er það ómaklegt, því þar er engu minni náttúrufeg- urð né færri fagrir staðir, Má þar t. d. nefna Rauðamelsölkeldu, Eldborg, Hnúka, Mýrdalsgjá o. fl. Aljlir þesjsir staðir og margir fleiri verða skoðaðir í ferðinni, enda verður iögð mest áherzla í „Tímanum" 13. þ. m. er greint frá úrslitum í hrepps- nefndarkosningum í Seltjarnar- neshreppi, sem fóru fram 7. þ. m. Segir þar að A-listi hafi ver- ið „borinn fram af Sjálfstæðis- mönnum og kommúnistum og B-listi af Framsóknarmönnum og jafnaðarmönnum". Þetta er ekki rétt. Hvorugur listinn var borinn fram af neinum pólitískum flokki eða flokkum, enda stóðu að hvorum lista fyrir sig menn úr öllum st j órnmálaf lokkunum. A-listinn var borin fram af mönnum, sem búa úti á Sel- tjarnarnesi og nokkrum fleir- um, en B-listinn af „Framfara- félaginu Kópavogur", sem er algerlega ópólitískur félags- skapur. 13. júlí 1946. Guðm. Eggertsson. KjariiorkutllraunliL (Framhald af 1. síðu). sjóðandi víti“, svo höfð séu orð- •rétt eftir ummæli sjónarvotta. Búizt hafði- verið við mikilli flóðbylgju er sprengjan sprakk, en svo varð ekki, flóðbylgjan, sem skall á land á Bikini, var aðeins 5 feta há. Auk þess sem fjögur skip sukku löskuðust mörg fleiri skip meira og minna, og er ekki víst nema eitthvað fleiri skip sökkvi af afleiðingum sprengingarinn- ar. Þessi sprengja mun hafa verið all miklu öflugri, en sprengjan sem sprengd var á sömu slóðum, í tilraunaskyni fyrir tæpum mánuði síðan. — Þetta var fimmta kjarnorku- sprengjan, sem sprengd hefir verið. fföfuut vifi yentiiff til f/óffs (Framhald af 2. síðu) megi þakka ungmennafélögun- á að kynnast héraðinu sem best um, að ýmsum orðskrípum, sem en litlum tíma eytt í löng bíl- virtust ætla að festa sig í mál- ferðalög. — Kunnugir menn verða með í ferðinni til frásagna. Á laugardags kvöldið verður inu, var útrýmt, svo sem orðinu kokkhús. Þá vildu hinir fyrstu ungmennafélagar vinna að því kvöldvaka í tjaldbúðunum og að vekja áhuga þjóðarinnar á verður hún byggð upp af sögum og sögnum úr héraðinu. Á sunnudags kvöld er aftur ráð- gerður dans. sögu hennar og bókmenntum, en hvað þeim hefir tekizt í því efni, skal látið ósagt hér. Framhald. (jatnla Síó í leyniþjónustu Japana (Betroyal from the East) Amerísk njósnarmynd byggð á sönnum viðburðum. Aðalhlutverk: Lee Tracy Nancy Kelly Richard Loo. Bönnuð börnum Innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. i , . r TÍMiNN kemur á hvert sveitaheimlli og þúsundir kaupstaðaheimila, enda gefinn út i mjög stóru upplagi. Hann er því GOTT ACGLÝS- INGABLAÐ. Þeir, sem ekki hafa reynt það, ættu aS spyrja hina, er reynt hafa. TtMINN Lindargötu 9A, siml 2323 og 2353 Tbjja Síc (við Shúlagötu) Sannar Iietjur („The Purple Heart.“) Mikilfengleg og afburðavel leik- in stórmynd um hreysti og hetjudúðir amerískra flugmanna í Japan. Aðalhlutverkin leika: Dana Andrews Richard Cante Kevin O’Shea Bönnuð börnum yngri en 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. JjaHtadíc Skal eða skal ekki (I Love a Soldler) Bráðfjörugur amerískur gam- anleikur. Paulette Goddard, Sonny Tufts, Barry Fitzgerald. Sýning ki.. 5—7—8. , ------------------------------------ Vélbátar til sölu 1. Bátur 15 smálestir, byggður 1919 úr eik. Vél: Sáffle 50 hestöfl, frá 1942. Endurnýjuð 1946. Bátnum fylgir lína og dragnótarveiðarfæri. Verð kr. 60.000,00 krónur. 2. Bátur 15 smálestir, byggðar 1921 úr eik, umbyggður 1943. Vél: J. Munktell 50—55 hestöfl, frá 1923. Mörg varastykki fylgja vélinni. Dragnótarveiðarfæri fylgja. Verð 85.000,00 krónur. 3. Bátur 11 smálestir, byggður úr eik 1916. Vél: Skandia frá 1938, 40 hestöfl. Verð 36.000,00 krónur. Með drag- nót og línuveiðarfærum 45.000,00 krónur. 4. Bátur 28—29 smálestir, byggður 1919. Vél: Budda- Diesei frá 1941. Umbætur á byrðing og böndum 1944. Báturinn er úr eik og furu. Bátnum fylgja dragnótar- veiðarfæri og 20 bjóð af línu. Verð 92.000,00 krónur. 5. Bátur 24 smálestir, byggður úr eik 1916. Endurbyggð- ur 1938. Vél: Bolinder frá 1946, 100—200 hestöfl. Dragnótarveiðarfæri fylgja. Verð kr. 92.000,00 krónur. 6. Bátur 21 smálest, byggður 1934. Vél: J. Munktell frá 1934, 60—64 hestöfl. Dragnótarveiðarfæri fylgja. Verð 85.000,00 krónur. 7. Bátur 17 smálestir, byggður 1917. Endurbyggður 1942. Eik og fura. Vél: J. Munktell frá 1934, 50—55 hestöfl. Línu- og dragnótarveiðarfæri fylgja. Verð 65.000,00 krónur. 8. Bátur 10 smálestir, byggður 1915 úr eik. Vél: Skandia 30 hestöfl. Dragnótarveiðarfæri fylgja. Verö 25.000,00 krónur. 9. Bátur 13 smálestir, byggður 1922 úr eik. Vél: Skandia frá 1929, 50 hestöfl, nú endurnýjuð. Dragnótaveiðar- færi fylgja. Verð 35.000,00 krónur. 10. Bátur 20 smálestir, byggður 1925, úr furu. Vél: Wichmann 50 hestafla. Dragnótarveiðarfæri fylgja. Verð 50.000,00 krónur. 11. Bátur 33 smálestir, byggður 1907 úr eik. Vél: Gamma, 100—200 hestöfl. Endurnýjuð 1945. Trollspil og troll- veiðarfæri fylgja. Verð 92.000,00 krónur. 12. Bátur 13 smálestir, byggður úr eik og furu 1917. Vél: Tuxham, 45 hestöfl. Verð 36.000,00 krónur. Með drag- nótar- og línuveiðarfærum 45.000,00 krónur. 13. Bátur 12 smálestir, byggður 1920, úr eik og furu. Vél: J. Munktell frá 1935, 50—65 hestöfl. Dragnótarveiðar- færi fylgja. Verð 65.000,00 krónur. 14. Bátur 19 smálestir, byggður 1924, úr eik og furu. Vél: Skandia, 60 hestafla, frá 1939, Dragnótar- og linu- veiðarfæri fyigja. Verð 92.000,00 krónur. 15. Bátur 18—19 smálestir, umbyggður 1939, úr eik. Vél: J. Munktell frá 1934, 80—90 hestafla. Dragnótar- veiðarfæri fylgja. Verð 81.000,00 krónur. Upplýsingar um ofanskráða báta, gefur Helgi Benónýs- son, Vesturhúsum, Vestmannaeyjum, sími 162.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.