Tíminn - 03.08.1946, Side 4
Skr'ífstofa Framsóknarflokksins er í
Edduhúsinu við Lindargötu. Sími 6066
4 REYKJÆVÍK
FRAMSÖKNARMENN!
Komib í
3. ÁGÚST 1946
skrifstofu Framsóknarflokksins
139. blað
Laxfoss hefir flutt 17891 far-
þega á 1 ári og farið 290 ferðir
í tilefni af því, að rúmt ár er nú liðið, síðan Laxfoss hóf ferðir
sínar að nýju eftir hina gagngerðu viðgerð og breytingu, er gerð
var á skipinu, eftir að það strandaði við Örfirisey, hefir tíðinda-
maður blaðsins snúið sér til Friðriks Þorvaldssonar fram-
kvæmdastjóra Skallagríms h. f. og fengið hjá honum upplýs-
ingar um hve margar ferðir skipið hefir farið eftir viðgerðina, og
hvað marga farþega það hefir flutt.
Laxfoss hóf ferðir að nýju
þann 13. júlí 1945 og síðan hefir
hann látlaust siglt með fólk og
farangur héðan frá Reykjavík
og til Borgarness, Akraness og
Vestmannaeyja. Til Borgarness
hefir hann, fram til 13. júlí
1946, farið samtals 175 ferðir
með 7603 farþega, til Akraness
67 ferðir með 7029 farþega og til
Vestmannaeyja 48 ferðir með
3259 farþega. — Samtals hefir
skipið siglt 22 þúsund sjómílur
Sumarhátíð Varma-
hlíðarfélagsins
Fyrir nokkrum árum var
stofnaður í Skagafirði félags-
skapur, er nefnist „Varmahlíð-
arfélagið“. Markmið félagsins er
að koma á fót héraðsskóla í
Varmahlíð. Eitt með öðru, sem
félagið hefir gert til þess að
afla fjár í þessu skyni, er að
gangast fjnrir samkomu einu
sinni á ári. Er hún jafnan hald-
in i Varmahlíð. Að þessu sinni
var samkoma 14. júlí s.l. Var
hún fjölmenn að vanda, en þó
vart eins og oft áður. Ekki skorti
þó ánægjulegt veður, því að
Skagafjörður skein við sól. En
hér mun tvennt hafa borið til:
Bændur voru allvíða byrjaðir
slátt en óþurrkar gengið und-
anfarið. Samkomudaginn var
hins vegar drifaþurrkur, og
munu margir hafa fórnað töð-
unni sunnudeginum, sem sízt er
láandi. Við það mættist svo, að
um morguninn barst síld að
landi á Sauðárkróki.
Árni Þorbjörnsson, kennari í
Varmahlíð, setti samkomuna og
stjórnaði henni, en ræður fluttu
þeir séra Helgi Konráðsson á
Sauðárkróki og Þorbjörn bóndi
Björnsson á Geitaskaarði. Þá
fór og fram sundkeppni og
dans. Lúðrasveit Akureyrar lék
milli þátta. Úrslitin í sund-
keppninni urðu þessi:
50 m. sund telpna: Guðný
Eggertsdóttir 51,3 sek. — Fjóla
Sveinsdóttir 52,9 sek. — Guðrún
Jósafatsdóttir 53,8 sek.
50 m. sund drengja: Valgarð-
ur Jónsson 46,9 sek. — Friðrik
Jónsson 41,1 sek. — Sveinn
Skaftason 47,4 sek.
100 m. sund kvenna: Jóhanna
Kjarval 1 mín. 58,6 sek. — Guð-
björg Kjarval 2 mín. 7,5 sek.
500 m. sund karla, frjáls að-
ferð: Gísli Felixson 9 min. 8,7
sek. — Eiríkur Valdimarsson 9
mín. 15,5 sek. — Jóhannes Har-
aldsson 10 min. 35,4 sek.
Til kaupenda Tímans
í Reykjavík
Oft veldur mikium leiðindum,
hve erfitt er víða í bænum að
koma blaðinu með skilum til
kaupendanna. Það eru vinsam-
leg tilmæli til þeirra, sem verða
fyrir vanskilum, að þreytast
ekki á að láta afgreiðsluna vita
um þau, þar til þau hafa verið
löguð og jafnframt að leiðbeina
börnunum, sem bera út blaðið,
og allan þann tíma hefir því
aldrei hlekkst á.
Skipið hefir reynzt miklu bet-
ur eftir viðgerðina en áður. Staf-
ar það af því, að það var
þá lengt allverulega og ligg-
ur nú mikið betur í sjó. Auk
þess er ganghraði skipsins mun
betri en áður. Breytingin sem
gerð var á salarkynnum skips-
ins hefir haft þau áhrif, að
fólki finnst nú stórum þægi-
legra og skemmtilegra að ferð-
ast með skipinu.
NÝ GÖTUNÖFN
í REYKJAVÍK
Nefnd bæjarins, sem hefir á
hendi aö gera tillögur um gatna-
nöfn í bænum, hefir lagt til eft-
irfarandi heitti á.götum í Rauð-
arárholti og í Kleppsholti:
í Rauðarárholti:
Gata vestan Nóatúns milli
Skipholts og Brautarholts Stang-
arholt.
í Kleppsholti:
Gata milli Sundlaugar og
Laúgarásvegar heiti Þríhyrning-
ur. Gata frá Kambsveg samhliða
Laugarásveg Núpsvegur. Fyrsta
gata þvert á Núpsveg norðan
Kambsvegs Haukagil. Önnur
gata, samhliöa, Valagil. Þriðja
gata, samhliða, Brandagil. Fram.
hald Kleppsvegar frá Efsta-
sundi að Suðurlandsbraut Élliða-
árvogur Gata samhliða Skipa-
sundi að austanverðu Njörva-
sund. Stígur sunnan Holtavegar
samsíða honum austan Lang-
holtsvegar Brákarsund. Gata
sunnan Brákarsunds þvert á
Langholtsveg Drekavogur. Gata
milli Laugarásvegar og Dreka-
vogs samsíða Langholtsvegi
Kjalarvogur. Gata frá Holtaveg
samsíða Kjalarvogi Sigluvogur.
Stígur*frá Langholtsvegi þvert á
Kjalar- og Sigluvog Mjósund.
Framhald Laugarásvegar í torg
við Suðurlandsbraut Knarrar-
vogur. Torg við Suðurlandsbraut
Vogatorg. Torg á Hálogalands-
hæð Fleyvangur. Gata frá Fley-
vang í Knarrarvog Tranavogur.
Gata milli Fleyvangs og Voga-
torgs Súðarvogur. Gata frá
Vogatorgi samsíða Suðurlands-
braut Gnoðarvogur. Gata frá
Fleyvang í Gnoðarvog Karfa-
vogur. Gata frá Fleyvang að
Langholtsv. í suð-austur Kœnu-
vogur. Gata frá Fleyvang í Fley-
vang í suð-austur Hlunnavogur.
Gata frá Fleyvang að Lahgh.v.
í norð-austur Byrðingsvogur.
Gata frá Hlunnavog að Elliða-
vog Barðavogur. Fyrsta gata
sunnan Fleyvangs frá Vogatorgi
í Elliðavog Skeiðarvogur. Önnur
gata sunnan Fleyvangs frá
Vogatorgi í Elliðavog Snekkju-
vogur. Gata frá Knarrarvog í
Skeiðarvog Dugguvogur. Gata
milli Langholtsvegar og Karfa-
vogs, samsíða þeim, Nökkvavog-
ur. Gata milli Karfavogs og
Vogatorgs, samsíða Karfavogi
Ferjuvogur. Framhald Lang-
holtsvegar frá Snekkjuvogi að
Suðurlandsbraut Skútuvogur.
Gata frá Skútuvogi í Gnoðar-
vog Eikjuvogur.
hvar bezt sé að láta það. Þeir
kaupendur.sem búa utan við að-
albæinn og fá blaðið í pósti,
gerðu Tímanum mikinn greiða,
ef þeir borguðu andvirði blaðs-
ins á afgreiðslunni. — Þó að
kaupendafjöldi Tímans í Rvík
hafi tvöfaldazt nú á rúmlega
einu ári, þá væru kærkomnir
fleiri áskrifendur í bænum.
Sími afgreiðslunnar er 2323.
Utvegum allar stærðir og gerðir. af sjálfvirkum, raf-
knúnum kælivélum fyrir matvörubúðir, veitingahús
og heimili.
Aðalumboðsmenn fyrir
Thomas Ths. Sabroe & Co. A/S
A víðavangi
(Framhald af 2. síðu)
nýtízkutal, að stjórnarandstæð-
ingar séu utailgarðs og áhrifa-
lausir. Þetta tal eiga menn að
skilja eitthvað á þessa leið: Þeir
eru utan við garðinn og hafa
ekki „aðstöðu". Við erum í
garðinum og höfum „aðstöðu“.
Vertu með okkur þú skilur!
Þetta er lævísleg tilraun til
þess að fá menn til að taka
ekki afstöðu í pólitík eftir mála-
vöxtum eða þjóðmálastefnum.
Þetta er bending um, að menn
eigi að skríða fyrir þeim, sem
völdin hafa og „aðstöðuna".
Þessi áróður er móðgun við
þjóðina, siðspillandi og til þess
líklegur að reynast lýðræðinu
beinlínis hættulegur, ef hann
hefir áhrif. Það verður aldrei
nógsamlega við honum varað.
Kórónum Napoleons
og Karls X. stolið
Parísarfregnir herma, að ný-
lega hafi verið brotizt inn í
hina fornfrægu dómkirkju í
borginni Rheims í Norður-
Frakklandi, en þar voru kon-
ungar Frakklands krýndir um
langan aldur sem kunnugt er
Þjófarnir höfðu haft á brott
með sér marga sögulega dýr-
gripi úr skartgripahirzlu kirkj-
unnar, þ. á. m. kórónu þeirra
Napóleon mikla og Karls 10.
Aftur á móti snertu þeir ekki
við mörgum dýrmætum helgi-
gripum, sem þarna voru og
geymdir.
Parísarlögreglunni hafði ekki
tekizt að handsama þjófana,
þegar síðast fréttist.
Má í þessu sambandi geta þess,
að allir þessir dýrgripir höfðu
verið fluttir burt á stríðsárun-
um, og var nýbúið að koma
þeim aftur fyrir í dómkirkjunni.
Vinniff ötullefia ffirir
Tímann.
„ALCOSA”
lausasmiðjur fyrirliggjandi.
Verð kr. 170.00.
Sendum gegn eftirkröfu.
Verzl. Vald. Poulsen
Klapparstíg 29.
Greta Garbo.
(Framhald af 1. síðu).
unum úr, en hún svaraði flest-
um spurningum þeirra með
einsatkvæðisorðum eða brosi.
Samtalið vara því ekki sér-
lega innihaldsríkt. Ein spurn-
inganna var sú, hvernig henni
geðjast að Ingrid Bergman,
sem er líka sænsk og talin ein
af beztu núlifandi kvikmynda-
leikkonum. — Garbo svaraði
því til, að hún hefði séð nokkra-r
af kvikmyndum Bergmans og
líkað þær vel, en sagðist ekki
þekkja leikkonuna persónulega.
— Við höfum aðeins verið
kynntar, en annars umgengst ég
hana ekki frekar en annað
fólk.
Annars segja blaðamennirnir,
að Gréta Garbo hafi lítið
breytzt frá því sem áður var,
hún sé enn fögur og glæsileg,
látlaus, en smekklega klædd.
Hún ætlar að dvelja í Svíþjóð
um óákveðinn tíma, en vill ekki
gefa neinar upplýsingar um það,
hvað hún muni taka sér fyrir
hendur.
Cjamla Síé
SJ.ÍLFBODA-
LIÐAR
(Cry Havoc)
Áhrifamikíl amerísk um hetjudáðir kvenna í öldinni. mynd styrj-
Margaret Sullivan,
Joan Blondell,
Ann Sothern,
Ella Raines.
Sýnd ki: 5 og 7. Börn innan 16 ára fá ekki aðgang.
tíijja Síé
(vi8 Skúlagötu )
Demantaskcifaii
(Billy Rose’s Diamond
Horseshoe).
Skemmtileg og íburðarmikil
stórmynd í eölilegum litum, frá
hinum fræga næturklúbb í
New York.
Aðalhlutverk:
Betty Grable,
Dick Haymes,
Phil Sifvers.
Sýnd á morgun og mánudag
5. ágúst kl. 3,5,7 og 9.
Sala hefst kl. 11 f. h.
alla dagana.
TÍMINN
kemur á hvert sveitaheimili og
þúsunðir kaupstaðaheimila.enda
gefinn út í mjög stóru upplagi.
Hann er því GOTT AUGLÝS-
INGABLAÐ. Þeir, sem ekki
hafa reynt það, ættu að spyrja
hina, er reynt hafa.
T 1 M I N N
Lindargötu 9A, sími 2323 og 2353
7'jarhartu't
ELDIBRANDIJR
(Incendiary Blonde).
Glæsileg amerisk söngva-
mynd í eðlilegum litum. Gerð
um ævi leikkonunnar frægu,
Texas Guinan.
Aðalhlutverk:
9
Betty Hutton,
Arturo De Cordova,
Charles Ruggles.
Sýnd kl. 3—5—7—9.
Sala hefst kl. 11.
mtmfflramtttwmimmmmmmmmttmmiiwtwiinmmnmttmnfflmfflfflm?
Vélbátar til sölu
1. Bátur, 15 smálestir, byggður 1919 úr eik. Vél: Sáffle
50 hestöfl, frá 1932. Endurnýjuð 1946. Bátnum fylgir
lína og dragnótarveiðarfæri. Verð kr. 60.000,00.
2. Bátur, 15 smálestir, byggður 1921, úr eik, umbyggður
1943. Vél: J. Munktell 50—55 hestöfl, frá 1933. Mörg
varastykki fylgja vélinni. — Dragnótarveiðarfæri
fylgja. — Verð 85.000,00 krónur.
3. Bátur, 11 smálestir, byggður úr eik 1916. Vél:Skandia
frá 1938, 40 hestöfl. Verð 36.000,00 krónur. Með drag-
nót og línuveiðarfærum 45.000,00 krónur.
4. Bátur, 28—29 smálestir, byggður 1919. Vél: Budda-
Diesel frá 1945. Umbætur á byrðing og böndum 1944.
Báturinn er úr eik og furu. Bátnum fylgja dragnót-
arveiðarfæri og 20 bjóð af línu. Verð 92.000,00 kr.
5. Bátur, 24 smálestir, byggður úr eik 1916.Endurbyggð-
ur 1938. Vél: Bolinder frá 1946, 100—120 hestöfl.
Dragnótarveiðarfæri fylgja. Verð 92.000,00 krónur.
6. Bátur, 21 smáiest, byggður 1934. Vél: J. Munktell frá
1934, 60—64 hestöfl. Dragnótarveiðarfæri fylgja.Verð
85.000,00 krónur.
7. Bátur, 17 smálestir, byggður 1917. Endurbyggður
1942. Eik og fura. Vél: J. Munktell frá 1934, 50—55
hestöfl. Línu- og dragnótarveiðarfæri fylgja. Verð
65.000,00 krónur.
8. Bátur, 10 smálestir, byggður 1915, úr eik. Vél: Skan-
dia 30 hestöfl. Dragnótarveiðarfæri fylgja. Verð
25.00,00 krónur.
9. Bátur, 13 smálestir, byggður 1922, úr eik. Vél: Skan-
dia frá 1929, 50 hestöfl, nú endurnýjuð. Dragnóta-
veiðarfæri fylgja. Verð 35.000,00 krónur.
10. Bátur, 20 smálestir, byggður 1925, úr furu. Vél:
Wichmann 50 hestafla. Dragnótarveiðarfæri fylgja.
Verð 50.000,00 krónur.
11. Bátur, 33 smálestir, byggður 1907, úr eik.Vél:Gamma
100—120 hestöfl. Endurnýjuð 1945. Trollspil og troll-
veiðarfæri fylgja. Verð 92.000,00 krónur.
12. Bátur, 13 smálestir, byggður úr eik og furu 1917. Vél:
Tuxham, 45 hestöfl. Verð 36.000,00 krónur. Með drag-
nótar- og línuveiðarfærum, 45.000,00 krónur.
13. Bátur, 12 smál., byggður 1920, úr eik og furu. Vél:
J. Munktell frá 1935, 50—65 hestöfl. Dragnótarveið-
arfæri fylgja. Verð 65.000,00 krónur.
.14. Bátur, 19 smálestir, byggður 1924, úr eik og furu. Vél:
Skandia, 60 hestafla, frá 1939. Dragnótar- og línu-
veiðarfæri fylgja. Verð 92.000,00 krónur.
15. Bátur, 18—19 smálestir, umbyggður 1939, úr eik. Vél:
J. Munktell frá 1934, 80—90 hestafla. Dragnótarveið-
arfæri fylgja. Verð 81.000,00 krónur.
Upplýsingar um ofanskráða báta gefur Helgi Benónýs-
son, Vesturhúsum, Vestmannaeyjum, sími 162.
m;;mtmttmm»tttttmtmtmmtmimm»mttmmttmtmmt»mtt»mmmmmm