Tíminn - 27.09.1946, Síða 2

Tíminn - 27.09.1946, Síða 2
i iosraaagiim Ahorf andi: Enn um orðuveitingar Merkjasöludagur Menningar- og minningarsjóðs kvenna Föstudagur 27. sept. Óöld Morgunblaðið segir í forsiðu- grein i gær, að nú hafi þjóðin ekki ráð á því, að skipa sér nema í tvær fylkingar. Allir þjóðhollir menn verði að skipa sér gegn kommúnistum. Sjálfstæðismenn hafa nokkra reynslu af því að vinna með kommúnistum. Og mönnum er sú reynsla kunn. Það eru ekki allir búnir að gleyma þvl, sem samfylking Sjálfstæðismanna og kommún- lsta gerði i Hafnarfirði og víðar 1937. Og vandlætingasemi Mbl. fær á sig hálfspaugilegan blæ, þeg- ar menn hugsa til skrílsláta Sjálfstæðismanna vorið 1931. Nú eru þeir klökkir af um- hyggju fyrir lýðræðislegum vinnubrögðum. Gott eiga þeir, sem sjá að sér! Samstarfið við kommúnista hefur ekki látið sig án vitnis- burðar. Skipun í embætti ýmsra skóla segir þar til sín. Það má líka líta til bankanna, þó að ekki sé komið í framkvæmd, það sem almælt er að Ólafur Thors hafi lofað, að gera Einar Olgeirsson bankastjóra Lands- bankans. Árið 1942 gerði Ólafur Thors dýrtíðarbandalag við kommún- ista, og áhrif þess hafa varað alla tíð síðan. Og nú er hægt að bregða upp nokkrum myndum af áhrifum þeirrar stjórnvizku, sem Ólaíur Thors hefir fylgt og Mbl. varið undanfarið. Öllum erlendum gjaldeyri ís- lendinga er nú ráðstafað, nema þvi litla, sem eftir er í Nýbygg- ingarsjóði. Hins vegar hefir ekki verið færður til Nýbyggingar- sjóðs lögákveðinn hluti útflutn- ingsverðmætisins, — 15%. Því hefir verið ráðstafað til ann- ars. Það eru fyrirsjáanleg vand- ræði i gjaldeyrismálunum. Ríkissjóðnum hefir verið haldið við með tolltekjum af gengdarlausum innflutningi og áíengisgróða. Þegar neyðin minnkar þetta hvort tveggja koma erfiðir dagar fyrir rikís- sjóðinn. Og þeir eru skammt undan. Hér í Reykjavík stöðvast húsa- byggingar i stórum stíl, af því að lánsfé fæst ekki til þeirra, — jafnvel þó að skýlaus laga- ákvæði eigi að tryggja mönn- um þau lán. Peningar eru lánaðir á svört- um markaði með svívirðilegustu okurkjörum. Sumir neyðast til að nota sér það, þegar lánsstofn- anirnar eru þeim lokaðar, og lagabókstafurinn gagnslaus. Nýsköpunarbátarnir sænsku eru margir ekki uppgerðir sam- kvæmt íslenzkum lögum og skuggar vanskila og vanefnda grúfa hvarvetna yfir þeim. Innlendu nýsköpunarbátarnir standa þó sennilega ennþá ver. Aðeins einn þeirra er seldur og enginn biður um hina. Hins vegar mun liggja í landinu mik- ið afgangs efni, sem keypt var inn til þeirra, en ekki þurfti að nota, af því aðrir keyptu það annars staðar frá. — Var þá ekki verið að tala um áætlun- arbúskap? Framleiðslugreinir þjóðarinn- ar eru allar í óvissu með af- komu sína. Togararnir munu skrölta meðan þeir eru að veiða þann ufsa, sem samið er um sölu á, en svo veit enginn lengra. Fyrir skömmu birti ég grein- arkorn í Tímanum um orðu- veitingarnar, krossaregnið, sem steypist yfir réttláta og rang- láta í landi voru við þénanleg tækifæri. Síðan þá hefir mér gefizt kostur á að skyggnast í forseta- bréf og reglugerð lútandi að krossafaraldrinum, sem nefnt er „forsetabréf um starfsháttu orðunefndar". Af þessum plöggum sést, að forsetinn, sem nefndur er í þessu starfi ^.stórmeistari", getur krossfest borgarana upp á sitt eindæmi, og án þess fyrir liggi um það tillaga frá orðu- nefnd. Mælt er fyrir um, að orðuveitingar skuli að jafnaði fara fram 17. júní og á nýárs- dag. Ekki skuli veittar fleiri en sjö orður í hvert skipti, en alls mega þeir vera allt að tuttugu, sem djásnið öðlast ár hvert. — Ræður þá forseti yfir allt að sex krossum, íhlutunarlaust, á eigið eindæmi. Sést þá, hversu hér er djúpt tekið í árinni, þegar fiskaðir eru 20 menn úr þjóðinni árlega í þessu skyni — þeir metnir og vegnir, og viðurkennd eða í- mynduð störf þeirra. — Og greinargerðin síðan látin gjalla í útvarpinu. Eftir sömu hlutföllum ættu Danir til dæmis að úthluta hátt á sjötta hundrað krossum, Norðmenn litlu færri, Svíar drjúgum meir — að ekki sé minnzt á stóru ríkin. Síðari árin hafa ýms félög og stofnanir apað þetta eftir rík- inu, og eru nú tekin að sæma menn „medalíum“ einhvers kon- ar. Ef mig minnir rétt sló eitt stjórnmálafélagið í Reykjavík (Vörður) tvær mannskepnur sínar til nokkurs konar riddara eða „medalíumanna." — Fleiri félög hafa nú fengið þess konar „útbrot.“ íþróttamenn, sem lifa á keppninni eftir meti I vissum tegundum íþrótta og fimleika, þurfa hins vegar að hafa ein- hvers konar menjagripi til út- býtingar methöfum sínum. — Þar þarf heldur ekki að deila um úthlutunina. — Þar er fyr- irfram ákveðið, að fremsti kepp- andinn skuli öðlazt verðlauna- gripinn. — Þar þarf því enga greinargerð í hálfgildings af- sökunartón til birtingar í blöð- um og útvarpi. Einhverjir kaupstaðanna eru Það hefir ekkert verið ákveðið um verðlagsmál landbúnaðar- ins og horfur á að vísitölunni verði hleypt um meira en 20 stig. Og mennirnir, sem tekið hafa að sér að leysa vándann hér reita hverjir aðra og svívirða. Forsætisráðherrann er barinn og það er sparkað í varaformann flokks hans, borgarstj órann í Reykjavík, og jafnvel kvenfólk hárreitir hann. Þetta eru ávextir þess stjórn- arsamstarfs, sem Mbl. hefir blessað og barizt fyrir. „Sjá hér hve illan enda“ — Hverjir skyldu það vera, s'em eru meinsmenn þjóðfélagsins? Tíminn mun halda áfram að skýra þjóðinni frá því, hvað gerist í þessum málum og hvern- ig þróunin heldur áfram. Hann heitir á hvern hugsandi mann að leggja sig fram um að kynna sér ástandið og endurskoða af- stöðu sína með einlægni og al- vöru. nú teknir að kjósa svonefnda heiðursborgara, og getur það orðið nokkuð vafasamur leikur. — Mjög fáir bæir hafa enn sem komið er, tekið upp þennan hátt, og víst fremur varlega far- ið í sakirnar hjá þeim. Þá hafa og nokkur landsfélög svo sem Búnaðarfélagið, Fiski- félagið, og óefað fleiri, kosið heiðursfélaga. Oftar hafa víst verðleikamenn hlotið þann til- ætlaða sóma, en stórar misfell- ur hafa þó kunnugir menn séð á sumum heiðursfélagakosning- um þessara félaga. — Bótin er, að hér hefir verið farið vægilega að, tiltölulega fáir menn gerðir að heiðursfélögum, og jafnan liðið mörg ár á milli þeirra út- nefninga. En jafnframt þykist ríkið þurfa á 20 krossum að halda til útbýtingar árlega. Hér ber því allt að sama brunni. — Ef orðudótið á ekki að sökkva í svartakaf lítilsvirð- ingar, verður vltanlega að tak- marka hina árlegu krossatölu. í því skyni að rökstyðja kross- festingarnar, hefir orðunefndin tekið upp þann hátt, að láta greinargerð fylgja hverri út- deilingu, og er sá sómi þulinn í útvarpið.og prentaður I blöðun- um. Það er í senn skoplegt og hjá- kátlegt. Úr því að nefndin hefir leyfi til að hengja krossa á menn, þá þarf hún ekki að biðjast neinn- ar velvirðingar á því tiltæki frekar en stjórnarvöld, er þau veita ákveðnum manni embætti, — og raunar stundum af rang- sleitni eins og kunnugt er. Það er vitanlega hægt að tína til hundruð af mönnum, sem staðið hafa sómasamlega í stöðu sinni, en allir slíkir menn eru nytjamenn og sjálfum sér til sóma. — Þeir eru líka einatt miklu nýtari þjóðfélagsþegnar en ýmsir krossaðir menn. — þar fyrir er engan veginn sagt, að þjóðfélagið eigi að hengja á þá kross. Orðum eða krossum ætti ekki að útbýta nema sem eins konar Eigi er vitað með vissu, hve- nær Færeyjar byggðust, en það var kringum 800. Landnáms- mennirnir voru norskir. Fyrstu árin eftir landnámið verða Fær- eyjar að teljast fríríki. Æðsti maður ríkisins var lögsögumað- urinn eða lögmaðurinn. Þing Færeyinga hét þá, eins og nú, lögþing. Árið 1035 urðu Færeyjar norskt konunglegt lén, en fær- eyskir höfðingjar höfðu þó áður verið háðir Noregskonungum. Færeyingar tóku kristna trú árið 999 og urðu eyjarnar fyrst eftir kristnitökuna sérstakt biskupsdæmi, sem laut Niðarósi í Noregi. Öruggar heimildir eru til um biskupsstól í Færeyjum frá því á 11. öld og til siðbótarinnar. Skömmu eftir siðbótina lagðist biskupsstóllinn niður, og eyj- arnar urðu prófastsdæmi, sem verðlaunum fyrir framúrskar- andi störf. — Mætti hugsa sér tvenns konar reglur í þessu efni. Annars vegar sem nokkurs kon-. ar verðlaun fyrir ákveðin nytja- verk eða helzt afrek í þjóðfélag- ins þágu, þar sem fjárgreiðsla kemur ekki til greina. Hins veg- ar umbun fyrir óvenju vel rækt störf fyrir þjóðfélagið, og lang- an starfsdag, í embætti eða öðru slíku, og þá að loknum starfsdegi. Væri þá tilhlýðileg- ast að nota einungis tvær teg- undir krossa. Fyrri tegundin yrði þá jafn- an sjálfsögð handa erlendum mönnur, er gerðu landinu stór- greiða eða ykju sóma þess í augum heimsins. Þar skyldi og ekki binda sig við ákveðna tölu til útbýtingar. Forseta og utan- ríkismálanefnd er treystandi til að fara þar hóflega í sakirnar. Til innlendra manna ætti einungis að útbýta tveimur krossum; sínum af hvorri teg- undinni. Þó skyldi ekki setja fastar reglur um að tveimur krossum skyldi ávallt útbýtt: — Það væri á valdi forseta eða þeirra, sem útbýtingarumráðin hefðu. Nú er krossum útbýtt út í blá- inn, er óhætt að segja. — Sumir menn á miðjum starfsaldri eru „sæmdir krossi,“ eins og kallað er. — Embættismenn, sem setið hafa í hálaunuðum embættum, ríkið hefir hlaðið undir alla vega, og oft síðan öðlazt há eftirlaun án þess að marka nein spor í þjóðlífið, eru „stórkross- aðir.“ Mætti nefna álitlegan hóp af mönnum, bæði lífs og liðnum, sem hafa verið þannig stimplaðir. Ef hér væri um nokkurs konar minnispening eða því um líkt að ræða, sem forseti ríkisins gæfi upp á sitt eindæmi, — varðaði þjóðina yfirleitt ekkert um, hvernig útdeilingunni væri varið. Athugandi er og hvort ekki skuli taka upp þann hátt, og breyta þar með orðufyrirkomu- laginu. En á meðan þetta er laut Björgvin. Árið 1380 samein- uðust Danmörk og Noregur und- ir stjórn Margrétar drottningar og manns hennar, og fylgdu þá Færeyjar Noregi í því sambandi. Samband Noregs og Dan- merkur breytti í fyrsíu engu í sambandi Færeyinga og Norð- manna, en smám saman jukust skiptí Færeylnga og Dana, og verzlunin komzt í danskar hendur. Þegar erfða- og einveldis- stjórn komst á í Danmörku, lét Friðrik III. hylla sig á þingi í Þórshöfn. Sú hylling fór fram hinn 14. ágúst 1662. Bendir þetta á, að samband Færeyinga og Norðmanna hafi eigi verið álitið náið, er hér var komið sögu. Árið 1709 komust Færeyingar undir Sjálandsstiftamt. Fær- eysk mál lutu þó annarri skrif- stofu rentukammersins, en það fjallaði um norsk málefni. Þetta „í sálarþroska svanna býr sigur kynslóðanna." M. J. Til er sjóður, er ber nafnið Menningar- og minningarsjóður kvenna. Ekki er hann gamall. Skipu- lagsskrá hans var staðfest af forseta íslands, herra Sveini Björnssyni, síðari hluta ársins 1945. Hann er nú að upphæð kr. 83000.00, og þegar búið að veita úr honum kr. 9000.00 til styrkt- ar konum, er stunda framhalds- nám. Hugmyndina um stofnun hans átti hinn ötuli brautryðjandi kvenréttindanna á íslandi, frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir. Vildi hún, þegar 1915, að byrjað væri á að safna fé í þeim tilgangi að efla menntun íslenzkra kvenna. En það varð úr, að konur sneru sér.þó að öðru verkefni. En alltaf mun frú Briet hafa haft áhuga fyrir þessari sjóðs- stofnun, og skömmu fyrir andlát sitt gaf hún kr. 2000.00, sem verða skyldi fyrsti vísir að hon- um. Sjóðurinn var svo stofnaður af Kvenréttindafélagi íslands og skipulagsskrá hans samin af nefnd úr því félagi í samráði við börn frú Bríetar Bjarnhéðins- dóttur. í skipulagsskránni segir svo m. a.: „Tilgangur sjóðsins er að vinna að menningarmálum talin nokkurs konar opinber ráðstöfun, þótt verandi ríkis- stjórn komi þar sem betur fer hvergi nærri, þá verður að leggja áhérzlu á, að orðurnar verði ekki gerðar að marklitlu glingri, spottgjörnum mönnum til aðhláturs, alvörugefnum til undrunar og gremju. Til þess að koma í veg fyrir slíkt, og eyða öllum hégóma, sem slæðist í kringum orðufarg- anið, verður að takmarka krossaveitingarnar í samræmi við það, sem hér hel'ir verið bent á. samband færeyskra og norskra mála hélzt til 1814, er Noregur sameinaðist Svíþjóð. Emdanleg- ur aðskilnaður færeyskra og norskra mála verður því ekki fyrr en 1814. Árið 1816 var hið þúsund ára gamla lögþing Færeyinga lagt niður og þar með einnig lög- mannsembættið. Síðan hefir ámtmaðurinn verið æðsti mað- ur í Færeyjum og eyjarnar eitt amt danska ríkisins. Eigi að síður höfðu Færeyjar alltaf sérstöðu innan danska' ríkisins. Dönsk lög giltu ekki í Færeyjum, nema ef þess var sérstaklega óskað. Lengi vel réði amtmaðurinn því, hvaða dönsk lög skyldu öðlast gildi í Færeyjum. í raun og veru var því embættis- mannastjórn í Færeyjum, þar eð amtmaðurinn varð eins kon- ar varakonungur. Fyrri hluti 19. aldar varð þannig það tímabil í sögu Færeyja, sem færeyska þjóðin hafði minnst afskipti af málefnum sínum. Er sveita- stjórnir komust á i Danmörku á árunum 1838—41, urðu Fær- eyjar útundan, þar voru engar sveitastjórnir. Þegar stjórnar- skrá Dana var samin árin 1848 —49, áttu Færeyingar engan fulltrúa á ráðstefnunnl, sem samdi stjórnarskrána. kvenna: a) með því að styðja konur til framhaldsmenntunar við æðri menntastofnanir, hér- lendis og erlendis með náms- og ferðastyrkjum. Ef ástæður þykja til, svo sem sérstakir hæfileikar og efnaskortur, má einnig styrkja stúlkur til byrj- unarnáms, t. d. í menntaskóla. b) með því að styðja konur til framhaldsrannsókna að loknu námi, og til náms og ferðalaga til undirbúnings þjóð- félagslegum störfum svo og til sérnáms í ýmsum greinum og annarra æðri mennta. c) með því að veita konum styrk til ritstarfa eða verðlauna rit- gerðir, einkum um þjóðfélags- mál, er varða áhugamál kvenna. Þó skulu námsstyrkir sitja í fyrirrúmi meðan sjóðurinn er að vaxa.“ Sjóðnum hafa borizt margar gjafir og áheit. Mest era það minningargjafir. Til minningar um þær mæðgur Bríetu og dótt- ur hennar frk. Laufeyju Valdi- marsdóttur bárust margar gjaf- ir. Ennfremur um frú Kristínu Vídalín Jacobsen, frú Sigrúnu Blöndal skólastj. á Hallorms- stað og margar fleiri merkar konur. í skipulagsskránni er tekið fram, að árlega skuli safnað fyr- ir sjóðinn með merkjasölu og hefir Kvenréttindafélag ís- lands valið til þess 27. sept., fæð- ingardag frú Bríetar Bjarnhéð- irisdóttur. Verða því seld merki í dag til ágóða fyrir hann, bæöi hér í Reykjavík og víðar um land. Treystir Kv. r. f. í. því, að bæjarbúar bregðist vel og að sem flestir kaupi merkin, með því leggja þeir lið þörfu málefni, stuðla að því að ís- lenzkar konur, sem til þess hafa löngun og hæfileika geti aukið menntun sína og þá orðið fær- ari til starfa fyrir þjóðfélagið. Nóg er að gera. Alls staðar vantar menntaða menn, konur og karla. — í okkar litla þjóð- félagi má ekkert gott efni fara forgörðum. Allir þurfa að menntast og mannast elns og Er stjórnarskráin gekk í gildi hinn 5. júní 1849 og einveldinu var lokið, lá næst fyrir að semja kosningalög. Danir urðu ekki á eitt sáttir um, á hvern hátt Fær- eyingar skyldu fá fulltrúa i danska ríkisdeginum. Gegn Vilja margra góðra Dana, t. d. stjórnmálamannanna J. A. Hansens og Tschernings. og skáldsins Grundtvigs, samþykkti ríkisdagurinn árið 1850 kosn- ingalög fyrir Færeyjar. Danska stjórnarskráin var þannig, án þess að Færeyingar væru að- spurðir, látin ganga í gildi í Færeyjum, í Færeyjum mætti þetta engri teljandi andstöðu. Færeyingar vissu ekki, hvað var að gerast í Ríkisdeginum og einokunar- verzlunin danska hindraði allt samband við umheiminn. Fyrsti ríkjsþingmaður Færey- inga hét Níels Winther. Hann átti sæti í þjóðþinginu (tilsvar- andi neðri deild Alþingis). Winther barðist fyrir þvi, að lögþingið, sem nú skyldi endur- reist, fengi aðalvaldið í fær- eyskum málum. Margir frjáls- lyndir Danir studdu þessa til- lögu, en hún náði samt ekki fram að ganga. Lögþingið fékk aðeins mjög takmarkað ráðgef- andi vald og sjálfkjörinn for- maðUr þesa varð amtmaðurinn, (Framhald á 4. slðu) (Framhald á 4. síðu) Ólafur Guimarsson kennarf: * Þættir úr sögu Færeyinga I. Stjórnmálasagan. Um þessar mundir er mikið rætt um kosningaúrslitin í Fær- eyjum, sem komu Dönum, en ekki fslendingum, mjög á óvart. Mun marga fýsa að heyra frekar um þá þróun, sem hefir leitt til úrslitanna.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.