Tíminn - 09.11.1946, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
ÚTGEPANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Simar 2363 og 487?
PRENTSMIÐJAN EDDA hj.
RITST JÓRASKRIPSTOPUR:
EDDUH''SL Llndargötu $ A
Simar 2353 og 4371
APGREIÐSLA, INNHETMTA
OG AUGLÝSINGASKI.IPSTOP/ •
EDDUHÚSL Liiidargötu B A
Síml 2323
30. árg.
Reykjavílc, laugardaglmi 9. nóv. 1940
306. blatS
ERLENT YFIRLIT:
Kosningaúrslitin í Bandaríkjunum
Kosningaúrslitin í Bandaríkjunum hafa veriff mikiff rædd í
heimsblöffunum seinustu dagana og eru ályktanir manna næsta
Samvinnumenn vilja frjálsræði í viðskiptum
SOKKIÐ SKIP A SIGLIIVGALEIÐ
*Vilhjálimir Þor, forstjórl, segir fréttir frá
þiiagi Alþjóðasambands samvinnumanna.
ólíkar. Flestir virffast þó dómarnir þeir, aff erfitt sé aff segja um,
hvort þau tákni stefnubreytingu í afturhaldssama átt, fyrr en
hiff nýkosna þing sé tekiff til starfa. Þá verffi fyrst séff, hvort
meirihluti hinna nýkjörnu þingmanna republikana fylgi frekar
vinstra eða hægra armi flokksins. Frjálslynd blöff virffast þó
heldur óttast þá þróun, þar sem „íhaldsmenn séu fleiri í flokki
republikana en demokrataflokknum".
Margir evrópiskir blaðamenn,
sem fylgdust með kosningabar-
áttunni, segja hana mest frá-
brugðna slíkum átökum í Ev-
rópu að því leyti, hve lítið hafi
verið deilt um stór stefnumál.
Um flest höfuðstefnuatriði virt-
ust aðalflokkarnir sammála,
enda eru báðir yfirlýstir fylgj-
endur samkeppnisstefnunnar,
og demókratar höfðu ekki leng-
ur þá frjálslyndu sérstöðu, sem
einkenndi þá á dögum Roose-
velts, þar sem hann var íallinn
frá og allir nánustu samstarfs-
menn hans höfðu verið hraktir
úr stjórninni. Vegna þess, hve
stefnuágreiningur flokkanna
var orðinn lítill,, stóðu
republikanar stórum betur að
vígi, þar sem þeir gátu kennt
stjórn demókrata um ýmsa erf-
iðleika, er skapazt hafa í
Bandaríkjunum eins og annars
staðar í striðslokin, t. d. skort
á húsnæði og ýmsum nauðsynj-
um. „Vanti þig eitthvað —
kjóstu þá republikanskt“, var
aðalkjörorð þeirra. Þannig tókst
þeim að vinna fylgi margra óá-
nægðra kjósenda. Einkum mun
þó ósigur demókrata hafa staf-
að af því, að þeir höfðu ekki
sama traust verkamanna og á
dögum Roosevelts. Verkamenn
höfðu því minni ájauga fyrir
kosningunum og víða kusu þeir
ekki eítir flokkum, heldur eftir
þeirri afstöðu, sem þeir álitu
frambjóðendurna hafa til
verkalýðsmálanna. Þar sem re-
publikanir höfðu frjálslynda
menn í kjöri, unnu þeir víða
stóraukið verkamannafylgi.
Afleiðingin af því, hve kosn-
ingin snerist lítið um stefnu-x
mál, varð m. a. sú, að hún varð'
miklu persónulegri og í fjöl-
mörgum kjördæmum snerist
hún fyrst og fremst um fram-
bjóðendurna. Evrópiskir blaða-
menn hafa orð á því, aö per-
sónulegar árásir hafi veriö
miklu meiri en títt' sé í Evrópu.
ERLENDAR FRÉTTIR
Bandaríkin hafa boðizt til að
afhenda bandalagi sameinuðu
þjóðanna til verndargæzlu Kar-
ólínueyjar, Marshallseyjar, Iwo-
Jima og Okinawa í Kyrrahafi,
þó með því skilyrði, að þau fái
að hafa þar herstöðvar.
Stjórnmálanefnd bandalags
sameinuðu þjóðanna hefir lagt
til að þær slíti stjórnmálasam-
bandi við Spán.
McMarry, yfirmaður Banda-
ríkjahersins í Þýzkalandi, hefir
lýst yfir þeirri skoðun sinni, að
Bandamenn þurfi að minnsta
kosti að hafa setulið í Þýzka-
landi í 10—15 ár enn.
Tsaldaris hefir myndað nýja
stjórn í Grikklandi. Hún er ein-
göngu skipuð konungssinnum,
því *að aðrir flokkar neituðu
samstarfi við hana.
Ráffstafanir hafa verið gerð-
ar til að hraða matvælaflutn-
ingum frá Bandaríkjunum til
hernámssvæðis Breta í Þýzka-
landi, og er því vonast til að
ekki þurfi að minnka þar mat-
arskammtinn.
Ekkert var látið ógert til að
sverta keppinautinn, en á sama
hátt hófu stuðningsmenn hans
hanij til skýjanna. í New York
var það t. d. eitt helzta kosn-
ingamál republikana, að demó-
kratar hefðu keypt ýms illræmd
bófafélög til að vinna fyrir sig.
Mjög er nú rætt um, hvort
republikanar muni nota þing-
meirihluta sinn til að reyna að
afnema ýms umbótalög Roose-
velts. Foringjar þeirra ýmsir
eru mjög stóryrtir um það, en
ekki er víst, að þeir reynist jafn
stórvirkir, þegar til kastanna
kemur. Mörg lög Roosevelts eru
orðin svo vinsæl, t. d. trygg-
ingalög ýms, að ótrúlegt er, að
nokkur þori að hagga við þeim.
Auk þess hefir Truman forseti
stöðvunarvald, sem þingið get-
ar ekki. Líklegasta afleiðing af
þess samþykki það, en svo mik-
inn r/ieirihluta hafa republikan-
ir ekki. Líklegasta afleiðing af
sigri þeirra er sú, að miklar
deilur rísi milli þeirra og Tru-
mans, þar sem hvorir drepi
fyrir öðrum á vixl, unz mála-
miðlun næst um eitthvað, sem
báðir verða þó óánægðir með.
Stjórnarfar Bandaríkjanna
verður því sennilega bæði óstöð-
ugt og óframsækið tvö næstu
árin, sem geta þó orðið hin ör-
lagaríkustu fyrir framtíð þeirra.
Þetta stafar af þeirri veilu í
stjórnarskrá þeirra, að sami
^meirihluti skuli ekki jafnan
'ráða forsetanum og þinginu.
Erfitt er að segja um, hvort
kosningaúrslitin nú séu nokkur
vísbending um úrslit forseta-
kosninganna 1948. Við forseta-
kosningar ráða allt önnur sjón-
armið en við þingkosningar, þar
sem kosið er í einmennings-
kjördæmum. Margt getur breyzt
á þessum árum. Valið á forseta-
efni flokkanna getur líka ráðið
miklu. Truman er vafalaust
úr leik sem forsetaefni demó-
(Framhald. á 4. síðu)
Gjafasendingar til
Þýzkalands
Samningar hafa tekizt við
hernaðaryfirvöldin um að e.s.
Reykjafoss fari til Þýzkalands í
næstu viku. Skipið tekur höfn
í Hamborg.
Héðan tekur Reykjafoss mat-
ar- og fataböggla, sem Rauði
Kross íslands ætlar að reyna
að koma til meginlandsins, nú
fyrir jólin. Nauðsynlegt4 er að
koma bögglunum til Rauða
Krossins sem allra fyrst.
í Hamborg mun Reykjafoss
taka 500 smál. af sykri, sem
kemur frá Tékóslóvakíu.
Húsbruni í Vest-
mannaeyjum
íbúðarhúsið „Héðinshöfði“ í
Vestmannaeyjum brann síðastl.
miðvikudag.
Héðinshöfði var tvílyft stein-
hús og var eign bæjarsjóðs
Vestmannaeyja. Efri hæð húss-
ins er gerónýt og neðri hæðin
mjög mikið skemmd af reyk og
vatni.
Víða á siglingalciðum er nú brak úr sokknum skipum og veldur hættu á
fjölförnum leiðum. Á þessari mynd sést^ reiði af sokknu skipi við Eng-
landsstendur.
Fréttir frá Alþingi:
Yfirlit um nokkur frumvörp,
tillögur og fyrirspurnir
Allmargt mála hefir nú veriff lagt fyrir Alþingi. Sum þeirra
eru merkileg, en önnur ekki. — Áffur hefir veriff getiff nokk-
urra stórmála, sem Framsóknarmenn leggja fram, eins og t. d.
frv. um Fiskimálasjóff, frv. um breytingar á tryggingarlögum
og þingsályktunartillaga um skömmtun áfengis. Von er á fleiri
stórmálum frá Framsóknarmönnum síffar. Hér á eftir mun verða
getiff nokkurra mála, sem lögff hafa veriff fram, en annarra
Vilhjálmur Þór, forstjóri S.Í.S., og Jakob Frímannsson kaup-
félagsstjóri, eru nýkomnir heim eftir aff hafa setið 16. þing Al-
þjóffasambands samvinnumanna, sem haldiff evar í Ziirich í Sviss
í síffastl. mánuði. Jafnframt sat Vilhjálmur fundi miffstjórnar
sambandsins, sem haldnir voru fyrir og eftir þingiff, en hann
er fulltrúi íslands í henni. Tíminn hefir átt vifftal viff Vilhjálm
Þór um þingiff, og fer frásögn hans hér á eftir:
— Þetta er fyrsta þingið, sem
Alþjóðasambandið heldur eftir
stríðið, segir Vilhjálmur. Þingið
sátu á fjórða hundrað fulltrúar
frá 19 löndum. Það stóð í fjóra
daga og voru rædd þar mörg
þau málefni, sem varða sam-
vinnufélögin mestu, og ýmsar
ályktanir gerðar. Á þinginu
kom fram mikill og einróma á-
hugi fyrir því, að efla sam-
; vinnustarfsemina í veröldinni
• sem mest. Fundarmenn voru
1 ekki aðeins sannfærðir um, að
i samvinna í verzlun væri ein ör-
| uggasta leiðin til að bæta lífs-
' kjör hins vinnandi fólks, held-
ur væri efling samvinnunnar
bezta leiðin og jafnvel eina leið-
in til að tryggj a frið í heiminum.
Á þinginu var mikið rætt um I
afstöðu samvinnufélaganna til1
hins opinbera og þó einkum til
aðgerða þess í verzlunarmálum.
í ályktun, sem samþykkt var
um þessi mál, var lögð á það
sérstök áherzla, að komið yrði
á meira frjálsræði og öryggi í
viðskiptum þjóða á milli, m. a.
með því að ryðja gjaldeyris-
hömlum úr vegi. Alveg sérstak-
Vilhjálmur Þór.
að alþjóðasamtök samvinnu-
manna færast í það horf að
láta verzlunarmálin til sín taka.
Það er ekki aðeins von mín,
heldur trú,' að millirikjaverzlun-
in verði komin að verulegu leyti
í hendur samvinnusamtakanna
áður en langir tímar líða og
þannig skapaður öruggur grund-
völlur fyrir frið og farsæld í
heiminum.
verffur getiff síffar og er þaff ætlun Tímans aff .skýra lesendum
lega var þó lögð áherzla á, að
frá öllum þeim málum, sem flui
Fjárpestirnar.
Landbúnaðarráðherra flytur
frv. um varnir gegn útbreiðslu
næmra sauðfjársjúkdóma og
útrýmingu þeirra. Frv. er samiö
af sérstakri nefnd, er skipuð var
á síðastl. sumri, en tildrög þess-
arar nefndarskipunar voru þau,
að Búnaðarfélag íslands reyndi
að fá þingið í fyrra til að gera
ýmsar nýjar ráðstafanir í sam-
bandi við þessi mál. í frv. er
lagt til að gera ýmsar breyting-
ar á gildandi lögum um þessi
mál.
Fyrirspurn um stjórnarskrána.
Hannibal Valdimarsson hefir
lagt fram í sameinuðu þingi
fyrirspurn til forsætisráðherra
um störf stjórnarskrárnefnda.
Allrækileg greinargerð fylgir
fyrirspurninni. Tvær nefndir
eiga nú að vinna að þessu máli
og hefir önnur setið í fjögur
ár, en hin á annað ár. Ekkert
hefir enn heyrst um störf þeirra.
Mun því fleiri en Hannibal fýsa
að heyra svör ráðherrans.
Andakí lsár vir k j un.
Pétur Ottesen og Bjarni Ás-
geirsson flytja í sameinuðu
þingi þingsályktunartillögu þess
efnis, að ríkið ábyrgist 3 milj.
kr. viðbótarlán til virkjunar
Andakílsár. Virkjunin hefir farið
allmikið fram úr áætlun.
Héraffsskjalasöfn.
Jón Sigurðsson flytur frv. um
héraðsskjalasöfn, er njóta skuli
styrks úr ríkissjóði Skulu þar
varðveitt skjöl og aðrar heimild-
ir, sem snerta hlutaöeigandi
bæjar og sýslufélag.
Hýsing prestssetra.
Menntamálanefnd e. d. flytur
Alls eru það 24 manneskjur,
sem misst hafa húsnæði sitt við
þennan bruna, og er þetta blá-
snautt fólk, sem illa mátti við
því tjóni, er bruninn olli því.
t verða, og afgreiffslu þeirra.
að tilhlutun kirkj umálaráið-
herra frv. um skipulag og hýs-
ingu prestssetra. Samkvæmt því
skal gera innan fimm ára skipu-
lagsuppdrætti af þeim prests-
setrum, sem líkleg eru til að
verða aðsetur prests til fram-
búðar. Ennfremur er lagt til,
að veitt skuli fé til byggingar
4 prestseturshúsa á fjárlögum
hvers árs, unz búið sé að byggja
upp öll prestssetur landsins.
Brúun Jökulsár í Lóni.
Páll Þorsteinsson, Eysteinn
Jónsson og Lúðvík Jósefsson
flytja frv. um þá breytingu á
brúarlögunum að nokkrum hluta
bensínskattsins skuli varið til
að byggja brú á Jökulsá i Lóni,
en hún er mikill farartálmi á
leiðinni milli Hornafjarðar og
Austfjarða.
Fyrirspurn um gjafaböggla.
Gylfi Þ. Gíslason flytur fyrir-
spurn til viðskiptamálaráðherra
um, hvort hann hafi kynnt sér
útflutning gjafaböggla. í grein-
argerðinni segir, að t. d. hafi
verið fluttir 10.500 gjafabögglar
til Danmerkur í fyrra og 17.000
í ár, en aðeins 750 árið 1939.
Ætla megi, að fluttar séu út með
þessum hætti, ýmsar vöruteg-
undir, sem erfitt sé að útvega
og keyptar eru fyrir dollara.
Kunnugt sé um, að ýmsir stundi
beinlínis verzlun með þessum
hætti og fari þannig framhjá
gjaldeyris- og tollalöggjöfinni.
Iffnfræffslan.
Samgöngumálaráðherra flytur
frv. um iðnfræðslu, þar sem lagt
er til að rýmka hana allmikið.
Sams konar frv. dagaði uppi á
þingi í fyrra.
Eftirlit meff skipum.
Rikisstjórnin flytur frv. um
eftirlit með skipum. Sams konar
frv. dagaði uppi á þingi í fyrra.
Frv. er samið af nefnd, sem
fyrrv. stjórn fól að athuga þetta
mál.
takmörkuö yrði hvers konar
þjóðnýtingu í verzlun og við-
skiptum.
Þingið samþykkti sérstaka á-
lyktun, þar sem skorað var á
Alþjóðabankann að veita sam-
vinnufélagsskapnum í heimin-
um sérstaka aðstoð, m. a. með
því að stofna sérstaka deild
innan vébanda sinna, er hefði
til meðferöar málefni og þarfir
samvinnustarfseminnar.
Alþjóðasamband samvinnu-
manna hefir til þessa fyrst og
fremst verið fræðslu- og kynn-
ingarstofnun. Slíkt var eðlilegt
meðan samvinnufélagsskapur-
inn var að ryðja sér til rúms.
Eftir því, sem hann hefir elfzt
meira, hafa menn fundið betur
nauðsyn þess, að alþjóðlegt
samstarf samvinnumanna þyrfti
einnig að ná til verzlunarinnar.
Skömmu fyrir styrjöldina var
því stigið það spor, að stofnuð
var að tilhlutun Alþjóðasam-
bandsins alþjóðleg umboðs-
verzlun samvinnusambandanna.
Starfsemi þess náði tæplega að
komast á fót fyrir styrjöldina
og féll vitanlega niður á stríðs-
árunum. Nú er mikill áhugi fyr-
ir því, að þessi starfsemi verði
hafin aftur og efld af 'fremsta
megni. Fundur var haldinn í
þessari stofnun í sambandi við
þing Alþjóðasambandsins og
var þar m. a. samþykkt að
stofna innan vébanda hennar
sérstaka umboðsverzlun með
olíu. Samin voru drög að regl-
um fyrir slika stofnun og kosin
bráðabirgðastjórn og er for-
maður hennar Albin Johansson,
forstjóri sænska samvinnusam-
bandsins. Síðar mun boðað til
formlegs stofnfundar.
Á fundi hinnar alþjóðlegu
umboðsverzlunar samvinnusam-
bandanna var samþykkt inn-
tökubeiðni frá S.Í.S., sem ekki
hefir verið í þessum samtök-
um áður.
Það er ánægjuleg þróun
sagði Vilhjálmur Þór að lokum,
„Á yztu snös”
í forustugrein Vísis í gær er
brugðið upp þessari mynd af
stjórnarfarinu og atvinnumál-
unum eftir tveggja ára stjórn-
arforustu Sjálfstæðisflokksins:
„Net erfiðleikanna dregst fast-
ar um atvinnuvegi og fjármál
landsmanna. Byggingariðnað-
urinn er kominn í þrot með fé
til framkvæmda. Vafasamt er
hvernig gengur að fullgera þær
byggingar, sem hefir verið byrj-
að á. Lánsstofnanirnar eru
farnar að draga saman seglin,
jafnvel í sambandi við útveg-
inn. Margir, sem keypt hafa
dýra báta, eru í vanda staddir
og eiga jafnvel í erfiðleikum
með að greiða tryggingargjöld
skipanna. Enginn telur sér nú
fært að kaupa þá 35 báta, sem
atvinnumálaráðherra er að láta
smíða innanlands fyrir 10 þús.
krónur tonnið, fyrir reikning
ríkissjóðs. Fisksalan til Bret-
lands er nærri stöðvuð. Enginn
veit hvernig verður hægt að
halda þorskveiðunum gangandi
á komandi vertíð. AHt á þetta
rót sína að rekja til sívaxandi
dýrtíðar, sem nú stendur í 302
stigum.“
Vísir segir síðan, að stjórnar-
flokkarnir hafi „eina von“:
„Það er afurðasala í stórum
stíl til Rússlands. Eins og sakir
standa í svipinn, er það eina
leiðin til þess að komast hjá
þvi í eitt ár enn, að snúast gegn
böli dýrtíðarinnar. Á þessari
von byggja nú flokkarnir allt
sitt traust. Ef salan tekst, verð-
ur hægt að halda atvinnuveg-
unum gangandi næsta ár. Ef
salan tekst, verður um sinn
stöðvuð sú atvinnukreppa, sem
er í uppsiglingu. Ef salan tekst
mmi' verða mynduð rikisstjórn
fljótlega.
Ekkert sýnir betur en þetta
hversu vcrðbólguöngþveitið
skákar nú hinu pólitíska fram-
kvæmdarvaldi í Iandinu. Ef ekki
tekst áður nefnd afurðasala, er
þessa stundina ekki annað sjá-
anlegt, en að fyrir dyrum sé at-
vinnustöðvun, f járhagsörðug-
leikar og pólitiskt öngþveiti.
Þetta sýnir að við erum komn-
ir á yztu snös með alit okkar
ráð og byggjum alla von á því,
að óvænt happ beri að höndum,
sem verji okkur falli.“
Svona giftusamlega hefir
stjórnarforusta Sjálfstæðis-
flokksins reynzt þjóðinni.
■———---------— ----------—-----