Tíminn - 01.03.1947, Síða 1
j RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
! ÚTGEFANDI:
í FRAMSÓKNARFLOKKURINN
\
Slmar 2353 og 4373
< PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
31. árg.
RITSTJÓRASKRIFSTOF0R:
EDDUHÚ3I. Llndargötu 9 A
Símar 2353 og 4373
AFGREIÐSLA, INNHEEMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A
Síml 2323
Reykjavík, laugardaginn 1. inarz 1947
42. blaQ
ERLENT YFIRLIT.
Frakkar kref jast Saarhéraðs
Frakkar gera sér góðar vonir um úr-
slit málsins á Hloskvufuiidinum.
Franska stjórnin hefir nú lýst yfir þeirri kröfu, að Saarhér-
aðiff verði sameinað Frakklandi, en jafnframt vill hún tryggja
því allviðtæka sjálfstjórn. Pólverjar hafa þegar tilkynnt, að
þeir muni styðja þessa kröfu Frakka og virðist það benda til, að
Rússar muni einnig gera það. Óvíst er enn um afstöðu Breta og
Bandaríkjamanna. ' • *
Viktoria kemur ár fengsælli veiðiför
l*aó er ekkert lát á síldargengdinni í sundunum við Reykjavík. Veiðiskipin
fá daglega hlaðafla, ef þau komast á annað borð út. í gær var sólskin
og bliða, en fjöldi báta iá með fullfermi sildar í Reykjavikurhöfn, því að
aðeins tvö skip tóku á móti síld til norðurflutnings. En sama dag voru
tugir bíla að aka möl og sandi í Reykjafoss til kjölfestu handa skipinu
í fyrirhugaðri ferð þess til Austfjarða og Leith. Vantar hér ekki samvinnu
og skipulag? Hefði ekki verið heppilegra, að Reykjafoss hefði tekið sild
til norðurflutnings og tekið kjölfestu þar, þó það hefði ef til vill tafið Skot-
landsfcrð skipsins um fáeina sólarhringa? Á hverjum góðum degi, sem
veiðiskipin verða að liggja í liöfn og bíða afgreiðslu, tapar þjóðin aflafeng,
sem nemur máske hundruðum þúsunda krónum. Hefir hún efni á því að
fleygja þannig frá sér auðæfum? — Myndin hér að ofan er af Viktoríu
frá Reykjavík. Er hún að koma inn, hlaðin síld. Viktoría og Andvari eru
fengsælustu síldvelðiskipin. Eru þau saman um veiðitæki, og stjórnar Ing-
var S. Pálmason skipstjóri veiðiferðum þeirra beggja.
(Ljósm.: G. Þórðarson).
Vélskipið Freyja fór í há-
karlalegu í nótt
Gort er ráð fjrir áframlialdandi voióum, ef
sæmilegur afli fæst.
’ * * . * '
Hákarlaveiðar hafa ekki verið stundaðar hér við land síðan
fyrir stríff. En í nótt fór vélskipið Freyja í hákarlalegu, og hafa
eigendur hennar í hyggju að gera hana út á hákárlaveiöar nú
um skeið, ef afli reynist sæmilegur. Er nú svo gott verð á há-
karlalýsi, að slík útgerð getur verið arðvænleg, ef afli bregzt
ekki. Freyja er eign Hafsteins Bergþórssonar útgerðarmanuns,
Guðmundar Jónssonar, skipstjóra og fieiri.
Unnió nótt og dag við að
losa síld í flutningaskipin
Viðtal við Þorvald Ansnes verkstjóra.
f"
Undanfarna daga hefir verið góð síldveiði á ytri höfnJLnni í
Reykjavík og inn í sundunum. í gær voru aðeins þrfr bátar að
veiðum og öfluðu þeir vel, en annars var flotinn bundinn við
bryggju, drekkhlaðinn af síid og beið löndunar. Tíðindamaður
blaðsins fór niður á bryggjur í gær og hafði tal af verkstjór-
anum, sem séff hefir um losun síldarskipanna og fermingu skip-
anna, sem fiytja sildina norður. Heitir hann Þorvaldur Ansnes,
Frakkar hafa þegar hafið
undirbúning að innlimun Saar-
héraðsins í Frakkland. Strax
þegar þeir tóku við hernáms-
svæði sinu í Þýzkalandi, tóku
þeir upp sérstjórn fyrir Saar.
LEON BLUM,
aem notaði tækifærið í hinni stuttu
ráðherratíð sinni í vetur til að sam-
eina Saar tollumdænii Frakklands.
Á siðastl. sumri stækkuðu þeir
Saarunldæmið verulega, svo að
það nær nú til Luxemburg og
fylgir landamærum þess allt til
Trier. Eykur þetta stærð hér-
aðins um 900 ferkm. og íbúa-
töluna um 90 þús., en hún er
nú alls 900 þús. Frakkar rétt-
læta þessa stækkun með því, að
Saarhéraðið hafi verið þannig
upphaflega. Stærsta sporið að
innlimun Saarhéraðsins var svo
stígið í vetur í stjórnartið Leon
Blums, þegar Saar var gert að
frönsku tollumdæmi. Rök þau,
sem Frakkar færðu fyrir þeirri
ráðstöfun, eru veigalítil, ef hún
ERLENDAR FRÉTTIR
Vináttusáttmálinn milli Bret-
lands og Frakklands er nú full-
gerður. Bevín tilkynnti í brezka
þinginu í gær, að sáttmálinn
myndi fljótlega verða undirrit-
aður í Dunkirk af utanrikís-
ráðherrum landanna.
Bevin flutti ræðu í brezka
þinginu í fyrradag og varaði
menn við að gera sér of miklar
vonir um árangur af Moskvu-
fundinum. Hann lagði áherzlu á
áframhaldandi vináttu við
Bandaríkin og Rússland.
Prentaraverkfall hefst í Kaup-
mannahöfn um helgina, ef ekki
næst samkomulag áður. Verk-
fallið mun þó ekki ná til blaða
jafnaðarmanna og kommúnista.
Engin dagblöð hafa komið út
i París siðastl. hálfan mánuð,
því að starfsmenn blaðanna
hafa gert verkfall. Þeir gera
hærrl kaupkröfur en blöðin vllja
fallast á.
Truman forseti hefir haldið
fund með forvígismönnum re-
públikana og demókrata og mun
þar hafa verið rætt um Moskvu-
fundinn. Truman mun bráðlega
fara í opinbera heimsókn til
Mexlkó.
hefir ekki jafnframt verið und-
irbúningur að innlimun héraðs-
ins.
Frakkar gera nú ekki tilkall
til Saarhéraðsins á þeim for-
sendum, að íbúarnir séu að
miklu leyti franskir, eins og
þeir héldu fram í Versölum 1919.
Þeir viðurkenna þvert á móti
nú, að ekki muni vera nema um
2000 Frakkar í héraðinu. Hinu
halda þeir fram, að þeim sé
nauösynlegt að ráða yfir Saar
af öryggisástæðum og Elsass-
Lothringen og Saar heyri efna-
hagslega saman, þar sem Elsass
komist ekki af án kola frá Saar,
og Saar kemst ekki af, án land-
búnaðarvara frá Elsass. Jafn-
framt telja þeir þó sjálfsagt, að
Saarbúar fái viðtæka sérstjórn,
þar sem þeir séu þýzkir og
Frakkar vilja engan veginn
neyða þá til aö hverfa frá þjóð-
erni sínu.
Eins. og nú standa sakir, virð-
ist engin sérstök andúð ríkjandi
í Saar gegn sameiningu við
Frakkland. Ýmsir skýra þetta
þannig, að ibúarnir geri sér von
um, að það muni reynast þeim
efnahagslegra hagkvæmara á
komandi árum, en að tilheyra
Þýzkalandi. Hér sé svipað á-
statt og í Suður-Slésvík, þar
sem mikil hreyfing er nú fyrir
sameiningu við Danmörku, eða
þótt það ætti litlu fylgi að fagna
fyrir styrjöldina.
Það var fyrst eftir fyrri heims-
styrjöldina, sem Frakkar báru
fram kröfuna um innlimun
Saar í Frakkland. Kröfuna rök-
studdu þeir þá einkum með
þjóðernislegum ástæðum. Einn-
ig töldu þeir réttmætt, að þeir
fengu hinar auðugu kolanámur
þar sem endurgjald fyrir tjón,
er Þjóðverjar höfðu unnið á
frönskum . námum. Bretar og
Bandaríkjamenn vildu hins veg-'
ar ekki fallast á þessar kröfur
ur og varð því niðurstaðan sú,
aö PTakkar fengu afnot af kola-
námunum til 15 ára og skyldi
Saar vera undir umsjá Þjóða-
bandalagsins á meðan. Að þeim
tíma loknum skyldi fara fram
þjóðaratkvæðagreiðsla í Saar
Um framtíöarstööu héraðsins.
Frakkar hugðust að nota þenn-
an tíma til að efla frönsk áhrif
í héraðinu, en fóru mjög klaufa-
lega að, svo að þeir fengu íbú-
ana enn meira á móti sér. T. d.
beittu þeir ýmsum þvingunar-
ráðstöfunum. Úrslit þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar 1935 urðu
því þau, að með sameiningu við
Þýzkaland voru 477 þús atkv.
(90%), en með áframhaldandi
umboðsstj órn Þj óðabandalags-
ins voru 47. þús. atkv. Með sam-
einingu við Frakkland voru að-
eins 2000 atkv.
Saar var mjög illa leikiö í síð-
ustu lotu styrjaldarinnar. Borg-
iri þar urðu fyrir miklum
skemmdum og er húsnæðisleysi
þar mjög mikiö. Líklegt er þó,
að héraðið rétti fljótt við, vegna
auölegðar slnnar, ef Frakkar
beita ekki óbilgirni.
Það má telja vist, að innlim-
un Saar í Frakkland vekji mikla
andúð í Þýzkalandi. Óvíst er þvl,
að Frakkar hafi mikla ástæðu
til að fagna yfir innlimuninni,
þegar stundir liða fram. En þeir
gera sér góðar vonir um, að
hún fáist samþykkt á Moskvu-
fundlnum.
Tiðindamaður Tímans átti tal
við Guðmund Jónsson, skip-
stjóra á Freyju, i gærkvöldi,
skömmu áður en lagt skyldi af
stað í veiðiförina.
— Er ekki langt siðan farið
hefir verið í hákarlalegu héðan
frá Reykjavík, spurði tíðinda-
maðurinn.
— Jú, slík veiðibrögð lágu al-
<-----—-———------------------—
Kjöt og kartöflur
lækkar í verði
RíkissjóÖur ver 88 aurum
til niðurgreiðslu á hvert
kjötkíló.
Ríkisstjórnin hefir ákveðið að
verja fé úr ríkissjóSi til þess aS
lækka verð á kjöti. Smásöluverð
á frystu og söltuðu dilkakjöti og
fyrsta flokks geldfjárkjötl vcrð-
ur kr. 10.85 hvert kílógramm
frá og með deginum i dag.
Á öðrum tegundum kjöts
lækkar verðlð um eina krónu
livert kilógramm.
Rikissjóður mun verja 88
aurum til niðurgrelðslu á hvert
kjötkiló, sem selt verður hér
eftir.
Þá hefir rikisstjórnin elnnig
lækkað verð á kartöflum. Verð-
ur smásöluverð þeirra frá og
með deginum i dag 95, 80 og 66
aurar, eftir gæðaflokkum.
veg niðri á stríðsárunum. En
fyrir stríð brugðum við okkur
stundum á hákarlaveiðar. Bæði
Sigríður og ‘Rifsnes fóru þá á
hákarl, auk Freyju.
— Hvernig voru aflabrögðin
þá? .
— Við veiddum talsvert, en
verðið á hákarlalýsinu var svo
lágt, að þessi útgerð bar sig
ekki. Þá fengust ekki nema
32 krónur fyrir fatið. En nú er
verðjð svo miklu hærra, að þess-
ar veiðar ættu að geta borið sig
með svipuðum aflabrögðum og
þá voru.
— Hvert íarið þið?
— Við ætlum að leggja lín-
urnar á Kollunum út af Breiða-
firði. Þar eru hákarlamiðin —
svo sem 100 milur vestur af
Jökli.
— Hirðið þið aðeins lifrina?
— Viö hirðum fyrst og fremst
lifrina, og svo kannske eitthvað
af hákarli handa beztu kunn-
ingjum manns.
— Ætlið þið aðeins þennan
,eina túr?
— Ef vel gengur, er ætlun
okkar að halda þessu áfram.
Það er líka gott að dreifa veiði-
skapnum og afla sem fjölbreytt-
astra sjávarafurða. Og nú sem
stendur er mjög sótzt eftir lýsi.
— Hvað verðið þið margir á
skipinu?
— Við erum niu.
(Framhald á 4. siðu)
og er Siglfirðingur að uppruna.
Sökkhlaðin síldarskip.
— Ég hefi lítinn tima til að
tala við þig núna, segir Þor-
valdur, er tíðindamaðurinn hef-
ir loksins fundið, hann um borð
I einum síldarbátanna, sem á að
fara að losa. Það er allt vitlaust
núna og í mörgu að snúast.
Þarna bíða sjö skip eftir losun,
eins og þú sérð, og um ieið
bendir hann á síldarskipin, sem
liggja báðum megin við bátinn,
sem við erum í. Skipin eru öll
drekkhlaðin. Fyrir aftan Sæfell,
sem við erum í, liggur Viktoría
fullhlaðin eins og sést á mynd-
inni hér á síðunni. Skipverjar
á Bjarka eru sem óðast að
ganga frá lúgum á þilfarinu og
segjast ætla sjálfir með aflann
norður til Siglufjarðar í kvöld,
ef ekki verður útlit fyrir, að
hægt sé að losa í flutningaskip.
Vélbáturinn Dóra frá Hafnar-
firði liggur yzt, og er sökkhlað-
in, svo að stefnið eitt stendur í
rauninni upp úr sjónum. Hún
er nýkominn úr sinni fyrstu
síldveiðiför að þessu sinni.
Sifelldur hörgull á flutn-
ingaskipum.
— Hvernig gengur meö flutn-
ingaskipin? spyrjum við Þor-
vald.
Fiskafli á óvenjnleg-
um slóðum
Eins og áður hefir verið sagt
frá, hefir verið mokafli á veiði-
slóðum vgstfirzku bátanna. Bát_
ar frá ísafirði hafa byrjað að
leggja lóðir sínar móts við
Hnífsdal og vart sótt lengra í
vetur en út í Djúpmynnið.
Nú fyrir nokkru bar það við,
er sjóveður var illt, að sjómenn,
sem lagt höfðu í róður, en
treystust ekki til þess að leggja
línuna á venjulegum slóðum,
tóku það ráð að halda inn í
Inn-Djúp og leggja lóðina þar,
fremur en gera beituna ónýta.
Fleygðu þeir línunni af handa-
hófi fram undan Melgraseyri,
og fengu þeir þar eftir skamma
stund sex smálestir af fiski.
Á þessum slóðum hefir fiski-
göngu tæpast orðið vart frá ó-
munatíð.
Árshátíð Framsókn-
arkvenna í Reykjavík
Félag Framsóknarkvenna í
Reykjavík h’eldur fyrstu árshá-
tíð sína í Tjarnarkaffi næst-
komandi mánudagskvöld, 3.
marz kl. 8.30. Þar verður margt
tii skemmtunar, m. a. kvik-
myndasýning, stuttar ræður,
söngur, dans o. fl. Þá verður
sameiginleg kaffidrykkja.
Aðgöngumiðar fást á af-
greiðslu Timans í Edduhúsinu
(uppi), slmi 2323, og eiga að
sækjast fyrir kl. 3 á mánudag-
inn. Framsóknarmenn í Reykja-
vík munu fjölmenna á þetta
samkvæmi með gesti sína.
— Jú, það eru tvö hér í dag.
Sæfell og Erna, sem bæði taka
síld til norðurfiutnings, en það
bíða líka sjö skip löndunar. Von
er á Hrímfaxa í kvöld að norð-
an, og ætti þá að vera hægt aö
losa flest þessara skipa, en ef
að líkum lætur, verða þá þau,
sem fyrst fara út nú, komin
aftur með fullfermi hér við
bryggjuna áður en þau siðustu
hafa verið tæmd. Þannig hefir
það gengið að undanförnu.
Meiri sild í sundunum
en í Koilafirði.
Þorvaldu’r sagði, að skipstjór-
arnir, sem bezt væri trúandi til
að vera kunnugir háttum síld-
arinnar hér syðra, teldu að enn
meiri síld væri hér í ytri höfn-
inni og sundunum, heldur en
nokkurn tíma var i Kollafirði,
þótt mikið væri þar.
Skipstjórinn á Viktoríu, Jón
Sigurðsson, var að veiðum hér
rétt úti fyrir hafnarmynninu
einn daginn og ætlaði að láta
reka upp að bryggjunni að
norskum sið, þar sem nokkur
gola var. En er hann var kom-
inn í mitt hafnarmynnið sprakk
nótin utan af síldinni. Þvilik
ógrynni höfðu komið í hana.
Vakað nótt og- dag.
— Hvernig er það, vakið þlð
ekki nærri því nótt og dag vlð
síldarlosunina?
— Jú, við vökum oft lengi
meðan verið er að ferma tll
norðurfiutnings. Það er sama á
hvaða tíma byrjað er að ferma
skip til norðurflutnings — það
er ekki hætt fyrr en það er
fullt og lagt af stað norður, og
bátarnir, sem losuðu, komnlr út
á ytri höfnina, og farnir að háfa
sildina að nýju.
Síðasta myndin
Meðal þeirra, sem fórust í
flugslysinu mikla á Kastrup-
flugvellinum í Danmörku, var
söngkonan og kvikmyndadísin
Grace Moore.
Lík Grace Moore var flutt í
flugvél frá Kaupmannahöfn um
Amsterdam til Parísar.
Mynd sú af söngkonunni, er
fylgir þessum línum, var tekin
er hún kom til Kaupmanna-
hafnar og er þvi einhver Siðasta
myndin, sem til er af henni.