Tíminn - 26.10.1946, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARIN8SON
ÚTGEPANDI:
PR AMSÓKN ARFLOKKURINN
Slmar 23(3 og 4371
PRENTSMIÐJAN EDDA hj.
s
30. árg.
RITST.JÓRASKRIFSTOFTTR:
EDDTI’ 81. Llndargötu » A
Slmar 2353 og 4372
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKIIIFSTOFA-
EDDUHÚSl. Ll! dargðtu 8 A
3iaJ 2323
Reykjavík, laugardagiim 26. okt. 1946
Erlent yfirlit
Eftirmaður Per Albins
Fyrir hálfum mánuðl síðan settist tiltölulega ungur og ó-
þekktur maður í valdamesta embætti Svíþjóðar, eftir að því
hafði gegnt einn vinsælasti stjórnmálaskörungur, sem Svíar hafa
átt. Maður þessi, Tage Erlander, má heita óskrifað blað i
stjórnmálum Svía, og hefir ekki haft meiri stjórnmálaafskipti
en svo, að til mála kom, að hann legði niður þingmennsku fyrir
sex árum. Þeir flokksbræður hans, sem þekkja hann bezt,
hyggja hins vegar vel til forustu hans, en andstæðingarnir vilja
að svo stöddu litlu sþá inn framtíð hans.
Sveinbjörn Egil-
son látinn
í gærmorgun lézt einn af
merkustu borgurum þessa bæjar,
Sveinbjörn Egilson rithöfund-
ur, áttatiu og þriggja ára!
gamall.
Sveinbjörn var fæddur í
Hafnarfirðl árið 1863, og var
sonarsonur Sveinbjarnar Egils-
sonar rektors. Sveinbjörn varð
stúde.nt árið 1881 og hóf þá nám
á prestaskólanum, 'en hætti þvl
og gerðist sjómaður. Var hann
iengi í siglingum og mun hann
hafa verið einn af víðförlustu
íslendingum. Eftir að Svein-
björn hætti farmennsku gegndi
hann mörgum trúnaðarstörf-
um og var m. a. lengi ritstjóri
Ægis. Hann samdi bók, er hann
nefndi Ferðaminningar og sjó-
ferðasögur, og hefir það rit átt
mikilli hylli að fagna.
Bók um ísland
„ísland og þróun þess á
tæknisviðinu" heitir bók, sem
Th. Krabbe fyrrverandi vita-
málastjóri hefir skrifað og
bráðlega kemuf á markað. Bók-
in er á dönsku, prýdd mörgum
myndum. Dansk-islandsk Sam-
fund gefur hana út með stuðn-
ingi Sáttmálasjóðs, samgöngu-
málaráðuneytisins íslenzka og
minningargjafar Knuds HJö-
gaards.
Bókin er væntanleg á
markað samtimis á Íslandi,
Danmörku, Noregi og Svlþjóð.
ERLENDAR FRÉTTIR
t Bengalhéraði 1 Indlandi
hafa óeirðir hafizt að nýju, eh
þó í smærra stíl en áður. Æs-
ingamenn 1 liði Múhameðstrú-
armanna standa fyrir þeim.
Jinnah, leiðtogi Múhameðstrú-
þessara trúbræðra sinna og talið
þær aðeins vera málstað þeirra
til óþurftar." Óeirðir þessar geirðu
þó erfiðara fyrir að ná sam-
komulagi um, að Múhameðstrú-
armenn taki þátt i hinni nýju
índlandsstjórn Nehru. En eigi
að siður hefir það nú tekizt, og
tóku Múhameðstrúarmennirnir
sæti sín í stjórninni í gær.
í Palestínu hefir óaldarflokk-
ur Gyðinga, Sternflokkurlnn
svonefndi, hafizt handa um ný
hryðjuverk eftir að hlé hafði
veríð á þeim um skeið. í fyrri-
nótt urðu margar sprengingar 1
Jerúsalem. Brezkir hermenn
handtóku marga Gyðinga í gær.
Tage Erlander er fæddur 1
Vermalandi 1901, sonur skóla-
kennara þar. Hann lauk stúd-
entsprófi í Karlstad, og kandí-
datsprófi í Lundi o?, vann að
kennslustörfum og samningu
alfræðiorðabókar. Samdi hann
ýmsa þá kafla bókarinnar, er
fjölluðu um hagfræðileg efni.
Árið 1933 var hann kominn á
þing og hefir átt þar sæti síð
an, fyrst i neðri málstofunni,
en síðan i efri málstofunni. í
þinginu kynntist hann Mullér
félagsmálaráðherra, sem fékk
svo mikið álit á honum, að hann
gerði hann að fulltrúa sinum 1
félagsmálaráðuneytinu. Árið
1944 varð Erlander ráðherra án
stjórnardeildar, en starfaði þó
áfram við félagsmálaráðuneyt-
ið. Árið 1945 varð hann kennslu-
málaráðherra í ráðuneyti jafn-
aðarmanna.
Þegar að því kom fyrir hálf-
um mánuði siðan, að ssenskir
jafnaðarmenn urðu að veljá sér
foringja i stað Per Albin, varð
aðalkeppnin milli Erlander og
Mullers fyrrum yfirmanns hans.
Erlander varð hlutskarpari i
flokksstjórninni með J5:10 atkv.
og í þingflokknum með 94:72
atkv. Það mun hafa ráðið mestu
um sigur hans, að hann var
yngri maður en Muller, sem er
orðinn 62 ára gamall. Yngri
menn flokksins töldu heppi
legra, að flokkurinn veldi sér
til forustu ungan mann, sem
gæti gegnt því starfi til fram-
búðar, en einhvern af hinum
gömlu flokksleiðtogunum, þótt
þeir væru þekktari og vinsælli.
Hins vegar mun málefnalegur á
greiningur ekki hafa komið þar
til greina, þvi að bæði Er-
lander og Muller hafa haldið
áig utan innbyrðlsdeilna í
flokknum.
Erlander hefir komið lítið
fram sem pólitískur baráttu
maður, nema helzt á skólaárum
sínum, en hann hefir reynzt
mjög dugandi í embætti sinu
Hann þykir viðmótsgóður og
samvinnuþýður, en er jafnframt
sagður aðgætinn og fastur fyrir,
ef því er að skipta. Margir telja
hann því hafa betri aðstöðu
og hæfileika en aðra leiðtoga
■ jafnaðarmanna til að stjórna
! flokknum og haldahonum sam-
an. Andstæðingablöðin eru var-
kár í dómum sínum um hann
þar sem þau telja hann óskrif
að blað, sem stjórnmálafor-
ingja, („han er ánnu ingenting'
segir Svenska Dagbladet um
hann).
Það verk, sem nú leggst á
herðar Erlanders, verður ærið
vandasamt. Það er trfitt að
skipa sæti, sem hefir verið jafn
vel setið og sæti Per Albins, og
taka jafnframt við forustu i
flokki, sem virðist kominn í aft
urför, ef marka skal kosninga
úrslitin í haust. Taklst Erlander
að rísa undir þessum vanda, er
hann enginn meðalmaður.
Ný símaskrá.
Undirbúningur er hafln að útgáfu
nýrrar símaskrár. Verða simanotend'
ur hafa tilkynnt breytingar, sem þeir
vílja láta gera fyrir 5. næsta mánað'
ar. Á það einnig við þá, sem vllja
komast i atvinnu- og viðsklpta
skrána.
196. blað
Gagnrýni Tímans í togarakaupamálinu staöfest:
islendingum boönir stórum betri og ódýrari
togarar en togarar Nýbyggingarráös
FORSÆTISRÁÐHE'RRA SVIA
' Þeir eyða ekki nema 3i/2 smál. af olíu mcðan
Nýbyggingaráðstogararnir eyða 8V2 smál.
Stjórnarblöðln, Morgunblaðið og ÞjóðvUjinn, upplýsa í gær,
að nú sé hægt að fá brezkar skipasmíðastöðvar til að smíða
togara, er séu mun ódýrari og hentugri en togarar þeir, sem
Nýbyggingarráð sé að láta smíða. Þessu til sönnunar skýra þau
frá viðtali, er þau hafi átt við skozkan skipasmíðameistara,
A. R. Taylor, sem er staddur hér nú til að bjóða slík skip tU
kaups. Hefir hann þegar sex slík skip á boðstólum og geta þau
verið tilbúi f á næsta ári. Með þessu fellur um sjálft sig, sú afsökun
Nýbyggingarráðs og ríkisstjórnarinnar, að þau hafi orðið að
hraða samningum um smíði togaranna, því að seinna myndu ekki
fást smíðaðir togarar í Bretlandi. Jafnframt sannast til fullnustu
sú staðhæfing Tímans, að vegna flausturslegs og óvandaðs undir-
búnings og málsmeðferðar munu togarar Nýbyggingarráðs verða
bæði stórum dýrari og óhentugri en þurft hefði að vera.
Mynd þessi er af hinum nýja forsætisráðherra Svía, Tage Erlander, og
tjölskyldu hans. Kona hans er kennari að menntun og vinnur enn sem
kennslukona við elnn af skólunum f Stokkhólmi. Líklegt þykir, að hún
verði nú að leggja það starf niður. Erlanderhjónin hafa jafnan borizt lítið
á og búa nú í þriggja herbergja leigufbúð f stórrl sambyggingu. — Sjá
nánar um Erlander f grein á öðrum stað f blaðinu.
íslendingum afhentur
Keflavíkurflugvöllurinn
í gær um kl. 4 fór fram merkisathöfn suður á Keflavíkurflug-
velli, þar sem völlurinn var afhentur íslenzkum stjórnarvöldum
og íslenzkur fáni var um leið dreginn að hún í fyrsta sinni. —
Er hér um að ræða framkvæmd samnings þess, er nýlega hefir
verið gerður milli íslands og Bandaríkjanna, um brottflutning
hersins og starfrækslu Keflavíkurflugvallarlna,
Athöfnin fór fram á Keflavlk-
urflugvellinum fyrir framan
hótelið, sem herinn rekur þar.
Veður var ekki gott, kalt og súld
i loftinu, en úrkomulaust var
þó á meðan sjálf athöfnin fór
fram. Amerískar hernaðarflug-
vélar flugu frá Reykjavík til
Keflavíkur með þá, er boðið
hafði verið að vera viðstadda
þessa athöfn, en það voru auk
blaðamanna, ýmissir opinberir
embættismenn og ráðherrar.
Fyrir framan stóra fánastöng
hafði verið komið fyrir upp-
hækkuðum palli með ræðustól.
Á palli þessum sat Ólafur Thors,
ásamt tveimur Bandaríkja-
mönnum. Neðan við pallinn sátu
gestirnir á stólum, en álengdar
horfðu á athöfnina 200—300
manns, aðallega úr Keflavik,
sem komið hafði til að vera
viðstatt þennan viðburð og
skoða flugvöllinn i fyrsta sinn,
því hann hefir verið lokaður
öðrum íslendingum en þeim, er
þangað hafa átt brýnt erinda.
Auk þess voru svo viðstaddir
álíka margir hermenn og ís-
lendingarnir voru og á meðan
athöfnin fór fram stóð vopnað
herlið heiðursvörð, öðru megin
við pallinn.
Fyrstur tók til máls hinn
ameríski yfirmaður flugvallar-
ins, Brig General Mc Kee, en á
(Framhald d 4. tiðu)
íÞRÓTTALANDSMÓT
Á KOMANDI VETRI
íþróttasamband íslands hefir
þegar ákveðið, að sex landsmót
í íþróttum skull fara fram á
komandi vetri.
Þau mót, sem hér um ræðir,
eru: Skíðamót íslands, sem fer
fram 20.—23. marz, Meistara-
keppni íslands í flokkaglímu,
sem fer fram 28. marz, Hand-
knattleiksmót íslands (inni),
sem fer fram 29. marz — 15.
apríl, Hnefaleikamót íslands,
sem fer fram 15.—20. apríl,
Sundmeistaramót íslands, sem
fer fram 21.—23. apríl og Sund-
knattleiksmót íslands, sem fram
fer 10.—20. maí. (Samkvæmt
frétt frá í. S. í.)
Stærð og gerð togaranna..
Mbl. segir svo um þessa nýju
togara, sem hér eru á boðstól-
um:
„Sú tegund togara, sem Mr.
Taylor býður, eru gerðir með
þarfir fslendinga fyrir augum
og hefir Guðmundur Jörunds-
son sagt fyrir um ýmislegt í
sambandi við þá, og einnig hef-
ir verið leitað ráða Sigurjóns
Einarssonar skipstjóra í þess-
um efnum. Er gerð togaranna
þannig hagað, að þeir verði
hentugir til sildveiða, ekki síð-
ur en togveiða. Ný gerð af vind-
um verður í þeim, olíuknúð-
um. Yfirbygging skipanna verð-
ur úr aluminum efni og björg-
unarbátar úr sama efni.
Þó skip þessi séu ekki nema
150 fet, eiga þau að geta borið
jafn mikið fiskmagn og t. d.
175 feta skipin, sem verið er að
smiða fyrir okkur í Bretlandi.
Lestar verða þiljaðar með alum
ínum, sem bakteríur eiga ekki
að geta haldizt við í. Ganghraði
skipanna á að vera 12% mfla á
klukkustund.“
Þjóðviljinn segir svo til við-
bótar í frásögn sinnl af hinum
nýju togurum:
„Skrúfa þeirra verður útbúin
með þeim sérstaka hætti, að
blöðum hennar má snúa þann
ig, að hraði skipsins minnkar og
eykst eftir því hvort verið er að
„stima eða toga. Vélinni verður
algerlega stjórnað úr brúnni.
Togarar þessir munu hafa
þrýstiloftsspil, er munu henta
mjög vel til veiða hér við land,
Allur útbúnaður verður gerður
með það fyrir augum að nota
megi skipin jafnt til síldveiða
og dragnótaveiða."
Eins og sjá má á þessum lýs-
ingum, verða þessir togarar á
margan hátt fullkomnari en
togararnir, sem Nýbyggingaráð
er að láta smiða. Má þar t. d.
nefna skrúfuútbúnaðinn, þrýsti-
loftsspilið, aluminumþiljurnar,
auk sjálfrar dieselvélarinnar.
Mr. Taylor, sem hefir gert teikn
íslendingafundur
í Oslo
Nýlega var fyrsti fundur ís
lendingafélagsins í Osló eftir
stríðið haldinn. Voru þar um
40 íslendingar og vinir þeirra.
Fundurinn var mjög skemmti
legur. Skemmtu menn sér við
dans og leiki fram á nótt. Fór
fundurinn hið bezta íram.
toga’jar verða elns burðarmiklir
og Nýbyggingaráðstogararnir og
kosta þó mun minna:
„Mr. Taylor segir, að lesta-
rúm þessara togara verðl allt
að þvf eins mikið og nýju tog-
aranna, sem Nýbyggingaráð
hefir keypt, enda þótt þeir tog-
arar séu um það bil 25 fetum
lengri. Þetta kemur til af því,
samkvæmt upplýsingum Tayl-
ors, að mikið rúm mun sparast
í togurum þeim, sem hann smíð-
ar, vegna ýmiskonar nýbreytni i
fyrirkomulagi. Engu að síður
segir Tayior, að togarar þeir,
sem hann ætlar að smíða, muni
verða allmiklu ódýrari en hinir
nýju togarar Nýbyggingaráðs.“
Sést bezt á þessari frásögn,
hve rasað hefir veríð um ráð
fram, þegar ráðizt var i togara-
kaup Nýbyggingaráðs, án telj-
andi undirbúnings. Þeir togar-
ar, sem hér ræðir um, verða
bæði ódýrari og fulkomnari
vegna þess, að betur hefir verið
til undirbúnings vandað.
Stórfelldur munur á
rekstrarkostnaði.
Enn er þó ótalinn munurinn
á rekstrarkostnaði þessara tog-
ara og Nýbyggingaráðstogar-
anna, en hann virðist muni
verða mjög mikill. Um það at-
riði segir svo í frásögn Mbl.:
„Er Mr. Taylor hitti blaða-
menn frá dagblöðunum 1 gær-
dag barst í tal, hvort hentugra
myndi reynast að hafa togara
með diesel- eða gufuvélum.
Kvað skipaverkfræðingurinn að
tvær skoðanir ríktu í því efni
hjá skipstjórum og skipaverk-
fræðingum. Eldri skipstjórar og
skipaverkfræðingar héldu því
fram að gufuskip væru betri,
en yngri skipstjórar og skipa-
smiðir héldu dieseltogurum
fram. Væru hópar þessir álíka
fjölmennir, en eftir því sem
tímt.r liðu væri ekki nokkur vaíl
á, að dieselskipin myndu vinna.
Þau væru mikið ódýrari í
Ingarnar I samráði við framan- rekstri. Gufutogararnir eins og
greinda menn, er Uka að sögn
Þjóðviljans „kunnur mörgum
íslenzkum útgerðarmönnum,
því að hann hefir áður teiknað
og smíðað allmarga lslenzka
togara.“
Verð togaranna.
Um verð þessara togara seglr
Mbl. á þessa leið:
„Þessir 150 smálesta diesel-
togarar, sem verða álíka stórir
og stærstu togarar okkar, sem
við nú eigum, verða mun ódýr-
ari, en hin stóru skip, sem við
eigum nú í smíðum.“
Þjóðviljinn gefur svofellda
skýringu á þvl, að þessir nýju
þeir, sem Islendingar væru nú
að byggja, myndu eyða um
8 yz smálest af oliu á sólarhring,
en diesel-tos>rar þeir, sem félag
hans værl nú að byggja (150
feta) myndu eyða 3 y2 smálest.
Um mismun á rekstri reiknað
í krónum, kvaðst hann ekki geta
sagt, þar sem sér væri ekki nógu
vel kunnugt um verð á hráolíu-
og dieselolíu hér á landi.“
Samkvæmt þessu verður
brennslukostnaður Nýbygginga-
ráðstogaranna meiri en helm-
ingi meiri en hann hefði þurft
að vera, ef hæfilegs undirbún-
ings og hagsýni hefði verlð
(Framhald d 4. )lðu)