Tíminn - 09.11.1946, Blaðsíða 2

Tíminn - 09.11.1946, Blaðsíða 2
2 Lauf/ardatfur 9. nóv. Þjóðin vill að féð sé lagt í framleiðsluna Síðan sala skuldabréfa Stofn- lánadeildarinnar hófst að nýju hafa verið keypt bréf fyrir ná- lega 5 miljónir króna. Mbl. skýrir daglega frá söl- unni og flesta dagana birtir það fögnuð sinn yfir því að það séu yfirleitt smáu bréfin, sem selj- ist. Af því dregur það þær álykt- anir, að það séu einkum alþýðu- menn, sem ekki.eigi miklar eignir, sem leggi fé sitt í þetta. Nú er það vitanlegt, að fjöldi manns leggur allt sitt aflafé, sem afgangs er frá brýnustu nauðsynjum daglegs lífs í at- vinnulífíð. Svo er það um bænd- ur undantekningarlítið. Sömu söguna er að segja frá útvegs- mönnum og má ætla að þeir út- gerðarmenn, sem verulega hafa grætt, svo sem togaraeigendur, láti fjárafla sínn haldast í at- vinnurekstrinum, þó að sums staðar verði raunar misbrestur á, eins og hjá Kvöldúlfi. En hvað líður gróðamönnun- um á verzlunarsviðinu? Hvenær fara þeir að kaupa stóru bréfin hjá stofnlánadeildinni? Hvað lengi á Mbl. að bíða eftir því að mega gleðjast við það, að peningarnir streymi í stofn- lánadeildina frá verzlunarauð- valdinu? Það hefir nú sýnt sig, að þeir, sem mestan hafa þegnskap og mestan áhuga fyrir atvinnu- málum eru ekki mestu peninga- mennjrnir. En það er líka augljóst að það þarf meira að gera, en ná nokkru af sparifé ráðdeildarsamra al- þýðumanna inn í Stofnlána- deildina. Það þarf að ná öllu fjármagni þjóðarinnar, því'sem afgangs er frá hóflegri daglegri neyzlu inn í atvinnulífið. Það er aðalatriði málsins. Sala þessara skulda- bréfa er aðeins litill þáttur í þvi starfi. Undirtektir almennings um kaup þessara skuldabréfa sýna það, að fólkið veit og skilur hvað þarf að gera. Það bendir til þess, að þetta sama fólk, sem leggur nú sparifé sitt í bréf Stofnlána- deildarinnar, hlýtur að samein- ast um ráðstafanir til þess, að beina fjármagni hinna ríku frá einkaeyðslu, óþarfri verzlun og braski inn í atvinnulífið. Sala stofnlánadeildarbréfanna er eins konar skoðanakönnun meðal almennings. Sú skoðanakönnun bendir til þess, að framundan séu frekari ráðstafanir, — ráðstafanir til að hafa skynsamlega og heil- brigða fjármálastjórn. Það þarf líka allra hluta vegna að gera slíkar ráðstafanir, sem fyrst. Annars getur farið svo, að féð, sem lagt er í Stofn- lánadeildina hverfi og tapizt atvinnuvegunum vegna þeirra byrða, sem óviturleg og skamm- sýn stjórn leggur á þá til þjónkunar við braskaravaldið. Viðreisn sjávarútvegsins krefst fórna, en hversu smávægilegar eru þær ekki í samanburði við þær þrengingar, sem eru fram- undan, ef nýsköpunin mistekzt. Kaupið vaxtabréf Stofnlána- deildarinnar og tryggið þar með framgang nýsköpunarinnar. TÍMINN, langardagimt 9. nóv. 1946 206. blað A íuiatfaHcji n Athugasemd Almenna bygging- arfélagsins Hvað hefir Tíminn sagt ósatt? Mbl. slær því fram, að ráða- mönnum Tímans þyki bersýni- lega bezt að segja ekkert satt um fjárhag ríkissjóðs. Þeir kunna að fullyrða Mbl. menn, og ekki bagar þá feimni eða ráð- vendni í frásögnum. Til að sýna mönnum hvorir hér hafa betri málstað, skal nú skorað á Mbl. að nefna eitt at- riði, sem Tíminn hefir farið rangt með í sambandi við ríkis- reikninga Péturs Magnússonar, — bara eitt einasta. Nú er að standa við stóryrðin. Þrír eg níu. Þeir eru að rabba um „nýsköp- unina“ í Mbl. Enn sem fyrr halda þeir því fram, að innflutn- ingnum hafi verið vel stjórnað. „Meginhluti þeirar erlendu inn- stæðu, sem þjóðinni áskotnað- ist á stríðsárunum hefir verið varið til kaupa á nýjum og full- komnum framleiðslutækjum til lands og sjávar,“ segja þeir á fimmtudaginn. Ósköp er nú þetta tregt, að geta aldrei áttað sig á því, að 3 eru ekki meginhlutinn að 12. Skyldu þeir allir hafa hjálpað ritstjórunum við reikninginn, Pétur ráðherra, Jón yfirskoðun- armaður, Gísli formaður, Jóhann Jósefsson og Oddur Guðjóns- son? En hvernig sem þessi reikn- ingur er til kominn gengur fólki illa að fella sig við hann, enda hefir verið kennt i öllum barna- skólum og yfirleitt í heimahús- um að 9 væri meira en 3, — þrisvar sinnum meira. Það er bágt með þessa barna- fræðslu! Sögufölsun í Mbl. Mbl. segir að höfuðverkefni ríkisstjórnarinnar, sem mynduð var 1944 hafi verið „hin stór- fellda nýsköpun i atvinnulífi þjóðarinnar." Gegn því hafi Framsóknarflokkurinn risið. Þetta er sögufölsun og hefir oft verið frá því sagt, að Fram- sóknarflokkurinn beitti sér fyr- ir því öllu saman, sem Mbl. kall- ar nýsköpunarmál, og kom fyrst- ur með tillögu um að þar yrði viðhafður áætlunarbúskapur. Framsóknarflokkurinn hefir síðan stutt hvert gott mál, sem fram hefir komið á þingi og ver- ið óþreytandi að reyna að laga þau og bæta. Hvernig stjórninni fórst. Hins vegar hefir ríkisstjórnin lagt mest kapp á auglýsinga- starfsemi en minnst á skipulag, enda eru innstæðurnar erlend- is búnar, áður en gerð er áætlun um það, hvernig eigi að ráð- stafa þeim og hvaða fram- kvæmdir skuli ganga fyrir. Áhugasamir menn hafa feng- ið að kauþa og panta ný tæki frá útlöndum. En ríkisstjórnin hefir ekki borið gæfu til að skipuleggja þróunina heima fyrir. Og því síður hefir hún gert nokkuð til að tryggja það, að peningamir færu ekki í ó- reiðu og sukk. • Vill Mbl. svara? Framsóknarflokkurinn vildi stöðva dýrtðina 1944 og gera ráðstafanir til þess að islenzk framleiðsla gæti borið sig hjálp- arlaust. Nú viðurkennir Mbl., að það verði að stöðva dýrtíðina. Jafnframt segir það, að hún hafi verið óstöðvandi til þessa. En hvernig ætlar það að stöðva? Hvaða leiðir eru léttari nú en áður til að ná því marki? Vill ekki Mbl. ræða þessi at- riði áður en lengra er farið? Framsóknarstefnan. Nokkur atriði úr stefnu Fram- sóknarflokksins þar sem hann hefir átt undir högg að sækja eru þessi: Ræktun landsins þokist áleið- is svo að heyskapur á véltækum túnum'taki við af engjaheyskap yfirleitt. Þannig stórminnkar framleiðslukostnaður, svo að bændur hafa betri afkomu og selja þó neytendum ódýrai’i mat. Rafstöðvar verði byggðar og mönnum séð fyrir raforku með sambærilegum kjörum, hvar sem þeir búa. Verzlunin verði gerð almenn- ingi ódýrari og hagstæðari. Þar er fyrst að leyfa samvinnuverzl- un eðlilegan vöxt og hvers konar samtökum almennings athafna- frelsi. Byggingarfélög fólksins, samtök útvegsmanna o. s. frv. fái að flytja nauðsynjar sínar inn beint. Fiskifélaginu veröi séð fyrir fjármagni til að stunda rann- sóknir á lífi íslenzkra nytjafiska og gera ýmis konar tilraunir vegna framleiðslu og iðnaðar sjávarafurða. Dýrtíðin verði- stöðvuð, svo að grundvöllur skapist fyrir heil- brigðan atvinnurekstur. Uppbygging atvinnuveganna fari fram samkvæmt áæt'un og sneitt verði hjá sukki og eyðslu í því sambandi. Gjaldeyri þjóðarinnar verði beint að a,tvinnulegri uppbvgg- ingu og menningarlegum fram- kvæmdum frá eyðslu og óhófi. Hávaðamaður. Þjóðviljinn birtir í gær ræðu, sem Halldór Kiljan Laxness flutti á minningardegi bylting- arinnar rússnesku. Er það furðuleg ræða, stóryrðaflaum- ur, en fátæklegt um rök. Þar eru fullyrðingar eins og þær, að við séum ekki lengur sjálfstæð þjóð nema í orði kveðnu, ísland sé flugherstöð Bandaríkjanna, öll mál séu nú hégómi, nema Keflavíkurmálið. Hvað segir Kiljan um sjálf- stæði Póllands og Tékkó.slóvak- íu, að ekki sé minnzt á Eystra- saltsríkin Þurfa þeir yfirbreiðslu? Það er eins og Sósíalistúm finnist.þungt að tala um stjórn sína á innanlandsmálunum og þeir óski sér eftir einhverju til að leiða athygli manna frá þeim. Það er kannske þess vegna, sem þeir reyna að gera Keflavíkur- málið að æsingamáli og útiloka alla rökvísa hugsun frá umræð- um um það. Finnst þeim að þeir þurfi æsingamál til að koma mönnum í uppnám, svo að þeir hætti að hugsa? Tmanum hefir borizt eftirfar- andi athúgasemd frá Almenna byggingafélaginu h. f., í tilefni af skrifum blaðsins um bygg- ingu síldarverksmiðja ríkisins: „Vegna endurtekinna um- mæla í blaði yðar, varðandi þóknun vora fyrir byggingu sldarverksmiðja á Siglufirði og Skagaströnd, viljum vér taka eftrifarandi fram: Það er ranghermi, sem hald- ið er fram í blaði yðar, að þókn- un vor sé miðuð við ákveðinn hundraðshluta af vinnulaunum og að það hafi þ. a. 1. verið hag- ur vor, að verkið yrði sem dýrast. Sannleikurinn er sá, að samið var um ákveðna þóknun, óháða því hver kostnaður yrði, áður en byrjað var á verki. — Er því auðsætt, að það er ekki vor hag- ur, nema síður sé, að verkið yrði sem dýrast. Að öðru leyti skal það tekið fram, að vér teljum það ekki vort hlutverk að svara öðrum atriðum úr blaði yðar varðandi þetta mál. Biðjum vér yður vinsamlega að birta framanskráða leiðréttingu í næsta tölublaði blaðs yðar á jafn áberandi stað og þér völd- uð áðurnefndum ummælum. Virðingarfyllst, pr. pr. Almenna byggingar- félagið h/f. Gústaf E. Pálsson.“ Tímanum er ánægja að því að birta þessa athugasemd, því að sjálfsagt er að hafa það Hugarfarsbreyting. Þjóðviljinn er að tala um hug- arfarsbreytingu hjá Fr.amsókn- armönnum. Það er tilefnishtið, því að Framsóknarmenn hafa jafnan beitt sér fyrir framför- um, þó að þeir hafi jafnan vilj- að gæta þess um leið, að fjár- hagsgrundvöllurinn væri sem traustastur. En ætlar Þjóðviljinn að þræta fyrir hugarfarsbreytingu hjá sínum mönnum? Vill hann t. d. prenta upp athugasemdalaust ummæli Einars Olgeirssonar í kosningabaráttunni 1 vor um Ólaf Thors? í hverju máli, er réttast reyn- ist. Hins vegar hefði það verið skemmtilegra, ef Almenna byggingarfélagið h.f. hefði einn- ig skýrt frá því, hve mikil um- rædd þóknun þess sé. Eining væri æskilegt, ef það vildi upp- lýfh, hvort sá almannarómur sé réttur, að svo hafi verið um- samið, að félagið skyldi sjá um öll efniskaup til bygginganna og að það hafi notað sér þá að- stöðu til að selja efnið bæði með heildsölu- og smásöluálagn- ingu. Jafnvel þótt það hefði ekki notfært sér nema heildsölu- álagninguna, hefði þessi um- boðsstarfsemi þess gefið því góðar tekjur. Sé þessi orðrómur réttur, væri mjög æskilegt að fá upplýst, hve mikill gróði félagsins hefir orðið af þessari sölustarfsemi. Þá myndi sjást, hvort byggingar- kostnaður verksmiðjanna hefði ekki getað orðið verulega lægri, ef byggingarnefndin hefði sjálf annast innkaupin og sparað verzlunarálagninguna. Það er næsta óeðlilegt, að ríkið borgi stórfellda verzlunarálagningu af efni því, sem það þarf til fram- kvæmda sinna, og rýri þannig að óþörfy þá fjármuni, sem var- ið er til framfara. Sú starfsemi, sem hafin var á árunum 1927— 30, að ríkið annaðist sjálft inn- kaup fyrir stofnanir sínar, þarf að færa svo út kyíarnar, að ríkið geti sparað sér óþarfa verzlun- arálagningu af efni, sem notað er til framkvæmda þess. Ritstj. Athugið, að sjálfstæði íslands er mest undir því komið, hvort íslend- ingum tekst að byggja upp heil- brigt atvinnulíf. Takið þátt í því starfi með því að kaupa vaxtabréf Stofnlánadeildarinn- ar. Vaxtabréf Stofnlánadeildar- innar kosta kr. 431,30 í dag, en innleysast með 500 kr. eftir 5 ár. Kaupið þessi bréf og tryggið þar með framtíð yðar og þjóð- félagsins. Alit WiUiams Beveridge: Ástandið í Þýzkalandi er hörmulegt Hinn frægi, enski stjórnmálamaður og mannvinur, William Reveridge, er nýlega kominn heim úr langri ferð um hernáms- svæði Breta í Þýzkalandi. Honum ofbauð sú eymd, sem þar bar fyrir augu, en þó dáist hann að því, hve trúin á betri tíma er lífs- seig hjá hinni aðþrengdu og sigruðu þjóð. Hann dregur ekki dul á það, að honum finnst hernámsstjórnum Bandamanna hafa farizt á margan hátt óhyggilega, og hann leggur til, að nú verði snúið við og búið að þýzku þjóðinni í samræmi við enskar lífs- skoðanir og trú á lýðræði og mannréttindi. Fer hér á eftir inntak þess, sem Beveridge hefir sagt um ástandið í Þýzkalandi. Ég er nýkominn heim úr ferðalagi um hernámssvæði Breta í Þýzkalandi. í Berlín dvaldi ég í tvo daga. Það voru fimm atriði, sem athygli mín beindist sérstaklega að: Eyði- leggingin, hinn hræðilegi skort- ur, furðulegir hæfileikar fólks til þess að laga sig eftir kring- um<stæöunum, hinn rótlausl flækingslýður og vandamálin í sambandi við hann og þau van- hyggindi, að ganga frá friðar- skilmálunum meðan hugir manna eru í uppnámi eftir stríðsárin. Eyðileggingin. Sú eyðilegging, sem dunið hefir yfir hér um bil allar þýzk- ar borgir, er svo ægileg, að í Englandi finnst ekkert, sem nálgast • það að vera sambæri- legt. Það getur enginn gert sér það í hugarlund, nema hann hafi séð Berlín, Kiel eða Ham- borg, svo að ég nefni þrjár borg- ir, sem ég heímsótti. Á margra mílna svæðum eru hrundar byggingar, sem ekki er hægt að gera við, ýmist múrsteinadyngj - ur með skældium og snúnum járnum upp úr eða þaklausar, gólflausar og skörðóttar rústir. í Hannóver bjó áður 400 þúsund manns. Þar eru 65 hús af hverju hundraði svo illa leikin, að ekki verður við þau gert, og virðist mér Hannóver þó hafa sloppið miklu skár en hinar borgirnar þrjár, sem ég hefi nefnt hér. Sumar borgir aðrar, eins og til dæmis Köln, eru þó sagðar enn verr farnar. Neyðin. Allar lífsnauðsynjar, svo sem matur, húsnæði, eldsneyti og fatnaður eru af svo skornum skammti, að fólk getur ekki varðveitt heilsu sína. Allt æti- legt er skammtað, og næringar- gildi þess, sem fullorðnu fólki er ætlað, er meira en helmingi minna en nauðsynlegt er til þess að viðhalda líkamshreystinni. Ég sá börnum úthlutað sojabauna- súpu í skólamatsal. Þau fengu ekkert annað en súpuna, sem útbýtt var um hádegið — ekki einn einasta brauðbfita. Fæst þeirra fengu morgunmat nema tvisvar eða í hæsta lagi þrisvar í viku, dagana, sem brauð- skammtinum var útdeilt. Þótt hörmulega sé ástatt um matinn, er þó enn verra urn húsnæði, þar sem áður bjuggu þar 1,700,000. Fjölmörg þeirra húsa, sem þó eru talin íbúðar- hæf, eru stórlega sködduð, rúðulaus og þar fram eftir göt- unum. Tugþúsundir manna búa í gluggalausum sandpokabyrgj - um, sem notuð voru sem skýli í loftárásum stríðsáranna. Þetta fólk lifir við svipuð „húsakynni“ og hellisbúar á steinöldinni. í þessum byrgjum er fólki hrúgað saman. Fletin eru í röð- um og hvert upp af öðru eins og rúm er til og svo þröngt á milli, að tæplega er unnt að smjúga milli þeirra. Þarna verður fólk að hafast við í myrkri og fýlu alla tíma dagsins, sem það er ekki við vinnu, því að það á hvergi annars staðar athvarf. Við þetta verður það að sætta sig mánuð efir mánuð. Áþekk byrgi eru sums staðar notuð fyrir sjúkrahús og þar deyja berklasjúklingarnir í hrönnum í myrkrinu, ýmist dragast upp á löngum tíma eða sálast á fá- um dögum. Ekkert eldsneyti síðastliðinn vetur. Síðastliðinn vetur var engu eldsneyti úthlutað til heimilis- nota, og eins verður það á þess- um vetri, ef ekki á sér stað stefnubreyting hjá hernáms- yfirvöldunum. Allir sjá, hvaða afleiðingar það hefir í för með sér, þar sem beztu íbúðirnar eru yfirleitt rúðulausar og þökin harla léleg. Klæðnaðurmn er hörmulega lélegur. Skólabörn eru annað hvort alveg berfætt eða um fæt- ur þeirra er vafið hinum furðu- legustu druslum. Þegar vetur leggst að oé snjóar koma, kom- ast börnin ekki lengur í skólann til þess að neyta þessarar einu máltíðar, sem þau fá. ! Húsnæðisleysið er eitt alvar- legasta vandamálið í Þýzka- landi. Margir, ef til vill flestir, fá einhverjar matarsendixagar frá frændum og vinum, sem búa úti í sveitunum. Þangað flykk- ist fólk líka í vón um að fá satt hungur sitt, og það er ein af orsökum þess, hversu námur og verksmiðjur eru afræktar. En þótt matarskorturinn dragi á- reiðanlega stórlega úr vinnu- þreki manna og lífsorku, eru þó færri, sem misst hafa heilsu sína fyrir fullt og allt af þeim sökum. Það er fyrst og fremst húsnæðisleysið, sem hefir or- sakað þann heiftarlega berkla- faraldur* sem ekki verður kveð- inn niður nema á löngum tíma. Auðvitað er sú tortíming, sem Bandamenn hafa valdið í Þýzka- landi, miklu ægilegri en öll her- virki Þjóðverja í öðrum löndum. Ef til vill má segja, að Þjóðverj- ar hafi þurft að kynnast því, hvað það var að heyja stríð í landi sínu. Sennilega hefir þó

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.