Tíminn - 28.02.1947, Page 3
41. blað
TÍMlftflV, fftstndaglim 28. febr. 1947
3
í ÞETTA SINN ætla ég að láta ykk-
ur heyra stökur, sem ég hefl náð í á
vængjum vindanna og komnar eru frá
æðstu stöðum. Sú fyrsta er orðin til
‘meðal alþingismanna og er frá síðustu
fundum Alþingis fyrir jólin. Hún varð
til þegar neðri delld hafi fellt sildar-
skattinn og samþykkt að ríkissjóður
ábyrgðist landbúnaðarvörur jafnt s]áv-
arafurðum. En fylgjendur málsins í
sinnl 'upprunalegu mynd áttu víst að
geta fært það i sama horf í e. d. Til
þes svo að n. d. breytti því ekki aftur
var Ingólfur Jónsson fenglnn til að
koma aftur um nóttina, en hann var
eins og fleirl utanbæjarþingmenn far-
inn heim til að halda jólin. En vísan
er svona:
Ólafs prang og Ásgeirs brauk
illa fór af vangá,,
en þeír fanga einn sem strauk
aústur í Þór við Rangá.
ÞEGAR ÓLAFUR THORS GAFST
upp við stjórnarmyndun kom þessi
kveðlingur upp og er eignaður einni
starfsstúlku Alþingis:
Átt hef ég árum saman
á því bjargfasta trú,
að Ólafur illa gæfist,
— en upp ekki fyrr en nú.
En síðar, — þegar Stefán Jóhann
var tekinn við, kom þessi upp:
Góður er sérhver genginn,
geti hann legið kyrr.
En Ólafur afturgenginn
er Ólafur verri en fyrr.
Ég kem þessum ljóðum áleiðis, minn-
ugur þess sem sr. Einar i Eydölum
kvað forðum daga:
Heilagur andi hvert eitt sinn
hefir það kennt mér vinur minn,
lífsins krydd ef lítið fjnn
að leggja það ekki í kistur inn.
UM ÞAÐ AÐ FLÝTA KLUKKUNNI,
skrifar V á þessa leið:
Ekki skil ég þann úlfaþyt, sem nú er
geröur vegna þess, að klukkunni
verði flýtt. Út yfir tekur þó hræsnin
í pistlunum hans Hannesar á horninu,
þegar sagt er að umhyggja fyrir skóla-
börnum gangi til að vera á móti þessu.
Ja, svei attan! Eins og börnin hafi
nokkuð lakara af því að vaka á
morgnana en kvöldin. Ég veit að
margir telja kvöldsvefninn hollari en
engan hefi ég heyrt halda þvi fram að
klst. morgunvaka væri ekki bætt með
klst. kvöldsvefni fyrr en nú að þessi
Hannesarbarnavernd tekur til máls. —
Og nei nei. Við skulum ekki vera með
neina hræsni, — heldur sjgja afdrátt-
arlaust, að við kvíðum því að vakna
þennan eina morgunn, þegar breyt-
ingin er ný. En hitt er jafnsatt fyrir
því, a;V breytingin styttir ljósatima um
allt land og sparar bæði rafm^.gn og
olíu. En því miður verður því ekki
breytt með því að færa klukku, að
menn vaki, slóri og slæpist sér til
bölvunar fram á nætur og sofl sér til
skammar á morgnana.
SVEITAMAÐUR SKRIFAR: Ég sé
að margt bendir til þess að jeppar þeir,
sem inn hafa verið fluttir séu taldir
landbúnaðarverkfæri. Það er t. d. tal-
að um innflutning bíla auk landbún-
aðarjeppa.
Mér er kunnugt um að Búnaðar-
félag íslands úthlutaði þessum bílum
í sveitirnar samkvæmt tillögum frá
stjórnum hreppabúnaðarfélaganna og
var tr/ggilega um það búið að búnað-
arfélög hreppanna hefðu ráðstöfunar-
réttinn, ef eigandi jeppa vildi selja
hann fyrstu árin. Jæja. Svo komu
önnur sjónarmið. Nýbyggingarráð tók
úthlutun landbúnaðarjeppanna í sín-
ar hendur. Og þá var nú ekki verið að
tala við lireppabúnaðarfélögin.
NÝBYGGINGARRÁÐ KVAÐ HAFA
haft þá aðferð að skipta jeppunum
milli róðsmannanna og svo útþlutaði
hver þeirra þvi, sem hann fékk til
hlutar, eins og honum sýndist. Margir
jeppanna hafa þó lent í Reykjavík, en
það sýnh þó vott af samvizkutætlum
hjá ráðinu að yfirleitt munu leyfin
hafa verið veitt á nöfn sveitamanna.
Dæmi er til þess, að Reykvíkingurinn,
sem átti að njóta jeppans og falsaði
umsókn frá sveitabónda, hafði vanrækt
að láta bóndann vita hvernig allt var
í pottinn búið, þegar hann fékk sím-
skeyti frá skrifstofu Nýbyggingarráðs
um það, að - hið háa ráð hefði allra
mildilegast úthlutað honum jeppa,
(sem hann liafði aldrei sótt um eða
óskað að fá).
ÉG KANN EKKI VIÐ ÞAÐ, að
svona bílar séu kallaðir landbúnaðar-
jeppar. Og ef það hefir þótt rétt, að
þeir háu herrar í Nýbyggingarráði út-
býttu þessum tækjum eftir eigin geð-
þótta eingöngu, — hvers vegna var þá
verið að hafa bændagreyin til blóra,
og fela umbun og fyrirgreiðslu bak
við þá?
En hvað segja nú Búnaöarþing og
ríkisstjórn um það, að láta rannsaka
í sveitunum, hvað mikið af jeppum,
sem þangað hefir verið ákveðið í orði
að kæmu, eru þar ekki og hafa aldrei
komið þar?
ÞETTA ERU NÚ KANNSKE hörð
orð hjá sveitamanninum, og ég vil
taka það fram til að gæta hlutleysis
míns, að það er sjálfsagt að birta svör
og leiðréttingu frá Nýbyggingarráði
eða hverjum öðrum, sem þess óskar.
En einhvern veginn liefir þessi skoðun
sveitamannsins skapast, og það er öll-
um fyrir beztu að hún sé rædd fyrir
opnum dyrum.
Mér finnst það náttúrulega mjög
furðulegt, að úthlutunin skyldl nokk-
urntíma vera tekin af B. í. og sé sú
frásögn, sem hér er birt, rétt, þá er
full þörf á rannsókn 1 málinu.
Pétur landshornasirkill.
l’æra byggðina saman, þrátt fyr-
ir það, þó við afneitum þeirri
stefnu eða kenningu, að allir
íslendingar eigi að flytjast á
Suðurlandsundlrlendið, eða að-
eins á nesin í kringum Faxa-
flóa.
Hitt er svo annað mál, þó að
ýms útnesja og heiðabýli kunni
að falla úr byggð, þar sem lands
kostir samsvara ekki kröfum
tímans. Slíkt er ekkert nýtt í
sögu okkar eða annara.
Ég ætla ekki að fara að ræða
hér um eða bollalegja hvernig
sveitaþorpum eða samvinnu-
byggðum næstu tíma, kann að
verða háttað eða fyrirkomið hér
á landi. Slíkt er mál út af fyrir
sig, og hefir verið rætt og verð-,
ur rætt af öðrum, sem betur
eru til þess fallnir. ,
En það er margt, sem við, sem
í drelfbýlinu búum, og ætlum
að búa framvegis, þurfum að
athuga og höfum gott af að ræða
um, ef vera mætti að úrræði
finndust til að létta störfin, bæta
samlífið og draga úr ókostum
hinnar títt nefndu einangrunar.
Víða um land allt, jafnvel á
hinum svokölluðu útkjálkum,
eru jarðir, sem eru svo stórar,
eða fallnar til ræktunar, að þeim
má skipta 1 svö eða fleiri býli
og hvert sé þó nægilegt einni
fjölskyldu til sómasamlegrar af-
komu. Enda hefir margt af jörð-
um hér á landi verið í tvibýli
og margbýli, og svo er enn t. d.
á Vestfjörðum, þar sem ég þekki
bezt til. Hefir sjávargagn að
sjálfsögðu stutt vjða að því-, að
lífvænlegt varð á þessum skiptu
jörðum, áður enn nokkrar rækt-
unarumbætur komu til sögunn-
ar.
Nú hefir þetta sambýli sums
staöar verið svo náið, að tvær
fjölskyldur hafa haft einn arin
og eina matseld, og i’arið hið
bezta á þvi. Gæti ég nefnt mörg
dæmi því til sönnunar, en vil
aðeins nefna eitt: Sambýli
’ þeirra bræðra Þórðar og Bald-
vins Gunnarssonar í Höfða í
Höfðahverfi. Ég átti þvi láni að
fagna fyrir 31 ári aö gista
það heimilí og kynnast því nokk-
uð. Hefi ég ekki komið á elsku-
legra eða myndarlegra. heimili,
þar sem auðsæ velmegun bar
ágætri samvinnu fagran vott.
Nú er ekki svo að skilja, að ég
hvetji íslendinga til sameignar-
búa almennt, til þess mundi þjóð-
ina vanta félagslegan þroska,
og til þess að vel færi í svo nánu
sambýli þurfum við almennt að
(Framhald á 4. siOu)
ALICE T. HOBART:
Yang og yin
flokksins að sætta sig viö þessa lítilfjörlegu stöðu. Voru flokks-
bræður hans að setja hann á krókbekk í þjóðfélaginu?
Athöfninni var lokið. Peter flýtti sér inn í hús sitt. Þar var Sen
Ló Shí á tali við einhverja af embættismönnum borgarinnar. En
Peter forðaðist hann — hann leitaði sér athvarfs 1 vinnuherbergi
sínu. Þar staðnæmdist hann við gluggann og horfði á fólkið
streyma brott. Hershöfðinginn hélt brott við lúðrablástur, og Sen
Ló Shí fylgdi honum eftir niður að hliðinu og hneigði sig vlð
annað hvort skref. En næst þegar Peter leit út um gluggann,
sá hann, að Ló Shí stefndi aftur upp að húsi hans. Var hann á leið
til hans? Gat það verið, að hann, yfirmaðurinn, ætlaði að stiga
íyrsta skrefið til sátta?
Ló Shí kom inn, og Peter gekk á móti honum. -,,Þú sýnir mér
mikinn heiður .... “
„Ég geri það, sem mér ber að gera gagnvart fræðara mínum og
meistara,“ svaraði Ló Shí. „Vilt þú vera ráðgjafi minn í sjúkra-
núsinu?“
Peter minntist löngu liðins dags. Þeir höfðu hitzt á þessum sama
itað, og þá hafði Ló Shí komið til þess að færa honum að gjöf
embættisstaf föður síns. Nú kom hann til þess að bjóöa honum
nýja gjöf.
Snöggvast hvarflaði að Peter að þiggja þessa fórn. En svo
hikaði hann. Það var ranglátt — hann mátti ekki gera það.
„Ég mun alltaf minnast þessa boðs,“ sagði hann loks. „En
sjúkrahúsinu verður þú að stjórna eins og þú sjálfur kýst. Láttu
mig vinna það, sem þér sýnist, ef þú telur, að ég geti orðið þér að
iiði, en sjálfur stjórnar þú sjúkrahúsinu, án minnar íhlutunar.“
Þessi orð léttu sýnilega þungri byrði af Ló Shí. Hann varö aftur
eins frjálsmannlegur og hann hafði verið, þegar ieiðir þeirra
skildi fyrir mörgum árum
„Hefir rannsóknum bínum miðað áfram síðan þú komst aftur?“
spurði hann.
„Dálitið,“ svaraði Peter alls hugar feginn. „Nú skal ég sýna
þér, hvað ég hefi unnið á.“ Hann tók blað og teiknaði myndir af
sýklinum, eins og ha?m leit út á ýmsum stigum. „Ef kenning mín
reynist rétt, verðum við að kenna bændunum að útrýma snigl-
unum úr sýkjunum og búa til nóg af lyfjum, sem vinna bug á
innyflaormunuin.“
„Má ég vera'aðstoðarmaður þinn í rannsóknarstofunni?,, spurði
Ló Shí.
Þeir ræddu lengi urp rannsóknirnar og tilraunirnar, og það var
komið myrkur, þegar Ló Shí kvaddi og hélt brott.
Peter var glaður. Hann hafði hlotiö umbun. En hitt datt honum
ckki i hug, að Ló Shí stæöi um þessar mundir andspænis stærsta
ásigri lifs síns. Veldisdagar hinna ungu og vigreifu byltingar-
manna voru taldir, og raddir hinna gætnari og íhaldssamari
manna fundu æ meiri hljómgrunn. Við vérðum að afla fjár, sögðu
þeir — án peninga erum við vigðir falli.
Ráðstefna inikil var haldin í Shanghai, og þar börðust íoringi
byltingarinnar og formaður hins leynilega bandalags ópiumkaup-
mannanna um völdin. Fundurinn stóð alla nóttina, en morguninn
eftir varð breyting á stefnu flokksins. Það hafði átt að útrýma
ópiumverzlun og ópíumnautn, en peningar, sem aflað var með
ópíumverzlun, íylltu vasa forsprakka byltingarinnar. Framsækn-
ustu mönnunum var vikið til hliðar, og þeirra á meðal var Ló Shí.
öpiumræktin tók að blómgast aftur, og rikið kom á laggirnar
stofnun til þess að berjast gegn ópiumnautn — sem raunveru-
lega var miðstöð skattinnheimtunnar. Hinir nýríku byltingarmenn
urðu stórauöugir.
En bændunum blæddi. Skattheimtumennirnir voru eins og mara
a alþýðu landsins, og fleiri og ílelri seldu dætur sínar í þrældóm
I stóriðjuverin í Shanghai.
Sumt af því, sem Sen Ló Shí og fylgismenn lrans hafði dreymt
um, varð þó að veruleika. Meðal annars byggði flokkurinn stórt
og fullkomið sjúkrahús í höfuðborg Kínaveldis — hið fyrsta í
sögu landsins.
XVII.
PETER umgekkst nær eingöngu Kínverja. Nú bjuggu Kin-
verjar í öllum gömlu húsum trúboðsstövarinnar, nema
húsi hans sjálfs. Mei Ing og kennslukohur hennar höfðu
lagt undir sig kvennaskálann, nema hvað ungfrú Dyer hafði þar
íitt herbergi til umráða og staríslið sjúkrahússins bjó í húsi
Bergers.
Öll bar hin gamla trúboðsstöð orðið kínverskt yfirbragð. Frjó-
semi fólksins og jarðarinnar var enn sem fyrr mikilvægasta
atriðið. Nýtt hús hafði verið reist i þágu feng shúi, vatns og
vinds, svo að jafnvægi mætti haldast milli lifenda og dauðra. Og
í garðinum uxu yang-blóm, tákn karlmennskunnar og frjómagns-
ins, og yin-blóm, tákn kvenlegra eiginleika.
Peter var hægri sönd Ló Shí í sjúkrahúsinu, og þar var nóg að
gera. Sjálfur var Ló Shí umsetinn af njósnurum. Alls konar orða-
sveimur gekk, og það var jafnvel sagt, að hann hefði í hyggju að
eggja bændurna til nýrrar uppreisnar. Hann var ekki einu sinni
óhultur í sjúkrahúsinu. Hann vildi aldrei ganga einn um sjúkra-
stofurnar, því að hann óttaðist, að reynt yrði að bera það á
hann, að hann æsti veika bændur og verkamenn gegn stjórninni.
Þeir Peter höfðu orðið ásáttir um það, að Ló Shí skyldi fram-
kvæma alla uppskurði. Hönd hans var örugg og styrk — hann
hafði erft þá eiginleika gamla Sens, sem gerðu hann að frægum
)krautritara.
Svo bar við einn dag, að uppskurður mistókst. Um skeið var
ekki annað sýnna en sjúklingurinn myndi deyja. Nýr orða-
sveimur komst undir eins af stað — fjandmenn hins unga læknis
létu ekkert tækifæri. ónotað. Að vísu llfði maðurinn og orðrómur-
ttmnmiinmnsKmnttninmnnnsttwnntnwnrtnmnnnnfflntnmtanntwwtt
Getum afgreltt nú þegar .
.. . . 'v;. c . ♦
handsáövélar „Nordland” j
fyrir rófur.
handsáðvélar „Jalco”
fyrir grasfræ.
Samband ísl. samvinnufélaga
SKIPAUTG6RD
RIKISINS
Vegua jarúarfarar verða skrifstofur
%■
vorai* og vöruhús lokuð frá kl. 12 á há-
ilegi í clag.
♦
n
Tek ennþá
á móti sendingum á vegum Rauða Kross íslands
til meginlandsins.
SIMl 420!»
HOW YOU WILL
BENEFIT BY READING
the world'i daily newspaper—
THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR. You will find yourtelf ono of
the best-informed persons in your community on world affolrs when
you reod this world-wide daiíy newspoper regularly. You wlll galn
fresh, new viewpoints, o fuller, richer understanding of toda/s vltot
news—PLUS help from its exclusive features on homemoklng, educo-
tion, business, theoter, music, rodio, sports.
Subscrlbe now to
thls speclal "get-
acguainted" offer
—5 weeks for $ 1
(O. S. tunds) *
ng Soclety
One, Norwoy Streef, Boston 15, Moss., U. S. A.
The Chrlstian Science Publlshln
Listen to “The Christian ^
Science Monitor Views Ihe
News“ every Thursday
night over the Araerican
8roadcasting Comoany
PS-5
, iNuivvuy jiicci, Dv/aiuii i j, /vvuöo., \j. 9, r>.
I Enclosed is $1, for which please send me The Chrlttian
I Science Monitor for 5 weeks (30 issues).
Name___________
l
$
Strect_
lcity—
Zone.— Stote-
tr heiini
66
„siýsköpuisariimai*
(Framhald af 2. siðu)
þannig, að mikið fé hefir þar
eyðzt að óþörfu.
Meiri hluti fj árliagsnefndar
hefir ekki talið ástæðu til að
gefa út nefndarálit um þetta
frv., en undirritaður taldi rétt
að láta framanritaðar athuga-
semdir koma fram í nál. Úr þvi
sem komið er, mun ekki verða
hjá því komizt að auka enn við
lántökuheimild ríkisstjórnarinn-
ar vegna þessara verksmiðju-
bygginga. En sú óþarfa eyðsla,
sem þar hefir átt sér staö, ætti
að verða víti til varnaðar í fram-
tíðinni. Væntanlega verður inn-
an skamms hægt að koma upp
þeim síldarverksmiðjum; sem
eftir er að byggja samkvæmt
lögunum frá 1942, og er mikils
um vert fyrir sjávarútveginn,
að meiri hagsýni verði beitt við
þær framkvæmdir en nýju verk-
smiðjubyggingarnar á Siglufirði
og Skagaströnd.
E.s. ,Reykjafoss’
fer héðan mánudaginn 3. marz
til Austfjaröa og Leith.
Viðkomustaðir á Austfjörð-
um:
Djúpivogur
Stöðvarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Reyðarfjörður
Esklfjörður
Norðfjöröur
Seyðisfjörður.
Il.f. Eimsklpafélag
lslands.
IVjótlð sólarlunar
1 skammdeginu og borðtö hinar
fjörefnaríku Alfa-Alfa töflur.
Söluumboð tll kaupmanna og
kaupfélaga utan Reykjavíkur
HJÖRTUR HJARTAKSON
Brœðraborgarstíg 1
Sfmi 4256.
Kaupum tuskur
Baldursgötu 30
Vintiiö ötullcfía fyrir
Tímann.