Tíminn - 11.04.1947, Side 4
FRAMSÖKNARMENN!
4
Munib ab koma í flokksskrifstofima
REYKJÆVÍK
Skrifstofa Framsóknarflokksins er
Edduhúsinu. við Lindargötu.
II. ÆPRÍL 1947
l
Sími 6066
68. blað
Nokkur orð um mjólk
(FramhalcL af 3. síðu)
anrennuduft til að auka þurr-
efnið. Þetta er gert til þess að
gerð rjómaísins verði betri.
Eggjahvítuefni mjólkurinnar
hafa sérstaka eiginleika til að
binda vatn, og þar af leiðandi
verða vatnskristallarnir smærri
og gerð rjómaíssins fínni og
betri.
Það er mjög þýðingarmikiö
að auka þurrefnismagnið á
réttan hátt og ekki of mikið,
því að annars verður rjómaís-
inn smákornóttur. Þessi smá-
korn eru mjólkursykur og
bráðna ekki strax upp í neyt-
endum. Önnur hætta er sú að
viðbrennt bragð finnist af
rjómaísnum, ef þurrefnismagn-
ið er of hátt, eða vörurnar ekki
nógu góðar, sem notaðar voru
til þess að auka það.
Um sykurinn er það að segja,
að magn hans verður fyrst og
fremst að miðast við smekk
neytenda. Því meira sem sykur-
magnið er, því lengur þarf að
frysta hlaupið, og þar sem auk-
inn sykur lækkar frostmagn
rjómaíssins, verður að geyma
hann við lægra hitastig.
Egg eru notuð í rjómaís fyrst
og fremst til þess að auka
þeytihæfileika hlaupsins. Það
er eggjarauðan, 'sem hefir þessi
áhrif og væri því nóg að nota
hana eina. Ef óskað er að ör-
lítið eggjabragð finnist af
rjómaísnum verður að nota
meira en 0,5%. Er þá venju-
lega notað 4—5% af eggjum og
verður rjómaísinn þá alveg sér-
staklega ljúffengur.
Bindiefni verður að nota í
öllum tegundum af rjómaís, en
nægilegt er að nota aðeins,
0,25%. Það eru til margar teg-
undir af bindiefnum, og eru
þau algengustu, gelatín og
natríum alginate. Þessi bindi-
efni hafa þann eiginleika að
geta bundið vatn í ríkum mæli
og veröur rjómaísinn við það
miklu mýkri og síður grófur við
geymslu.
Ekki má gleyma að minnazt
á ávaxtaísinn (sherbet). Hann
er frábrugðinn rjómaísnum að
þyí leyti að aðeins lítið af
mjólkurþurrefnum eru í hon-
um. í staðinn koma margs
konar ávaxtasafar, svo sem
appelsínu-, sítrónu-, grapefruit-
og berjasafar, þar að auki mik-
ið sykurmagn, eða allt upp í
35%. Einnig er það einkenn-
andi fyrir ávaxtaísinn, að af
honum er sérstakt súrt bragð,
sem stafar af því, að lítið eitt
af sítrónusýru er bætt saman
við hann.
Þéttuð mjólk.
Ástæðan fyrir því að mjólk
er þéttuð eða þurrkuð er sú, að
rúmmál hennar minnkar mikið
og geymsluhæfileikarnir aukast.
Margs konar gerðir af þétt-
aðri mjólk eru til, en algengust
er þéttaða nýmjólkin. Hún inni-
heildur venjulega 7—8% af fitu
og 17—18% af öðru þurrefni.
Þessi mjólk er aðallega seld í
dósum, sem hafa verið dauð-
hreinsaðar með mjólkinni í.
Eins og áður var getið, er mikið
notað af þessari mjólk fyrir
ungbörn og er þá bætt í hana
bæði vitamínum og söltum.
Þéttuð undanrenna með 28—
34% af fitusnauðu þurrefi er
mikið notuð til iðnaðar, svo sem
framleiðslu á sælgæti og við
kökugerð. Víða er ennfremur
notað um 6% af fitusnauðu
þurrefni í brauðgerð og gefst
sérstaklega vel, meira að segja
er í sumum ríkjum Bandaríkj-
Styrjöld eða friður
(Framhald af 2. síðu)
Kaupfélögin eru fulltrúar
fyrir heildir. Félagsmenn í
kaupfélagi fá greiddan ágóða af
vöruverzluninni, þann, sem þeir
ráðstafa ekki í framkvæmdir til
félagsins, sem þeir eiga saman
eða leggja í varasjóði þess. Með
því að leggja skatta á kaupfélög-
in er því verið að leggja skatt á
alla félagsmenn þess. Það væri
því alls ekki óeðlilegt, þó að
kaupfélögin greiddu lægri skatta
að tiltölu en einstaklingar, sem
hirða ágóðann í eigin vasa.
Kaupfélögin eru samtök manna
til að gera sem hagstæðust kaup
og selja neytendum sem ódýrast.
Slík samtök ber ríkinu að styðja,
en ekki hefta. Magnúsi Jónssyni
ætti að vera um það kunnugt,
er Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga fékk svo takmörkuð
innflutningsleyfi hjá „nýsköp-
unarstjórninni" sálugu, þar sem
Pétur Magnússon réði fjármál-
um, að kaupfélög neyddust til
að skipta við heildsala, ef vörur
áttu að fást. Þannig stuölaði
stjórnin sú aö vexti og viðgangi
spilltrar heildsalastéttar, þó að
Sósíalistar í þeirri stjórn hafi
áður látið á prenti út gahga
hreystiyrði um að skera heild-
salana niður við trog.
Á meðan samvinnufélögin fá
takmörkuð innflutnihgsleyfi, er
heildsölum þolað að flytja inn
og selja almenningi maðkaða
ávexti. Hefir ekkert áþekkt borið
við síðan á tímum Hörmangar-
anna. Hefir það ekki þótt nein
fyrirmynd fram að þessu.
Stærsti flokkur landsins eyðir
orku í að verja og vernda þessa
stétt óþarfra manna og spilltra.
Það er kominn tími til að þjóðin
átti sig á, hvert þessi flokkur
stefnir.
Æska landsins hlýtur að
berjast fyrir sem jafnastri
skiptingu fjármagnsins á þjóð-
félagsþegnana. íslenzk æska
hlýtur því að berjast gegn for-
réttindaaðstöðu einstakra auð -
jöfra. ísland framtíðarinnar má
ekki verða byggt örfáum ríkis-
mönnum og örsnauðri alþýðu.
Aðstixða einstaklinganna þarf
frá upphafi að vera sem jöfnust.
Þá fá þeir bezt notið sín.
J. Hj.
Frtí umræðunum um
frumvarpið.
(Framhald af 1. síðu)
fjárhagsmálunum. Kvaðst hann
vilja mega vænta þess, að frá
stjórninni kæmu frekari tillög-
ur um frambúðarlausn þeirra
mála og væri nauðsynlegt að
kanna afstöðu manna til þess
áður en þingi lyki. En nauðsyn
róttækra aðgerða í þessum mál-
um væri óumdeilanleg, en þær
yrðu því örðugri, sem þær væru
dregnar meira á langinn.
anna lögboðiö að nota 3—6%
af fitusnauðu mjólkurþurrefni
við alla brauðgerð.
Þéttuð og sykruð mjólk er
nokkuð algeng erlendis. Hún
hefir um 40% af sykri og-batna
geymsluhæfileikar hennar mjög
mikið við það, því að sára fáir
gerlar geta þróast í svo miklu
sykurmagni. Ger og myglu-
sveppir, sem þola vel mikinn
sykur, eru drepnir með hitun á
mjólkinni áður en hún er þétt-
uð. Sykruð mjólk er aðallega
notuð til sælgætisgerðar og
lítið eitt iÁið franfye'iðklu á
rjómaís.
Framh.
LUMA
íí
rafmagnsperur
crn góðar og ódýrar.
Þær eru mi fyrirliggjamli hjá flestmn
kaupfélögum landsins
Einkaumboð:
Samband ísl. samvinnuf élaga
(jatnla Síó
ÞAKKARAVARP.
Mínar beztu þakkir votta ég sveitungum mínum, vinum
og vandamönnum, nær og fjær, sem með fjölmennri
heimsókn, skeytum og stórgjöfum, heiðruöu mig á fimm-
tugs afmæli mínu 12. þ. m.
Þakka samstarf og ánægjulega kynningu á liðnum
árum.
Guð fylgi ykkur öllum.
Efrimýrum 20. marz. 1947.
BJARNI Ó. FRÍMANNSSON.
BIFREIÐAEIGENDUR!
Nýkomið frá Frakklandi:
Frosf löglir.
Rafgeymar,
Siijókeðjur.
Riiðuhitarar,
Smurolíur,
Cylinderolía.
Columbus h.f.
Símar 6460 og 6660.
Sænska frystihúsinu.
Tí maritið
„SYRPA“
2. hefti er komið át og fæst í öllum
bókaver zl uiiiim.
EFNI :
Hannes Davíðsson: Tvær íbúðir.
Björn Sigfússon: Kennsla í bragfræði.
Bjarni Vilhjálmsson: Dönskuslettur.
Guðrún Sveinsdóttir: Bernskuminningar frá heimili
Matthíasar Jochumssonar.
Jón Jóhannesson: Hljóð úr horni að vestan.
Valborg Sigurðardóttir: Mótþróaskeiðið.
Elsa Guðjónsson: Um klæðaburð í skólum.
Bréf frá Jóni Hjaltalín til Jóns Sigurðssonar. áður
óprentað.
Endm’minningar Gythu Thorlacius (þýðing).
Tvær sögur eftir Tove Ditlevsen (þýðing).
Frumleg veggábreiða eftir Jörund Pálsson.
Ritdómar. Karladálkur. Dægradvöl. Ævintýri.
Ég undirrit.... óska að gerast áskrifandi að tíma-
ritinu SYRPU frá.......
Nafn ...................................
Heimilisfang ....................:......
Póststöð ...............................
Til auglýsingaskrifstofu E. K., pósthólf 912, Reykjavík.
Gerist áskrifendur að
„SYRPU“
ÆVINTÝRI
A FJÖELEM
(Thrill of a Romance)
Bráðskemmtileg og hrífandi
fögur Metro Goldwyn Mayer
söngvamynd í eðlilegum litum.
Aðalhlutverkin leika:
Sundmærin
Esther Williams,
Van Johnson
og óperusöngvarinn frægi
Lauritz Melchior.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
%> £íé
(viS Shúlaqötu)
Innheimtu-
menn Tímans
Munið að senda greiðslu
sem allra fyrst.
Þér unni ég mest
(Because of Him)
Skemmtileg og vel leikin mynd.
Deanna Durbin,
Charles Laughton,
Franchot Tone.
Sýnd kl. 9.
SAMEINAÐIR STÖNDUM VÉR
Spennandi „Cowboy" mynd,
með kappanum
Rod Cameron.
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð yngri en 12 ára.
~fjarnarhíó
Sesar og Kleopatra
Stórfengleg mynd í eðlilegum
litum eftir hinu fræga leikritl
BERNHARD SHAWS
Vivien Leigh
Claude Rains
Stewart Granger
Leikstjóri: Gabriel Pascal
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
55Í5555555555555555555555555555555ÍÍ5555555555555555555555555Í555555555555
Bókamarkaður
HELGAFELLS
heldur áfraui meðan nokkur hinna lækk-
uðu bóka eru óseldar.
Allar þær bækur sem seldar voru á bókamarkaði Helgafells
hafa nú verið innkallaðar alls staðar af landinu. 20—30
þeirra eru nú með öllu uppseldar og' af flestum fá eintök
eftir. Framvegis verða þessar bækur aðeins afgreiddar
gegn sérstakri pöntun, sem senda má til hvaða bóksala
sem er á landinu, eða beint til forlagsins. — Fullkomnar
bókaskrár liggja hjá bóksölum og umboðsmönnum Helga-
fells um allt land, og geta allir fengið þær afhentar til þess
að panta eftir. Þær bækur, sem til eru á hverjum tíma
verða afgreiddar samstundis til viðkomandi bóksala.
Enginn, sem áhuga hefir fyrir fögrum bókmenntum og
vönduðum bókum, ætti að draga að notfæra sér þetta ein-
staka tækifæri til þess að eignast fjölda úrvals bóka með
ótrúlega lágu verði.
í hverri viku hverfa fleiri og fleiri bækur af markaðn-
um, því að eftirspurnin er geysimikil.
Athugið, að á bókamrakaði Helgafells er EKKERT RUSL,
allt úrvals ritverk, óskemmdar og fallegar bækur fyrir
ótrúlega lágt verð, sumar seldar fyrir aðeins % hluta
verðs,
HELGAFELL
ii
Garðastræti 17.
Ilox 263.
Rifreiðastjórafélagið Ilreyfill.
HAPPDRÆTTISBÍLLINN
ER KOMINN
Aðeins 20 dagar þangað til dregið verður. Dragið þvi
ekki stundinni lengur að kaupa happdrættismiða, þeir
fást’ í bifreiðinni sjálfri, sem verður á götum bæjarins
næstu daga. Happdrættismiðar fást ennfremur í flestum
leigubifreiðum og bifreiðastöðvum og víðar í bænum og í
öllum kaupstöðum og kauptúnum landsins.
Dregið verður 1. maí 1947.
Drætti verður ekki frestaðí
Rlfreiðastjórafélagið Hreyfill.
< >
< >
O
O.
o
O
o
o
o
< >
o