Tíminn - 18.04.1947, Blaðsíða 1
í RITSTJÓRI: |
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON 1
1'' ÚTGEPANDI:
PRAMSÓKNARFLOKKURINN \
Simar 2353 og 4373
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. 1
) I :ITSTJÓRASKRIPSTOFUR:
EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A <
Sírnar 2353 og 4373
| APGREIÐSLA, INNHEIMTA
j, OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: i
EDDUHtJSI, Lindargöw 9A (
) Sími 2323
31. árg.
Reykjavík, föstudaginn 18. apríl 1947
73. blað
ERLENT YFIRLIT:
Verðlagsmálin í Bandaríkjunum
Stjóruin reynir að fá iðnaðarfyrirtsekin til
að lækka verðlagið
Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa nú miklar áhyggjur út af
verðlagsmálunum þar í landi. Því er spáð, að verði þar ekki
veruleg verðlækkun innan tíðar, muni verkalýðsfélögin telja sig
neydd til að bera fram nýjar kaupkröfur og það leiði svo aftur
til verðhækkunar. Jafnframt óttast þeir offramleiðslu í ýmsum
greinum, ef salan verður ekki aukin með því að lækka verðið.
Stórkostlegt slys í
Bandaríkjumim
Mörg þúsund mnnns
hafa farizt og fleiri
Isúsundir særzt
Eitthvert mesta stórslys,
sem sögur herma frá, varð í
olíubænum Texasborg í
Bandaríkjunum í fyrradag,
þegar sprenging varð í skipi,
er var hlaðið köfnunarefnis-
áburði. Hlutust síðan af henni
sprengingar í verksmiðjum og
olíugeymum við höfnina og
má segja, að næstum allt
hafnarhverfið sé í rústum.
Hundruð manna hafa látið
lífið, en margar þúsundir
manna særzt meira eða
minna.
Tildrögin voru þau, að eldur
kom upp í áburðarflutninga-
skipinu „Grand Camp.“ Þegar
ekki reyndist mögulegt að
slökkva hann, átti að draga
skipið úr höfninni, en það
reyndist um seinan. Ógurleg
sprenging varð í skipinu, sem
eyðilagði það fullkomlega og
dráttarbátana í nánd þess. Járn-
stykki úr skipinu þeyttust marga
(Framhald á 4. síðu)
ERLENDAR FRÉTTIR
Nokkur von er nú talin um
það, að Moskvufundurinn gengi
frá friðarsamningnum við Aust-
urríki. Molotoff hefir lýst sig því
samþykkan, að reynt verði að
ganga frá samningnum á fund-
inum. Samkomulag hefir orðið
um, að ekki skuli önnur ríki
fjalla um hann en fjórveldin.
Finnska stjómin hefir beðizt
lausnar vegna þess, að bænda-
flokkurinn sagði henni upp
hollustu sinni. Horfur eru á ,að
aðalbankastjóri í’innlandsbanka
myndi nýja stjórn með stuðn-
ingi gömlu stjórnarflokkanna,
þ. e. jafnaðarmanna, bænda-
flokksins og kommúnista.
Wallace, fyrrum varaforseti
Bandaríkjanna, er kominn til
Stokkhólms eftir nokkra dvöl í
Bretlandi. Við burtförina frá
Bretiíindi lét hann í ljós mikla
aðdáun á Bretum. Viðræður við
brezka stjórnmálamenn hefðu
orðið sér'siðferðilegur styrkur og
væru Bretar bæði skilningsgóðir
og óhlutdrægir i afstöðu sinni
til annarra þjóða. Hann kvaðst
fullviss um, að brezka stjórnin
myndi fær um að leysa vanda-
mál landsins.
í Madrid hafa nýlegar verið
handteknir allmargir stuðnings-
menn útlagastjórnarinnar.
Á Madagaskar standa enn
yfir bardagar milli þjóðernis-
sinna og franska setuliðsins.
Óaldarflokkar Gyðinga í Pal-
estínu hafa mjög í hótunum við
Breta út af aftöku Dov Grtiner
í fyrradag. Hóta þeir að drepa
7 Breta fyrir hvern Gyðing,
sem sé tekinn af lífi.
Verðlagslöggjöf sú, sem var
sett á stríðsárunum, hefir nú
verið afnumin að mestu leyti,
svo að ríkisstjórnin getur lítil
bein áhrif haft á þessi mál. Hins
vegar reynir stjórnin að halda
uppi markvissum áróðri fyrir
því, að atvinnurekendur og
verkalýðssamtökin gæti hófs í
aðgerðum sínum. Einkum hefir
hún beint máli sínu til atvinnu-
rekenda að undanförnu og hefir
Truman forseti hvað eftir annað
hvatt þá til verðlækkunar. Einn-
ig hefir hann látið fara fram
viðræður við stærstu iðnfyrir-
tæknj. og reynt að hafa áhrif á
aðgerðir þeirra á þann hátt.
Skýrslur, sem hafa verið birt-
ar um afkomu iðnfyrirtækja á
síðastl. ári, sýna, að gróði þeirra
hefir orðið mjög mikill og stór-
um meiri en 1945. T. d. var ný-
lega birt skýrsla um afkomu 36
bómullarverksmiðja, er sýndi,
að hreinn gróði þeirra hafði
orðið 23.8% af höfuðstólnum
árið 1946, en ekki nema 8% á
árimj 1945. Það er á þessum upp-
lýsingum, sem stjórnin byggir
kröfur sínar til iðnfyrirtækj -
anna um verðlækkun. Einnig
hefir hún borið fram kröfur um,
að fyrirtæki, sem fást við sölu
landbúnaðarvara, lækki álagn-
ingu sína. Telur stjórnin, að
þannig sé hægt að lækka verð
landbúnaðarafurða verulega, án
þess að skerða hlut bænda.
Stjórnin bendir á það, að önn-
ur hætta en kaupkröfur og verk-
föll komi einnig til greina, ef
verðlagið lækkar ekki. Skýrslur
sýni, að sparifjáreign almenn-
ings hafi minnkað á síðastl. ári,
þrátt fyrir hærri kaupgreiðslur
og meiri atvinnu en nokkuru
sinni fyrr. Framleiðendur megi
því ekki álíta, að hin mikla
vörueftirspurn á síðastl. ári,
haldist óendanlega, heldur bygg-
ist hún á því, að menn hafi ver-
ið að nota sparifé sitt frá stríðs-
árunum til -að kaupa ýmsan
varning og muni, sem þá hafi
vanhagað um. Hér sé því um
stundarfyrirbrigði að ræða og
fljótlega muni draga úr henni,
nema hún verði örvuð með
verðlækkun. Verðlækkun muni
þvi verða framleiðendum sjálf-
um til hagsbóta, er til lengdar
lætur. í þessu sambandi er bent
á þá skoðun margra hagfræð-
inga, að hægt hefði verið að
komast hjá kreppunni miklu,
sem varð í Bandaríkjunum 1929,
ef framleiðendur hefðu ekki
haldið verðlaginu ofhá-u, heldur
lækkað það i tíma til að örva
eftirspurnina. Hagkerfi frjálsr-
ar samkeppni og einkarekstur
byggist á því, að atvirmurekend-
ur hafi fullan skilning á þessu
atriði og hagi sér eftjr því.
Það mun áreiðanlega ráða
miklu um hag Bandaríkja-
manna og afstöðu þeirra sem
heimsvejldis, hvernig stóriðju-
höldarnir bregðast við umrædd-
um óskum stjórnarinnar. Nokk-
ur stór fyrirtæki, eins og Ford
og International Harvester
Company, hafa þegar lækkað
verðið. Það myndi verða stjórn-
skipula;fci Bandaríkjanna mikill
styrkur og álitsauki, ef það tæk-
ist þannig með frjálsum hætti
að hafa heilbrigða stjórn á fjár-
hagsmálunum. Hins vegar
(Framhald á 4. slðu)
Frá málverkasýrLLngunni í Listamannaskálanum
t
Þetta er ein af myndunum á mál verkasýningu félajjs frístundamálara.
Hún nefnist Gamla borðið og er eftir Gunnar Magnússon námsmann.
Ný tegund aflvéla,sem
valdið geta stór-
breytingum
U pp f iimin jgíí inaðuriiin
sænskur verkfræð-
ingur
Sænskur verkfræðingur er
talinn hafa fundið upp nýja
gerð aflvéla, sem ef til vill mun
hafa í för með sér stórkostlegar
breytingar, þegar fram líða
stundir.
Aflvélar þessar eru nefndar
loftþensluvélar og taldar hafa
maríja og mikla kosti umfram
venjulegar benzínvélar, svo að
vænta má, að þær ryðji sér fljót-
lega til rúms, til dæmis í bifreið-
ar og önnur samgöngutæki.
Þær eru miklu léttari og fyr-
irferðarminni en gömlu vélarn-
ar, einfaldari að gerð og óvand-
ari að brennsluefni, svo að þær
brenna hráolíu og tréspíritus.
Auk þess eru þær hljóðlitlar,
svo að ekki heyrist meira í þeim
en y,enjulegri saumafVél, £ótt
enginn hljóðdeyfir sé á þeim.
Fleiri kosti eru þær sagðar hafa
til að bera.
Þykir mjög líklegt, að þær
hafi í för með sér miklar og
margvíslegar breytinyar, ef þær
reynast svo sem af er látið.
16 sækja um Hafnar-
fjörð - enginn um hin9
Eru læknar að verða
. ófáanleglr í dreif-
býlið?
Nýlega er útrunninn um-
sóknarfrestur um tíu læknis-
| héruð, sem auglýst voru laus.
Um eitt þessara læknishéraða
hafa sótt sextán læknar. Það er
Hafnarfjarðarhérað. En um hin
níu, sem öll eru út á landi, hefir
ekki einn einasti læknir sótt.
Dá-skemmtileg spegilmynd af
ástandinu í læknamálum dreif-
býlisins.
Lagt til að fjölgað
verði í f járhagsráði
Fjárhagsnefnd n. d. hefir nú
lokið athugun sinni á stjórnar-
frumvarpinu um fjárhagsráð og
innflutningsverzlun, en því var
vísað þangað eftir 1. umræðu.
Fulltrúar stjórnarflokkanna í
nefndinni leggja til, að frv.
verði sgjnþykkt með nokkrum
breytingum, m. a. að fjárhags-
ráðið verði skipað fimm mönn-
um, er stjórnjin tilnefnlr, en
ekki var gert ráð fyrir nema
fjórum mönnum í frv. Fulltrúi
sósíalista skilar séráliti.
Frv. verður sennilega tekið til
2. umræðu strax eftir helgina. 1 aðstæður leyfa.
Rangæingasöfnunin
geiigur of seint
Flugfélag íslands lætur
15% af Hekluflug-
gjöldum renna til
heiinar
Söfnun Rangæingafélagsins
til styrktar þeim, er harðast
hafa orðið úti af völdum Heklu-
gossins, gengur ekki eins greið-
lega og skyldi. Það er eins og
fólk hafi ekki áttað sig á þvi,
hversu þungum búsif j um
fjöldamörg rangæsk heimili
hafa orðið fyrir, þvi að ekki
verður því trúað að óreyndu, að
íslenzk hjálpfýsi og mannlund
sé í slíkri rénun, að þetta sein-
læti sé spegilmynd af því.
Nú hefir Flugfélag íslands
gengið myndarlega fram fyrir
skjöldu. Það hefir ákveðið að
láta 15% af fargjöldum þeirra,
sem fljúga í vélum þess austur
yfir Heklu þessa daga, renna í
hjálparsjóðinn.
Tíminn skorar á alla, sem
: unna hinum fögru byggðum
I Rangárþings, er nú eru huldar
jösku og vikri, og geta sett sig
i í spor þeirra, er horfa á eignir
, sínar og heimili undirorpið
eyðileggingu, að láta fordæmi
Flugfélags íslands um fjár-
: framlög verða sér til eftir-
breytni eftir því sem geta og
Bóndi á Alftanesi finnur upp stór-
virka aðferð við dreifingu
húsdýraáburðar
Stefán Jonsson á Eyvindarstöðuin lýsir liinum
nýja áburðarslóða síniiiu
Á útmánuðum f fyrra var bóndi á Álftanesinu svo slæmur af
gigt, að hann treysti sér ekki til þess að moka úr hlössunum
á túni sínu, en enginn kostur að fá mann til þess. Hann fór þá
að hugsa um, hvort ekki væri hægt að dreifa áburðinum með
fljótvirkari og heppilegri aðferð heldur en tíðkuð hefir verið hér
á landi. Eftir skamma umhugsun fann hann ráð, sem reyndist
r.fburðavel.
Þessi bóndi er Stefán Jónsson
á Eyvindarstöðum. Tíðindama~ð-
ur Tímans hafði nýlega spurnir
af þessari uppgötvun Stefán, og
þar eð hér virðist um að ræða
merkiiega og þýðingarmikla
nýjung í vinnubrögðum, sem þó
er enn mjög fáum kunn, átti
hann í gær tal við Steíán bónda
og bað hann að lýsa fyrir les-
endum Timans þessari nýju að-
ferð sinni um dreifingu hús-
dýraáburðar.
Gigtinni skákað.
— Ég fékk gigt í fyrra um það
leyti, sem ég þurfti að fara að
moka úr á túninu, sagði Stefán,
og mér reyndist ógerlegt að fá
nokkurn mann til þess að gera
það. Mér þótti komið í óefni, ef
grasið yrði nú að gróa upp úr
hlössunum hjá mér, svo að ég
fór að velta því fyrir mér, hvort
ég gæti ekki dreift áburðinum
með öðrum og auðveldari hætti
en tíðkazt hafði. Ég var búinn
að fá dráttarvél og virtist ekki
ólíklegt að nota mætti hana ti!
þess að dreifa úr hlössunum.
ef ég gæti látið mér hugkvæm-
ast viðeigandi útbúnað til þess.
Loks staðnæmdist hugur minn
við bogjárnin úr hermannaskál-
um setuliðsins, sem nóg er til
af hér um slóðir, sem víðast
annars staðar. Og það kom á
daginn, að mér hafði hér dottið
í hug úrræði, sem kom að haldi.
Ég dreifði áburðinum á túnið
bæði fljótt og vel, þrátt fyrir
gigtina, auk þess sem tilkostn-
aðurinn varð stórum minni,
heldur en þótt mér hefði tekizt
að fá einhven mann til þess.
Áburðardreifari Stefáns á
Eyvindarstöðum.
Þessi áburðardreifari minn er
í rauninni ákaflega einfaldur.
Ég fékk mér gildan og sterkan
staur og allmarga járnboga.
Staurinn festi ég aftan í drátt-
arvélina og boltaði síðan í hann
fremsta bogann. Síðan festi ég
hvern bogann aftan í annað
með 9—10 þumlunga millibili
og hafði á milli þeirra járnkeðj-
ur festar með hnoðnöglum eða
lásum.
Ég byrjaði með 20 boga. En
það reyndist heldur þungt fyrir
dráttarvélina, svo að ég fækk-
aði þeim niður í fimmtán, enda
unnu þeir jafn vel fyrir það.
En þá gat dráttarvélin hæg-
lega dregið þennan slóða, þegar
hún var í þriðja gíri.
Bœði fljótlegt og vel gert.
Síðah ók ég dráttarvélinni á
hlössin. Dreifðist áburðurinn þá
undir bogana og aftur með
þeim til beggja hliða, unz hann
lá fínmulinn og jafndreifður um
alla spilduna, eftir nokkrar yfir
ferðir. Var því líkast, sem hann
hefði verið mulinn með kláru, ^
svo alls ekki þurfti að hugsa
til þess að herfa eða slóðadraga,
eins og gera verður, þegar mok-
að er úr á venjulegan hátt. Þar
að auki var svo, hversu þetta
var miklu fljótlegra og hægara.
Grasrótin skemmdist ekki hið
minnsta. En vitanlega þarf land-
ið að vera slétt.
Tilvalið til þess að slétta
flög.
Þessi útbúnaður kemur líka
að góðu gagni við fleira en á-
burðardreifingu. Hann er til val-
inn til þess að slétta flög og
jafna úr moldarhaugum. Aftur
á móti er ekki hægt að nota
hann, nema menn hafi sterkar
aflvélar, dráttarvélar eða jeppa
með drifi á öllum hjólum.
Hestum er ekki beitandi fyrir
þetta æki — til þess er það mik-
ils til of þungt.
Enn náð lítilli útbreiðslu.
Enn sem komið er mun þessi
aðferð hafa náð lítilli útbreiðslu.
Þó hafa fáeinir bændur tekið
þetta upp. Ég var í fyrra staddur
á fundi í Reykjavík með all-
mörgum bændum úr næstu hér-
uðum. Þá skruppu suður eftir
með mér fáeinir bændur af
Kjalarnesi og úr Kjós og einn
úr Svínadal í Hvalfjarðarstrand
arhreppi. Þeim leizt vel á þessa
nýjung, að ég hygg, og sumir
þeirra munu hafa tekið hana
upp og jafnvel kennt öðrum,
Bœndur, sem reynt hafa þessa
aðferð, eru mjög ánœgðir.
Svo fórust Stefáni á Eyvind-
arstöðum orð um uppgötvun
sína. Tiðindamanni Tímans
þótti fróðlegt að heyra álit fleiri
bænda um þessa aðferð, og átti
hann því símtal við Guðmund
Jónasson bónda á Bjarteyjar-
sandi á Hvaifjarðarströnd, sem
bjó sér til slíkan áburðarslóða
(Framhald 4 4. síðu)
------ ----r———------- ■!1
Fyrir hverju
berjast þeir?
Sósíalistar halda enn áfram
áróðri sínum gegn hinum nýju
tekjuöflunarlögum stjórnarinn-
ar og telja þau leggja stórfelldar
byrðar á almenning.
Sannleikurinn er hins vegar
sá, að hinir nýju tollar ná alls
ekki til brýnustu nauðsynja al-
mennings, t. d. kornvara, kaffis
og sykurs, en að því leyti sem
þeir hækka vísitöluvörur i verði,
verður hækkunin borguð niður
úr ríkissjóði. Raunveruiega
leggjast tollarnir því ekki á aðra
eyðslu en þá, sem sósíalistar
hafa hingað til talið svo ónauð-
synlega, að þeir hafa ekki kraf-
ist þess, að hún væri tekin inn
í vísitölureikninginn.
Sósíalistar eru því ekki að
berjast fyrir alþýðuna, þegar
þeir cru að hamast gegn nýju
tollunum, heldur fyrst og fremst
þá, sem eru efnameiri og leyfa
sér því meiri cyðslu en almenn-
ingur getur gert. Þetta er í
samræmi við framkomu sósíal-
ista meðan þeir voru í ríkís-
stjórninni, en þá nutu gróða-
menn og f járbraskarar betri
aðstöðu til að safna miklum
auði og koma honum undan en
nokkuru sinni fyrr og sfffar.
------------—-------------------