Tíminn - 30.11.1946, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.11.1946, Blaðsíða 1
RIT8TJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARIN8SON OTGKPANDI: FRAMSÓKN ARFLOKKTJRINN 8ímar 33SS og 4371 PRENTSMIÐJAN EDDA hS. RITSTJORASKRIP8TO PT! h EDC’I! SI L.li '' rtrðtTi » • Slmar 235J « «m APGRETÐSLA INNHF.IM OG ADGLÝSINOASF EDDDHU8I LL larjröti. * r 31ml 2323 30. árg. Reykjavík, laugardaginn 30. nóv. 1946 331. blað Frystihúsin geta ekki starfað á næsta ári að óbreyttum að- stæðum Ályktun aukafundar í Sölumlðstöð hrað- frystihúsanna Dagana 14.—16. þ. m. var haldinn aukafundur í SölumiðstöS Hraðfrystihúsanna. Á fundinum voru mættir um 50 fulltrúar frá hinum ýmsu hraðfrystihúsum í Sölumiðstöðinni. Á fundinum var rætt um ýmis mál, sem varða Sölumiðstöð- ina innbyrðis, um afstöðu hraðfrystihúsanna til annarra fram- leiðslugreina í sambandi við afurðasöluna, um óráðstafaðar eftirstöðvar af þessa árs framleiðslu og um framleiðslu og sölu- horfur á næsta ári. Á fundinum var upplýst, að þann 1. þ. m. voru í landinu 4000 smál. af hraðfrystum fiski á vegum Sölumiðstöðvarinnar. Nokkrum hluta af þessum fiski hefir þegar verið ráðstafað og ekki ástæða til að óttast um sölumöguleika á þeim hlutan- um, sem enn er óseldur. 4000 smál. eru um það bil 15% af heildarframleiðslu ársins. Eftirfarandi tillögur voru samþykktar: Verði ekkert verulegt magn af væntanlegri framleiðslu frysti- húsanna 1947 selt fyrirfram um næstu áramót, en allt útlit fyrir stórfellda hækkun hráefnis og annars framleiðslukostnaðar, ályktar aukafundur S. H. hald- inn i Reykjavík 14.—16. nóvem- ber 1946, að ekki séu skilyrði fyrir hendi hjá frystihúsunum að hefja framleiðslu á’næsta ári, nema að tryggður sé eigi lakari starfsgrundvöllur fyrir framleiðslu þeirra en var í árs- byrjun 1946. Fundurinn felur stjórn fé- lagsins að vinna að því, að svo geti orðið og neyta til þess allra ráða, er hún telur nauðsynleg. Ennfremur kýs fundurinn 3ja manna nefnd, er starfi með stjórn félagsins í þessum mál- um. Fundur S. H. samþykkir að fara þess á leit við bíinkana, að frystihúsin fái lánað út á fram- leiðslu ársins 1947 hæfileg rekstrarlán og ekki minna, en % hluta af söluverði, eða ef sala hefir ekki farið fram, þá af á- ætluðu söluverði, svo að þau geti þess vegna framleitt við- stöðulaust. Fáist bankarnir ekki til að lofa þessu verði leitað að- stoðar ríkisvaldsins. Aukafundur S. H. 15./11. 1946 samþykkir að heimila stjórn- inni, ef hún telur það nauð- synlegt, að leigja flutningaskip til flutninga á framleiðslu fé- lagsmanna. Aukafundur S. H. haldinn í Reykjavít 15./11. 1946 samþykk- ir að fela stjórninni að athuga nákvæmlega tilboð, sem borizt hefir frá Skoda-verksmiðjunum í Prag, um byggingu á kæliskipi til flutninga, á fljótum Mið- Evrópu. Fundurinn skorar á stjórn'S. H. að gangast fyrir heildar- samningum fyrir allt landið, við Alþýðusamband íslands, um vaktaskipti í hraðfrystihúsum meðlima S. H. Ari'.afundur S. H. hinn 16./11. 1946 samþykkir að skora á Al- þingi og ríkisstjórn að sjá um, að frystihúsin fái nægileg lán til nýbygginga, aukninga og endurbóta, samkvæmt meðmæl- um Nýbyggingarráðs, og það svo snemma að framkvæmdir drag- ist ekki að óþörfu. Aukafundur S. H. hinn 16. nóvember 1946 skorar á ríkis- stjórnina að breyta lögum um gjaldeyrisverzlun þannig, að hraðfrystihúsaeigendur fái um- ráðarétt yfir þeim gjaldeyri, er þeir afla. ERLENDAR. FRÉTTIR Umræður eru nú hafnar í stjórnmálanefnd sameinuðu þjóðanna um afvopnunartillög- ur Molotoffs. Molotoff hefir nú bætt við þeirri viðaukatillögu, að sérstök n^fnd skuli hafa með hendi eftirlit til tryggingar því, að afvopnunarsamþykktum sé framfylgt. Bretar hafa lýst sig samþykka tillögum Molotoffs í aðalatriðum. Utanríkisráðherrafundurinn hefir einkum rætt um Dónár- málin síðan samkomulag náð- ist um Triestemálið. Líklegt þyk- ir, að samkomulag hafi náðst um, að sérstök ráðstefna verði haldin um Dónármálin. Stjórn Bidaults baðst lausn- ar, þegar nýja þingið kom sam- an til fundar i fyrradag. Sjómenn mótmæla gjaldeyriseyðslunni Á stjórnarfundi Farmanna- og fiskimannasambands íslands, sem haldinn var 17. þ. m., var eftirfarandi tillaga samþykkt: „Stjórn Farmanna- og fiski- mannasambands íslands skorar á hæstvirta ríkisstjórn íslands, að gera hið bráðasta ráðstafanir til þess, að strangt eftirlit sé haft með útflutningi varnings úr landi, sem er af erlendum uppruna og keyptur fyrir doll- ara. Má þar tilnefna tóbaksvörur, silkivarning og alls konar vefn- aðarvöru. Það er, að áliti stjórnar F.F. S.í. engu síður nauðsynlegt að eftirlit sé haft með útflutningi varnings, en innflutningi. Stjórn sambandsins leyfir sér að átelja það stjórnleysi sem lýsir sér í því, að sala áður nefnds varnings skuli eiga sér stað, takmarkalaust til hvers, sem hafa vill, og honum svo smyglað út úr landinu, oft und ir fölsku yfirskyni gjafapakka. Það er vitað, að erlendir menn, sem dvelja hér á landi við ým- isleg störf, yfirfæra á þennan hátt laun sín, langt ffam yfir það, sem leyfilegt er.“ Nokkur ný mænuveik- istilfelli í Reykjavík Nokkur ný mænuveikitilfelli hafa bætzt við hér í bænum í þessari viku, en enginn hefir látizt af veikinni frá því til- kynning héraðslæknis var gefin út. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið fékk hjá héraðslækni í gær, leggst veikin nokkuð mis jafnlega þungt á fólk og visast til fyrri aðvarana héraðslæknis um varúðarreglur og varnir gegn veikinnL Flokksþing Framsóknarmanna Umræður um nefndarálit hefjast í dag -------------------------- s I gær voru mættir um 300 fulltrúar MISTÖK IIEjMIY FORDS Ameríski bílakóngurinn Henry Ford hafði á sínum tíma meiri trú á loft- förum en flugvélum. Til að sanna trú sína í verki, reisti hann móttöku- turn fyrir loftskip. Turn þessi var ekkert smásmiði, því að hann var 224 feta hár og vóg um 125 smál. Verk þetta reyndist hins vegar unnið fyrir gýgt því að aðeins eitt loftfar hefir lent við turninn. Fyrir nokkru síðan var ákveðið að rifa hann og var meðfylgjandi mynd tekin, þegar turninn var felldur til jarðar. Viðstaddir voru um 3000 áhorfendur og var Henry Ford einn þeirra. Reisir ríkið landshöfn og fisk- iðjuver í Höfn í Hornafirði? Frv. frá þingmönnum Austfirðinga Þrír þingmenn Austfirðinga í efri deild, Ásmundur Sigurðsson, Páll Zóphóníasson og Lárus Jóhannesson, hafa nýlega lagt fram frv. um landshöfn og fiskiðjuver ríkisins í Höfn í Hornafirði. Frv. er stutt af öðrum þingmönnum Austfirðinga, en samkomulag var um að leggja það fram í efri deild. í dag kl. 2 síðdegis hefjast umræður á fiokjtsþingi Framsókn- armanna um nefndarálit og tillögur. f gær var ekki fullráðið, hvaða mál verða tekin fyrst, en nefndarstörf hófust kl. 5 og héldu áfram í gærkveldi. Einnig munu nefndir starfa fyrir hádegi í dag, og munu þær reyna að ljúka þá störfum sínum. Aðalefni frv. er: * Ríkissjóður lætur gera á sinn kostnað hafnarmannvirki í Höfn í Hornafirði. Skulu tak- mörk hafnarinnar ákveðin 1 reglugerð. Ráðherra ákveður gerð og fyrirkomulag hafnarinnar 1 samráði við vitamálastjóra. Til hafnarmannvirkja teljast: Hafnargarðar, hafskipa- og bátabryggjur, verbúðir, dýpkan- ir, uppfyllingar, dráttarbrautir, vélar o. fl., sem nauðsynlegt má teljast við byggingu og rekstur hafnarinnar. Til greiðslu kostnaðar hafn- armannvirkja er ríkisstjórninni heimilt að taka lán fyrir hönd ríkissjóðs, allt að 2 milj. kr., er endurgreiðist að % úr hafnar- sjóði. Skal miða hafnargjöld á hverjum tíma, eftir því sem fært þykir, við það, að tekjur hafnarinnar nægi til þess að greiða vexti og afborganir af % hlutum stofnkostnaðarins auk árlegs rekstrarkostnaðar. Þá skal og rikisstjórnin láta reisa í Höfn í Hornafirði fisk- iðjuv/r, er fullnægi væntanlegri þörf bátaflotans. Skulu afköst og vinnutæki vera allt að því er hér segir: Hr/.ðfrys/ihús er hraðfrystir 30 tonn af flökum, og niður- suðuverksmiðja, er getur soðið niður 10 tonn, hvort tveggja miðað við 8 tíma vinnslu. Þá skulu og í fiskiðjuverinu vera fiskimjölsverksmiðja og lifrar- vinnslustöð, er nægi til að vinna úr öllum fiskúrgangi og lifur, er til fellst. Ennfremur skal í fiskiðjuverinu vera aðstaða til að salta g,Han þann fisk, sem vinnslustöðvarnar geta ekki unnið úr, þegar mikið berst að. Til þess að standast kostnað við byggingu þessa fiskiðj uvers er ríkisstjórninni heimilt að taka lán íyrir hönd ríkissjóðs, allt að 4 milj. kr. Aðalfundur Þjóðvarn- arfélagsins • Þjóðvarnarfélagið hélt fram- haldsaðaifund sinn s.l. þriðju- dag, en félagið var, sem kunn- ugt er, stofnað þegar flugvall- arsamningurinn var á döfinni í haust og er markmið þess að vinna að verndun íslenzkra landsréttinda og efla þjóðlega ^amheldni. Hákon Bjarnason, fráfarandi formaður, skýrði frá störfum fé- lagsiss frá stofnun j/ess, en það hefir gefið út 3 tbl. af blaðinu Þióðvörn. Var 1. tbl. gefið út í 20 þús. eintökum og er nú upp- *elt. Þá gekkst Þjóðvarnarfé- ’agið einnig fyrir útifundi, á- ^amt alþýðusambandinu, til þess að krefjast þjóðaratkvæða- greiðslu um flugvallarsamning- inn við Bandaríkin. Nokkrar breytingar voru gerð- ar á lögum félagsins og var bætt inn í þau langri gr. sem fjallar um að treysta grundvöll íslenzka lýðveldisins með því að vinna á móti óhollum áhrifum herset- unnar og gegn hvers konar spillingu innanlands 1 fjármál- um og stjórnmálum, og efla þegnskap landsmanna gagnvart föðurlandinu. Á aðalfundinum baðst fráfar- andi formaður, Hákon Bjarna- son, undan endurkosningu og var sr. Sigurbjörn Einarsson kosinn formaður. í stjórn félagsins voru kosnir: Sr. Sigurbjörn Einarsson, for- maður, Hákon Bjarnason, Aðal- björg Srvurðardóttir, Sigríður Eiríksdóttir, Gísli Indriðason, Jón Jóhannesson og Jakob Sig- urðsson. AÐALFUNDUR stjórnar S. U. F. Aðalfundur stjórnar Sam- bands ungra Framsóknarmanna hefst að Hótel Borg í dag kl. 10 f. h. Stjórnarmenn sambandsins eru nær allir staddir hér í bæn- um í sambandi við Flokksþing Framsóknarmanna. Eftir að fundurinn hefir verið settur í dag, mun Jóhannes El- íasson, formaður sambandsins, flytja skýrslu framkvæmda- stjórnarinnar. Að ræðu for- manns lokinn verður kosið í nefndir. Fundurinn í dag mun standa frá kl. 10—12. Aðalfund- inum mun ekki ljúka fyrr en á þriðjudag. í stjórn S. U. F. eiga sæti einn fulltrúi úr hverju kjördæmi landsins, auk fimm manna framkvæmdastjórnar í Reykja- vík. Stúlkur eiga ekki að dansa við drukkna 0 Fundir flokksþingsins hófust kl. 10 f. h. í gær og var Jörund- ur Brynjóhsson alþm. þá fund- arstjóri. Á þessum fundi flutti Eysteinn Jónsson, erindi um flokksstarfið frá seinasta flokks- þingi og úrslit seinustu kosn- inga. Að loknu erindi hans var matarhlé. Fundur hófst aftur kl. 2 e. h. og flutti Eysteinn Jónsson þá erindi um blaðamál flokksins. Að lokinn ræðu hans urðu um- ræður og tóku margir til máls. Kl. 5 í gær hófust nefndar- störf, eins og áður er sagt, og héldu þau áfram í gærkvöldi. Reynt verður að ljúka þeim fyrir hádegi í'dag. Þingfundur hefst svo kl. 2 e. h. og verður hann haldinn í samkomusal Mjólkurstöðvar- innar. Hann mun standa til kl. 6 og verða rædd þar álit nefnda og tillögur. Á morgun hefst fundur kl. 2 og verður hann í samkomusal Mjólkurstöðvarinnar. Þar verð- ur haldið áfram umræðum um nefndarálit og tillögur. Á mánudaginn verða fundir að Hótel Borg kl. 10—12 f n. og kl. 1.30—6 e. h. Á þessum fund- um fara fram kosningar og um- ræður um nefndarálit. Um kvöldið verður fundur í Breið- firðingabúð. menn Stúlkurnar úr Kvennaskól- anum við Fríkirkjuveg hafa gert með sér samþykkt um að neita að dansa við drukkna menn og þær skora á allar ungar stúlkur að taka upp þennan sið. Sam- þykkt stúlknanna var á þessa leið: „Skólafundur námsmeyja Kvennaskólans í Reykjavík er haldinn var þann 15. nóvember 1946, beinir þeirri áskorun til allrar skólaæsku í landinu, að vínveitingar verði ekki leyfðar á skólasamkomum. Ennfremur lýsa þær yfir, að þær munu neita að dansa við drukkna menn, og mælast til, að allar stúlkur taki upp þann sið.“ Ófærð á Hellisheiði í fyrrinótt stöðvaðist umferð um Hellisheiði vegna snjóa. Mjólkurbílar lentu í erfiðleik- um á leiðinni suður í gærmorg- un og töfðust, þannig að þeir fyrstu komust ekki til bæjarins fyrr en á hádegi. Úr því var leið- in fær bílum í gær og verður það svo framarlega sem ekki snjóar. Mænuveiki í Mýrdal Fyrir skömmu kom upp mænuveiki i Mýrdal. Veiktist sonur bóndans á á Ketilsstöðum mjög hastarlega Varð hann snögglega veikur og lagðist sóttin svo þungt á hann að hann mun allur hafa lam- ast, og lézt hann skömmu síðar. Ekki hefir enn vitnazt um fleiri tilfelli í MýrdaL Afmælishátíð. Á þriðjudaginn hefst fundur kl. 10 og verður hann að Hótel Borg. Ætlunin er að ljúka þá störf>un þingsins, en jim kvöldið verður haldið skilnaðarhóf að Hótel Borg og verður þar sér- staklega minnzt afmælis flokks- ins. Þeir floisksmenn, sem ekki eru fulltcúar, en vilja sækja þessa samkpmu, þurfa að panta að- göngwmiða og gera það sem aJ.lra fyrst. Afgreiðsla Tímans tekur á móti pöntunum. Tala fulltrúa. í gær komu allmargir fulltrú- ar til bæjarins og mun fulltrúa- talan nú komin yfir 300. Enn er von nokkurra fulltrúa til við- bótar. Vitað er þó um nokkra fulltrúa, er tepptust vegna veð- urlags á seinustu stundu. Hlutavelta K. S. V. í. Hin góðkunna, árlega hluta- velta Kvennadeildar Slysa- varnafélays íslands í Reykjavík verður haldin næstkomandi sunnudag, — 1. desember. Allir munu skilja, að með hlutaveltu þessari er verið að vinna að þýðingarmiklu mann- úðarmálefni, of ef að líkum læt- ur munu þeir sjálfsagt verða margir, sem leggja sinn skerf því til styrktar. Konur úr deildinni munu fara um bæinn og safna munum og öðru á hlutaveltuna og mun þeim vafalaust verða gott til fanga. Öllum landsmönnum er áreið- anlega kunnugt, hve ómetanlegt gagn slysavarnahreyfingin hér á landi sem annars staðar hefir unnið, og vonandi mun hún ekki mæta minni skilningi og stuðn- ingi í framtíðinni en hingað til.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.