Tíminn - 23.11.1946, Síða 1

Tíminn - 23.11.1946, Síða 1
RITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARIN8SON ÚTOEPANDI: FRAM8ÓKN ARFLOKKURINN Slmar 33SS o« 4S7S PRENTSM3ÐJAN EDDA hJ. RITSTjORA8KRrPSTOFDR EDD'JI SI Ll»<i .rgðtu B A Stmar 236S Jg 4371 APGREIÐ8LA, XNNHETMTA OG ADQLÝSINQASKI :LPSTOPA EDDDHÚSI. Lli rtargötu BA 31ml 2838 30. árg. Reykjavík, laugardaglim 23. nóv. 1946 216. blað Félagsmenn í Ferðafélagi Islands hafa tvötaldast á fimm árum Starfsemi félagsins hin myndarlegasta Aðalfundur Ferðafélags islands var haldinn fyrir nokkru. Á fundinum voru gefnar margar upplýsingar um starfsemi félags- ins, en það hefir verið hið athafnasamasta á undanförnum ár- um. Á þriðja þúsund manns hafa tekið þátt í sumarleyfisferð- um félagsins tvö undanfarin sumur og félagið hefir nýlega reist sjöimda sæluhús sitt, sem er við Snæfellsjökul. Árbók seinasta árs, sem fjallar um Heklu, er nýkomin út, en árbók þessa áres, sem fjallar um Skagafjarðarsýslu, kemur út bráðlega. Aðalfundur Framsókn arfélags Kjósarsýslu Framsóknarfélag Kjósarsýslu hélt aðalfund sinn í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag. Mættir voru fulltrúar úr flestum hrepp- um Gullbringu- og Kjósarsýslu ofan Hafnarfjarðar. Rætt var um eflingu flokksstarfseminnar á þessu svæði og stjórnmálavið- horfið. í stjórn félagsins voru kjörnir: Björn Konráðsson ráðsmaður á Vífilsstöðum, formaður, Sigurð- ur Jónsson skólastjóri Mýrar- húsum, ritari og Jónas Björns- son bóndi í Norður-Gröf á Kjalarnesi, gjaldkeri. Kom hann i stjóirnina í stað Klemensar Jónssonar oddvita, Skógtjörn, er baðst undan endurkosn- ingu. Þá voru og kosnir sex fulltrú- ar til þess að mæta fyrir hönd 'auk Fjallamanna félagsins á flokksþingi Fram- sóknarmanna, sem hefst í Reykjavík 28. nóvember næst- komandi. Þessir hlutu kosningu: Gísli Guðmundsson bóndi íra- felli Kjós, Jónas Björnsson bóndi Norður-Gröf' Kjalarnesi, Björn Birnir hreppstjórí Graf- arholti, Sigurður Jónsson skólastjóri Mýrarhúsum, Klem- ens Jónsson oddviti Skógtjörn Álftanesi, og Björn Konráðsson ráðsmaður Vífilsstöðum. Fimm togarar seldir úr landi Á einu ári hafa nú verið seld- ir fimm togarar úr landi. Fyrst var b.v. Þorfinnur seldur til Færeyja fyrir áramót. Skömmu eftir áramótin var b.v. Rán seldur, en síðan hafa Karlsefni, Kári og nú síðast Geir verið seldir úr landi. íslendingar eiga því nú ekki eftir nema 25 tog- ara. ERLENDAR FRETTIR Úrslit þingkosninganna I Rúmeníu, sem fóru fram á sunnudaginn, urðu þau, að stjórnarflokkarnir fengu 348 þingsæti, en stjórnarandstæð- ingar 66 þingsæti. Stjórnarand- stæðingar telja sig hafa verið beitta ýmsu ofbeldi. Alvarleg deila er risin milli Albaníumanna og Breta. Fyrir nokkru rákust brezkir tundur- spillar á tundurdufl á Korfu- sundinu og varð nokkurt mann- tjón. Bretar hafa síðan látið slæða sundið, þrátt fyrir mót- mæll Albaníumanna, og hafa þelr fundið nýlegar tundur- duflalagnir. Þykir vist, að hér hafi Albanlumenn verið að verki, en óheimilt er að leggja tundurdufl án þess að tllkynna það öðrum þjóðum. Forseti félagsins, Geir Zoéga, vegamálastjóri, gaf skýrslu um störf félagsins á starfsárinu, sem náði frá maí 1945 til maímán- aðar þessa árs. í skýrslu sinni gat hann þess, að 30 skemmti- ferðir voru farnar í fyrrasumar, þar af 8 sumarleyfisferðir, og var þátttakendafjöldinn í þeim samtals 1129. Alls greiddi félag- ið 129 þús. kr. í ferðakostnað á sumrinu, en hagnaður af ferð- unum nam 1150 kr. Til samanburðar má geta þess, að í sumar efndi félagið til 35 ferða, þar af 6 sumarleyfisferða, með samtals 1067 þátttakend- um. Greiddar voru 118 þús. kr. í ferðakostnað, en hagnaður af ferðunum nam rúml. 750 kr. Vegalengd ferðalaganna í sum- ar var samanlögð rúml. 15 þús. km., eða sem svarar tæplega hálfri leið umhverfis hnöttinn. Félagatalan er nú 6051. Á s.l. 5 árum hefir félagatalan tvö- faldazt. Félagadeildir eru á Akureyri, Húsavik og í Vestmannaeyjum, í Reykjavík. Deildirnar fá árbækurnar fyrir hálfvirði. Sæluhús á F^rðafélagið nú við Hvítárvatn, í Þjófadölum, á Hveravöllum, í Kerlingarfjöll- um, á Kaldadal, við Hagavatn og loks nýbyggt hús við Snæ- fellsjökul. Var það byggt í sum- ar, og mun hafa kostað um 40 þús. kr. Aðalgjaldaliður félagsins er, auk ferðalaganna, kostnaður- inn við útgáfu Árbókarinnar. Hin nýútkomna Heklubók mun hafa kostað um 80 þús. kr. Með (Framhald á 4. slðu) Vínveitingar á kostnað ríkisins og ríkisstofnana verði afnumdar -Q Konur annast löggæzlustörf Smíöisgallar á sænsku bátunum Nýlega voru lagðar fram á fundi Sjávarútvegsnefndar bæj- arstjórnar Reykjavíkur mats- og skoðunargerðir, gerðar af Þorsteini Daníelssyni og Vil- bergi Guðmundssyni, á Svíþjóð- arbátum Sigurðar Eyleifssonar, Ingvars Vilhjálmssonar, Haf- steins Bergþórssonar og Ágústs Snæbjörnssonar, en samkvæmt mati þeirra eru vanefndir og smíðagallar á skipunum frá kr. 25.700.00 upp í kr. 49.300.00 á bát. Sjávarútvegsnefndin sam- þykkti að senda Ólafi Sigurðs- syni afrit af matsgjörðunum til athugunar, og tilkynna honum, að þær verði sendar stjórnar- ráðinu með beiðni um, að það hlutaðist til um, að þær yrðu settar fram sem grundvöllur fyrir skaðabótakröfum á hend- ur skipasmíðastöðvunum, sem gerðar yrðu til þeirra, í samráði við Ólaf Sigurðsson, fyrir van efndir. Ólafur hefir siðan skýrt frá þvl í samtali við fulltrúa bæj- arlns, að ekkert væri hægt að gera í þvi máli úti, þar eð búið væri að ganga frá öllu þar, varðandi frágang bátanna. Ef (Framhald i 4. tiðu) Kvenlögregluþjónum fer stöðugt f jölgandi í London. Hér á myndinni sést kvenlögregluþjónn vera að stjórna umferðinni á frægasta torgi borgarinn- ar, Trafalger Square. Náttúrulækningafél. kaupir Gröf í Hrunamannahreppi Félagið ætlar að reka þar heilsuhæli Náttúrulækningafélagið boðaði blaðamenn á sinn fund í gær og skýrði þeim frá því að félagið hefði keypt jörðina Gröf í Hrunamannahreppi og ætlar það að reka þar heiisuhæli. Fer hér á eftir greinargerð frá félagsstjórninni fyrir kaupunum: Undanfarin ár heíir neínd innan Náttúrulækningafélags íslands (NLFÍ) verið á hnotskóg eftir hentugum stað fyrir vænt- anlegt heilsuhæli félagsins. Hefir stjórn félagsins nú, að fenginni heimild félagsfundar, fest kaup á jörðinni Gröf í Hrunamannahreppi. Gröf er vel í sveit sett, norðan við Minni-Laxá, um 105 km. frá Reykjavík. Jarðirnar Högna- staðir og Hvammur eru byggðar úr Grafarlandi, en þó er land- rými nóg og yfirfljótanlegt til þeirra hluta, sem félagið ætlar hana til. Tún er véltækt, stór mýrarfláki liggur vel við upp- þurrkun og ræktunarmöguleik- ar hinir ágætustu, bæði til garðræktar og túnræktar. Byggingarskilyrði eru hin beztu, ágæt leikvalla- og skrúðgarða- stæði, sundhylir í ánni og skjól- gott í kring. Þarna austur eru áætlunar- ferðir frá Reykjavík árið um kring, oft í viku að sumrinu, og samgöngur teppast nær aldrei af völdum snjóa eða ófærðar. Og þá er ótalinn höfuðkostur jarðarinnar, heita vatnið, sem sprettur þarna upp, 100 stiga heitt, eitthvað milli 20 og 25 lítrar á sek. og tilheyrir fyrr- nefndum jörðum þremur. En óhugsandi væri að reisa hælið, þar sem ekki er nóg af heitu vatni til upphitunar, í böð og í gróðurhús, vermireiti o. s. frv. Nýtt og vandað fjós er á jörð- inni fyrir 12 kýr. En bæjarhús eru gömul og léleg og ráðgert að byggja þau upp á næsta ári. Kaupverð jarðarlnnar er 100 þús. krónur, auk 20 þús. kr. fyrir Rauða Krossinum ber'st vegleg gjöf Charles Manning yfirforingi bandaríska sjóliðsins, sem hér var, hefir afhent Rauða Krossi íslands að gjöf allar lyfja- og umbúðabirgðir sjóliðsins, sem eftir voru hér á landi er sjóliðið fór. Hefir yfrforinginn óskað eftir því, að Rauði Krossinn deili birgðum þessum milli helztu sjúkrahúsa landsins. Ráðherrum og þingforsetum verði ekki veittur afsláttur á áfengisverðinu Skúli Guðmundsson hefir nýlega Iagt fram í sameinuðu þingi tillögu til þingsályktunar um „að Alþingi feli ríkisstjórninni að hlutast tii um, að áfengir drykkir verði ekki veittir á kostnað rík- isins eða ríkisstofnana, og afnema þá venju. er gilt hefir, að einstaka menn fái keypt áfengi hjá áfengisverzlun ríkisins fyrir lægra verð en aðrir viðskiptamenn verzlunarinnar þurfa að borga.“ í greinargerð fyrir tillögunni* segir: „Flestir æðstu valdamenn hér á landi, sem halda veizlur á kostnað ríkisins, hafa þar vín á boðstólum handa gestum sínum. Munu þeir telja, að eigi sé sæmi- legt að halda slíkar veizlur eða samkvæmi, án þess að áfengir drykkir séu þar á boðstólum. Þó má^finna dæmi þess, að veizlur hafa verið haldnar án þess að áfengi væri veitt. Má þar nefna hátíðarveizlu ríkisins á Þing- völlum árið 1930, sem þáver- andi forsætisráðherra, Tryggvi Þórhallsson, veitti forstöðu. Það dæmi ætti að nægja til að sanna, að þau samkvæmi, sem haldin eru án vínveitinga, eru virðu- legust og með mestum menn- ingarbrag. Hér er lagt til, að hætt verði með öllu að veita áfengi á kostn- að ríkisins og ríkisstofnana, þar sem vínveitingar af hálfu þeirra aðila verða að teljast óviðeig- andi. Ef æðstu embættismenn og valdamenn í þjóðfélaginu hætta að veita vín í veizlum og samkvæmum, má vænta þess, að margir aðrir tækju þá sér til fyrirmyndar I því efni, og gæti sú ákvörðun þannig haft allvíð- tæk áhrif í þá átt að draga úr áfengisneyzlunni. Þá er í öðru lagi lagt til, að sú regla verði afnumin að selja einstökum mönnum vín frá áfengisverzlunjnni fyrir lægra verð en almennt gildir á hverj- um tím*. Ráðherrar hafa notið þeirra fríðinda að fá áfengi toll- frjálst og án verzlunarálagning- ar, og forsetar Alþingis einnig, þó með einhverjum takmörkun- (Framhald á 4. siðu) Verður hafist handa um selveiðar í stórum stíl? Fyrir hálfum mánuði var stofnað hér i bænum félag, sem hyggst gera út skip til selveiða. Félagið hefir nú að undan- förnu auglýst eftir heppilegu skipi til að stunda selveiðarnar. gróðurhús, sem var eign ábú- ana. í heilsuhælissjóði félagsins var ekkl nægilegt fé til þess að inna af hendi nauðsynlegar útborganir. En nokkrlr velunn- arar félagsins hlupu undir bagga svo að það yrði ekki af kaupunum, sem að allra dóml eru hagstæð, ekki sízt með tilliti (Framhald á 4. tíðu) Flokksþingið Attunda flokksþing Fram- sóknarmanna v^rður sett að Hótel Borg næstkomandi fimmtudag kl. 2 e. h. Þann dag og hinn næsta verða framsögu- ræður og umræður uni þær. Horfur eru á að flokksþingið verði mjög fjölmennt og sótt ór öllum byggðum landsins. Sumir fulltrúarnir eru þegar komnir til bæjarins. Flestir koma þó ekki fyr en um iniðja næstu viku. T. d. kemur Esja að austan á miðvikudaginu og með henni verða fulltrúar af Austurlandi og úr A.-Skapta- fellssýslu. Fundir þingsins verða aðal- lega að Hótel Borg og í Mjólk- urstöðinni. Gert er ráð fyrir, að því Ijúki með skilnáðathófi að Hótel Borg þriðjudaginn S. desember, þar sem jafnframt verður minnst 30 ára afmælis flokksins. FuIItrúr|nir eru vinsamlega beðnir að hafa samband við skrifstofu Framsóknarflokksins f Edduhúsinu við Lindargötu (síml: 6066) jafnóðum og þeir koma í bæinn. Aðflutningsgjald á vélbátura verði endurgreitt Tillaga frá Eysteini Jónssyni og Pétri Ottesen Eysteinn Jónsson og Pétur Ottesen hafa fyrir nokkru flutt þingsályktunartillögu í samein- uðu þingi þess efnis, „að ríkis- stjórninni sé falið að endur- greiða aðflutningsgjöld af vél- bátum þeim, sem fluttir hafa verið til landsins eftir styrjöld- ina“. í greinargerð fyrir tillögunni segir: Allmargir vélbátar hafa verið fluttir til landsins eftir styrj- öldina. Aðfiutningsgjöld af bát- um eru talsvert tilfmnanleg, og nú er svo á^tatt, að margir þeirra, sem flutt haía bátana inn, eiga fullt 1 fangi með að standa undir stofnkostnaði. Aðflutningsgjald af bátum er sennllega 1 öndverðu sett til þess að veita islenzkum bátasmíðum (Framhald i 4. síðu) Koma héraðabönn til framkvæmda? Tillaga frá þingmönnum úr öllum flokkum þingsins Fjórir þingmenn, sem eru úr öllum flokkum þingsins, hafa nýlega lagt fram í sameinuðu þingi tillögu til þingsályktunar um „að Alþingi feli ríkisstjórn- inni að láta lög nr. 26 frá 1943, um héraðabönn, koma til fram- kvæmda eigi síðar en frá 1. júlí 1947“. Þessir þingmenn eru: Hannibal Valdimarsson, Pétur Ottesen, Sigfús Sigurhajartar- son og Skúli Guðmundsson. í greinargerð fyrir tillögunni segir m. a.: „Þó að ílutningsmönnum sé það vel ljóst, að engu lokamarki sé náð í baráttunni gegn áfeng- isbölinu með héraðabönnum einum, þá telja þeir vonir standa til, að með því móti mundi draga verulega úr almennri á- fengisneyzlu á þeim svæðum, sem þær ráðstafanir næðu til. Þegar reynsla fengist svo af því, að héraðsbann hefði orðið til bóta á einhverjum stað, mætti ætla, að önnur héruð eða aðrir landshlutar færu i kjölfarið og afnæmu hjá sér útsölustaði á- fengis með meirihlutaákvörðun kjósenda. Á þennan eðlilega hátt gætu héraðabönn smám saman stefnt að lokamarkinu: algeru aðflutningsbanni áfengis." í niðurlagi greinargerðarinn- ar segir: „Það má vissulega ekki drag- ast lengi úr þessu, að Alþingi geri ráðstafanir til að draga (Framhald á 4. siðu)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.