Tíminn - 30.11.1946, Blaðsíða 4

Tíminn - 30.11.1946, Blaðsíða 4
FRAMSÓKNARMENN! Munib að koma i flokksskrifstofuna REYKJÆVÍK Skrifstofa Framsóknarflokksins er í Edduhúsinu við Lindargötu Sími 6066 30. \ÓV. 1946 221. blatl Ú i œnum I dag: Sólin kemur upp kl. 9.48. Sólarlag kl. 14.41 Árdgisflóð kl 9.25. Síðdegisflóð kl. 21.50. í nótt og aðra nótt: Næturakstur annast bifreiðastöðin Hreyfill sími 6633. Næturlæknir er í læknavarðstofunni í Austurbæjarskól- anum sími 5030. Næturvörður er í Laugavegs Apóteki. Útvarpið í kvöld: 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarpstríóið: Einleikur og trió. 20.45 Leikþáttur: „Tobbi prests fær makleg málagjöld" eftir Harald Á. Sigurðsson. (Leikstjóri: Indriði Waage). 21.15 Útvarp frá 30- ára afmælishátíð Karlakórsins „Fóst- bræður". 22.00 Fréttir. 22.05 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. Skipafréttir: Brúarfoss fór frá Sauðárkrók á há- degi í gær til ísafjarðar, lestar fros- inn fisk. Lagarfoss kom til Siglufjarð- ar í gærmorgun frá Akureyri. Selfoss fór frá Reykjavík 25. nóv. til Leith. Fjallfoss var á Djúpavík í gær. Reykja- foss kom til Hamborgar 27. nóv. frá Leith. Salmon Knot fór frá New York 23. nóv. til Reykjavíkur. True Knot kom til Reykjavíkur 20. nóv. frá Hali fax. Becket Hitch fór frá New Y(jrk 28. nóv. til Halifax. Anne kom til Gauta- borgar 26. nóv. frá Kaupmannahöfn. Lublin kom til Hull 28. nóv. frá Ant- werpen. Lech fór frá Hull 28. nóv til Boulogne. Horsa fór frá Hull 25. nóv. til Reykjavíkur. Stúdentablaðið kemur út á morgun og verður selt á götunum. Blaðið flytur grein eftir Dr. Einar Ól. Sveinsson er nefnist íslenzk sjónarmið, grein um flugvallarsamn- inginn eftir Magnús Jónsson og at- hugasemdir ritnefndar við þá grein. Tómas Guðmundsson skrifar grein er nefnist: Hvert fer andagift ungu stúd- entanna? Kvæði eftir Halldór Sigurðs- son, Sjálfstæðisbaráttunni er ekki lok- ið eftir Þorvald G. Kristj,ánsson, Ný- sköpun og sjálfstæði eftir Valgarð Briem, Sjálfstæðisbaráttan heldur áfram eftir Hermann Gunnarsson, og auk þess myndir, kvæði og greinar eftir fleiri höfunda. Sölubörn eru beð- in að mæta í Menntaskólanum kl. 10 f. h. á morgun. Á víðavang i (Framhald aj 2. síSu) þó að hann hafi „réttar tölur“ um hina. Það er hvergi nefndur óþarfi. Morgunblaðið heldur því fram, að það hafi nú sannað með sundurliðuðum skýrslum Odds Guðjónssonar, að engum gjaldeyri hafi verið eytt fyrir óþarfa. Raunar er það nú svo, að sundurliðunin í hagskýrsl- unum er ekki gerð á þeim grundvelli. Þó að Oddur hafi sýnt ritstjórn Mbl. sundurlið- aðar innflutningsskýrslur í 49 liðum og enginn þeirra væri kallaður óþarfi, sannar það ekki neitt. En það hefir dugað til að sannfæra Mbl., að orðið ó- þarfi kom hvergi fyrir. Mikiff er þaff sjálfstraust. Annars munu fáir treysta sér til þess, aðrir en Oddur og Mbl., að segja hvort nokkur ó- þarfúr innflutningur sé með í liðum, sem eru kallaðir Tekn- iskar vefnaðarvörur, vörur úr leðri, loðskinn og vörur úr þeim, gler og glervörur, leirsmíða- munir o. s. frv. Þetta geta allt verið þarflegar vörur, en það getur líka verið óþarfi. Venju- legu fólki er ekki nóg, þó að orðin gleíkýr og óþarfi komi ekki fyrir í skýrslunum. Það treystir sér ekki til að álykta neitt af því einu, en þessir gera betur. Spillt fyrir sölu. Mbl. segir Tímamenn hafa reynt að spilla sölu á ýmsum vörum. M. a. níðir það þá fyrir skrif um áfengismál, og mun blaðið finna, að þau eru fremur til þess fallin að spilla fyrir söl- unni. Unir Tíminn því vel og eins ónotum Mbl. þess vegna. Kaupendur og inn- heimtumenn Tímans Gjalddagl blaðsins var 1. jiilí. Vinsamlegast, drag'ið ekkl lengur að senda greiðslnr. Árgangnrinn kostar kr. 45.00 utan Reykjavíkur og Ilafnaríjarðar. INNHEIMTA TÍMANS Jólablaðsauglýsingar Auylýsendur, sem œtla aS auglýsa í jólablaði Tímans, eru vinsamleya beðnir uð sendu auglýsinyarnar sem allra fyrst. Tímann vantar tilfinnanlega böm tll að bera blaðið út til kaupenda víðs vegar um bæinn. Heitið er á stuðnlngsmenn blaðsins. að bregðast vel við og reyna að aðstoða eftir megnl við að útvega imgllnga til þessa starfs. ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ Vinnið ötullega fyrir Tímann. KRAFTTALÍUR fyrirli^jandi í eftirfarandi stærðnm: Fyrir 11/2 tonn -2 - 3 - 5 Samband ísl. samvinnufélaga ÍOO reiðhestagangar (skaflaskeifur) óskast. — Afgreiðslutími desembermán- uður. — Verðtilboð, merkt „skeifur", sendist blaðinu fyrir 10. des. þ. á. Ásgeir frá Gottorp (Framhald af 3. síðu) ar sínar um góðhesta. Fátt af því efni, sem útvarpið flytur, mun hafa vakið meiri og al-! mennari ánægju en hestaþætt- ir Ásgeirs, sem þar hafa verið fluttir. Nýlega er komin út stór bók eftir hann um þetta efni, sem nefnist „Horfnir góðhest- ar“. Bókin hefir hlotið góíða dóma og aukið við hróður höf- undar. Það hefir orðið sumum mönn- um nokkurt undrunarefni, að sjötugur bóndi, sem eigi hefir áður fengist við ritstörf svo að talist geti, skuli senda frá sér svo vel ritaða bók. En okkur, sem lengi höfum þekkt Ásgeir frá Gottorp, kom þetta ekki á óvart. Við þekktum ágæta at- hygligáfu hans, öruggt minni og frábæra frásagnarhæfileika. Hann hefir oft veitt okkur á- nægjulegar stundir, með skemmtilegum sögnum af mönnum og atburðum, og við vitum, að hann gæti skrifað vel um fleira en horfna gæð- inga. Ásgeir frá Gottorp er vel hag- mæltur, eins og hann á kyn til, þótt hann hafi farið dult með þá gáfu. Hann anh góðum skáldskap, og kann ógrynni af ljóðum og lausavisum. Ég hefi ekki á öðrum tímum haft meiri ánægju af að heyra lesin ljóð, heldur en þegar Ásgeir fer með Vegtamskviðu Stephans G. og önnur góð kvæði, sem hann þylur bókarlaust og reiprenn- andi. Þetta listamannaeðli Ás- geirs hefir komið glöggt fram í störfum hans, og vafalaust átt rikan þátt í afrekum hans, sem hestamanns og fjárræktar- manns. Hann hefir umgengist skepnurnar sem vini sína og skynsemi gæddar verur, sem hann hefir gert sér far um að skilja, og tekist það flestum betur. Þeir bændur, sem þannig vinna hefja sétt sína og sveita- lífið á hærra stig, upp úr gráum hversdagsleikanum og daglegu striti fyrir þörfum lífsins. Þess vegna standa íslenzkir bændur og aðrir, sem landbúnaði unna, í þakkarskuld við Ásgeir írá Gottorp og hans líka Eignist bændastéttin nógu marga menn með hans hæfileika, listaeðli og lífsviðhorf, þarf ekki að ótt- ast um íramtíð landbúnaðarins á landi voru. SHIPAUTCERD unrr %ri:n M.B. SÆFUGL OG SÆFARI til Hornafjarðar, Djúpavogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Borgarfjarðar, Vopnafjarðar og Bakkafjarðar. Vörumóttaka í dag. HÚSMÆÐIJR! Chemía-vanillutöflur eru ó- viðjafnanlegur bragðbætir í súpur, grauta, búðinga og alls !j konar kaffibrauð. Ein vanillu- tafla jafngildir hálfri vanillu- sctöng. — Fást í öllum matvöru- verzlunum. , rwinm Menningar- og minningarsjóður kvenna Minningarspjöld sjóðsins fást í Reykjavík í Bókabúðum ísa- foldar, Bókabúð Braga Bryn- ólfssonar, Hljóðfærahúsi Reykja vikur, Bókabúð Laugarness og Bókaverzluninni Fróða, Leifs- götu. Mennt er máttur. S j óðsstj órnin. HVAÐ ER MALTKO? Á aðfangadag jóla árið 1911 kvæntist Ásgeir, og gekk að eiga Ingibjörgu Björnsdóttur, bónda Jóhannessonar í Ás- bjarnarnesi. Ingibjörg er góð kona og vel gefin, myndarleg og góð húsmóðir, og hefir reynzt manni sínum ágætur förunautur á lífsleiðinni. Ég vil svo færa Ásgeiri frá Gottorp kærar þakkir fyrir liðnu árin og óska honum og konu hans heilla og blessunar á kom- andi tímum. SkúU Guðmundsson. (jatnla Síc Hryllileg nótt Amerísk sakamálamynd. Aðalhlutverkin leika: Susan Heyward Paul Lukas Bill Williams Börn innan 16 ára fá ekki aðgang. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Vijja Síí (við Shtilnnötu) ^ueiníí $ál£(onat ^aebæhur 00 titítcbic 791-1797 Sakamála- fréttaritarinn („Lady on a Train“) Skemmtileg og spennandi mynd eftir hinni þekktu sögu eftir LESLIE CHARTERIS, er komið hefir út í ísl. þýðingu. Aðalhlutverk: Deanna Durbin David Bruce Ralph Bellamy Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. Tjatnatbíc Nætnrferð (Night Boat to Dublin) Spennandi njósnarsaga. Robert Newton Raymond Lowell Muriel Pavlow Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 11 f. h. , i LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR: Jónsmessudraumur á fátækraheimilinu. Leikrit í 3 þáttum, eftir Pár Lagerkvist. Leikstjóri: LÁRUS PÁLSSON. Sýning á sunnudag kl. 20. Aðgöngumiðasala í Iðnó frá kl. 3 í dag. — Tekið á móti pöntunum í síma 3191 kl. 1 til 2 og eftir 3 y2. Pantanir sækist fyrir kl. 6. ♦ o o o o o o 1 > O O o o O 1 > o o O o o HJARTANS ÞAKKIR til allra, vina og vandamanna, sem glöddu mig á margvíslegan hátt á sextugsafmæli mínu 18. nóvember síðastliðinn. Guð blessi ykkur öll. Deildartungu, 25. nóvember 1946. SIGURBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR. Útför mannsins míns, Þórðar Sveinssonar prófessors, fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 2. desember kl. 2. Athöfninni verffur útvarpaff. Ellen Sveinsson. VERÐBRÉFADEILD LANDSBANKA ÍSLANDS verður opin kl. 5—7 mánudaginn 2. des- ember, til sölu á vaxtabréfum Stofn- lánadeildarinnar. Kaupendur að vaxta- bréfum með frádregnum vöxtum fá þau afhent um leið og sala fer fram. Óskað er eftir jiví, að jieir sem hafa keypt vaxtabréf með frádregnum vöxt- um en ekki fengið þau afhent, vitji þeira á morgun frá kl. 5—7. STOFNLÁNADEILD SJÁVARÚTVEGSINS YTÐ LANDSRAIVKA ÍSLAYUS.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.